Lögberg - 04.02.1937, Síða 8

Lögberg - 04.02.1937, Síða 8
V 8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. FEBRÚAR 1937 Úr borg og bygð ÍSLENDINGA MóT FRÓNS verður haldið annan dag Þjóð- ræknisþingsins þ. 23. febr. n. k. í hinum nýja sal Good Templara. Hefir stjórn F'róns vandað sem bezt má vera til hátíðar þessarar, sem dæma má af skemtiskrá mótsins. Ræðu heldur hinn mik- ilsvirti skattstjóri frá St. Paul, hr. Gunnar B. Björnsson, er öll- um islendmgum er kunnur fyrir gáfur og mælsku. Fnnar Páll Jónsson flytur stutt frumsamið kvæði. Einsöngva syngur frú Sigríður Olson og er hennar listastarf svo alkunna að enginn mun sitja af sér tækifæri að hevra hennar túlkun að þessu sinni. Til sýnis verður og mót eða líkan af íslandi er sýnir í upphleyptum hlutföllum hæðir, jökla, dali og vötn og firði landsins. Mun séra Bögnv. Pétursson skýra það með fáeinum orðum. Kýmnisskáldið Lúðvík Kristjánsson mun sem undanfarin ár flytja eitt af kvæð- um sínum. Seytján manna karlaflokkur syngur þekt og vin- sæl islenzk lög og hópur barna syngur íslenzk þjóðlög á íslenzku og mun mörgum þykja slíkt ný- lunda hér í Winnipeg. Þá verða ágætar veitingar og dans. í þetta sinn mun nefndin hafa í hyggju að hafa æfðan og vanan flokk hljóðfæraleikara að leika fyrir dansinum. Almenningi gefst því tækifæri að njóta þetta kveld margs er alls ekki verður á boð- stólum á neinum öðrum samkom- um ársins. V'erður samkoma þessi nánar auglýst í næstu blöð- um Lögbergs. Mr. Hjálmar A. Bergman, K.C., fór austur til Ottawa á föstudag- inn var til þess að flytja mál fyr- ir hæztarétti Canada. Messuboð V'ið hádegismessu í Fyrstu lút- ersku kirkju næsta sunnudag verður minst aldar - afmælis heimsfræga prédikarans Dwight L. Moodv (f. 5. febr. 1837). Sókn- arpresturinn flytur þar erindi um þetta andans stórmenni. — Á sunnudagskveldið prédikar séra Jóhann Bjarnason. Selkirk Lúterska Kirkja Næsta sunnudag verða guðs- þjónustur sem fylgir: Kl. 11 árd., sunnudagaskóli. Kl. 2.30 síðd., söngæfing. KI. 7 síðd., ensk messa. - Allir boðnir og velkomnir. Vinsamlegast, Carl J. Olson. Messur i Gimli prestakalli næsta sunnudag þ. 7. íebrúar: Betel—á venjulegum tíma. Gimli—kl. 7 e. h„ íslénzk messa. Það eru vinsamleg til- mæli safnaðarráðsins og prests- ins, að sem allra flestir meðlimir Gimli safnaðar sæki þessa messu og ef til vill til úrslita mjög áríð- andi mál. Sunnudagaskóli Gimli safnað- ar, kl. 1.30 e. h. Fermingarbörn á Gimli koma saman á prestsheimilinu, föstu- daginn þ. 5. febr. kl. 4 e. h. B. A. Bjarnason. Mannalát \ralgerður Björnsdóttir Fred- erickson, ekkja J. Tryggva F'red- erickson, er lengi bjó í grend við Kandahar, Sask., andaðist í Sask- I atoon á mánudagsmorgunin'var. F’er útför hennar fram frá kirkj- unni í Kandahar á fimtudaginn. Hún var systir Dr. Björns B. Jónssonar og þeirra systkina. Dr. Björn fór vestur í gær að jarð- syngja systur sína. Hjónavígslur Gefin saman í hjónaband þann 23. jan. s. 1. voru þau Mr. Kári Gunnlaugur Oleson, frá Glenboro, og Mrs. Helga Emily Oleson, frá Riverton. Séra Jóhann Bjarna- son gifti og fór hjónavígslan fram að heimili hans, Ste. 14 Glenora Apts., 774 Toronto St„ hér í borg. Eg hefi fyrir nokkru síðan sent reikninga til allra þeirra er skulda mér fyrir bækur eða tíma- rit. Margir hafa borgað, en þó eru fleiri sem eg hefi enn eigi fengið nein skil frá. Vil eg nú mælast til að allir þessir láti eigi lengur dragast að senda mér póst- ávísan. Þetta eru smáupphæðir í flestum tilfellum, en safnast þegar saman kemur, og eg verð að borga mínar skuldir til útgef- endanna. 3. febrúar 1937. Magnús Pcterson. 313 Horace St„ Norwood, Man„ Canada. Heimilisiðnaðarfélagið heldur sinn nSesta fund á heimili Mrs. P. J. Sivertson, 497 Telfer Ave„ á miðvikudagskveldið þ. 10. þ. m. kl. 8. PHONE 86 685 “THE CAREFUL CLEANERS” Sérstök Vctrar Vilkjör Karlmanna alfatnaðir, Kvenkjðlar, algengir og samfeldir þurhreinsaðir fagurlega Aðeins 75c Tilboðið gildir í einn mánuð MORRI/ # ▼ 1 DkYCLEANERS L DYEkS Landkönnunarferðir Livingálone’s (F'ramh. á 7. bls.) gefið burðarstólinn. Og loftslag- ið var eins slæmt og hugsast gat í þessum votlenda frumskógi, og þar á ofan bættist steypiregn á hverjum degi. 27 apríl skrifaði hann í síðasta sinn í dagbókina línurnar, sem tilfærðar eru í upp- hafi greinarinnar. 29. apríl and- aðist hann. Trúustu þjónar Livingstone’s, þeir Susi og Tsjuma, yfirgáfu ék.ki lík herra síns. Eftir að þeir höfðu smurt líkamann svo vel sem unt var, fluttu þeir sinn kæra “Master”, áhöld hans og handrit til strandar, við stöðug- ar hættur og erfiðleika, og áfram til Englands, og þar er nú gröf David Livingstone’s í West- minster Abbey. Manni finst langt síðan. Og þó eru þessir atburðir oss svo ná- lægir, að einn þeirra, sem við- staddur var hinn sögulega atburð er þeir fundust, Livingstone og Stanley, lifir enn þann dag í dag og getur skýrt frá þessum fræga atburði í frumskóginum og því sem siðar skeði. Þegar amerisk- ur landkönnuður, Charles Wel- lington Furlong, nýlega fór sömu leið og Livingstone, hitti hann fyrir sunnan Bambasa í Kenya Frú Kristín Gunnlaugsson frá Wynyard, sem dvalið hefir í borg- inni um hrið sér til heilsubótar, hélt heimleiðis á þriðjudaginn. Mr. John Gunnarsson frá Win- nipegosis, Man„ er staddur í borg- inni um þessar mundir. Áætlaðar messur i febrúarmán- uði: 7. febr.—Árborg, kl. 2 siðd. 14. febr.—Vídir, kl. 2 síðd. 21. febr.—Geysir, kl. 2 síðd. 21. febr.—Árborg, kl. 8 síðd.— ensk messa. 28. febr.—Riverton, kl. 2 síðd. Sigurður ólafsson. ‘ —-----------------------------------------—■+ Social Credit Fundur Almennur fundur verður haldinn í I.O.G.T. Hall á Lundar á miðvikudaginn þann io. þ. m„ kl. 2.30 e. h. Ræðumenn: Hjálmar Gíslason, á íslenzku Salome Halldórson, M.L.A., á ensku. Allir boðnir og velkomnir! C'OCH>OCZ>OC Verzlunarmentun Oumflýanleg nú á tímum! Vaknandi viðskiftalíf krefst vaxandi vinnukrafts. Við- skiftavenjur nútímans krefjast sérþekkingar á öllum sviðum. Þessvegna er verzlunarmentun blátt áfram óumflýjanleg. Enda er nú svo komið, að verzlunar- skólanám er talið óhjákvæmilegt skilyrði fyrir atvinnu við skrifstofu- og verzlunarstörf. UNGIR PILTAR og UNGAR STÚLKUR, sem ætla sér að ganga á verzlunarskóla (Business Oollege) í Winnipeg, ættu að spyrjast fyrir á skrifstofu Lög- bergs; það verður þeim til dr júgra hagsmuna. Komið inn á skrifstofuna, eða skrifið The Columbia Press Limited TORONTO og SARGENT, WINNIPEG >0d0C30CD0C30CD0C KAUPIÐ ÁVALT LUMBER hjá THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD. HENRY AVENUE and ARGYLE STREET Winnipeg, Man. - Phone 95 551 Mr. Jónas Helgason, frá Dafoe, Sask., sem dvalið hefir í borg- inni um hríð, er nýlega farinn heim. Mr. og Mrs. J. B. Johnson frá Kandahar, sem dvöldu í borginni um síðustu helgi, héldu heim- leiðis á þriðjudagskveldið. Stjórnin í Tékkóslóvakíu hefir látið marga bændur þar í landi fá ryksugur. Er ætlast til, að þeir noti þær til þess að halda kúm sínum hreinum, og á mjólkin úr þeim þá að verða betri en ella. Minniét BETEL * 1 erfðaskrém yðar ! ATJÁNDA ÁRSÞING Þjóðræknisfélagsins verður haldið í GOODTEMPLARAHÚSINU VIÐ SARGENT AVE. WINNIPEG 22., 23., og 24., febrúar 1937 DAGSKRÁ— 1. Þingsetning 8. Útbreiðslumál 2. Skýrsla forseta 9. Fjármál 3. Kosning kjörbréfa- 10. F'ræðslumál nefndar 11.. Samvinnumál 4. Kosning dagskrár- 12. útgáfumál nefndar 13. Bókasafn 5. Skýrslur embættis- manna 14. Kosning emættismanna 6. Skýrslur deilda 15. ólokin störf 7. Skýrslur milliþinga- 16. Ný mál nefnda 17. Þingslit Samkvæmt 21. gr. laga félagsins er deildum þess heimilað að senda einn fulltrúa til þings fyrir hverja tuttugu eða færri gilda félaga deildarinnar; gefi þeir full- trúa skriflegt umboð til þess að fara með atkvæði sitt á þingi og sé umboðið staðfest af forseta og ritara deildar- innar. Þing sett mánudag. morgun 22. febrúar kl. 9.30. Þriðjudagsmorgun þ. 23. kl. 9.30 kemur þing saman að nýju. Þingfundir til kvelds. Það kveld kl. 8 heldur deildin F'rón sitt árlega fslendingamót. Miðvikudagsmorg- un hefjast þingfundir aftur og standa til kvelds. Það kveld þ. 24. kl. 8 fara fram þingslit. Frekari greinargerð fyrir hinum ýmsu samkomum verður gerð siðar. Winnipeg, 26. janúar 1937. f umboði stjórnarnefndar Þjóðræknisfélagsins Rögnv. Pétnrsson, forseti Gísli Johnson, ritari Business Cards % Kushner’s Grocery 676 SARGENT AVE. Ávalt ferskir dvextir og glœnýtt kjöt. Vörur sendar heim. Sími 37 608 Wellington Bakery 764 WEL.LINGTON AVE. Eina íslenzka bakaríið í borginni. Vörur sendar greiðlega heim. Pantanir utan af landi skjótlega afgreiddar. Sími 25 502 lsabel MacCharles Florist 618 PORTAGE AVE. Te og hressingarskáli; lesið I sand af prinsessu Nadjah og hjðlum hamingjunnar snúið. Sími 36 809 níræðan svertingja að nafni — Chengwembi. Chengwembi var að vísu tek- inn ag kikna undir sínum 90 ár- um, og minni hans farið að gefa sig. En nokkrir atburðir voru þó óafmáanlega skráðir í heila hans, og þeir myndu ekki gleym- ast svo lengi, sem hann ekki hætti að hugsa. Það var daginn, sem Living- stone dó og nstu vikur. Við bjarmann af hál isvertingjanna tóku þeir um kveldið hjarta hins dána og grófu það undir stóru tré við Hala. Og í stofn þessa tré skáru þeir merki og nokkur orð. Síðan höfðu þeir Susi og Tjuma og svertingjalæknir einn tekið að smyrja líkið og sólþurk- uðu það síðan með þvi að snúa því stöðugt klukkustund eftir klukkustund, dag eftir dag, þar til fH?rt þótti að hefja ferðina til strandar. Chengwemhi hafði hor- ið lík hins hvíta höfðingja síns eins og hinir, og varið það villi- dýrum eins og hinir. Þúsund enskar mílur og meira til gengu þeir, og urðu altaf að vera á verði. En að síðustu var mark- inu náð. Þetta mundi Chengwembi, og þetta var hans stolt. Það var Livingstone sem opn- aði Afríku. Þar sem hann með óendanlegu striti og erfiði hraust áfram við Victoriufossana, þar ferðast í dag “túristinn,” sem kemst þangað í járnbraut, flug- vélar sveima nú yfir Nílarupptök- unum og setjast á Njassa, þar sem stríðsbátar villimanna rugg- uðu forðum. Og þar sem bumb- an uðu forðum. Og þar sem stríðsandi tam tam boðskap til bæja og kynflokka, þar liggja nú símalinur. Þetta er fyrst og fremst að þakka David Livingstone. Eftir- maður hans er Henry Morton Stanley.—Alþbl. 3. jan. The Watch Shop Diamonds - Watches - Jewelry Agents for BULOVA Watches Marriage Licenses Issued THORLAKSON & BALDWIN Watchmakers & Jewellers 699 SARGENT AVE., WPG. Jakob F. Bjarnason TRANSFER Annast greiðlega um alt, sem að flutningum lýtur, smáum eða stórum. Hvergi sanngjarnara verð. Heimili: 591 SHERBURN ST. Slmi 35 909 Peningar til láns út á heimili yöar, ræktaðar bújarðir og hús í bæjum. International Loan Company 304 TRUST & LOAN BUILDING, WINNIPEG Slmi 92 334 RUMFORDS Stærsta og fullkomnasta Laundry og þurhreinsunar verkstofa í Brandon. 1215 ROSSER AVE. SMI 2181 Skrifið oss og spyrjist fyrir um verð. Sendið nautgripi yðar á Brandon markaðinn og sannfærist að þar sé hagkvæmust verzlun. Peningar greiddir út í hönd. Brandon Packers, Ltd. 901 ASSINIBOINE AVE. Brandon, Man. SPECIAL ! Large Reduction on Discon- tinued Lines—Watches, Silver, Jewellery — All High-Class Merchandise. —This Is Your Opportunity— 447 PORTAGE—Winnjpeg . (“Opp. "Bay”) Marriage Licenses Til þess að tryggja yður skjóta afgreiðslu Skuluð þér ávalt kalla upp SARGENT TAXI PHONE 34 556 - 34 557 SARGENT & AGNES FRED BUCKLE, Manager WILDFIRE COAL “DRUMHELLER” Trademarked for Your Proteotion Look for the Red Dots. LUMP .................$11.50 per ton EGG ..................$11.00 per ton PHONE 23 811 McCurdy Supply Co. Ltd. ROSS ó- ARLINGTON Fuel License No. 33

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.