Lögberg - 23.12.1937, Síða 10

Lögberg - 23.12.1937, Síða 10
50 Fimmtíu Ára Minningarblað Lögbergs Twttugasta og Annan Desember Nítján Hundruð Þrjátíu og Sjö Til kunningjanna í Norðrinu Eg hefi átSur sagt ykkur, landar mínir í Winnipegosis, svolítinn póst af daglátum mínum síÖan eg kom til Winnipeg, svo sem ferðalaginu hingað og svo Störf mín viS heimili mitt hér í höfuðborg Manitoba; þó gleymdi eg einu úr ferðasögu okkar, sem var jafnvel það athyglisverðasta sem bar fyrir augu okkar. Það voru vesalings árnar, sem sýndust vera að reyna að gera sitt ítrasta að renna að ósi út í hafið, þar sem öll tilvera þeirra og æfiferill týnist. Þær sýn- ast vera komnar að dauða úr þorsta öll þeirra æðabönd voru slitin í paifta á stórum stykkjum og lífsmagn þeirra svo þrotið, að það heyrðist hvorki frá þeim hljóð né stuna. Þær virtust miklu hrumari en átt- ræð ellin, sem var á ferð yfir þær. Og þá ætla eg nú að snúa huga mínum að ferðarölti mínu hérna um borgarstrætin. Eg hafði ékki verið hér lengi þegar eg heyrði þess getið, að hér á svonefndu Sargent Ave. væri veitinga'hús sem héti Wevel, og iaf því það fylgdi sögunni, að þar væri selt molakaffi á 5 cent bollinn, þá flaug mér í hug að komast eftir því svona rétt í laumi, hvort íslenzk- an okkar myndi koma þangað og fá sér kaffibolla þar, svona rétt ein- stöku sinnum. Svo var það einn góðan veðurdag, því við höfum haft þá svo marga þetta blessaða haust, sem nú verður bráðum strokið út af töflum tímans, að eg greiddi mitt höfuðhár og þvoði minn skjanna, fór i betri buxurnar mínar, vestið og teyjuna, setti mórauða hattinn á hausinn, leit i spegilinn og sá strax að það var þó töluvert mannmót að, FRO GUDRÚN SKAPTASON, forseti Jpns Sigurðssonar félagsins, J.O.D.E. mér. Datt mér þá i hug það sem íslenzk konan sagði að það væri þó sannarlegt mannsmót að honum Jóni syni sínum, þegar hann væri búinn að klæða sig í svörtu prjónabrókina sína, sem stæði honum svo vel á beinum. En hvað sem prjónabrók- um Jóns í Krossavík liður, þá lagði eg á stað í mitt ferðalag eins og eg var búinn, í áttina til kaffihússins Wevel. Eg var bráðókunnugur og áttaviltur í þokkabót; hafði ekkert annað að styðjast við en orðróm þann, að Wevel væri einhver versti andstæðingur Lögbergs. Svo eftir þessum leiðarvísir lagði eg á götuna þangað. Eg fór hægt og hikandi, eins og flestir ókunnugir menn gera sem ekki vita með vissu hvar þeim HÁTlÐAKVEÐJUR til vorra íslenzku viðskiftavina TUCK FUEL 708 SABGBNT AVE, Sími 30 644 Gleðileg Jól og Hamingjusamt Nýtt Ár ! Thomas Price & Co. Electrical Contractors Ranges - Radios - Refrigerators <x*d 278 FORT ST. — PHONE 96 609 J 7. INGIMUNDSON | Hátíðakveðjur Vér óshum öllum ohkar viðshiftavinum GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLS NÝÁRS Bergvinson Bros. Fuel Dealers 640 ALVERSTONE ST. SIMI 36131 er óhætt að stíga nður fótunum. Hér eru líka vegir á alla vega og flestir með einhverjar tálsnörur. Þó eru þessir bölvaðir götuveltingar hinu öllu verstir svo ekkert lifandi þorir að ganga í veg fyrir þá, nema með leyfi laganna; samt komst eg ó- skemdur í gegnum alla þá hringiðu. Eg var smám saman að gjóta aug- unum yfir strætið í góðri von um að sjá dreyrrauða andlitið á Lög- bergi þar einhversstaðar. Jú, þarna var það, óbreytt að mestu, og eins og eg sá það fyrir tiu árum, þegar eg sat steinþegjandi 3 daga á þjóð- ræknisþinginu, sem haldið var í sam- kómusal þeirra Islendinga, sem aldrei drekka neitt sterkara en vatn. En hvað var nú orðið af nafni blaðs- ins. Það stóð þegar eg sá það síðast, með logagyltum grunni tveim megin kolldyra. Eg hvesti nú sjón mína alt hvað eg gat; jú, þarna grilti í það eins og i þoku. Sólbrent og frostbitið eins og alt annað, sem eld- ist og tönn tímans nagar. Eg leit nú um öxl mína og það sem eg sá þar fyrst var nafn kaffihússins Wevel. Sá eg þá strax þó litlu mun- aði, að mér hafði verið sagt skakt til vegar, því Wevel er svo mikið í skáhorn frá Lögbergi, að það væri miklu réttara að kalla það í olnboga- skotsfæri þaðan en andstæðing, þó hvorugt svona í þeirra orða réttum skilningi, lýsi yfir miklu vinfengi. Næst vestan megin Wevel er knatt- stofa, stundum nefnd öðru nafni á góðri, gamalli íslenzku, einkum í bundnu máli. Eg gekk yfir að dyr- um knattstofunnar, því þar sá eg ös karlmanna streyma út og inn, svo húsið var í raun og veru alt af opið, gleypti menn og ældi þeim í sömu andránni. Eg þóttist nú eiga erindi þangað engu síður en hinir, því þar eru seldar allar sortir af tóbaki og eldspýtum. Eg var búinn að rannsaka alla mína vasa svo vel að eg vissi að mig skorti hvort- tveggja, þetta lífstíðar sælgæti, svo eg sætti lagi að ná þar lending með næstu flóðöldu, sem gengi iun í þennan skúta. Það fyrst, sem sá þar í fjörunni voru þeir drengimir og bræðurnir Jón og Samson. Eg sagði drengirnir, þó þeir séu það vaxnir úr grasi að þeir beri hálfa svíra og hausana yfir mig og digrir að því skapi. Þarna innan við f lóð- garðinn var gnótt manna; flestir þeirra voru víst íslendiingar sem vaka þar daglega yfir túni Braga, svo sú þjóðlega gróðrarstöð íslend- inga þar er sílgræn, sumar og vetur. Þangað þótti mér gaman að koma og hlusta á hagmælskuna spretta. í A. Benson - B. Sigurdson RAiriBOlD Beauti] Salon Get Acquainted Offer: — Free coupon to have your fortune told by an expert, with every permanent or Shampoo and Finger Wave. Permanents .$2.50 & up Shampoo & Finger Wave ............50c Telephone 22 188 309 BOYD BLDG. þessari andans gróðrarstöð erja mest og bezt fulltíða menn og gráhærðir öldungar. Þar hitti eg Lúðvík Kristjánsson, Hjört Brandsson, Pál Guðmundsson; allir Braga-menn og forsöngvar á þessu glaðværðar þingi í knattstofunni við hliðina á kaffihúsinu Wevel. En gömlu öld- ungarnir hærukallamir á áttræðis- og níræðisaldri lesa utanbókar úr hugans handbókum sínum, ýmsa pistla og ræður, sem Muninn hefir geymt fyrir þá í brjóstvösum sín- um í fjölmörg lönguliðin ár. Á þetta þing er fróðlegt að koma og þjóðlegt að mæta og kynnast göml- um kunningjum; þarna er sólskins- blettur til að setjast í og gleðja sig þar með góðum. Lítið hefi eg ferðast út yfir tak- mörk borgarinnar. Þó fór eg til Lundar og dvaldi þar hjá Núma syni mínum og skyldfólkinu í rúma viku, mér til mikillar ánægju. Svo skauzt eg einn sunnudag norður að Gimli, með þeim bræðr- unum Jóni og Sam Samson. Við- dvöl mín var þar stutt, ven skemti- leg eins langt og hún entistT Eg kom þar til gömlu kunningjanna okkar, Jóns Gíslasonar og konu hans og dóttur, þar var mér tekið opnum örmum; gömlu hjónin voru bæði vel hraust, glöð og ánægð. Jón er nú 87 ára gamall, enn unglegur og mjög þokkamannlegur að öllu leyti, og eins er kona hans, Friðrika, hún er eitthvað yngri en Jón. Margrét dóttir þeirra er falleg kona og slétt i viðmóti; til þessa fólks var skemtilegt að koma. Þaðan fór eg til Betel, gamal- mennaheimilisins; þar þóttist eg eiga marga samaldra, sem nú kemba þar hærur sínar í kyrð ellinnar. Enda sitja flestir á því heimili undir silf- urhærum, glaðir og ánægðir með kjör sín, eins og þau eru nú, við enda vertíðar sinnar. En muna þó fífil sinn og Hrafntinnu yngri ár- anna; þá var ekki hausthélan búin að setja fangamark sitt á þu. Eftir mínu skjóta áliti er þetta heimili hið prýðilegasta. Gamla fólkið, sem er aðal þorri heimilisins, alt svo glað- legt og frjálst og óbælt; enda var mér sagt það þar, að húsráðandi, jforstöðukonan, myndi eiga fáa sína iíka hvað alla mannkosti snerti. Þar fengum við samferðamenn mínir kaffi og alslags góðgæti með því. Minning min um þessa stuttu dvöl mína að Gimli lifir lengi með þökk til þeirra, sem eg kyntist þar. Og svo eiga þeir Samsons bræður inni- legar þakkir skilið frá mér fyrir það að gera sér það ómak að aka mér þangð og til baka aftur endurgjlds- laust. Síðan hefi eg verið svona hér um bil daglegur heimagangur á knatt- stofunni og kaffisöluhúsinu Wevel Hrafl úr dagbókinni, nóvember 1937 Vindstaða, norðan 20, austan 5, af ýmsurn áttum 5 sinnum; sól sást 21, í þessum mánuði. Snjóaði svo jörð varð grá 1. nóv.; rigndi svo- lítið þann 4; snjóaði svolítið þann 18. Mánuðurinn allur fyrirtaks góður hér í borgini. Nú er 13. desember og aðeins þumlungs þykkur snjór. En nú er mér ekki til setunnar boðið lengur: Viðbjóðurinn er kominn að kjallara- gatinu og glóðaraugað bjálkalaust, svo eg má til að fara að reka við í það. THOSE WHOM WE SERYE 1 IN THE FIELD OF COMMERCIAL PRINTING = AND PUBLISHING BECOME LASTING FRIENDS || BECAUSE- | OVER THIRTY YEARS EXPERIENCE IN ENGRAV- = ING, PRINTING and publishing is'part of - = THE SERVICE WE SELL WITH EVERY ORDER || WE DELIVER. ' 1 = COLUMBIA PRESS LIMITED | 695 SARGENT AVENUE - WINNIPEG - PHONE 86 327 = Finnbogi Hjálmarsson. FRO SIGRIDUR ÓLAFSSON, forseti Bandatags lúterskra kvenna SEALED TENDERS addressed to the un- dersigrned and endorsed "Tender for Public Building, St. Vital, Manitoba," wili be received until 12 o’clock noon, Tuesday, January 4, 1938, for the construction of a Public Building at St. Vital, Manitoba. Plans and specification can be seen and forms of tender obtained at the offices of the Chief Architect, Department of Pub- lic Works, Ottawa, the Resident Architect, Customs Building, Winnipeg, Manitoba, and at the Post Office, St. Vital, Manitoba. Tenders will not be considered unless made on the forms supplied by the Department and in accordance with the conditions set forth therein. Each tender must be accompanied by a certified cheque on a chartered bank in Can- ada, payable to the order of the Honourable the Minister of Public Works, equal to 10 per cent. of the amount of the tender, or Bearer Bonds of the Dominion of Canada or of the Canadian National Railway Com- pany and its constituent companies, uncondi- tionally guaranteed as to principal and in- terest by the Dcminion of Canada, or the aforementioned bonds and a certified cheque if required to make up an odd amount. Note—The Department, through the Chief Architect’s office, will supply blue prints and specification of the work on deposit of a sum of $10, in the form of a certified bank cheque payable to the order of the Minister of Public Works. The deposit will be re- leased on the return of the blue prints and specification within a month from the date of reception of tenders. If not returned within that period the deposit will be for- feited. By order, J. M. SOMERVILLE, Secretary. Department of Public Works, Ottawa, December 11, 1937. Jakob F. Bjarnason TRANSFER Annut greiClegra um alt, »em aO flutníngum lýtur, smáum sOa stðrum. Hvergi sanngjarnara vart. Helmill: 5Í1 SHERBURN ST. Slml <5 >0» FRO ANDREA JOHNSON, forseti Sameinuðu bœndakvenna samtakanna í Mqnitoba. <memmmmmmmmmm t V JÓLA OG NÝARSÓSKIR til allra vina vorra og- viðskiftavina ! Gerið yður gott af voru sérstaka tilboði Tveir Fatnaðir fyrir $1.25 AVENUE Dyers and Cleaners Sími 33 422 i .! i i i HAMINGJUÓSKIR Á 50 ÁRA AFMÆLI LÖGBERGS! og hátíðaóshir til vorra íslenzhu vina. Reynið' oss nú þegar, og sannfærist um vandaða vinnu og fljóta afgreiðslu. Höfum 20 ára reynslu í fatahreinsun. €>• i\. CLEANCC/ 604 ELLICE AVE. Sími 37 446 i<m<mmi<m<m<m<m<m<m<m<m<m9m<m<m<mi<m.<mmimivtii<xii<ft!i<>m.'>m<t GLEÐILEG JÓL OG NÝÁR ! Vo T„ WOLCH Dentist C. Physician and Surgeon 606 ELLICEAVE. PHONE 36 385 »iawitt»*tt»ia»<»»iifl»ttb>»i9»i»»<!ttMWftB»»tt»<fl»<fl»x»»<ð»*tt»^ GLEÐILEG JÖL ! FARSÆLT NÝTT ÁR ! Gerið heimilið vistlegra um Jólin! Stofutjöld, gluggaiblæjur, gólfteppi, teppi og dúkar, verða endurfegruð og eins og ný með vorri nýtízku aðferð. fCLT GALfy DYERS & CLEANERS, LTD. PHONE 37 061 Leysa af hendi shjóta og vcmdaða vinnu Arnaðaróskir í tilefni af 50 ára afmælinu! GLEHILEG JÓL og FARSÆLT NÝÁR ! North-Weál Commission Company Limited 103 GRAIN EXCHANGE, WINNIPEG P. ANDERSON, fram hvæmdarstjóri

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.