Lögberg - 13.09.1934, Síða 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. SEPTEMBESR, 1934
Hógberg
0»flB öt hvern fimtudag af
T M E COLVMBIA PREB8 LIMITED
69 5 Sargent Avenue
Wlnnipeg, Manitoba.
Utan&skrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVE
WINNIPEG, MAN.
Vcrð 53.00 um árlð—Borgist firrlrfram
The “Lögberg” is printed and published by The Colum-
bia Press, Limited, 695 Sargent Ave., Wnnipeg, Manitoba
PHONE 86 327
Ritstjóri: HEIMIR THORGRlMSSON
Flugleiðin um Canada og
Island
1 september 'hefti National Geographic
Magazine er löng grein eftir Mrs. Charles A.
Lindbergh um ferð þeirra hjóna umhverfis
hnöttinn í fyrra sumar. Formála fyrir grein-
inni ritar Lindbergh hersir, sjálfur.
Mrs. Lindbergh segir mjög skemtilega
frá ferðalaginu og fer hlýlegum orðum um
Island og íbúa þess. Þrjár myndir frá Is-
landi fvlgja greininni, tvær frá Rskifirði og
ein af fjöllum vestanlands.
Annars er það formálinn eftir flugmann-
inn fræga sem merkastur er í þessu sambancli-
Lengi vel mun Lindbergh hafa hallast á
þá skoðun að flugleiðin yfir Atlantshaf ætti
að liggja um Azores-eyjarnar, en nú verður
ekki annað séð en að hann álíti norðurleiðina,
um Nýfundualand, r Grænland og Island,
heppilegri. Hann játar að vísu að veðráttan
á þeim slóðum sé óstöðug, en þar sem vega-
lengdin milli áfanga sé margfalt styttri á
norðurleiðinni, virðist hann telja hana ákjós-
anlegri. Nú skiftir það mestu máli að leið
milli áfanganna sé sem styst. Ekki einungis
vegna þess að hættan sé minni,—með notkun
vönduðustu flugvéla er sú hætta ekki tiltak-
anlega mikil—heldur vegna hins, að vélarnar
þurfa þá ekki að hafa eins mikið eldsneyti
meðferðis, en geta í þess stað flutt fleiri far-
þega eða meiri flutning. Með því eru skil-
yrði til þess að flugferðir geti borið sig, og er
það aðalatriðið.
í’ari svo að norðurleiðin verðin kosin og
reglubundnir flutningar hefjist á milli Norð-
ur-Ameríku og Elvrópu, þá getur það haft
miklar og góðar afleiðingar í för með sér,
bæði fyrir Island og Canada. ísláhd yrði þá
einn hlekkurinn í keðjunni, sem tengdi saman
heimsálfurnar tvær, og gæti það haft í för
með sér margvíslegan hagnað, ef vel er í
pottinn búið af hálfu landsmanna. Ef þessi
flugleið yfir Atlantshafið reynist vel, er mjög
sennilegt að loftflutningar hefjist til Asíu.
Sú leið myndi þá liggja þvert yfir Canada,
frá Montreal til Winnipeg og þaðan til Ed-
monton. Frá Edmonton yrði flogið til Van-
oouver og þaðan með ströndinni til Alaska,
ellegar þá á ská frá Edmonton til Alaska.
Frá Alaska yrði að líkindum fylgt leiðinni,
sem bandarísku hnattflugsmennirnir fóru ár-
ið 1924. Þ. e. frá Alaska til Kamchatka skag-
ans og svo til Japan. Jafnvel gæti hugsast
að farið yrði miklu norðar, eða frá Labrador
til Churchill og svo til Edmonton. .
En hvaða leið, sem farin verður, hlýtur
hún að.liggja yfir Canada. Þessvegna hafa
ýmsir framsýnir menn hvatt sambandsstjórn-
ina til þess að búa svo í haginn að hægt verði
sem fyrst að koma ráðagerðiím þessum í
framkvæmd.
Hoover og frelsið
Síðan Roosevelt tók við stjórn Bandaríkj-
anna hefir fyrirrennari 'hans, Herbert
Hoover, átt náðuga daga. 1 tvö ár hefir hann
setið á herragarði .sínum í Californíu og glímt
við þær ráðgátur, sem honum tókst ekki að
leysa á sinni stjórnartíð. Hugsanir sínar legg-
ur hann fram fyrir almenning í dálkum stór-
blaðsins Saturday Evening Post. Seinna í
haust mun koma út bók eftir hann.
Eins og við mátti búast eru þessi skrif
Hoovers ádeila á Roosevelt og stjórn hans,
þótt ekki sé forsetinn nefndur á nafn. Mest
talar Hoover um frelsið. Honum þykir leitt
hvað mjög sækir í það horf að stjórnin vilji
skerða athafnafrelsi einstaklingsins. Honum
finst það brot á guðs lögum og stjómar-
skránni að sett hefir verið strangt eftirlit
með starfrækslu iðnaðar og hömlur á fjár-
glæfrabrall banka og auðfélaga. Þetta kemur
manni einkennilega fyrir þegar þess er gætt,
að af-skiftaleysi 'hans eigin stjórnar hafði
stofnað bæði iðnaðar- og bankamálum lands-
ins í vroða, svo að þjóðinni fanst nauðsyn að
velja sér annan mann til leiðtoga.
Nú er það á allra vitorði að enn skortir
mikið á að vandamál þessi séu leyst, en hitt
munu flestir viðurkenna, að ver hefði farið, ef
að Roo-sevelt hefði ekki komið til sögunnar.
Ekki er nema rétt og sjálfsagt að vara
menn við þeirri hættu, sem af einræði stafar,
og eru orð Hoovers, í þá átt, í tíma töluð. En
sá mæti maður getur varla ætlast til þess að
eignalausu og atvinnulausu fól-ki finnist mikið
til um það frelsi, sem tryggir því það eitt að
mega svelta í friði án afskifta stjórnarvald-
anna.
Eins og merkisblaðið Cliristian Science
Monitor segir, þá er full þörf á því að gæta
þess frelsis, sem forfeður vorir keyptu dýru
verði. En þetta er ekki nóg. Það er óft erfitt
að samrýma fult athafnafrelsi einstaklings-
ins og velferð heildarinnar; eigingirninni og
græðginni verður að setja takmörk. Mest er
um það vert að skynsamlega og gætilega sé
að því farið.
lsland--Vonanna og vorleys-
inganna land
Eftir prófessor Richard Beck
(Ræða fyrir minni íslands flutt á Miðsumar-
móti Islendinga í Blaine, Wash. 29. júlí 1934).
í þessu fagra umhverfi, með fjalladýrð
og hafsýn við sjóndeildarhring, er auðvelt,
að láta hugann brúa hafið og heimsækja
æskustöðvarnar og átthagana á norðurveg-
um. Við erum hér á ísl'enzkri samkomu í ís-
lenzku umhverfi. A þessum minningarfka
hátíðisdegi erum við öll eitt—fjarlæg börn
Islands eða bamabörn, saman komin til þess
að votta ættjörð okkar og ættþjóð ræktarsemi
og ástarþel. Við getum einhuga tekið undir
orð Davíðs skálds Stefánssonar í Alþingis-
hátíðarljóðum hans:
“ Við börn þín, Island, blessum þig í dag.
Með bæn og söngvum hjörtu eiða vinna.
Hver minning andar lífi í okkar lag.
Við Lögberg mætast hugir bama þinna.
Frá brjóstum þínum leggur ylinn enn,
sem aldrei brást, þó vetur réði lögum,
og enn á þjóðin vitra og vaska menn,
sem verður lýst í nýjum hetjusögum.”
1 náttúmfegurðinni á þessum slóðum er
svo margt, sem minnir á töfra og tign ísienzks
landslags, hrikaleik þess og fjölbreytni, að
freistandi væri, að dvelja við það hugþekka
umtalsefni. En slíks gerist lítil þörf. I hjört-
um ykkar, sem borin eru og bamfædd í faðmi
íslands, veit eg, að mynd þess er fegurri og
hreinni dráttum greypt, en eg fengi meitlað
hana í málm málsins, þó eg ætti yfir tífalt
meiri mætti orðsins að ráða, heldur en mér
hefir í skaut fallið. Með þá sérstaklega í huga,
sem íslenzkt blóð rennur í æðum, en ekki hafa
séð land feðra sinna og mæðra nema. í hug-
skoti sínu og draumum, vil eg samt minna á
eftirfarandi lýsingu á náttúrufegurð og sér-
kennileik Islands eftir danskan mann, Fr. de
Fontenay, sendiherra Dana á Islandi. Hon-
um fórust svo orð nýleg^ í útvarpserindi:
“Menn leggja 'ekki leiðir sínar um hin
stórfenglo'gu öræfi uppi í óbygðum Islands,
án þess að töfrast a.f þeirri tignarlegu ró og
bera þess minjar. Sá, sem eitt sinn hefir litið
næturhiminsins “blikandi sjónstjörnur, og
“fannhvíta jöklanna tinda,” hann mun ætíð
leita hugfanginn þangað. Ógleymanlegt er
það, að dveljast um miðnæturskeið milli lauf-
trjánna í Hraunteigi og heyra “Rangá leika
við lausan taum” meðan “barkirnar dreymir
við elfarnið langt úti í ljósvakans straumi.”
Ógleymanlegt er líka hið frjálsa líf í
skauti náttúru Islands, í hinum þögulu öræf-
um, reiðin yfir hin endalausu heiðaflæmi, yfir
fossandi jökulár, hraunbreiður og um brattar
hlíðar. Þegar maður á þann hátt hefir ferð-
ast um bygðir og óbygðir Islands og ætlar
sér að lýsa fegurð landsins í sem fæstum orð-
um, finst mér ekki hægt að komast betur að
orði en Jónas Hallgrímsson gerir í þessu
erindi:
Þú reiðst um fagran fjalladal,
á fáki vökrum, götu slétta,
þar sem við búann brattra kletta
æðandi fossar eiga tal,
þar sem að una hátt í hlíðum
hjarðir á beit með lagði síðum.
Þótti þér ekki Island þá
íbúum sínum skemtun ljá? ’ ’
Svo sterklega hafa töfrar íslenzkrar nátt-
úrufegurðar hrifið og hertekið hann—útlend-
inginn; hvað þá um okkur, sem tengd erum
Islandi blóðböndum, nærð við móðurbrjóst
þessf Það nær einnig til ykkar af íslenzkum
ættum, sem fædd eruð í landi hér; rætur ykk-
ar standa djúpt í íslenzkum jarðvegi og draga
næringu þaðan.
Annað er mér þó ríkar í hug við þetta
tækifæri, >en að lýsa gjörr^máttúrufegurð Is-
lands, þó skemtilegt væri. Þessa dagana
stendur íslenzka þjóðin á merkum tímamót-
um í nútíðarsögu sinni. 1 sumar eru rétt sex-
tíu ár liðin síðan hún fékk stjórnarskrá sína,
2. ágúst, 1874, og þar með sjálfsforræði sitt
að nokkru leyti. Hjartfólgnir draumar henn-
ar byrjuðu þá að rætast. Hún hafði mikinn
sigur unnið í sjálfstæðis- og framsóknarbar-
áttn sinni. Þar sem þessi okkar þjóðminn-
ingardagur í Vesturheimi—Íslendingadagur-
inn— er sérstaklega bundinn við
minninguna um nefnda sigurvinning
í íslenzkri stjórnfrelsisbaráttu, meg-
um viS vel minnast sextugsafmælis
þess merka atburðar meb því, að
ganga á sjónarhól og horfa yfir far-
inn veg þjóðar okkar. Eg veit enga
nauðsynlegri eða dýrmætari fræðslu
heldur en sjálfsþekkingu, en enginn
fær þekt sjálfan sig til fullnustu,
nema hann kunni einhver skil á for-
tíð sinni, forfeðrum sínum og ætt-
arerfðum.
Bæta vil eg þessu við, og segja
það eins einlæglega og kröftuglega
og mér er unt. Eg fæ hreint ekki
skilið, hvernig nokkur íslendingur,
eigi hann á annað horð það nafn
með réttu, getur kynt sér svo sögu
fslands, að hjarta hans slái ekki ögn
hraöar, að blóðið renni honum ekki
örar i æðum, að metnaður hans auk-
ist ekki, þegar hann sér og skilur,
hvernig fámenn og fátæk ættþjóð
hans á úthjara veraldar hefir staðið
af sér storminn og straumföllin á
liðnum öldum, og haldið við auðugu
menningarlífi undir allra andvígustu
aðstæðum. Eg veit enga glæsilegri
þjóðsögu, þó hún sé á köflum þyngri
en tárum taki.
Þegar séra Matthías Jochumsson
orkti kvæðið fagra og svipmikla, um
Skagaf jörð, valdi hann sér hæsta og
tignríkasta staðinn að sjónarhól —
Tindastól. Við skulum gera slikt
hið sama. í sögu íslands er einn
sá staður, sem hæst gnæfir og víð-
ast útsýni býður — Þingvellir við
Öxará, þessi einstæði þingsalur þar
sem jörðin sjálf er gólfið, fjöllin
veggsúlurnar og himinhvolfið þak-
ið. Þingvellir, hjarta lands okkar
og helgistaður, eru ógleymanlegir
hverjum þeim/ sem þar hefir stigið
fæti á helga jörð. Náttúrufegurð
þeirra er svo margbreytileg og há-
tíðleg, að hver, sem þangað kemur,
hlýtur að verða fyrir göfgandi á-
hrifum.
Við göngum i anda á Þingvöllu.
Þar slá liðnar aldir ljóma á “vellina
við Öxará, á hamraþil, á gjár og
gil.” Þar tala sjálfir steinarnir og
kunna frá mörgu og markverðu að
segja. Þar heyrum við með skáld-
inu fótatak aldanna, vorrar “þjóðar
þúsund ár sem þyt í laufi á sum-
arkveldi hljóðu.” Við nemum stað-
ar á Lögbergi helga og skygnumst
um.
Upp úr móðu tírhans rísa tind-
arnir í sögu fslands hver á fætur
öðrum ; hæstu atburðaöldurnar hef j-
ast og hníga við sjónd?ildarhring.
Ónumið sjáum við landiö bíða langar
aldir, líkt og Jcóngsdóttur í álögum.
“Laufskrúðið vaggast í ljúfum hlæ,
ljóma hin bláu sund.” Árla morg-
uns, úr átt sólaruppkomunnar, sigl-
ir skrauthúið skip af hafi og önnur
koma í kjölfar þess. Ingólfur Arn-
arson er kominn. fsland fagnar
fyrsta norrænum landnámsmanni
sínum, landsföðurnum, eins og hann
hefir nefndur verið. Við sjáum
hann kanna strendur landsins og
nema land þar sem nú rís höfuð-
staður íslands. Aðrir landnáms-
menn fylgja honum í spor, hug-
djarfir og aðsópsmiklir, “hetjúir af
konungakyni,” sem komu “með eld-
inn um brimhvít höf.”
Landið byggist. Bæir rísa i f jalla-
hliðum og á f jarðaströndum. Blá-
ir reykir liðast í lofti; fríðar hjarð-
ir dreifast um hlíðar og heiðar. “Út
til nesja og inn til dala er árla risið
og dagsverk löng.” Nýtt landnám
er aldrei neinn barnaleikur, en frjó-
semd starfsins gleður og örvar;
menn eru sér þess meðvitandi, aS
þeir eru að byggja fyrir framtíðina,
að greiða veg óbornum kynslóðum.
Enginn fær lifað sjálfhm sér far-
sællega, þó hann sé allur af vilja
gerður. Því lögmáli lúta þjóðir sem
einstaklingar. Þörfin fyrir aukið
samstarf, ein landslög, varð áður
langt leið knýjandi meðal íslenzkra
landnámsmanna. Við sjáum marg-
menni, helztu höfðingja landsins
og frítt föruneyti þeirra, safnast
saman á Þingvöllum sumarið 930.
Alþingi er stofnað. ísland verður
sjálfstætt og fullvalda riki, lýðveldi
en ekki konungsríki, fyrsta lýðríki
fyrir norðan Alpafjöll. Hin unga
íslenzka þjóð gerðist frumherji á
frelsisbrautinni. Smáþjóð varð hér,
sem oftar, stærri þjóðum til fyrir-
myndar.
Það er bjart yfir lýðríkis-tíma-
bili íslands næstu tvö hundruð og
fimtíu árin. Glæsilegar fornbók-
mentir okkar skapast, festast í minni
og eru færðar í letur. “Erá eyjunni
norður við ysta haf eldaði um Norð-
urlönd.” En frægðarljómi lýðveld-
istimabilsins fölnar og litast blóði í
bræðravígum Sturlungaaldarinnar.
Varð ávöxtur þeirra inn byrðis-
styrjalda og flokkadrátta sá, að
þjóðin glataði frelsi sínu. ÁriS
1262 gerðust þau stórtíðini á Al-
þingi, að meiri hluti landsmanna
gekk á hönd Noregskonungi; dagar
hins forna lýðveldis voru taldir; og
skjótt fóru vald og virðing og áhrif
sjálfs Alþingis þverrandi. Kon-
ungsvaldið færðist meir og meir í
aukana og herti f jötur kúgunarinnar
harðar að hálsi þjóðarinnar. Þó
liðu þrjár aldir áður en hið útlenda
stjórnarvald sigraðist að fullu á ís-
lendingum. Saga baráttu hinnar fá-
mennu íslenzku þjóðar gegn erlendri
kúgun og ofsókn náttúruaflanna er
sannarlega aðdáunarverð. Hún hef-
ir orðið að þola “eld og hungur, ís
og kulda, áþján, nauðir, Svarta-
dauða.” Hið dásamlega er, að hún
hefir átt þrek og þor til þess, að
komast heilu og höldnu út úr þeim
eldraunum, og tekist að halda við
furðu blómlegu menningarlífi gegn-
um myrkustu aldirnar. Dr. Sigurð-
ur Nordal hefir réttilega lagt áherzlu
á það, að í bókmentum og menningu
íslendinga er framhaldandi sam-
hengi frá fornöld til vorra daga.
Davíð skáld Stefánsson segir kröft-
uglega og maklega:
“í þúsund ár bjó þjóð við nyrstu
voga.
Mót þrautum sínum geldc hún
djörf og sterk.
í hennar kirkju helgar stjörnur loga,
og hennar líf er eilíft kraftaverk.”
íslenzka þjóðin uppskar einnig á
sínum tíma ávexti þrautseigju sinn-
ar og drengilegrar baráttu gegn of-
ureflinu. Á 18. öldinni bjarmar af
nýjum degi; nýtt þjóðlífsvor geng-
ur í garð. Eggert Ólafsson kveður
kjark og dug í þjóðina, glæðir trú
hennar á land hennar, sjálfa hana
og framtíð hennar; en án slíkrar trú-
ar er þjóð hver dauðadæmd. Aðrir
framsóknarmenn taka við af hon-
um og halda áfram sjálfstæðis- og
viðreisnarbaráttu þjóðararinnar. Jón
forseti Sigurðsson gengur í fylk-
ingarbrjósti. Með djúptækri þekk-
ingu, festu, sem aldrei veik frá settu
marki, ví'ðsýni og ósérplægni bar
hann merkið fram til sigurs. Árar.g-
urinn af starfi hans og samherja
hans var stjórnarskráin 1874, sem
eg vék að í byrjun ræðu minnar.
Var stjórnarskráin mikil réttarbót,
enda markar hún merkileg tímamót
i sögu íslands. Síðan hafa fram-
farir hinnar íslenzku þjóðar verið
stórstígar á öllum sviðum, einkum
frá því um aldamótin. Enginn má
ætla að frægð íslands sé öll í for- |
tíðinni, þó þaðan fljúgi margur
neisti “framtaksins og hraustleik-
ans.” Fjarri fór þó, að stjórnar-
skráin uppfylti sjálfstæðiskröfur ís-
lendinga. Frelsisbarátta þeirra hélt
áfram. Vald Alþingis jókst að mun,
er íslenzkur ráðherra var skipaður
1904, sem standa skyldi þinginu
sjálfu, en eigi konungi, reikning
ráðsmensku sinnar. Loks er stærsti
atburðurinn i sjálfstæðismálum ís-
lendinga til þessa—viðurkenningTs-
lands sem fullvalda ríkis 1. des.
1918. Þá var “hið langþráða frelsi
og sjálfstæði fengið.” Dagur um alt
loft.—
Af Lögbergi höfum við þá í anda
svipast um af hátindunum í sögu
þjóðar okkar, og margt merkilegt
hefir fyrir augu borið. Enn er þó
eftir, að skygnast um af einum allra
hæsta tindinum, þar sem útsýnið er
hvað fegurst. Við rennum hugskots-
sjónum yfir Þingvelji 1930, og eg
veit, að sum af ykkur báruð gæfu
til þess, eins og eg, að sækja Al-
þingishátíðina, þúsund ára afmæli
merkustu stofnunar íslenzkrar, elsta
starfandi löggjafarþings um víða
veröld. Engum, sem þar var stadd-
ur, munu gleymast atburðaríkir dag-
ar þess einstæða hátíðahalds, í jafn
einstæðu umhverfi. Það var sem
litarík mynd í stórfenglegum
ramma: — Sumargrænir Þingvellir,
með sæg hvítra tjalda, á dökkum
grunni hrauna og kletta, með há-
tignarlegan f jallahringinn í baksýn.
Sú mynd máist seint úr huga hvers
þjóðrækins Islendings, sem hana
leit.
En-.Alþingishátiðin minti ekki að-
eins á afrek fórtíðarinnar; hún dró
athyglina engu miður að Islandi nú-
tíðarinar, og vakti miklar vonir um
framtið hinnar íslenzku þjóðar. Þeir
sem voru á íslandi 1930, eða heim-
sækja landið þessi árin, hljóta að
sannfærast um, séu þeir ekki blindir
á báðum augum, að þar býr þjóö,
sem er andlega glaðvakandi og á
hröðu framfaraskeiði.
Þegar eg fór heim til íslands
1930, hafði eg ekki verið í burtu
full tíu ár, en jafnvel á þeim
skamma tíma höfðu mjög miklar
verklegar framfarir orðið í landi
þar. Fari maður lengra aftur í tím-
ann, til aldamótanna, að eg tali nú
ekki um, ef horfið er alla leið aftur
til þjóðhátíðarársins 1874, verða
verklegu framfarirnar á íslandi svo
miklar, að firnum sætir, í saman-
burði við þá tímalengd, sem um er
að ræða. Þið, sem af íslandi fóruð
fyrir 30 til 50 árum síðan, mynduð
standa undrandi yfir þeim breyting-
um, sem þar hafa orðið síðan, i
samgöngum, atvinnuvegum og lifn-
aðarháttum.
Bílfærir vegir eru nú víða um
land og miklar vegabætur eru gerö-
ar árlega, enda fer bílum til mann-
flutninga og vöruflutninga hrað-
fjölgandi. Allar stærstu ár lands-
ins eru nú brúaðar. Fjöldi vita hef-
PORTRAITS
for
Old Country Mail
Your friends will appreciate your
Portrait at Christmas time, but if it is
an Eaton Portrait they will have a
.reason to be especially pleased.
Eaton artists are skilled in making
Portraits that capture the expression
that is your own personality.
This year we feature 6 portraits in
easel folders for mailing, and one large
portrait — all for
$5.00
Satisfaction Guaranteed
—Portrait Studio, Seventh Floor, Portage
EATON C°u