Lögberg - 14.07.1938, Page 3

Lögberg - 14.07.1938, Page 3
LÖGrBERG, FIMTUDAGINN 14. JÚLt, 1938 3 Ingibjörg Jonasson 1901—1938 “Þeir sem guðirnir elska, deyja ungir,” segir fortit spakmæli. Og þau orð flugu mér í hug, þegar eg stóð vi^ líkbörur Ingibjargar Jónas- son fyrir stuttu t síðan. Veikindi hennar og dauða bar svo óvænt a'ð höndum, að vinir hennar eiga örðugt með að trúa því, að hún sé horfin úr samferðahópnum. Og sízt grun- aði mig það, er eg í fyrra ritaði nokþur orð um glæsilegan náms- feril hennar, að það yrði hlutskifti mitt innan árs, að mæla eftir hana látna. En höllum fæti stendur vor jarð- neska tilvera; í veröld hennar ger- ast veðrabrigðin með skjótum hætti, eigi síður en á öðrum sviðum efnis- heimsins. Morgunn lífsins rennur upp heiður og fagur, svo að hvergi sér skýhnoðra á lofti; en áður en komið er að hádegi, er himininn orðinn jnmgbrýnn og þykkskýjaður; sólin sokkin djúpt í haf skýbólstr- anna. Eðlilega hvarflar manni slík samlíking fyrir hugarsjónir, þegar maður stendur andspænis þeirri tíðu staðreynd, að köld hönd dauðans sker á lífsþráð efnisfólks á blóma- skeiði. Og á slíkum stundum væri næsta ömurlegt um að litast, ef ei- Iífðarvonin hvíslaði eigi syrgjendum huggunarorð í eyra; en í gegnum sjónauka hennar — og trúarinnar — blánar fyrir fegurri ströndum framhaldandi lífs hinumegin við Dauðahafið. ♦ ♦ Ingibjörg jónasson lézt mitt á þroskaskeiði lífsins; hún var komin yfir “örðugasta hjallann” á langri og erfiðri námsbraut, og fögur og athafnarik framtíð sýndist blasa við henni á sviði kenslu- og fræði- iðkana, sem hún ’hafði kosið sér að æfistarfi. Hún var fædd 18. maí 1901, að heimili fóreldra sinna Jó- hanns og Ingibjargar Jónasson, er lengi hafa búið í grend við Hallson, N. Dak.. Var henni eigi i ætt skot- ið með gáfnafar. þvi að hún átti til mæts og merks fólks að telja á báðar hliðar. Foreldrar hennar eru bæði Skagfirðingar að ætt og uppeldi; Jóhann Jónasson faðir hennar er sonur Jónasar Jóhannessonar að Ás- hildarholti í Skagafirði, en móðir hennar, Ingibjörg Þorleifsdóttir (d. 1935), var frá Borgargerði í Borgarsveit í Skagaf jarðarsýslu. Ingibjörg Jónasson ólst upp hjá foreldrum sínum í Hallson-bygðinni islenzku og gekk á barnaskóla þar í nágrenninu. En gagnfræðaskóla- nám sitt stundaði hún í gagnfræða- deild (Model High School) Land- búnaðarháskólans í Fargo, N. Dak. (The State Agricultural College), og Iauk prófi þaðan vorið 1923. Hélt hún siðan áfram nárni sínu við þá mentastofnun og lauk stúdentsprófi (Bachelor of Science) vorið 1927. Sóttist henni námið prýðilega, enda þótt hún yrði að leggja hart að sér við vinnu samhliða því. En það er gömul saga og algeng meðal íslenzks námsfólks vestur hér, eigi síður en heima á íslandi. Að loknu námi gerðist Ingibjörg kennari. Var hún skólastjóri í Pisek, N. Dak., árin 1927—1929, og skip- aði sömu stöðu í Telley, N. Dak., árin 1929—1935. Rækti hún kenslu- starfið nteð alúð og dugnaði, og átti almennum vinsældum að fagna En lærdómslöngun hennar og metnaður fundu eigi fullnægju í þeirri mentun, sem krafist var til stúdentsprófsins, — né heldur i gagnfræðaskóla kenslunni. Ingi- björg hafði sett sér hærra mark á mentabrautinni, og stefndi ótrauð að því, þó að Ijón fjárhagsörðug- leika stæðu þar á vegi, svo að marg- ur myndi hafa aftur horfið. Upp úr nýári 1936 hóf hún fram- haldsnám við rikisháskólann i Norð- ur Dakota (University of North Dakota) og lauk meistaraprófi i vís- indum (Master of Scinece in Edu- cation) vorið 1937. Ritgerð henn- ar til meistaraprófs var sálfræðilegs efnis, vel samin og um alt hin fræði- 'inannlegasta. Stundaði Ingibjörg nántið af miklu kappi og hlaut ágæt- ar einkunnir; einnig stóð hún fram- arlega í félagslífi þeirra stúdenta, sem framhaldsnám stúnda við há- skólann. Virtu þeir hana mikils og báru hið fylsta traust til hennar; sýndi það sig glögt í þvi, er þeir kusu hana á liðnu hausti (1937) forseta í félagsskap sínum (Gradu- ate Club). Skipaði hún þann sess með sæmd; var röggsöm en þó sam- vinnuþýð, og blómgaðist félagið vel undir hennar stjórn. Og samur var dugnaðurinn við námið eins og áður, enda hlaut hún ágætiseinkunnir i öllum námsgrein- urn við miðsvetrarprófin i vetur. Markmið hennar var, að ná doktors- prófi í sálfræði; og leikur enginn vafi á því, að henni hefði tekist það með prýði. En snemnna á seinna helmingi þessa skólaárs, ágerðist sjúkdómur sá, er varð banamein hennar. Var hún flutt á sjúkrahús í Grand Forks, og naut þar hinnar ágætustu læknishjálpar; en sú viðleitni reynd- ist árangiurslaus. IJézt Ingibjörg þar á sjúkrahúsinu 12. apríl s.l. Daginn eftir fór mjög hátíðleg minningarathöfn urn hana fram á einni af helztu útfararstofum Grand Forks borgar. Líkræðuna flutti Rev. P. H. Holm-Jensen, danskur prest- ur, sem framhaldsnám stundar við Norður Dakota háskólann, en pró- fessor Ridhard B:eck flutti kveðju- ræðu fyrir hönd háskólakennara og nántsfólks. Margt kennara og nem- enda, íslendinga í Grand Forks og annara vina, var viðstatt minningar- athöfnina. Ingibjörg var til grafar borin frá kirkju Hallsonsbygðar 16. apríl, að viðstöddu f jölmenni. Séra Haraldur Sigmar jarðsöng og flutti hugðnæm kveðjumál í kirkjunni, en jafnframt var þar lesið faguryrt ávarp frá ó- nefndum vini hinnar látnu. Auk Jóhanns föður hennar, sem nú er allmjög við aldur, lifa Ingi- björgu f jögur systkini hennar: einn bróðir, Ingvi, heima í föðurhúsum. og þrjár giftar systur:: Mrs. Einar Einarsson, Hallson og Mrs. Lewis Bernhöft og Mrs. Clarence Berger- son, Cavalier, N. Dak. Þykir þeim, eins og vonlegt er, sem stórt skarð hafi verið höggvið í ættargarðinn, því að Ingibjörg var hin athafnasamasta og umhyggju- sainasta á heimilinu, einkum síðan hóðir hennar dó. Eiga skyldmenni hennar á bak að sjá mikilli dugnað- ar- og gáfukonu þar sem IngibjÖrg var; einnig mun öllum, sem kyntust henni, bera saman um það, að hún var heilsteypt mjög að skapgerð, hreinlynd og diarflynd, svo að af bar. Námskona var hún ágæt, svo áhugasöm, að eg hefi engum há- skólanemanda kynst, sem sótti nám sitt af meira kappi, og gekk hún þó hreint ekki alt af heil til skógar. Hrutu henni samt aldrei æðruorð af vörum; slíkur var hreystihugur hennar fram á banastundina. En það er til márks um glæsilegan námsferil Ingibjargar, að Dr. J. V. Breitwieser, forseti kennaraskólans við rikisháskólann í Norður Dakota, og jafnframt sá maðurinn, sem um- sjón hefir með framháldsnámi þar við háskólann, sagði það í opinberri ræðu í vor, að Ingibjörg hefði, rétt áður en hún lagðist banalegurla, samið í einni af kenslugreinum hans einhverja allra beztu ritgerð, sent honum hefði í hendur borist. Fór hann mörgum fögrum orðurti um nám Ingibjargar við háskólann og ástundun hennar; og veit eg, að aðr- ir kennarar hennar hefðu eindregið tekið í sama strenginn. íslenzkt námsfólk hefir — sér- staklega sumt af því — getið sér afbragðsorð við Norður Dakota ! háskólann. Ingibjörg »Jónasson J fylgdi dyggilega í fótspor þeirra, sem þar hafa fremstir staðið; með þeim hætti jók hún á sæmd ættstofns síns hérlendis. Hún náði að visu eigi háum aldri; en árafjöldinn einn saman er eng- inn mælikvarði á gildi mannlífsins eða gagnsemd. Það skildu norrænir forfeður vorir manna bezt, eins og "Hávamál” vitna; og sömu kenn- inguna — að lífið skyldi reiknast í dáðum én eigi árum — klæddi Jónas Hallgrímsson í búning ódauðlegra orða, þegar hann kvað : “Hvað er langlífi? Lífsnautnin frjóva, alefling andans og athöfn þörf: margoft tvítugur meira hefir lifað svefnugum segg, er sjötugur hjarði.” Með þann sannleik í huga geta ættingjar og vinir Ingibjargar Jónasson horft yfir farinn-veg henn- ar með djúpri þakklaétiskend eigi síður en- saknaðar. Og jafnframt niá minnast orða fyrnefnds skálds, er hann sagði, spaklega sem oftar: " Vonar-stjarna vandamanna hvarf i dauðadj úp — en drottinn ræðnr.” Richard Beck. Lúsitanía kallar! Þykkur þokubakki við írlands- strendur teygði sig langt til hafs og huldi Lúsitaníu, þar sem hún skreið hljóðlega úr hafi inn á stríðssviðið við strendur írlands, hinn örlaga- þrungna vormorgun, 17. maí 1915. Tvöfaldur vörður háfði verið settur til að gæta að eða njósna um kaf- bátaferðir. Skýlistjöldum var svift af björgunarbátum, og þeir settir í stellingar albúnir, svo til þeirra mætti grípa með augnabliks fvrir- vara, ef á þyrfti að halda. Þokunni létti um hádegið og William Thomas Turner, kafteinn, skipaði að minka ganghraða skipsins úr 25 ofan í 18 mílur á klukkustund- inni, svo að komið yrði “að grynn- ingum framundan Liverpool tveim til þrem stundu'm fyrir háflæði.”— Þegar farið var frant hjá Fastnet kletti var hætt krákustígs siglingu, er áður hafði verið haldið uppi allan morguninn, til varúðar gegn kaf- báta-aðsókn. Land sást fyrir stafni, en engin varðskip til fylgdar voru sjáanleg. Þrem stundum síðar var Lúsitanía um tíu milur undan Gamla höfða i Kinsale á írlandi. Alt í einu heyrir Turner kafteinn annan stýrimann Hefford hrópa: “Sprengikúla!” Og vítisvélin hitti skipið í sömu andránni með heljar- afli og með “dauða undir dálki hverjum.” Hér var engin viðvörun gefin. Nú var kl. 2.10 í London, og eftir tutt- ugu mínútur var hið mikla Cunard- línuskip sokkið í saltan mar með 1,198 manns af farþegum sínum og áhöfn. Enn i dag liggur þessi stóri skipsskrokkur : 312 feta dýpi þarna fram undan Gamla höfða i Kinsole. Hin sanna saga um þessa síðustu ferð skipsins er enn mjög á huldu. en atdrif þess má telja sem eitt hið mesta stríðstíma slys, er sögur íara af. Enn kallar Lúsitanía um rannsókn leyndardómanna er hún geymir, og þegar sumar nú svífur á þessu ári um írlands strendur, verður björg- unarskipið “Orphir” lagst við akkerisfestar tiu mílur í hafi niður af Kinsale, og kynlegar stálklæddar verur sjást dýfa sér i djúpan mar af þiljum ofan, tengdar mannabygðttm ofar öldum með styrkum liftaugum, er lyfta þeim úr djúpinu er með þarf. í hinum afar traustu og rúm- góðu stálklæðum hverfa kafararnir í dökkar öldur Atlantshafsins og nenta staðar á hinum mikla skips- skrokk til rannsóknar og starfs. Fari alt eins og ætlað er, munu þeir ganga um þiljur skipsins og taka hreyfimyndir af þöglum stofum þess og göngum, er lýsa tnun því, hvernig þar var umhorfs hinn hræði- lega dag fyrir 23 árum, er Lúsitanía steyptist i kaf. Hinum undaverðu fyrirætlunum um glæfraför þessa í Lúsitaníu er lýst af æfintýra myndasmiðnum og kafaranum John D. Craig kafteini, i nýútkominni bók hans, “Danger Is My Business” — eða “Glæfrafarir er starfi minn.” — Craig hefir kaf- að og tekið myndir á sjávarbotni af fjölda skipsflaka, víðsvegar um heim, fyrir kvikmyndafélög í Holly- wood. Hann hefir verið fenginn til að stjórna björgunarverki við ýms af hinum 169 skipum, sdm kunnugt er um að sokkið hafi með fjársjóði innanborðs og enn liggja, eins og Lúsitania, á sjávarbotni víðsvegar með ströndum fram. Tritona félagið i Skotlandi, sem- santninga, hefir gert um að leita í 400 af skipum þeim, sem sökt var í stríðinu mikla, fann legustað Lúsi- taniu árið 1935. Er skipstjórinn á björgunarskipinu “Orphir” Henry B. Russ’ell, hafði með dýpismæli fundið skipið á áðurnefndu svæði framundan Gamla höfða þar sem það sökk, fór skips-kafarinn Jim Jarrat niður á 240 feta dýpi Þá hættu kaðalvindurnar á “Orphir” að urga, þvi kafarinn hafði náð fót- festu og fónaði úr djúpinu: “Nú stend eg á stálbol skipsins og sé rónaglahausana í byrðingi þess. Skipsskrokkurinn er þakinn þykkri slímhúð, en málmplöturnar undir henni eru lítið ryðgjaðar.” Vetrarveður með þoku og sjávar- róti gekk að um þær mundir, ,->vo ekki varð meira að gert við rar.n- sóknir á Lúsitaníu þá um haustið: og þar við bættist að mjög ísjárverð viðhorf milli Evrópuþjóðanna komu í ljós, sem leiddu það af sér, að ekkert varð frekar unnið við rann- sókn í Lúsitaníu um tveggja ára skeið, en björgunarskipið “Orphir” vann að störfum sínum á öðrum sviðum. Craig kafteinn hélt þó á- fram undirbúningi þeirrar fyrirætl- unar sinnar, að taka myndir af Lúsitaníu, þegar rannsóknir á skip- inu yrðu aftur hafnar. Tritonia-félagið vildi að þetta væri gert, en engum hafði áður tek- ist að lýsa upp hreyfimyndavél á sjávarbotni og á slíku dýpi. Það var ógerningur að halda tengslum og samskeytum þurrum, sem nauð- synlegt var, ef mynd skyldi taþa í sjó, og auk þess þoldi enginn ljós- kúpull (globe) hinn mikla þrýsting, er nam 150 punda þunga á hverjum ferþumlungs fleti hans. v En Craig fann ráðið. Hann lét verkfræðing sinn steypa lampa, er þola skyldi þrýsting vatns á 1500 feta dýpi. Átján,slíkir lampar voru gerðir og hafði ljós hvers þeirra 5000 vatta afl. Undir vanalegurri kringumstæðum kostar þó notkun þeirra $216 um klukkutímann. Craig og félögum hans hepnaðist einnig, eftir víðtækar og nákvæinar rannsóknir, að búa til sérstakan og áður óþektan kafarabúning, er bú- inn var út með helíum blönduðu efni, sem gerði köfurum unt að !it- ast um og starfa í smáklefum jat'rri sem og á stórum sviðum niðri i skip- inu. Þeir geta starfað þar niðri tvo tíma í einu og taka sér aðeins þrjár mótþrýstings-hvíldir á uppleið. Litil útvarpstæki, sent tengd eru við afl- gjafa á belti um mitti kafaranna, gera þeim mögulegt að senda skeyti til björgunarskipsins uppi á haffleti, og móttökutæki færa þeim fréttir þaðan. Við aðalstarfið að endurheimt verðmætis þess, er i skipinu kann að finnast, nota þó flestir kafararnir hinn svonfenda Triton-búning, sem állur er úr málmi, og Jarrat var i, er hann, sem áður er getið, vitjaði skipsins þegar lega þess hafði fund- ist árið 1935. “Málmmaður” þessi vigtar um 900 pund, en er svo hag- anlega gerður, að kafarinn ge’ur starfað í honum tíu klukkustundir á sjávarbotni, og svo rúmt er innan í risanum, að kafarinn getur athafn- að sig að vild, smokrað handleggj- unt og höndum úr stálermunum meðan hann fær sér að drekka og matast; er þessum þörfum hans komið fyrir á hringhyllu innan í “brjóstum” búningsins. Liðamót stálmannsins og hendur eru svo liðug og nákvæm, að kaf- arinn getur hæglega beygt sig niður og gripið upp smápening eða ann- að lítilræði er lægi þar i leðjunni á sjávarbotni. En þessi járnfnaður er auðvitað seinvirkari og seinni í snúningum vegna þyngslanna, held- ur en rninni og léttari búningar. Óefað er þessi sérkennilegi búningur hið mesta völundarsmíði, er saga djúpmiða kafaranna veit af að segja, og gerir mönnum unt að hnýsast inn í hina leyndardóms- fullu sögu um; það hvað Lúsitanía hefir að geyma, og mjög líklegt er að á þessu sumri fái menn um víða veröld að heyra, gegnum útvarpið, hvernig rannsóknar- og björgunar- starfinu er hagað, jafnframt þvi sem hreyfimyndavélar stimpla á spjöld sin athafnir manna þarna niðri í skipinu á 312 feta hyldýpi. Eftir að niður er komið, eiga k^afararanir fram undan sér afskap- lega erfiðleika, er yfir verður að stíga, að því er Craig kafteini seg- ist frá: "Fyrsta rannsóknarferð kafar- anna verður að líkindum 'hættuleg- ust, vegna ókunnugleika og afstöðu til verks þar niðri í djúpinu, þar sem enginn hefir litast um, nema Jarrat kafari, er hann árið 1935 stóð fáenar mínútur á járnbol skipsins, sem áður er getið. “Eftir að hafa litast um finnum vér að líkindum hæfilegan stað á þeirri hlið skipsins er upp snýr, þar sem miðstöð rannsóknar og björg- unarverksins yrði valin. Þangað myndi svo björgunarskipið “Orphir” hleypa niður gildum vírkaðli, og neðri endi hans festur við skipið þar í miðstöðinni, til leiðbeiningar þeint er að björgun vinna víðsvegar um hinn mikla skipsskrokk, sem er ná- lega 800 feta langur, og hætt er við að verkmenn gætu vilst í þeirri ó- bygð. “Þegar vinnustöðin er til reiðu, þá er að byrja á verkinu. Og það fyrsta er að telja glugga og loft á hlið skipsins niður á D-þiljur, en frá þeim stað teljum vér að hægast sé að komast að öryggis-klefum og skápum skipsins. Séu nú rónaglar í stálplötum skipsins enn eklci svo ryðgaðir, að rjúfa megi “hauginn” (Lúsitaníu) með járnkörlum og kafarahömrum, þá verðum vér að brjótast þar inn með dýnamíti, og hverfa upp á þiljur “Orphirs” með- an sprenging fer fram. Þegar sprenging er afstaðin, fara kafar- arnir aftur niður i djúpin með stórar stálklær, er grípa utan um byrðings-plötur þær, sem losnað hafa við sprenginguna. Og ef til vill heyrið þér þá gegnum útvarpið, sem kontið hefir verið fyrir i nám- (Framh. á bls. 7) Business and Professional Cards DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tímar 3-4.30 Heimili: 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. B. H.OLSON Phones: 3 5 076 906 047 Consultatton by Appointment Only Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba DR. ROBERT BLACK Sérfrœðingur I eyrna, augma, nef og hálssjúkdómum. 216-220 Medicai Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Viðtalstlmi — 11 til 1 og 2 til 6 Skrifstofuslmi — 22 2 61 Heimili — 401 991 Dr. P. H. T. Thorlakson 206 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 22 866 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200 / Dr. S. J. Johannesson ViCtalstíml 3-5 e. h. 21« SHERBURN ST. Sími 30 877 • • * DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPBG H. A. BERGMAN, K.C. Islenzkur lögfrœBinirur Skrifstofa: Roora 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 16 66 • PHONES 95 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. íslenzkur lögfrœOincrur 800 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 94668 LINDAL, BUHR & STEFÁNSSON Barrísters, Solicitors, Notaries, etc. W. J. Ijindal. K.C., A. Buhr Bjöm Stefánsson Telephone 97 621 Offices: 325 MAIN STREET Arlington Pharmacy Sérfræðingar í lyfjaforskriftum 796 SARGENT AVE. vlð Arlington SÍMI 35 550 Finni oss t sambandi við lyf, vindlinga, brjóstsykur o. fl. PRESCRIPTIONS FILLED CAREFULLY GOODMAN DRUGS Cor. ELLICE & SHERBROOK Phone 34 403 We Deliver J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalán og eldaábyrgð af öllu tægi. PHONE 94 221 A.S.BARDAL 348 SHERBROOKE ST. Selur likkistur og annast um út- farir Allur útbúnaður sá. bezti. Ennfremur selur hann allskonar mlnnisvarða og legstelna. Skrifstofu talstmi: 86 607 Helmllis talslmi: 501 56 2 ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPBG pasgilegur og rálegur bústaOur 1 miObiki borgarinnar. Herbergi Í2.00 og þar yflr; með baðklefa $3.00 og þar yflr. Agætar máltlðir 4 0c—60c Free Parking for Chiests I

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.