Lögberg - 20.01.1938, Page 1
51. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 20. JANÚAR, 1938
NÚMER 3
Fimtíu ára hátíðahald
MikiíS var um dýrSir í heimkynn-
um Goodtemplara 30. desember síð-
astliSinn. Var þá hátíðlegt haldiÖ
hálfrar aldar afmæli stúknanna. Af-
mæli Heklu var nokkru áÖur, en
Skuldar nokkru seinna. En eins og
góöar systur miÖluÖu þær málum,
mættust á miðri leiÖ og héldu afmæli
sitt sameiginlega.
Annars er vert að geta þess, aÖ
sá félagsskapur, sem hér er um að
ræöa á hreinni braut að baki sér en
flest önnur félög, sem fæÖst hafa og
starfað í vestur-íslenzku félagslífi.
I Goodtemplarareglunni hafa stað-
ið og starfað mætir irmenn og kær-
leiksrikar konur úr öllum flokkum
vor vor á meðal; um f jöldamörg ár
gengust stúkurnar fyrir því aÖ láta
lækna áfengissjúka menn; voru þeir
allmargir, sem þeirra lækninga nutu
og kostaði það ærið fé; en sumir
þeirra manna urðu eftir það nyt-
samir borgarar og leiðandi tnenn.
Þá má geta þess að stúkurnar hafa
um f jölda mörg ár haft sjúkrasjóði;
faefir þaðan verið miðlað fé til liðs
og liknar veiku fólki. Alls hafa
stúlkurnar útbýtt úr þeim sjóðum
yfir tíu þúsund dölum ($10,000)
Þá ber að minnast á hið þjóð-
ræknislega gildi stúlknanna. Auk
þess hversu þær hafa með funda-
höldum og ýmsilm ritum haldið við
íslenzkri tungu, gengust þær fyrir
þvi snemma á tímum að stofna hinn
svonefnda laugardagaskóla og héldu
honum uppi með góðum árangri og
allmikilli aðsókn um margra ára
skeið. Þegar Þjóðræknisfélagið
hófst, afhentu stúkurnar því þessa
starfsömi.
Oft hafa meðlimir stúknanna lagt
á sig vökur og vinnu til þess að afla
fjár 'í þessa sjóði. Þá hefir mikl-
um kröftum verið varið til þess að
byggja stóúhýsi til fundarhalda;
hefir sú bygging verið marg-endur-
bætt þangað til hún nú er orðin ein
glæsilegasti samkvæmissalurinn sem
þessi bær á.
Auðvitað hafa öll þessi störf -tferið
aukaatriði; aðalverk félagsins verið
bindindisstarfið. íslendingar hafa í
raun og sannleika í liðinni tíð verið
brautryðjendur og leiðtogar bind-
indismálsins hér í landi. Þetta er
hvorki skrum né skjall; það er við-
nrkent yfirleitt — með þakklæti og
Urðingu af siímum en vanþóknun og
óþökk af öðrum.
Sumir eru þeirrar skoðunar, að sá
tlrni sé liðinn, sem þörf hafi verið
a hindindisbaráttu vor á meðal; en
það er hinn mesti misskilningur. Á
meðan helgasta stund ársins — jóla-
hátíðin — er notuð til þess að safn-
ast saman á heimilum og öðrum
stöðum, til eiturdrykkju, sem svo
Sengur langt, að menn og konur —
Ja, og konur — eru flutt blá og
» ooug; marin og meðvitundarlaus á
sjukrahúg og vitlausraspitala — já,
a nieðan stjórn landsins veitir jóla-
& c ’inni 1 þann farveg með eitursölu,
er sannarlega ennþá vinnu þörf.
( ’g Goodtemplarar hafa ekki lagt
a' ar í bát. Þeir eru enn á verði, þótt
air séu. Margir liafa fallið í bar-
unni þessi fimmtíu ár — fallið
C. lc'Ór>. Aðrir hafa gefist upp
“f. ?gt mcrliis e«a fleygt >vi
« , horn, þar sem l!tis ,„r . þvi
svikiS og
gerst hðhlaupar.
Fn fylking trúrra starfsmanna
heldur ennþa ínerkinu á ]0fti og
t>erst eins trúlega og nokkru sinni
aður, hvort sem um er að ræða sókn
eða vörn.
Ekki ber því að neita að oft hafa
verið skiftar skoðanir og allharðar
deilur innbyrðis meðal Goodtempl-
ara sjálfra; hefir sitt sýnzt hverjum,
emlægni og ákafi ríkt á báðar hliðar
og lent í hörðum rimmum. En þess-
ar mnn deilur hafa eflt starfskraft-
Hamingjuóskir til Lögbergs!
í tilefni af 50 ára afmæli þess 14.jawúar 1938
Þann dag er það fimmtugt, hið fróðlega blað,
eg fagnandi kaupandi lukkuósk sendi;
með heiðri og röggsemd það ríður í hlað,
eg rétti því hlýjustu þakklætis hendi,
því Lögbergið unga sem Lögberg hið forna
var lýsandi bjargvætt, um dimmustu morgna.
Svo magnist þinn heiður og hamingja öll,
að hepnast þér megi oss saman að tengja,
þér sameinis't öfl þau og andríkis tröll,
sem íslenzka þjóðflokksins tilveru lengja,
og andinn, sem fegurstu myndirnar málar
af merkustu sérkennum íslenzkrar sálar.
Og stækki þinn sigur á stríðsvelli hér
og styrkur frá þjóðinni bregðist þér eigi,
því alþjóðarsameining ávöxt þann ber,
sem okkur fær bjargað á framtíðar vegi,
og vertu liér leiðtogi lýðsins vors unga,
svo lifi vor þjóð og hin íslenzka tunga.
V. J. Guttormsson,
Tucson, Arizona.
ana, aukið fundasóknir, skapað lif
og fjör.
En þann dag í dag er uppi all-
hörð deila, sem skiftir félagsfólkinu
í tvær fylkingar, ákveðnar og fylgi-
fastar. Er alls ekki um það að efast
að hér fer sem fyr, að vægðarlaust
verður barist til úrslita, en allir sátt-
ir eftir orrahríðina, hvernig sefm úr-
slitin verða. Því þótt menn greini
á um ýms sérstök atriði og bituryrði
hrökkvi af tnunnum manna meðan
á hríðinni stendur, þurfa andstæð-
ingar bindindismálsins hvcfrki að
hlæja né hlakka yfir því að mist
verði sjónar á aðalmarkinu eða
merkið lækkað — þar eru allir sam-
imála.
* # *
Þessi fimmtíu ára hátið Good-
templara fór prýðilega fram. Hafði
mörgum verið boðið, sem nú eru
utan félagsins; má þar til nefna frú
Halldóru Bardal, en maður hennar,
P. S. Bardal, hafði verið einn af
fyrstu embættismönnum félagsins;
frú Jóna Goodman, sem er ein af
stofnskrármeðlimum og frú Jón
Júlíus, en i húsi hennar og manns
hennar var haldinn fyrsti fundur fé-
lagsins. Var staðið upp til virðing-
ar við þessar konur.
Prófessor Richard Beck — einn
allra atkvæðamesti maður félagsins
stjórnaði hátíðinni; fórst honum það
vel og skörulega að vonum.
Að fundi settum flutti hann fag-
urt og kjarnyrt erindi; skal þvi ekki
frekar lýst, því það verður birt í ís-
lenzku blöðunum að verðleikum.
Þá 'flutti A. S. Bardal Stórtempl-
ar ávarp og heillaóskir til stúknanna
fyrir hönd stórstúkunnar; þar var á
ýimislegt drepið, sem vert væri um
að hugsa. Sú ræða verður að sjálf-
sögðu prentuð. Arinbjörn er og
hefir æfinlega verið með fádæmum
fórnfús og einlægur bindindismaður,
enda hef ir hann verið Iheiðraður með
æðsta sæti félagsins lengur en dæmi
séu til og skipar það enn. í
Stefán Einarsson, ritstjóri Heims-
kringlu, hinn einlægasti og tryggasti
starfsmaður um mörg ár, hafði ver-
ið valinn til þess að semja sögu
sútkunnar Heklu og gerði það vel og
rækilega. Sú ræða er þegar prent-
uð á öðru blaðinu og birtist sjálf-
sagt einnig i hinu. Þar er um marg-
an og merkan fróðleik að ræða.
Gunnlaugur kaupmaður Jóhanns-
son var herskyldaður til þess að
semja og segja sögu Skuldar, var
hann allra manna bezt til þess fall-
inn, því hann hefir bæði verið cterk-
asti klakaklárinn og fimasti skeið-
hesturinn í stúkunni á þessari fimm-
tíu ára ferð. Ræði hans þarfnast
engra athugasemda, hún birtist óef-
að í báðum blöðunum.
Stuttar ræður fluttu fimrn prestar
í þessari röð : Séra R. Marteinsson
fyrverandi stórstemplar, séra Carl
J. Olson, séra G. P. Jónsson, séra
Jóhann Bjarnason og Dr. B. B.
Jónsson. Allar lýstu ræðurnar því
hversu prestarnir unna bindindis-
málinu, enda heyra þeir allir til
goodtemplarastúkunum.
Hjálmar Gíslason, hinn trúi og
tryggi bindindisfrömuður, flutti
frumort kvæði vandað og vel samið
sem blöðin munu birta.
Tveir ungir piltar skemtu: annar
með einspili á pianó; var það Rich-
ard Beck, bróðursonur prófessorsins
og Jöhn Butler með upplestri; er
iiann íslenzkur í aðra ætt en enskur
í hina og talar íslenzku sem alís-
lenzkur væri. Sá, er þessar línur ritar
sagði fáein orð.
Fjöldi islenzkra söngva var sung-
inn á milli ræðanna og stjórnaði
þeim söng Jóhann Th. Beck.
Allar skemtanir fóru fram undir
borðum og voru veitingar hinar
myndarlegustu.
Fimmtíu ára ferill stúknanna er
svo merkilegur að um hann hefði átt
að skrifa rækilega, því hann er
sterkur og áberandi þáttur í félags-
lífi Vestur-íslendinga. Hefði þess-
um atburði verið verðugur sórni
sýndur, hefði verið gefið út minn-
ingarrit í sambandi við hann.
Sig. Júl. Jóhannesson.
. VINAÞEL.
til Óla Thorstcinsson og Þuru
Jónasson við giftingu þeirra,
19. desember 1937.
Yar á ferðum farinn veg
fyrir skömmu hér um daginn.
Frétt á húsi heyrð eg,
heim þá fór eg baka slaginn.
Þura Jónas ætlar að
Óla af giftast, heyrið það!
Það er Óli Thorsteinsson,
þessi strengja-fiðlu-smiður.
Af honum góðs eigum von,
i honum býr ró og friður.
Þarna sjáið sæmdarpar,
sólskins hjón og gleðinnar.
Þuríður með þýða lund,
þessi lífsins berðu merki.
Guð þig blessi, bliða sprund, .
bæði í huga, orði og verki.
Sjá, við munufti sakna þín,
sannfæring er þetta mín.
Við á Betel ykkur öll
óskum góðs af huga og munni.
Óánægju engin spjöll
sér eigi stað á lífsins grunni.
Drottinn yður leggi lið,
leiði, blessi, gefi frið.
Lifið sæl i lengd og bráð
laus við alt, sem mein vill baga;
hljótið allra ást og náð
alla yðar lífsins daga,—
mín er eina æðsta von,
óskar Lárus Árnason.
Lárus Árnason, Betel.
ÚR RBRÉFI
frá Miss Svövu J. Brand, dótt-
iiv þeirra Mr. og Mrs. Thor. J.
Brand.
Grettisgötu 71, Reykjavík,
18. desember 1937.
Mr. Cooper, Manager
Dominion Business
College, Winnipeg:
"Nú er langt síðan eg hefi skrif-
að, og þakka eg hér með hið góða
bréf yðar síðast.
í síðastliðnum júnímánuði vann
eg sem skrifari hjá Mr. Robert Veal,
sem þá var í Reykjavík, til að rann-
saka vissar misfellur i starfrækslu
Landsbanka íslands; var hann sér-
staklega ánægður með verk mitt, og
gaf mér ágæt meðmæli.
Um þessar mundir komst eg i
kynni við formann bankaráðsins,
sem jafnframt er forseti íslenzkra
samvinnufélaga, og bauð hann mér
atvinnu við vélritun á skrifstofum
þessarar stofnunar, sem er langsam-
lega umfangsnnesta viðskiftastofn-
unin á Islandi.
I sumar sem leið ferðaðist eg
nokkuð um heima, og sá flesta af
fegurstu sögustöðum sunnanlands,
en næst tekst eg ferð á hendur til
þess að heimsækja frændfólk mitt
austan- og norðanlands.
Af Free Press og íslenzku viku-
blöðunum, fylgist eg með þvi, sem
er að gerast i Winnipeg. Það fékk
mér mikils fagnaðar, hve nemendur
Dominion Busness College sköruðu
fram úr öðrum í vélritunarsamkepn-
inni á Torontosýningunni í fyrra.
Sem ein úr hópi þeirra, sem útskrif-
ast hafa af “Dominion,” fagna eg
yfir þessu og finst sem eg sé óbein-
linis bluttakandi í heiðrinum.
Með hugheilum árnaðaróskum til
yðar og allra við Dominion Business
College..
Yðar með virðingu,
Svava J. Brand.
UPP TIL FJALLA
lieitir ljóðabók, nýlega prentuð og
gefin út af ísfoldarprentsmiðju
h. f. Höfundur hennar er Sigurður
Jónsson, bóndi að Arnarvatni i Mý-
vatnssveit, sem fyrir löngu síðan er
þjóðkunnur. í nær mannsaldur er
þjóðin búin að syngja “Blessuð sértu
sveitin mín,” — þetta dásamlega
fallega kvæði, sem þrungið er af
hrifningu og fögnuði sonar einnar
fegurstu og einkennilegustu sveitar-
innar hér á íslandi. Líklega á eng-
in önnur sveit hér á landi slíkan
lofsöng; þessvegna taka hann svo
margir sér í munn, þegar þeir vilja
minnast sveitarinnar með ástúð,
hvar á landinu sem er.
En þetta er fyrsta ljóðabókin, sem
kemur út eftir höfundinn. í henni
eru um 80 kvæði. — Hvað halda
menn, að hún kosti? Aðeins kr. 3.50
í laglegu bandi! Óvanalega lágt verð,
eftir því, sem nú gerist. Líklegt er
a. m. k. að allir kunningjar og vinir
Sigurðar á Arnarvatni fái sér hana
—ef þeir ná henni áður en hún selzt
upp — og liklega flestir, sem hafa
mætur á hinnum ódauðlega “þjóð-
söng bygðanna.” En hversu margir
eru þeir íslendingar, sem kvæðið
“Sveitin mín” er ekki “kært og
hjartabundið”? — Fleiri kvæði eru
falleg :í þessari bók. Eitt þeirra er
“Húsmóðirin,” sem er kveðið af svo
imiklum skilningi og samúð tneð hús-
mæðrunum, að eg vildi leggja til, að
það yrði lesið upp viða á samkom-
um, í stað all-margra af þeint ræð-
um, sem þar eru fluttar fyrir minni
kvenna.—V. G.
—Dvöl.
The Young Peoþles’ Society of
the First Lutheran öturch has made
arrangements for a Toboggan Party
to be Iheld on Monday, January 24th
at River Park. This is an excellent
opportunity for new members to be-
cotne acquainted. Members and
friends are asked to meet in the
church parlors at 8.15 p.m. Remern-
ber the date! Monday, January 24th.
Mr. Páll Stefánsson frá Árborg
kom til borgarinnar á föstudaginn
var, og dvaldi hér fram yfir helgina.
Mr. Guðmundur Sigurðsson ak-
týgjasmiður frá Ashern, dvelur í
borginni þessa dagana.
Mr. Th. Stone, framkvætndar-
stjóri við bíladeild T. Eatons félags-
ins hér í borginni, lagði af stað suð-
ur til Californíu á mánudaginn var
ásamt frú sinni. Gerðu þau hjón
ráð fyrir að verða að heiman um
þriggja vikna tíma.
Mr. Tryggvi Ingjaldsson sveitar-
ráðsmaður frá Árborg, kom til borg-
arinnar á mánudaginn til þess að
leita sér lækninga.
Miss Margrét Björnson, B.A.,
lagði af stað á mánudaginn var aust-
ur til Torontoborgar, en þaðan ætl-
aði hún svo suður til Hartford í
Connecticutríki, í ihieimsókn til syst-
ur sinnar og móðursystur.
The annual general meeting of the
Young Icelanders will be held in the
Jón Bjarnason Academy, Feb. 2ist,
at 8.00 p.m. All members are re
quest to attend.
íslenzka deildin af Manitoba
Social Credit Leagu* (Sargent
Group No. I) heldur fund að heirn-
ili Hjálunars Gíslasonar, 733 McGee
St. fimtudagskveldið 20. janúar, kl.
8 e. m. Óskað er eftir að allir með-
limir og aðrir þeir, sem málefninu
eru hlyntir, sæki fundinn. Miss
Salome Halldórson flytur stutt
erindi.
Dr. P. H. T. Thorlaksson dvelur
um þessar mundir suður í Californíu
ásamt frú sinni.
Miss Kristín Skúlason, kenslu-
kona frá Geysir, Man., var nýlega
skorin upp við innvortis meinsemd á
Almenna sjúkrahúsinu hér i borg-
inni. Er hún nú á góðum batavegi,
að því blaðinu hefir verið skýrt frá.
FRJALSLYNDI FLOKKUR-
INN VINNUR STÓRSIGUR
rifí auhakosningu til santbands-
þings í Montreal
Síðastliðinn mánudag fóru fram
aukakosning til sambandsþingsins i
St. Henri kjördæminu í Montreal.
Þrír fratnbjóðendur voru í kjöri,
T. A. Bonnier, bæjarfulltrúi, af hálfu
frjálslynda flokksins, Camillien
Houde, fyrrum borgarstjóri í Mon-
treal, og um eitt skeið leiðtogi ihalds
flokksins í Quebecfylki, studdur af
Fasistafylkingu Duplessis forsætis-
ráðgjafa, auk utanflokka frambjóð
enda, er þó taldi sig hlyntan núver-
andi sambandsstjórn. Úrslit urðu
þau, að Mr. Bonnier vann kosning-
una með nokkuð á fimta þúsund at-
kvæða umfram Mr. Houde. Utan-
flokka maðurinn fékk ekki nema ör.
fá atkvæði.
Mr. Peter Anderson, kornkaup-
maður, lagði af stað suður til Florida
á mánudaginn var, ásamt frú sinni
og tveim dætrum.
Mr. Einar Eyford frá Lundar,
dvelur í borginni um þessar mundir.
Miss Helga Johnson frá Steep
Rock, dvelur í borginni þessa dag-
ana.
Kvenfélag Fyrsta lúterska safnað-
ar, heldur fund í samkomusal kirkj-
unnar á fimtudaginn þann 20. þ. m.
kl. 3 síðdegis. Þess er vænst að
félagskonur mæti stundvíslega.
Mr. Gísli Sigmundsson verzlunar-
stjóri að Hnausa, Man., kom til
borgarinnar í vikunni sem leið í
sveitanmálaerindum.
Mr. B. J. Lifman, oddviti Bifröst
sveitar, var staddur í borginni í fyrri
viku í erindagerðum fyrir sveitina.
Guðsþjónustur og samkomur
með myndum
Sunnudaginn 23. janúar prédikar
séra Guðm. P. Johnson að Langruth
kl. 2 e. h. og kl. 7 e. Ih. Ensk guðs-
qónusta með skýringum á 90 ljóm-
andi fræðandi, ritningarlegum
skuggamyndum, sem fjalla aðallega
um kenningu Jesú Krists ásamt ýms-
um kraftaverkum er Drottinn gjörði.
Einnig verða sýndar nokkrar fræð-
andi niyndir bæði af íslandi og Nor-
egi eitthvert vikukvöldið, og verður
það nánara auglýst þar á staðnum.
Fimtudaginn 27. janúar verður
skemtisamkoma í norsku lútersku
kirkjunni á horninu, Victor St. og
Wiellington Ave., kl. 8 e. h. Þar sýn-
ir séra Guðmundur Johnson 47 ís-
landsmyndir ásamt fræðandi skýr-
ingum, einnig 61 mynd af Noregi,
og fleiri skemtimyndir.
Inngangur ókeypis. Samskota
leitað. Allir velkomnir.
ATTENTION ALL JUNIOR
LADIES’ AID MEMBERS !
Please come one and all to your
Birthday Party meeting next Tues-
day, January 25th, in the Church
Parlors, at 3 o’clock.
SILVER TEA
Silver Tea og sala á heimatilbún-
um mat, verður haldin í salnum á
7. gólfi i T. Eaton búðinni, mánu-
daginti 24. janúar, frá kl. 2.30 til
5.30 e. h., undir umsjón stórstúku
Manitoba og stúknanna Heklu,
Skuldar og Britannia, til arðs fyrir
útbreiðslusjóð Stórstúkunnar. Hinn
velþekti gestur frá Islandi, fröken
Halldóra Bjarnadóttir, verður þar i
þjóðbúningi og flytjur kveðju frá
íslandi. Einnig verður Mrs. Á.
Blöndal í íslenzkum búningi. Að
taka á móti gestum verða Mrs. A. S.
Bardal, Mrs. B. J. Brandson, Mrs.
W. A. Cooper. — “Ho>me Cooking”
Mrs. G. Johannson, Mrs. S. Odd-
leifsson. Umsjón með kaffiborð-
um hafa Mrs. J. B. Skaftason, Mrs.
J. T. Beck, Mrs. J. Magnússon,
Mrs. J. Jónatansson, Miss S. Eydal,
Mrs. S. I’aulson, Mrs. W. J. Battley,
Mrs. E. Carr.
Að skenkja verða: Mrs. R. Mar-
teinsson, Mrs. B. B. Jónsson, Mrs.
A. Blondal, Mrs. S. Gislason, Mrs.
Paul Bardal, Mrs. O. Stephensen,
Mrs. G. Breckman, Mrs. Ph. Pét-
ursson, Mrs. Á. P. Jólhannson, Mrs.
H. Geddes, Mrs. J. A. Comba, Miss
M. Lambert.