Lögberg - 27.12.1934, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 27. DEfSEMBER, 1934.
3
Sökum þess að svo margir skoSa
krabbamein alveg ólæknandi, og
sökum þess enn f <%mur aÖ svo marg-
ir læknar gefa fólki mjög litlar von-
ir er þaS alveg eölilegt hversu
margir krabbameins sjúklingar
komast í hendur trúlækningafólks;
e'Öa þá hitt, sem enn þá er verra, a'S
þeir leita til fyrirlitlegra og glæp-
hneigðra skottulækna, sem þykjast
lækna krabbamein. Fyrir fáum ár-
um fluttu dagblöðin fjölda auglýs-
inga frá þeim, sem krabbamein þótt-
ust lækna. Sem betur fer hafa nú
lögin tekið í taumana, og eru þvi
þess konar auglýsingar ólöglegar.
Hver sá, sem auglýsir þa'Ö að hann
geti læknað nokkurn sjúkdóm, verð-
ur að sýna og sanna að lyf hans sé
í raun og sannleika einhvers virði;
annars er honum neitað um póst-
réttindi og hann á það á hættu að
verða kærður fyrir svik.
En þrátt fyrir þetta blómgast
þessar skottulækningar á vissum
stöðum, og eins og druknandi mað-
urinn grípur í hálmstráið, þannig
glepjast vesalings krabbameins-
sjúklingarnir á beitunni, sem þess-
ir óskammfeilnu prakkarar krækja
á öngul blekkinganna og hampa
frammi fyrir þeim. En hver ein-
asta auglýsing og hvert einasta lof-
orð um óbrigðula lækningu krabba-
meina eru svik og ekkert annað. Ef
fólkið gæti skilið þann sannleika, þá
hyrfu þeir frjárglæframenn brátt
úr sögunni, sem gera sér þessar
iilekkingar að lífsstarfi.
Hinum ýmsu krabbameinalækn-
ingum þessara manna má skifta í
tvær deildir: skaðlaus hressingar-
lyf, sem inn eru tekin og eru með
öllu gagnslaus, og ýmiskonar plástra
og bakstra, sem lagðir eru við sár-
in.
Sem dæmi um auglýsingafargan
sumra þessara skottulækna skal eg
lesa ykkur útdrátt úr auglýsinga-
blöðum frá manni, sem heitir
Chamlee og hafði afarmikla aðsókn
sem krabbameinalæknir í Ban'daríkj-
unum fyrir fáum árum. Loksins
skárust yfirvöldin í leikinn, tóku
hann fastan og fengu hann dæmdan
í margra ára fangelsi fyrír það að
nota póstréttindi Bándaríkjanna til
þess að svíkja fólk. Þessum Cham-
lee farast þannig orð um lyf það.
sem hann þóttist lækna með krabba-
mein: “Það er hin undraverðasta
uppfynding á jarðríki nú sem
stendur,” — “Það kemur frá
Sandwich eyjunum. Það er hið
eina óyggjandi lyf, sem nokkru
sinni hefir verið fundið upp. Það
er planta úr Kyrrahafinu. Þúsundir
manna hafa læknast án þess að
mistekist hafi í eitt einasta skiftþ
Vér læknum áreiðanlega krabba-
mein og þau koma aldrei aftur. Vér
notum sérstök hressingarlyf, sem
hreinsa blóðið og bera í burtu alla
ólyfjan krabbameinsins úr líkam-
anum.”
Rannsókn þessa lyfs—hins svo-
kallaða sérlyfs við krabbameini
leiddi það í liós, að í þvi voru 99%
af vatni og alkóhóli, örlítið af járni
og sykurefni, til þess að gera hað
sætt. í auglýsingunni sagði Cham-
lee, að ef lyfið læknaði ekki, þá
þyrfti ekkert að borga. Meðan mál
hans stóð yfir fyrir dómstólunum í
Bandarikjunum kom þar fram mað-
ur frá Wisconsin sem vitni; kvaðst
hann hafa keypt þetta undralyf og
notað það samkvæmt fyrirmælum
og forskriftum, en það hefði engan
bata veitt sér. Veslings maðurinn
skrifaði Chamlee og bað hann að
endursenda peningana, eins og lof-
að hefði verið. Svarið, sem hann
fékk var á þessa leið:
“Eg meðtók bréf þitt í morgun,
en skil ekki rökfræði þína þegar þú
biður mig að endursenda það litla,
sem þú borgaðir fyrir meðalið, sem
þú fékst, því vér settum þér ekkert
fyrir verk vor. Vér endursendum
þér ekkert, en ef þú vilt koma
hingað þá verður þú vissulega að
kaupa þér nýjar, sterkar tennur.
Komdu og reyndu! Eg hefi ekki
svo mikið sem stólræfil í mínu eigin
nafni; komdu því og heimsæktu
mig innan skamms; blessaður gerðu
það! Með von um að sjá þig aug-
liti til auglitis áður en langt Hður.”
Jafnvel þótt allir krabbameina
skottulæknar séu ekki eins ófyrir-
leitnir og þessi Chamlee, þá eru þeir
samt allir sama markinu brendir, að
því leyti að þeirra eina áhugamál er
það að ná í peninga sjúklinganna.
Þeir vita það vel a<5 þeir geta ekkert
látið í té, sem nokkurs sé virði, fyr-
ir það fé, sem þeir fá frá veslings
veika fólkinu eða vinum þess.
Því miður er það sannleikur að
krabbameini er hætt við að koma
aftur þótt það sé skorið í burt. Þeg-
ar það kemur fyrir er oftast þýð-
ingarlítið að reyna skurð í annað
sinn. Að því er lækningu snertir
fæst hún venjulega eftir fyrsta upp-
skurð eða alls ekki. Þess vegna er
það mjóg áríðandi að fyrsti upp-
skurður sé gerður á réttum tíma
og að ekki sé kastað til hans höndun-
um. Þegar meinsemdin vex aitur
eru X-geisla- eða radíum lækningar
oftast vænlegri • til árangurs en
skurður.
Jafnvel þótt þær aðferðir lækni
ekki sjúklingana, þá minka þær
}>rautir og hindra vöxt meinsemd-
anna eða tefja fyrir þeim i bráð-
ina ; þannig lengja þær líf hins sjúka
og skapa honum bærilegri líðan.
f þessu sambandi vil eg taka það
skýrt fram að þrautir eða sársauki
eru aldrei einkenni krabbameina
þegar þau byrja, hvar sem þau eru
í líkamanum. Þegar fram í sækir
geta aftur á móti þrautir i krabba-
meinum verið þungbærar, en í byrj-
un eru þær engar svo teljandi sé.
Og einmitt vegna þess að krabba-
mein eru kvalalaus í byrjun dregst
það oft fyrir sjúklingum að leita
læknis, því þeir halda að ekkert al-
varlegt geti gengið að sér á meðan
þeir hafa engar þrautir. Sérstak-
lega er þetta títt um konur, sem
hafa krabbamein í brjósti; þær hafa
ef til vill tekið eftir hörðum þrauta-
lausúm kekki svo mánuöum skiftir
áður en þær leita læknisráða. Ein-
stöku sinnum kemur það fyrir, að
krabbamein eru þrautalaus frá byrj-
un til enda og sjúklingurinn deyr
án þess að líða nokkrar kvalir.
Eg tók það fram hversu áríðandi
væri að reyná. að lækna krahbamein
eins fljótt og auðið væri. Því mið-
ur eru þeir margir, sem ekki leita
sér ráða fyr en meinsemdin hefir
náð föstum tökum. Ef til vill staf-
ar þetta að miklu leyti af því að í
byrjun krabbameina verður oft
engra sérstakra einkenna vart. Tök-
um til dæmis krabbamein í vörinni;
maður hefir sprungu eða fleiður í
vör ef til vill svo mánuðum skiftir
áður en hann gefur því nokkurn
alvarlegan gaum. Þessi fleiður eða
þessar sprungur í vörinni eru oft
ekki krabbakyns í byrjun, en sé
þeim ekkert athygli veitt er þeim
hætt við að snúast upp í krabba-
mein. Þau teljast til þeirra sára,
sem vér köllum undanfara krabba-
meina; frekari skýringa á því er
ekki þörf; það þýðir blátt áfram
þetta: að sárin geta orðið að
krabbameini sé þeim leyft að festa
rætur og þau ekki grædd. Það er
góð regla fyrir hvern þann, sem
hefir sprungu eða sár á vör, sem
ekki hefir gróið t. d. í þrjá mánuði,
að leita sér læknisráða.
Krabliamcin í maganum á karl-
mönnum er algengast allra krabba-
meina. í byrjun fylgja því engin
greinileg einkenni; maðurinn léttist,
missir matarlyst og tapar kröftum;
það erti oft fyrstu einkennin. Hvaða
rnaður eða kona, sem komin eru
yfir fimtugt og byrja að léttast,
missa matarlvst og tapa kröftum eða
þreytast fyr en áður, ættu tafar-
laust að leita læknisráða, því þessi
einkenni eru því miður oft fvrsta
aðvörun um krabbamein x magan-
um.
Krabbamein í görnum hafa stund-
um engin sérstök einkenni um lang-
an tíma, nema að því er hægðir
snertir; sjúklingurinn hefir tregari
°R tregari hægðir án þess að vita
nokkra orsök. Stundum blæðir iir
þörmunum, og það á sér of oft stað
að blóðið er álitið koma frá gvllini-
æðum, sem mjög eru algengar.
Þetta eru aðeins örfá dæmi til
þess að sýna hversu launhættulega
krabbameinin geta byrjað. Hver
einasta manneskja, sem komin er
yfir miðaldur og vör verður við eitt-
hvað einkennilegt við heilsu sína—
jafnvel þótt það valdi ekki miklum
óþægindum—ætti að leita sem fyrst
ráða hjá lækni sínurn; getur hann
þá ef til vill fundið orsökina að las-
leika þeirra og bjargað þeim frá
yfirvofandi hættu.
Stundum er að því spurt hvort
krabbamein læknist nokkurn tima
af sjálfu sér. Á það sér virkilega
stað að krabbanxein hverfi? Skottu-
læknirinn kallar alla nabba, sem
hann sér krabbamein ; og með þvi að
nema burt mörg meinlaus smáæxli
eða ber, ávinnur hann sér oft þakk-
læti fyrir það að hafa læknað
krabbamein, þegar um engan krabba
var að ræða. En til eru einstöku
dænxi, sem skýrslur greina frá, þar
sem krabbamein hefir í raun og
veru horfið af sjálfu sér. Sjúkl-
ingurinn hefir læknast af sjálísdáö-
um, eins og það er kallað. Það að
slík dæmi eiga sér stað sýnir að til
er lækning við krabbameinum, án
þess að þau séu numin burt með
hníf eða öðrum áhöldum. Ef vér
aðeins skildum það lögmál, sem
stjórnar frumluvextinum—frumlu-
lífi og frumluþroska, og vissum
hvernig vér ættum að nota oss það
lögmál, þá væri gáta krabbamein-
annan ráöin.
Eins og eg tók fi-am áður trúi eg
því að orsök krabbameinanna finn-
ist um síðir, þegar vér höfum lært
að skilja lögmál írumluþroskans og
hagnýta það.
Orsök krabbameinanna er að
finna í líkanxa vorum, hún er ekki
utanaðkomandi. Undir því er sig-
urinn i baráttunni við krabbamein-
in kominn ,að skilið verði hvernig
þær kringumstæður skapast í lík-
ama vorum, sem til meinsemdanna
leiða.
Þessi hugmynd um uppruna og
vöxt krabbameinanna er ekki upp-
haflega nxín eigin; en eg féllst á
hana vegna þess að hún er i sam-
ræmi við þaö litla, sem eg veit um
krabbamein.
Einn mesti sérfræðingur í krabba-
meinum var Sir Prérce Gould í
Middlesex spítalanum i Lundúna-
borg, og vil eg leyfa mér að enda
þessar athxigasemdir mínar í kvöld
með orðum hans. Þegar hann hafði
íhugað að dæmi voru til þess—þótt
fá væru—að krabbamein læknuðust
af sjálfum sér og hann hafði sjálf-
ur séð þess nokkur dætni, þá kornst
hann að þeirri niðurstöðu aö sterk-
asta vonin í sambandi við lækningu
krabbameinanna væri sú að þessi
sjálfkrafa lækning virkilega skyldi
eiga sér stað, því hún sýndi það að
lækning krabbameina væri þó til,
án þess að beita skurðlækningum.
Þegar hann hafði komist að þeirri
niðurstöðu fórust honum orð á
þessa leiö:
“Allar lækningar eiga sér sta%
einungis fvrir heilbrigð störf lík-
amskraftanna, og fyrsta von um
lækningu fæst með því að ihuga
undraverk aðstoðarlausrar náttúr-
unnar sjálfrar í því að lækna. Þér
segið ef til vill að allar þessar bolla-
leggingar flytji litla hugarfró; þér
segið að eg boði einungis heimspeki-
le.ga hugsjón og gefi falsvonir rneð
því að benda á skýrslur um afar-
sjaldgæfar undantekningar í hinni
erfiðu og hörmungafullu baráttu við
krabbameinin.
En þetta er f jarri sanni! Þessi
tilfelli, hversu fá sem þau kunna að
vera—eru samt sól vonar vorrar. í
niðdimmu næturinnar er það meira
virði en alt annað að vita að til er
sól sem jörðin er að snúast að; og
svo hitt að ef vér horfum stöðugt í
austur, þá sjáum vér vissulega grána
fvrir degi til þess að byrja með, og
svo næst hinn marglita fyrirboða
sólarinnar sjálfrar í allri sinni dýrð.
Og alveg eins er það* þegar písl-
arvottar krabbameinanna kalla til
vor í niðdimmu næturinnar, í ör-
væntingu sinni og segja; “Varð-
maður! hvað skeður í nótt ?” Þá er
það mikilsvirði fyrir þann, sem af
krabbameini þjáist, að vita að til
er einnig sól á himni lækninganna.
Oss er hætt við að öfunda
stjörnufræðinginn, sem þekkir svo
vel það lögmál, er ræður gangi him-
in hnattanna aö hann getur sagt
fyrir hvað skeður í alheinxinum með
svo mikilli nákvæmni að skugga
varpar á starfsemina í öðrum grein-
I PR0FESS10NAL AND BUSINESS CARDS
PHYSICIANS and SURGEONS
DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tímar 2-3 Heimili 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg. Talsími 26 688 Stund|Lr augna, eyrna, nef og kverka sjúkdóma.—Er að hitta kl. 2.30 til 5.30 e. h. Heimili: 638 McMILLAN AVE. Talsími 42 691 Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medlc&l Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy 8ts. Phonea 21 213—21 144 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200
DR. B. H. OLSON Dr. S. J. Johannesson G. W. MAGNUSSON
216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office timar 4.30-6 Viðtalstlmi 3—5 e. h. Nuddlœknir 41 FURBY STREET Phone 36 137
Heimili; 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba 218 Sherburn St.—Síml 30877 Slmið og semjið um samtalsttma
BARRISTERS, SOLICITORS, ETC.
H. A. BERGMAN, K.C. tslenzkur lögfrœðingur Skrifstofa; Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 PHONES 95 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. tslenzkur lögfrœðingur 801 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 92 755 W. J. LINDAL K.C. og BJORN STEFANSSON tslenzkir lögfrœðingar 325 MAIN ST. (á öðru gólfi) PHONE 97 621 Er að hitta að Gimli fyrsta miðvikud. I hverjum mánuði, og að Lundar fyrsta föstudag
G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. tslenzkur lögfrœðingur Skrifst. 702 CONFEDERATION LIFE BUILDING Main St„ gegnt City Hall •Phone 97 024 E. G. Baldwinson, LL.B. tslenzkur lögfrœðingur Phone 98 013 504 McINTYRE BLK. Svanhvit Johannesson LL.B. tslenzkur "lögmaður" Viðtalsst.: 609 Mc ARTHUR BG. Portage Ave. (I skrifstofum McMurray & Greschuk) Slmi 95 030 Heimili: 218 SHERBURN ST. Slmi 30 877
DRUGGISTS DENTISTS
Medical Arts Drug Store R. A. McMillan PRESCRIPTIONS Surgical and Sick Room Supplies Phone 23 325 Medical Arts Bldg. Winnipeg, Man. DR. A. V. JOHNSON tsienzkur Tannlœknir 212 CURRY BLDG., WINNIPEG Gegnt pðsthúsinu Slmi 96 210 ' Heimilis 33 328 Drs. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar 4 06 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEG
Phone Your Orders Roberts Drug Stores Limited Dependable Druggists Pron»i)t Delivery. Nine Stores Dr. Cecil D. McLeod Dentist Royal Bank Building Sargent and Sherbrooke Ste. Phones 3-6094. Res. 4034-72 Winnipag, Man. DR. T. GREENBERG Dentist Hours 10 a.'m. to 9 p.m. PHONES: Office 36 196 Res. 51 455 Ste. 4 Norman Apts. 814 Sargent Ave., Winnipeg
BUSINESS CARDS
A. S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur likkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talslmi: 86 607 Heimilis talsími: 501 662 HANK’S HAIRDRESSING PARLOR and BARBER SHOP 3 Doors West of St. Charles Hotel Expert Operators We specíalíze in Permanent Waving, Pinger Waving, Brush Curling and Beauty Culture. 251 NOTRE DAME AVE. Phone 25 070 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEO Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægi. Phone 94 221
A. C. JOHNSON
907 CONPEDERATION LIFE
BUILDING, WINNIPEG
Annast um fasteignir manna.
Tekur að sér að ávaxta sparifé
fðlks. Selur eldsábyrgð og bif-
reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrir-
spurnum svarað samstundis.
Skrifst.s. 96 7 57—Heimas. 33 328
28 333
LOWEST RATES IN THE
CITY
Furniture and Piano Moving
HÓTEL 1 WINNIPEG
C. E. SIMONITE TLD.
DEPENDABLE INSURANCE
SERVICE
Real Estate — Rentals
Phone Office 95 411
806 McArthur Bldg.
THE MARLBOROUGH
SMITH STREET, WINNIPEG
“Winnipeg’s Doum Town HoteV'
220 Rooms with Bath
Banquets, Dances, Conventions,
Oinners and Functions of all klnds
Coffee Shoppe
F. J. FALL, Manager
ST. REGIS HOTEL
285 SMITH ST„ WINNIPEG
pœgilegur og rólegur bústaóur i
miðbiki borgarinnar.
Herbergi $.2.00 og þar yflr; með
baðklefa $3.00 og þar yfir.
Ágætar máltlðir 40c—60c
Free Parking for Guests
SEYMOUR HOTEL
100 Rooms with and without
bath
RATES REASONABLE
Phone 28 411 .277 Market St.
C. G. Hutchison, Prop.
PHONE 28 411
Cornfcoall l^otel
Sérstakt verð á viku fyrir námu-
og fiskimenn.
Komið eins og þér eruð klæddir.
J. F. MAHONEY,
f ramkvæmdarstj.
MAIN & RUPERT WINNIPEG
It Pays to Ad vertise in tl ie"“Í Lögl -r berg”
um náttúruvísindanna. En með
alhi sinni þekkingu á þessu lögmáli
getur hann ekki flýtt fyrir komu
eins einasta dags né haft hin minstu
áhrif á hreyfingu einnar einustu
stjörnu, eða breytt ásigkomulagi
hins minsta ódeilis í himingeimnum.
En þegar lifeðlisfræðingurinn hefir
lært að skilja það lögmál, sem
stjórnar frumluþroskanum eins ná-
kvæmlega og stjörnujfræðingurinn
skilur sína fræði, þá skapast honum
máttur, og sá máttur gerir honum
það mögulegt að koma i veg fyrir,
og hafa vald yfir og að lækna
krabbamein.”
i - -l ii :—■
Borgið Lögberg!