Lögberg - 21.07.1938, Blaðsíða 1

Lögberg - 21.07.1938, Blaðsíða 1
PHONE 86 311 Seven Lines R«J" ío' ted ..,VA° vSV> C«T- ' cþ*&o* Vi«» For Better Dry Cleaning and Laundry 51. ÁRGANGUR WINNIPBG, MAN., FIMTUDAGINN 21. JÚLÍ, 1938 NÚMER 29 Tryggvi Ingjaldsson látinn Frá Islandi Snjór ofan að sjó á Siglufirði Ekkert veiðiveÖur er nú fyrir NorÖurlandi og ihefir snjóaS ofan að sjó á Siglufirði. Fáein skip hafa komið inn til Siglufjarðar frá þvi á laugardag með ofurlitinn slatta. Meðal þeitra var Brimir og ihafði hann fengið afla sinn austur við Langanes. Um miðjan dag í gær fór að snjóa á Siglufirði og hélt áfram að snjóa, þegar blaðið átti tal við Siglufjörð i morgun. Var orðið hvítt ofan að sjó á Siglufirði. —Alþ.bl. 27. júní. ♦♦♦ Vegur lagður upp á Þrídrang í Vestmannaeyjum Nýlega lögðu þrír menn úr Vest- mannaevjutn veg upp á Þridranga —en vegur þessi var lagður með þeim hætti, að mennimir klifu drangann og ráku járnflein ofan i hann — innan við bergbrúnina — og tengdu við hann járnfesti, sem liggur niður að rótum drangans. Mennirnir voru: Svavar Þórar- insson, Hjálmar Jónsson og Þor- steinn Sigurðsson. Til þess er ætlast, að viti verði reistur á drangann og hafa þeir Jó- hann Gunnar Ólafsson fyrverandi bæjarstjóri og Árni Þórarinsson, hafnsögumaður, fyrstir bent á nauðsyn þess. Það kom í ljós er upp var komið á drangann, að þar er nægilegt landrými fyrir vita, eða 17 sinnum 26 metrar. Uppi á dranganum er talsvert af baldursbrá og blóðrót en annars litill gróður. Dranginn er um 30 metrar á hæð. —Alþ.bl. 27. júní. ♦♦♦ Biskup biður um lausn frá embætti Jón biskup Helgason lýsti því yfir á fundi prestasitefnunnar ihér í bæn- um í fyrradag, að hann hefði ákveð- ið að biðja um lausn frá biskups- embættinu og mundi hann senda lausn'arbeiðni sína einhvern næstu daga. Dr. Jón Helgason ihefir gegnt biskupsembættinu í 22 ár. Biskup þakkaði prestum fyrir samstarfið og þær ágætu viðtökuf, sem hann hefði aMsstaðar fengið á ferðalögum sínum um prestaköll landsins. Þegar biskup hafði mælt þessi orð, filutti séra Bjarni Jónsson biskupi hlý kveðju- og þakkarorð. —Alþ.bl. 27. júní. ♦ ♦♦ Minnismerki Jóns Arasonar Sauðárkrókur 24. júní. Héraðsfundur Skagaf jarðarpró- fastsdæmis var haldinn á Sauðár- króki 14. júní síðastliðinn og sam:- þykti að kjósa nefnd manna til þess að hefja fjársöfnun til þess að reisa minnismerki um Jón Arason biskup á Hójum. Skal minnismerkið vera komið upp á 400 ára dánarafmæli Jóns Arasonar, þann 7. nóv. 1950 og standa að Hólum í Hijaltadal. —Vísir. ♦♦♦ 01 an ríkismálin sérstök stjórnardeild Stefán Þorvarðsson hefir verið skipaður skrifstofustjóri í utan- ríkismálaráðuneytinu, en hann hefir ' til þessa verið fulltrúi í sarna ráðu- neyti. Utanríkismálin hafa til þessa haft fremur slæman aðbúnað í stjórnar- > ráðinu. Má segja, að þau hafi eng- an samastað haft og enga boðlega skrifstofu. — Þeim hefir verið hol- að niður í smá-kompu, sem áður var biðherbergi. Utanríkismálin hafa heldur ekki til þessa verið sérstök deild í stjórn- arráðinu, á sama hátt og aðrar stjórnardeildir þar. Síðasta Alþingi gerði breyting á þessu. Það ákvað að stofna sér- staka stjórnarskrifstofu fyrir utan- ríkismálin og fær sú deild nú sinn fulltrúa. Stefán Þorvarðsson hefir nú verið skipaður fyrsti skrifstofu- stjórinn í okkar utanríkismálaráðu- neyti og fulltrúi þar er Magnús V. Magnússon cand. jur. Utanríkismáladeildin hefir aðset- ur í Arnarhvoli. —Morgunbl. 30. júní. ♦♦♦ Æskan hyllir Jónas Jónsson Á seinasta fundi stofnþings ungra Framsóknarmanna, bar Baldvin Tr. Stefánssion, Stakkahlið, N.-Múla- sýslu, fram svoihljóðandi tillögu: “1. þing sambands ungra Fram- sóknarmanna samþykkir að kjósa Jónas Jónsson, formann Framsókn- arflokksins, sem fyrsta heiðursfé- laga Sambands ungra Framsóknar- manna, í viðurkenningarskyni fyrir hans miklu og góðu störf í þágu al- þjóðar, og þá einkumi æskunnar í landinu.” Fundarmenn samþyktu þessa til- Iögu með lófataki sem aldrei ætlaði að linna. Ennfremur samþykti fundurinn að fela stjórn S.U.F. að vinna að því að hafist yrði handa um útgáfu safns af ritgerðum Jónasar Jóns- sonar.—Tíminn 23. júní. ♦♦♦ Sjóður stofnaður 1 fyrrakvöld var okkur afhentur sjóður, tengdur við nafn móður okkar, Stefaníu Guðmundsdóttur, að upphæð kr. 1000.00 og skjal, sem hljóðar þannig: “Nokkrir vinir frú Stefaníu sál. Guðmundsdóttur leikkonu gangast fyrir því, að stofnaður verði sjóður, er beri nafn hennar og notaður verði til að efla leikment hér á landi eftir því sem nánar verður ákveðið í sam- ráði við eftirlifandi börn hennar. Vér undirrituð teljum mjög vel við eigandi, að minniffg frú Stefaníu verði á þenna hátt tengd við leik- mentina i framtiðinni og leyfum oss að mæla með þvi við alla, sem unnu og möttu leiklist hinnar látnu lista- konu, að þeir leggi sinn skerf til þess, að sjóðurinn geti orðið sam- boðinn hinni framliðnu.” 25 undirskriftir. Viljum við færa stofnendum þessa sjóðs okkar beztu þakkir fyrir þá virðingu, er þeir sýna minningu móður okkar og vona, að hin fagra hugmynd vina hennar og okkar megi ná takmarki sínu. Laufásveg 3, 20. júní 1938. Systkinin Borg. —Morgunbl. 22. júní ♦♦♦ Mót Norræna félagsins Þegar inót Norræna félagsins var sett í Lubeck, blöktu fánar allra Norðurfenda þjóðanna i stöngum yfir fundarstaðnum. Viðstaddir voru innanríkismála- ráðherrann dr. Frick, landbúnaðar- málaráðherrann Darre, Hdmmler og Ríosembeg og margt annaa þektra manna úr opinberu lífi Þýzkalands. Þýzk blöð skýra frá því, að marg- ir Islendingar sæki mótið, þ. á. m. Pétur Halldórsson borgarstjóri í Reykjavík. —Morgunbl. 23. júní. Aðfaranótt siðastliðins mánudags lézt að heimili sinu i Árborg hér- aðshöfðinginn Tryggvi Ingjaldsson, 76 ára að aldri; hafði verið fremiur veill á heilsu i síðastliðin tvö ár, þó Tryggvi Ingjaldsson óvenjulegt lífsfjör héldi honum á ferli svo að segja fram til þess síð- asta. Tryggvi Jngjaldsson var stór- merkur maður ; áhuga og framtaks- maður í hvívetna, en um fram alt annað góðviljaður drangskaparmað- ur, er ávalt og á öllum tímum kom allstaðar fram til góðs. Hann var fæddur i Saltvik i Suður-Þingeyjar- sýslu þann 29. dag júni'inánaðar ár- ið 1862. Faðir hans var Ingjaldur Jónsson Einarssonar i Saltvik, en móðirin Margrét Jónsdóttir. Árið 1885 kvongaðist Tryggvi og gekk að eiga eftirlifandi konu sína Hólm- fríði, dóttur Andrésar bónda Ólafs- sonar á Fagranesi í Reykjadal; þau fluttust til Vesturheims árið eftir og settust fyrst að við Akra í North Dakota, en fluttu skömmu seinna tii Hallson og bjuggu þar góðu búi. Árið 1901 flutti Tryggvi ásamt fjölskyldu sinni til Árborgar héraðs og nam þar land; komust þau hjón þar fyrir frábæran dugnað í allgóð efni og stóð heimili þeirra jafnan í þjóðbraut hvað viðkom gestrisni og hjálpsemi. Um nokkurt skeið rak Tryggvi verzlun og hafði með hönd- um smijörgerð. Á sviði héraðs- og sveitarmála hafði Tryggvi forustu jafnan með höndum, og þótti bæði ósérhlífinn og tillögugóður. Mun Bifröst-sveit lengi minnast giftu- drjúgrar starfsemi hans og frarn- taks. í safnaðarmálum og öðrutn íslenzkum félagsskap, var Tryggvi ávalt í fararbroddi, boðinn og bú- inn til átaka þar, sem þörfin var mest. Að baki honurn liggur lang- ur og nytsamur starfsferill, sem samferðasveit hans ber að minnast og þakka. Trygg'vi Ingjaldsson var gleði- maður; það var alt af glatt og bjart í kringum hann hvernig sem viðraði og hvað sem á móti blés. Þó átak- anlegar sorgir heimsækti Tryggva heitinn, er mjög gengu honum til hjarta, var hann verulegur lánsmað- ur; hann átti fyrirmyndarkonu og úrvalsbörn. Sonur Tryggva'heitins Ingimar, þjóðkunnur maður, um eitt skeið þingmaður Gimli-kjör- dæmis, lét lif sitt með vofeiflegum hætti; varð hann öllum er til þektu harmdauði. Ekkja hans er Violet dóttir þeirra Mr. og Mrs. Kristján Paulson á Gimli. Auk Hólmfríðar ekkju sinnar, lætur Tryggvi eftir sig eftirgreind tx'irn: Sesselja, gift Guðm. S. Guð- mundsyni; Snjólaug, gift Guðjóni J. Björnssyni; Andrea, gift Edward J. Johnson; Sigriður, gift Andrési Jónssyni; Guðrún, gift Halldóri S. Erlendssyni frá Hálandi í Geysis- bygð; Kristjana, gift W. Crowe og Rannveig, gift E. Davies i Chicago. Við fráfall Tryggva Ingjaldsson- ar, er stórt skarð höggvið í íslenzku mannfélagsfylkinguna vestan hafs; einum ágætum liðsmanni færra. Útför Tryggva heitins fer fram frá heimiilinu og kirkju Árdalssafn- aðar í dag, fimtudaginn, þann 21. þ. m. undir umisjón Bardals, kl. 2 e. h. Séra Sigurður Ólafsson jarð- syngur. MARÍA EKKJUDROTNING AF RÚMENIU LÁTIN Þann 17. þ. m. lézt að sumar- bústað sínum Sinain, María ekkju- drotning af Rúmeníu, 62 ára að aldri; var hún sonardóttir Victoriu Englandsdrotningar; hún hafði átt við lall-lang^arandi heilsubilun að stríða; hin látna ekkjudrotning þótti stórhæf kona og kom um langt skeið mjög við sögu. Canol konungur og annað náasta sifjalið var við dánar- beð ekkjudrotningarinnar. SPÁNARMÁLIN Svo hefir árásarher Francos sótt ákaft fram upp á síðkastið, að nú á hann ekki eftir ófarnar nema tuttugu og f jórar milur til Valencia. Á nýafstöðnum tveggja ára af- mælisdegi borgarastyrjaldarinnar lýsti Franco yfir þvi, að hann hefði með tilstyrk hersveita sinna i raun og veru unnið sigur i hildarleiknum; töfin, sem á hefði orðið, væri öll Rússum að kenna. Hersveitir Francos hafa nú umráð yfir 70% af spánversku landi. ÆFINTÝRAMAÐUR Ungur maður að nafni Douglas Carrigan, lagði af stað frá New York á sunnudaginn í gömlu flug- vélarskrifli, og var ferðinni heitið að sjálfs hans sögn, til Los Angeles. Eftir rúmar tuttug og átta klukku- stundir lendir hann svo í Dublin á írlandi; hann segist hafa tapað átt- unum. Trúi því hver sem vill. MÆLIR MEÐ TAKMöRKUN VIGBÚNAÐAR Roosevelt Bandaríkjaforseti flutti í vikunni sem leið ræðu, þar sem hann lýst yfr þvi, að Bandaríkja- þjóðin myndi ekki láta á sér standa um fullkomna samvinnu, ef lýðræð- isþjóðir Norðurálfunnar svo sem Bretar og Frakkar, beittu sér fyrir takmörkun vígbúnaðar. Silfurbruðkaup Mr. og Mrs. S. S. Johnson í Framnesbygð Það var heldur en ekki glatt á hjalla i samikomuhúsi Framnesbygð- ar i Nýja íslandi, laugardaginn 25. júní s.l. Víðsvegar að hafði fólk komið til að samfagna hjónunum Snæbirni og Sigríði. Johnson á tuttugu og fimm ára giftingaraf- mæli þeirra. Skyldfólk hjónanna beggja var í þessum hópi, ásamt þremur mannvænlegum sonum hjón- anna. Samsætið var undir stjórn sóknarprests, og hófst með sáhna- söng og bænagjörð. Ávarpaði svo veizlustjóri samsætið nokkrum orð- um og bauð gesti velkomna, fyrir hönd nefndarinnar er hafði mann- fagnað þennan með höndum. Svo voru skeyti lesin upp frá fjarlægum vinum. Fyrir minni brúðarinnar talaði Mrs. W. Eyjólfsson og mælt- ist henni ágætlega. Ræðu fyrir minni brúðgumans flutti Mr. Sig- urður Vopnf jörð; þakkaði hann í góðri ræðu sinni silfurbrúðguman- um störf hans og afskifti af félags- miálum bygðar og umhverfis, bæði fyr og síðar, og Stuðning þann, er hann hefði veitt ihverju góðu máli, sín mörgu starfsár í bygðinni. Gjafir til heiðursgesta voru svo bornar fram: gjöf frá sonum þeirra, blómagjöf frá frændfólki Snæ- bjarnar, börnum Jónasar Helgason- ar bónda í Argyle og Sigríðar konu hans, sem nú er lát'in, en hún var móðursystir Snæbjarnar. Einnig var borin fram gjöf frá Mr. og Mrs. Björn Dalhmann og dóttur þeirra og tengdasyni Mr. og Mrs. Collins, Riverton, Man., en Mr. Dalhmann er móðurbróðir Snæbjarnar. Einn- ig var afhent gjöf frá bygðarfólki, vandað “ohesterfield”, sömuleiðis gjöf frá Mr. og Mrs. J. Sigvalda- son í Víðir. Fleiri gjafir voru fram bornar, þó að sá, er línur þessar ritar, kunni ekki skilgrein- ingu þeirra. — Mr. P. K. Bjarna- son mælti hlý og viðeigand orð til heiðursgestanna, og' gat um störf þeirra og þakkaði þau að verðleik- um. Meðal annara, er tif máls tóku, var Mr. Thor Lifman, mintist hann þróttar, hófstilingar og styrkleika Snæbjarnar. Mr. B. M. Poulson, lögmaður frá Árborg, flutti stutta ræðu á ensku, og var efnisiheppinn að vanda. Söngflokkur söng ýmsa söngva: “Sú rödd var svo fögur,” “Vona minna bjarmi,” “Sjá brostin klakabönd” og “Brosandi land” o. m. fl. Mrs. Guðrún Vigfússon lék á hljóðfærið, voru ýmisir þjóðlegir söngvar sungnir af mannf jöldanum. LTndir lok samsætisins talaði Mr. Johnson fyrir hönd sinna og sín. bæði á ensku og íslenzku, og mæltist vel. Fóru þá fram veitingar nieð rausn og prýði, naut hinn mikli mannfjöldi ágætrar veislu og sam- IIEPBURN / LOFTINIJ Mitchell Hcpburn Hon. Mitchell F. Hepburn for- sætsráðherra Ontariofylkis, kom til Winnipeg á mánudaginn á 8,000 mílna flugferð um Canada og norð- ur i höf. Hann varðist allra frétta við blaðamenn, en kvaðst með góðri samvizku geta fullvissað þá um það. að för sín stæði í engum sambönd- um við pólitík; sér fyndist hann eiga skilið að létta sér upp eftir tvennar kosningasennur og um- svifamikil þingstörf. DÁNARBÚ ALBERTS C. JOHNSONS Albert heitinn Johnson, ræðis- maður Dana og íslendinga hér í borginni, var sem kunnugt er, einn hinna mestu atorkumanna meðal ís- lendinga vestan hafs, og græddist oft og einatt mikið fé. Nú hefir dánarbú hans verið tekið til skifta- meðferðar og er metið á $132,032, að því er dagblöðunum í Winnipeg segisfj frá. Einn þriðji þessarar upphæðar fellur í hlut ekkju AI- berts, en hitt skiftist jafnt á milli hinna fimm barna þeirra. BRACKEN SKRIFAR KORN SÖLURÁÐINU Hon. John Bracken, forsætisráð- herra Manitobafylkis, hefir skrifað forseta kornsöluráðsins, Mr. George H. Mclvor bréf, þar sem fram á það er farið, að bændum verði trygt sæmilegt verð fyrir kornframleiðslu sina á komandi hausti; leggur Mr. Bracken á þetta mikla áherzlu, sem efnahagslegt sáluhjálparatriði fyr- ir bændur Sléttufylkjanna. BREZKU KONUNGS- HJÚNIN HEIMSÆKJA FRAKKLAND Georg Bretakonungur og Elizabet drotning komu til Parísarborgar á mánudaginn setni gestir frönsku þjóðarinnar. Forseti Frakklands, Albert Lebrun, tók á móti hinum tignu gestum á járnbrautarstöðinni, að viðstöddu geysilegu fjölmenni. Utanrikisráðherra brezku stjórnar- innar, Halifax lávarður, var í för með konungshjónunum. talsstundar undir borcTum. Sigríður og Snæbjörn eru enn á góðum starfsaldri, eru þau bæði fögur að vallarsýn; hann með allra stærstu og karlmannlegustu mönn- rnn norður hér, þar sem þó er gnægð stórra og ágætlega vaxinna manna, bæði eldri og yrígri. Synir þeirra hjóna eru allir hinir mannvænleg- ustu og góðir samverkamenn foij- eldra sinna og ágæt bændaefni. Er heimilið myndarheimili, og á sér djúpar rætur, en hjónin og synir þeirra njóta virðingar og hlýhugar sam f erðaf ólksins. Sigurður Ólafsson. Samkomur Jónasar Jónssonar JÓNAS FYRVERANDI DÓMSMÁLARÁÐHERRA JÓNSSON, er væntanlegur hingað til bæjar í næstu viku sem gestur Þjóðræknisfélagsins. Hefir hann látið í ljósi að liann óskaði eftir að geta heimsótt allar ís- lenzku bygðirnar í álfunni og falið þjóðræknisnefndinni að semja ferðaáætlun sína yfir ágústmánuð. Hefir nefndin því ákveðið eftirfylgjandi staði, þar sem hann verður staddur yfir fyrri hluta ágúst, og flytur erindi: Að Ilnausum (Islendingadaginn) 30. júli Að Gimli (Islendingadaginn) 1. ágúst Að Churchbridge (í Þingvallabygð) 4. ágúst Að Wynyard (Islendingadaginn) 5. ágúst Að Markerville, Alberta 10. ágúst 1 Vancouver, B.C., 15. ágúst. Áætlun þessi verður birt í næsta blaði og þá með þeim breytingum sem verða kunna. Samkomur hans í öðrum bygðarlögum innan Mani- toba og Bandaríkjanna verða auglýstar síðar. Aðgang- ur að hinum sérstöku fyrirlestra samkomum 35c. 0 Vestur á Kyrrahafsströndinni er gjört ráð fyrir að hann flytji erindi á þessum stöðum: Pt. Roberts; Blaine; Bellingham; Seattle og ef til vill víðar. Eín allar ráðstafanir að því lútandi, svo sem auglýsingar, ákveða samkomustaði o. fl. verða gjörðar þar vestra. • —Stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.