Lögberg - 30.05.1935, Síða 8
s
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. MAÍ, 1935.
Ur borg og bygð
Gleymið ekki spilakvöldun-
um í Goodtemplara húsinu á
þriðjudögum og föstudögum.
Góð verðlaun; gott músík.
Inngangur 25c. Allir velkomn-
ir. -------
Skuldar-fundur í kvöld (fimtu-
dag)
Skemti- og fræðslukvöld í
Leslie, Sask.
EftirtektarverSa skemtisamkomu
er Þjóðræknisdeildin Iðunn í Leslie
að undirbúa. Samkoman verður
haldin að kvöldi þriðjudagsins 4.
júní n. k. Ræðumenn verða séra
Jakob Jónsson, séra K. K. Ólafson
og séra G. P. Johnson. Einnig
verður þar söngur og upplestur til
skemtunar. \’onandi láta ekki
Yatnabygðabúar á sér standa, að
f jölmenna á þessa sjaldgæfu skemt-
un.
North-West Field Force,—Army
and Navy Veterans in Canada
(Winnipeg deild), halda samsæti i
Hudsons Bay búðinni, á þriðju-
dagskveldið þann 31. þ. m. kl. 7.
Mr. O. S. Oliver, fyrrum heilbrigð-
isfulltrúi, verður gestur þessa sam-
kvæmis, sem elzti íslendingur, er
herþjónustu hefir gegnt i þessu
landi.
Roskin kona, einhleyp, óskast á
fáment bændaheimili. Engin utan-
hússtörf. Húsmóðir heilsubiluð en
þó ekki rúmföst. Létt störf. Kon-
an þarf að vera skapgóð og skemti-
legur félagi. — Upplýsingar veitir
Mrs. T. B. Arason, Husawick, Man.
Tíminn styttis til kirkjuþings
Sendið framlög yð,ar sem fyrst í
Júbilsjóðinn. S. O. B.
Fjölmennið á K.N. samsætið á
fimtudagskvöldið!
Séra Jóhann Bjarnason, Box 459,
Gimli, er nú gegnir skrifarastörfum
kirkjufélagsins, mælist til að þeir
söfnuðir, sem enn ekki hafa sent
ársskýrslur sínar, sendi þær nú taf-
arlaust. Eru allmargar ársskýrsl-
ur nú komnar inn og sumar fyrir
nokkuð löngu. Þær skýrslur, sem
vantar þurfa að vera komnar í góð-
an tima fyrir kirkjuþing, svo skrif-
arinn geti lokið við ársskýrslu sína
i hæfilegan tima áður en þing hefst.
—Skýrslur sem koma inn þegar
menn eru rétt í þann veginn að fara
til þings, eða eru sendar inn á
kirkjuþing, eins og stundum hefir
átt sér stað, eru sama sem ósendar.
—Allar skýrslur embættismanna eru
þá fullgerðar og eru reiðubúnar að
verða lagðar fram á þingi.
Séra Kristinn K. Ölafsson og séra
Jakob Jónsson flytja sitt erindið
hvor um kristindóm og þjóðfélags-
mál, í sambandskirkjunni í Wyn-
yard miðvikudaginn 5. júní, kl. 8
e. h.—Samskot verða tekin og á-
góðinn skiftist milli beggja íslenzku
kirknanna í Wynyard.
Frú Anna Halldórsson, Alver-
stone St., hér í borginni, dvaldi
nokkra daga norður í Nýja íslandi
í fyrri viku, en er nýkomin heim
aftur.
Messuboð
FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA
Guðsþjónustur i Fyrstu lútersku
kirkju næsta sunnudag 2. júni,
verða með venjulegum hætti: Ensk
messa kl. 11 að morgni og íslenzk
messa kl. 7 að kvöldi.
Sunnudagsskóli kl. 12.15.
Sunnudaginn 2. júní eru messur
sem fylgir í prestakalli séra H. Sig-
mar: í Fjallakirkju kl. 11. í Ey-
ford-kirkju kl. 2 e. h. og i Péturs-
kirkju kl. 8 e. h. Fundur kirkju-
þingsnefndarinnar á Mountain kl.
3 e- h-
Messur í Yatnabygðunum í Sas-
katchewan sunnudaginn 2. júiií:
I Wynyard kl. 11 f. h.
í Kandahar kl. 1.30 e. h.
í Mozart kl. 4 e. h.
í Elfros kl. 7.30 e. h.
Messurnar í Wynyard og Mozart
verða á íslenzku í Kandahar og El-
fros á ensku.—K. K. Ólafson.
Messur í Gimli prestakalli næsta
sunnudag, þ. 2. júní, eru fyrirhug-
aðar þannig, að morgunmessa verð-
ur í Betel á venjulegum tíma, en
kvöldmessa kl. 7 í kirkju Gimli-
safnaðar. — Safnðarfundur næsta
dag, mánudag þ. 3. júní, að kvöldi
kl. 8, þar sem mikilsvarðandi mál
liggja fyrir til umræðu og úfslita.
—Fólk er beðið að muna eftir að
koma, bæði til messu og á fund.
Séra Jakob Jónsson messar í
Wýnyard næsta sunnudag kl. 2 e. h.
Mannalát
-i—Jón SigUrðssOn var glæsimenni á
veTli, stór maðúr vexti, þrekinn" og
vel á sig kominn að öllu. Svipaði
honum talsvert til Gunnars Björns-
sonar ritstjóra í Minneota. Þeir
bræðrasynir. Mun og hafa verið
margt líkt með þeim frændum að
því er skapgerð áhrærir og mann-
kosti.
Á föstudaginn þann 24. þ. m., lézt
að heimili sínu í Langruth, Man.,
Bjarni Thomasson (Thompson),
maður á áttræðisaldri. Kona hans,
Steinunn, systir þeirra frú Guðnýj-
ar Pálssonar og frú Önnu Stephen-
son, er látin fyrir allmörgum árum.
Börn þeirra hjóna, sem á lifi eru:
Ingibjörg, Kristín, Anna og Jón.
Síðastliðinn sunnudag lézt að
heimili sínu 554 S'imcoe Street hér
í borg, Mrs. Ingibjörg Sólmundsson,
57 ára að aldri. Lík hennar var
flutt til Gimli og fór jarðarförin
fram frá lútersku kirkjunni þar í
bænum á viðvikudaginn.
Hjónavígslur
Þann 22. þ. m. voru gefin saman
í hjónaband að Lundar, Man., þau
Eiríkur Stefánsson frá Oak Point
og Sigrún Sigurdson frá Otto, að
heimili foreldra brúðarinnar. Heim-
ili ungu hjónanna verður á Oak
Point.
Gefin voru saman í hjónaband að
Lundar, þann 22. þ. m., Jón Sig-
urðsson og Margrét Ólafsson, bæði
frá Maryhill. Séra Guðmundur
Arnason gifti. Framtíðarheimili
nýgiftu hjónanna verður við Crane
River, Man.
Fimtíu ára afmœli
ÞINGVALLA OG LÖGBERGS BYGÐA, 26. JÚLf, 1935
Hátíðm verður haldin við Concordia Hall í Þingvallabygð
Allir íslendingar eru boðnir og velkomnir á hátíðina, en
sérstaklega er gömlum landnemum og öðru fólki, er í bygðun-
um hefir dvalið áður, boðið að vera gestir bygðabúa, meðan
hátíðin stendur yfir.
Allir þeir, sem hugsa til að sækja þessa samkomu eru
beðnir að gera Magnúsi Bjarnasyni í Churchbridge aðvart
fyrir fram.
MÓTTÖKUNEFNDIN:
Mr. og Mrs. J. S. Vaíberg Mr. og Mrs. Jón Gíslason
Mr. Einar Einarsson Mr. og Mrs. Ch. Thorwaldson
Mr. og Mrs. Einar Sigurdson Mrs. G. C. Helgason.
BUSINESS EDUCATION
Has a Market Value
University and matriculation students are securing definite
employment results through taking a “Success Course”, as
evidenced by our long list of young men and women placed in
Winnipeg offices in 1934 and 1935.
/
SELECTIVE COURSES
Shorthand, Stenographic, Secretarial,
Accounting, Complete Office Training,
or Comptometer.
SELECTIVE SUBJECTS
Shorthand, Typewriting, Accounting,
Business Correspondence, Commercial
Law, Penmanship, Arithmetic, Spelling,
Economics, Business Organization,
M o n e y and Banking, Secretarial
Science, Library Science, Comptometer,
Elliott-Fisher, Burroughs.
CALL FOR AN INTERVIEW, WRITE US, OR
PIIONE 25 843
BUSINESS COLLEGE
Portage Ave. at Edmonton St., Winnipeg
W I N N I P E G
(Inquire about our Courses by Mail)
Þann 18. þ. m. ,lézt að heimili
sínu við Churchbridge, Sask.,
Magnús Magnússon, fæddur að
Vatnsholti í Flóa í Árnessýslu.
Kona hans, Guðrún, lézt fyrir fáum
dögum. Var hann jarðsunginn af
séra S. S. Christopherssyni við hlið
konu sinnar, í grafreit Konkordia-
safnaðar, 21. s. m., að viðstöddu
mörgu fólki. Blessuð sé minning
þessara hjóna.
Jarðarför Jóns Sigurðssonar frá
I Víði, er lézt 64 ára gamall á Al-
menna spitalanum hér í borg þ. 17.
maí s.l., fór fram, að miklu fjöl-
menni viðstöddu, þ. 21. maí, frá
samkomusal Víðisbygðar. Séra
Sigurður Ólafsson, þar sóknarprest-
ur, stýrði athöfninni og jarðsöng.
En auk hans talaði þar séra Jóhann
Bjarnason, fyrrum þar þjónandi
prestur. — Systkini Jóns, þrjú að
tölu, sem nú eru á lífi, Björn frá
Oak Point, Mrs. Helga Austmann
og Mrs. Anna Halldórsson, voru þar
öll viðstödd, ásamt mörgum ætt-
ingjum, tengdafólki og vinum. Öll
Víðisbygð þarna saman komin, að
virtist, ög þar að auki margt fólk úr
öðrum bygðum. Jón var vinsæll
maður, greindur vel, góðsamur og
greiðvikinn og hinn mesti dugnaðar-
maður. Hafði haft frábærlega góða
heilsu þar til innvortis brakkamein-
semd tók hann heljartökum og lagði
hann að velli. Hann var tvígiftur.
Fyrri kona hans var Kristín Jóns-
dóttir, ættuð úr Þingeyjarsýslu.
Hún andaðist, eftir Iangt sjúkdóms.
stríð, vorið 1909. Þeira börn eru
Sigurbjörg kona Davíðs Guðmunds-
sonar i Árborg, og Valdimar bóndi,
er á fyrir konu Sigríði Steingríms-
dóttur Sigurðssonar frá Selási í
Víðidal og konu hans Elisabetar
Jónsdóttur frá Litlu Giljá í Þingi.—
Síðari kona Jóns Sigurðssonar er
Sigrún Sumarrós Sigvaldadóttir
Baldvinssonar, ættuð úr Eyjafirði.
Eru börn þeirra tíu að tölu, sum
nokkuð stálpuð en hin meira eða
minna á unga aldri. Fjöldi manns
sér eftir Jóni Sigurðssyni. Var á-
gætur félagsmaður. Hafði póstaf-
greiðslu að Víði frá því það póst-
hús var’ stofnað: var forseti Víðis-
safnaðar í f jöldamörg ár. Átti lengi
sæti í sveitarstjórn og um skeið
oddviti sveitarinnar. Yar löngum í
stjórn rjómabúsins í Árborg og
ráðsmaður þess í nokkur ár. Mun
og hafa verið einn af fremstu mönn-
um bændaverzlunarinnar í Árborg.
Þann 21. þ. m. voru gefin saman
í hjónaband Baldwin Baldwinsson
og Helga Elizabet Jónasson, bæði
frá Riverton. Dr. Björn B. Jóns-
son framkvæmdi vígsluna að heim-
ili sínu 774 Victor St. Framtíðar-
heimili ungu hjónanna verður í
Riverton.
Dr. Tweed verður í Árborg á
fimtudaginn þann 6. júní næstkom-
andi.
Tvö herbergi til leigu á húsgagna,
að 525 Balmoral Street. Sími
34 321. Herbergin eru á efsta lofti,
björt og rúmgóð.
Professor Arthur Phelps an-
nounced today that the National
Council of Education radio series
over CJRC entitled “Yesterday and
Today” will be concluded by the
following broadcasts during-June:
June 3—“Newspapers Yesterday
and Today”—C. J. Woodsworth.
June 10—“Newspapers and the
Public”—Duologue Discussion on,
J. B. McGrachy and Randolf Pat-
ton.
June 17—“Travel Yesterday and
Today”—Trevor Lloyd.
June 24—“Why Travel?” Duo-
.logue Discussion, Robert England
and Miss Thompson.
These programmes all commence
at 8.30 p.m. The response to this
series has indicated that radio
listeners have enjoyed the novel
treatment of the subject dealt with.
A similar series was conducted by
the British Broadcasting Company
and the National Council of Educa-
tion has arranged to send copies of
these Canadian programmes to the
British Broadcasting Corporation
and it is probably that some of them
will be published in the B. B. C.
publication, “Listeners.”
AUGNASKOÐUN
og gleraugu löguð við hœfi
J. F. HISCOX
Optometrist
Formerly of Hudson’s Bay Co.
Successor to Maitland Tinlin
209 Curry Bldg. Ph. 93 960
Opposite Post Office
• • *,r j r-
ii KVEÐJUKVOLD n
I tilefni af íslandsför frú Jakobínu Johnson skáldkonu,
verður haldin samkoma í Fyrstu lútersku kirkju á þriðjudags-
kvöldið þann 4. júní kl. 8, fyrir forgöngu Jóns Sigurðssonar
félagsins, I.O.D.E., með atbeina Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar, þess eldra og hins yngra, Kvenfélags Sambandssafn-
aðar og Ladies’ Guild, Jón Bjarnason Academy.
Frú Jakobína les upp nokkur af kvæðum sínum; Mrs.
B. H. Olson syngur nokkur lög; hljómsveit Pálma Pálmasonar
skemtir með samspili.
Skemtiskráin fer fram uppi i kirkjunni, en að henni lok-
inni kemur fólk saman í samkomusalnum til samtals yfir kaffi-
bollum, þar sem því gefst kostur á að kynnast skáldkonunni og
árna henni farqrheilla.
Mrs. W. J. Lindal stjórnar samkomunni.
Aðgangur 25C
RECITAL
by pupils of
R. H. RAGNAR
assisted by
VERA McBAIN and
JÓN BJARNASON ACADEMY YOUNG MEN'S CHOIR
Music and Arts Building on Broadivay
FRIDAY, JUNE yth, at 8 p.m. . ADMISSION 25C
BUSINESS TRAINING
,B UIL D S
CONFIDENCE
The business world today needs Confidence. Too many work-
ers attempt to start and hald a position without Confidence in
themselves, their employers, or the educational conditions which
form the background for their practical lives.
The carefully planned business courses offered at the DOMINION
BUSINESS COLLEGE prepare you to meet business with Con-
fidence. You know that you are ready to prove your worth
and to hold responsible positions. Your training has been
thorough, and has made your services doubly valuable by deve-
loping your own talents along the right lines.
Don’t waste time trying to “find yourself” in
business. A consultation with the Dominion
Registrar will help you to decide upon the course
best suited to you.
The
DOMINION
BUSINESS COLLEGE
On the MALL, and at ELMWOOD, ST. JAMES and ST. JOHN’S
Residence Classes Mail Instruction
Day or Evening With Finishing