Lögberg - 28.05.1936, Qupperneq 4
I
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. ]\IAÍ, 1936
' Xcgterg
GefiB út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 Sargent Avenue
Winnipeg, Manitoba.
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOK LÖGBERG, 69 5 SARGENT AVE.
WINNIPEG, MAN.
Verö <3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The "Lögherg" is printed and published by The Columbia
Press, Limíced. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba.
PHONE 86 327
Hveitið og framtíðin
Það liggur í augum uppi að í lantli eins
og Canada, sé mikiS um það hugsað og rætt,
hvernig til muni skipast í framtíðinni við-
víkjandi framleiðslu og sölu hveitis; hverjar
aðferðir eða stefnur verði líklegastar til þess
að tryggja að því er frekast má verða, þenna
umfangsmesta og mikilvægasta undirstöðu-
iðnað þjóðarinnar.
Menn greinir vitanlega á um margt; þó
greinir menn samt sem áður ekki á um það,
að undir því hvernig til takist um markað
fyrir canadiskt hveiti sé afkoma landsmanna
á flestum öðrum sviðum að miklu leyti komin.
AS viðhorfið sé óðum að breytast, verður
ekki um deilt; kemur það ljósast fram í því
hve mikið kapp ýmsar þjóðir, er áður keyptu
mikið af canadisku hveiti leggja nú á það að
verða sjálfbirgar í þessu tilliti, eða með öðr-
um orðum, að auka svo hveitiframleiðsluna,
að hún nægi til heimaþarfa. Þó enn sé vita-
skuld hvergi^nærri séð fyrir endan á hinum
kappsamlegu sjálfsbjargar tilraunum hlut-
aðeigandi þjóða í þessa átt, þá er þó engu að
síður sá rekspölur kominn á málið, að óhjá-
kvæmilegt verður fyrir hina canadisku þjóð
að taka til þess fult tillit og hegða sér þar
eftir.
Tímaritið “The Manitoba Co-operator”
tekur nýlega mál þetta til íhugunar, og kemst
meðal annars þannig að orði:
“]\Ir. J. R. Murray og félagar hans í
hveitiráðinu eiga skylda- þjóðarþökk fyrir
það, hve glögga grein þeir gerðu fyrir að-
stöðu canadisku þjóÖarinnar með tilliti til
hveiti framleiÖslunnar á fundum þingnefnd-
arinnar í Ottawa. Þó er það síður en svo að
hér sé um nokkra verulega nýjung að ræða.
Hveitisamlögunum, Mr. McFarland og Al-
þjóðar hveitinefndinni, hefir verið það ljóst
síðustu fjögur árin, hvert stefndi. Eú þrátt
fyrir það, hafa þeir illu heilli, verið margir
innan vébanda hinnar canadisku þjóðar, .er
svo háfa litið á, og reynt að telja almenningi
trú um, að hér væri einungis um bráðabirgðar
ástand að ræða, er stafaði frá truflun í al-
þjóðaviðskiftum, en mvndi svo smátt og
smátt síðar meir lagast af sjálfu sér. Vera
má að uppskerubrestur hér og þar hafi átt
sinn þátt í útbreiðslu þessarar kórvillu. En
Mr. Murray leggnr réttilega áherzlu á það,
hve háskaleg flónska það sé fyrir canadisku
þjóðina, að ætla sér að byggja framtíðarvon-
ir sínar í sambandi við hveitiræktina á hugs-
anlegum uppskerubresti með öðrum þjóðum
og aukinni eftirspurn af þess völdum.
Sannleikurinn er sá, að eins og nú horfir
við eru fyrirsjáanleg vandræði framundan
með því fjárhags og framleiðslu fyrirkomu-
lagi, sem nú gildir. Um þetta verður engum
kent öðrum en oss sjálfum.
Það er ekki til nokkurs skapaðs hlutar að
reyna að loka augunum fyrir því gerbrevtta
viÖhorfi, sem nú viðgengst meðal Norður-
álfu þjóðanna. Það gagnar ekki að telja sér
trú um að þar sé óþrotleg markaÖsskilyrði
fyrir framleiðslu vora, hverrar tegundar sem
er. Þjóðir, sem um langt skeið voru ef til
vill meðal vorra beztu viSskiftavina, eru
farnar til þess, eins og þegar hefir verið sagt,
að leggja á það alt kapp að verða sjálfbirgar,
og sumar þeirra beinlfnis komnar í tölu
keppinauta vorra. Allar eru þær farnar að
leggja meiri og meiri rækt við landbúnaðinn
og öllum hefir þeim unnist nokkuð á. Öflug-
um samstarfsstofnunum í þessa átt, hefir
verið hleypt af stokkunum á Þýzkalandi,
Rússlandi og Italíu. Og í Japan er á döfinni
fimm ára tilraunaskeiS með það fyrir augum
að gera þjóðina sjálfbirga að hveiti. Ýmsar
aðrar þjóðir eru í óða önn að stórauka innan-
lands framleiðslu sína á öðrum sviðum.
Stjórnirnar í Astralíu og Suður-Afríku hafa
þegar bent á þá hættu, sem af of mikilli hveiti-
framleiðslu stafi og varað við afleiÖingunum,
jafnframt því sem búist er við að Bandaríkin
muni í lok yfirstandandi uppskeruárs hafa
hreint ekki svo lítinn hveitiafgang til útflutn-
ings.
Horfurnar eru ekki góðar, jafnvel þó svo
geti farið að náttúran taki í taumana til hins
betra. ÞaÖ væri hin átakanlegasta kórvilla
að leggja kapp á hliðstætt uppskerumagn við
það, sem raun varð á 1928, og| þurfa síðaif aA
grát^. þr sér-augun yfir tilsvajrandi skaÖvæn-
legum fjárhagsárangri.
Hveitiráðið hefir gengið djarfmannlega
og hreint að verki; það er einnig ánægjulegt
til þess að vita hve þingnefndin gerði sér
mikilvægi málsins ljóst, er að líkindum leiÖir
til þess að skipuð verði konungleg rannsókn-
arnefnd til þess að gerkynna sér horfur og
markað hveitiframleiðslunnar frá öllum hlið-
um. Ef til þess kemur að slík nefnd verði
skipuð, veltur að sjálfsögðu, eins og Mr.
Murray benti á, mest á því, að hún geri sér
sem allra ljósasta grein fyrir hinum breyttu
aðstæðum og komi fram með tillögur um það
hvemig Canada fái haldið sérstöðu sinni
meðal þeirra þjóÖa, er framleiða hveiti til út-
flutnings,-og bætt jafnframt í heild hag þeirra
canadiskra borgara, er hveitirækt einkum og
I sérílagi stunda. Svo mikilvægt er mál þetta
fyrir þjóðarheildina, að smámunir og auka-
atriði mega ekki undir nokkrum kringum-
stæðum komast að til þess að hamla heilbrigð-
um framgangi þess.”
Eimreiðin
Svo að segja nýverið hefir oss borist
Eimreiðin í hendur — janúar:marz heftin,
allf jölbreytt að innihaldi en harla misjöfn að
gæðum, Langveigamestu ritgerðirnar “ Við
þjóÖveginn’’ eftir ritstjórann, hr. Svein Sig-
urÖsson og “Island 1935,” eftir Halldór
Jónasson. Skemtileg aflestrar er og frásögn
Alexanders Jóhannessonar um háskólahátíð-
ina í Budapest. Ivvæðin að þessu sinni með
lakasta hætti, að tveimur undanteknum, sem
sé kvæðinu “Litið til baka” eftir Ólínu
Andrésdóttur og “Huldumærin” eftir vestur-
íslenzkt skáld, Pál S. Pálsson, bæði blíð-
strengjuð og ljóðræn.
ínnihald Eimreiðarinnar að þessu sinni
er sem hér segir:
Við þjóðveginn: Inngangsorð, Norður-
lönd, Brezka heimsveldið, Frakkland, Þýzka-
land hið nýja, Æfintýri Mussolinis, Spánn
og Portúgal, Holland og Belgía, Ráðstjórn-
arríkin, Nokkur önnur Eívrópuríki, Ameríka,
Egyptaland, Kína og Japan (með 8 mynd-
um); Lygi (saga) eftir Þóri Bergsson;
Neistaflug eftir Sigurjón Friðjónsson; Há-
skólahátíðin í Budapest (með 7 myndum)
eftir Alexander Jóhannesson; Ungur maður
(kvæði) eftir Þórodd Guðmundsson; Erfiljóð
(eftir vin minn) eftir Hjört frá Rauðamýri;
Bónorð Guðmundar (saga) eftir An frá Ögri;
Fnjóskdælsk nótt (kvæði) eftir Sigurð
Draumland; Framtíð lífsins og dauðans
(með mynd) eftir dr. Helga Péturss; Litið til
baka (kvæði) eftir Ólínu Andrésdóttur; Is-
land 1935 (stutt vfirlit) eftir Halldór Jónas-
son; Huldumærin (kvæði) eftir Pál S. Páls-
son; Máttarvöldin eftir Alexander Cannon
(framh.); Raddir: Trúarjátning, Bannið og
beljuþorstinn, Frá skáldinu í Elfros, Fer-
skeytlur Frónbúans, Rithnupl og réttur, Úr
bréfi frá Mountain, Verðlaun fyrir vel orðuð
bréf; Ritsjá eftir S. E., J. J. S., A. S., Ó. L., E.
Ó. S., Jóh. Áskelsson og Sv. S.
•
Hann hélt því fram í umræðunum
um þessa tillögu, eins og hann hafði
haldið fram í bók sinni: “Iðaður
og mannúð,” að iðnaðarmálin ættu
að stjórnast af f jórum' aðiljum:
fulltrúum vinnunnar sjálfrar, full-
trúum fjárins, fulltrúum stjórnend-
anna og fulltrúum fólksins yfirleitt.
Og um fram alt kvað hann það
sjálfsagt að verkamennirnir hefði
atkvæði um öll þau mál, er snertu
þeirra eigin líf og líðan.
Þá talaði King um hinn liðna for-
ingja, mannkosti hans og samvizku-
semi, hæfileika hans og stjórnvizku.
Hann skýrði frá því að hann hefði
skoðað sjálfan sig sem verndara
stjórnarskrárinnar á meðan hann
væri forsætisráðherra; hann hefði
veitt samþykki sitt þl þess að kosn-
ingum væri frestað fram yfir venju-
legan tíma. en þó með þeim skil-
yrðum að ekkert yrði gert sem
þjóðin hefði skiftar skoðanir um.
nema hún yrði fyrst látin greiða
atkvæði um það. svo meiri hlutinn
mætti æfinlega ráða. Hann kvað
þjóðina hafa yfirráð yfir þinginu
samkvæmt stjórnarskránni og kvaðst
aldrei samþykkja neitt, er þann rétt
tæki frá henni.
Laurier hafði leyft framlenging
kjörtímabilsins með vissum skilyrð.
um; skilyrðin höfðu ekki verið
haldin.
Þrent var það, sem stjórnin sam-
þykti á móti einhuga vilja þjóðar-
innar og án þess að henni gæfist
kostur á því að greiða um það at-
kvæði; það voru herskyldulögin,
margra miljóna dala gjöf til Cana-
dian Northern járnbrautarinnar og
stríðskosningalögin. í öllum þess-
um atriðum voru brotin réttindi
þau er stjórnarskráin ákveður kjós-
endum landsins, og fór King um
það hörðum orðum og verðugum.
“Þegar fólkið tapar trúnni á þing-
inu sem sanngjörnu og trúverðugu
fulltrúaráði, þá er horfinn grund-
völlurinn undan virðingu fyrir öll-
um yfirvöldum,” sagði hann. “Ef
veruleg nauðsyn er á nokkru til þess
að afstýra uppreistum og blóðug-
um stjórnarbyltingum, þá er það
samvizkusamt fulltrúaþing alls
fólksins sem það getur treyst og
borið fulla virðingu fyrir.
Stjórnmálasaga vor er að mestu
leyti um baráttu til þess að fá fram-
gengt þess konar stjórnarfyrir-
komulagi.”
Mackenzie King er fyrsti leiðtogi
nokkurs stjórnmálaflokks í Canada,
sem kosinn hefir verið af fulltrúa-
þingi alþýðunnar, sem flokkinn
studdi. Venjan var áður sú að þing-
menn flokksins völdu foringja sinn,
en kjósendur voru þar ekki spurðir
til ráða.
Skáldið sjötuga
Síðastliðinn snnnudag átti æfintýra-
skáldið vestur-íslenzka, J. Magnús Bjarna-
son, sjötugsafmæli. Var hann við það tæki-
færi hyltur með vinaheimsókn, auk þess sem
honum bárust árnaðarkveðjur víðsvegar að.
J. Magnús Bjarnason á miklnm vinsæld-
um að fagna sem rithöfundur, og þá ekki síð-
ur sem prívátmaður; er hann hið mesta ljúf-
menni, hreinlundaÖur og hispurslaus. Æfin-
týri lians, mörg hver, eru blátt áfram gull-
korn, — alveg sérstæð í bókmentasögu ís-
lenzku þjóðarinnar. Islendingar þakka hon-
um æfintýrin; þeir þakka honum Eirík Hans-
son, Brazilíufarana, sögur af ElgsheiÖum,
Grím frá Grund, ásamt mörgu ööru skemti-
legu frá hug hans og hjarta. Megi bjart
verða yfir sólsetrinu, eins og dagsheiðið hef-
ir verið langt!
MacKenzie King
MAÐURINN OG AFREKSVERK IIANS.
Eftir John Lewis.
(Sig. Júl. Jóhannesson þýddi)
Á þessu flokksþingi bar King fram til-
lögu um málamiðlan milli verkamanna og
vinnuveitenda. “ISnaðarmálin” sagði hann,
“eru alþjóðamál og mannúÖarmál.” Þessi
tillaga hans byggist á því, að líf manna og
líðan sé meira virði en dauðar eignir. K.jarni
hennar er sá að meira tillit skuli tekið til
menningar og fullkomnunar einstaklingsins
en verzlunar og fjárhagslegs ágóða. “ISn-
aður og verzlun eiga að vera }>jónar fólks-
ins,” sagði hann, “en fó'lkið ekki þrglar iðn-
aoarins eða verzlunarinnarj” *
Þingmenn flokksins voru hlyntir
þessari kosningaaðferð og studdu
allir King. Hann var nokkru síðar
kjörinn gagnsóknarlaust í Prince
Edward Island og tók sæti á þingi
sem leiðtogi andstæðinganna. Bor-
den var þá forsætisráðhelra; hann
sagði af sér i júli 1920 og Meighen
tók við forustu stjórnarinnar.
(Framh.)
Til Vestur-Islendinga
Þegar um þýðingarmikiö mál, sem
almenning snertir er að ræða, þá er
þaÖ skylda allra hlutaðeigenda að
skýra f-rá öllum málavöxtum hreint
og greinilega, svo að hægt sé aÖ átta
sig á gildi þeirra. Eitt af slíkum
málum er skólamáliÖ. SkólamáliÖ
er ekki nýtt mál; það er 22 ára
gamalt — komið til aldurs, eins og
sagt er um æskumenn, þrátt fyrir
hinar einkennilegustu andstæÖur,
sem nokkurt af hinum meiri háttar
málum vor Vestur-lslendinga hefir
átt viS aÖ striÖa.
ÞaÖ er meÖ öllu óþarft að rifja
upp sögu þess máls frá byrjun:
samhentni manna og vonir um það
í byrjun; þroska skólans inn á við
og út á við; andstöður kirkjunnar
manna á síÖari árumi og síðast af-
neitun kirkjufélagsins lúterska og
íslenzka á skólanum og skólamálinu
á síSasta kirkjuþingi. Menn vita alt
þetta, en það eru afleiðingarnar af
samþykt þeirri, sem á þarf aÖ minn-
ast og sem öllum Vestur-lslending-
tim|nirfa aÖ verða ljósar.
:Srnþyktin, sem gjörð var á síð-
asta þingi lúterska kirkjufélagsins
var í stuttu máli sú> aÖ losa kirkju-
félagiÖ viÖ skólann og alla ábyrgð á
honum og málum hans. MeÖ öör-
um orÖum- ákvað að hætta aÖ starf-
rækja skólann og fól skólanefnd-
inni aÖ verða af meÖ eÖa selja eign-
ina og Iosa félagiÖ viÖ hana> ef unt
væri. MeÖ þessari samþykt var
hinum mesta vanda hrundið á herð-
ar skólanefndarinnar. Samkvæmt
samþyktinni var henni aðeins heim.
ilaÖ, aÖ selja, og það reyndi hún, en
kaupendur að eigninni fengust eng.
ir, fyrir það verð, sem þurfti til að
leysa kirkjufélagið við alla fjár-
hagslega ábyrgÖ. Þriggja ára skatt-
ur stóð á móti eigninni, að upphæð
$1,900 og bærinn hótaði að selja
hana, ef á þeirri upphæð yrði ekki
grynt. Lánfélagið krafðist borgun-
ár á parti af veðskuldinni, sem þá
var um 4,500, og ekki aðeins hótaði
málsókn, heldur litlu síðar seldi inn-
heimtu á skuldinni í hendur mála-
færslumönnum sinum og fyrirskip-
un um að höfða mál gegn ábyrgð-
armönnum þeim, sem á bak við lán.
ið stóðu. Kennararnir allir, sem við
skólann voru árið áður> atvinnu-
lausir> sökum þess að aÖ afstöðnu
kirkjuþingi, eða um það leyti árs,
eru öll kennaraemfoætti veitt hér i
fylkinu. Annar vetur fyrir dyrum
og óumflýjanlegt að hita skólabygg-
inguna eða eyðileggja hana að öðr-
um kosti. Á þessu geta menn séÖ,
að það var ekki auðhlaupið að því
að framkvæma fyrirskipun kirkju-
þingsins, þótt ekki væri á málið litið
nema frá hinni ytri hlið þess, því
vitanlegt er það öllum, að enn eru
margir á meðal Vestur-íslendinga,
sem telja það ekki aðeins skaða frá
menningarlegu sjónarmiði. ef skól-
inn yrði að falla, heldur líka óbæt-
anlegan hnekki á sóma vorum og
menningarþroska.
Hvað átti skólanefndin að gjöra
undir þessum kringumstæðum ? Hún
gjörði það eina, semi hugsanlegt var,
sóma hennar og málinu samboðið.
Hún leitaði til þeirra íslendinga,
utan kirkjufélagsins og‘ innan, sem
líklegastir voru til þess að meta
þetta mál á líkan eða sama hátt og
þeir menn gjörðu, er fyrir skóla-
hugsjóninni börðust í fyrstu- og sjá
og skilja að stofnanir þær> sem eru
reistar af óeigingjarnri umönnun
fyrir velferð og virðingu islenzks
fólks í þessari heimsálfu eigi ekki
að falla með fyrirlitning, heldur
standa og starfa, þar til þær að lok-
um verða að heildar-eining þjóðanna
sem íslendingar sjálfir hafa hjálpað
til að mynda. Nefndin leitaði til
þeirra manna með þeirri afleiðing,
að veðbréfið, sem lánfélagið hélt á
skólaeigninni, að upphæð $4,770, er
nú komið í hendur skólanefndar-
innar. Lánskuldin. semi á eigninni
hvílir nú er aðeins $1,250, sem taka
varð að láni til þess að borga lán-
félaginu að fullu. Hitt alt hafa
þessir menn sem að framan er minst
á, lagt fram sjálfir, að undanskild-
um $1,270, sem lánfélagið gaf eftir
af veðskuldinni, sem þeir er fyrir
félaginu standa tóku frarn, að væri
tillag frá félaginu tilrstofnunar> sem
viðurkend væri bæði þörf og nyt-
söm.
Menn þeir. sem þannig hafa
hlaupið undir bagga i þessu máli,
eru einráðnir í þvi að láta skólann
halda áfram með sama fyrirkomu-
lagi og verið hefir, en á óháðum
grundvelli. Halda honum' áfram
sem stofnun Islendinga í Vestur-
heimi og trúa því ekki, að Vestur-
Islendingar sjái ekki sóma skólans
borgið i framtíðinni.
Aðsókn að skólanum í ár hefir
mátt heita ágæt, svo að skólagjöld-
in nægja til þess að borga kennara-
laun og allan kostnað við skólann,
að undanskildum lán og skatt-kostn-
aði, svo eg hægt verður sem vonandi
er, að borga upp skattskuldina og
það sem eftir er af lánskuldinni. þá
væntanlega verður ekki þungt að
standa straum af skólanum fram-
vegis.
Það hefir verið á tilfinningu
manna undanfarið og er lika á til-
finningu þeirra manna, sem að vel-
ferð skólans eru að vinna, að í fram-
tíðinni eigi eftir að rísa upp kenn-
araembætti í íslenzkum og norræn-
um fræðum við háskóla Manitoba-
fylkis og einn liðurinn í áframhalds-
starfrækslu þeirra í samibandi við
Jóns Bjarnasonar skóla, er að hann
haldi áfram að vera brú á milli þess
væntanlega kennaraembættis og
dagsins í dag, og þegar að því kem-
ur, eða ef að þvi kemur þá gangi
eigur skólans, hverjar svo sem þær
eru, til styrktar þess embættis, svo
þeir- sem nú hafa lagt fram fé til
skólans- og þeir sem eiga eftir að
gjöra það, eru i raun réttri að leggja
það til hins væntanlega kennara-
embættis. Á þennan hátt og hann
einan, geta Vestur-lslendingar skil-
ist heiðarlega við þetta skólamál.
Við höfum hér að framan rakið
sögu þessa máls eins og hún er nú
komin. Nokkrir menn hafa lagt
mikið á sig til að bjarga þvi úr
vandræðunum, sem ekki virtust með
neinu móti yfirstiganleg, — en
meira þarf ef duga skal. $3,150
eru enn eftir af skuldinni, sem fyr-
ir skemstu var $7,700. en þeirri upp-
hæð verður að mæta um miðjan
næsta mánuð. Kæru íslendingar, nú
Fyrirtæki sem vert er
að liggja peninga í
BATHURST POWER AND PAPER CO. LTD.
BATHURST, N.B.
Capitalization, issued 400,000 Class A Common
Shares
Capitalization, issued 300,000 Class B Common
Shares
Fixed Assets $16,500.000
Liabilities (outside of capital
investment) 1,000,000
Current Assets 2,700,000
Current Liabilities 250,000
Working Capital 2,400,000
or equal to about $6.00 per share of the A stock
Current Assets highly liquid, market-
able securities $1,400,000
Timber Limits 2,587 square miles estimated
10,000,000 cords of pulpwood.
This Company manufactures Kraft Liner Board
and Paper Boxes.
Nesbitt, Thomson & Co., Ltd., have just taken
control of this company. With the class A
shares seliing today on the market at $14.00, we
consider it a very good buy for appreciation
value for a reasonable hold. Those interested,
please, write in either Icelandic of English to
O. G. BJORNSON, Office Manager
NESBITT, THOMSQN & CO. LTD.
603 ELECTRIC RAILWAY CHAMBERS
Winnipeg