Lögberg - 28.05.1936, Side 6

Lögberg - 28.05.1936, Side 6
6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. MAf, 1936 Mannorðsdómur Eftir Johcmne Vogt. “Þá slítum við réttarhaldinu án dóms,” sagði sýslumaður. “Sjúkdómsauðkenning Viktors lýkur við málið.” “ Já, bíðið við. Mix krefst þess,” sagði Viktor, “að Sport endurkalli illyrði sín um hana í húsi Birchs prófessors, svo liún njóti ]>ar verðskuldaðrar virðingar.” “Það skal verða gert,” sagði Frich. “Þá eru slcjölin eftir,” sagði sýslumað- ur. “Það eru áreiðanleg skjöl; síðasta bréf- ið hótar dauða, og það hefir komið Mix til að leita hjálpar. ” “Lofið þér mér að sjá skjölin,” sagði kennarinn. “Eg er einn af kviðdómnum og hefi Jieimikl til þess..” “Brendu )>au, guðfaðir,” sagði Ella. Kennarinn tók bréfin, kveikti í þeim yfir lampanum og kastaði þeim svo í ofninn. Petra stundi þungan og leit upp. “Nú er öllu því illa fórnað guðum elds- ins. Getum við nú eklci tekic5 jólagleðina aftur og látið frið búa í hugúm vorum?” sagði sýslumaður. “Jú, þannig gekk það á fvrstu tímum lcristninnar, ” sagði kennarinn. “Geta ekki málspartarnir reynt,” sagði Viktor. Dyrum var lokað með hægð. Hann leit við. Frich var farinn. Petra stóð upp, gekk að glugganum og dró upp blæjuna. “Norðanrok,” sagði hún. “A morgun verða allir vegir ófærir svo enginn getur ferðast. Góðanótt ” Andlit hennar var rautt og tár í augun- um. “Eitt orð, systir mín,” sagði Viktor. Hún snéri sér að honum eins hjálparlaus og barn. Hann tók um mitti hennar og leiddi hana út. En leit um leið á Ellu, og augun hans sögðu: “ Sittu kyr, eg kem aftur.” “Hvað gengur að Petru?” sagði sýslu- maður. “Hún er kanske með í þessu, ” svaraði kennarinn. “Eg liélt að friður ríkti meðal þeirra ungu, en svo er hið argasta ósamlyndi meðal þeirra.” “Petraf Nei, nei. Hún er fjarlæg því sem heitir ásthyggja.” “Góða nótt, litli lögmaður,” bætti hann við. “Eg er ekki dómari fyrir Mix, heldur faðir. Eg vil að hún geti nú sofiÖ vel og verði aldrei framar fyrir ofsóknum né frið- spilling. Og svo verð eg að kynnast móður Ellu. Eg er fyrirfram hrifinn af henni.” Við erum tveir um það,” sagði kennar- inn. Viktor var eina stund í burtu. Þegar hann kom ofan aftur, var búið að slökkva ljósin og mvrkur í stofunni. “Farin,” sagði hann. “Það er það sama. Og nú til hins sjúklingsins. Þetta var barna- vinna, verra er að fást við ástríðurnar, stærð þeirra er takmarkalaus. ” Hann þaut upp á loft og inn í herbergi Frichs, það var mannlaust. Hann kveikti Ijós, og á borðinu lá nafnspjald, á það var ritað: “Fer nú á járnbrautarstöðina og verð á liótelinu í nótt. A morgun verða allir vegir ófærir.” John kom inn og las þessi orð með því að horfa yfir öxliíia á bróður sínum. “Svo skemtilegt,” sagði Viktor. “Það er líkt honum. Sjálfselskur frá hvirfli til ilja með höggormsbugðum. Hefði ungfrú Kirkner ekki notað nafn þriðju per- sónu, þá hefðum við getað gefið. honum á hann — en þarna sátum við allir, án þess að hafa gilda ástæðu. Sáskratti!” Geturðu ekki sparað stóryrði þín á með- an eg hugsa mig um ?” spurði Viktor, og lok- aði báðum augunum með vísifingrum sínum. Nokkrar mínútur varð þögn. “Eg get samt sem áður ekki sofið í nótt —vil vita vissu mína um að Frich sé í rúminu sínu,” sagði liann. “Hafi hann komist á- fram, þá kemst eg það líka. ” “Þú ert of tilfinninganæmur til þess að vera læknir, Viktor. Eg vil fara með þér. “Nei, lokaðu bara götudvrunum á eftir mér, og gaktu svo eins hægt og köttur upp stigann. Góða nótt.” Tveimur stundum síðar barði Viktor á dyr hjá Frich. “Kom inn. ” Herbergið var bjart og hlýtt. A legu- bekkshorninu sat Frich með vindil, sem hann var nýbúinn að kveikja í. A borðinu logaði á spíritusvél með vatni í og við hlið hennar konjak og whisky. “Ert það þú, Viktor. Þú ert tryggur maður, en hvert er erindið?” “Fyrst og fremst sem læknir ]>inn, að banna þér alla áfenga drykki svona seint á kvöldin,” sagði Viktor glaðlega, “en hringdu og heimtaðu glas. Eg liefi verið tvo tíma á leiðinni og þarf að fá heitt púns.” “Gott fyrir Þór, en ekki fyrir Loka,” sagði Frich og hringdi. “1 raun réttri vona eg að hlýr drykkur geri þig vægari í dómi ytir mér. ” “Heldurðu að eg sé kominn til að dæma þig. Nei. Fyrst kem eg sem vijiur þinn og svo sem læknir. Veiki þína skulum við kalla eftirsókn.” ‘ ‘ Kallaðu hana hvað þú vilt, hún er nú enduð og gerir ekki vart við sig framar — þegar lu'm skiftir um nafn.” “Skiftir um nafn?” spurði Viktor. “Já, eg vissi það að þegar þú og Elín fyndust, myndu forlög ykkar sameinast og því ásetti eg mér að beita öllum vopnum til að koma í veg fvrri það. En eg veit nú að það er gagnslaust að elta gæfuna. A morgnana, þegar heilinn er eins hreinn og himinloftið eftir septemberstorm — þá svíður mig hér. Hefir þú lyf við því?” “Það eru tveir hlutir til. ” “Já, vinna. Eg vissi þú mundir nefan hana, og eg ætla líka að byrja strax, eftir eins árs vinnuleysi,” svaraði hann óþolinmóður, “og Jiitt ?” “Petra.” “Petra?” sagði Frich og horfði fast á liann. “Hún hefir aðeins ástæðu til að hata mig—” “En þú veizt að kvenfólk er ekki rök- frótt. Hatur hennar hefir snúist gegn Elínu—” “Gegn Elínu!” hrópaðli Fiúch, “gegn Elínu, segir þú ?” “ Já, en eg skal bæta úr því. Látum liana sofa með það, svo vaknar réttlætistilfinning- in. ” “En Viktor, þú getur þó ekki viljað að eg, sem liefi hegðað mér þannig—” “Mundu það, að eg lít á þig sem veikan mann, þegar þú ert heilbrigður, ertu alt ann- ar, sannleikselskur og eðallyndur. Ef þú þar á móti vanmegnast yfir þessum vonbrigðum —verður staupið huggun þín — fyrst með leynd, en brátt komur sú stund, að þú getur ekki án þess verið, og það er þó svívirðilegt fall fyrir kjörfursta.” Frich var staðinn upp og gekk fram og aftur um gólfið. “Þú ert í rauninni prúðmenni, Viktor.” “ Heimspekingurinn, prófessorinn Sibb- ern, segir á einum stað, að hjartað sé aldrei móttækilegra fyrir nýja ást, en á meðan það berst við leifarnar af hafnaðri ást. Manstu eftir því?” “ Já, eg hefi fest þá setningu í huga mín- um. Hann er sálarfræðingur. ” “Eg get ekki vitað af þér ógæfusömum,” sagði Viktor innilega. “Af því ]>ií ætlar sjálfur að ná gyðju gæfunnar,” sagði Frich ofurlítið ákafur. “Um það veit eg elckert,” svaraði Vik- tor kuldalega. “Veikindi þín eru annars lík áhrifum morfíns,” sagði hann augnabliki síðar. “Lýgi, svik og útúrdúrar eru áhrif þau er nautn þess veitir. Öll vopn eni leyfileg til framkvæmdar hinum hrottalegu kröfum hans. Hann hikar ekki við að skrifa falskt nafn, fremur en ]>ú við að baktala saklausa stiilku, af því hún gat ekki svarað ást þinni. Hjá slíkum sjúkling er viljinn dauður, og svo er spurningin, hvort læknirinn getur vakið hina, góðu eiginleika til lífs í þeirri persónu, sem þjáist af þessari veiki.” ‘ ‘ Þú málar með breiðum bursta — en þú hefir augun opin — því ber ekki að neita.” Frich stóð kyr eitt aUgnablik og horfði fram undan sér, gekk svo að borðinu og lét tappana í báðar flöskurnar, tók svo staupið sitt og tæmdi það. “Eg hafði raunar ásett mér að vaka í nótt,” sagði Frioh. “í félagi við konjak og whisky. Það er fremur lélegt samkvæmi um miðja nótt.” “Já, þinn félagsskapur er þúsund sinn- um betri. Það kom einhver undarlegur frið- ur með þér inn um dyrnar. Hvíld fyrir of- revndar taugar.” “Eftir mínum skilningi eru taugarnar alt af starfandi. Okkur sýnist sitt hvorum í þessu efni.” Frich hló háðslega. “Eftir ]>ínum skilningi ætti þá að fá verkfræðing til að finna geisla stjarnanna, eða að mæla halla vetrarbrautarinnar, ásamt fróðum lögmanni, sem garti gert áætlun um kostnaðinn? Eða heldurðu að guðfræðingur fávís og hjátrúarfullur, eins og hann flækist um þessa jörð, yrði fenginn til að útlista árangurinn. íin Jakast er það fyrir læknana. Á himnum er engin synd, að sagt er, og þá lieldur ekki nein veikindi. Hann yrði ]>ar ó- þarfur eða, hvað Viltu gera við hann, Viktor?” “Látum hann fá hvíld hinna sælu. Hann þarf ]>ess með, eftir hið erfiða líf liér á jörð- inni,” sagði Viktor, glaður fyrir því að Frich gat gefið sig við þessum hugsjónadraumum, sem sýndi að meiri ró bjó í liuga hans en Viktor hélt. “En hugsaðu nú ögn um mig,” sagði hann, lánaðu mér kodcía og ábreiðu, þá sef eg hér á legubekknum. Við þurfum báðir hvíldar með, en Jni getur lialdið áfram upp himnastigann unz þú sofnar.” Tveim stundum síðar var Viktor enn vakandi, ljósið var slökt, kyrð yfir öllu og Frich sofandi. Það er gott að liann liggur hér í rúm- inu, en elcki liti í snjónum, hugsaði Viktor. Eg ætla að vera á verði í nótt. A moi’gun verður Jxann kominn til móður sinnar, og menn eru vanir að foi-ðast allar heimskulegar hugsanir á lieimilum sínum — þó maður geti aldrei reitt sig á slíka sjúklinga. # * # Það er bjartur janúarmorgun á lieimili frú Kirkner. Sólin slcín inn um gluggana og breiðir geisla sína á gólfið. Enn þá hvílir hátíðabragur yfir öllu eftir jólavilcuna. Á borðinu liggja nýjar bækur skrautlega bundn- ar, myndabækur og ljósmyndir. Á litlu borði hjá flauelslegubekk í horninu standa marg- ar blómakrukkur, og bak við þær á legubekkn- um situr Blín og mamma hennar talandi f jör- lega. Elín var nýkomin heim frá jólaheim- boðinu, og kom með morgunlestinni í stað hádegislestarinnar, eins og hún hafði skrifað mömmu sinni, og það var um þetta sem frú Kirkner var að tala — }>að var ekki reglu- bundið. — Hún ætlaði sjálf að sækja hana- í fallegasta vagninum hans Nyquists. Elín bara brosti. “En við skulum nú láta þetta vera gott og glevmt, góða Ella mín. Þú ert kjarkleg, fjörugri og glaðari en þegar ]>ú fórst. Þú hefir átt skemtilega daga?” “Ekki beint skemtilega—” “Nei, ]>að var leitt að þú fékst þetta högg fvrir ofan augað. Ó, öll meiðsli á andlitinu eru vond. En það hefði getað verið veiTa. ó, eg get naumast hugsað um það.” “Hugsaðu heldur ekki um það, mamma. Þegar'eg sagði ekki beint skemtilega, gafstu mér ekki tíma til að enda setninguna. Eg ætlaði að bæta við: en aðdáanlega samt. ’ ’ “Nú? Hvað gerði þá aðdáanlega? Þú notar Ibsens orð. Bg er forvitin.” Elín rétti hendina fram. Á fingrinum var mjór hringur með björtum roðasteini. “Elín — hvaða hringur er þetta?” “Bráðabirgðakvittun, mamma. Það á að skila henni gegn síðari ávísun með sömu dagsetningu. Gefandinn flytur sjálfur sitt mál. ” Dyrabjöllunni var liringt. Vinnukonan lauk upp og hratt fótatak heyrðist í forstof- unni, sem kom Ellu til að blóðroðna. Dyrnar voru opnaðar, og frammi fyrir mæðgunum stóð Viktor Sagen. Með einu augnatilliti sá hann hina skrautlegu stofu, með myndunum hringinn um kring á veggjunum, höfuðið á Ellu í sól- skininu með dökka hárið — en lengst horfði hann á andlit frú Kirkners, þar sem aldurinn og sorgin höfðu sett sín merki, en samt ekki getað eyðilagt hina eðallyndu drætti og fögru línur í svip hennar, né kasiað skugga á hið bjarta tillit hennar, sem nú hvíldi spyrjandi á honum. En þetta 'tillit í sambandi við hina tignu ró hennar — sem kaus að bíða eftir ráðning gátunnar áður en hún segði eitt orð —skapaði þá mynd í huga hans, sem gaf sig í ljós með einu einasta orði: “Móðir,” hvíslaði hann lágt. Þetta orð, sem kom frá instu fylgsnum sálarinnar og honum næstum óafvitandi rann yfir varir hans, slökti alt í einu allar barna- þrár hans og æslculanganir, sem lengi höfðu búið í huga hans, og kveiktu nýtt ljós, sem gegnum athugult móðurauga stráði birtu á framtíðarleið hans. “Móðir,” sagði hann aftur, “viltu gefa mér Elínu? Og taka um langan tíma saman- sparaða ást móðurlauss unglings í staðinn?” Sonarást! Hið lengi þráða — sá aumasti blettur í lífi frú Kirkners sem hægt var að finna. Það áreiðanlegasta tak, sem bæði sigraði alla mótstöðu ög öðlaðist ást hennar. Hún stóð upp til hálfs og rétti hendina fram, en tók eftir því að tárin, sem komu fram í augu hennar, runnu hratt niður kinn- arnar af því hún stóð álút, drógu úr rödd- inni þegar hún ætlaði að tala. En hún náði brátt valdi yfir sjálfri sér, og með nokkurri geðshræringu en jafnframt með gletnislegu brosi, snéri hún sér að Ellu og spurði: “Nafnið, Elín? Segðu mér nafnið.” “Viktor,” svaraði Elín glaðlega, “Vik- tor — mamma — það er sá sem sigrar. ” ENDIR Helen, eg elska þig Eftir Jam.es T. Farrell. Það var einn af þessum drepleiðinlegu haustrigningardögum. Dick Buckford og Dan stóðu fyrir utan lítið grásteinshús í húsa- þyrpingunni við Indíána-stræti, og vissu ekki, hvað þeir áttu af sér að gera. Þeir litu livor á annan. Skelfing ertu ræfilslegur, sagði Dick. Já, sagði Ðan. Dan var fyrir stuttu kominn í nágrennið. Hann vissi ekki, livað hann átti að segja. Ilann leit undan. Augu lians hvörfluðu yfir vott strætið, sölnað grasið og ruslið við gang- stéttina hinuegin,, þrílyftu íbúðarlnisin, og upp í þungbúinn liimininn yfir húsunum, sem þá og þegar virtust ætla að missa jafnvægið og steypast fram yfir sig. Já, þú ert ræfill. Þú ert ræfill, sagði iíick. Þá ert þú líka ræfill, sagði Dan. Er eg? sagði Dick. Já. Er eg ræfill? Ef þú segir, að eg sé ræfill, þá ert þú ræfill líka. Dan vonaði, að þetta endaði ekki með skelfingu. Hann vissi, að ef nýkominn strák- ur beið ósigur í áflogum, þá settust allir að honum, ógnuðu honum, lcvöldu liann, ]>á var honm sí og æ strítt með því, að hann liefði verið barinn. Hann vonaði, að hann ka>mist hjá því að slást við Dick, sem var tíu pundum þyngri, eða þar um bil. En hann gerði sér í hugarlund, að hann væri að slast við Dick og berja liann til óbóta. Hann sló Dick í ancl- litið og sá blóðið streyma úr stóra nefinu hans. Hann sló Dick og Dick lineig niður, löðrandi í blóði, og baðst vægðar, en stelp- urnar og strákarnir, sem horfðu á bardag- ann, æptu af hrifningu og sögðu að hann væri góður að slást, og svo myndi Helen koma til hans og láta í ljós aðdáun sína yfir sigri hans. Hann liafði nú stundum verið með Helen Scanlan. Henni leist víst á hann, en hann hafði verið svo skrambi feiminn. Einu sinni hafð hann lialdið í hönd hennar og getað kyst hana, og þau hefðu getað farið saman út í skemtigarðinn og þar liefði hann getað kyst hana aftur, bara ef hann hefði elcki verið svona feiminn. Hún hafði jafnvel sagt, að sér litist vel á liann. Nú stóðu þeir beint fyrir utan gluggann hjá Helen. Hann hugsaði sér, að hann væri að slá Dick niður, nokknim sinnum í viðbót, en Helen væri úti í glugganum og horfði á þá. Hún var rauðhærð, liún Helen Scanlan. Hann elskaði hana. Hann andvarpaði: Helen, eg elska þig! Af hverju borarðu ekki úr eyrunum á þér? Ha ? sagði Dick. 0, éttu það sem úti frýs, sagði Dan. Hann óskaði þess, að Dick færi burtu. Hann vildi gjama labba eittlivað, ef til vill út í skemtigarðinn, þar sem ekkert ryfi kyrð- ina, nema vindurinn, og þar sem laufið væri vott og gult og þar sem hægt væri að liugsa í næði um Helen. Þar gæti ungur maður labbað um og látið sig dreyma dálítið og hugsað um Helen. Og hérna stóð Dick fyrir framan hann og Dick var álitinn duglegastur að slást af öllnm í nágrenninu og liann virtist vilja fara í slag, héma beint framundan glugganum hjá Helen. Og ef til vill mvndi Dick sigra, og Helen stæði úti við gluggann og sæi alt saman! Dan vildi að Dick færi burtu. Hann sagði við sjálfan sig, að hann elskaði Helen, að hann væri alveg dauðskotinn í henni Helen með rauða, hroklcna hárið. Hann mintist þess, þegar hann gekk um alt nágrennið með reikninga síðastliðið sumar og fékk túkall fyrir að stinga þeim í póstopin. ITann eyddi peningunum með henni. Þau sátu á pallin- um á söluvagninum hans Georgs, og það var gaman, þegar hann og Helen sátu þama aftan á vagninum og héldust í hendur, meðan vagn- inn skoppaði úr einni götunni í aðra og með- an Georg krvpplingur afhenti vörurnar sín- ar. Og svo fóru þau og keyptu sér kandís og sódavatn og urðu að fara um margar göt- ur til þess að finna aftur vagninn lmns Georgs. Hann sagði við sjálfan sig, að hann elskaði Helen. (Framli).

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.