Lögberg - 14.07.1938, Page 8
LÖGrBERG, FIMTUDAGINN 14. JÚLI, 1938
Látið kassa á
ís nú þegar
(Jr borg og bygð
./''/■'/s/n/'>/N/'>/'V'n/n/s/n/v/s/v/'VN/s/n/n/s/s/n/s/'s/n/'n/'n/'V''/v/v/n/''/n/s/n/v/''/''/-'A'/''/'/ /n/n/n/Vn/n/n/n/n/n/n/n/Vn/vnWn/vn.1
Séra Haraldur Sigmar frá Moun-
tain, N. Dak., kom til borgarinnar
á föstudaginn var, til þess að sitja
gullbrúðkaup þeirra Gríms og
Sveinbjargar Laxdal. Brá prests-
fjölskyldan sér norður til Gimli og
dvaldi þar á þriðjudaginn, er hún
hélt suður aftur.
♦
Heldur aðaifund
Námafélagið Thor Gold Mining
Syndicate, hélt aðalfund sinn þann
30. júní hér í borginni á skrifstofu
sinni. Eftir að f járhagsskýrslur
voru lesnar upp og samþyktar, voru
eftirgreindir menn, samkvæmt upp-
ástungu frá Mr. F. Bjarnason, kosn-
ir í framkvæmdarstjórn:
Forseti—M. J. Thorarinson
Vara-forseti—S. Benjamínsson
Fjármálaritari—VVm. Charlton.
Fiindi stýrði Mr. K. R. Kennedy,
lögfræðingur.
♦ ♦
Mr. Laugi Thorvardson, Akra,
Inga Anderson og dóttir hennar og
Mrs. Ed. Simond og dóttir frá
Gavalier, N. Dak., voru stödd i
borginni á mánudaginn var.
♦ ♦
Mrs. Marlatt frá Edmonton dvel-
ur í borginni um þessar mundir á-
samt börnum sínum i gistivináttu
föður síns, hr. Árna Eggertson.
fasteignakaupmanns.
♦ ♦
Frú Jónina Kapff frá New York,
dóttir þeirra Mr. og Mrs. W. H.
Paulson, kom til borgarinnar í lok
fyrri viku, ásamt syni sínum, og
lagði af stað á mánudagskveldið
vestur til Saskatchewan í kynnisför
til frænda og vina.
♦ ♦
Mr. B. J. Lifman sveitaroddviti í
Bifröst, var staddur í borginni á
föstudaginn í vikunni sem leið.
♦ ♦
Sunnudaginn 24. júli verður hið
árlega skemtimót Víkursafnaðar að
Mountain haldið í listigarðinum við
Samkomuhús bæjarins og byrjar kl.
2 e. h. með stuttri guðsþjónustu
síðan fer fram prógram, söngur og
ræður. Ræðumenn verða séra N.
S. Thorláksson og Mr. K. Valdimar
Björnson, flytjá þeir báðir stuttar
ræður, og minnist hinn fyrnefndi
60 ára afmælis íslenzku bygðarinn-
ar í N. Dak. Hinn síðari velur efni
sjálfur. Góður Kórsöngur. Veit-
ingar seldar sanngjörnu verði á
staðnum. Aðgangur að garðinum
ekki seldur.
♦ ♦
Undir umsjón fulltrúa Gimli lút-
erska safnaðar, verður útiskemtun
(Garden Party) að heimili Mr. og
Mrs. C. P. Paulson, Gimli, þriðjud.
þ. 19. júlí, kl. 2.30 e. h. Að kvöld-
inu, um kl. 8, verður fjölbreytt
skemtiskrá, svo sem söngur, hljóð-
færasláttur, o. fl. Hér er um góða
dag- og kvöld-stund að ræða, fyrir
yngri og eldri. Nánar auglýst heima |
fyrir. j
♦ ♦
Séra K. K. Ólafson flytur is-
lenzka guðsþjónustu í Vancouver,
B.C., sunnudaginn 24. júlí kl. 3 e. h.
GIMLI THEATRE
Thurs. - Fri., July 14-15
8. p.m.
Leslie Howard, Joan Blondell
in
“ STAND-IN”
Thurs. — Country Store Nighl
No Matinee This Week
•
Thurs. - Fri., July 21-22
8. p.m.
William Boyd in
“HOPALONG BIDES
AGAIN’’
Matinee Thurs. at 3 p.m.
Prizes for Children
Guðsþjónustan verður haldin á
venjulegum stað, í dönsku kirkjunni
á horninu á 1 ptíh Ave. og Burns St.
Þeir sem sjá þetta messuboð eru
béðnir að segja öðrum frá þvi.
♦ ♦
ÞAKKARORD
Við hjónin, Sveinbjörg og Grím-
ur Laxdal leyfum okkur hérmeð að
bera fram alúðarfylstu þakkir öllum
þeim mörgu vinum, fjær og nær,
sem á 50 ára giftingar minning okk-
ar, heiðruðu okkur með nærveru
sinni og heillaóska skeytum, svo og
fyrir hinar velvöldu og rausnarlegu
gjafir sem okkur voru afhentar frá
börnum, barnabörnum og vinum,
sem lengi munu minna okkur á þessa
ánægjustund.
Sérstaklega viljum við þakka for-
seta, ræðumönnum og skáidunum
fyrir þeirra hlýju orð í okkar garð,
svo og þeim, sem1 með söng og hljóð-
færaslætti stuðluðu að því að gjöra
þessa fagnaðarstund ánægjulega og
ógleymanlega.
Síðast, en ekki sizt, þökkum við
börnutn okkar tengdadætrum og
tengdasonum fyrir að stofna til þess
fagnaðar og þeim hjónum Mr. og
Mrs. H. Anderson á 590 Banning
St., sem framar öllum hafa látið í té
tíma og Umhugsun til þess að sam-
sætið yrði sem veglegast, og sem nú
og fyr hafa með dæmafárri gestrisni
borið okkur á höndutn sér sem börn
okkar væru.
♦ ♦
Mr. og Mrs. Jóhannes Tryggvi
Sigurðsson í Víðisbygð, Man., urðu
fyrir þeirri sorg að missa yngstu
dóttur sína Friðrikku Shirley,
f jögra ára gamla stúlku, er andaðist
á Almenna sjúkrahúsinu í Winni-
peg þann 1. júli. Útför hennar fór
fram frá heimili þeirra þann 4. júlí,
að viðstöddum nánustu ástvinum,
frændaliði og nágrönnum. Sóknar-
prestur jarðsöng. ,
♦ ♦
Á lögmætum .safnaðarfundi, sem
haldinn var í lúterska söfnuðinum
í Selkirk þann 4. þ. m., var köllun
til prestsþjónustu send í einu hljóði
til séra Sigurðar Ólafssonar í Ár-
borg. Að eðlilegleikum mun enn
engin ákvörðun tekin af hans hálfu.
♦ ♦
Ungmenni fermd i Viðissöfnuði
Ljúffengt skozkt
Visky
Blandað og látið í flöskur
I Canada undir beinu
eftirliti eigendanna
ADAIR & COMPANY
GLASGOW
hjá
Gooderham & Wotts, Limited 1
25 oz. Flaskan $2.40
40 oz. íJaskan $3.75
Að viðbœttmn söluskatti
ef nokkur er
This advertisement ím not inaerted by the
Government Liquor Control Commisalon. The
CommisMÍon is not responsible for statements
made as to the quality of products ad-
vertlsed.
4. sunnudag eítir trinitatis, að sókn-
arpresti:
Jónína Grace Sigurdson
Kristín Rannveig Pétursson
Jónína Lovísa Stefánsson
Norma Jóhanna Wilson
Thorsteinn Alfred Hibbert
Jón Sigurdson.
♦ ♦
Ferðir Gray Goose Bus-anna
milli Gimli og Winnipeg á -íslend-
ingadaginn fyrsta ágúst, verða sem
hér segir:
Frá Winnipeg að morgni klukkan
8, 8.30, 9, 9.30.
Bus-in renna upp Ellice Ave. og
koma við á þessum þverstræta horn-
um, Sberbrook, Beverley, Arlington,
Ingersoll og Valour Road. Fara
norður Valour Road og niður
Sargent Ave. og standa við sömu
þverstræti sem fyr og fara síðast frá
Goodtemplarahúsinu við Sargent
Ave. Frá Gimli fer fyrsta bus-ið
klukkan'8 að kvöldi og eftir það á
hvaða tima sem er, ef fult bus fæst.
Síðustu bus-in fara klukkan 12 og
skila fólkinu á sömu staði aftur að
kvöldinu.
F“argjald fram og til baka verður
$1.25 fyrir fullorðna, en 50C fyrir
börn innan tólf ára.
Þeir, sem vilja geta fengið far-
miða keypta hjá Steindór Jakobs-
son, og svo um leið og þeir stíga upp
í bus-in.
♦ ♦
þakklæti
Við undirskrifuð, eiginmaður,
synir og systur Kristínar Sigríðar
P. Jónsson þökkum af hjarta öllum
þeirn mörgu vinum hennar sem á
margvíslegan hátt auðsýndu henni
hjálp og vinarþel í sjúkdómsraunum
hennar, og einnig heiðruðu útför
hennar með nærveru sinni og blóm-
um. ^
Þorstcinn Jónsson
Guðm_ Hafsteinn Jónsson
Baldur Jónsson
Steingr. C. J. Jónsson
Guðrún Pétursson.
♦ ♦
Mr. og Mrs. Jón StraumfjörÖ,
sem búið hafa lengi góðu búi í grend
við Lundar, og þar í bænum, hafa
nú selt eignir sínar þar, og eru farin
til Vancouver, B,.C. Sonur þeirra,
Júlíus, sem búsettur er í Vancouver,
kom hingað um miðja síðustu viku
ásamt frú sinni í bil til þess að
sækja foreldra sína. Þau Mr. og
Mrs. Jón Straumfjörð hafa aflað
sér fjölmenns vinabóps, og tekið
giftudrjúgan þátt í íslenzkum rnann-
félagsmálum í bygðarlagi sínu.
♦ ♦
Prófessor Björn B. Björnson frá
Minneapolis, Minn., kom til borgar-
innar á miðvikudaginn í fyrri viku
og dvaldi hér fram á föstudag.
♦ ' ♦
Mr. og Mrs. Gunnar Guðmunds-
son, Mrs. H. J. Guðmundsson og
sonur, og Mr. og Mrs. Gísli Bene-
diktsson frá Wynyard, Sask., komu
til borgarinnar til þess að sitja gull-
brúðkaup Mr. og Mrs. Grímur
Laxdal.
♦ ♦
Tvö stór og hlý herbergi til leigu
á sanngjörnu verði, — 591 Sher-
burn St. Sími 35 909.
Messuboð
Fyrsta Lúterska Kirkja
Engin morgunguðsþjónusta og
enginn sunnudagsskóli næsta sunnu-
dag. íslenzk messa kl. 7 að kveldi.
Séra Bjarni A. Bjarnason prédikar
♦ -♦
Guðsþjónustur í prestakalli séra
H. Sigmar sunnudaginn 17. júní:
f Fjallasöfnuði, ferming og altaris-
ganga kl. n f. h., Mountain kl. 2.30;
Hallson kl. 8 e. h.; ensk messa á
Hallson.
♦ ♦
Áætlaðar messur um næstu sunnu-
daga:
17. júli—
Geysirkirkju, kl. 11 árd.
Riverton, kl. 2 síðd.
Árborg, kl. 8 síðd.
24. júlí—
Árborg, kl, 11 árd.
Framnes, kl. 2 síðd.
llnausa, kl. 8.30 síðd.
Hvergi messað í prestakallinu
sunnudaginn 31. júlí.
S. Ólafsson.
♦ ♦
Vatnabygðir sd. 20. júli 1938:
Kl. 11 f. h., messa í Mozart
Kl. 2 e. h., messa í Wynyard.
Kl. 7.30 e. h., messa í Grandy.
♦ ♦
Séra Jóhann Bjarnason býst við
að verða allan júlímánuð í Langruth.
Fór hann þangað út i byrjun mán-
aðar. Hefir hann hóp af unglingum
til uppfræðslu, er hann mætir dag-
lega. Messar hann og á hverjum
sunnudegu, í kirkju Herðubreiðar-
safnaðar, kl. 2 e. h. — Er búist við
að ferming ungmenna fari fram
áður en séra Jóhann hverfur heim
til heimilis síns aftur. — Þeir er
bréfaviðskifti hafa við hann, gerðu
bezt að senda bréf sín beint til
Langruth, fram til loka þessa mán-
aðar.
Dánarfregn
Þ. 14. júní andaðist á Almenna
sjúkrahúsinu í Brandon Jón Jónsson
fæddur á íslandi 14. janúar 1859;
foreldrar hans voru Jón Brandson
og kona hans Guðrún Pétursson á
Svínavatni í Svínadal í Húnavatns-
sýslu. Mjög ungur fór Jón i fóst-
ur til Guðmundar og konu hans
Hallberu, sem lengi bjuggu í Hjalta-
bakkakoti í Torfalækjarhrepp. Þau
hjón voru honum góð eins og sínu
eigin barni; einn son áttu þau hjón,
sem Guðmundur hét, og sagði Jón
að það hefði gengið jafnt yfir þá
báða. Oft mintist Jón þeirra með
hlýjum hug.
Jón kom til þessa lands fyrir
nærri 51 ári; kom strax til Brandon
og hefir lifað hér síðan, mörg seinni
ár að 716 7th. Street. Hann var alla
tíma einhleypur maður, vann mikið
og vel meðan kraftar elyfðu; hann
var vandaður i alla staði og áreið-
anlegur til orða og verka.
Jón var jarðsunginn af hérlend-
um presti frá hérlendri kirkju, sem
hann tilheyrði að mestu leyti í seinni
ár. — íslenzku blöðin á Norður-
landi eru vinsamlega beðin að taka
upp þessa dánarfregn.
Kunningjakona hins látna manns.
♦ ♦
Þann 4. júni s.l., lézt á óðali dr.
C. H. Tlhordarson, Rock Island,
Wisconsin, John V. Goodman,
fæddur í Reykjavík 25. marz 1893.
Sextán ára að aldri fluttist hann til
Winnipeg, og lagði þar stund á mál-
araiðn. Til Edinburg, N. Dak.,
fluttist John heitinn 1911 og vann
þar alllengi að iðn sinni. En 1924
fór harín til Chicago og var þar
mestan tímann í þjónustu The
Thordarson Electric Company.
Kveðjuathöfn var haldin í Chicago,
en síðan var likið flutt til Gardar
og jarðsett i Gardar grafreit. Séra
Haraldur Sigmar jarðsöng. John
heitinn Goodman lætur eftir sig
fjölda vina i Chicago auk bróður
og systur í Reykjavík.—
♦ ♦
Þann 3. þ. m., lézt í Brandon,
Man. Sigurður Bjarnason, fæddur
við ísafjarðardjúp 3. apríl 1861.
Foreldri hans voru Bjarni Jónsson
1
THE 1938 EDITION OP THE TRUCKERS AM) SHIPPERS
GUIDE XOW RENAMED j
lllotor Freiqht Quide
IS NOW READY FOR DISTRIBUTION
Your copy can be obtained from our Office 1
«95 SAROENT AVENUE, WINNIPEG
or, we can forward it to you by mail upon receipt of the amount
shown on the enclosed statement. ]
I
I
j
The Motor Freiqht Quide
Is the most valuable and complete volume of information for
the use of Western Truckers and Shippers ever published
A Complete Alphabetical Classification Freight List is one ot
the chief features, there is also a carefully compiled Rate Table
for all the principal shipping centres of the west. An up-to-date
Directory of all Western Carriers with their addresses and
telephone numbers is included.
Truckers & Shippers cannot afford to be
without one of these books
Copies Can Be Obtained By Maiiing $1.00 to
THE COIiUMBIA l’RESS, DTD.
«95 SARGENT AVENUE, WINNIPEG
og Herdís Jónsdóttir; haAn fluttist
til Canada 1892 og dvaldi í Brandon
jafnan síðan; Sigurður lætur eftir
sig ekkju, Sigurbjörgu Guðmunds-
dóttur, ættaða úr Vindhælishreppi,
ásamt sex sonum, Hermann, Lon-
don, Ont.; Kjartan, Jónas, Martin
og Allan í Brandon; Carl til heim-
ilis í Bannerman; dætur hans eru:
Dora, Abernethy, Sask.; Helen og
Margaret í Brandon og Rúna, bú-
sett í Oakville, Man. Einn bróðir
Sigurður er á lífi, Jón, til heimilis
á ísafirði. Sigurður heitinn var
vænn maður og heillyndur, er afl-
aði sér fjölda trúrra vina.
♦ ♦
Föstudaginn 30. júní andaðist á
Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg
konan Kristín Sigríður Petrína
Johnson frá Oakview, Man. Hún
var fædd 26. jan., 1884 í Arnardal
við ísafjörð, og var því 54 ára er
hún lézt. Hún var gift Þorsteini
Jónssyni og var heimili þeirra ávalt
við Manitoba-vatn. Þau eignuðust
þrjá drengi, sem allir eru á lífi og
heita: Guðmundur Hafsteinn, Bald-
ur og Steingrímur Cornell Júlíus.
Hún skilur eftir eina systur, Mrs.
Guðrúnu Peterson, að Oak View;
og einn bróður, Bessa Peterson að
Gimli, Man.
Móður sína misti Sigríður ung,
en faðir hennar, Guðmundur Pét-
ursson, bjó við Grunnavatn og ann-
aðist Sigríður þar um stund yngri
systur sína Guðrúnu, en Bessi bróð-
ir hennar var tekinn í fóstur af
Biessa Tómassyni. Þær systurnar
voru einkar samrýmdar alla xfi;
komust báðar áfram til menta og
urðu kennarar. Um eitt skeið
stundaði Sigriður nám við Jóns
Bjarnasonar skóla og var nafn henn-
ar skráð á Arinbjarnar-bikarinn í
verðlaunaskyni. Lífsbarátta henn-
ar var frá upphafi til enda hin allra
virðingarverðasta. Með ágætum
hæfileikum og sterkum áhuga studdi
hún alt gott og kristilegt, sem henni
var unt, innan heimilis og utan. Síð-
ustu ár átti hún við allmikla heilsu-
bilun að stríða.
Hennar er sárt saknað af eigin-
rnanni sínum, systur og bróður, á-
samt fjölda vina. Hún var jarð-
sungin sunnudaginn 3. júlí, af séra
Rúnólfi Marteinssyni, að Silver
Bay, Man. Kveðjuathöfnin fór
fram í kirkju og grafreit safna^ar-
ins þar, íslenzka og lúterska. Á-
skipað var í kirkjúnni svo að hópur
fólks stóð.
♦ ♦
4. júlí lézt á sjúkraihiúsi í Grafton,
Halldór Einarsson frá Borgarfirði
i N. Múlasýslu, 77 ára að aldri
Hafði hann búið einn síns liðs i
Sandhæðabygðinni í N. Dak., um 15
ára skeið, en áður unnið á ýmsurn
stöðum í Ameríku. Giftist aldrei.
Atti enga ættingja á lífi, að því er
kunnugt var. Hann var jarðsung-
inn frá kirkju Vídalínssafnaðar 7
april af séra H. Sigmar.
Minniát BETEL
í
erfðaskrám yðar
The Watch Shop
Diamonds - Watches - Jewalry
Agrents for BULOVA Watchea
Marriage Licenses Issued
THORLAKSON & BALDWIN
Watchmakera A Jeiceller*
699 SARGENT AVE., WPG.
Þjóðraeknisfélagíslendinga
Forseti: DR. RÖGNV. PÉTURSSON,
45 Home Street.
Allir Islendingar I Ameríku ættu að
heyra til Pjððræknisfélaginu. Ársgjald
(þar með fylgir Tlmarit félagsins) $1.00,
er sendist fjármálaritara Guðm. Levy,
2 51 Furby Street, Winnipeg.
TU þess að tryggja yður
skjóta afgreiðslu
SkuluO þér ávalt kalla upp
SARQENT
TAXI
FRED BUCKLE, Manager
PHONE
34 555 - 34 557
SARGENT & AGNES
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast grelðiega um ait, sem a8
flutningum lýtur, smáura sða
stðrum. Hvergi sanngjarnara
verð.
HeimilL 591 SHERBURN ST.
Simi S5 >0»
ROLLER SKATING
Winnipeg Roller Rink
Every Evening, Wed., Sat.
Afternoon. Instructions Free
to Learners
LET US TEACH YOU
LANGSIDE AND PORTAGE
Phonc 30 838
Wolseley Hotel
186 HIGGINS AVE.
(Beint á mðti C.P.R. stöðinni)
SÍMI 91 079
Eina skandinaviska hátelið
i borginni
RICHAR LINDHOLM,
eigandi
KAUPIÐ AVALT
LUMBER
hjá
THE KMPIRE SASH & DOOR CO. LTD.
HENRY AVENUE and ARGYLE STREET
Winnipeg, Man. - Phone 95 551
I