Lögberg - 19.08.1937, Blaðsíða 2

Lögberg - 19.08.1937, Blaðsíða 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. ÁGÚST, Í937 Ný ir Heim ar Eftir Svein Sigurðsson. I. Síðan ísland komst í ritsímasam- band og nú síðar í talsamband við önnur lönd, og eftir að samgöngur hafa aukist á alla lund, eins stór- kostlega og raun ber vitni; berast allar nýjar stefnur og hreyfingar í andlegum málum, stjórnmálum, bók- mentum og listum hingað hraðar en áður voru dæmi til — og eru orðnar gamlar og úreltar áður en varir. Þessar stefnur og hreyfingar eru hér á ferðinni um líkt leyti og í ná- grannalöndunum. I>ær koma og hverfa, skilja ef til vill eitthvað eftir, sem setur svip á oss hér heima um stund, af því vér erum oft næmari fyrir nýjungum en aðrar. stærri þjóðir. En þessi svipur víkur svo smámsaman fyrir öðrum. Vér höf- um i trúmálum fengið hingað flestar stefnur og hræringar nágrannaþjóð- anna. En það eftirtektarverða er, að einmitt í þeim málum erum vér sjálfstæðari gagnvart hinum erlendu sérstefnum og hreyfingum en í flest- um öðrum málum. Vér höfum fengið þær yfir oss hverja eftir aðra, nú síðast Otxford-hreyfinguna og dr. Hallesby, en hvorki hún né Hallesby virðast ætla að valda nokkrum alda'hvörfum í andlegu lífi voru, og eru þó báðir þessir aðilar áhrifamiklir. — Vér höfum fengið hingað í bókmentum rómantík, realisma, modernisma, — í stjórn- málum; sósíalisma, kommúnisma, national-sósíalisma, — í listum ex- pressionisma, impressionisma, kúb- isma, surrealisma — og hvað þeir nú heita allir þessir “ismar” undanfar- inna ára. En vér höfum verið furðu-fljótir að átta oss á þessum “ismum,” hirða það sem í hag kom vorum þjóðháttum, en láta hitt fara sinna ferða inn um annað eyrað og út um hitt. Þrátt fyrir íslenzka nýjungagirni, sem réttara væri þó að nefna fróðleiksfýsn, ná “ismarn- ir” aldrei tökum á oss, heldur tökum vér undir með skáldinu Guðmundi Guðmundssyni, þegar hann kveður: “Mig varðar ekkert um “isma” “og “istanna” þrugl um list! Eg flýg eins og lóan mót sól í söng, þegar sál mín er ljóðaþyrst. Það er þjóðareinkenni að forðast kreddunnar farg, velta þvi af sér, eða helzt að láta það aldrei ná nokk- urs fangastaðar á þjóðlífinu. Það þjóðareinkenni er dýrmætt. Vér erum aðeins háðir “ismunum” með- an vér erum að átta oss á þeim. Þegar litast er um í heimi ís- lenzkra bókmenta nútímans, eða síð- an rómantikin frá dögum Bjarna og Jónasar, og þar næst realisminn frá tímum Gests Pálssonar og annara “Verðandi”-manna, hætti að vera mælisnúra og fyrirmynd í skáldskap og list hér á landi, má greina áfram tvo megin-strauma, sem eru jafn- ólíkir hvor öðrum eins og hin gamla rómantík og realismi voru á sínum tíma. Helztu einkenni annars þess ara tveggja megin-strauma í ný- íslenzkum bókmentum er ofurmat vitsmunanna, hinnar hagrænu hug- arstarfsemi heilans, kaldræn efnis- hyggja. sem metur skynheiminn og líkamlegar þarfir manna meira en alt annað, en sálina, ef hún er þá viður- r-end sem einskonar úrelt líffæri a ) oorö víð botnlangann, sem helzt beii að gefa sem minstan gaum. Sam- kvæmt barnalærdómsbók þessarar bókmentastefnu eru það ekki ,hin æðri sálaröfl, göfgi ‘hugans, trú né siðgæði, sem mest veltur á í lífinu, heldur hagnýt reynsluþekking, kænska, árvekni og- dugnaður að koma sér áfram, helzt þó á heiðar- legan hátt. En hið sálræna í eðli manna má ekki verða mjög að um- talsefni. Á tímum vélamenningar og verklegra framfara þykir of mik- ið skraf um sálina næsta barnalegt og óviðeigandi. — Vér könnumst við tóninn frá eldri rrthöfundum erlendum, sem hafa náð nokkurri hylli hér á landi, svo sem frá Mau- passant, náttúruhyggju hans og hentistefnu, í ritum eins og “Bel- Ami” o. fl.; frá Zola og ýmsum fylgjendum hans, o. s. frv. Áhrif skörungsins Georgs Brandesar verða mikil um eitt skeið einnig hér á landi, en sjálfur verður hann einmitt fyrir miklum áhrifum frá franskri listfræði. Blind trú hans á náttúru- vísindin, hin neikvæða gangrýni hans, sem endaði á mishepnaðri til- raun til að sanna, að höfundur krist- innar trúar hefði aldrei verið til,— og boðskapur hans um, að listin og bókmentirnar séu hvorttveggja tak- mark, en ekki tæki í þágu hinna æðstu hugsjóna (“l’art pour l'art”- kenningin), hefir ásamt fleiru orðið til að bæði hatin og ritverk hans hafa fallið fljótara í gleymsku en vænta hefði mátt um annan eins vitsmunamann og Brandes var. I einum fyrirlestra þeirra, sem rithöf- undurinn Konrad Simonsen hélt við háskólana í Kaupmannahöfn og Osló 1917, gefur hann þessa óvægi- legu lýsingu á áhrifum Georgs Brandesar á andlegt líf samtíðar- innar: “Það er ljóst, að hinn ákafi áróð- ur prófessors Brandesar hefir aldrei orðið til annars en að vekja hatur og þverúð. Aldrei hafa orð ‘hans knúð fram rödd kærleikans. Með síend- urteknum yfirlýsingum sínum um fyrirlitningu sína á heimsku mann- anna, átthagaást þeirra og þjóðar- kend, trú þeirra og tilbeiðslu á æðri máttarvöldum, gróðursetti hann þessa sömu fyrirlitningu hjá æsku- lýðnum. og með það takmark fyrir augum skipaði hann rithöfundunum, bæði þeim stóru og smáu, í flokka. —Árangurinn af því, hvernig hann upprætti trúna á allar hugsjónir, varð upplausn, sundrung, girndir, efnishyggja, öfund, guðsafneitun og þegar bezt lét yfirborðsþekking. Slíkur varð skerfur hans til menn- ingarinnar, þeirrar menningar, að Verzlunarmentun j Oumflýanleg nú á tímum! 3 | Vaknandi viðskiftalíf krefst vaxandi vinnukrafts. Við- H skiftavenjur nútímans krefjast sérþekkingar á öllum ° sviðum. Þessvegna er verzlunanmentun blátt áfram 0 óumflvjanleg. Énda er nú svo komið, að verzlunar- n skólanám er talið óhjákvæmilegt skilyrði fyrir atvinnu o við skrifstofu- 0g verzlunarstörf. UNGIR PILTAR og UNGAR STÚLKUR, sem ætla sér að ganga á verzlunarskóla (Business Oollege) í Winnipeg, ættu að spyrjast fyrir á skrifstofu Lög- bergs; það verður þeim til drjúgra bagsmuna. Komið inn á skrifstofuna, eða skrifið The Columbia Press Limited TORONTO og SARGBNT, WINNIPEG gera sálir manna að andlausum vél- um og draga skapgerð manna niður í sorpið.” — Gamlir Brandesar- dýrkendur krossuðu sig á bak og fyrir, þegar þeir heyrðu annað eins og þetta um sitt garnla goð, en öðr- um þótti vel mælt. Það rétta er, að hér var með óvægum orðum lýst gjaldþroti 'hinnar gömlu raunsæis- stefnu, eins og það gjaldþrot kom fram í heimsófriðinum 1914—’i8. Enda standa ummælin einmitt í sam- bandi við afskifti Brandesar af þeim hildarleik. Eftirstríðs-bókmentirnar frá ár- unum 1918—1928, eða næstu tíu árin eftir friðarsamningana, ein- kenna sig að bölsýni og upplausn. Hinna hræðilegu afleiðinga blóð- baðsins á vígvöllunum verður greini- lega vart í bókmentum þessa tíma- bils. Hermennirnir koma heim af vígstöðvunum lemstraðir á líkama og sál. Þar tekur atvinnuleysið við þeim, upplausnin heima fyrir, eða þá f jölskyldulífið, sem er fyrir löngu gleymt eftir vistina á vígvöll- unum. Þessir heimkomnu hermenn eru rótarlausir kvistir í jarðvegi þjóðfélagsins. Þeim finst sem þeim sé ofaukið, finst þeir eigi að hverfa, séu fyrir. Átakanlega kemur þessi bölsýni fram í bókum Remarques, “Tíðindalaust á vesturvígstöðvun- um” og “Vér héldum heim.” 1 öllu þessu vonleysi eftirstríðsbókment- anna brýst svo þjóðfélagsbyltingin út, eins og geisli í myrkrinu. Hún flytu* með sér fagnaðarerindi marx- ismans, sem sættir rithöfundana um stund við lífið, — en aðeins um stund. Því hér reyndist ekki að vera um það fagnaðarerindi að ræða, sem frelsað gæti heiiminn. Með stjórn- arbyltingunni í Rússlandi og hinum endurmagnaða marxisma í kjölfar hennar áttu að vera fundin smyrsl á þau sár, sem styrjöldin hafði vald- ið. Þau smyrsl áttu að græða mein- in, og upp úr ragnarökkri ófriðarins að risa nýr himinn og ný jörð. En hér verður efnishyggjan aftur þrös- kuldur í vegi. Því þó að hún hefði beðið gjaldþrot með heimsstyrjöld- inni, þá var öðru nær en að hún væri úr sögunni. Það hefir reyndar oft verið leitast við að sanna, að marx- isminn væri ekki efnishyggjukend lífsskoðun, og að maður geti vel ver- ið marxisti án þess að viðurkenna efnishyggjuna. En allar tilraunir til að sanna slíkt verða sér fyrirfram til minkunar, eins og norski rithöf- undurinn Ivar Digernes kemst að orði. Marxisminn vill þurka út alla trú á tilveru utan skynheimsins og alla guðsdýrkun. Hann er því “og verður sú eindregna og sjálfri sér samkvæmasta efnishyggja, sem til €r» °S getur aldrei gengið inn á nokkurn mismun milli þjóðfélagsins og náttúrunnar eða milli anda og efnis.” Með minkandi lýðhylli eftirstríðs- bókmentanna erlendis fara áhrif þeirra á íslenzka höfunda og al- menning þverrandi. Hin marxist- iska bókmentastefna, sem rís upp úr rússnesku byltingunni, hefir þegar tekið gagngerðum breytingum, enda nú orðin yfir tuttugu ára gömul og farin að verða fyrir áföllum af brimróti annara nýrri hreyfinga, þar á meðal af þjóðernisjafnaðarstefn- unni þýzku, hvort sem þessar tvær róttæku stefnur eiga svo enn eftir að breytast og renna saman í eina, eins og ýtmsir eru nú — næsta ólík- lega — farnir að spá (sbr. þó sam- drátt Þjóðverja og Rússa í hernað- armálum, að því er sumir glöggustu stjórnmála- og blaðamenn í Vestur- Evrópu telja vera á döfinni bak við tjöldin, þrátt fyrir fjandskapinn á ýfirborðinu milli þessara tveggja þjóða). II. Þeir, sem lengst leita inn í þagnar. lund sinnar eigin sálar, sjá fyrstir manna fánýti þess, sem er. A'f því þeir eru vansælir i þvi umhverfi, sem þeir verða að lifa í, hefja þeir leitina að æðri og betri lífsskilyrð- um. Sumir ná aldrei út úr bölsýn- inu, en aðrir gerast brautryðjendur og kanna nýjar leiðir. Á undanförn- um áratugum hefir þeim sífelt f jölg- að, sem hafa með öllu mist trúna á vestræna menningu. Nýir menn bætast stöðugt í þann hóp, menn, sem snúa baki við vélamenningu Vorra tima. Fyrir löngu eru þeir orðnir úrkula vonar um hjálp frá henni. Þeir hafa með eigin augum horft á það, hvernig vélarnar og vígbúnaðurinn hafa vaxið mönnun- um yfir höfuð, orðið þeim ofjarlar, eins og gervimennirnir, urðu í hin- um ágæta sjónleik, eftir tékkneska skáldið Karel Capek, sem Leikfélag Reykjavíkur sýndi nú í vor. Jafnvel listin og bókmentirnar hafa smitast af heimsspeki vélavaldsins, gervi- menningarinnar. Eða hafa ekki sum skáldin hafið heimshyggjuna til skýjanna, en gert lítið úr dygðum andans? Hafa þau ekki lofsungið kapphlaupið um auð og völd, dáðst að hégómanum og hliðrað sér hjá að bera sannleikanum vitni ? Hafa þau ekki svo að segja mist sjónar á hinu andlega lrfi? Sum hafa sokkið svo djúpt. Önnur hafa aftur á móti reynt að skýrgreina sálarhf samtíð- armanna sinna, og niðurstaðan orðið sú, að sálin væri vansæl og í fjötr-. um. Oftast er hún undir martröð allskonar vanmættiskenda, sem ým- ist stafa af ótömdum ástriðum, gróðabralli, samkepni um gæði þessa heims, yfirdrepskap eða undirferli. Taugaveiklaðar persónur eru oft uppáhalds-söguhetjurnar. Frjáls og sterk, öllu óháð sál er fágætt fyrir- brigði í persónulýsingutn skáldanna. Ýmist er sálin hrjáð og full bölsýni, eins og t. d. oft hjá Strindberg, Hamsun og Anatole Erance, eða hreint og beint spilt, pervers, eins og stundum hjá Baudelaire, D’Annun- zio og Oscar Wilde. Þegar bezt lætur er hún eins og fávíst, einmana barn, sem grætur af hræðslu við geigvæna leyndardóma myrkursins umhverfis það, — svo sem hjá Maeterlinck. En vér rekumst sjaldan á hreinar og göfugar sálir, á borð við biskup- inn i “Vesalingunum” eftir Hugo, f bókmentum síðari ára. Annaðhvort eru söguhetjurnar sálarlausar eða sálarlitlar kaldrænar vi^munaverur, ölvaðar af sínu eigin valdi yfir hinni ytri náttúru, eða þá vansælar.og sýt- andi yfir spillingu sjálfra sín og með öllu ófærar til að herða sig upp og hrista af sér okið, sem á sál þeirra hvílir, af því þær treysta ekki á hæfi- leika sálarinnar, þora ekki að gera ráð fyrir að þær séu guðs ættar. Til þess að draga úr eymdarblænum yfir öllu þessu hryggilega sjónar- sviði evrópskrar vélamenningar nú- tímans, sýna skáld eins og Bernard Shaw það oft og einatt í ljósi sár- beittrar hæðnj og skopast að öllu saman. En ein nýjasta og bezta skáldsaga í þeim anda er “Stríðið við salamöndrurnar” eftir Karel Capek, nistandi skop um Evrópu- menninguna, blöðin, stjórnmálin, vísindin, kvikmyndirnar, ástalífið, eins og alt þetta og fleira kemur skáldinu fyrir sjónir. Myndin af á- standinu verður grátbrosleg, jafn- framt því sem flett er ofan af and- leysinu og hugsjónafalsinu í menn- ingarlífi nútíimans. Aldrei hefir hugvitið sennilega komist á hærra stig í sögu mann- kynsins en nú. En það hefir orðið því fremur til tjóns en gagns. Heimsspekingurinn Bergson hefir lýst því mjög röksamlega, hvílíkt böl hugvitið og skilningurinn hefir haft í för með sér fyrir menning- una. Bergson telur skilninginn ekki liklegan til andlegs þroska. Skiln- ingurinn starfar aðallega í þágu hins jarðneska. Með 'hugvitinu er unnið að ákveðnu efnahagslegu marki, sem ekki eykur andlegt verðmæti mannsins. Hugvitið er meira að segja notað í þágu tortímingarinnar, eins og hin kaldræna vélamenning oft sýnir og sannar. Þess vegna verður að hætta að þroska skilning manna og hugvit á kostnað annara æðri eiginda, en af þeim er innsæið dýrmætust eigind og sw, sem aftur getur frelsað heiminn. Að svipaðri niðurstöðu komst Þjóðverjinn Walter Rathenau, þó að hann færi aðra leið í röksemda- færslu sinni en Bergson. Rathenau var einhver mesti framkvæmdamað- ur um skeið innan þýzka iðnaðarins. En þó hafa fáir betur en hann lýst hættu/m nútímatækninnar fyrir menninguna. Hann hefir lýst hin- um seigdrepandi áhrifum stórborg- arlífsins og vélavaldsins á sálina. Vélamenningin æsir taugarnar og gerir mennina sjálfa að vélum. Alt andlegt líf legst í rústir, þar sem hún drotnar. Gildi náttúrunnar, listanna, bókmentanna og sjálfrar kynslóðar- innar fer eftir þvi, hve mikill er auður andans. Sé hann enginn, er ,glötunin vís. Menning nútímans hefir orðið gjaldþrota, af því að hún hefir ekki ráðið við hlutverk sitt: að gera manninn að herra jarðarinnar, án þess að hann liði tjón á sálu sinni. Mennirnir hafa tekið náttúruöflin í þjónustu sína í eigin hagsmuna skyni. En náttúran hefir hefnt sin með því, að gera mennina að þræl- um. Eins og Midas konungur ör- magnaðist i sínum eigin gulldyngj- uim, þannig örmagnast mannkynið af þorsta eftir andlegum verðmætum, sem hvorki vélamenningin né jarð- nesk gæði geta veitt þeim. Sjálf vísindin eru að gefast upp við að skýrgreina skynheiminn út frá efnislegum forsendum eingöngu. Það er nú tæpur aldarfjórðungur síðan að sjö ágætustu vísindamenn Bretlands afneituðu efnishyggjunni með opinberum fyrirlestrum á svo- nefndri vísindaviku, sem haldin var í London. Efnið hefir verið leyst upp í sameindir, frumeindir og raf- eindir, og rafeindirnar upp í raf- magn eða einhverja aðra óefnis- kenda orku. Alt efni er hægt að leysa upp í orku. En hvað er ork- an? Vísindin haifa sýna, að skyn- heimurinn stjórnast af orku. Sálar- fræðingarnir komast ekki lengur hjá að gera ráð fyrir sálarorku, sem opinberast í lífverum skynheimsins, Efnishyggja Haeckels og fylgjenda hans er orðin hræðilega úrelt og fornfáleg. Á þessa leið kamst einn fyrirlesarinn á vísindavikunni, líf- fræðingurinn W. Bi. Bottomley, að orði. Og nú viðurkenna visindin ekki lengur hin gömlu takmörk milli anda og efnis. Á ársþingi Vísinda- félagsins brezka 1934 sagði Sir James Jeans í iforsetaræðu sinni, að það væru engin skýr greinarmörk milli anda og efnis og að vísindin verði að leita veruleikans bak við skynheimirm. Og í janúar 1935 segir Sir Ambrose Fleming, einn af ágætustu vísindamönnum nútímans í forsetaræðu sinni i félagi heim- spekinga á Bretlandi. ‘að mannkynið hljóti að vera til orðið fyrir sköp- unarkraft einhverrar vitrænnar skapandi veru.” Kraftaverk ritning- arinnar eru annað og meira en tóm hjátrú, bætti Sir Fleming við. Upp- risa Krists er einn af bezt vottfestu atburðum mannkynssögunnar, og það er barnaskapur að halda, að ekkert hafi gerst eða gerist annað en það, sem kemur heim við þá tak- mörkuðu þekkingu,, sem vér höfum á lögmálum náttúrunnar. Þá eru eftirtektarverð u/mmæli Sir Arthurs Eddingtons, stjörnufræðingsins heimskunna, sem hann viðha'fði í fyrirlestrum sinum við Cornell-há- skólann 1934- Hvers vegna skyld- um vér halda, að alt hið mikilvæg- asta í manneðlinu verði mælt og vegið, þar sem hinn sanni veruleiki er andlegs eðlis, spyr Eddington og viðurkennir þannig um leið öfl, sem enginn visindamaðúr á öldinni sem leið hefði fengist til að gefa gaum i alvöru. Sir Eddington heldur því fram, að vísindin séu nú á vega- mótum, nýir heimar séu að opnast, heimar, Sem engir gáfu gaum áður nema skáldin og dulsinnarnir, og hann segist efast um, að stærðfræð- ingarnir skilji betur tilveruna en þeir. III. Hvað er það, sem veldur þessum stefnuhvörfum í menningu nútím- ans og lifsskoðun? Gjaldþrot efnis- hyggjnnnar eru ekki eina orsökin til þeirra. Eitthvað nýtt hlýtur að vera að koma í hennar stað. Eg gat áður um tvo meginstrauma í skáldskap og list. Öðrum þessara megin- strauma er þegar lýst. Óhætt er að bæta því við, að þessa meginstrauma er að ifinna víðar, svo sem i vísind- unum. Sá imeginstraumur í andlegu lífi og menningu nútímans, sem enn er ólýst að mestu, á upptök sín í ali öðrum heimi en hinn. 1 bókment- unum mætti ef til vill tala um ný- rómantíska stefnu, ef orðið róman- tík væri ekki eins imisskilið og reynslan hefir sýnt. Rómantík bók- menta 19. aldarinnar hefir verið skýrgreind svo, að hún hafi verið leit að því óendanlega, þvi hugsjóna- lega og dularfulla, 'hún hafi sett til- finningalífið hærra en skilninginn og tekið innsæið fram yfir kalt hyggjuvitið, sem einkendi svo mjög hina þyrkingslegu fræðslustefnu í lok 18 aldar. Ný-rómantíska stefn- an er að sjálfsögðu leit að því óend- anlega, en hún er með öllu laus við þá “hjalvoð óveruleikans,” sem bú- ið var að reifa gömlu rómantíkina í. Fylgjendur hinnar nýju lífsskoðun- ar telja sig nú þegar hafa fundið ný og mikilvæg verðmæti, og þau verðmæti hefir ný og imikilvæg þekking fært mönnunum, þekking, sem mun gerbreyta öllu viðhorfi þeirra hvers til annars og til þeirra vandamála, sem þeir eru að glíma við og reyna að fá leyst. Æðsta hlutverk þessa nýja lífsviðhorfs er að berjast gegn vélamenningunni, þcirri menningu, sem leitast við að hneppa sjálft sálarlíf mannanna í fjötra efnishyggju og sérgæðis. Að því er til íslenzkra bókmenta kemur, má telja að öndvegið í fylkingu þeirra 'höfunda, sem bera blæ af þessu nýja viðhorfi, sé rithöfundur- inn Einar H. Kvaran, í siðari skáld- verkum sínum, og má segja að skýr- ast komi þetta fram í bók hans: Sál in vaknar. En á eftir honum kem- ur heill hópur höfunda, og nýir eru alt af að bætast í hópinn. Nokkra sérstöðu hafir rithöfundurinn dr. Helgi Péturss með áhrifum sínum á nokkra unga höfunda, en þar kennir þó í aðalatriðuim hins sama viðhorfs og nefnt 'hefir verið. Undanfarna áratugi hafa ýmsar merkar andlegar hreyfingar gengið yfir Ameríku og Evrópu og skilið eftir greinilegar menjar. Flestir kannast af afspurn við nýhyggjuna (New Thought) og kristilegu vís- indastefnuna (Christúm Science) frá Ameríku eða “anthroposofisma” Rudolfs Steiners og vizkuskóla Keiserlings hér í Evrópu. Flestar eða allar þessar hreyfingar hafa að meira eða minna leyti átt rót sína að rekja í austurveg — alla leið til Indlands. Eins og áður er það ljósið úr austri, sem skærastri birtu varpar inn í hinn kaldranalega heim vest- rænnar menningar. Hin forna heim- speki Indverja hefir vakið nýja og ákafa athygli, ekki aðeins heima fyrir heldur og út um allan heim, þar sem hún hefir samlagast öðrum andlegum hreyfingum og trúar- brögðum, svo sem kristindómnum —og verður kunnust í Evrópu í guðspekistefnunni svonefndu. Þess- ar hreyfingar hafa haft vekjandi á- hrif á sálarlíf manna og stundum gagngera breytingu í för með sér á alt daglegt líf, enda oft blandnar innilegri trúarþörf og ríkri tilhneig- ingu til að kanna hið dularfulla i tilverunni. En það þurfti meirá til en ind- verska dulfræði til þess að grafa undan þeiim grundvelli sem heims- mynd visinda 19. aldarinnar var bygð á. Vísindin beygja sig ekki fyrir neinu nema staðreyndum. Heimsmynd vísinda 19. aldarinnar hrundiifyrir staðreyndum þeim, sem sálarrannsóknir nútímans Hafa leitt í ljós. IV. Það er að vísu ekki ætlunin hér að rita um sálarrannsóknir nútímans. Það efni er svo viðtækt, að til þess að gera því nokkur skil, yrði að rita um það heila bók. Allmargar bækur eru til á íslenzku uim það mál. Og árlega koma út um það bækur á ýmsum tungumálum og víðsvegar um heim. Hér verður aðeins bent á örfá meginatriði, sem þessar rann- sóknir hafa leitt í ljós, en vitaskuld verður að fara fljótt yfir sögu. I fyrsta lagi hefir það sannast, að starfsemi hugans er ekki takmörk- uð við heilaskynjanirnar eingöngu. Hugurinn getur starfað óháð líf- færum líkamans. Það er nú meira en 60 ár siðan Sir William Barrett sýndi ifram á þetta í fyrirlestri, sem hann flutti í Brezka vísindafélaginu. Síðan hefir rannsóknin á fjarhrif- um leitt margt í ljós. Árið 1886 kom út i tveim bindum bók þeirra Myers og Gurneys um málið, og síðan hefir f jöldi bóka komið út um

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.