Lögberg - 27.12.1934, Side 6
6
LÖGBP)RG, FIMTUDAGINN 27. DBSEMBER, 1934.
Heimkomni hermaðurinn
Það er guðs vegna að býflugur eru fallegar
og nytsamar. LTmhverfi þeirra er blátt vegna
þess að blái liturinn er fullkomnastur allra
lita í heimi og táknar ihreinleikann sjálfan;
þessvegna unna þær líka bláa litnum öllum
litum fremur. Það er margt og merkilegt,
sem læra má í sambandi við býflugur; l>að
eru til af þeim, -svo menn viti til eitthvað um
fjögur þúsund og fimm hundruð tegundir,
villitegundir, réttara sagt. Það er margt,
sem mennirnir geta af býflugunum lært, séu
þeir ekki of stórlátir; þeir gæti að minsta
kosti lært af þeim iðjusemina, sem telst til
hinna meiri háttar dygða. Sérhver býkúpa
er í rauninni margháttað dásemdaverk; nið-
urrððunin er slík, að enginn annar en meist-
ari meistaranna gat nokkru sinni slíku til
vegar komið. Það er athyglisvert að bý-
drotningin verður alla jafna miklu langlíf-
ari en vinnuflugurnar; þær síðamefndu lifa
oft og einatt þetta fimm til sex vikur; drotn-
ingin getur stundum orðið fimm ára gömul,
eða jafnvel meira; hún er stærri og hraust-
bygðari en vinnuflugurnar og verpir marg-
falt fleiri eggjum; hún hefir um sig stóreflis
liirð eins og voldugri drotningu sa>mir.”
Nokkrum dögum seinna kom Margaret
Cameron með bol eða vesti, er hún hafði sjálf
búið til handa Jamie; sniðið var þannig, að
eigi yrði hróflað við sárinu, hvort sem Jamie
beygði sig við vinhu eða ekki. Eftir að Mar-
garet Cameron hafði vandlega þvegdð sár
hans og komið umbúðunum haganlega fyrir,
færði hún Jamie í þetta töfravesti; honum
fanst sc>m um sig liði ljúfur straumur; um-
búðir þessar voru svo léttar og ]»ægilegar, að
]>ær virtust ekki piga minstu vitund skylt við
þær elclri og kluimalegu, er liann hafði orðið
að sætta sig við; ]>að gat varla heitið að hann
fyndi til þeirra hvaða stellingar, sem liann
setti sig í.
Síðustu viku höfðu þau Jamie og Mar-
garet unnið að því að dytta að girðingnnum,
eins og þau kölluðu það; þau vötnuðu blóm-
unum á reglubundnum tíma og önnuðust um
býflugurnar með allri þeirri umhyggju, er þau
í sameiningu áttu yfir að ráða. Jamie fylgdi
stranglega öllum þeim heilbrigðisreglum, er
honum hefðu verið lagðar fyrir, hvað matar-
æði snerti og háttsemi. A slaginu klukkan
tíu hvern einasta morgun fór hann í baðföt
býflugnameistarans, tók með sér handklæði
og teppi og staulaðist ofan að ströndinni; þar
fékk liann sér svo góða dýfu, eina eða fleiri
eftir því hvernig veður var. Eftir fyrsta dag-
inn fann hann ekki til nokkurs minsta ótta í
sambandi við sjóvolkið; hann óð út í brimið
eins og ekkert 'hefði í skorist og buslaði fram
og aftur; stundum mátti svo að orði kveða
að bylgjurnar lyktist vfir höfði hans, og áður
en hann í rauninni gat gert sér þess ljósa
grein, var hann farinn að synda, ef sund
skvldi kalla; honum fanst nú sem gæti Shann
hreyft báða handleggi jafnt, og ]iað öldungis
án tillits til sársins á brjóstinu; hann varð
svo yfir sig kominn af fögnuði, að honum
fanst sem blóðrásin hefði ekki verið í jafn
góðu Jagi í háa herrans tíð. Eftir að hann
hafði buslað í söltum sænum í góða stund,
hagræddi hann sér í sandinum á ströndinni,
glóðheitum sandinum, sneri höfðinu í suð-
vestur, breiddi vandlega yfir sig teppið til
þe'ss að verjast hinum stoikjandi sólarhita og
féll svo í væran svefn; hann komst þó til
sjálfs sín innan skamms, og fanst sem væri
haniv nýr maður.
Er heim kom staulaðist Jamie upp stig-
ann að bakinngangi hússins; hann nam
nokkrum sinnum staðar og leit yfir. bióma-
garðinn; hann þekti orðið flest blómin, eða
að minsta kosti taldi hann sér trú um að svo
væri; þau sem hann ekki kunni glögg skil á
sjálfur, þekti Margaret Cameron upp á sína
tíu fingur, og þurfti því ekki annað en leita
til hennar, ef þess þætti þurfa við. Hann var
farinn að veita því all-nákvæma athygli h\'aða
blóm það helzt voru, er hinar og þessar bý-
flugnategundirnar sóttust mest eftir; ]>að
leyndi sér að minsta kosti ekki hvað “svrörtu
Þýzkurunum” lék helzt hugur á; þeir fóru
ekki í neina launkofa með það. Er inn í húsið
kom, gekk hann beint til baðklefans, fékk sér
þar stéypibað, lagði nýjar umbúðir við sár
sitt og klæddist í snatri. Það var engu líkara
en alt liefði verið hnitmiðað niður, því þegar
hann var fullklæddur kom Margaret Cameron
með matinn. Að lokinni máltíð, lagðist
Jamie fvrir á rúmi býflugnameistarans og
sofnaði um stund; sofnaði út frá lokkandi
hvíslingaleik Ránardætra niður við strönd-
ina. Þegar hann vaknaði fékk liann sér góð-
an sopa af tómötuvökva, og gekk því næst
til vinnu sinnar í garðinum; vann hann þar í
hægðum sínum þó nokkurn tíma, því til á-
hlaupaverka vrar hann ekki sem bezt fallinn,
eins og heilsu hans var háttað. Að nokkrum
tíma liðnum gekk hann til bókaherbergisins
og tók ofan úr skápnum eina bókina af ann-
ari; ein af þeim, er fyrir honum varð, fjall-
aði um náttúrusögu hins forna tíma; svo
skringilegt fanst honum ýmislegt af því, er
þar fyrir augu bar, að hann gat ekki annað
en rekið upp rokna hlátur; hann lagði bók
])essa frá sér og fór að blaða í annari, er laut
að býflugnarækt hins nýja tíma, þar sem
strangar reglur voru settar fyrir því livernig
að skyldi farið, þannig að sem mests árangurs
mætti vænta.
Jamie hafði það einhvern veginn á með-
vitundinni, að ])ó býflugnameistarinn. kæmi
einhvern tíma heim, sem vonandi vrði, þá
hlyti hann að verða það veill, að litlar líkur
væri á að hann mvndi geta mikið gefið sig
við búsýslu; það var engan veginn óhugsandi
að það tæki hann heilt ár að ná sér eða jafn-
vel meira; honum fanst. það því bein skylda
sín að kvnna sér eins og föng væri á alt það
mikilvægasta, er að búsýslaninni laut í því
falli að sér yrði boðin staðan til frambúðar;
hann var sér þess meðvitandi að skilvrði til
trjáræktar voru drjúgum lakari í Californíu
en austur í ríkjunum; honum hafði ávalt leik-
ið hugur á að gefa sig við trjárækt; en úr því
nú að loku sýndist vera fyrir það skotið, að
til slíks gæti komið, virtist ekkert því til fvr-
irstöðu að helga býflugnarætinni lífið, ef
hann þá á annað borð ætti nokkurt líf fyrir
höndum, sem talsverður vafi lék á, eins og
heilsu hans var komið.
Nú voru liðnir tíu dagar frá því að
Jamie hafði skift um lifnaðarháttu og farið
að breyta eftir þeim reglum, er Dr. Grayson
hafði gefið honum. Hann hafði verið vanur I
að flýta sér í fötin undir eins og hann vakn-
aði; nú brá hann morgun einn út af þessum
vana. -I stað þess að rjúka fram úr rúminu, lá
hann í því góða stund glaðvakandi og velti
sér til á ýmsa vegu; hann teygði úr fótunum
til skiftis til þess að ganga úr skugga um
hvort hann fvndi til nokkurs verkjar í þeim
við áreynsluna; honum til' ósegjanlegrar á-
nægju varð svo ekki; hann gerði hliðstæðar •
tilraunir með handleggina, án þess að kenna
nokkurra minstu þrauta. Nú komst hanp að
þeirri niðurstöðu með sjálfum sér, að ef til
vill ætti hann að hafa um hönd lfkamsæfing-
ar á hverjum einasta morgni jafnskjótt og
hann vaknaði. Eftir á fætur kom og hann
hafði unnið af kappi nokkru í garðinum um
hríð, tók hann sér hálftíma hvíld eða. svo;
honum fanst mörg ár vera liðin frá því að
hann gat hugsað jafn skýrt og í þetta sinn;
það hafði létt eitthvað svo undarlega yfir
honum að ekki varð út.lýst með orðum; hann
vrar farinn að verða þess var að mikilvæg um-
skifti væru á ferð; honum var farið að verða
gott af fæðunni, auk þess sem honum fanst
hressandi svalstreymi líða um æðarnar í stað
sinnar óhreinu og sýktu blóðleðju, er orsakað
hafði honum ósegjanlegar þrautir. Eins og
nú var komið gat ekki hjá því farið, að hann
afkastaði drjúgum meira verki á býflugna-
búinu en áður íhafði gengist við; að minsta
kosti fanst -honum sem slíkt, hlyti að verða ó-
hjákvæmilegt.
Eftir nokkra umhugsun komst Jamie að
þeirri niðurstöðu, að eftir því sem lengra liði
á árstíðina, vrði það þeim mun óhjákvæmi-
legra fyrir hann að hann fengi einhvem til
þess að létta undir með sér við störfin; ein-
hvern, sem fyllilega mætti treysta, og liaft
hefði fullkomna æfingu í slíkum efnum; þess
vrði hvort sem var ekki langt að bíða, er fara
þyrfti að safna hunanginu. t næsta sinn er
hamj vdtjaði húsbónda síns á sjúkrahúsinu,
leitaði hann ráða hans í þessu tilliti og fékk
þegar það svar, að hann skvldi fá John
Carey sér til aðstoðar; liann væri hinn á-
byggilegasti maður og þeir hefði oftar en
einu sinni skifst á verkum. Jamie sat á stól
við sjúkrabeð býflugnameistarans og veitti
honum nánar gætur. Það var í rauninni á-
takanlegt að sjá hvernig veikindin höfðu
sorfið að honum, og markað spor jgín á hinn
holdgranna líkama hans; honum var það Ijóst
að rómur hins sjúka manns væri smátt og
smátt að tapa styrk sínum, auk þess sem það
duldist ekki að handtakið var sí og æ að
clofna. Jamie liripaði þau alt niður á blað, er
húsbóndi hans sagði fyrir, í þeim ásetningi
að fylgja því öllu eins trúlega fram og frek-
ast mætti verða. Það var eitthvað háalvar-
legt við það að virða fyrir sér þetta föla og
góðmannlega andlit á koddanum, sem var að
verða eins og bókfell og strjúka hendi um hið
silkimjúka hár; honum sýndist friðurinn, er
á ásjónu hans hvíldi, vera að verða yfirgrips-
meiri og inniihaldsríkari með hverjum deg-
inum sem leið; honum flugu nú í hug orð
litla skátans um dauðann; hve óútmálanlega
fagur hann stundum væri, og hve undurhljóð-
iega hann kæmi ])ráfalt að næturlagi; hann
fór að hugsa um það, hvort ekki gæti komið
til þess, að bróðir dauðans, og að lokum dauð-
inn sjálfur vitjaði húsbónda síns með líkum
hætti einhverja nóttina og lokaði augum hans.
Um hvað var sjúklingurinn að hugsa? Var
ekki vel líklegt, að hugsanir þeirra félli að
nokkru í sama farveg á þessari alvarlegu
stund? Býflugnameistaranum var augljós-
lega að verða æ örðugra og örðugra um mál.
Nú hvfslaði hann veikri röddu að Jamie:
Því ekki að byr.ja á bvrjuninni, g*óðurinn
minn. Mér leikur hugur á því að fræðast
eitthvað um foreldra. þína og fá vitneskju um
hver þú í raun og veru sért; hvemig heimili
þú áttir og hvernig uppeldi þínu var háttað;
það mvndi fá mér innilegrar ánægju að fræð-
ast um þetta, eða þessi atriði, og það sem
fvrst.
Undir flestum kringumstæðum hefði það
orðið Jamie auðvelt að skýra frá foreldrum
sínum og heimilislífi þeirra; liann hafði elsk-
að þau bæði heitt og innilega og þau höfðu
verið honum ósegjanlega ástúðug. Hann var
Skoti, og flestir Skotar finna til metnaðar
yfir uppruna sínum. Að þessu sinni* varð
honum það þó engan veginn áreynslulaust,
að minnast á fjölskyldumál sín; hann varð
því að láta sér nægja að minnast helztu at-
burðanna í því sambandi eins og þegar stikl-
að er á steinum. Sögu sinni lauk hann með
lýsingu á því hvernig sakir stóðu þegar hann
kom heim úr stríðinu og hvemig framtíð
hans þá horfði við. Er liann hafði lokið máli
sínu brosti sjúklingurinn til hans ofur vin-
gjarnlega og sagði: “Hvað er um býflug-
urnar og dvöl þína á heimili mínu? Hvemig
hefir þér fallið við hvorttveggja? Svar Jamie
var á þessa leið:
‘ ‘ Það skal hreinskilnislega játað, að vera
mín á heimili þínu, mök mín við býflugurnar
og starf mitt í garðinum, hefir orðið mér dýr-
mætur skóli. Viðhorf mitt gagnvart lífinu
hefir einnig breyst til muna; það á eg litla
skátanum að þakka, ásamt hinu hreina lofti
og sólskini, er ávalt umlvkur heimili þitt í
faðmi sínum; þetta alt hefir íhaft djúp áhrif
og opnað fyrir mér ný, sálræn útsýni; þetta
undur vingjarnlega umhverfi hefir smám
saman verið að nema á brott alla þá bitru
beiskju, alt það bjargþunga bölsýni, er búið
var að ná á mér ])eim heljartökum, er eg gerði
mér litla sem enga von um að losna lír. Hún
fvlgir mér æfina á enda, minningin um á-
stand mitt daginn sem eg hitti þig á vegin-
um og reyndi með veikum burðum að aðstoða
þig á leiðinni til sjúkrahússins. Eg minnist
þess glögglega hve eg fyrirvarð mig fyrir
fyrstu dagsverkin á heimili þínu; þau voru
ekki á marga fiska; engu að síður gerði eg
mér þó far nm að reyna að levsa þau af
hendi mcð fullri trúmensku; eg finn á því
mikinn mun hvað miklu meira eg get afkast-
að nú, og það með margfalt minni áreynslu.
E|g hefi, að því er kraftar mínir framast
levfðu, reynt að gæta hagsmuna þinna og
notið hinnar mestu gleði í starfi mínu.”
Býflugnameistarinn strauk hinni hold-
lausu höndum um ábreiðuna og unaðslegt
bros lék um varir hans: Þetta er gott, þetta
er ágætt, vinur minn! Hverju myndurðu
svara til, ef eg færi fram á að þú dveldist
með mér eftir eg kæmi heim, í því falli, sem
líklegt er, að eg yrði ekki starfhæfur fyrir
lengri eða skemmri tíma, og annaðist um
bú mitt, kyntir þér býflugnaræktina í alvöru
og hlyntir að garðinum mínum?” “Slíkt
yrði mér óumræðilegt fagnaðarefni,” svar-
aði Jamie. Eg gæti þá ef til vill hjiikrað þér
eitthvað líka og látið þig fara eftir ýmsum
þeim reglum, er eg nú sjálfur fylgi í þeim til-
gangi að komast til heilsu.” “Gott, ágætt,”
sagði sjúklingurinn. “Eg hefi veitt því eftir-
tekt upp á síðkastið, mér til ósegjanlegrar á-
nægju, hve litarháttur þinn hefir jafnt og
þétt verið að breytast til hins betra; hin bláa
örvæntingarmóða er oft og einatt bjúpaði
augu þín, er nú svo að segja. horfin; rödd
þín hefir verið að smástyrkjast unz nú er svo
komið, að þú talar eins og sá, sem er herra
sálar sinnar og skapsmuna. Eg held eg þyrði
að veðja hverju sem væri um það, að starf
þitt í garðinum mínum, ásamt reglum þeim,
er þú nú lifir eftir, muni á sínum tíma, koma
þér til fullrar heilsu og veita hamingju inn :
líf þitt. Hugsunin um þetta er mér dýrmæt
huggun, eins og hag mínum nú er háttað.”
Eftir nokkra málhvíld hóf býflugnameistar-
inn mál sitt á ný með þessum orðum: “Trún-
aðartraust á ávalt að vera gagnkvæmt; en
það er eins og mér finnist veikindin vera að'
gera. úr rncir hálfgerða raggeit, eða eitthvað
því um líkt. Komi til þess, að þú fáir ein-
hverju sinni löngun til þess að fræðast eitt-
hvað um mig, þá þarftu ekki lengra en til
félaga míns. Það var dimt uppi yfir í lífi
mínu, þegar litli skátinn kom til þess að eiga
með mér hlutdeild í kjörum mínum; eg var
kominn á fremsta hlunn með að varpa öllum
áhyggjum mínum á barnsherðar. Eg komst
þó að raun mn að slíkt gæti ekki látið sig
gera ;T>örn ættu of annríkt við að skemta sér
og taka út vöxt, til þess að geta sett sig til
hlítar inn í byrðar hinna eldri, þó þau væru
af öllum vilja gerð. Litli skátinn veit ástæð-
una fyrir því að eg yfirgaf mitt gamla heim-
ili og flutti hingað; eg treysti mér tæpast til
þess að endursegja þá sögu; þú getur fengið
j allar þær upplýsingar í því sambandi, ef þér
svo sýnist, hjá litla skátanum. Vegir mínir
hafa ekki ávalt verið stráðir rósum; eg hefi
kannað farvegu þjáningánna og tæmt marg-
an beiskan bikar í botn. Þó hefi eg aldrei
orðið viðskila við sólskinið. Eg hefi notið
mikils og margs í faðmi guðs grænnar nátt-
úrunnar; gróður moldarinnar hefir veitt mér
ósegjanlegan unað; eg hefi fundið til skyld-
leikans milli alls, sem lifir og hrærist, og bý-
flugurnar hafa kent mér margt. Bg vona að
þú hafir auðgast nokkuð af lestri bókanna í
safni mínu, býflugnaræktinni viðvíkjandi, og
mörgu fleiru góðu og gagnlegu.
Ragnhildar Sveiasdóttir
Jóhannsson
25. cles. 1857 — 21. apríl 1934.
Þann 21. apríl 1934, andaðist í
San Diego, Calif., konan Ragnhild-
ur Sveinsdóttir, eftir langvarandi
heilsubilun. Ragnhildur sál. var
kona herra Gunnlaugs Jóhannssonar
smiðs, lengi búsettum í Seattle, og
síðar i Los Angeles, en síðast í San
Diego. Hin látna var fædd að
Skógum í Mjóafirði eystra, og
dóttir hjónanna þar Sveins Sigurðs-
sonar og Sveinbjargar Sveinsdóttur.
Ólst hún upp í ])eirri sveit og gíft-
ist ung Stefáni Árnasyni, er dó
eftir nokkurra ára sambúð þeirra í
Mjóafirði. Þeim hjónum varð 5
barna auðið; 4 stúlkur og 1 piltur,
hvar af tvær dæturnar dóu, báðar
uppkomnar og giftar. Jóhanna dó
á íslandi frá mörgum börnum;
Maður hennar var Hermann Þor-
steinsson. En Guðný dó i Winni-
peg fyrir nokkrum árum síðan frá
4 börnum ungum. Maður hennar
var Tom Maher, nú í Seattle.
Þrjú börn Ragnhildar sál. eftir
fyrri mann hennar eru á lífi:
Sveinn, í New York borg; Mrs. Ósk
Smith, í Seattle og Mrs. Elizabeth
Thcfrbergson í Los Angeles, Cal.
Frá seinna hjónabandinu fæddist
þeim Mr. og Mrs. G. Jóhannsson 4
börn, 3 piltar og 1 stúlka. Mistu
þau tvo piltana hér vestur frá, þeim
til niikillar sorgar, báða uppkomna
að mestu. Ólafur Jóhann dó af
slysi á Pt. Roberts, Wash. í nóvem-
ber 1915, þá 17 ára gamall, en Bene-
dikt Sveinn, dó í Los Angeles úr
sóttvciki, 28 ára, þ. 16. júlí 1929.
Rdvard fæddist í Winnipcg 21.
marz 1903 og var fóstraður upp af
Magnúsi Péturssyni og konu hans
Guðrúnu, og er þar eystra enn. Dótt-
irin er Lára Hildur Goodman, gift
Guðmundi Goodman og búa þau
hjón hér í Seattleborg, hvar faðir
Mrs. Goodman hefir dvalið hjá
þeim nú um tima, síðan kona hans
dó.
Mr. og Mrs. Jóhannsson fluttust
frá Winnipeg til Seattle árið 1907
°& bjuggu hér, að undanteknum 2
árum á Pt. Roberts, til 1922, að þau
fluttu til Californíu með 2 börnin,
sem þá lifðu, Ben og Láru, sérn þá
var ógift. Bæði voru þau hjón
mjög félagslynd og gestrisin með
afbrigðum, hús þeirra ávalt opið
fyrir öllum, er að garði bar, og Mrs.
Jóhannsson studdi að safnaðar- og
kvenfélagsmálum með ráði og dáð
alla sína tið hér, þegar heilsa henn-
ar leyfði.
Seyðisfjarðarblað er beðið svo
vel að gera að taka þessa grein.
Vinur þeirra Jóhannssons.
H. Th.
Seattle, Wash., 13. des., 1934.