Lögberg - 19.11.1936, Side 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. NÓVEMBER 1936
Hogberg
Gefið út hvern fimtudag af
T H E COLUMBIA PRES8 LIMIT E D
695 Sargent Avenue
Winnipeg, Manitoba
Utanáskrift ritstjðrans:
BDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVE.
WINNIPEG, MAN.
Verð $3.00 um árið — liorrfat fyrirfram
The "Lögberg” is printed and published by The
Columbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue,
Winnipeg, Manitoba
PHONE 86 327
Úr nógu að velja
Það væri synd að segja að ekki verði úr
nógTi að velja viðvíkjandi borgarstjóraem-
bættinu í Winnipeg við kosningamar, sem
fram fara þann 27. þ. m., þar sem hvorki
meira né minna en fimm frambjóöendur verða
í kjöri.
Núverandi borgarstjóri, Mr. Queen, sem
jafnframt á sæti á fylkisþingi, leitar endur-
kosningar af hálfu hins óháða verkamanna-
fiokks; hann hefir að baki sér langan starfs-
feril á sviði opinberra mála; hann er vel að
sér ger um margt, þó vera megi að hann sé
nokkuð einhæfur með köflum, vegna þröngr-
ar, flokkslegrar aðstöðu.—
Col. Ralph H. Webb er alt annað en ný-
liSi, er til bæjarmálefna og bæjarstjórnar-
kosninga kemur; hann hefir gegnt borgar-
stjóraembætti í átta ár, eða lengur en nokkur
annar maður í sögu Winnipegborgar. Col.
Webb á það sammerkt við Mr. Queen, að eiga
einnig sæti á 'fylkisþingi, þó stimplaður sé
hann til annars flokks. Col Webb lætur sér
annríkt og vasast í mörgu; vel er af honum
látið sem góðum dreng, en sem foringi bæjar-
málefna er hann að líkindum hvorki betri né
verri en hann var, er hann kvaddi borgar-
stjórastólinn síðast; hann er flestum mönnum
slungnari viS fylgisöflun, og þessvegna er í
rauninni ekki nokkurt viðlit að spá í eyðum-
ar um það, hvað langt hann kann að komast
að þessu sinni.
Mr. T. W. Kilshaw, uppboðshaldari, og
fyrrum bóndi í Saskatchewan, er einn þeirra,
sem um borgarstjóraembættið keppa; hann
er mikill maður að vallarsýn og hinn snÖfur-
mannlegasti; hann var einn þeirra manna, er
leituðu kosningar tii Sambandsþings hér í
borginni 1935, undir merkjum H. H. Stevens.
En svo fór um sjóferð þá, að Mr. Kilshaw
fékk hina verstu útreið og tapaði hinu lög-
boðna tryggingarfé sínu; seinna um haustið
bauð hann sig fram til bæjarstjórnar, og
reiddi þá engan veginn betur af. Mr. Kil-
shaw hefir prentað margliðaða stefnuskrá og
útbýtt henni vítt á meðal kjósenda, þeim tii
hjartastyrkingar og hægðarauka.
Lítil sem engin deili vitum vér á Mr. F.
0. Wobds, að öðru leyti en því, að hann hefir
augastað á borgarstjórastólnum, og tjáir sig
hlyntan Social Credit hreyfingunni.
Síðastan, en ekki sízt, þeirra manna, sem
í kjöri eru um borgarstjóraembættið, skal
telja Dr. F. E. Warriner, þann, er átt hefir
sæti í skólaráði borgarinnar síðastliðin níu
ár, og getið sér þar hinn bezta orðstír sakir
hagsýni sinnar og lipurðar í samvinnu. Dr.
Warriner er maður gáfaður og hverjum
manni háttprúðari; það dylzt því engum, sem
til þekkir, að hann sem borgarstjóri, myndi
undir engum kringumstæðum á annan veg
koma fram en þann, er borginni yrði til sæmd-
arauka. Dr. Warriner hefir það meðal ann-
ars á stefnuskrá sinni, að enginn einn maður
skuli hafa meira en eina sýslan eða eina stöðu
með höndum; þetta virðist í alla staði sann-
gjarnt og þessari reglu ætti að vera sem allra
víðast fyigt, því þá þverraði atvinnuleysið og
vinnan kæmi jafnara niður; auk þess er ávalt
nokkur hætta á, að þeir, sem mörg járn hafa
í eldinum, geri störfum sínum upp og ofan
lakari skil, en hinir, sem beita óskiftum kröft-
um og óskiftum vilja í þjónustu færri mál-
efna. Þetta að gína yfir sem mestu, hefir
jafnaðarlegast mælst misjafnt fyrir, og þá
ekki hvað sízt í yfirstandandi krepputíð. 1
tölu þeirra manna, er of mörg járn hafa í
eldinum, eins og nú hagar til, eru þeir Col
Webb og Mr. Queen.
Síður er það en svo, að hörgull sé á fram-
bjóðendum í bæjar- og skólaráð; um það ber
frambjóðendalistinn ljósast vitni.
1. 2. kjördeild, þar sem Islendingar eru
langfjölmennastir, er um ágætan efnivið að
ræða viðvíkjandi vali bæjarfulltrúa og skóla-
ráðsmanna. Má þar tilnefna þá C. Rhodes
Smith, Garnet Coulter og Victor B. Ander-
son. Menn þessir allir eru líklegir til þess að
ná kosningu, og verðskulda, sakir samvizku-
semi í afskiftum af opinberum málum, traust
og fylgi almennings.
Mikið veltur að sjálfsögðu jafnframt á
því, að vel takist til um kosningu í skólaráð,
öðru eins feikna fé sem árlega er varið til
slcólamálanna; að kosnir séu í skólaráðsstöð-
ur gætnir og samvizkusamir menn, er vita
hvað þeir vilja.
Vel er að kjósendur gæti þess, að kosn-
ingar til bæjarstjórnar í Winnipeg eru hlut-
bundnar og að kjósendum ber að merkja at-
kvæðaseðla sína með tölustöfum í þeirri röð
á kjörseðlinum, er þeim bezt þóknast; gildir
þetta eigi aðeins um val bæjarfulltrúa og
skólaráðsmanna, heldur og jafnframt um
kosninguna í borgarstjóraembættið.
Sjálfsagt er að þeir allir, sem á k jörskrá
eru og komið geta því við, neyti atkvæðisrétt-
ar síns, því ekki er það til nokkurs skapaðs
lilutar að naga sig í handarbökin á eftir, þó
eitthvað fari á annan veg, en ætlast var til í
fyrstu eða kosið varð á.
Margbrotnara en margur
heldur
Niðurlag skáldsögunnar
“Þess bera menn sár”
Vera má að ekki sé öllum það jafn ljóst
og skyldi, hve margbrotin þau störf eru, sem
bæjarfulltrúarnir í Winnipeg hafa með hönd-
um; hve þeir verða að hnitmiða tíma sinn við
f jölþætt viðfangsefni, þannig, að ekkert verði
útundan eða sitji á liakanum eins og það er
kallað; það er síður en svo, að þau sé ávalt
metin að verðugu, sporin, sem þjónar eða
sýslanamenn hins opinbera, leggja á sig fyrir
þá, smáa og stóra, ríka og fátæka, er þeir fara
með umboð fyrir á fundum og ráðstefnum
hins opinbera lífs; þó er þjónustuhæfileikinn
sá hinn dýrmætasti hæfileiki, er nokkur mað-
ur á til í eigu sinni, og nokkurt bæjar- eða
þjóðfélag getur notið. Þjónustusemin og
fómin eru tvíburasystur. —
Hinn vinsæli og mæti Islendingur, Victor
B. Anderson, liefri átt sæti í bæjarstjórninni
í Winnipeg um síðastliðið f jögurra ára skeið;
liann liefir komið þar fram þjóðflokki vorum
til sæmdar og reynst liðtækur starfsmaður við
fjölþætt störf; hann hefir með hógværð sinni
og þjónustusemi skapað í umhverfi sínu eða
kjördeild víðtækan góðhug og lagt sig í líma
til þess að bæta kjör þeirra, er örðugasta áttu
aðstöðuna í baráttunni fyrir tilverunni; slíkt
gera aðeins vaskir menn og batnandi. Skot-
inn fyrirverður sig ekki fyrir að stuðla að
kosningu Skotans í opinberar stöður og fram-
gangi hans þar; sumir kalla þetta þjóðernis-
iega einangrun eða eitthvað þar fram eftir
götunum og telja slíkt alt annað en eftir-
breytnisvert; þetta er grýla, sem kveðast þarf
niður. Islendingar hafa hafa hvorki staðið
Skotanum né neinum öðrum þjóðflokki að
baki. Þeir verða að sækja fram í öruggri
sigurvissu á tilverurétt.sinn og þverneita að
gerast undirlægjur nokkurs þjóðflokks eða
þjóðarbrots, er þeir dveliast með; að öðrum
kosti eiga þeir það á hættu að verða blátt á-
fram “étnir á fæti,” eins og Einar Benedikts-
son kemst að orði í Fróðárundrum sínum hin-
um nýju.—
Victor B. Anderson liefir átt sæti í þeim
nefndum fyrir hönd bæjarstjórnarinnar, sem
nú skulu tilgreindar: Formaður Social Wel-
fare nefndar og meðlimur í heilbrigðismála,
sjúkrahúsa, Auditorium og bókasafns nefnd-
um, auk þess sem hann af hálfu bæjarstjórn-
ar hefir setið í þjóðveganefnd Manitobafylkis.
Störf þessi öll krefjast mikils tíma, eigi þeim
að vera gerð nokkur veruleg skil; þau krefj-
ast nærgætni og samúðar. Að vorri hyggju,
hefir Mr. Anderson, þegar tekið er tillit til
allra aðstæðna, reynst svo vel stöðu sinni
vaxinn, að endurkosning hans ætti að vera
alveg sjálfsögð. Islendingar ráða þar nokkru
um, og þeir eiga að vinna þar að sem einn
maður.
Father Coughl
Kaþólski presturinn Father Coughlin í
Detroit, hét því að hætta við stjórnm^latrú-
boð sitt yfir útvarpið, ef Union-flokkurinn, sá
er Mr. Lemke frá North Dakota, veitti for-
ustu í síðustu kosningum, fengi ekki 9 miljón-
ir atkvæða. Nú er það komið á daginn, að
flokkur þessi fékk ekki nema um hálfa sjö-
undu miljón atkvæða í kosningunum. Father
Coughlin er mælskur maður, en ekki að sama
skapi vark:ár í orði; hann kom sér meðal
annars út úr húsi hjá miljónum manna fyrir
munnsöfnuð sinn og illmæli um Rotosevelt
forseta, er hann kallaði öllum ónöfnum, svo
sem “lygara,” “tól” og “guðníðing.” Nú
hefir Father Coughlin lýst yfir því, að þess
.verði langt að bíða að rödd sín heyrist yfir
útvarpið á ný, með því að hann vilji ágjarna
ganga á bak orða sinna.
Fyrir löngu síðan (í nóvembei
x933) skrifaði eg í Lögbergi um-
getningu um fyrri hluta ofannefndr-
ar skáldsögu Guðrúnar Lárusdótt-
ur. Um seinni hlutann, sem út kom
kringum áramótin siðustu, skal hér
farið nokkrum orðum.
Fyrra bindinu lauk með því, að
leiðir þeirra Hildar og Sigurðar,
uppeldisbróður hennar og unnusta,
skildu. Er hér nú haldið áfram, að
rekja feril hennar; hún fer að
heiman og heldur áður langt liður til
Reykjavíkur; ledir hún þar í klón-
um á kvennaflagara og svallara, en
sleppur þó úr höndum hans eftir all-
harða viðureign. Veikist hún og er
send á spitala; kemst hún þar af til-
viljun í kynni ' við barnsmóður
manns þess, sem hún hafði verið
komin á fremsta hlunn með að veita
ást sína. Þegar af spitalanum kem-
ur, verður Hildi ilt til vinnu, og á
hún í mesta basli, svo að framtundan
j blasir eigi annað við en hungur og
! harðæði. En þá þá kemur Sigurð-
! ur fornvinur hennar aftur til skjal-
! anna og bjargar henni úr vandkvæð-
; unum. Verður það úr, að hún hverf-
| ur aftur heim til stjúpu sinnar, sem
nú er þungt haldin og því þörf að-
hlynningar. Fer svo að lokum, þó
. að nærri stappi um hríð algerðu
skipbroti, að alt fellur í ljúfa löð
milli þeirra Hildar og Sigurðar, og
lýkur þar með sögu þeirra.
j Munu þau sögulok þyrnir i aug-
um þeim, sem illa una því, að far-
sællega greiðist úr örlagaflækjum
. sögupersónanna; en við því er vitan-
lega ekkert að amast, ef sögulokin
eru eðlilegur árangur undanfarandi
atburða, hlekkur í keðju orsaka og
afleiðinga, og í samlræmi við skap-
1 gerð og hugsunarhátt hlutaðeigandi
persóna. Mun það mála sannast, að
saga sú, sem hér er sögð, hefði vel
getað gerst og endað á þann hátt,
I sem skáldkonan segir hana; enda
hafa svipaðar sögur gerst og eru
1 eriri að gerast um allar jarðir —
1 sögur ásta og heitrofa, og endur-
■ nýjaðra funda og trygða.
Þessi síðari hluti skáldsögunnar
ber á sér sama kristilega og siðferð-
islega blæinn og fyrri hlutinn. Frá-
sögnin er einnig með sama hætti.
lipur og tilgerðarlaus; engir tiltak-
anlegir sprettir í stílnum, en svo með
efni farið, að sagan heldur athygli
lesandans vakandi. Sögupersónurn-
ar eru einnig lifandi, þó sálarlíf
þeirra sé eigi krufið til mergjar
samkvæmt þeim “kúnstarinnar regl-
um”, sem) sumir nútíðarhöfundar
temja sér. Þá er hér einnig sú und-
iralda samúðar með bágstöddum og
sorgmæddum, sem verið hefir í fyrri
ritum frú Guðrúnar.
f heild sinni er þessi skáldsaga
hennar fyllilega lestrarverð, heil-
brigð að hugsun og læsileg. Núger-
ist það mikil tíska, að rita skáld-
sögur :m)eð það fyrir augum, að afla
vissum pólitískum skoðunum fylgis,
og er eigr neitt sérstakt við það að
athuga; en þá ætti það ekki, að vera
neinn stórglæpur, að gerast málsvari
ákveðinna trúar- og siðferðisskoð-
ana svo sem sjá má merki í um-
ræddri skáldsögu. Hitt er jafnsatt,
að það eru ekki þær sérskoðanir,
sem skáldrit flytur, er kveða á um
skáldskaparlegt gildi þess, heldur
meðferð og túlkun efnisins, í einu
orði sagt snildin, sem þar birtist, al-
ment talað.
Richard Beck.
Endurvekið
traustið
með reynslu
og f orustu
WEBB fyrir borgarstjóra
Fagur vitnisburður um djarflega þjónustu á erfiðleika tknum
er trygging yðar fyrir framtakssamri ráðsmensku bæjarmál-
efna, ef
RALPH H. WEBB
er borgarstjóri yðar 1937
Enginn fyrirrennari lagði meira á sig til þess að koma á vel-
líðan í Winnipeg. W/ébb stofnaði ferða og fudarhalda skrif-
stofuna, sem veitti hingað í þúsundatali ferðamannastraumi, og
hundruðum þúsunda í peningum.
IIANN H< KOMMONISMANUM 1 SKEFJUM
Á heimili sínu — í opinberum afskiftum mála, er Webb djarfur
og hreinhugsandi borgari, með reynslu að baki og áræði, er
gerir hann færan í flestan sjó. — KJÓSIÐ HANN.
Published by Ralph H. Webb Campaign Committee.
Raspi
utin
Straumur atvikanna í m&nnlegu
lífi getur gerzt lítt skiljanlegur. Þar
sem hann rýfur virkisveggi þess
ramma, er umlykur mannvitið sjálft,
verður hann óskynhæfur.
Eitt furðulegasta fyrirbrigði í
mannkynssögunni eru án efa þau at-
vik, er fundu sér stað í veldi Rússa-
keisara, kringum upphaf heims-
styrjaldarinnar miklu, i sambandi
við þá persónu, er bar gerfinafnið
Rasputin. Nafnið Rasputin þýðir:
“Gerðu aldrei gott, sonur.” — Hver
einasta hugsun, athöfn og alt hans
líf, var greypt í mót þeirrar hugsun-
ar. Saga Rasputins er saga rúss-
nesks bónda, er fær breiddar út
kynjasögur um kraftaverk sín,
skrýðist munkakufli og verður höf-
undur nýrra trúarbragða. Kjarni
trúarbragða hans er um fullnægingu
holdsins. Hann vinnur í trúar-
bragðaflokk sinn eingöngu konur í
sínu umhverfi upphaflega, sem var
þorp við Norðuríshafið. — Þaðan
tekst honum að komast til Péturs-
borgar, sem munkurinn “Griska.”
Hann nær miklum völdum í kirkj-
unni. Kemst í kynni við f jölda hæst-
settra kvenna úr aðli Pétursborgar,
en það var vegurinn til keisarafjöl-
skyldunnar. Gerir hann kraftaverk
á veikum prinzinum. Nær dauða-
haldi á tilfinningum drotningarinn-
ar, keisarans og prinzessunnar, auk
kvenna úr aðalsstétt. — Verður ein-
valdur í hinu rússneska keisara-
dæmi, — en umi leið hatrammasti
f jandmaður þess. — Hann er erind-
reki Vilhjálms Þýzkalandskeisara í
ófriðnum mikla og breytir eftir hans
persónulegu fyrirmælum.
Á furðulegasta hátt fær Rasputin
með valdboðum fram komið morð-
um og tortímingu þeirra embættis-
manna ríkisins, er unnu hag þess, og
sömu meðferð hlutu ötulustu rúss-
nesku herforingjarnir. Hann lagði
á ráðin til að eyðileggja rússneskar
vopnaverksmiðjur. Gerir djöfulleg-
ar tilraunir með, að breiða út drep-
sóttir, svo sem kóleru o. fl. meðal
hin§ rússneska fólks.
Menn skyldu lesa þesa bók.
Með því að athuga þann grund-
völl, sem Rasputin-veldi Rússlands
varð til á, sem gaf því líf og athafna-
möguleika, þá kemur í ljós, að
Rasputin-isminn er árangur tak-
tmrkalausrar félagsspillingar. Hann
stiklaði upp í æðsta valdasess Rúss-
lands á helsjúkum tilfinningum, á
úrgangi þess elds er auðlegðin, at-
hafnaleysið og siðleyjsið kyndir í
sálunum annarsvegar og hinsvegar
örbirgðin og eymdin hefir fryst til
heljar. — Hvorttveggja mætist á
botni þjóðfélagsins og verður sam-
eiginlegur grundvöllur fyrir veldi
Rasputin-ismans.
Það er sannarlega mikilsvert að
fá þessa bók til lesturs. Hún er
hvorttveggja: skemtileg aflestrar,
málsins vegna, hitandi, sem hún á
átakanlegan hátt gefur ljóslifandi
mynd af hinum ömurlegasta dapur-
leik þess, sem mannleg vera getur
alið við brjóst sér.
Jóhannes G. Helgason.
—N. dagbl. 12. okt.
Faðir: En þær móttökur. Eg er
varla kominn út úr lestinni fyr en
þú biður mig um peninga.
Sonur: Lestin var líka 20 mínútur
á eftir áætlun.
Svíj: Eg át síld um miðjan dag
og siðan hefir mig þyrst svo, að eg
hefi orðið að drekka 15 bjóra. Og
svo segja menn að síld og kartöflur
sé ódýr matur!
Ung frú kemur í hattabúð.
—Þið auglýsið að þið hafið feng-
ið 500 nýtizku hatta. Má eg fá að
máta þá?
IF THE HAT FITS — PUT IT ON !
IF IT DOESN’T — REMEMBER THE
Millinery Workroom
When the hat of your dreams is
just a touch too small — or too
large — or must be made to
order — it’s time to get workroom
conscious! Our experts specialize
in the creation of wedding millin-
ery, fur hats or gay little evening
caps. They clean, re-trim and re-
block old favorites. They adjust
headfittings — add those anchor-
ing elastics. You’ll be pleased
with their work — surprised by
the very small charges!
—Millilnery Section, Second Floor, Portage.
*T. EATON C°.„„
WINNIPEG CANADA