Lögberg - 04.07.1935, Blaðsíða 3

Lögberg - 04.07.1935, Blaðsíða 3
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 4. JGLt, 1935. 3 sagSist hann hafa mætt neinum ís- lendingi á þeim slóðum, enda er honum orÖiS ótamt aÖ tala íslenzku. Rev. Loptson er mjög myndarlegur maður, og viÖfeldinn i samræSum. Þessir íslendingar hé'Öan fóru til Markerville, Alta., til að vera á ís- lendingadegi þeirra ig. júní: Sveinn Johnson, Mr. og Mrs. O. T. John- son, S. Guðmundsson, Mrs. Lára Meldrum, Mrs. L. Benedickson og John Benediktsson. Mr. S. Sigurjónsson, sem var á einu sjúkrahúsinu hér um nokkrar vikur, er nú kominn heim aftur, og er á batavegi. Aldrei hefir verið eins mikið upp- þot á stjórnmálasviðinu í Alberta, eins og nú á dögum. Fimm stjóm- málaflokkar sækja um að komast til valda í næstu fylkiskosningum, sem búist er við að fari fram í ágúst. Þesjir flokkar eru consíervatives, liberals, verkamenn, bændur og Social Credit rpenn. Eina og kunn- ugt er, þá sækja ekki C.C.F. um kosningu nema við sambandskosn- ingar. Margir C.C.F. fylgjendur sækja um kosningu við næstu fylk- iskosningar, en þó undir merkjum bænda eða verkamanna. Social Credit menn hafa mikið um sig, og hafa náð miklu fylgi á meðal alþýðu, og ekki ómögulegt að þeir komist til valda, því ekki vantar loforðin hjá þeirn frekar en hjá hinuni stjórnmálamönnunum. Ekki held eg að þetta fylgi, sem þeir hafa, sé neitt annað en að alþýðan er búin að missa alla þolinmæði við algerðarleysi Ottawa-stjórnari nnar, og fylgja svo þessum flokki að mál- um, sem lofar svo miklu, og prédik- ar svo algerða breytingu á öllu stjórnarfarslegu fyrirkomulagi, sem þeir ábyrgjast að skuli binda enda á alt “Poverty in Alberta.” Þetta lætur vel í eyrum almennings. En það, að fólk yfirleitt botni nokkuð í þessari nýju “finance” fræði Mr. Aberharts, efast eg mikið um. Rétt þegar eg er að slá botninn í þetta bréf, sé eg í kvöldblaðinu, að ungur maður hér, hefir verið sæmd. ur einni júbíl-medalíu frá Breta- konungi. Þessi piltur er Jack Mc- Naughton, skozkur í föður-ætt, en móðirin er íslenzk, Mrs. Kristjana McNaughton. Jack er undirforingi (sergeant) í sjálfboðaliðsflokki hér í borginni. S. Guðmimdsson. Jubilee-sjóðurinn Samkvæmt ráðstöfun s í ð a s t a kirkjuþings verður haldið áfram að veita móttöku sérstökum framlögum í júbíl-sjóðinn upp að næstu ára- mótum. Sú breyting var gerð að afnema dollars takmarkið, sem hefir verið. Um kirkjuþingsleyti var upphæð framlaga, sem inn höfðu komið $916.42. Mun hér birtast í næstu blöðum nafnaskrá, sem vantar við það, sem fyrir hefir verið kvittað. Sjálfsagf má telja að margir enn vilji styðja heimastrúboðsstarf kirkjufélagsins, og er einstakling- um hér með jafnt hinum ýmsu fé- lögum safnaðanna boðið að eiga þátt í því að LÁTA JÚBILÍ-SJÓÐINN VAXA. A. S. Bardal, Winnipeg, $1.00; Mrs. A. S. Bardal, Winnipeg, $1.00. Börn þeirra eftir aldri, (Ný hug- mynd A. S. B.) : Aðalbjörg (Mrs. Reilly), 40C; Emilia Sesselja, 31C; Njáll Ófeigur, 29r; Svava (Mrs. Farrell), 27C; Karl Lúter, 25C; Ósk (Mrs. Davis), 24C; Signý, 23C; Helga Vigdís, 2ic; Arinbjörn Ger- ard, i8c; Margrét Stefanía, i6c; Agnes, 13C Paul Sigurgeir 8c. — Dr. A. Blondal, Winnipeg, $1.00; Mrs. A. Blondal, Winnipeg, $1.00; Harold, Doris og Alvin Bilondal, $3.00; Icelandic Heckla Club, Min- neapolis, $10.00. Upp að 17. júní, 1935. S. O. Bjerring. V ers! unarj öfnuðtir. Fyrstu sex mánuði ársins hefir útflutningurinn numið 14.7 milj. kr. en innflutning- urinn 17.9 milj. kr.—Innflutt um- fram útflutt því 3.2 milj. kr. Á sama tima í fyrra var útflutningur 12.7 milj. kr., en innflutningurinn 17.0 milj. kr. Innflutt umfram út- flutt þá 5.2 milj. króna. — Nýja dagblaðið. FYRIR MINNI MÝVATNSSVEITAR Þú mæta, fagra Mývatnssveit, þú mikla sveitadrotning. Þann fslending eg engan vejt, sem ei þér veiti lotning. Þú elur börn þín upp svo vel í æðstu mentaljósi. Þér fagni sannleiks sólarhvel, þér sagan ætíð hrósi. Þín fegurð æ svo miklast mér, þú mesta sveitaprýði. J’ars veiðisæla vatnið er, sem veitir blessun lýði. Og hraunaborgir, hólmar, sker og háar eyjar standa. Þar fagurt hreiður fugl á sér í fylgsnum blómsturvanda. Að sjá þig fagran sumardag með svipini tignarháa, er fuglar syngja frelsislag og flögra um vatnið bláa. Það vekur unun, veitir ró, svo víkur deyfð úr sinni. Og, sá er lengst við brjóst þín bjó, mun blessa æ þitt minni. Og þér skal syngja þakkarljóð og þér skal veita lotning. WHAT ONE GIRL WORE BY BETTY BROWNLEE One of the really aniazing things about this season’s frocks is the strik- ingly new and original' color combi- nations which are featured. Gayety is the keynote of the present mode and as far as color is concerned, con- trast is the thing and the more un- usual it is, the better. If someone told you a year ago that a grand idea would be to combine deep red with pale blue or red with pink or violet and red, you probably would have kept your opinion to your- eelf but most likely you would have thought the idea slightly mad. But it’s all come true. The most tinlikeiy colors have been bljended this season. Perhaps it was the linen vogue that started it all, for the most sensational tone combinations were first observed in the smart little linen suits and frocks that descended upon us with the first breath of spring. liowever, the idea has spread and un- usual color schemes are now observed in dresses and suits of cotton and silk. The most natural outlet for the un- usual in color schemes is, of eourse, in the field of .sports clothes, and two- tone combinations of striking contrast are the last word. Today we illustrate a smart little golf dress which, while not bizarre in its colors, is typical of the mode which stresses definite contrast. It is of a soft washable crepe in lemon yellow and uses bright red for the kerchief, belt and buttons. The red is that shade which has a slightly orange cast, increasing its vividness. Nice detail is to be found in the four patch pockets and the self-piping which accents its tailored effect. A Lemon Ycllow Golf Dress of Soft, Washable Creiæ is Sniartly Trlmmed Wlth a Bright Iteil KerclUef, Belt and Buttons. The Skirt, Whieli is ol’ the Wrap-Around Typo. Opens Only Above tlie Belt. However, as It Is Sewn Down Belovv. Þú ert svo fögur, ert svo góð, þú allra sveita drotning.— Á meðan ljómar svásust sól og signir grund og f jöllin, á meðan lifnar lilja’ á hól og leiftrar dögg um völlinn. Baldvin Jónatansson. Einkennilegir menn Um 1876, og allmörg ár eftir það bjuggu bræður tveir á Eyvindar- stöðum í Vopnafirði. Þeir hétu Þorsteinn og Friðrik. Ekki man eg hvers 1 synir þeir voru. Þeir voru einkennilegir menn að mörgu leyti, og ekki við alþýðuskap. Fáskiftir voru þeir um hagi eða háttu ann- ara mann, en gamaldags og einrænir til orða og gerða. Þó var þeim ekki vits varnað. Sérstaklega var því við brugðið hvað þeir væru smá- kvæmir í viðskiftum, því þeir reikn- uðu upp á brot úr smápeningum, en jafnt í sjálfs síns sök sem annara. Reikningsmenn voru þeir miklir, en reiknuðu alt í huganum. Þeir áttu bróður, er Sigurður hét og var hann alla æfi hjá þeim. Hann var þeirra einkennilegastur og af mörgum tal- inn hálfviti. Allir voru þeir bræð- ur komnir um miðjan aldur, þegar eg man fyrst eftir þeim, um 1870, en ekki vissi eg hver þeirra var elztur. Sigurður var jafnan þungur til vinnu en síhugsandi og gruflandi um einhver vísindaleg efni, sem enginn skildi. Hagur var hann vel, en ekki notaðist það vel til heimilis- þarfa, þvi ætíð voru það nýjar upp- götvanir, sem hann fékst við. Meðal annars heyrði eg að hann hefði smíðað stundaklukku þegar hann var unglingur, en hefði þó aldrei séð klukku áður. Hafði hann smíðað hana alla úr gömlum tunnustöfum, og merkt hana með 24 tímamörkum, þvi það hafði hann heyrt að væri rétt tímaskifting á sólarhringnum. Hafði klukka sú gengið furðu rétt eftir eyktamörkum. Þá var kaupmaður danskur á Vopnafirði er Melby hét, menta- vinur mesti og valmenni. Hann frétti um Sigurð og hagleik hans, og fékk hann á sinn fund með klukk- una, og fanst mikið um. Fór hann þvi að reyna hann í öðrum efnum og varð þess var að hann var furðu fær í hugarreikningi. Lagði hann fyrir Sigurð ýms dæmi, og leysti liann þau öll vel af hendi. Að síð- ustu hafði hann falið honum að reikna hversu m*argar saumnálar kaupskip það bæri er lá á höfninni, og skyldu þeir reikna dæmið sinn í hvoru lagi. Þeir vógu svo nálarnar og fundu hvað margar fóru í pund- ið og tóku-til verks. Sagt var að Sigurður hefði orðið drjúgum fljót- ari en kaupmaður, en sama tala kom út hjá báðum. Kaupmanni fanst svo mikið til um þetta að hann bauðst til að taka Sigurð og koma honum til menta, og það varð úr að hann fór til hans. En þess naut því miður ekki lengi, því skömmu siðar lézt Melby. Fór Sigurður þá heirn aft_ ur, og var þar í mesta einræni til æfiloka. En nú hafði hann lært undirstöðuatriðin að flestum reikn. ingi og neytti þess óspart. Sökti bann sér nú niður i stjörnufræði og ýmsan reikning, svo hann sinti lítt öðru, og var oft varla mönnum sinnadi. Oft þóttist hann vera að reikna út tíðarfar, og þóttu spádóm- ar hans í þá átt rætast. Var það einkum á vetrum, að hann fékst við slíkt. Það var þá löngum að súð og þiljur í baðstofunni á Eyvitidar- stöðum var alt þéttsett með tölu- stöfum, sem enginn skildi. Allir voru þeir bræður reiknings- glöggir, eins og áður er sagt, þótt þeir jöfnuðust ekki á við Sigurð. Einn þeirra hét Jóhannes. Honum kyntist eg mest. Hann var giftur og var í húsmensku hjá Runólfi bónda í Böðvarsdal, sem er næsti bær við Eyvindarstaði. Eg vann þar talsvert að smíðum sama ár. Jóhannes átti örðugt með að afla eldsneytis og fékk því leyfi hjá Friðrik bróður sínum að hirða eldi- viðarsmælki, sem rekið'hafði af sjó í vík einni í landeign þeirra bræðra fyrir vestan ána. En þar áttu þeir PROFESSIONAL AND BUSINESS CARDS PHYSICIANS a/tid SURGEONS DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tlmar 2-3 Heimili 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg. Talsími 26 68 8 Stundar augna, eyrna, nef og kverka sjúkdóma.—Er aó hitta kl. 2.30 til 5.30 e. h. Heimill: 638 McMILLAN AVE. Talsimi 42 691 —j Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medlcal Arts Bld*. Cor. Grahsm og Kennedy Bts. Phones 21 212—21 144 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200 DR. B. H. OLSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834-Office tlmar 4.30-6 Heimili: 6 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba Dr. S. J. Johannesson Vlðtalstlmi 3—5 e. h. 218 Sherburn St.~Sími 30877 G. W. MAGNUSSON Nuddlœknlr 41 FURBY STREET Phone 36 137 Slmlö og semjiS um samtalstlma BARRISTERS, SOLICITORS, ETC. H. A. BERGMAN, K.C. 1 slenzkur lögfrœOingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 PHONES 95 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. Islenzkur löcrfrtxðingur 801 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 92 755 W. J. LINDAL K.C. og BJORN STEFANSSON tslenzkir lögfrœðingar 325 MAIN ST. (á öBru gólfi) PHONE 97 621 Er að hitta að Gimli fyrsta miðvikud. I hverjum mánuBi, og að Lundar fyrsta föstudag G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. tslenzkur lögfrœðingur E. G. Baldwinson, LL.B. fslenzkur lögfrœðingur Skrifst. 702 CONFEDERATION LIFE BUILDING Main St., gegnt City Hall Phone 97 024 Phone 98 013 504 McINTYRE BLK. DRUGGISTS DENTISTS — Medical Arts Drug Store R. A. McMillan PRESCRIPTIONS Surgical and Sick Room Supplies Phone 23 325 Medical Arts Bldg. Winnipeg, Man. DR. A. V. JOHNSON tsienzkur Tannlœknir 212 CURRY BLDG., WINNIPEG Gegnt pósthúsinu Sími 96 210 Heimilis 33 328 f Drs. H. R. & H. W. TWEED Tanntœknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEG Phone Your Orders DR. T. GREENBERG Roberts DrugStores Dentist Limited Hours 10 a. m. to 9 p.m. PHONES: Dependable Druggists Office 36 196 Res. 51 455 Prompt Delivery. Nine Stores Ste. 4 Norman Apts. 814 Sargent Ave., Winnipeg BUSINESS CARDS A. S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur llkkistur og annast um út- farir. Ailur útbúnaBur sá bezti. Enníremur selur hanp allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talslmi: 86 607 Heimilis talslmt: 501 562 HANK’S HAIRDRESSING PARLOR and BARBER SHOP 3 Doors West of St. Charles Hotel Expert Operators We speciallze ín Permanent Wavíng, Finger Waving, Brush Curling and Beauty Cuiture. 251 NOTRE DAME AVE. Phone 25 070 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., \yINNIPEa Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tœgl. Phone 94 221 A. C. JOHNSON 9 07 CONFEDERATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur að sér að ávaxta sparif* fólks. Selur eldsábyrgð og bií- reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrlr- spurnum svarað samstundis. Skrifst.s. 96 157—Heimas. 33 328 0ORE’S TAJc * LTD. 28 333 LOWEST RATES IN THE CITY Furniture and Piano Moving C. E. SIMONITE TLD. DEPENDABLE INSURANCE SERVICE Real Estate — Rentals Phone Office 95 411 806 McArthur Bldg. HÓTEL 1 WINNIPEG THE MARLBOROUGH SMITH STREET, WINNIPEG "Winnipeg's Doum Toton BoteV 220 Rooms wlth Bath Banquets, Dances, Conventions, jinners and Functlons of all kinds Coffee Shoppe F. J. FALD, Manager ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST„ WINNIPEG Pægilegur og rólegur bústaOur i miObiki borgarinnar. Herbergi $.2.00 og þar yflr; með baðklefa $3.00 og þar yflr. Ágætar máltíðir 40c—60c Free Parking for Ouests SEYMOUR HOTEL 100 Rooms with and without bath RATES REASONABLE Phone 28 411 277 Market St. ,C. G. Hutchison, Prop. PHONE 28 411 Corntoall i>ottl Sérstakt verð á viku fyrlr námu- og fiskimenn. Komið elns og þér eruð klæddlr. J. F. MAHONEY, f ramkvæmdarstj. MAIN & RUPERT WINNIPEG 1 It Pays to Advertise in the “Lögberg” reka í samlögum Friðrik og Þor- steinn. Jóhannes fór þvi einn morg. un að tína saman rekann og kom með hann í poka á bakinu. Síðan vóg hann pokann undir votta, og var hann 12 pund. Þar af sagðist hann aðeins mega taka 6 pund, því Þor- steinn hefði ekki leyft sér að hirða sinn hluta. Skifti hann því þessu í tvo jafna hluti, og flutti annan helminginn yfir í f jöru aftur. Þessu lík var nákvæmni þeirra bræðra og réttlætistilfinning. Sigurður dó þeg- ar eg var um tvítugt og þekti eg hann minst þeirra bræðra, nema af afspurn. Hvað mundi hafa getað orðið úr þeim manni, ef hann hefði alist upp við betri kjör, og notið þeirrar mentunar, er gáfur hans bentu til? Hvað mundi hafa orðið úr okkar mestu vitmönnum, t. d. Birni Gunnlaugssyni, ef hann hefði alist upp við slík kjör sem Sigurð- ur? (Úr endunninninguin frá œskuár- um, eftir Guðm. Jónsson frá Hiísey)

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.