Lögberg - 15.11.1934, Síða 3

Lögberg - 15.11.1934, Síða 3
LÖGBEBG, FIMTUDAQINN Í5. NÓVEMBER, 1934. 3 Veglegt gallbrúðkaup Á sunnudaginn þann 30. október síðastliÖinn var þeim merkishjón- unum Mr. Bjarna Jones og frú Stefaníu Jones, haldiÖ afarfjölment og virÖulegt samsæti í bænum Minneota í Minnesotaríki, í tilefni af hálfrar aldar hjónabandsafmæli þeirra; hafa þau hjón átt búsetu i þessari glæsilegu íslendingabygð í fimtíu og fimm ár. Fulltrúar ís- 'lenzka safnaÖarins þar í bænum, áttu frumkvæöi að þessum mikla mannfagnaði, með aÖstoð kvenfé- lagsins. Séra Guttormur Guttormsson prestur sadnaÖarins, setti mót þetta er hófst með bæn og sálmasöng. A. B. Gíslason, héraðsdómari frá New Ulm, flutti fyrstu ræðuna, og fór lofsamlegum orðum um starf- semi gullbrúðhjónanna i þágu hins íslenzka mannfélags á þessum slóð- um, gestrisni þeirra, hjálpsemi og elju. Er dómarinn hafði lokið máli sínu talaði dr. Thordarson um hríð ; tók hann í sama streng og Gíslason dómari og þakkaði með fögrum orð- um þeim hjónum fyrir alúð þeirra við íslenzk mál í bygðarlaginu. Á milli ræðanna var skemt með söng. Þá flutti Gunnar B. Björnson ræðu, kryddaða sinni alkunnu fyndni, er vakti mikinn fögnuð. Því næst voru flutt kvæðin, er fylgja hér með Hamingjuóska skeyti bárust gull- brúðhjónunum víðsvegar að; þar á meðal frá Dr. B. B. Jónssyni, Win. nipeg og frú hans; séra Hans B. Thorgrimsssyni; séra K. K. Ólafs- syni í Seattle og fjölskyldu; séra N. Stgr. Thorlákssyni og frú að Mountain, N. Dak., og séra’Haraldi Sigmar og fjölskyldu, einnig að Mountain. Valdimar ritstjóri Björnson, er nýkominn var heim úr íslandsför, flutti gullbrúðhjónunum kveðjur úr heimabygð þeirra, Vopnafirði, sem og frá séra Friðriki Friðrikssyni, prófessor Guðmundi Finnbogasyni, Steingrími lækni Matthíassyni, Linari rithöfundi Kvaran og dóm- kirkjupresti séra Friðriki Hall- grímssyni. Mörgum og verðmætum gjöfum voru gullbrúðhjónin sæmd i tilefni af hátíðisdegi þeirra. Bar samkvæmið alt vott um djúpa virð- ingu og vinarhug til þessara merku og mikilsvirtu hjóna. * * * TIL VINA OKKAR Stefaníu og Bjarna Jones, í tilefní af gullbrnðkau fs-hátíð þeirra, 30. október, 1934. Fimtugsára feginsljómi Fyrirmyndar hjónatrygðar, Ástarinnar yndisblómi, Augljós fólki heimabygðar. Lagða hefir trúrra tveggja Trygðasambúð heillavegu. Nú vill geisla gullvef leggja Guð á hjónin elskulegu. Hann er sá, er signir lífið Sínum kærleik náðarbjörtum; Hann æ signir samlífs kífið Sigurvonum trúum hjörtum, Gefur þeim æ styrk að standa Staðfasta á æfibrautum, Og í trú á vegum vanda Vonarljós að sjá í þrautum. Kæru vinir- Þið hann þekkið, Þá og náð hans dýrðar líka; 5 kkur glöð við borð hans bekkið, Bindið trú við orð hans ríka; Það æ hafið látið lýsa Þeiðir ykkar gjörvöll árin, Látið vonir vænar rísa Veðrum í þótt gráni hárin. Ferðast höfum farna vegu Fram að þessu saman tíðum; Atlotunum ástúölegu, Yndisstundum huga blíðum, Við ei gleymum, minnumst mærra Meginþátta ykkar daga, Þið í öllu hugðuð hærra, Himna nutuðu dýrra laga. Nú við alt af alhug þökkum: Alúð, er á samleið þáðum, Hjartans velvild, huga klökkum, Heimadvöl með ykkur báðum. Biðjum Guð að láta lýsa Lífsins sól að aldurtrega, Hana láta’ æ hærra rísa, Hinsta kvöldið eilíflega. Alúðlegast, Erika og Steingrímur. MR. OG MRS. BJARNI JONES, Gullbrúðkaupskvceði 30. okt., 1934. Þið kvödduð fyrir löngu liðnum árum Á lífsins vori fagra ættlands strönd. Og stefnduð—vonum vígð og sakn- aðstárum, Til Vesturheims—að kanna ókunn lönd. Með farmannsorðið: ‘Fram, í Drottins nafni,’ Þið frumherjanna tróðuð þyrni- l>raut. Frá æsku Hann þið höfðuð æ í stafni, Og himins blessun ykkur féll i skaut. Þið genguð ei til starfs með hálf- um huga, En hönd á plóginn lögðuð fríð og ung, Og vegljós bezt var orð hins Al- máttuga Á eyðimörk, með handtök mörg og þung. Þið hélduð uppi háttum drengskaps manna, Og höfðingsskap og risnu Vopn- firðings: Og upp i fagurhæðir hugsjónanna Þið hófuð merki göfugs íslendings. Og nú i dag er vert svo margs að minnast, Og margt svo stórt og gott að þakka ber. Á langri ferð gefst færi mörgu að kynnast, þá finst oft gull við veginn—þar og hér. Vér hittum þessi hjón á förnum vegi, Með hug og dug, sem traust á verð- ur bygt, Og hjarta af gulli; er aldur grandar eigi, Og eldraun stóðst, og geymist hreint og trygt. Heill sé þér, Bjarni! Heill þcr, Stefanía! Við hálfrar aldar runnið æfiskeið. Nú gæfan ykkur götu leiðir nýja, Og góðar óskir fylgja’ ykkur á leið. Ó, gangið heil með Guði, vinir kærir, Um gróðurland með tærra strauma nið, Þars drottinn sjálfur svölun ykkur færir, Þars sérhver stundin býður hvíld og frið. Frá sjónarhæð nú horfið þið til baka Of heiðan, langan auðnuríkan dag. I muna endurminningarnar vaka, Og milda haustið kveður sigurlag. En yfir timans leiðum blysin loga, Og ljóma slær á farna æfibraut, Og sól Guðs skín um víkur, fjörð og voga, Og varmans nýtur kalin blómalaut. Og fyrir handan hafið austan megin Sig hefja Víkur-f jöllin yfir sjá; Með haustblæ frið, en himins gulli slegin, í helgiskrúða—rauð og hvít og blá. Þau benda ykkur blítt og vinalega, Og bjóða til sín, heim í Vopnafjörð, Þau muna hve það mýkir allan trega, Að mega líta þessa helgu jörð. Og f jallablær nú fer um hlíð og dali Með fagnasboð til ykkar, þessa stund, °g anRan blóma berst um veizlusali, Er brúðljoð tslands svífur yfir grund. Ó, vakið ung í vonalandi nýju, t von og trú, sem lyftir hug og sál. Guð blessi hjónin, Bjarna og Stef- aníu! Þess biður vinarhjartans þögla mál. María G. Arnason. * * * TIL BJARNA OG STEFANÍU JONES á Gullbrúðkaupsafnurli þeirra 30. okt., 1934. í dag vér hátíð höldum Heiðurs til margföldum Valinkunnnu vifi og höld, Sem leikið hafa lengi, Með lífsins heillagengi, Hjúskapinn í hálfa öld. Þess vér megum minnast, Margir kostir finnast Beggja þeirra brjósti í. Holl til helgra siða Er hjartað gerir friða, Biöls er þeirra blæðir ský. Þau býttu út eigin eigum, Er vér segja megum, Sem efnin gátu látið laust. Hún sjúkum sinti og léði Sína hönd með gleði, Efnalausra og aumra traust. Og oft þau angrast yfir örmagnans sem lifir, En megna’ ei brjóta böls hans stríð; Hennar hlutdeild ríka, Hugsjón dvelst við slíka, Hagsinnis til hefja lýð. Atvik mörg sem eru’ ótalin Eru nú í gleymsku falin, Þeim af sem að þáðu líkn; Á samkomu hjá þeim vinir vóru, Er væntanlega glaðir fóru Af þeim fundum svalli sýkn. Æfinnar þá endar leið Og út er runniS stríðsins skeið, Á sigurs- ykkar sannkölluðum velli. Ó, vér biðjum alvalds Guð, Ykkur veita samfögnuð, Með hægri hvíld og helgum deyð í hárri elli. Sturlaugur Guðbrandssan. (Gilbcrtson). Mannfjöldi á Islandi Samkvæmt “Mannf jöldaskýrsl- um’’ Hagstofunnar, sem út voru gefnar í fyrra, hefir fólksfjöldi hér á landi verið sem hér segir árin 1921—1930: í árslok 1921 ... 95,180 1922 • • • 96,386 I923 • • • 97,704 1924 • • • 98,483 1925 ... 100,117 1926 • • • 101,730 1927 • • • 103,327 ” 1928 1929 ... 106,360 1930 “Að líkindum eru tölur þessar öll árin heldur lægri en mannfjöldinn hefir í raun og veru verið, því að æfinlega mun eitthvað af fólkinu falla undan við ársmanntölin, eink- um í kaupstöðum og kauptúnum. Við manntalið 2. des. 1930 reyndist mannfjöldinn 108,861, en við árs- manntalið um sama leyti (presta- manntalið) 108,629, eða aðeins 232 lægra. Er það ekki teljandi munur, en búast má við að ársmann- talið hafi þá haft nokkurn stuðning af aðalmanntalinu, sem fór fram um líkt leyti, svo að það hafi orðið hærra en ella. Líkindi eru til að ef aðalmanntalið hefði ekki far- ið. fram 1030, að þá hefði mann- fjöldinn ekki talist hærri en 108,- 080.’’— Mannfjölgunin 1926—1930 hefir verið þessi (samkvæmt ársmann- tölunum) : 1926.. 1613 manns eða 16.1 á þús. 1927. .1597 manns eða 15.7 á þús. 1928.. 1485 manns eða 14.4 á þús. 1929. .1548 manns eða 14.8 á þús. 1930. .2269 manns eða 21.3 á þús. '(1720) (16.2) á þús. “Fjölgun 1920, 2269 manns eða 21.3 á þús., virðist vera tortryggi- lega mikil, en hinsvegar hefir fjölgunin næsta ár, 1931, verið ó- venjulega lítil. Þá var mannfjöld- inn í árslok, samkvæmt ársmanntal- inu, 109,844 og hefir því f jölgunin það ár átt að vera 1215 manns eða 11.2 á þús.” Mannfjöldinn í-kaupstöðum árið 1921 var 29,750, en í sýslum lands- ins 65,430. — Árið 1930, eða 10 árum síðar, eru hlutföllin þessi: Kaupstaðir 45,424 og sýslur 63,205. Fram að 1929 voru kaupstaðirnir 7 (Reykjavik, Akureyri, ísafjörður, Hafnarf jörður, Vestmannaeyjar, Seyðisfjörður og Sigluf jörður), en í ársbyrjun það ár bættist einn við, Neskaupstaður í Norðfirði. í árslok 1932 var mannf jöldinn á landinu alls 111,555, þar af 48,340 í kaupstöðum, og 63,215 í sýslum. —Um síðustu áramót (31. des. r933) eru landsmenn taldir alls 1 r3,353, >ar af í kaupstöðum 50,136 og í sýslum 63,217. Mannfjöldinn í Reykjavík var 30,565 í árslok 1932, en 31,689 um síðustu áramót. Vísir 19. okt. Hún: Mér er það óskiljanlegt að forfeður okkar skyldu geta lifað án síma. Hann: Þeir gátu það ekki heldur. Þeir eru allir dauðir. ■ ' ' ■ ' 1 ...... 1 - - -- PROFESSIONAL AND BUSINESS CARDS PHYSICIANS and SURGEONS DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. , Phone 21 834—Office tímar 2-3 Heimili 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg. Talsími 26 688 Stundar augna, eyrna, nef og kverka sjúkdóma.—Er að hitta kl. 2.30 til 5.30 e. h. Heimili: 638 McMILLAN AVE. Talsími 42 691 Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medlcal Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sta Phones 21 213—21 144 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200 DR. B. H. OLSON Dr. S. J. Johannesson 216-220 Medícal Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834-Office tímar 4.30-6 Viðtalstími 3—5 e. h. Heimili: 6 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba 218 Sherburn St.—Simi 30877 BARRISTERS, SOLICITORS, ETC. H. A. BERGMAN, K.C. Islenzkur lögfrœSingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 PHONES 95 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. Islenzkur lögfrœSingur 801 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 92 755 W. J. LINDAL K.C. og BJORN STEFANSSON tslenzkir lögfrœSingar 325 MAIN ST. (á öðru gólfi) PHONE 97 621 Er að hitta að Gimli fyrsta miðvikud. í hverjum mánuði, og að Lundar fyrsta föstudag G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. tslenzkur logfrœSingur Skrifst. 702 CONFEDERATION LIFE BUILDING Main St., gegnt City Hall Phone 97 024 E. G. Baldwinson, LL.B. tslenzkur lögfrœSingur Phone 98 013 504 McINTYRE BLK. Svanhvit Johannesson LL.B. tslenzkur "lögmaSur" Viðtalsst.: 609 Mc ARTHUR BG. Portage Ave. (í skrifstofum McMurray & Greschuk) Simi 95 030 Heimili: 218 SHERBURN ST. Sími 30 877 DRUGGISTS DENTISTS Medical Arts Drug Store R. A. McMillan PRESCRIPTIONS Surgical and Sick Room Supplies Phone 23 325 Medical Arts Bldg. Winnipeg, Man. DR. A. V. JOHNSON tslenzkur Tannlœknir 212 CURRY BLDG., WINNIPEG Gegnt pósthflsinu 0 Sími 96 210 Heimilis 33 328 Drs. H. R!& H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEG Phone Yonr Orders Dr. Cecil D. McLeod DR. T. GREENBERG Roberts DrugStores Dentist Dentist Limited Royal Bank Building Hours 10 a. m. to 9 p.m. Sargent and Sherbrooke Sts. PHONES: Dependable Druggists Phones 3-6994. Res. 4034-72 Office 36 196 Res. 51 455 Prompt Delivery. Nine Stores Winnipag, Man. Ste. 4 Norman Apts. 814 Sargent Ave., Winnipeg OPTOMETRISTS MASSEUR “Optical Authorities of the West” STRAlN’S LIMITED* Optometrists 318 Smith Street (Toronto General Trusts Bulldlng) G. W. MAGNUSSON Nuddlœknir 41 FURBY STREET Phone 36 137 TeL 24 552 Winnipeg Símið og semjið um samtalstlma BUSINESS CARDS A. S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur llkkistur og annast um út- farir. Allur ötbúnaður sá beztl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og Iegsteina. Skrifstofu talsimi: 86 607 Heimilis talsími: 501 562 HANK’S HAIRDRESSING PA.RLOR and BARBER SHOP 3 Doors West of St. Charles Hotel Expert Operators We specialize in Permanent Waving, Pinger Waving, Brush Curling and Beauty Culture. 251 NOTRE DAME AVE. Phone 25 070 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Lelgja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægi. Phone 94 221 A. C. JOHNSON 907 CONFEDERATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur að sér að ávaxta sparifé fólks. Selur eldsábyrgð og bif- reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrir- spurnum svarað samstundis. Skrifst.s. 96 7 57—Heimas. 33 328 o0RE’S TAJc * LTD. 28 333 LOWEST RATES IN THE CITY Furniture and Piano Moving 1 C. E. SIMONITE TLD. DEPENDABLE INSURANCE SERVICE Real Estate — Rentals Phone Office 9 5 411 806 McArthur Bldg. HÓTEL I WINNIPEG THE MARLBOROUGH SMITH STREET, WINNIPEG "Winnipeg’s Doum Toum HoteV’ 2 20 Rooms with Bath Banquets, Dances, Conventions, Jinners and Functions of all kinds Coffee Shoppe F. J. FALD, Manager n ST. REGIS HOTEL- 285 SMITH ST., WINNIPEG Pœgilegur og rólegur bústaSur i miSbiki borgarinnar. Herbergi $.2.00 og þar yfir; með baðklefa $3.00 og þar yfir. Ágætar máltiðir 40c—60c Free Parking for Ouests SEYMOUR HOTEL 100 Rooms wíth and wíthout bath RATES REASONABLE Phone 28 411 277 Market St. C. G. Hutchison, Prop. PHONE 28 411 CorntuaU ^otel Sérstakt verð á viku fyrir námu- og fiskimenn. Komið eins og þér eruð klæddir. J. F. MAHONEY, framkvæmdarstj. MAIN & RUPERT WINNIPEG It Pays to Advertise in the “Lögberg”

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.