Alþýðublaðið - 24.07.1960, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 24.07.1960, Blaðsíða 7
Ritstjóri: Ö r n EiStiot Þórður setur met »• Fréttabréf frá Erni Eiðssyni. 23. júlí. SEX fslendingar kepptu á al þjóðamóti í Hafdpn í gærkvöldi (föstud.) Beztum árangri náði Valbjörn í stangarstökki þar sem hann sigraði danska met- hafann Andersen mjög auðveld lega með 4,30 gegn 4,20. Reyndi næst við 4,46, en mistókst þrátt fyrir góðar tilraunir. Það vakti undrun, að Jón Pétursson skyldi aðeins stökkva 1,80! sem hann fór hátt yfir og sömuleið is hátt yfir næstu hæð í öllum tilraunum, en felldi á niðurleið. Kristleifur stóð sig vel í 1500 m. hlaupi, varð nr. 2 á sínum bezta tíma — 3:55,0 — aðeins 4/10 úr sek. á eftir Bruun Jen- sen, Danmörku. Er greinilegt að Kristleifur er að komast í gott form, Þá sigraði Pétur í 110 m. grindahlaupi á 15,5, en Huseby varð nr. 5 í kringlu- ikasti með 45,22 m. Síðast en ekki sízt varð Þórður fjórði í sleggjukasti og setti nýtt ís- landsmet — 53,97 m. í dag (laugardag) keppa strákarnir í Vikersund, en halda síðan flestir heim á morg un (sunnudag). Meistaramót íslands AÐALHLUTI Meistaramóts ís- lands í frjálsum íþróttum (karla og kvenna meistaramótið) fer fram á Laugardalsvellinum í Reykjavík 6., 7,. og: 8. ágúst nk. og verður þá keppt í þessum í- þróttagreinum: Laugard. 6/8: Karlar: 200 m h'laup, kúluvarp, hástökk, 800 m hlaup, spjótkast, langstökk, 5000 m hlaup og 400 m grinda- hlaup. — Konur: 100 m hlaup, hástökk og kúluvarp. Sunnud. 7/8. Karlar: 100 m hlaup, stangarstökk, kringlu- kast, 1500 m hlaup, þrístökk, 110 m grindaihlaup, sleggjukast og 400 m hlaup. — Konur: 80 m Framhald á 10. síðu. Frá 5 km hlaupinu f Osló. Á myndinni sjást frá vinstri: Nielsen, Danmörku, Kristleifur og Norðmennirnir Andreassen og Tellesbö i > ■ > Handknatf- leiksmót ísl. úti ÞRETTÁNDA Handknatt leiksmót íslands í útihand knattleik hófst sl. föstu- dagskvöld á Ármannsvell inum við Sigtún. Formaður Handknatt- Ieikssambands fslands, Ás björn Sigurjónsson, setti mótið með ræðu. Gat hann þess m. a. að Reykjalundur hefði gefið fagran bikar til keppni f 2. flokki kvenna. Bæri að skoða þá góðu gjöf sem viðurkenningarvott vegna framúrskarandi frammi- stöðu íslenzkra handknatt leiksstúlkna á nýafstöðnu Norðurlandamóti. Að þvf búnu hófst keppni í óliagstæðu veðri, ausandi rigningu. Úrslit urðu sem hér segir; MEISTARAFL. KARLA: Fram—ÍR 14:9. KR-Ármann 18:10. MFL. KVENNA: Ármann—Þróttur 12:5. II. FLOKKUR KVENNA: Ármann—Fram 3:2. Myndin er tekin á því augnabliki, er Ingólfur (Fram) skorar eitt þeirra 14 marka, sem Fram gerði í leiknum við ÍR. (Ljósm. J. Vilberg.) Næstu leikir DAGSKRÁ handknattleiksmóts íslands 1960: Mánudagur 25. júlí kl. 8: II. kvenna Ármann — Keflavík. Mfl kvenna A-riðill FH — Val- ur. Mfl. karla Keflavík — FH. Mfl karla Ármann — Fram. Þriðjudagur 26 júlí kl. 8. II. fl. kvenna Víkingur — KR. M.- fl. kvenna B-riðill ísafjörður — Víkingur. Mfl. karla Ármann — ÍR. Mfl. karla KR — Fram. Miðvikudagur 27 júlí kl. 8. II. fl. kvenna Víkingur — Fram. II 11. kvenna Keflavík — KR. Mfl kvenna B-riðill ísafjörður — KR. Mfl. kvenna A-riðill Þróttur — Valur. Mfl. karla Keflavík — KR. Mfl. karla FH — Fram. Föstudagur 29. júlí kl. 8. II. fl kvenna Keflavík ■—- Fram. II. fl. kvenna Ármann — KR. Mfl. kvenna A-riðill FH — Þrótur. Mfl. karla Keflavík — Fram. M.'l. karla FH — ÍR. Þriðjudagur 2. ágúst kl. 8. II. fl. kvenna Keflavík — Víking- ur. Mfl. kvenna Ármann — FH. Mfl. karla Ármann — Keflavík. Mfl. karla KR — ÍR. ÍA- ÍBK og Fram - Valur TVEIR leikir fara fram í I. deildinni í dag. KI. 4 leika í Keflavík Í.A. og Í.B.K. og kl. 8,30 £ kvöld leika Fram og Val- ur á Laugardalsvellinum. Fimmtudagur 4. ágúst kl. 8. II. fl. kvenna KR — Fram. Mfl kv. B-rið KR — Víkingur. Mil, B-riðill KR — Víkingur. Mfl. kvenna A-riðill Ármann — Val ur. Mfl. karla Keflavík — ÍR. M-11. karla Ármann — FH. Föstudagur 5. ágúst kl 8. II. fl. kvenna Ármann — Víking- ur. Mfl. kvenna tJrslit A og B riqiar. Mfl. kvenna KR — FH. íþröti atr éttir í STUTTU MÁLI OLGA CONNOLLY KEMST TIL RÓMAR Sigurvegarinn í kringlukasti kvenna á síðustu OL, Olga Con- olly, tryggði sér rétt til Róm með því að verða önnur á banda ríska úrtökumótinu með 52,54 m. Sigurvegari varð óvænt Dar lene Brown mieð 53,91 m. A£ öðrum afrekmu mótsins má nefna langstökk Willy White (6,21 m). EVRÓPUMET í 100 M SKRIÐSUNDI KVENNA Cilla Madarasz, Ungverja- landi, setti nýlega nýtt Evrópu- met í 100 m skriðsundi' kvenna, Synti hún á 1:02,5 min. Á bandaríska úrtökumótimn synti hin kornunga óg efnilega Chris von Saltza sömu vega- lengd á 1:01,6 og er nú almennt talin skæðasti keppinautur ástr- ölsku stúlknanna um Olympúi- verðlaunin í skriðsundi. Alþýðublaðið — 24. júlí 1960 J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.