Lögberg - 25.01.1934, Blaðsíða 8

Lögberg - 25.01.1934, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25. JANÚAR, I934. Úr bœnum og grendinni G. T. spil og dans á hverjum þriðju- og föstudegi í I.O.G.T. hús- inu, Sargent Ave. Byrjar stundvis- lega kl. 8.30 aS kvöldinu, $25.00 og $23.00 í verÖlaunum. Gowler’s Or- chestra. Þann 16. jan andaðist á Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg, eftir stutta legu þar, Guðmundur Odd- leifsson, frá Árborg, Man. Hinn látni var sonur Stefáns Oddleifs- sonar, sem nú er löngu látinn cg eftirlifandi ekkju hans Sigríðar Stefánsdóttur Oddleifsson, er lengi hefir búið á Gullbringu, í grend viS Árborg. Hinn látni hafSi jafnan meS móSur sinni verið. JarSarförin fór fram frá kirkju Árdalssafn- aða í Árborg, þann 19. jan. að viS- stöddu mögu fólki.— Sunnudaginn 28. janúar verSur messaS í kirkju BræSrasafnaSar i Riverton. AS messu lokinni verð- ur ársfundur safnaðarins haldinn, eru þaS vinsamleg tilmæli starfs- nefnda og sóknarprests að fólk sæki fundinn, eins alment og frekast aS kringumstæSur leyfa. Messan byrj- ar kl. 2 e. h. Skuldar-fundur dag) kvöld (fimtu- Séra Jóhann Bjarnason býst við að messa í kirkju MikleyjarsafnaÖ- ar næsta sunnudag, þ. 28. þ. m., kl. 2 e. h.— Messur í Gimli prestakallL sunnu- daginn þ. 4 febrúar n. k., eru fyrir- hugaSar þannig, aS miessað verður í gamalmennaheimilinu Betel kl. 9.30 f. h., og í kirkju GimlisafnaS- ar kl. 7 að kvöldi. Fólk geri svo vel að festa í minni og fjölmenna.— Látin er að Gimli þ. 11 jan. s.l., Mrs. Margrét ísfjörö, kona Þórðar bónda ísfjörð, eftir örstutta legu i lungnabólgu. Merkiskona. Séra Haraldur Sigmar messar á Mountain, sunnudaginn þann 28. þ. m., klukkan 2. ÁætlaSar messur í prestakalli séra SigurSar 'Ólafssonar yfir febrúar- mánuð: 4. febr., Geysir, kl. 2 e. h. 11. febr., Árborg, kl. 2 e. h. 18. febr., Riverton, kl. 2 e. h. 25. febr., Hnausa, kl. 2 e. h. Laugardaginn 13 jan. voru gefin saman í hjónaband James Dawn og Alice Caroline Anderson, bæSi til heimilis hér i borg. Hjónavígsluna framkvæmdi dr. Björn B. Jónsson og fór hún fram að heimili prestsins, 774 Victor St. Mrs. Katrín Torfason. sjötíu og eins árs gömul, ekkja Bjarna Torfa- sonar, andaðist að heimili Karls Torfasonar, sonar síns, að Gimli þ. 12. jan. s. 1. Dó úr innvortis krabba meinsemd, er hún hafSi þjáðst af í meira en ár, þó hún væri á fótum oftast. nema nokkurar seinustu vik- ur æfinnar. Kom vestur um haf, með manni sínum, af SeySisfirSi, áriS 1894. Var sjálf ættuS úr Aust- ur-Skaftafellssýslu. Lætur eftir sig þrjú börn á lifi, syni tvo og eina dóttur. Synirnir eru SigurSur Torfason á Gimli, er á fyrir konu Margréti dóttur Sigurmundar Sig- urðssonar, fyrrum kaupmanns í Ár- borg, en nú í Churchill hér í fylki, og Karl, áðurnefndur, giftur Ósk, dóttur Halls heitins Þorvaröarsonar í GeysisbygS í Nýja íslandi. En dóttir hinnar látnu er Una kona Btjarna P. Bjarnasonar hér í borg. Katrín sál. var væn kona og vinsæl. JarÖarför hennar fór fram undir umsjón Bardals, frá kirkju Gimli- safnaðar, þ. 16. jan. — Séra Jóhann Bjarnason jarösöng. FOR SALE — 22 h.p. steam tractor, two cylinder, $350.00; Saw mill $400.00; 9 h.p. portable case, $125.00; 2j4 h.p. gas $25.00; 25-50 gas tractor, $800.00; 3^-ton Sterl- ing truck, trade for Planer or Snow- mobile. Box 102, Winnipeg Beach, Man. Hinn 8. jan. andaÖist á Grace spitalanum í Wtinnipeg, Man., Mrs. Sveinbjörg Johnson frá Sinclair, Man. Hún var kona Ásmundar Johnson, er um langt skeið hefir búiÖ viÖ Sinclair, og er víÖa þektur meðal íslendinga. Sveinbjörg var dóttir Flóvents Sigurðssonar og Guðrúnar konu hans, búsett á Húsavík í Suöur-Þingeyjarsýslu og kom til þessa lands fyrir meir en 20 árum síðan, og giftist eftirlifandi manni sínum, skömmu eftir að hún kom hingað vestur. Hún var aðeins 40 ára, er hún lézt af afleiSingum uppskurðar, og lætur eftir sig einn dreng, SigurÖ að Iegt til þess aS gera mönnum dvölina þægilega, skemtilega og uppbyggi- lega. Menn sneru aftur til heim- kynna sinna með þeim tilfinning- um, að þeir væru stór-skuldugir sveitinni, sem hafði gert þeim lífiS létt; satt þá og glatt á allan hátt. Og næsta fúsir aÖ endurgjalda hinn mikla góðleik, ef þess væri kostur. Naumast þarf aö lýsa útliti Ar gylebygðar, en misjafnan ber hún þó svipinn; fer það nokkúð eftir náttúrlegum ástæSum. Hin stöðuga heiSríkja og breyskja á liSnu sumri gerði það aS verkum, aÖ vöxtur á engjum og akurlendi var afar mis jafn; varð ekki annað séS, en aö mikið af gróðrinum mundi skrælna upp og deyja. Settu menn það þó ekki fyrir sig á neinn hátt, en eng- um gat dulist útlitiS. Það hefir ætíð þótt fallegur sið ur, að biðja guðslauna þeim, sem vel gera. Kom rödd fram á kirkju þinginu, sem fór fram á það, aö endurgjalda bygðarmönnum góðan og mikinn beina; með því að biðja Guð um regn til Hfs og liðsinnis skrælnandi akurlendi og engjum svo að koma kirkjuþingsmanna mætti reynast blessun, andleg og lík- amleg. Vikust menn algerlega und- an þessu máli eins og einberu hé gómatali; voru engar umræður eða framkvæmdir í málinu. Atvik þetta væri ekki stórvægi- legt í sjálfu sér, ef það ekki benti á hættuna, sem á bak við er. Því mátti ekki taka stutta stund til þess að biöja fyrir bygÖinni, sem meS miklum hlýleik og góSleik bar menn á höndum sér? | Var þaÖ vegna þess, aS menn 1 trúSu ekki á gildi þess ? Það er eðlilegt, að menn, sem aldrei biSja fyrir sjálfum sér, finni enga hvöt hjá sér til þess aS biÖja fyrir öðrum. Enda stíla eg mál mitt ekki til þeirra. En menn, sem sjálfir liafa reynt gildi bænarinnar mega aldre skorast undan að biöja fyrir öðrum. Því vikust menn undan þessu máli ? Var það vegna trúarskorts; Ekki er það vegna þess, að bænin síðar. The Jón Bjarnason Academy Alumni Association will hold a dance on Friday, Feb. 2, at 8.30 p.m., at the Marlborough Hotel. Dr. Richard Beck frá Grand Forks, N. Dak., var staddur í borg- inni um síðustu 'nelgi. Burn Coal or Coke For Satisfaölory Heating DOMINION (Lignite)— Lump §6.25 per ton Cobble 6.25 ” ” MURRAY (Drumheller)— Sto. Lump §10.50 per ton Stove 10.25 ” FOOTHILLS— Lump §12.75 per ton Stove 12.25 ” MICHEL KOPPERS COKE— Stove §13.50 per ton Nut 13.50 McCurdy Supply Companv Limited 4^9 NOTRE DAME E. Phones: 94 309—94 300 Mr. Ásmundur Freeman frá Siglunes, Man., var í borginni fyrri part yfirstandandi viku. Mr. Ingi Thorkelsson, leikari, frá Seattle, lagði af staö nustur til New York á mánudagskveldið. nafni, nú í heimahúsum föður síns viS Sinclair. JarSarför hennar fór | ]iafj brugðist þeim, sem leita Guðs fram frá ensku kirkjunni við Sin- t ^ þann bátt. Ekki stendur heldur á clair þann 12. jan. s. 1., aS viöstöddu ]0f0rSum fyrir bænheyrslu af GuSs fjölmenni. Séra E. H. Fáfnis jarð- bálfu Enginn getur mögulega les- söng. Hennar verÖur nánar getið jR org freisarans í Nýja testament- inu án þess' að taka eftir þvi, hve oft og ítarlega hann hvetur menn til að biðja—býöur mönnum meS orS- um og eftirdæmi aS biðja! Kenning postulanna er einróma, “aS biðja án afláts!” Öll sönn mik' ilmenni hafa verið einlægir bænar- menn. Trúartraust Lúters á sálminum, ,‘Vor Guð er borg á bjargi traust,” er skiljanlegt, þegar maður hefir kynst honum sem manni bænarinn- ar. Gústaf Adolph var bænarmað- ur með afbrigðum, kemur hugarfar hans í ljós í sálminum: “Þú flokk- ur smár, ei hræðst þú hót.” (nr. 173) Davíðs sálmar mega heita bæna- bók, óslitin, frá upphafi til enda. Enda eru þeir kærir hverju trúuöu hjarta. Enginn hörgull er heldur á reynslu fyrir því, að gagnger breyting á sér stað af tilefni sameiginlegrar bæn- ar, eða þegar hún er flutt af ein- stökum mönnum. Áhrif bænarinnar er eitt meðal annars, sem heimurinn fær aldrei þekt, því þau áhrif eru að mestu ó- sýnileg holdlegum augum. Það eitt er eg sannfærður um, að þegar áhrif bænarinnar hér á jörð verða opinberuð, að þá verður lítið úr sigurvinningum vísindamanna, konunga og kappa í samanburöi við þann sigur, sem bænin hefir flutt mönnum. Þá gleymast nöfn þeirra Fillips og Alexanders af Makedóníu, Júlíusar Caesars, Napóleons, o. fl. Þá verða grafin og gleymd nöfn spekinga og vitringa veraldarinnar með skjöldum þeim, sem báru nöfn þeirra. Þá koma í ljós önnur nöfn, —nöfn, sem heimurinn ekki gat né vildi þekkja. Þá verður getið um sigurvinninga marga og mikla, sem aldrei voru skráðir á jörðunni. Var það vegna tímaskorts, að menn vikust undan að biðja bless- unar fólkinu, sem bar menn á hönd- um sér? Til leigú stórt, bjart framherberg iá fyrsta gólfi, með sanngjörnu verði, 446 Maryland. Leiðrétting. Tvær villur hafa slæðst inn í kvæðið “Þektir tónar,” i síðasta blaði. Þó segja megi að litlu skifti um frágang þess, sem lagt er í glat- kistuna, þá langar mig að biðja þig fyrir eftirfarandi leiðréttingar, rit- stjóri góður. í Lögb. stendur: “Aö bládjúpi” átti að vera: “Af blá- djúpi.” Upphaf síðasta erindis átti að vera: “Eg þögull og einmana í þrönginni stend.” H. Hœtta “Kalt er úti, kalt er inni, kalt er líka í sálu minni.” ísl. þjóðs. Vafalaust munu allir, sem sátu síðasta kirkjuþing, minnast þess með hlýju og þakklátu hugarfari. Getur það reyndar átt við kirkju- þingin þll. En vel tókst Argylebygð þá eins og fyr. Alt var gert mögu- Winnipegr Symphony Orchestra SUNDAY, FEiB. 4th Tickets $1, 75c, 50c, 25c at WINNIPEG PIANO CO. Það er handbær afsökun, og litt spöruð; hvort heldur hún er sönn eða ósönn. í þessu tilfelli skal eng- inn dómur feldur um gildi þeirrar afsökunar. En það liggur í augum uppi, aö ef ekki er hægt aÖ verja hálfri stund af tíma kirkjuþingsins til bæna- gerðar, fram yfir það vanalega, að þá er komið í hið mesta óefni um málefni þess—í hið hræðilegasta ó- efni um öll rnál og starfsemi kirkju- félagsins yfirleitt. Og að ekki er þörf að leita annara orsaka en þessa, að starfið reynist bundið svo mikl- unt erfiöleikum. Ef menn eru svo önnum kafnir, að menn sjá sér ekki fært að leita liðsinnis, þar sem óbrigðula hjálp er að fá við starfið, þá er mkil hætta á ferð. Vilji menn ekki láta sér skiljast gildi bænarinnar, með því að færa sér það kostgæfilega í nyt, fer ekki hjá því að starfinu fer eins og akur- lendi, sem breyskist og gróður þess skrælnar, og verður að engu; hjart- að verður eins og gróðurlaus, sand- orpin auðn, sem getur enga hug- svölun veitt, þeim sem þurfa. Sál- arlífið verður ríki dauðans. Orð Hallgr. Péturssonar reynast ávalt sönn: “Andvana lík, til einskis neytt, er að sjón heyrn og sneytt; svo er án bænar sálin snauð, sjónlaus, köld, dauf og rétt stein- dauð.” Við erurn engir afkastamenn, vegna þess að viö erum engir bæn- armenn, eftir þörfum. Lúter hafði það að reglu að biðja mest, þegar n^est kallaði að. En finnist okkur ekki annir dagsins leyfa að nokkuri stund sé varið til þess að biðja, þá er samt leyfilegt að nota stundir næturinnar til þess, að dæmi frels- arans. Þaö er kuldi. eigin brjósta og hjartna okkar, sem gerir okkur svo örðugt fyrir, að kenna öðrum að biðja, sem taldir eru komnir skemra áleiðis. Ef kirkjunnar menn ekki láta bænina vera byrjunaratriði i öllum störfum, er engin von þess, að menn fái leyst af hendi hin mörgu vandasömu störf. Þegar um tvent er að velja; bæn- ina eða starfið, er bænin sjálfsögð að skipa fyrirrúmið, því starf hafiö með bæn og undirbúið með bæn,— starf unnið m)eð bænarfullu hugar- fari er ékki atrði út af fyrir sig, heldur verður það hvorutveggja eitt atriði í lífi þess, er framkvæmir. Og blessun bænar og starfs verður samgróin. Því meir sem bænarlíf- ið glæðist innbyrðis, þess ávaxta- ríkara verður lifið út á við. Við þurfum að eignast bænaranda sem verði lýst með orðum skáldsins, ló i öðru sambandi: ‘Það byrjaði sem blærinn, er bylgj- um slær á rein, en brýst nú fram sem stormur, svo hriktir í grein.” Þannig varð afl bænarinnar sýni- legt, þegar þeir báöust fyrir Páll og Silas í f-angelsinu í Filippíborg. Þá varð skyndilega jarðskjálfti mikill svo að grundvöllur fangelsisins titr- aði. Eg minnist á ákveðið bænarefni upphafi þessa máls, vegna þess að undirtektirnar, sem það fékk virt- ust benda á helzt til mikinn andleg- an kulda meðal þingmanna. Það ýnilega vanst ekki tími né tækifæri til þess, að göndum og góðum ís- lenzkum siö, að segja: “Guð launi,” ?eim, sem unnu manni kostuglegan beina. Sumir munu þó hafa farið heim með þeirri tilfinningu, að mikið var þegið, en minna þakkað. Hinar kuldalegu undirtektir — hafi þær stafað af kulda hjartans, geta ómögulega staðið til vegs né blessunar. Miklu fremur gefa til kynna hættu, vaxandi kulda og minkandi starfsorku og ávaxta. s.s. c. ... v'.rV Látið hár vaxa með McGregor aðferðimii. Stöðvar hárlos og nemur á brott nyt. 3 mánaða lækning á $5.00 Sendið frímerkt umslag og leitið þannig upplýsinga hjá Dr. FLORENCE McGREGOR 39 STEELE BLOCK, Winnipeg, Man. > Symphony Orchestra Attracts Large Audience More and more people in Winni- peg are evidently learning to appre- ciate the fine programs offered by the Winnipeg Symphony Orchestra for the attendance at the second concert of the season on January i4th was considerably larger than was expected. Encouraged by this show of in- terest, the musicians excelled them- selves and were vigorously applaud- ed by the audience. The next concert by the Winni- peg Symphony Orchestra is on Sun- day, February 4th, when the soloist will be Miss Gertrude S. Newton, who will sing the Recit and aria “Ah! Fors’e lui” (“La Traviata”) by Verdi. Here is the program in full:— Overture to the opera, “Bartered Bride”......Smetana Symphony No. 5 in C minor .....................Beethoven Two pieces for string orchestra: (a) Ostinato for double string orchestra. .Bernard Naylor (b) Ostinato for St. Paul’s Suite ............Gustav Holst Recit and Aria “Ah! Fors’e lui” (“La Traviata”) .........Verdi Gertrude Newton Shepherd Fennel’s Dance .............Balfour-Gardiner In view of the sudden increase in numbers attending these concerts, music lovers will be well advised to reserve their seats in advance. Viking Billiards OG HÁRSKURÐARSTOFA 696 SARGENT AVE. Knattstofa, tðbak, vindlat og vindlingar. Staðurinn, þar sem Islendingar skemta sér. Eimskipafélag Islands Hinn árlegi útnefningarfundur í Eimskipafélagi íslands meðal Vest- ur-íslendinga, verður haldinn að heimili herra Árna Eggertssonur, 766 Victor St. hér í borg, þaun 28 febrúar 1934, kl. 8 að kvekli, til þess að útnef na tvo menn til að vera í vali fyrir hönd Vestur-tslendinga á aðalársfundi eimskipafélagsins, sem haldinn verður í Reykjavík á íslandi í júnímánuði næstkomandi, til að skipa sæti í stjórnarnefnd fé- lagsins, mqð því að kjörtímabil herra Árna Eggertssonar er þá útrunniö. Winnipeg, 22. janúar 1934, B. L. Baldwinson, ritari. Ef þér þurfið að láta vinna úr ull þá skuluð þér kaupa ullar- og stokkakamba á $2.25 og $3.00 hjá B. Wissberg 406 LOGAN AVE., Winnipeg, Man. AUÐVIT’ ERU giftinga leyfisbréf, hringir og gimsteinar larsælastir í gull og úrsmíða verzlun CARL THORLAKSON 699 SARGENT AVE., WPG. Sími 25 406 Heimas. 24 141 HEMSTITCHING leyst af hendi flðtt og vel. Pant- anir utan af landi afgreiddar með mjög litlum fyrirvara. 5c | yardið Helga Goodman 809 ST. PAUI, AVE., Winnipeg (áður við Rose Hemstitching) Jakob F. Bjarnason TRANSFER Annast greiðlega um alt, sem að flutningum íytur, sm&um eða atðr- I um. Hvergi sanngjamara verO. Heimili: 762 VICTOR STREET Stml: 24 500 Distinguished Citizens Judges, Former Mayors, Noted Educatlonists, Editors, Leading La-.vyers, Doctors, and many Prominent Men of Affairs—send their Sons and Daughters to the DOMINION BUSINESS COLLEGE When men and women of keen discernment and sound judgement, after full and painstaking enquiry and fnvestigation, select the Dominion Business College as the school in which their own sons and daughters are to receive their training for 'a business career, it can be taken for granted that they considered the many ad- vantages offered by the Dominion were too impnrtant to be over- looked. The DOMINION BUSINBSS COLLEGE today offers you the best business courses money can buy, and that at a cost that brings it easily within your reach. An ordinary business course no longer fills one’s requirements. It is the extra measure of skill and knowledge conferred by a Do- minion Traíning that singles one out for promotion in any modern business office. It has always been a good investment to secure a Dominion Train- —bu* today, more than ever, it is important that you secure the best obtainable in order to compete worthily in the years to come. Oar Schools are Located 1. ON THE MALL, 3. ST. JOHNS—1308 Maln St. 2. ST. JAMES—Oomer 4. ELMWOOD—Comer College and Portage. Kelvln and Mclntosh. JOIN NOW Day and Evening Classes You May Enroll at Any One of Our Four Schools With Perfect Confidence.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.