Lögberg - 12.04.1934, Qupperneq 3
LÖGBEJRG, FIMTUDAGINN 12. APRIL 1934
3
SOLSKIN
Sérstök deild í blaðinu
fyrir börn og unglinga
í Dísahöll
London, 18. febr. 1934-
Þegar ný söngskrá er auglýst í Al-
bert Hall, þá hlustar allur hinn söng-
næmi heimur, því bar er á boðstólum
einungis hiÖ bezta. Og þar starfa
aðeins þeir, sem afbragð eru í sinni
grein. Það vakti því mikla eftirtekt
þegar kunnugt varð um það, að þar
ætti að sýna hið mikla söng-drama
Elijah, eftir Mendelsohn. Sýning-
in stendur yfir frá 12.—24. febr.
og allur ágóði fer til líknarstarfsemi,
sem ýmsar hefðarkonur Lundúna-
borgar hafa með höndum. Alveg
sérstaklega er vandað til þessarar
sýningar og voru blöðin full af að-
dáun yfir því, hversu vel hefði tek-
ist. Eg fór því að verða forvitinn
og iangaði til að sjá þetta og heyra.
Lét eg þvi gistihúsið útvega mér að-
göngumiða og fór þangað í gær-
kvöldi. Eg hafði ekki fyr komið i
Albert Hall. Það er einhver stærsta
sönghöll í Evrópu, þar rúmast 8
þúsund manns í salnum og leiksvið-
ið rúmar 11 hundruð manns. Þetta
kvöld var hvert sæti skipað, og var
þó búið að sýna Elijah í viku og
stundum tvisvar á dag.
Efni þessa stórfelda sjónleiks er
tekið úr æfisögu Elijah spámanns,
baráttu hans gegn fávísi og skurð-
goðadýrkun ísraelsmanna annars
vegar, og við konungsvaldið og Jes-
sabel drotningu hins vegar, sem tek-
ur þessum nýja umbótamanni með
ofstækisfullu hatri og heimtar hatin
dæmdan til dauða og líf látinn. Hon-
um tekst að komast undarí her-
mönnum drotningar og halda líffnu,
en honum tókst ekki að flýja sjálf-
an sig né samViskuna, sem nú áfeldi
hann fyrir það, að hafa brugðist
skyldu sinni og metið meira sitt eig-
ið frelsi og lif, en erindi það, sem
hann átti að reka hér. — En alt af
þegar Elijah er að því kominn að
láta hugfallast, kemur engillinn, sem
verndar hann og hughreystir hann á
ný. Lífsstarfi hans lýkur með sigri:
Baal er velt af stóli, Israelsþjóðin
hyllir Elijah og ákallar nú drottinn,
skapara sinn og herra. Að lokum
þegar spámaðurinn hefir lokið sinu
mikla verki á jörðunni, sést hann
líða upp til himins í eldlegri reið,
eins og biblían skýrir frá. Efni
þessa stórfelda söngleiks er því afar-
áhrifamikið og meðferðin öll af-
burða snild. Það væri heldur ekki
fyrir þröng húsakynni að ætla sér
að sýna svona stórfeldan söngleik
eins og þennan, þar sem t. d. stórt
torg er sýnt með um þúsund manns,
og allur þessi flokkur er jafnframt
kór, sem syngur alt af öðru hvoru
meðan á sýningunni stendur. Þar
að auki er svo afarstór hljómsveit,
eitt til tvö hundruð manns, sem ann-
ast undirspil, bæði kóranna og ein-
söngvaranna á leiksviðinu, svo að
hvergi skeikar um hársbreidd, en
þar kemur til sá, sem öllu stjórnar,
söngstjórinn., Hann stendur einn á
háum palli, alvarlegur og gáfulegur
maður. Það er auðséð að hann
finnur til ábyrgðarinnar, sem á hon-
um hvílir. En hiklaust Iyftir hann
tónsprotanum og þessi mikla höll
fyllist af klið söngs og hljóma, þar
sem “alt hnigur og rís fvrir stjórn-
anda starfsins, er straumunum vísar
til samradda hafsins, sem hastar á
unn þess, sem hljómrótið magnar,
sem hrærir hvern grunn þess til
hljóms eða þagnar,” eins og mál-
meistarinn E. Ben. svo meistaralega
lýsir því. Að lokinni sýningunni
gengu allir út alvarlegir og hljóðir
' vor» auðsjáanlega gripnir af þess-
um einstöku viðburðum, sem þarna
voru sýndir eins og þeir höfðu gerst
fyrir mörgum öldum, sýndir í um-
hverfi þess tíma, eftir þeirri þekk-
mgn, sem nútíma sögtivísindi vita
bezt.
Eg barst út á meðal þúsundanna
og 1 huga mer omaði stöðugt þetta
erindi úr Disahöll: '
Hví veldur mér trega tónanna slagur,
sem töfrar og seiðir og er svo fagur?
Eg veit og eg finn hvers sál min
saknar,
söngvanna minning af gleymsku
raknar.
Ómar af lögum og brot úr brögum
og bergmál frá liðnum dögum,
af hljómgrunni hugans vaknar.
Þegar eg kom út úr sönghöllinni,
bar nútímann aftur fyrir augu mér.
Eg labbaði inn á brautarstöðina og
leið rólega niður í jörðina svo sem
hundrað metra, rafmagnslestin þaut
af stað og rann með geisihraða und-
ir glæstri heimsborginni og skilaði
hverjum heim til sín.
Bj. Bjarnason.—Lesb. Mbl.
Grænland
(Þessi grein er tekin úr ritgerð
sem birtist í Lesbók Morgunblaðs-
ins, eftir Árna Óla).
Matarœði Grœnlendinga
Grænlendingar eru yfirleitt mat-
hákar miklir og mjög gefnir fyrir
allar munaðarvörur. Eru þeir afar
sólgnir í áfengi, tóbak, kaffi og
sykur, og nota tóbak og kaffi í ó-
hófi. Vín fá þeir ekki keypt, en á
hverju ári flytur verslunin inn all-
mikið af malti handa þeim, svo að
þeir geti bfuggað sér öl til heimilis.
Hafa þeir gott lag á því að brugga,
og Grænlendinga bjórinn þykir besti
drykkur og all áfengur. Verður þó
að segja sem satt er, að þar er mjög
lítið um drykkjuskap, enda múndi
Grænlendingum það ekki hent,
fremur en öðrum frumþjóðum, að
hafa ótakmarkaðan aðgang að á-
fengi.
Fyrrum lifðu þeir aðallega á sjó
fangi alls konar, en nú er þetta að
breytast talsvert, síðan þeir tóku
sér fasta bústaði. Lifa þeir nú mik-
ið á brauði. Verzlunin hefir komið
á fót brauðgerðarhúsum í helztu
kauptúnunum, og þar kaupa þeir
brauðin aðallega. Sum heimili kaupa
þó rúgmjöl i verzuninni og baka
brauðin heima, og þykir það ódýr-
ara. Og með þessu breytta matar-
æði hefir hitt fylgt, að kaffinautn
hefir stórum farið í vöxt. Það er
næsta ótrúlegt hvað Grænlendingar
drekka mikið af kaffi. Það er
þeirra þjóðdrykkur, og allra meina
bót — næst selspiki og mjaldurs-
hvelju.
Heimilisiðnaður.
Grænlendingar eru geisi hagir
menn og listfengir, konur jafnt og
karlar. Er það frægt hvílíkt snild-
ar handbragð hefir verið á skinna-
vöru þeirra, og hve mikinn listsmekk
konurnar hafa sýnt í klæðagerð
úr skinni. Hitt er ekki minna um
vert hvert hugvit karlmennirnir hafa
sýnt við smíði húðkeipanna og
veiðiáhalda sinna.
Nú er orðin talsverð breyting á
iðnframleiðslu heimilanna. Hún er
orðin f jölbreyttari, en sama er hand-
bragðið. Sá siður er nú lagður
niður að kvenfólkið tyggi skinnin,
heldur eru þau elt í frosti, líkt og
þegar beitarhúsamenn á Islandi voru
hér fyrrum látnir elta skinn í “brók”
meðan þeir stóðu yfir fénu, eða þá
að skinnin eru barin gaddfreðin a
steini.
Karlmenn smíða ýmsa gripi úr
talgusteini og rostungstönnum. —
Þegar þeir eru á rostungaveiðum,
fá þeir í sinn hlut allar tennur, og
smiða svo ýmsa gripi úr þeim. Eru
þeir svo frjálsir að því hvort þeir
selja verzluninni smíðisgripina, eða
láta hana selja þá fyrir sig. Mega
þeir og leggja á þá hvaða verð sem
þeim sýnist. Þessir gripir eru síð-
an seldir í Kaupmannahöfn, og
þykja mestu gersemar.
Konur vinna heima að saumi alls-
konar; aðallega eru það skinnavör-
ur og dúkar úr fuglahömum. En
aðaliðnaður þeirra er þó hinir frægu
perludúkar, og perlukragar. Eru
þeir gerðir úr alla vega litum perl-
um, sem festar eru upp á þráð og
raðað saman eftir litum í ótal glæsi-
leg "munstur.” Um þessa handa-
vinnu kvenfólksins gildir hið sama
og um handiðnað karlmanna, að ým-
ist kaupir verzlunin gripina, eða sel-
ur þá fyrir eigendur.
Fatnaður Grænlendinga.
Fyrr á árum sást varla annað en
skinnbúningur í Grænlandi. En nú
er orðin gjörbreyting á þessu. Unga
kvenþjóðin er nú farin að seinja sig
að sið Evrópuþjóða um klæðaburð,
og gengur i kjólum.
Á vetrum ganga karlmenn enn i
skinnklæðum, en á sumrin eru þeir
klæddir líkt og verkamenn hér á Is-
iandi — í nankinsföt. Á sunnudög-
utn og tyllidögum er það hvít bura
með hettu til þess að smeygja yfir
höfuðið, og svartar buxur. Fótabún-
aður karlmanna er þó enn græn-
lensk grávörustígvél (kamik), sem
ná upp að hné, og eru buxurnar
girtar niður i þau. En kvenþjóðin
hefir lagt þenna fótabúnað niður að
nokkru leyti, og gengur nú á
"dönskum stigvélum,” eins og kven-
fólkið hér, eða þá í gúmmístígvél-
um þegar þær eru að vinnu.
Fandbúnaður.
Út við ströndina norðan Godt-
haab er enginn landbúnaður og eng-
in ræktun. Búskapur þekkist þar
því ekki á vorn mælikvarða, því að
alt lifsstritið snýst um veiðar. Þar
eru engin húsdýr nema hundar, og
einstaka Danir hafa hæns.
I Eystribygð ala Grænlendingar
hunda aðallega vegna skinnanna,
sem þykja afbragð, bæði hlýrri og
miklu sterkari heldur en nokkur
önnur skinn. I Vestribygð eru
undar aftur á móti notaðir til ferða-
laga á vetrum, mili bygða og til sela-
veiða, sem þá fara fram úti i hafísn-
um langt undan landi.
Inn í f jörðunum í Eystribygð og í
verslunarstöðum sunnan lands, er
nú að rísa upp vísir til landbúnaðar,
og hafa íslendingar lagt mestan
skerf til hans. Fyrir nokkrum ár-
um var keyptur fjárstofn í Skaga-
firði og fluttur vestur til Juliane-
haab. Af þeim f járstofni hafa ung-
ir, menn, sem vilja byrja búskap,
fengið bústofn sinn. Sigurður Sig-
urðsson búnaðarmálastjóri fór fyrir
nokkrum árum vestur, að tilhlutan
grænlensku stjórnarinnar, til þess að
gefa leiðbeiningar um búskap, og
er hann búnaðarráðunautur stjórn-
arinnar.
Islenzk kona, Ragnheiður Líndal,
hefir verið vestra tibþess að kenna
kvenfólkinu meðferð mjólkur, skyr
og ostagerð, og hagnýting landbún-
aðar afurða. Og nú er þar Sigurð-
ur Stefánsson frá Fossi í Gríms-
nesi til þess að leiðbeina bændum
með sauðfjárrækt og jarðabætur.
Grænlenskur maður hefir verið í
Húnavatnssýslu um tveggja ára
skeið til þess að kynna sér landbún-
að. Þegar hann kom vestur aftur
byrjaði hann búskap í Godthaab og
fekk fjárstofn hjá stjórninni. En
búið hefir ekki gengið vel. I fvrra
vetur komst hann í heyþrot, sýki
kom upp i kindum hans og margar
drápust, en sumt varð hann að skera
af heyjum.
Hestum er að fjölga í sunnan-
verðu Grænlandi, og eru þeir allir af
islenzku kyni.
FRA GYÐINGUM
Um síðustu aldamót var hin forna
þjóðtunga Gyðinga, hebrezkan, tal-
in að vera “dautt mál.”—Nú eru
það 165 þúsundir Gyðinga, sem tala
jietta tungumál daglega, og fer þeim
alt af fjölgandi, sem nota það.
Árið 1920 áttu Gyðingar aðeins
24,000 ekrur lands í Gyðingalandi.
En 1930 voru þeir búnir að eignast
297,000 ekrur af frjósamasta land-
inu.
Það er mælt, að rafstöðin í Jór-
danardalnum sé stærsta aflstöðin i
heimi. Hún framleiðir nægilegt
rafmagn fyrir alt Gyðingaland,
bæði til ljósa og annara nota.
—Heimilisblaðið.
PR0FESS10NAL AND BUSINESS CARDS
PHYSICIANS and SURGEONS
DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tímar 2-3 Heimili 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg. Talslmi 26 688 Stundar augna, eyrna, nef og kverka sjúkdóma.—Er að hitta kl. 2.30 til 5.30 e. h. Heimili: 6 38 McMILLAN AVE. Talsími 42 691 Dr. P. H. TL Thorlakson 206 Medlcal Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phones 21 213—21 144 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200
DR. B. H. OLSON Dr. S. J. Johannesson DR. L. A. SIGURDSON
216-220 Medical Arts Bldg. 729 SHERBROOKE ST.
Cor. Graham og Kennedy Sts. Viðtalstlmi 3—5 e. h. Phone 24 206
Phone 21 834--Office tlmar 4.30-6 Office tímar: 3-6 og 7-8 e. h.
Heimili: 5 ST. JAMES PDACE 532 SHERBURN St.-SImi 30 877 Heimili: 102 Home St.
Winnipeg, Manitoba Phone 72 409
BARRISTERS, SOLICITORS, ETC.
H. A. BERGMAN, K.C. IslenzJcur logfrœðingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 PHONES 95 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. tslenzkur lögfraeðingur 801 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 92 755 W. J. LINDAL K.C. og BJORN STEFANSSON Islenzkir lögfrœðingar 325 MAIN ST. (á öðru gólfi) PHONE 97 621 Er að hitta að Gimli fyrsta þriðjudag I hverjum mánuði, og að LUndar fyrsta föstudag
Wiiliam W. Kennedy, K.C., LL.B.
G. S. THORVALDSON E. G. Baldwinson, LL.B. Fred C. Kennedy, B.A., LL.B.
B.A., LL.B. Kenneth R. Kennedy, LL.B.
Islenzkur lögfrœðingur íslenzkur lögfrœðingur Kennedy, Kennedy &
Skrifst. 702 CONFEDERATION Kennedy
LIFE BUILDING Barristers, Solicitors, Etc.
Main St., gegnt City Hall 729 SHERBROOKE ST. Offices: 505 Union Trust Bldg.
Phone 97 024 Phone 93 126
WINNIPEG, CANADA
DRUGGISTS DENTISTS
WINNIPEG DRUG
COMPANY, LTD.
H. D. CAMPBELL
Prescription Specialists
Cor. PORTAGE AVE. and
KENNEDY ST.
Winnipeg, Man.
Telephone 21 621
Take Your Prescrlption to
BRATHWAITES LTD.
PORTAGE & VAUGHAN
Opp. “The Bay”
Telephone 23 3 51
We Deliver
DR. A. V. JOHNSON tsienzkur Tannlœknir Drs. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar
212 CURRY BLDG., WINNIPEG Gegnt pósthúsinu Sími 96 210 Heimilis 33 328 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEG
Dr. A. B. Ingimundson DR. T. GREENBERG Dentist
Tar.nlœknir Hours 10 a. m. to 9 p.m.
602 MEDICAL ARTS. BLDG. PHONES: Office 36 196 Res. 51 455
Slmi 22 296 Heimilis 46 054 Ste. 4 Norman Apts. 814 Sargent Ave., Winnipeg
OPTOMETRISTS MASSEUR
Harry S. NOWLAN Optometrist 804 TORONTO GENERAL TRUSTS BLDG. Tel. 28 S33 Res. 35 719 OPTOMETRIST (eXAMINIo; 4 FITTEO I G. W. MAGNUSSON Nuddlœknir 41 FURBY STREET Phorie 36 137
Portage and Smith Phone 22 133 305 KENNEDY BLDG. (Opp. Eaton’s) Símið og semjið um samtalstlma
BUSINESS CARDS
A. S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur likkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu taisími: 86 607 Heimilis talsími: 501 562 HANK’S HAIRDRESSING PARLOR and BARBER SHOP 3 Doors West of St. Charles Hotel Expert Operators We speciallze in Permanent Waving, * Finger Waving, Brush Curiing and Beauty Culture. 251 NOTRE DAME AVE. Phone 25 070 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægi. Phone 94 221
A. C. JOHNSON 907 CONFEDERATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur að sór að ávaxta sparifé fólks. Selur eldsábyrgð og bif_ reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrir- spurnum svarað samstundis. Skrifst.s. 96 167—Heimas. 33 328 00RE’S Tðjr * LTD. 28 333 LOWEST RATES IN THE CITY Furniture and Piano Moving J. SMITH Guaranteed Shoe Repairing. First Class Leather and workmanship. Our prices always reasonable. Cor. TORONTO and SARGENT Phone 34 137
HÓTEL 1 WINNIPEG
THE MARLBOROUGH SMITH STREET, WINNIPEG “Winnipeg’s Doron Town Hotel” 220 Rooms with Bath Banquets, Dances, Conventíons, Oinners and Functions of all kinds Coffee Shoppe F. J. FALL, Manager ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEG poegilegur og rólegur bústaður í miðbiki borgarinnar. Herbergi $.2.00 og þar yfir; með baðklefa $3.00 og þar yfir. Ágætar máltíðir 40c—60c Free Parking for Guests HOTEL CORONA 26 Rooms with Bath, Suites with Bath Hot and coJd toater in every room Monthly and Weekly Rates Upon Request Cor. Main St. and Notre Dame Ave. East. J. F. Barrieau, Manager
THE M c L A R E N HOTEL Enjoy the Comforts of a First Class Hotel, at Reduced Rates. $1.00 per Day, Up Dining Room in Conneclion WINDSOR HOTEL J. B. GRAY, Mgr. & Prop. European Plan Rooms $1.00 and up Hot and cold running water Parlor in connection. 197 GARRY ST. Phone 91 037 HOTEL ST. CHARLES In the Heart of Everything WINNIPEG Rooms from $1.00 Up Special Rates by Week or Month Excellent Meals from 30c up
It Pays to Advertise in the “Lögberg”