Lögberg - 31.10.1935, Síða 1
48. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 31. OKTÓBER, 1935.
NÚMER 44
Frá Islandi
74 ára gamall maður bíðwr
bana af bílslysi.
í gærmorgun gekk inaður fyrir
bíl á Hafnáfjarðarveginum, skamt
frá Leyniimýri.
Höfuðkúpa mannsins brotnaði og
andaðist hann á sjúkrahúsi kl. 4 i
gær. — Maðurinn hét Brynjólfur
Magnússon frá Fífuhvammi, 74
ára að aldri.
Slys þetta vildi til með þeim hætti
að Brynjólíur var að fara með
mjólkurbrúsa úr vagni sínum, sem
stóð á vestari brún vegarins, þar
sem afleggjarinn liggur heim að
Leynimýri.
Þegar hann var kominn á eystri
brún vegarins kom bifreiðin G.K.
30 að sunnan og ók á milli mannsins
og vagnsins.
En í þeim svifum, sem bifreiðin
fór framhjá gekk Brynjólfur yfir
veginn og lenti með höfuðið á aftari
hluta bifreiðarinnar og féll við högg-
ið í götuna.
Bifreiðarstjórinn og farþegarnir,
sem voru í bílnum komu þegar
manninum til hjálpar og fluttu hann
á Landspítalann.
Þegar þangað kom reyndist höf-
uðkúpa Brynjólfs vera brotin og
var ekki hægt að bjarga lífi hans.
Llann andaðist kl. 4.
Bifreiðarstjórinn segist hafa gef-
ið hljóðmerki rétt áður en hann ók
fram hjá vagninum, ;g er Brynjólf.
ur heyrði það, mun hann hafa ætlað
að gæta hestsins og vagnsins, en ekki
séð að bíllinn var kominn svo ná-
lægt.—Mbl. 9. okt.
Norðmenn búast við vaxandi
samkepni við Island um
fisksölumarkaðinn.
Norska blaðið Aftenposten flytur
í dag grein um fiskveiðar og fisk-
verkun íslendinga.
Segir í greininni að norskir út-
gerðarmenn og útflytjendur salt-
fiskjar þurfi mjög að hafa gát á
þeirri sainkepni, sem vænta megi frá
íslandi á saltfiskmarkaðinum.
1 greininni segir ennfremur að
orsökin til þess að íslendingar hafi
bolað Norðmönnuin burt af markað.
inum í Portúgal séð bæði minni
framleiðslukostnaður og sú stefna,
sem íslendingar hafi fylgt í fisk-
sölumálum. Blaðið ræðir ennfrem-
ur um imöguleika á samvinnu milli
Norðmanna^og Islendinga í fisk-
sölumálum, og er þeirrar skoðunar,
að ekkert muni verða úr þeirri sam-
vinnu, raeS því að augljóst sé að ís-
lending*jfckjósi fremur ófrið og
samkepm; en samvinnu um fiski-
markaðina.—Mbl. 9. nóv.
400 ára afmæli Matthiasar
JochumssoinrfP ,
Akureyri tf'ekt.
Nefnd sú, er tekist hefir á hendur
að Aiiast hátíðahöld á 100 árá af-
mælt' f Matthíasar Jochumssonar,
hefir setið á rökstólum undanfarið,
og mun hún hafa komið sér saiman
um að halda þriheilagt og haga há-
tíðahaldinu þannig:
I.augardaginn 9. nóvember—
Samkoma í samkomuhúsi bæjar-
ins með söng, að öllum líkindum,
og ræðuhöldum, 6—8 ræðumenn.
Sunnudaginn 10. nóvember—
Hátíðamessa í Akureyrarkirkju,
séra Friðrik Rafnar fyrir altari og
séra Benjamín Kristjánsson í stóln.
um.
Um kvöldið verður “Skugga-
sveinn leikinn af Leikfélagi Akur-
eyrar, én Davíð Stefánsson ber fram
á undan (prolog) eftir sjálfan sig.
Mánudaginn 11. nóvember—
Lagður hornsteinn undir bóka-
safn Akureyrar, og halda þar ræð-
ur annað hvort bæjarfógeti, Sigurð.
ur Eggerz eða bæjarstjóri, Steinn
Steinsen.
Um kvöldið verður samkoma í
samkomuhúsinu, og heldur prófessor
Sigurður Nordal aðalræðuna, en
söngfélagið “Geysir” syngur. Á
eftir verður almenn danssamkoma i
húsinu.—Mbl. 8. okt.
Meðvitundarlaus og særður
maður finst á Melunum.
I gærkvöldi klukkan rúmlega 7
fann Sigmundur Sveinsson bifreið-
arstjóri hjá Strætisvögnum, mann,
sem lá á veginum skamt frá Loft-
skeytastöðinni á Melunum. Maður-
inn lá þarna í blóði sínu nieÖvit-
undarlaus.
1 Um sama leyti bar þarna að Hall
Þorleifsson með bifreið og flutti
hann manninn á Landsspítalann.
Var hann töluvert meiddur á
höfði og víðar. Maðurinn heitir
Árni Brynjólfsson og á heima þarna
skamt frá.
Árni var á leið heim til sín á hjól-
liesti er slysið vildi til.
Hjólið er mikið brotið og benda
líkur til að bifreið hafi ekið á mann-
inn og skilið hann eftir hjálparlaus.
an á götunni.
Lögreglan hefir mál þetta til
rannsóknar og er fastlega búist við
a hún hafi upp á bílnum.
—Mbl. 6. okt.
Jakobína Johnson,
skáldkona
hefir dvalið hér á íslandi um þriggja
mánaða tíma í sumar. Var henni
boðið heim og höfðu forgöngu fyrir
því ungmennafélög og kvenfélög,
auk félags Vestur-íslendinga.
Hún er ættuð úr S.-Þingeyjar-
sýslu og fædd þar 24. okt. 1883. En
barn að aldri fluttist hún með for-
eldrum sínum til Ameríku og hefir
síðan alið þar allan sinn aldur. Síð-
ustu 26 árin hefir hún átt heima í
borginni Seattle á Kyrrahafsströnd.
Hún á 7 börn, sem öll eru nú upp-
komin, nema eitt. Fræðslu sína
hefir hún fengið og framkvæmt
ljóðagerðina í frístundum alþýðu-
konunnar, sem annast börn sín og
heimili fyrst og fremst.
Jakobína hefir frumkveðið mörg
indæl kvæði og þýtt f jölda af okkar
ágætu’stu ljóðum á enska tungu. Má
þar benda á sem dæmi: Eg bið að
heilsa (Jónas Hallgr.), Heyrið vella
(Gr. T.), Hret (B. Gröndal),
Svanasöngur á heiði (Stgr. Th.),
Þjósönginn og Forsjónina (M.
Joch.), Skilmálarnir og Nú blika við
sólarlag (Þ. Erl.), Undir Kaldadal
(H. Hafst.), Norurljós (E. Ben.)
og f jölda margt fleira. — Hún virð-
ist vera jafnvíg á að kveða á ensku
og íslenzku.
Jakobina er hinn ágætasti útvörð-
ur íslands og ákjósanlegur fulltrúi
þeirra íslendinga er ala aldur sinn
fyrir vestan Atlanzhafið. Hún er
ekki eingöngu gott skáld, heldur ber
framkonm hennar öll vott um göf-
uga og mentaða konu. Að öðrum
íslenzkum konum ólöstuðum þykir
þeim er þessar línur ritar sennileg-
ast, að tvær allra mentuðustu og
merkustu ísl. konurnar, sem nú eru
uppi, séu þær Jakobína Johnson og
Ingibjörg Ólafsson, sem báðar hafa
alið mestan sinn aldur í stórborgum
erlendis. Þótt þær séu mjög ólíkar
hvor annari, þá eru þær svo einstak-
lega íslenzkar báðar, þrátt fyrir sina
löngu útivist.
Tvisvar hafa íslendingar boðið
samlöndum sínum heim frá Ame-
ríku. Sá fyrri þeirra kvað í tilefni
af því:
Eg kom heim í hópinn þinna drengja
hingað rnóðir! til að fá með þeim
aftur snerta upptök þeirra strengja,
er mig tengdu lífi og víðum heim.
Og sá sami kvað í tilefni af and-
láti Sigurbjarnar frá Fótaskinni,
föður Jakobínu skáldkonu:
Um það er sveitin, sem ber nú þín
bein,
í barmi sér ljósust til vitna:
Hún gullfáði nafnið þitt, gróf það
í stein,
til geymslu yfir strenginn sinn slitna.
En þó að kallað sé, að þessir
strengir slitni við andlátið, þá hafa
þeir veri svo traustir hjá Stephani
G. og Jakobínu til Islands og alls
þess bezta, sem íslenzkt er, að nöfn
þeirra munu “greypt gullfáð” í lif-
andi hugum þeirra, er unna íslenzk-
uin Ijóum', um óralanga ókontna
tíma. Og þó að Jakobína sé að
kveðja okkur hér heima í dag og
út á hafið breiða til sinna
nánustu skyldmenna og heimilis, þá
lifir hún áfram hér meðal vor á
“gamla Fróni” og strengirnir milli
hennar og þess munu ekki bresta.
26.-9. 1935- V. G.
—Dvöl.
Úr borg og bygð
Fólk er beðið að minnast fyrir-
lesturs Ásgeirs Ásgeirssonar er
verður haldinn í Fyrstu lútersku
kirkju á mánudagskvöldið 4. nóvem-
ber. Sérstakir aðgöngumiðar hafa
verið prentaðir við þetta tækifæri,
með mynd fyrirlesarans. Verða að-
göngumiðar markaðir við inngang-
inn en fólki fengnir þeir aftur til
minja um kvöldið. Aðgöngumiðar
fást hjá báðum íslenzku blöðunum,
Ó. S. Thorgeirssyni, J. W. Jóhanns.
syni og ritara Þjóðræknisfélagsins
B. E. Johnson.
"Enginn kann tveimur herrurn að
þjóna.”
Það koma hingað til Winnipeg
tveir stórhöfðingjar frá Evrópu, og
þó að það séu 365 dagar í árinu, þá
hittist samt svo á, að þeir verða hér
báðir sama daginn, þ. 4. nóv., næsta
mánudag. Þessir tveir stórhöfð-
ingjar eru þeir Ásgeir Ásgeirsson
fyrverandi ráðherra íslands; hann
kenuir á vegum Þjóðræknisfélags-
ins, en hinn er Oscar Olson há-
templari I.O.G.T. reglunnar; hann
er á vegum Adult Education Assn.
en hann heimsækir sína reglubræður
og systur hvar sem hann ferðast um
Bandaríkin og Canada.
Nú þar sem við íslendingar vilj-
um hlusta á báða þessa menn, sem
tala sama kvöldið, þá hefir okkur
tekist það með þessu móti:
Við öll, sem unnum I.O.G.T.
komum saman í Phoenix matsalnum
íMontgomery byggingunni, 21^/2
Portage Ave. (á þriðja lofti) stund-
víslega kl. 6 e. h.; þar borðum við
með höfðingja okkar, br. Olson, svo
geta þeir, sem vilja farið aftur kl.
8 og hlustað á Ásgeir Ásgeirsson í
Fyrstu lút. kirkjunni. Með þessu
móti getum við þjónað tveimur
herrum sama kvöldið.
Eg bið hér mieð alla, sem vilja
vera með Goodtemplurum þetta
kvöld, að gefa nöfn sín til Miss Ey.
dal, stórritara, 745 Alverstone St.,
sími 29 794, fyrir næsta sunnudags.
kvöld. Máltíðin kostar aðeins 25C
og borgist við borðið (engir að-
göngumiðar seldir).
Eg vona að sem flestir komi til að
heiðra okkar höfðingja með nær-
veru sinni; það er í fyrsta skifti
sem hátemplar hefir heimsótt Win-
nipeg.
Vinsamlegast,
A. S. Bardal,
Styður frjálslynda
flokkinn
Stjórnmálamaðurinn víðfrægi,
Philip Snowden Iávarður, fyrver-
andi fjármálaráðherra Bretlands,
hefir haldið tvær útvarpsræður i
yfirstandandi kosningahríð, þar
sem hann mælir eindregið með
frambjóðendum frjálslynda
flokksins. Snowden lávarður
tjáist vera jafnaðarmaður enn
sem fyr. En eins og nú hagi til
á Bretlandi, sýnist frjálslynda-
stefnan líklegust til þjóðþrifa.
Nýju ráðherrarnir í Ottawa
Lætur af embætti
Hon. G. Howard Ferguson, er
gegnt hefir High Commissioner
embætti fyrir hönd Canadastjórn-
ar í Lundúnum síðan 1930, hefir
látið af því embætti. Eftirmaður
hans verður Hon. Vincent Mas-
sey, sá er frá 1920 til 1930, gegndi
sendiherra embætti í Washington.
Leiðrétting
í handriti af ræðu sem birt var
í síðasta hlaði eftir J. J. Bildfell
og flutt var við afhjúpun minnis-
varðans á Gimli, stendur þessi
setning: Hlýjar hugsanir mann-
anna eru eins og sólin; þær verma
alt bæði lifandi og dautt. f prent-
uninni ruglaðist eitt orð, en þar
er sálin fyrir sólin. Þetta leiðrétt-
ist hér með.
Yndisleg kvöldátund
Frú Jakobína Johnson, nýkom-
1 úr sigurför sinni heiman af fs-
ndi, ílutti erindi um ferð sína
Fyrstu lútersku kirkju á þriðju-
igskveldið, og las upp nokkur
ýsamin kvæði. Er ekki nerna
tt um samkomuna að segja, eða
ið, að hún var öllum viðstðdd-
m til ógleymanlegrar ánægju.
rúin kom fram í islenzkum
:autbúningi og minti á töfrandi
Fintýradrotningu. Ferðasagan,
i margt yrði óhjákvæmilega að
aupa yfir, gaf engu að síður
;ýra heijdarsýn yfir það helzta,
fyrir augu hafði borið, og bar
iðsæan vott um innri lirifningu,
ída er frúin óvenju næm á feg-
'ð i hvaða formi sem er. Hún
;fir auðgast margvislega við ís-
ndsför sína, og þjóðin heima
j RT. HON. W. L. MACKENZIE
KING
j Hinn nýi forsætisráðgjafi cana-
; disku þjóSarinnar, Rt. Hon. W. L.
j Mackenzie King, er 61 árs aS aldri.
j Hann á sæti á þingi fyrir Prince AL
bert kjördæmiS, og var kosinn þar
meS meira atkvæSamagni en nokkru
sinnj fyr. Mr. King hefir haft meS
hönduml forustu frjálslynda flokks-
ins síSan 1919.
HON. ERNEST LAPOINTE
Hinn nýi dómsmálaráSgjafi, Hon.
Ernest Lapointe, er 59 ára aS aldri;
kom fyrst á þing 1904, og hefir átt
þar sæti jafnan síSan sem þingmaS-
ur fyrir East Quebec kjördæmiS.
Hann gegndi sama embætti í ráSu-
neyti Mr. Kings frá 1926—1930.
1 HON. J. C. ELLIOTT
Mr. Elliott hefir tekist á hendur
forustu póstmálanna í hinu nýja
ráSuneyti. Hann er þingmaSur
fyrir London borg i Ontariofylki og
er 63. ára aS aldri.
HON. W. D. EULER
Mr. Euler, hinn nýi verzlunarráS.
gjafi, kom fyrst á þing áriS 1917;
hann var þjóSteknaráSgjafi frá
1926—1930. Hann á heima í bæn-
um Kitchener í Ontario, og hefir um
langt skeiS gefiS þar út blað, er
“Record” nefnist. Mr. Euler er 60
ára gamall.
HON. T. A. CRERAR
Mr. Crerar á sæti í hinni nýju
stjórn Mr. Kings, sem fulltrúi
Manitobafylkis. Hann hefir tvisvar
áður gegnt ráSherrastöSu, en hefir
nú meS höndum forustu innanríkis-
ráSuneytisins.
HON. J. L. ILSLEY
Mr. Ilsley er rúmlega fertugur aS
aldri; hann átti sæti á síSasta þingi,
sem einn af þingmönnum frjáls-
lynda flokksins frá Nova Scotia.
Honum hefir veriS falin á hendur
forusta þjóSteknaráSuneytisins.
HON. J. A. MICHAUD
Mr. Michaud er lögfræSingur, 47
ára að aldri, og á sæti á þingi fyrir
eitt New Brunswick kjördæmiS.
Hann hefir veriS skipaSur fiski-
veiSa ráSherra.
HON. FERNAND RINFRET
Mr. Rinfret, hinn nýi ríkisritari,
hefir setiS á þingi síSan 1920, viS
góSan orSstír; hann er blaSamaS-
ur, 52 ára gamall. Hann var borg-
arstjóri í Montreal frá 1932—1934*
HON. C. A. DUNNING
Mr. Dunníng er fimtugur aS
aldri; hann fluttist hingaS korn-
ungur frá Englandi. en tók snemma
heimilisréttarland í Saskatchewan.
Hann varS forsætísráSgjafi Saskat-
chewan fylkis áriS 1926, og gegndi
því embætti þangaS tíl 1929, er hann
tókst á hendur forustu fjármála-
ráSuneytisins. Nú hefir honum
veriS falið sama embætti í hínu nýja
ráSuneyti.
HON. NORMAN McLEOD
ROGERS
Mr. Rogers var kosinn í fyrsa
sinn á sambandsþing i nýafstöSnum
kosningum sem þingmaSur fyrir
Kingston borg; nú hefir hann veriS
skipaSur verkamálaráSherra. Mr.
Rogers er 41 árs aS aldri og gegndi
prófqlssorsembætti í hagfræSi víS
Queens háskólann.
HON. C. D. HOWE
Mr. Howe, hinn nýi járnbrauta og
samgöngumálaráSherra, er af ame-
rískum ættum. Hann er víSfrægur
verkfræSingur. og á sæti á þingi
fyrir Port Arthur. Hann er 39 ára
gamall.
HON. JAMES GARDINER
Hinn nýi landbúnaSarráSgjafi
King-stjórnarinnar, og fyrrum for.
sætisráSgjafi Saskatchewan fylkis,
er 52 ára aS aldri; hann er ættaSur
frá Ontario, en útskrifaSur af Mani-
toba háskólanum. Auk stjórnmál-
anna, hefir Mr. Gardiner gefiS sig
viS skólakenslu og búsýslu.
HON. IAN MACKENZIE
HervarnaráSgjafinn nýi, Hon. Ian
Mackenzie, er lögfræSingur, 45 ára
aS aldri. Hann var kosinn á þing
fyrir MiS-Vancouver kjördæmiS.
saning
NNJTTKTTT FTtfiTTTB
skapi við það að kynnast henni
og hinum fögru ljóðum hennar.
Kvæði þau, er frú Jakobína las
voru ljúf og létu undur vel í eyra;
þó hafði maður það einhvernveg-
inn á meðvitundinni, að sjálf
væri hún i rauninni Ijúfasta ljóð-
ið.
Ih-. Björn B. Jónsson setti sam-
komuna með undurfagri ræðu, og
bauð frúna velkomna heim. Fyrir
hönd Þjóðræknisfélagsins, lét J.
.1. Bildfell einnig i ljós fögnuð
sinn yfir heimkomu og sigurför
frú Jakobínu, og sagðist honum
hið bezta.
Þetta Jakobínu-kvöld var í alla
staði unaðslegt og ógleymanlegt.
ÚR KOSNINGAPÉSA AFTUR-
HALDSMANNA UM FRJALS-
LYNDU STBFNUNA OG
MR. KING
“Frjálslynda stefnan, sem brýst
áfram eins og flóðalda nú á tímum
yfir allan hinn iirtentaSa heim, er
það afl, sem endurreisir vellíðan í
Canada. . . .
“Mackenzie King er góðviljaður
maSur og prúSur; hann er lærður
maður, visindamaður, stórhæfur
maður og heiSvirður.”
Þessi ummæli eru prentuð og gef-
in út af aðalkosninganefnd aftur-
haldsmanna í Ottawa, rétt fyrir
kosningarnar.
Vornóttin kyrlát, vætuský
vefur að fjallatindum,
breiðir í dalinn, björt og hlý,
blessun í daggarmyndum.
LogniS, þaS faðmar landiS.
Loftið er ilmi blandið.
BýliS er kyrt og blundar rótt.
Bóndinn er samt á fótum.
LogniS hann kýs að nota í nótt,
natinn aS jarðabótum.
Verkin, sem þarf að vinna,
vitjunartímann finna.
Hanti hqfir brotið moldarmó,
rnuliS og tætt í sundur.
Vinna með hestum, herfi og plóg
honum er vaka og blundur.
Nú á að nota lagiS.
Nú vill hann sá i flagið.
FræiS er smátt og flýgur þétt,
fagnar í senn og biSur,
vaggar um stund í lofti létt,
lætur svo fallast niSur.
GróSur er gæfuimtegin. ,
Grundin er hljóS og fegin.
Guðmundur Ingi.
—Dvöl.
HÆZTIRÉTTUR SKER ÚR
Sambandsstjórnin hefir ákveðiS
aS láta hæztarétt skera úr því, hvort
hin svonefnda unibótalöggjöf síð-
asta þings ríSi að nokkru í bága viS
stjórnarskrá landsins eða eigi.
ForsætisráSherrann, Mr. King,
hefir valið þá Dunning fjármála-
ráðgjafa, Euler verzlunarmálaráS-
gjafa og Gardiner landbúnaðarráS-
gjafa til þess aS hafa á hendi yfir-
umsjón mleS starfrækslu hveitisölu-
nefndar þeirrar, er John McFarland*
veitir forustu.
Á ársþingi bændasamtakanna i
Manitoba, sem nýlega var haldiS i
Portage la Prairie, var samþykt í
einu hljóði ályktan þes9 efnis, aS
æskilegt væri aS stofnaS yrði seHVv
allra fyrst til gagnskiftasamningaf
viS Bandarikin. Einnig Iýsti þingiS
yfir eindregnu fylgi við samvinnu-
stefnuna.
Fullyrt er aS fylkiskosningar i
Quebec muni fara fram seinni part
næstkomandi mánaðar. Er kosn-
inga undirbúningur þegar hafinn.
TaliS er alveg víst aS Tascherau
stjómin verði endurkosin meS yfir.
gnæfartdi meirihluta.
KVEDJA HEIM NOKKUÐ AF
MIÐJARÐARHAFS
FLOTANUM
SímaS er frá London að stjóm
Breta hafi ákveðiS aS kveðja heim
nokkuS af MiSjarSarhafsflotanum,
með því aS nú horfi svo viS að hans
sé nú þar ekki eins brýn þörf og
áður.