Lögberg - 31.10.1935, Blaðsíða 8

Lögberg - 31.10.1935, Blaðsíða 8
8 LÖGBERGr, FIMTUDAGINN 31. OKTÓBER, 1935. Ur borg og bygð Skuldar-fundur í kvöld (fimtu dag) Dr. Sveinn E. Björnsson frá Ár- borg, kom til borgarinnar ásamt frú sinni á sunnudaginn. Þau héldu heimleiðis síðari hluta mánudags. Mr. Thorhallur Einarsson frá Brown, Man., dvelur í borginni þessa dagana. Miss Dora Guttormsson, pianó- kennari frá Lundar, var stödd í borginni um síðustu helgi. Hún hélt heimlleiðis á mánudaginn. Mr. Dalman, forseti fiskimanna- félagsins við Wjnnipegvatn, var staddur í borginni á laugardaginn í erindum þess félagsskapar. Dr. Tweed, tannlæknir, verður í Árborg á fimtudaginn þann 7. nóv- ember næstkomandi. Mr. og Mrs. G. J. Oleson frá Glenboro, Thomas sonur þeirra og Eldjárn Johnson lögregluþjónn, komu til borgarinnar á miðvikudag- inn var og dvöldu hér fram undir helgina. Með þeim fór vestur til stuttrar dvalar, sonur þeirra Ole- son hjóna, Tryggvi, sem nám stundar við Manitoba háskólann. Séra Jakob Jónsson prestur frá Wynyard, Sask., kom til borgarinn- ar á föstudaginn í vikunni sem leið. Prédikaði hann í Piney síðastliðinn sunnudag. Miss Pearl Hanson, píanókenn- ari frá McCreary, Man., var stödd í borginni seinni part fyrri viku. Jóns Sigurðsonar félagið, I.O. D.E., heldur næsta fund sinn að heiimiili Mrs. J. B. Smith, 580 Ger- trude Ave., á þriðjudagskvöldið þann 5. nóvember næstkomandi klukkan 8. Dr. A. B. Ingimundsson, tann- læknir, verður staddur í Riverton á þriðjudaginn þann 5. nóvember. Mr. Elías Elíasson frá Árborg, kom til borgarinnar síðastliðinn mánudag. Mr. Halldór Erlendson bílasali frá Árborg, var staddur í borginni í byrjun vikunnar. Junior Ladies Aid Fyrsta lúterska safnaðar, hefir ákveðið að halda “Silver Tea” að heimili Mrs. B. H. Olson, 5 St. Jan^s Place, þann 6. nóvember næstkomandi frá kl. 3—6 síðdegis. Fjölnjennið! Á skrifstofu Lögbergs er geymt hréf frá íslandi með þessari utaná- skrift: Mrs. Svava Magnússon til heimilis árið 1928, 3430 Boundary Street, San Diego, California. Kvenfélag Fyrsta lúterska safn- aðar heldur “Silver Tea” í T. Eaton búðinni, Assembly Hall, á 7. gólfi á laugardaginn þann 2. nóvember næstkomandi, frá kl. 2.30 til 5.30 e. h. Þess er að vænta, að f jölmenni mikið heimsæki kvenfélagið að þessu sinni til þess að skemta sér með vin- um, njóta góðra veitinga og hlýða á ágætan hljóðfæraflokk. Á fræðslunámskeiði því, sem ný- afstaðið er hér í borginni, og “heil- brigðisvikan” nefnist, og haldið var að tilhlutan mentamálaráðuneytisins í Manitoba, flutti Dr. B. J. Brand- son fyrirlestur um botnlangaveiki að viðstöddu miklu f jölmenni i Winni- peg Auditorium á þakklætishátíðar- kvöldið. Dr. Thorbergur Thorvaldson, pró- fessor við háskólann í Saskatoon, var staddur í borginni í vikunni sem leið og sat hér þing vísindamanna, víðsvegar að, er kvatt hafði verið samlan með það fyrir augum, að í- huga varnarráðstafanir gegn drepi i hveiti, og bera fram uppástungur þar að lútandi. Mr. Sigurður Guðnason frá Bald- ur, kom til borgarinnar á mánudag. inn ásamt móður sinni. Ráðgerði Mr. Guðnason að dvelja hér um vikutíma, en móðir hans er flutt hingað til framtíðardvalar. Mr. J. Walter Jóhannsson, um- boðsmaður New York lifsábyrgðar- félagsins, fór vestur til Glenboro á miðvikudaginn í fyrri viku, ásamt Mr. Ármanni Frederickson og frú Jakobínu Johnson skáldkonu. Þeir Mr. Jóhannsson og Mr. Frederick- son komu heim á föstudaginn, en frú Jakobína ekki fyr en á þriðju-' dag; fór hún vestur til þess að heilsa upp á systur sina og frændur og vini i hinni fögru Argylebygð; en þar er skáldkonan alin upp. ANNOUNCING THE OPENING OF THE REGAL VALET SERVICE Cleaning . Pressing . Tailoring Dyeing - Furriers Proprietors: JAS. HEMENWAT ROY SHEFLEY 627 SARGENT AYE., WINNIPEG PHONE 22 166 Yður er hér með vinsamlegast boðið að keimscekja sýningu af Málverkum frá Islandi eftir EMILE WALTERS í THE SIXTH FLOOR ART GALLERIÐS 11. til 23. NÓVEMBER Mr. Walters, sem yður er vafalaust kunnur, dvaldi sjö mánuði á Islandi árið sem leið og málaði þar myndir. Frá þeim tíma hafa mál- verkasýningar lians í New York og Philadelphia, vakið afarmikla athygli. Það fær oss mikillar ánægju, að opna sýn- ingu þessa í Winnipeg, og vér væntum þess að það verði yður sönn nautn að skoða málverkin. —Sixth Floor, Donald. ST. EATON WINNIPEG CANADA Messuboð FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA Sunnudaginn 3. nóvember Kl. 11 f. h.—ensk messa: “Christ arid the Church.” Kló 7 e. h.—íslenzk messa: Siðbót- arminning. Offur til heimatrúboðs Kirkjufé- lagsins við báðar guðsþjónusturnar. Messur í Argyle prestakalli 3. nóvemiber 1935: Að Grund kl. 2 e. h. (ensk) í Glenboro kl. 7 e. h. Við báðar~þessar guðsþjónustur verða samskot tekin til heimatrú- boðs Kirkjufélagsins. Messan að Grund verður á ensku, eftir beiðni þeirra, er fullkomnar njóta þess er fram fer á því málinu. Allir hjart- anlega velkomnir.—E. H. Fáfnis. Áætlaðar messur næstu sunnu- daga: 3. nóvember, Geysir, kl. 2 siðd. (heimatrúboðsoffur) ; 3. nóv., Framnes, kl. 8.15 síðd.; 10. nóv., Hnausa, kl. 11 árd. (heimatrúboðs- offur) ; 10. nóv., Riverton, kl. 2 siðd. (heimatrúboðsoffur). — Allir boðnir velkomnir.—Sig. Ólafson. Sunnudaginn 3. nóvember, mess- ar séra Guðrni. P. Johnson í Kristnes skóla kl. 12 á hádegi, og í Bræðra- borg kl. 3 e. h. Einnig verður fund- ur í hinu kristilega ungmennafélagi í Hallgrímssafnaðarhúsinu, kl. 8 að kvöldinu. Eftir hina vanalegu guð- ærknisstund kemur ljómandi skemti. liður, þar sýngur hinn ágæti sóló- söngvari, Mr. A. W. Dove, frá Foam Lake, og snillíngurinn Mr. F. Knobel spilar undir á hljóðfærið. Mr. King Campbell kennari við Mt. Hecla skólann sýnir Austurlanda sjónhverfingar; margt fleira til skemtunar.—Allir velkomnir! Messur í Gimli prestakalli næst- komandi sunnudag, þ. 3 nóv., eru áætlaðar þannig, að morgunmessa | verður í Betel á venjulegum tíma, : en síðdegismessa kl. 2.30 í kirkju Gimlisafnaðar. Séra Kristinn K. Ólafson prédikar væntanlega á báð- j um stöðum. Við síðdegismessuna í ! kirkjunni, er fyrirhugað, að forseti setji formlega í embætti séra B. A. Bjærnason, sem kosinn hefir verið prestur Gimli prestakalls. Er mess- an sett kl. 2.30, en ekki að kvöldi, til þess að fólk úr nálægum bygðum geti fremur verið viðstatt — Fyrir- lestur séra Kristins á föstudags- kvöld, þ. 1. nóv., kl. 8.30.—Um það áður getið hér í blaðinu, en> nú end- urtekið svo hægara sé að muna. Inngangur eícki seldur, en frjáls samskot tekin, er renna í heimatrú- boðssjóð. — Reynt verður að byrja á tíma. Erindi forseta vafalaust snjalt og tímabært. Má búast við húsfylli við það tækifæri. Messur í prestakalli séra H. Sig- mar fyrstu tvo sunnudaga í nóvem- ber: 3. nóvember messar séra N. S. Thorláksson í Péturskirkju við Svold kl. 2 e. h. 3. nóvember messar séra H. Sig- mar í Brown, Man., kl. 2 e. h. Alt- arisganga. 10. nóvember messar séra H. Sigmar í 'Garðar kl. 2 e. h. og á Mountain kl. 8 að kveldi. Hjónavígslur Williairrí Leslie Ryland og Ivy Franklin Swindells voru gefin sam. an i hjónaband af dr. Birni B. Jóns- syni að 774 Victor St., 26. þ. m. Hr. Ásgeir Ásgeirsson, fræðslu- málastjóri og fyrverandi forsætis- ráðherra íslands, flytur fyrirlestur á íslenzku í samkomuhúsinu á Mountain laugardagskveldið 9. nóv., kl. 8. Aðgangur 50C. Hið eldra Kvenfélag Fyrsta lút- erska safnaðar heldur fund í dag, fimtudag, þann 31. október, klukk- an 3 síðdegis. Mr. Árni ÓláfsSön frá Brown, Man., kom til borgarinnar í lok fyrri viku með son sinn Ólaf til lækninga. PAKKLÆTI. 1 tilefni af heimsókn er okkur hjónunum var gerð sunnudaginn 20. október, sem var 25 ára giftingar- afmæli okkar, vildum við biðja Lög- berg að flytja öllum er hlut áttu að því: börnum okkar, skyldfólki nær og fjær og okkar góðu vinum og nágrönnum, — okkar innilegasta hjartans þakklæti fyrir heimsókn- ina, allar indælu gjafirnar, öll þau hlýlegu orð, sem þar voru töluð til okkar, og ekki sízt allan góðhugann og velvildina, sem við höfum orðið aðnjótandi á þessum 25 árum. Það er unaðslegt, þegar nóttin nálgast, kraftarnir þverra og þreytt- um er hvíldin kær, að finna ylinn af góðhug samferðamannanna verma sér um hjartað. Þá beygir maður höfuð sitt með þakklæti til Guðs fyrir ein þau beztu gæði, sem lífið hefir að veita—gott samferðafólk ;—þá finnur maður hvað gott er að hafa lifað. Guð blessi ykkur öll. Steinunn Guðlaug Hállson, Jón Hallson. Séra K. K. Ólafson flytur erindi um Social Credit á þessum stöðum í Norður Dakota, sem fylgir: Að Garðar miðvikudaginn 6. nóv., kl. 8 að kvöldinu. Að Mountain fimtudaginn 7. nóv., kl. 2 e. h. 1 kirkju Vídalínssafnaðar fimtu- daginn 7. nóv. kl. 8 að kvöldinu. Erindi þessi.verða bæði á ensku og íslenzku á hverjum stað, ef þörf gerist og æskt er eftir þvi. Landnema minnisvarðinn. Þjóræknisdeildin “Fjallkonan,” Wynyard, ágóði af sam'komu, $20.00; Ágóði af samkomu á Lund- ar, $14.16; W. J. Lindal, K.C., $5.00; í minningu um Jósef Good- man, $1.00; Islendingadagsnefnd “Bifröst, $25.00; Mrs. K. K. Albert, Winnipeg, $1.00; Vilborg og Vig- fús Guttormsson, Lundar, til minn- ingar um foreldra Vigfúsar, þau Jón Guttormsson og Pálínu Ketils- dóttur, er komu til Gimli 1875 og foreldra Vilborgar. þau Pétur Árna- son og Friðrikku Björnsdóttur, er komu til Giimili 1876, $10.00 ;íslend- ingadagsnef nd Winnipeg, $60.00; A. S. Bardal, Winnipeg, $10.00; Gestur S. Vidal, Hnausa, $2.00; Leiðrétting: Rósa Vídal, .Winnipeg, $1.00, átti að vera $2.00. Kærar þakkir, Dr. A. Blöndal, J. J. Bíldfell B. E. Johnson. ALDARAFMÆLI Matthíasar Jochumssonar. Á þessu hausti, þ. 11. nóvember næstkomandi, er aldaramæli þjóð- skáldsins Matthíasar Jochumssonar. Heima á Islandi'er fyrir löngu hafinn mikill undirbúningur til að minnast þeirra tímamóta eins og sæmandi er. Á ársþingi Þjóðrækn- isfélagsins í vetur, sem leið, komu fram ákveðnar raddir í þá átt, að félagið ætti að gangast fyrir svip- uðum hátíðahöldum vestan hafs. Var þeirri hugmynd, sem vænta mátti, vel tekið af þingheimi og stjórnarnefnd félagsins. í samræmi við þær óskir og til- lögur, sem fram komu á þinginu í fyrra, gengst Þjóðræknisfélagið fyrir minningarhátíð í tilefni af hundrað ára afmæli séra Matthíasar á sjálfan afmælisdaginn, þ. 11 nóv. Verður hátíð þessi haldin í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg að kveldi dags, og er mjög vandað til hennar bæði hvað snertir ræðumenn og söngfólk. Allir íslendingar eru boðnir og velkomnir á hátíðina. Að- gangur er ókeypis og engin samskot verða tekin. Itarlegri frásögn um minningar- hátíð þessa og skemtiskrá hennar birtist í íslenzku blöðunum næstu viku. í umboði framkvæmdarnefndar Þjóðræknisfélagsins. Richard Beck S. W. Melsted, Guðmann Levý •\e. Þjóðrœknisfélag íslendinga í Vesturheimi — Fyrirlestur flytur Fræðslumálastjóri ÁSGEIR ÁSGEIRSSON Fyrverandi Forsætisráðherra Islands 1 FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU Mánudaginn 4. Nóvember kl. 8 e.h. Inngangur 50c KAUPIÐ ÁVALT LUMBER hjá THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD. HENRY AVENUE AND ARGYLE STREET WINNIPEG, MAN. PHONE 95 551 Þessa árs Þjóðvinafélagsbækur eru nýlega komnar til undirritaðs, og eru með sama verði og undanfarin ár (Ársb. $2.50 Almanakið 5oe). Borgun fylgi pöntunum. Arnljótur B. Olson, 627 Agnes St„ Winnipeg. HAROLD EGGERTSON Insurance Counselor NEW YORK LIFE INSURANCE COMPANY Room 218 Curry Bldg. 233 Portage Ave., Winnipeg Office Phone 93 101 Res. Phone 86 828 J. Walter Johannson Umboðsmaður NEW YORK LIFE INSURANCE COMPANY 219 Curry Bldg. Winnipeg AUGNASKOÐUN og gleraugu löguð við hœfi J. F. HISCOX Optometrist Formerly of Hudson’s Bay Co. Successor to Maitland Tinlin 209 Curry Bldg. Ph. 93960 Opposite Post Office MLBSTEÍ JEWELLERS Úr, klukkur, gimsteinar og aðrir skrautmunir. Qlftingaleyfisbréf 447 iPORTAGE AVE. Sími 26 224 Minniál BETEL 1 erfðaskrám yðar ! Sendið áskriftargjald yðar fyrir “The New World,” mán- aðarrit til eflingar stefnu Co-operative Commonwealth Federation í Canada. Aðeins EINN dollar á ári sent póstfrítt Útgefendur The New World 1452 ROSS AVE. Winipeg, Manitoba Jakob F. Bjarnason TRANSFER Annsjit grelðlega um alt, sem flutníngum lýtur, emáum eáa eMVr um. Hvergi sanngjamara v®rD Heimili: 591 SHERBURN ST. Slmi: 35 909 The Watch Shop Diamonds - Watches - Jewelry Agents for Bulova Watches Marriage Licenses Issued THORLAKSON & BALDWIN Watchmakers & Jewellers 6 99 SARGENT AVE, WPG. STUDY BUSINESS At Western Canada’s Largest and Most Modern Commercial School For a thorough training, enroll DAY SCHOOL For added business qualifications, enroll NIGHT SCHOOL The Dominion Business College offers individual instruction in— SECRETARYSHIP STENOGRAPHY CLERICAL EFFICIENCY MERCHANDISING ACCOUNTANCY BOOKKEEPING COMPTOMETRY —and many other profitable lines of work. EMPLOYMENT DEPARTMENT places graduates regularly. DOMINION BUSINESS COLLEGE On The Mall and at Elmwood, St. James, and St. John’s ♦

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.