Lögberg - 14.10.1937, Blaðsíða 1
50. ÁRGANGUB
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 14. OKTÓÍBER, 1937
NUMER 41
Frá íslandi
Söngför
Gjaldeyrisnefnd hefir nýlega veitt
Karlakór Reykjavíkur leyfi fyrir er-
lendum gjaldeyfi til utanferÖar.
Mun j?að vera ætlun kórsins að
reyna aÖ fara utan í byrjun nóvem-
bermánaðar; og heimsækja Þýzka-
land, Austurríki og Tékkó-Slovakíu.
Mun kórinn syngja í helztu stór-
borgum eftir því sem ástæður leyfa.
Stefán Guðmundsson verður ein-
söngvari kórsins.
Þetta ferðalag kórsins ætti án efa
að geta orðið til þess að vekja at-
hygli á Islandi og auka álit okkar
út á við. Söngför, sem kórinn fór
til Norðurlanda, fyrir nokkrum ár-
um, var tvímælalaust okkur til mik-
ils ávinnings og er engin ástæða til
að gera sér minni vonir um þessa
ferð.—Nýja dagbl. ió. sept.
» » »
Lára sigld
Frú Lára Ágústsdóttir tók sér far
til Englands með Gullfossi nú um
helgina. Halldóra Sigurjónsson og
Kristján Kristjánsson húsgagna-
smiður fóru utan með henni. Eins
og áður hefir verið frá skýrt hér i
blaðinu hefir það verið ákveðið að
frú Lára haldi miðilsfundi á vegum
Alþjóðasálarrannsóknastofnunarinn-
ar í London, og verður fyrsti fund-
urinn 21. september. Á miðviku-
daginn kemur mun Mr. Nandor
Fodor flytja fyrirlestra um frú
Láru. Ýms ensk blöð skrifa mikið
um hana um þessar mundir. — Nýja
dagbl. 14. sept.
» » *
Ferðafélagið byggir |
sœluhús á Kerlingarfjö llum
Ferðafélag íslands bygði sitt
fyrsta sæluhús í Hvítárnesi fyrir
nokkrum árum. f sumar hafa fleiri
menn gist þar en nokkru sinni fyr
og nú nýlega höfðu um 900 manns
skrifað sig sem gesti í gestabók
sæluhússins.
Sæluhúsið, sem Ferðafélagið eign-
aðist á Snæfellsjökli fauk í aftaka-
veðri sem kunnugt er.
Á þessu sumri hafði félagið á-
kvarðað að koma um tveim nýjum
sæluhúsum í óbygðum, öðru á
Hveravöllum, en hinu í Kerlingar-
fjöllum. Þetta hefir þó dregist
nokkuð vegna hins slæma tíðarfars,
en samt er sælúhúsið í Kerlingar-
fjöllum nú orðið fokhelt. Því hefir
verið valinn staður í Kerlingárf jöll-
um norðvestanverðum í svonefndu
Árskarði. í því verða rúm fyrir
16 manns og gólfrúm fyrir nokkrar
flatsængur i viðbót og geta því tutt-
ugu manns átt þar sæmilega gist-
ingu í einu. Bæjarsjóður Reykja-
víkur hefir styrkt þessa sæluhúss-
byggingu nokkuð og sama hafa ein-
stakir velunnarar félagsins gert.
Ruddur bílvegur er að Jökulkvísl,
en þaðan er nokkur spölur að sælu-
húsinu. Liggur þessi vegur út af
Hveravallaveginum ofan við Innri-
Skúta, yfir Blágnýpukvísl og upp
með Jökulkvísþ þar til kemur móts
við sæluhúsið. Jökulkvísl fellur þar
í þrengslum og er mjög mjó. Þar
er verið að byggja yfir hana ódýra
brú úr efnisleifum frá Sogsbrúnni
hjá Þrastalundi. Efni til sæluhúss-
ins var flutt á bílum að Jökulkvísl,
en þaðan á hestum.
Til sæluhússbyggingar á Hvera-
völlum voru fest kaup í einum verka.
mannabústaðnum við Sogið. Verður
hann tekinn niður og fluttur upp á
Hveravelli og reistur að nýju mjög
velli og reistur þar að nýju mjög
bráðlega, svo framarlega sem slæmt
veðurfar hamlar ekki framkvæmd-
um og vegurinn þangað upp eftir
spillist ekki til muna.—N. dagbl. 14.
sept.
HON. MITCHELL HEPBURN
Eins og getið er um á öðrum stað
hér í blaðinu, vann Mr. Hepburn
og Liberalflokkurinn glæsilegan
kosningasigur við fylkiskosningarn-
ar í Ontario, sem fram fóru þann
6. þ. m.
Hrakningar í óbygðum
Um alllanga hríð í sumar lágu sjö
Englendingar við norður hjá Snæ-
felli. Þrír þeirra voru háskóla-
kennarar, en fjórir stúdentar frá
Cambridge-háskóla, sem eru að
nerraa landafræði. Fengu þeir Þor.
berg bónda Þorleifsson að Hólum
í Hornafirði til þess að sækja sig
norður á öræfin. Lagði hann af
stað hinn 21. ágúst, ásamt tveim
mönnum öðrum, Jóni Brunnan og
Sigfinni Pálssyni, til að sækja út-
lendingana. Höfðu þeir 22 hesta
og ráðgerðu að vera sex daga í ferð-
inni. Þó varð reyndin sú, að þeir
komu ekki aftur heim að Hólum
fyr en að átta dögum liðnum að
kvöldi laugardags 28. ágúst.
Ferðalagið gekk alt vel á norður-
leið og komust þeir Þorbergur inn
að Snæfelli á þremur dögum. Var
lagt þaðan upp heim á leið með tólf
hesta undir klyfjum. Höfðu þeir
upphaflega hugsað sér að fara Víði-
dalsveg til bygða, en hreptu hið
vers'ta veður, storm og úrhellisrign-
ingu, sem þeir einir þekkja, er verið
hafa uppi á háfjöllum þegar þannig
viðrar. Breyttu þeir því .ákvörðun
sinni og ætluðu að fara um Múla-
dal ofan til bygða i Álftafirði.
Myrkt var af þoku, en allir menn-
irnir ókunnugir á þessum slóðum og
viltust þeir því, en komu þó á sírt
fyrri spor eftir magar klukkustund-
ir. Svo var rigning mikil, að ekki
var þur þráður á mönnunum, þótt
allir væru búnir olíufatnaði, sumir
jafnvel tvennum. Náðu þeir um
síðir í gangnamannakofa, sem er þar
inn til fjallanijia, og höfðust þar við
yfir nóttina. En svo var þröngt, að
þeir komust tæpast fyrir þar inni all-
ir í einu, þar eð kofinn er aðeins
ætlaður flimm, en þeir voru tíu.
Daginn eftir var enn stormur og
rigning.
Við Jökulsá lentu ferðamennirnir
í sjálfheldu. Urðu* þeir að taka
klyf jarnar af hestunum og bera þær
langan veg, um 2 km., yfir kletta-
klungur og móbergsfiúðir, sem með
öllu voru ófærar hestum. Á einum
stað var klettahaft svo örðugt yfir-
ferðar, að mennirnir áttu fult í fangi
með að komast yfir það, þótt lausir
væru. Bar Sigfinnur einn klyf jarn-
ar af öllum tólf hestunum yfir haft-
ið. Sigfinnur þessi er fullhugi mik-
ill og vanur ferðum á jöklum og ör-
æfum og hefir meðal annars verið í
slikum ferðurn á Vatnajökli með
Sigurði Þórarinssyni.
Hestana sundhröktu þeir yfir ána,
alla nema þrjá, sem þeir ekki treystu
og urðu því að skilja eftir. Einn
hestanna var mjög hætt kominn í
ánni. Valt hann eins og kefli í
strengnum, en náði þó landi áður en
það var um seinan.
Sjálfir hugðust mennirnir að fara
á kláfferju yfir Jökulsá. Er henni
komið fyrir þar sem áin fellur í
þröng milli kletta inst í svonefndum
Víðibrekkum. Kláfurinn er mjög
gamall og af sér genginn og stendur
fyir dyrum að smíða nýjan. Þegar
að ferjustaðnum kom, var kláfurinn
hinum megin árinnar og ekki hægt
að draga hann yfir nema þeim megin
frá. Var einskis annars úrkosta en
að einn handlangaði sig .á strengj-
unum yfir gljúfrið, og varð Sigfinn-
ur til þess. — Komust þeir síðan
allir klakklaust yfir.
Til bygða að Þórisdal í Lóni náðu
þeir eftir miðnætti á föstudagskvöld-
ið. Úr síðasta áfangastað í óbygð-
um lögðu þeir af stað kl. 3 nóttina
áður og voru því orðnir ærið þreytt-
ir og hraktir eftir langan og erfið-
an dag. Nutu þeir þar að sjálf-
sögðu beztu aðhlynningar. Heima-
fólkið í Þórisdal reis óðara úr rúm-
um sínum og háttuðu aðkomumenn-
irnir ofan í þau í staðinn.
Daginn eftir komust þeir heim að
Hólum og voru þá átta dagar liðn-
ir frá því að þeir Þorbergur lögðu
af stað.
í simtali, sem Nýja dagblaðið átti
við Þorberg i Hólum í gær, rómaði
hann mjög dugnað og þrautseigju
Englendinganna og hversu vel þeir
báru sig, þrátt fyrir állá þessa vos-
búð í marga daga.—N. dagbl. 17.
sept.
* * *
Séra Jakob Lárusson
Sérajakob Ó. Lárusson fyrv.
prestur að Holti undir Eyjafjöllum
andaðist í fyrrinótt. Banamein hans
var magablæðing. Séra Jakob var á
sínum tíma einn af brautryðjendum
ungmennafélagshreyfingarinnar hér
á landi, enda hinn glæsilegasti at-
gervismaður á margan hátt. En
heilsubrestur hreif hann frá störfum
á bezta aldri.—N. dagbl. 18. sept.
* ♦ *
Setning Háskólans
Setning Háskóla íslands fór fram
í neðrideildarsal Alþingis kl. 11 f. h.
í gær.
Hafa um 30 nýir stúdentar þegar
innritast í háskólann að þessu sinni,
en vyn mun á fleirum. Skiftast ný.
liðarnir þannig milli deilda: 15 í
lagadeild, 13 í læknadeild, 2 í guð-
fræðideild og 1 í heimspekideild.
Þegar skólanum lauk síðatl. vor,
voru 12 nemendur í guðfræðdeild,
um 20 í heimpekideild, 58 í lækna-
deild og 60 í lagadeild. Má gera
ráð fyrir að langflestir þeirra verði
í háskólanum áfram, þó ekki séu allir
komnir enn til bæjarins.
Þá er von á nokkruin útlendingum
í heimspekideildina, aðallega þjóð-
verjum.
Má sennilega gera ráð fyrir að
180—190 stúdentar sæki nám í há-
skólanum næstk. vetur.—N. dagbl.
19. sept.
* » *
Vígsla atvinnudeildar
Háskólans
Atvinnudeild Háskólans var opn-
uð í gær kl. 3 að viðstöddum all-
mörgum boðsgestum.
Ræður fluttu við það tækifæri
próf. Alexander Jóhannesson, sem
er form. byggingarnefndar, Harald.
ur Guðmundsson kenslumálaráð-
herra og Trausti Ólafsson, forstöðu-
maður stofnunarinnar.
Þegar ræðuhöldum var lokið, var
húsið fyrst skoðað en síðan var
boðsgestum veittlcaffi.
Ýtarleg lýsing á húsinu birtist hér
í blaðinu í gær. En það er áreiðan-
lega ekki ofsögum sagt, að vel hafi
verið til þess vandað og reynt að-
hafa fyrirkomulagið sem haganleg-
ast. Lýsti Trausti Ólafsson því líka
yfir í ræðu sinni, að hann væri mjög
ánægður með bygginguna. Það er
húsameistari ríkisins, Guðjón Sam-
Nýjuála fregnir
Símað er frá Washington þann
13. þ. m., að Roosevelt forseti sé
staðráðinn i því, að reyna að miðla
málum milli Kina og Japana. Hygst
forseti að hef ja tilraunir í þessa átt
á fundi þeirra níu stórvelda, er und-
irskrifuðu Kellogg sáttmálann, og
haldinn verður á næstunni.
» * *
Af Spánarmálunumi er það helzt
að frétta, auk nokkurra sigurvinn-
inga af hálfu Francos, að Mussolini
hafi nýleg sent þangað 15,000 vígra
manna til stuðnings árásarhersveit-
unum.
* * »
Hertoginn af Windsos, ásamt her-
togafrúnni, er staddur um þessar
mundir í Þýzkalandi, til þess að
kynna sér bústaði og lífskjör verka-
manna. Þann 4. nóvember næst-
komandi sigla hertogahjónin frá
Bremen áleiðis til Bandaríkjanna í
sömu erindum. Er ráðgert að þau
dvelji þar í tveggja mánaða tíma.
» * »
Fregnir frá Beirut, Syria, hinn 13.
þ. m., láta þess getið að aðalræðis-
maður Bandarikjanna þar í landi,
Theodore Marriner, 45 ára að aldri,
hafi verið myrtur. Armeniumaður
einn; er ræðismaðurinn synjaði um
vegabréf, hefir verið sakaður um
morðið.
* * *
Af stríðinu milli Japana og Kín-
verja, er lítið það að frétta, er veru-
legum tíðindum sætir; má svo segja
að alt hjakki i sama farinu. Þrátt
fyrir síaukinn liðssöfnuð af hálfu
Japana, hefir þeim orðið lítið á-
gengt, og eru farnir að komast að
raun um að þeir eigi við raman reip
að draga, þar sem Kínverjum er að
mæta. Á orustusvæðinu við Shang-
hai hefir tiltölulega verið hTjótt
næstu undanfarna daga.
úelsson,- sem hefir gert teikningu
hússins, en byggingameistarar hafa
verið Ingibergur Þorkelsson og Þor-
kell Ingibergsson. Eftirlit með
bygginguhni annaðist Þorlákur Ó-
feigsson.
Með atvinnudeildinni eru full-
gerðar tvær byggingar af fimm, sem
eiga að standa á háskólalóðinni. Eiga
byggingarnar að mynda hálfhring
og verður háskólinn í miðju. — N.
dagbl. 19. sept.
• * * *
Þátttaka íslands
í heimssýningunni 1939
Ríkisstjórnin hélt í gær fund með
fulltrúum ýmsra stofnana, sem
sennilegt þótti að myndi hafa áhuga
fyrir þátttöku íslands í næstu heims-
sýningu, sem haldin verður í New
York 1939.
Á fundinum kom í ljós almennur
áhugi fyrir því að Island reyndi að
taka þátt í sýningunni. Mun ríkis-
stjórnin því skipa nefnd, sem verð-
ur falið að athuga nánar hvernig
þátttöku okkar verður bezt fyrir
komið og hversu mikið hún muni
kosta. Nefndarmennirnir munu
valdir í samráði við þær stofnanir,
sem líklegastar eru til að geta haft
hagsmuna að gæta í smbandi við
sýninguna.
Þegar niðurstöður nefndarinnar
liggja fyrir mun ríkisstjórnin taka á-
kvarðanir um það, hvort við tökum
þátt í sýningunni eða ekki.
Er það áreiðanlegt að það gæti
orðið mjög mikilsvert fyrir okkur
að geta tekið þátt í þessari sýningu.
Viðskifti íslands við Ameríkuþjóð-
irnar gætu áreiðanlega orðið miklu
meiri en þau eru nú og þátttaka okk-
ar í sýningunni myndi án efa verða
til þess að styrkja þau og skapa
möguleika fyrir aukningu þeirra.
—N. dagbl. 22. sept.
HON. T. A. CRERAR
Náttúrufriðinda ráðherra sam-
bandsstjórnarinnar, Hdn. T. A.
Crerar, flytur útvarpsræðu á fimtu-
dagskveldið þann 1,4. þ. m. klukkan
8. Ræðan heyrist frá báðum út-
varpsstöðvunum hér í borginni og er
þess að vænta, að þeir Islendingar,
sem viðtökutæki hafa, færi sér hana
í nyt. Mr. Crerar er athafnamaður
mikill í embættisfærslu sinni, og er
nýlega kominn úr langferð um
námuhéröð Norðvesturlandsins.
Hjálp í neyð
Öllum er kunnugt um neyðará-
stasdið í Saskatchewan-fylki sunn-
anverðu, vegna uppskerubrests ár
^eftir ár og einkum nú í haust. Sam.
tök eru hafin alment út um Mani-
toba til þess að hjálpa fólki þar
vestra. I lok september höfðu þeg-
ar send verið vestur 85 járnbrautar-
vagnar hlaðnir matvælum og klæðn-
aði frá Manitoba. Það er einungis
byrjun. Hér í Winnipeg hafa kirkj-
urnar tekið höndum saman um þetta
líknarverk. Fyrsti lúterski söfnuð-
ur er með i því. Á miðvikudags-
kvöld í þessari viku og fimtudags
og föstudagskvöld, kl. 7.30—9, svo
og á fimtudaginn kl. 3—6, verður
tekið á móti gjöfum frá almenningi
og þeim síðan komið á framfæri.
Miðnefnd fyrirtækisins í Winnipeg
sér um flutning vestur. Óskað er
aðallega eftir matvælum, einkum
allskonar garðávöxtum, nýjum eða
niðursoðnum, svo og niðursoðnum
aldinum og yfirleitt öllu matarkyns,
sem ekki er skemdum undirorpið, þó
það geymist.
íslendingar, bregðist vel og fljótt
við tilmælum þessum.
B. B. J.
SON OF LOWDEN
- SUED FOR DIVORCE
George M. Pullman Loædeú, son
of Illinois' war-time governor and
grandson of the founder of the Pull-
man Company, today was charged
with desertion in a divorce suit filed
in Superior Court for Mrs. Sigrun
Magnusson Lowden, 29, of 190 E.
Pearson st. .
The bill, prepared and filed by
Attorney Bénjamin B. Davis, set
forth that the bridegroom left his
bride on August 18, 1936, little more
than four months after their quiet
wedding on April 8, 1936.
Mrs. Lowden is a cousin of Mrs.
Jerome Pick. Before her marriage,
Mrs. Lowden was employed by the
Illinois Bell Telephone Company.
—Chicago Herald Examiner,
October 6th.
MEN’S CLUB, FIRST
LUTHERAN CHURCH
The next meeting of the Men's
Club will be held in the Church
Parlors on \Vednesday, Oct. 20th, at
6.30 p.m. Our guest speaker will be
“Doc” Guy, former radio entertainer
Úr borg og bygð
Mrs. Johnson, kona séra G. P.
Johnson, hér í borginni, lagði af stað
til íslands á miðvikudagskvöldið á-
samt-dóttur þeirra hjóna.
Gleraugna-sérfræðingurinn John
J. Arklie, verður staddur í Riverton
Hotel á fimtudaginn 21. október og
í Arborg Hotel á föstudaginn 22.
október.
The Young People’s Club of the
First Lutheran Church will hold
their regular meeting on Monday
evening, October i8th, at 8130^ in
the church parlors.
Deild No. 4 í kvenfélagi Fyrsta
lúterska safnaðar undir umsjón
Mrs. F. Dalman og Mrs. J. Blöndal,
heldur Silver Tea og Home Cook-
ing Sale að heimili Mrs. Blöndal,
909 Winnipeg Ave., á föstudaginn
15. október frá kl. 2.30 e. h. til kl.
6 e. h.
Dr. Björn B. Jónsson, prestur
Fyrsta lúterska safnaðar, flytur
erindi á fyrsta vetrarfundi Fróns, er
haldinn verður i Goodtemplarahús-
inu mánudaginn þann 25. þessa
mánaðar. Auk þess flytur Hjálmar
Gíslason frumsamin kvæði og Haf-
steinn Jónasson og Guðmundur
Stefánsson og Eddy Johnson syngja
tvísöngva og einsöngva.
Samkoma sú, sem haldin var að
tilhlutan Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í fundarsal kirkjunnar i til-
efni af þakkarhátíðinni, var ein hin
fjölsóttasta þeirrar tegundar, sem
nokkru sinni hefir haldin verið.
Skemtiskrá fjölbreytt og véitingar
hinar ríkmannlegustu. Naut hinn
mikli mannf jöldi þar ógleymanlegrar
ánægjustundar.
Herra Guðmundur Kristjánsson
tenórsöngvari og söngkennari í
Chicago, heldur concert í Steinway
Hall, 113 W. 57th Street i New
York á fimtudagskveldið þann 20.
þ. m. Syngur hann þar meðal ann-
ars lög eftir íslenzku tónskáldin Jón
Leifs, Pál ísólfsson og Tryggva
Björnson, sem er Vestur-íslending-
ur búsettur i New York. Fregnir
frá Chicago, sem birst hafa í merk-
um blöðum, láta þess glögglega get-
ið, að Guðmundur sé á hröðu fram-
faraskeiði sem söngmaður.
I ráði er að haldin verði afar f jöl-
breytt skemtisamkoma í Árborg þ.
22. þ. m., til arðs fyrir Sumarheimili
islenzkra barna, sem reist var í grend
við Hnausa, Man., i sumar sem leið.
Búist er við að prófessor Watson
Kirkconnell, hinn víðkunni Islands
og íslendingavinur, flytji þar erindi
um skáldskap Vestur-Islendinga,
auk þess sem margt annað til skemt-
unar og fróðleiks fer þar fram.
Samkoma þessi mælir með sér sjálf ;
tilgangur hennar er slíkur, að telja
má vist, að mikið fjölmenni sæki
hana.
and known to many as “Gentleman
Jim.” His topic will be “Mussolini,
the World’s Greatest Showman,”
and he will recount his adventures
in Italy and deséribe his personal
interview with the Italian Dictator.
It will be both humorous and inter-
esting, so don’t miss it. There are
some very important business mat-
ters that will be presented at this
meeting that warrant attention. Spe-
cial entertainment will be provided
by the “John Holden Players.” A
cordial invitation is extended to all
tnale members of the congregation to
attend.