Lögberg - 25.01.1934, Blaðsíða 5

Lögberg - 25.01.1934, Blaðsíða 5
LÖCtBERG, FIMTUDAGINN 25. JAN'ÚAR, 1934. 5 Dánarminning HERDIS JÓNSDÓTTIR BRAY 12. júlí 1846—3. janúar 1934. Á miÖvikudaginn jjann 3. J>. m., lézt að heimili sínu, 426 Langside Street hér i borginni, Herdís Jónsdóttir Bray, ekkja eftir Jóhannes Björnsson Bray, sem látinn er fyrir þrjátíu árum. Herdís heitin var fædd á Vatnshorni í Haukadal í Dala- sýslu þann 12. dag júlímánaðar, árið 1846. Faðir hennar var Jón Hallsson, merkisbóndi, en móðir Björg Hallsdóttir. Hallur var smiður góður og stórf róður maður um margt; var hann bróðir Ólafs, er kallaSur var laga-Ólafur, völundur hinn mesti á tré og járn. Sá Ólafur bjó í Enni í Bitru á Ströndum. Her- dís heitin fluttist til þessa lands í stóra hópnum svonefnda, áriS 1876; urSu þau Jóhannes maður hennar samskipa frá íslandi, en voru gefin sarpan í hjónaband i Mikley áriS eftir, af dr. Jóni Bljarnasyni; dvöldu þau í Nýja íslandi í gegnum eldraunir ból- unnar og landnámsstríSsins. Komu þá glögglega í ljós þau hetjueinkenni Herdísar, er móttiöu líf hennar fram til æfiloka. Snemma á tíS fluttust þau Jóhannes og Herdís til Winni- peg, og reistu jrar heimili i borginni, er áSur getur; var heimiliS jafnan orSlagt fyrir risnu og skörungsskap. Svo var Herdís heitin hjálpsöm og góShjörtuS aS ekkert aumt rnátti hún sjá, án þess aS hlaupa undir bagga og veita liSsinni. Hún var kona fluggáfuS og nænr meS afbrigSum á íslenzk ljóS, enda sjálf skáldmælt vel. Mun eftir hana liggja talsvert af ljóSum og vís- um er vert væri aS vernda frá gleymsku. Svo segja kunnugir menn, aS Herdís heitin hafi veriS ó- venju bráSþroská; því til sönnunar er á jiað bent, aS er hún var 9 ára, hafSi hún einhverju sinni veriS á ferS meS jafnaldra leiksystur sinni; á leiSinni Jxirftu þessir ungu ferSafélagar aS fara yfir læk; þótti Herdísi sem þar væri um litilf jörlega sprænu aS ræSa, er eigi skyldi verSa þeim til faratálma; leiksystur hennar, sem var lítilsigldari, leizt ekki á blikuna, og vildi hvergi fara. Mælti Herdís þá vísu þessa af munní fram: Vonin sú ei virSist myrk, vefjan gullinspanga. ViS meS hæSa herrans styrk hérna skulum ganga. ÞaS fylgir sögunni, aS svo mikiS ásmegin hafi hinni í- stöSulitlu, ungu stúlku vaxiS viS visu þessa aS hún hafi ókvíSin vaSiS lækinn meS Herdísi. — Jóhannes, rnaSur Herdísar, var ættaSur af Skógaströnd. Hina nýlátnu, ástríku móSur, syrgja eftirgreind börn: Bertha, ógift, heima; Mrs. M. Wood; Mrs. W. J. Crooks; Mrs. G. M. Bankes; Mrs. J. Frechette, og Gunnlaugur heima á íslandi. MeS Herdísi Bray, er gengin grafarveg, þreklunduS og hjartaheit kona, er ávalt og á öllum sviSum, kom frarn til góSs; kona, er í hárri elli, aS loknu löngu og nytsömu dagsverki, kvaddi þetta jarSneska lif meS óbifandi trú á ljósiS frá sigur- hæSunum miklu. JarSarför Herdisar fór fram frá Fyrstu lútersku kirkju á laugardaginn þann 6. þ. rri. Dr. Björn B. Jónsson stýrSi kveSju- athöfninni í kirkjunni meS aSstoÖ séra Rúnólfs Marteinssonar. -------- E. P. J. Herdís Jónsdóttir Bray. Ó, guSi sé lof, sem aS gaf. okkur þig svo göfga og trúfasta móSir, en nú ert þú horfin af stundanna stig og strengirnir indælu hljóSir. Hve sælt er aS hvílast og sofna i ró þá síSasti dagur er liSinn, í ástkærri minning um æfinnar sjó og aftaninn heiSa meS friSinn. Sem geislandi voriS um vonanna lönd er vermir þaS kalda og dauÖa, þú réttir af kærleika hug þinn og liönd til hjálpar því veika og snauÖa. og þvi eru hjörtun viS kvöldiö þitt klökk og kveÖjan meS þíÖróma strenginn, frá vinum sem líta af lotning og þökk á ljósríka ferilinn genginn. Af framgjörnum vilja þín hugsjón var há aS hef ja og græSa og laga, meS hlúandi ylgeisla hjartanu frá um heiSríka farsæla daga. Því vanst þér í fámennri fylkingu hrós, aS frumbýlings harSsóttu verki, frá íslenzka tápinu leiftraSi ljós, er lyfti á braut þínu merki. Nú finst okkur heimiliS dapurt og dautt, þvi dýrasta perlan er falin; viS horfum á rúmiS, í rökkrinu, autt, en rödd heyrist líöa um salinn, sem býSur oss öllum á fagnaSarfund þá ferSinni lýkur á jörSu, °g sorgin er búin meS blæÖandi und °g böliS í stormunum hörSu. í nafm barna og vina hinnar látnu. Markússon. Kaflar úr bókinni um San Michele Eftir Axel Munthe Framh. Uni mána. —Máninn var í fyllingu. Mér stendur stuggur af mánanum. Þessi dularfulli gestur hefir oft haldiS fyrir mér vöku og hvíslaÖ of mörg- um draumum i ,eyra mér. ÞaS er ekkert dularfult viS sólina, þennan geislandi guS dagsins, sem flutti líf og ljós inn í jarÖarmyrkrin og vakir ennþá yfir okkur meS eldlegu*auga sínu, löngu eftir aS aSrir guSir, þeir, sem höfSu aSsetur á bökkum Nílar,' guSir Olymps og guÖir Val- hallar eru horfnir út í sortann. En enginn veit neitt um rnána,, þenna föla ferÖalang á stjörnuskrýddum næturhimninum, sem alt af starir á okkur úr fjarska, svefnvana, köld- um, gljáandi augum og meS sama háÖglottiÖ í svipnum. Mademoiselle Elopette. —Á leiÖinni niSur eftir strætinu þurfti vinur minn'aS fá sér glas af víni, svo aS viS settumst viS borö fyrir utan eitt veitingahúsiS. “Bonsoir, cheri,” sagSi stúlkan viS næsta borS og sneri sér aS vini mínum. “Viltu ekki gefa mér glas. Eg hefi ekki fengiS neinn kvöld- verS.” Norström svaraSi í höstum róm, aS hún skyldi láta sig í friÖi. “Bonsoir Chloe!” sagöi eg. “Hvernig líSur Flopette?” “Hún heldur sig í hliSarstrætunum, því aS þeir lita ekki viS henni hér á aSal- strætunum fyr en þá eftir miS- nætti,” um leiÖ og hún sagSi þetta kom Flopette og settist viS hliS stall- systur sinnar. “Nú hefirSu aftur drukkiS þig fulla, Flopette,” sagSi eg, “langar þig til aS fara norSur og niSur um- svifalaust?” “Já,” svaraSi hún hásri röddu. “ÞaS getur varla orSiS verra þar en hér.” “Þú lætur þér ekki mjög ant um hverja þú unngengst,” nöldraSi Nor- ström og horfSi meS viSbjóSi á vændiskonurnar tvær. “Eg hefi kynst verri manneskjum en þessum tveimur,” sagÖi eg. “Auk þess er eg læknir þeirra. Þær hafa búðar tekiS holdsveiki nútímans, ab- sintiö flýtir fyrir þeim, og áSur en langt um líSur hafna þær á St. Fazare eSa í göturæsunum. Þær vilja aS minsta kosti ekki sýnast annaS og meira en þær eru. Þú mátt ekki gleyma því, aS þær eiga karlmanni þaS aS þakka, hvernig komliS er fyrir þeim, og aS annar karlntaSur stendur þarna yfir á næsta götuhorni og tekur af þeim peningana, sem viS gefum þeim. Þær eru ekki eins slæmar og þú heldur, þessar vændiskonur, þær halda áfram aS vera konur til síS- ustu stundar, meS öllum sínum göll- um, já, og jafnvel sumum kostun- um líka, sem eftir verSa, þótt falln- ar séu. Þótt ótrúlegt sé, geta þær meira aS segja oröiö ástfangnar í göfugustu merkingu þess orS, og á- takanlegri sjón er ekki til. Eg hefi orSiS fyrir því, aS vændiskona varS ástfangin í m)ér. Hún varS ófram- færin og feimin eins og ung stúlka, gat jafnvel stokkroSnaS undir farSa- skáninni. Þessi ógeöslega kvenvera þarna viS næsta borS hefSi meira aS segja getaS veriS prýSilegasti kven- maSur, ef hún hefSi haft tækifæri til þess. Eg skal segja þér sögu hennar.” \ iS leidumst niSur eftir stræt- inu, og eg byrjaöi söguna. “Manstu,” sagSi eg, “eftir kvenna- skólanum í Passy, sem sankti Theresu-systurnar héldu og þú heimsóttir ásamt mér í fyrra? ViS fórum þangaS til þess aS vitja þar sænskrar stúlku, sem dó úr tauga- veiki ? ÞaS tók önnur stúlka tauga- veikina þarna í skólanum skömmu seinna, og eg var sóttur til hennar. Hún var frönsk, í kringum fimtán ára gömul og ljómlandi falleg stúlka. Kvöld eitt, þegar eg var aS fara úr skólanum, ávarpaÖi kvenmaSur mig, eins og svo algengt er hér í París. Tlún hafSi veriö á stjái á gangstétt- inni andspænis húsinu. Eg sagSi henni kuldalega aS láta mig í friÖi, en hún baS mig auömjúklega aS lofa sér aS segja viS mig fáein orS. Hún hafSi staSiS vörS á hverjum degi alla vikuna, þegar eg kom úr skól- anum, en ekki haft kjark í sér til aS ávarpa mig, meS því aÖ eg fór áSur en dimrna tók. En nú haföi hún loks hert upp hugann. Hún nefndi mig herra lækninn og spurSi meS titrandi röddu, hvernig ungu stúlkunni meÖ taugaveikina liSi. Var hún hættulega veik? “Eg verS aS fá aS sjá hana áSur en hún deyr,” sagSi hún meS grát- staf í kverkunum, og tárin runnu niSur málaSar kinnar hennar. “Eg verö aS fá aS sjá hana; eg er móSir hennar.” Nunnurnar vissu ekki um þetta. BarniS hafSi veriÖ faliS þeim til gæzlu, þegar þaS var þriggja ára. MeÖlagiÖ meS því var greitt frá banka einum. Sjálf hafSi hún ekki séS barniS síÖan nunnurnar tóku viÖ því, nema tilsýndar, því á hverjum fimtudegi stóö hún á strætishorninu grendinni, en þann dag fengu stúlk- urnar aS ganga út sér til skemtunar. Eg lét hana skilja, aS mér segSi þungt hugur um líSan barnsins og lofaöi aS láta hana vita, ef því versn- aSi. Hún vildi ekki segja mér heim- ilisfang sitt, en baS mig aS lofa sér aS bíSa mín á götunni á hverju kvöldi, til þess aS fá fréttir. Alla næstu viku stóS hún Jjarna á hverj- um degi, skjálfandi af kvíöa, og beiÖ mín. Eg varS aS segja henni, aS barninu væri aS versna, en eg þóttist vita, aS ekki gæti komiS til mála aS láta þessa veslings vændis- konu sjá deyjandi barniÖ. Alt sem eg gat gert, var aS lofast til aS láta hana vita, þegar dauÖinn kæmi. Þá samþykti hún loks aS segja mér hvar hún ætti heima. Síöla kvöldiS eftir lét eg aka mér heim til hennar. Hún átti heima í illræmdri götu bak viS Opera Comique. “Komdu aftur!” sagSi matrónan og horfSi á mig steinhissa. Eg sagSi henni, aS eg vildi fá mademoiselle Flopette út meS mér í nótt, eg mundi koma aftur aS sækja hana. Hálftíma síSar, þegar vagninn ók mér aftur heim aS húsinu, sá eg Flopette standa í opnum dyrunum, klædda i skósíSa h j úkrunarkvenna-búning- inn, og utan um hana í hnapp alt mússilínsklædda kvenfólkiS, sem var eins og þaS væri ekki í neinu. “En hvaÖ þú átt gott, en hvaö þú átt gott,” suÖuSu þær hver í kapp viS aöra, “aS fá aS fara á grímu- ball i nótt! Fötin fara þér anzi vel, og þú ert mjög virÖuleg í þeim. Bara aS herrann þinn vildi taka okkur allar meS!” “Amuseð-vous, mes enfants,” sagSi matrónan brosandi og fylgdi Flopette út aS vagninum. “ÞaS eru fimmtíu frankar og eiga aö greiSast fyrirfram.” Um hjúkrun gat varla veriS aS ræSa. Biarninu hafSi versnaS og lá nú meSvitundarlaust. ÞaS var ekki um aS villast lengur, aS dauöinn var í aSsigi. MóÖirin sat alla nóttina viS rúmiö og starSi gegnum tárin á deyjandi barniS sitt. “KyssiS hana að skilnaSi,” sagSi eg þegar dauSastríSið hófst. “ÞaS gerir ekkert til, hún er meSvitundar- laus.” MóSirin hallaSi sér yfir barniö, en hörfaöi svo skyndilega undan. “Eg þori ekki aS kyssa hana,” sagSi hún grátandi, “þér vitiS, aS eg er öll sýkt.” Næsta skifti, sem eg sá Flopette, var hún dauÖadrukkin. Viku síSar kastaSi hún sér i Seine-fljótiS. Hún var dregin upp úr lifandi, og eg reyndi aS koma henni inn á St. Lazare-spítalann, en þar var ekkert rúm laust. MánuSi seinna drakk hún upp úr ópiumglasi. Hún var nær dauSa en lífi þegar eg kom, og eg hefi aldrei getað fyrirgefiS sjálf- um mér, aö eg skyldi dæla eitrinu upp úr henni. I annari hendi hélt hún dauSahaldi utan um ofurlítinn barnsskó, og í skónum lá hárlokkur. Svo tók hún aS drekka absint, sem er eins ósvikiS og hvert annaS eitur, þó þaS sé því miður lengi aS drepa. En hvaS sem um þaS er, þá hafnar hún áður en langt um liður í eín- hverju ræsinu, þar er meira næSi aS drekkja sqr en í Seine-fljótinu.” Viö staSnæmdumst fyrir framan hús Norströms í Rue Pigalle “GóÖa nótt,” sagSi vinur minn. “Þakka þér fyrir samveruna í kvöld.” “Þér einnig,” svaraÖi eg. Utn Schubert. —Ef mér tekst nokkurntíma að ráða viS hinn óstýriláta Pegasus, þá ætla eg í auðmýkt aS yrkja lofsöng um minn elskaSa Schubert, ágæt- asta tónsnilling, sem uppi hefir ver- iS, til þess aÖ þakka honum fyrir þaS, sem hann hefir fyrir mig gert. Eg á honum alt aS þakka. Jafnvel meðan eg lá rúmfastur vikum saman í myrkrinu, og vonin um aS eg rhyndi nokkurntíma komast út úr því aftur var -svo veik, þá var þaS venjá mín aS raula hvert lagiS hans eftir annað. Eg var eins og skóla- drengur, sem ráfar um dimman skóg og blístrar svo sem til þess aS látast ekki vera hræddur. Schubert var nitján ára þegar hann samdi lagiS við Alfakónginn eftir Goethe, sendi síÖan Goethe lagiS og tileink- aði honum þaS i auSmýkt. Eg get aldrei fyrirgefiö stærsta skáldi síS- ustu alda, aS hann skyldi ekki einu sinni svara nteS línu til þess aS þakka manninum, sem hafSi gert ljóð hans ódauÖlegt, og þetta var sá sami Goethe, sem| hafði nægan tíma til aS skrifa þakkarbréf til Zelters fyrir tónsmíSar hans, sem ekki voru þó annaS en meðalmensku verk. Skilningur Goethes á tónlist var eins lélegur og skilningur hans á list. Hann dvaldi heilt ár á ítalíu án þess að skilja nokkuS í gotneskri list. Hin stranga frumræna feg- urð var honum ráðgáta. Carlo Dolci og Buido Reni voru fyrirmyndir hans. Hann var meira aS segja sljór fyrir því bezta úr grískri list; Apollo Belvedere var uppáhald hans. Schubert sá aldrei hafiS, og þó hef- ir ekkert tónskáld, enginn rnálari, ekkert skáld nema Hómer, túlkaS dýrð þess og kyrð, leyndardómsfulla fegurS þess og ofsa, éíns og hann. Hann sá aldei fljótiS Níl, og joó gætu upphafstónarnir í hinu dásarn- lega lagi hans Memnon alveg eins hafa hljómað i Lujor-musterinu. Hann þekti hvorki hellenska list eSa bókmentir, nema þaS litla, sem vin- ur hans, Mayerhofer, kann aS hafa frætt hann um, óg þó eru tónverk hans Die Götter Griechenlandes, Prometheus, Ganymedes og Frag- ments aus Aeschylus snildarverk, eins og upprunnin væru frá gullöld Hellena. Hann fór á mis viS ástir kvenna, og þó hefir aldrei eins sárt ástarkvein hljómaS í eyrum vorum eins og í lagi hans Gretchen am Spinnrade, enginn átakanlegri lausn- aróður heyrst en Mignon hans, eng- inn yndislegri ástarsöngur veriö sunginn en Standchen hans. Hann var þrjátíu og eins árs þegar hann dó, og hann dó fátækur, eins og hann hafði lifaS. Sami maðurinn og samdi An die Musik átti ekki einu sinni pianó. AS honum látnum voru allar jarSneskar eigur hans, fötin, fáeinar bækur, rúmið hans, seldar á uppboði fyrir 63 flórinur. I velktri tösku undir rúminu hans fundust um tveir tugir annara ó- dauölegra lagsmíSa eftir hann, lag- smíða, sem voru meira virSi en alt gull Rothschildanna í Vínarborg, borginni þar sem hann lifði og dó. Framh. Almanak 0. S. Thor- geirssonar fertngt Eftir Richard Beck. Rétt nýkomiS er á prent Almanak O. S. Thorg>eirssonar fyrir yfir- standandi ár, og er þetta fertugasti árgangur þessa fróðlega rits, sem kært er orSiÖ mörgum islenzkum les- endum vestan hafs og austan. Á þessunt timamótum í sögu Alman- aksins þykir mér vel hlýSa, aS minn- ast meS nokkrum oröum á gildi þess og gagn frá byrjun, og leyfi eg mér í því sambandi, að endurtaka þau ummæli mín um þaS, sem eg viS- hafði í EimreiSargreiri minni um , bókmentaiSju íslendinga í Vestur- heimi (1928), en þau eru á þessa ! leiS: “ÞaS hefir eigi aSeins haft inni uð halda sögur, kvæði og ritgerÖir, heldur þaö sem miklu meira er um vert: ítarlega skrá yfir merkustu at- burÖi meSal íslendinga í Vestur- heimi. Og þó er þetta hiS lang markverðasta: í almanaki þessu er skráS hin víötækasta saga íslend- inga vestan hafs, sem enn hefir ver- ið í letur færS, og hin ábyggilegasta. Hefir útgefandinn fengiS gagn- kunnuga menn og áreiSanlega til að rita um bygSarlag hvert. Er eigi aðeins getiS nafns landnemanna, heldur einnig ættar þeirra og upp- runa. Oft er frásögnin einnig prýdd myndum frumbyggajnna íslenzku, og eykur það eigi lítiS á gildi henn- ar. AS AlmanakiÖ er þegar — og verSur enn meir þá stundir líða — ómetanleg heimild aS sögu Islend- inga í Vesturheimi er auSsætt, enda hafa margir merkustu Vestur-'Is- lendingar lagt þar hönd að verki. AlmanakiS verður, eins og einn af fræðimönnum vorum hefir nefnt jjaS, —■ “ný íslenzk landnámabók.” (Halldór Hermannsson). Má hik- laust telja þaS meSal hins merkasta, sem út hefir komiS og út er gefiS vestan hafs.” Eru þessi ummæli jafn sönn nú og þá er þau voru rituÖ, nema hvaS sannara sé, þar sem sex árgangar, langt frá síSri hinum eldri, hafa siðan bæst í hópinn. íslendingar, sem sögulegum og menningarlegum fróðleik unna, munu einnig fúslega taka undir þessi orS meS þakklátum hug til útgefanda og þeirra mörgu, sem hafa stutt hann aS þörfu verki og þjóSlegu. Kunnugt er mér um það, aö út- gefanda bjó ríkt í hug, aS minnast fertugsafmælis Almanaksins meS ]>ví aS gefa út enn stærri árgang og f jölbreyttari aS efni, heldur en aS undanförnu; en harÖæriS hleypti þeirri fyrirætlun hans í strand ; hinu sama er um aS kenna, aS AlmanakiS er nú nokkru minna aS blaÖsíÖutali en verið hefir, og þó næsta drjúgt aÖ fróÖleik; hjálpar þar til, að langur kafli þess er nú prentaSur meS smærra letri en áður, en læsi- legu vel engu aS síSur. Veigamestur af efni þessa árgangs er þátturinn úr landnámssögu Is- lendinga í Vesturheimi, er nefnist “íslendingar í Piney bygS,” saminn af SigurÖi J. Magnússyni. Lýsir hann fyrst í stuttu máli landsháttum í bygSinni og tildrögum til land- náms j>ar; þá fylgja æfiágrip land- nemanna, skilmerkileg og liðlega í letúr færS; lýkur svo frásögninni meS gagnorðri lýsing á framförum bygðarinnar og menningu; hefði eg þó kosiÖ, aS fá nokkru fyllri frá- sögn um þessa hlið bygðarsögunnar. Ekki þarf aS efa, aS rétt muni frá sagt, þar sem höfundurinn hefir átt heima i bygðinni meir en aldar- f jórðung, og þar því gagnkunnugur. SagnaskáldiS vinsæla, J. Magnús Bijarnason, ritar hlýlega og vel samda minningargrein um GuSfinnu Bjarnadóttur, svstur dr. Björns Bjarnasonar frá Viðfirði, hins þjóS- kunna fræðimanns og ritsnillings. Hefir GuSfinna auSsjáanlega veriS gáfu- og merkiskona, eins og hún átti kyn til. Magnús leggur einnig til ritsins eitt sinna fögru æfintýra; kallast ]>aS “Marmara-töflurnar” og ber hin venjulegu stílseinkenni höf- undarins, látleysi og lipurS i máli °g göfgi í hugsun. Lýsir sér hér ágætlega ást hans á listum og fræS- um og glöggur skilningur hans á verðmæti menningarlegrar arfleifS- ar frá horfnum kynslóðum. . Auk hins ofantalda flytur Alman- akiS þýdda fræðigrein, “Ræktunin breytir jurtunum og veikir þær,” á- samt árlegum frásögnum þess um helztu viðburði og rriannalát meSal Islendinga í Vesturheimi. Er sýnt, aS mörg gerast nú ár hvert skörSin í hóp frumbyggjanna íslenzku í landi hér. FróSleikshneigSir íslendingar munu telja AlinanakiS eigulegt aS vanda og rneir en virSi þess hálfa dollars, sém þaS kostar. ÞaS fæst eins og endranær hjá útgefandanum, S. O. Thorgeirsson, 674 Sargent Avenue, Winnipeg. : .1

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.