Lögberg


Lögberg - 18.07.1935, Qupperneq 7

Lögberg - 18.07.1935, Qupperneq 7
LÖGBKRG. FIMTUDAGINN 18. JÚLl, 1935. 1 Fimtugaáta og fyrsta ársþing HINS EVANGELISKA LÚT.ERSKA KIRKJUFÉL. ISLENDINGA I VESTURHEIMI. Haldið að Mountain, N D., og í Winnipeg, Manitoba 19. til 25. júní 1935. Hvort dæma eigi mannlegt líf og mannlegan félagsskap eftir lágmarki, hámarki eSa meÖallags einkennum, veldur oft ágreiningi. Hvort er sannari mynd af einstaklingi aÖ finna í því bezta í fari hans eða því lakasta? Hvort gefur sannari mynd af félagsskap að þekkja hæfustu og beztu menn hans eða þá tilkomuminstu og lökustu? Varla er hægt að gera lítið úr þýðingu hámarksins i hverju tilfellinu sem er. Hátindar finnast sjaldan nema í fjall- lendi. Frá því sjónarmiði hefir saga kirkjufélags vors verið all- merkileg að svo fámennur hópur hefir átt ótrúlega marga frá- bæra yfirburðamenn. Það veldur síður tvímælum að nefna að- eins nokkra af hinum framliÖnu leiðtogum vorum, svo sem séra Jón Bjarnason, séra Friðrik J. Bergmann, séra Jónas A. Sigurðs- son, séra Adam Þorgrímsson og séra Hjört J. Leó. Merkilegt leikmannatal mætti einnig gera. Stærri heildir gætu átt erfitt með að skipa fram slíku mannvali. Að vér höldum fagnaðarhátíð nú á fimtíu ára afmæli kirkju- félagsins, er engan veginn vegna þess að vér ekki könnumst við og vitum að margar veikar hliðar hafa verið og eru á samtökum vorum og starfi, heldur miklu fremur að þrátt fyrir þær hafi félagsskapur vor borið gæfu til að efla áhrif Krists vor á meðal. Og mikið ættum vér að geta lært af sögu þessara fimtiu ára. Hún ætti að minna okkur á að kirkjan verður að flytja svo mál sitt að það nái til fólksins, hafa vakandi hug fyrir öllu er snertir and- lega heill og umfram alt brenna af áhuga fyrir því að útþýða á öllum sviðum mannlegs lífs anda og áhrif fagnaðarerindisins. Þá getur félag vort verið lifandi og tilþrifamikil stofnun, sem að vísu er ekki laus við mannlegan ófullkomleik, en er einbeitt i því að stefna að takmarki sinu og hefja það i hvívetna. Slík kirkja á djúpar rætur í sögunni en lifir í viðfangsefnum og vanda- málum samtíðar og framtíðar. Stutt yfirlit ber að gefa yfir hið síðasta ár. Einn söfnuður kirkjufélagsins hefir á árinu bygt kirkju í samlögum við söfnuð tilheyrandi Sameinuðu kirkjnni í Canada. Er það Elfrossöfnuður í Saskatchewan. Slík samvinna er sjald- gæf, en hlýtur að teljast heppileg eins og víða er ástatt í smá- bæjum og þorpum. Of viða hafa verið bygðar margar kirkjur, sem svo er ekki hægt að rækja, og verður það til niðurdreps kristi- legri starfsemi. Það þarf að verða róttæk breyting í þessu efni, og þurfa kirkjudeildirnar að beita sér fyrir þvi að leysa vandann. Slík framtakssemi og samvinnuhugur, sem komið hefir í ljós í Elfros, bendir í áttina. Kirkjan, sem er hin vandaðasta, er um það að vera fullgerð án þess nokkur skuld hvíli á. Er það vel að verið í árferði eins og hefir verið nú um hríð. Verður kirkjan tekin til afnota nú skömmu eftir þing. Elzta kirkja vor er kirkja Víkursafnaðar, sem fyrri hluti þessa júbilþings er nú haldinn í. Var hún bygð árið áður en kirkjufélagið var stofnað undir forystu séra Hans B. Thorgrímsen, er þá var prestur safnaðarins en situr nú þetta þing með.oss sem heiðursgestur. \’ar fimtíu ára afmælis kirkjunnar hátílega minst þann 27. september síðastliðið haust, og bar söfnuðurinn gæfu til að hafa þá hjá sér aftur prestinn er þjónaði honum fyrir hálfri öld auk nokkurra af prestum kirkjufélagsins og forseta. Var eg prestur við kirkjuna í þrettán ár. Starf presta kirkjufélagsins hefir að mestu leyti haldið áfram óbreytt á árinu. Prestarnir þrir er tóku vígslu á síðasta kirkju- þingi hafa starfað á þeim stöðum er þá var búist við. Séra B. Theodore Sigurðsson var vigður til Selkirksafnaðar og þjónar þar, auk þess að heimsækja söfnuðinn í Winnipegosis og vinrta þar prestsverk. Séra Guðm. P. Johnson var vígður til Foam Lake og Hallgrímssafnaða í Saskatchewan og hefir þjónað auk þeirra á ýmsutn stöðum í austurhluta Vatnabygðanna. Á liðnum vetri veitti hann nokkra þjónustu um bygðirnar allar, er vesturhluti þeirra var prestslaus. Hefir hann einnig flutt nokkrar guðsþjón- ustur meðal Norðmanna og Svía í nágrenninu. Séra Bjarni A. Bjarnason þjónaði einn mánuð hjá Melanktonssöfnuði í Upham í Norður Dakota að afloknu kirkjuþingi, fór svo samkvæmt ráð- stöfun til íslendingabygðarinnar við Markerville í Alberta og þar í grend. Starfaði hann þar um þriggja mánaða tíma. Var honum ágætlega tekið af bygðarfólki og vegur hans greiddur á allan hátt. Kom séra Bjarni þar á sunnudagaskóla og reglubundnum guðs- þjónustum á víxl á íslenzku og ensku. Var talsverður hugur í mönnum þar að koma á starfsemi, en eftir að veturinn setti að sá séra Bjarni sér ekki fært að halda áfram í bili og hvarf austur. Var hann aftur hjá Melanktonssöfnuði um hátíðirnar, en fór síðan til Gimli og aðstoðaði föður sinn séra Jóhann yfir vetrarmánuðina. Starf séra Bjarna i Alberta var kirkjufélaginu kostnaðarlítið. Fargjald hans var greitt vestur og honum goldið eins mánaðar ■ kaup ($60.00) auk þess að njóta þeirra frjálsu samskota er inn komu við guðsþjónustur. Melanktonssöfnuður stóð straum af öllu starfi hjá sér og hefir ætíð gert. Séra Bjarni varð fyrir því óhappi í vor að verða hastarlega veikur og þurfa að ganga undir holskurð. Lá hann á sjúkrahúsi í Winnipeg og var tvísýnt urn líf hans unt nokkurn tíma. Er það gleðiefni mikið hve góðan bata hann hefir fengið síðan, svo fullar horfur,eru á að hann fái algerða bót meina sinni í nálægri framtíð. Svo skipaðist um í Gimli prestakalli i vetur að séra Jóhann Bjarnason, sem þar hefir þjónað i nokkur ár án þess að gerast þar fastur prestur, kaus að hverfa frá starfi. Snéri söfnuðirnir sér þá að því að fá séra Bjarna til framtíðarþjónustu. Þó mér sé ókunnugt um hvort hann hefir enn þegið formlega köllun, þá engu síður mun þetta vera að efni til afgert. í veikindum séra Bjarna hefir faðir hans haldið áfram að þjóna söfnuðunum. Er hann svo ern og ungur í anda að erfitt er að átta sig á því að hann sé að leggja niður starf. Forseti kirkjufélagsins starfaði í þrjá mánuði í Vatnabygð- unum í Saskatchewan að loknu síðasta kirkjuþingi. Flutti hann guðsþjónustur í Kandahar, Wynyard, Mozart og Elfros, fermdi 17 ungmenni og annaðist önnur prestsverk. Stóðu söfnuðirnir straum af þessu að fullu. Nú fyrir þing hefir hann aftur dvalið á þessum stöðvum við samskonar starf í sex vikur og býst við að halda þar áfram skömmu eítir þing um tvo og hálfan mánuð. Er þess brýn þörf að fastur prestur sé þjónandi í þessum söfnuð- um alt af. Stendur hugur fólksins mjög til þess. Eins og sakir standa er ófullnægjandi lifibrauð fyrir tvo presta í bygðunum, og er því á hug margra að helztu úrræðin væru að sameina allar bygðirnar i eitt prestakall. Er þarna eitthvert mest varðandi úr- iausnarefni í kristilegum starfsmálum vorum í nálægri framtið. Þyrfti framkvæmdanefnd kirkjufélagsins að vera liðsinnandi i því að fá það leyst. Að loknu starfinu í Saskatchewan fór forseti, eins og ráð- stafað hafði verið til bygðanna norður me<J Manitobavatni í Siglunessveit og fyrir vestan vatnið fyrir norðan Narrows. Dvaldi hann þar í sex vikur, flutti 17 guðsþjónustur og fjo«a fyrirlestra, auk þess að koma á fjölda mörg heimili. Fólkið alt a þessum stöðvum tók honuni frábærlega vel, sótti guðsþjónusturnar og fyrirlestrana ágætlega, og lét fúslega i té ferðagreiða og aðra gestrisni. Guðsþjónustur voru fluttar á þessum stöðum: Asherr. Silver Bay, Oak View, Hayland, Wapah, Reykjavík (Bluff), og Bay End, ásamt einni guðsþjónustu i gamalli bjálkakirkju Hollend. inga milli Silver Bay og Oak View. Var ferðin í alla staði hin ánægjulegasta, svo ekki varð á betra kosið. Hefir forseti fengið beiðni að koma aftur í þessar bygðir í næsta mánuði, og býst hann við að verða við þeirri bón. Er þetta annað helzta prestslausa sviðið í íslendingabygðum vorum, sem þarfnast þess að njóta sam_ vinnu kirkjufélagsins til að koma á skipulagi. Sérstaklega er ónæg ráðstöfun í sambandi við kristilega uppfræðslu. Kennarar við alþýðuskóla hafa sumstaðar gengist fyrir að koma á kristindónis- fræðslu, stundum á virkum dögum eftir skóla, til að bæta úr þörf- inni. í strjálum bygðum hepnast það oft betur en að ná börnunum aftur saman til kenslu á sunnudögum. Námsskeið þau er Banda- lag lúterskra kvenna hefir gengist fyrir hafa verið metin og gert gagn, en þyrftu að leiða til áframhalds heimafyrir. Tvo sunnudaga á árinu var forsti hjá Melanktonssöfnuði i Upham. Flutti þar einnig tvo fyrirlestra á virkum dögum um kristindóm og þjóðfélagsmál. Eru fáir söfnuðir vorir betur sam- taka um kristindómsmál en þar er raun á. Aðsókn var ágæt og hugur fólksins hlýr og vakandi. Er ilt til þess að vita að Banda- ríkjastjórn er búin að kaupa upp stóra landspildu í sveitinni til að gera úr þv! veiðistöð, svo á komandi hausti verður stór hópur af íslenzkum bændum a^ leita burt af heimilum þeim, er þeir hafa bygt upp og rækt. Er þetta þvinæst banatilræði við eina beztu íslenzka bygðina í Ameríku. Vestur á Kyrrahafsströnd var forseti tæplega hálft árið. Þjónaði hann Hallgrímssöfnuði þann tíma, og flutti auk þess eina guðsþjónustu á mánuði i Vancouver, B.C. Hallgrímssöfnuður hefir haldið uppi greiðslu á vöxtum af kirkjuskuldinni og um hundrað dollara af höfuðstól á liðnu ári, þrátt fyrir áframhaldandi erfiða afstöðu. Helzta nýmæli i starfinu þar í vetur var að hópur af ungu fólki kom sman einu sinni í viku til þess undir leiðsögn prestsins að íhuga vandamál nútímans í ljósi kristindómsins. Eg nefni þetta hér, ekki vegna þess að þetta í sjálfu sér hafi verið nema lítil tilraun, heldur vegna þess að eg er sannfærður um að greiðasta leið að kristindóminum á hverri tíð er í sambandi við þau vandamál, er þrýsta að ög eru á meðvitund manna. Unga fólkið virtist eiga opinn hug frá þessari hlið og vildi eg mæla með að aðrir gerðú tilraunir í þessa átt. Það þarf að komast inn í meðvitund fólks meir en verið hefir að vandamál nútímans þurfa á áhrifum kristindómsins að halda, og verða án hans ekki leyst. í Vancouver og þar í grend eru íslendingar mjög dreifðir. Litlar líkur tel eg til þess að þar sé, eins og nú horfir við, von um að koma á miklum félagslegum samtökum. En engu að síður er þörf á því, ef unt er, að sinna slikum hópum. Guðsþjónusturnar hafa verið mjög vel þegnar og einnig fyrirlestur, er eg flutti þar. Að annar uppsker en sáir í sambandi við mörg kristileg áhrif, rýrir ekki gildi þess að sá hvar og hvenær sem tækifæri gefst. Sumt af því, sem gert er án þess að vænta nokkurs árangurs, að minsta kosti ekki í félagslegu tilliti, getur orðið þyngra á metunum í reyndinni en nokkurn grunar. Þannig var sáð til hinnar fyrstu kristni og þannig þarf að sá til enn. Á síðastl. sumri voru liðin sextíu ár síðan fyrsta íslenz guðs- þjónusta var flutt í Ameríku. Á nokkrum stöðum var þess minst við opinberar gðsþjónustur. Séra N. S. Thorláksson var kvadd- ur til þess mjög tilhlýðilega að flytja erindi á þjóðhátíðinni í Milwaukee, þar sem minst var hátíðarinnar og guðsþjónustunnar sextíu árum'áður á sama stað. Er séra Steingrímur einn af þeim fáu er nú lifa, sem viðstaddir voru á fyrri hátíðinni. í sömu ferð flutti hann einnig guðsþjónustu í Chicago. Þeim er óðum að fækka er tilheyrðu fyrstu kynslóðinni í bygðum vorum. Er þar að hverfa hið valdasta lið, sem ynti af hendi frábæra þjónustu einnig í þarfir kristindómsmálanna. Hefir kirkjufélag vort.notið þessara frumherja í mörgu og einnig i sambandi við erfðagjafir til styrktar málefnum þess. í því efni ber nú að minnast sámamannsins Teódórs Jóhannssonar, er lézt í Glenboro á síðastl. vetri. Var hann mikill kristindódmsvinur og studdi safnaðarstarf í sinni bygð með ráði og dáð, meðan honum entist aldur. Hefir hann, samkvæmt tilkynningu skiftaréttar til þeirra, er annast starfsmál vor, í erfðaskrá sinni, sem nú er viður- kend af réttinum, ánafnað starfi voru eftirfylgjandi upphæðir: $300 til erlends trúboðs, og fjórar $200 gjafir, til heimatrúboðs, Jóns Bjarnasonar skóla, Betel og Sameiningarinnar. Mun hann einnig hafa minst blaðsins “Bjarma” í Reykjavík með svipaðri gjöf. Er þetta fagur vottur um hið göfuga innræti þessa ágæta bróður, sem annars lýsti sér i gervöllu lífi hans. Hrein og göfug minning slikra manna er dýrmætur arfur kirkjufélags vors á þessu fimtugs afmæli. Slík góðverk blasa við hinum lifandi til áminn- ingar og eftirbreytni. Skal þá nokkuð vikið að helztu starfsmálum. Jóns Bjarnasonar skóli. Á síðasta kirkjuþingi var heimilað lán úr sjóði erlends trúboðs kirkjufélagsins, er næmi alt að $600, til að bjarga eign skólans frá skattnámi. Aðeins $400 lán var tekið vegna þess um $200 komu inn í gjöfum til þessa augnamiðs í sam- bandi við meðferð málsins á þingi. Talsvert af ákveðnum lof- orðum er ógreitt enn. Voru einhver þeirra bundin því skilyrði að skólanum yrði hætt. Eru það vonbrigði að svo mikið stendur úti. Stendur þvi skuldin ógreidd. Að sjálfsögðu ber kirkjufélagið ábyrgð á þessu láni og verður að annast um að það verði greitt sjóðnum til baka. Skólaráðið mun skýra frá því undir hvaða skilyrðum skólan- um hefir verið haldið áfram á liðnu ári. Hefir aðsókn að skól- anum verið milli 70 og 80. Kennarar hafa veri^ hinir sömu. Hefir aldrei verið nokkur skuggi á því að þeir leystu verk sitt prýðilega af hendi. Er það þeim að þakka að skólinn hefir áunnið sér tiltrú ágætra manna af öðrum þjóðstofnum. Þrátt fyrir það hafa erfið. leikar skólans fjárhagslega farið vaxandi. Á hann sammerkt í því flestum stofnunum nú, sem lifa af frjálsum tillögum almennings. En hugsun vor má ekki ruglast vegna erfiðleikanna. Þeir skerða enganveginn hina upprunalegu hugmynd um kristilegan skóla, sem er jafngild þó Jóns Bjarnasonar skóli félli. Hvorki upphafs- maður skólans eða þeir, sem borið hafa hita og þunga dagsins i starfinu, verðskulda að þeim séu gerðar upp hvatir. Kristilegir skólar hafa verið og eru ein lielzta lifæð kristninnar. Þýðing þeirra hefir ekki verið hnekt þó þeir eigi erfitt uppdráttar. Jóns Bjarnasonar skóli fellur aldrei vegna þess að það sé sannað að kristilegir skólar séu óþarfir. Ekki heldur dæmir það skólann ógildan að aðrir sækja hann fremur en íslendingar nú um hrið. Æfiminning SÓLRON SIGURBJÖRG GUDBRANDSDÓTTIR GOODMAN F. 14. júní 1868. D. 1. maí 1935. Eins og getið var um hér í blöðun- um fyrir nokkru síðan, lézt að heim- ili sínu og sonar síns, Guðbrandur Goodman, 639 Lipton St., hér í Win. nipeg, ekkjan Sólrún Sigurbjörg Goodman. Sólrún heitin var fædd í Ólafsvík í Snæfellsnesssýslu á Islandi 14. júní 1868. Foreldrar hennar voru merkishjónin, Guðbrandur smiður Guðbrandsson og Guðbjörg Magn- úsdóttir. Bjuggu þau síðast á Fróðá í Snæ. fellsnessýslu, upp að þeim tíma, sem Guðbrandur dó, árið 1894, þá sex- tíu ára að aldri. Ekkjan Guðbjörg, hélt áfram búi nokkur ár, eftir fráfall manns síns, en flutti síðan hingað vestur árið 1904 og dó hér, árið 1916 þá sjötíu og f jögra ára gömul. Faðir Sólrún- ar heitinnar, Guðbrandur smiður, var sonur Guðbrandar í Vogi, Odds- sonar á Kjallákstöðum á Fellsströnd og Þuríðar Ijósmóður Orsmdóttur. Móðir Guðbrandar smiðs var Sig- ríður Guðbrandsdóttir, rika á Hólm- látri á Skógarströnd. Móðir Sólrúnar heitinnar, var Guðbjörg, Magnúsdóttir Árnason- ar á Rauðamel, í Hnappadalsssýslu, Jónssonar í Görðum í Bberuvík í Snæfellsnessýslu. En móðir Guð- bjargar Magnúsdóttur var Elín Jónsdóttir gullsmiðs Andréssonar frá Þórólfsstöðum í Dalasýslu síð- ar í Öxl í Breiðuvíkurhreppi í Snæ- fellsnesssýslu. Tuttugu og eins árs að aldri gift- ist Sólrún heitin Sigurði Guðmunds- syni, sem nú er dáinn, fyrir tuttugu og fjórum árum, og bjuggu þau á Haukabrekku, skamt frá Ólafsvík. —Var heimili þeirrá orðlagt fyrir gestrisni og góðvild öllum til handa, er að garði bar, sem margir voru. Sigurður var atorku- og dugn- aðarmaður og voru þau hjón þar vel samtaka, varð efnahagur þeirra þvi fremur góður og gátu þau látið mikið gott af sér leiða og gerðu það samhent í sönnum höfðingskap. Árið 1905 afréðu þau, að hætta búskap heima á íslandi og flytja til Vesturheims. Var nú orðið fvrir mörgum börn. um að sjá, árferði erfitt og fram- tiðarhorfur þá heldur daufar þar heima, en fréttir bárust héðan að vestan um vellíðan manna og góða f ramtíðarmöguleika. \ esturför f jölskyldunnar kostaði sem næst aleigu þeirra, en með ráð- deild og dugnaði komust þau hér vel af á meðan Sigurður lifði, en þvi miður varð samleið ekki löng hér, því að fimm árum liðnum, árið 1910 misti Sólrún heitin mann sinn og stóð ein uppi með barnahópinn, eftir lát Sigurðar heitins. Alls voru börn þeirra hjóna ellefu, eitt þeirra mistu þau á íslandi, stúlkubarn og tvær dætur hér í landi, sem dóu eftir að Sólrún heitin var ein orðin, að bjargast áfram með börnum sinum. Átakanlega sárar raunir varð hún að þola við missir þessara efnilegu dætra sinna. Sú eldri, Stephanía H. Þórðarson dó frá fimm ungum börnum og tók Sólrún heitin að sér, að líta eftir þeim og hjálpa, alt sem hún gat, á meðan tengdasonur hennar þurfti á hennar hjálp að halda. Næsta sorgartilfellið var, þegar hin dóttir hennar, Halldóra, hin efni. lega stúlka, veiktist af illkynjaðri svefnsýki, og varð Sólrún heitin að stunda hana og horfa upp á sjúk- dómsþjáningar hennar svo árum skifti, þar til dauðinn að lokum gerði endir á þjáningunum. Hin átta börn, sem lifa, eru f jór- ar dætur og fjórir synir, sem hér eru nefnd: Mrs. Thomas Hembroff, Donarest, Sask.; Mrs. R. Froom, Winnipeg; Mrs. John Boal, Winnipeg; Mrs. Carol Sullivan, Butte, Mont.; Árni Goodman, Winnipeg; Guðbr. Good- man, Winnipeg; Jóhannes Good- man, Winnipeg; Kristján Goodman, Butte, Mont. Auk barna Sólrúnar heitinnar, sem hér voru nefnd, eru tuttugu og þrjú barnabörn hennar á lífi og þrjú barnabarna börn. Alsystkini hennar voru átta, af þeim eru sjö á lífi: Stefán Brandson, Hjörtur Brand- son, Magnús Brandson, Oddur Brandson, allir i Winnipeg; Önund- ur Brandson, Swan River, Man.; Júlíus Brandsoti í Reykjavík á Is- landi og Mrs. Sína Benson, San Francisco, Calif. Einn bróðirinn dáinn, Hallgrím- ur Brandsori dó hér í landi árið 1918. Hálfbræður hennar voru tveir, synir Guðbrandar og fyrri konu hans Guðrúnar. Annar þeirra Guð- brandur, dáinn fyrir mörgum árum, hinn Magnús Guðbrandsson á Is- landi, mun enn á lífi. I gegnum alt það mótlæti, sem Sólrún heitin varð að líða, var hún sönn hetja, hugprúð og glóð og heimili hennar ávalt auðkent fyrir glaðværð og gestrisni, enda naut hún vinsælda og margra góðra vina á lífsleiðinni. Sjúkdómsstrið hennar hið síðasta var þungt. Rúmföst lá hún í f jóra mánuði. Aldrei kvartaði hún né vílaði, en lét jafnan í ljós, við vini sína, að sér væri heldur að batna og duldi þannig þrautir sínar, þar til undir það síðasta, að hún nokkrum dögum fyrir andlátið, hafði orð á því, að nú væri víst að því komið, að leggja á stað í langferðina hinstu, en ró og stillingu hélt hún fram í andlátið. Hversu góð móðir hún var og hvaða innræti hún hafði sáð í hjörtu barna sinna, auglýsti sig í þeirri um. hyggju, sem þau sýndu henni, þeg- ar hún þurfti þeir/a mest með. Dóttir hennar, Mrs. Thomas Hembroff, kom strax og hún frétti að hún lægi rúmföst og var hjá henni og hjúkraði henni í fjóra mánuði til hins síðasta og gerði það af snild. Mrs. Carol Sullivan, kom einnig og var hér í tvo mánuði, henni til gleði og huggunar. Og öll börn hennar hér, gerðu fyrir hana alt, sem þeim var mögulegt. Systir hennar, Mrs. Sína Benson, kom alla leið frá San Francisco til að vera með henni og hjálpa síðustu tvo og hálfan mánuðinn, sem Sól- rún heitin lifði. Þeir vinir, sem heimsóttu hana í veikindunum, til að hugga hana og gleðja, voru margir. Við jarðarförina, var fjölment, bæði í kirkjunni og úti í grafreitn- um. B. B. Jónsson, D.D., jarðsöng hina látnu konu. Inniiegt þakklæti skal hér vottað, fyrir hönd aðstandenda, öllum þeim, sem hluttekningu sýndu bæði á með- an Sólrún heitin lá veik og við and- lát hennar. Eins og þessi stutta um- sögn sýnir. er mér merk og góð kona til grafar gengin, að afloknu miklu og vel unnu æfistarfi. Við öll, sean bezt þektum hana og urðum henni samferða á lífsleiðinni þökkum henni fyrir samfylgdina, samhygðina, hjálpfýsina, glaðværð. ina og góðvildina og í einu orði alt gott sein frá hennar göfuga hugar- fari og góðu framkomu stafaði, okkur og öllum öðrum til handa, sem henni kyntust. Með hugljúfum endurminningum i hjörtum ættingja og vina, mun nafn og minning Sólrúnar heitinnar lifa og geymast um langa ókomna tið. Blessuð sé minning hennar. H. B. Blöð í Reykjavík á íslandi eru beðin að birta þessa dánarfregn.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.