Lögberg - 21.07.1938, Blaðsíða 8

Lögberg - 21.07.1938, Blaðsíða 8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. JCLl, 1938 Látið kassa á nú þegar ís í 2-glasa flösku ■ Ur borg og bygð SíÖastliÖinn föstudag voru gefin saman í hjónaband hér í borginni, Mr. Paul S. Kardal frá Gimli og Miss Martha Brodie, 789 Pacific Ave., Winnipeg. Framtíðarheimili ungu hjónanna verður á Gimli. íslendingar í Vatnbygðum halda hinn 30. þjóðminningardag sinn í Wiynyard á föstudaginn þann 5. ágúst næstkomandi. Jónas Jónsson flytur þar kveðju frá íslandi. Mjög hefir verið vandað til hátíðarhalds- ins og má því vafalaust búast við ó- venju mikilli aðsókn. •f ♦ Á laugardaginn þann 16. þ. m., voru gefin saman í hjónaband að Fraserwood hér í fylkinu, Dr. Stephen Thorson, sonur Mr. og Mrs. John Thorson, 880 Sherburn Street hér í borginni, og Miss Jean Isabelle Wood, dóttir Mr. og Mrs. S. J. Wood. Hjónavigslan fór frarn að heimili foreldra brúðarinnar, að viðstöddu afarmiklu f jölmenni. Rev. Dr. A. J. Hunter frá Teulon fram- kvæmdi hjónavigslu athöfnina Ungu hjónin fóru brúðkaupsferð sína suður í Bandaríki, en setjast síðan að i Boston, þar sem Dr. Thorsion dvelur að minsta kosti næsta ár við framhaldsnám og kenslustörf í læknisvisindum. I ■f ■♦• Þann 15. þ. m., lézt Leslie Keen, skrifari Churchbridge-sveitar, mæt- ur maður og vel látinn. Hann læt ur eftir sig konu og stálpuð börn; er skarð fyrir ski.ldi við fráfall hans. GIMLI THEATRE Thurs. - Fri., July 21-22 8. p.m. Williani Royd in “HOPALONG RIDES AGAIN’’ Tliurs. — CountrWStore Night Matinee Thurs. at 3 p.m. Prizes for Children Thurs., Fri., July 28-29 8 p.m. Marlene Dietrich, Charles Boyer, Basil Rathbone in “GARDEN OF ALLAH’’ in Technicolor (Adult) Eftirfylgjandi nemendur Mr. O. Thorsteinssonar, Gimli, Man., tóku próf við -Toronto Conservatory of Music: Pianoforte, Grade 5— Honors—Miss Anna Arnason, Miss Maria Josephson. Pianoforte, Grade 3— First Class Honors: Miss Rita Greenberg. Pianoforte, Grade 1— First Class Honars: Miss Sigurveig Arason Miss Lillian Albertson. Violin, Grade 4— First Class Honors: Mr. Guðmundur Markúson, Bonors: Miss Lulu Stefanson. Violin, Grade 1— First Class Honors: Mr. Gunnlaugur Helgason. •f -f Hon. Guðmundur Grímsson hér- aðsdómari frá Rugby, North Dak- ota, var staddur i borginni seinni part vikunnar sem leið. ■f -f Gefin saman í hjónaband af sókn- arpresti í Arborg, Man., á prests- heimilinu þar, Einar Jón Einars- son, Gimli, Man., og Margaret Mary Gharnecki, hjúkrunarkona, St. Vital, Man. Mannfagnaður í Marshland Svo er nefnt bygðarlag nokkurt vestur at Manitobavatni, um sex til átta mílur vestur af þorpinu Lang- ruth, sem er að mestu íslenzkur bær. Marshland er og stundum nefnt "Big Grass,” sennilega vegna þess hve bygðin er grasgefin, er enda, að sumir segja, eldra nafn, en er nú orðið langoftast nefnd því nafni, sem að ofan er greint.— 1 bygð þessari eru nokkur islenzk býli og virðist talsverð velsæld sitja þar að völdum. Var fyrir eina tíð æði mikið stærri bygð. Margir fluttu burtu, er þar bjuggu áður. Er ekki gott að gera sér grein fyrir þeirm burtflutningum, þegar maður athugar það, að þeir sem eftir urðu og nú búa þar, eru flestir, ef ekki allir, gildir og góðir bændur, og virðast una hag sinum hið bezta. Tilefni mannfagnaðarins í Marsh- land var að samgleðjast þar nýgift- um hjónum. Hafði miðaldra, ó- giftur búhöldur, Kristinn Guð- mundsson að nafni, nýlega staðfest ráð sitt. Er húsfreyja hans Hall- fríður Sölvason frá Árborg. Höfðu þau þá rétt nýlega komið úr brúð- kaupsferð sinni, í dýrindis bíl, spá- nýjum, er Kristinn hafði aflað sér í búið, og það án þess að til láns þyrfti að taka, eða i skuldir að fara, eftir því sem kunnugum segist frá, þó eftir ágizkun vera kunni. — Einir seytján eða átján bílar, hlaðnir fríðu liði, á ýmsum aldri. voru í hermsókninni. Mun klukkan hafa verið laust fyrir niu, síðastliðið laugardagskvöld, þá er komið var heim á heimili hinna nýgiftu hjóna. Eins og siður er við slikar heim- sóknir, höfðu konur með sér veizlu- kost allan. Formaður fararinnar og veizlustjóri var Magnús bóndi Pét- ursson. Er hann greindur maður, einarður og vel máli farinn. Lætur honum veizlustjórn hið bezta. Gjöf frá'heimsækjendum og vin- um, til hjónanna nýgiftu, var stundaklukka, falleg og vönduð, er afhent var af veizlustjóra, með við- eigandi hlýlegri og fallegri tölu. Til ináls tóku, auk hans, þau Mrs. G. Thorleifson, S. B. Olson og séra Jóhann Bjarnason, er nú tmn tima hefir þjónað lúterska söfnuðinum í Langruth. Svo talaði og Kristinn bóndi sjálfur. Þakkaði fyrir heim- sóknina fyrir hönd þeirra hjóna og þá rausn og velvild sem þeim befði verið sýnd. Á milli ræðanna voru sungnir úr- valssöngvar islenzkir, og nokkrir enskir sömuleiðis, og fór það alt vel fram. Fyrir veitingum stóðu þær Mrs. J. Helgason, Mrs. M. Pétursson og Mrs. P. Anderson frá Woodside, sem er systir Kristins. Til aðstoð- ar þeim voru og ýmsar aðrar mynd- arkonur, ásamt ungum, fríðum meyjum, er með þeim höfðu komið. í ræðunum kom fram mikið og gott álit á hinum nýgifta bónda. Var auðheyrt að hann er álitinn drengur góður og ábyggilegur í hvi- vetna, auk þess sem hann er dugn- aðarmaður og búhöldur góður. Þótti mjálum hafa vel skipast og giftu- smalega að hann hefir nú fest sér konu, sem er vel að sér i öllu er að húshaldi lýtur, auk þess sem hún er stillileg í framgangsmáta, kemur vel fyrir og er lagleg kona. Má segja að heimilið sé nú vel á sig komið. Er þá meir en sennilegt, að hamingjuóskirnar mörgu, er bornar voru fram í samsætinu, komi fram í veruleika, í reynslu og sam- lífi hinna nýju hjóna, og það því meir sem samleið þeirra lengist og átök þeirra verða samhentari, á vel uppseftu heimíili og við .efnalegk sjálfstæðan og farsælan búskap.— (Fréttaritari Lögb.) Mr. S. D. B. Stephanson fyrrum kaupmaður í Eriksdale, en nú bú- settur , New Westminster, B.C., kom til borgarinnar á miðvikudags- morguninn og lagði af stað sam.- dægurs norður til Eriksdale. n ISLENDINGADAGURINN ■■ 1 í GIMLI PARK, GIMLI, MANITOBA Mánudaginn I. ágúál 1938 PROGRAM Kl. io f. h.—kl. 2.30 e. h., íþróttir á iþrótta- vellinum. Kl. 2 e. h., FjaJlkonan, frú Halldóra Jakobs- son, leggur blómsveig á landnema- minnisvarðann. Sungið: “Ó, Guð vors lands.” •♦- ♦ SKEMTISKRA Kl. 2.30 e. h., Fjallkonan gengur til hásætis. Sungið: “Ó, Guð vors lands.’’ 1. “O Canada” 2. Forseti, J. J. Samson, setur hátíðina. 3. Fjallkonan flytur ávarp. 4. Karlakór, undir stjórn Ragnars H. Ragnar. 5- 6. 7- 8. 9- 10. 11. 12. 13- 14- 15- Jónas alþingismaður Jónsson flvtur ávarp. Karlakór. Ávarp heiðursgesta. Karlakór. Minni fslands— Ræða: Dr. Richard Beck Minni íslands— Kvæði: Dr. Sveinn E. Björnson. Karlakór. Minni Vesturheims— Ræða: Stefán Hansen. Minni Vesturheims— Kvæði: Jóhannes H. Húnf jörð. Karlakór. Eldgamla fsafold—God Save the King. Bikarar og önnur verðlaun gefin fyrir iþróttir. Verðlaunasamkepni um silfurbik- arinn, skjöldinn og glimubeltið að aflokinni skemtiskrá. fþróttirnar fara fram undir stjórn E. A. ísfelds. ♦ ♦ Gjallarhorn og hljóðaukar verða eins og að undanförnu. Almennur söngur byrjar klukkan 7.30 e. h. Sérstakur pallur og sæti fyrir gullafmælis- börnin. ♦ ♦ AÐGANGUR í GARÐINN Börn innan 12 ára.....lOc Fullorðnir ............25c Hljómsveit og dans í Gimli Pavilion kl. 10 til 3 e. miðn. Aðgangur að dansinum 25c Bjargrœðistíminn j Við heyjum okkar baráttu við stopula veðráttu, gróðurbresti á landi og brellinn fisk í sjó. Þótt sólin fylgi almanakinu, lætur sum- arið stundum bíða lengi eftir sér. Svo hefir orðið að þessu sinni. Vor- ið hefir verið kalt. Sláttur mun byrja með seinna móti um land alt. 1 fyrradag hamlaði óhagstætt veður síldveiðum á Norðurlandi. En und- ir þessu tvennu ,söldarafla og hey- feng er afkoma vor mjög komin. Þótt unnið sé að framleiðslu allan ársins hring, hagar náttúran því svo, að su'marið er enn sem fyr aðal bjargræðistíminn. Nú er bjarg- ræðistíminn að hefjast. Næstu mán- uði verða bendur að standa fram úr ermum til sjávar og sveita, ef vel á að fara. Nú er svo komið að síldveiðin er að verða öflugasti þátturinn í fram- leiðslu þjóðarinnar. — í fyrra sum ar hagaði svo til, að í hendur hélst óvenjuhátt verðlag á síldarafurðum og óvenjumikill afli. Nú hefir af- urðaverðið lækkað svo, að það síld- armagn, sem í fyrra var verðlagt á 8 krónur, er nú aðeins verðlagt á 4.50. Ef nokkur von ætti að vera umi það, að útflutningsverðmæti síldarinnar yrði likt og síðastliðið ár, yrði aflinn að vera meiri en nokkru sinni fyr. Nú má gera ráð fyrir, að siaukin þekking og tækni valdi því, að hvert veiðiskip fái meiri afla með hverju ári í svipuð um aflabrögðum. En þótt svo yrði, höfum við ekki nægilegan verk smiðjukost til að hagnýta þá afla aukingu, sem sléttaði verðmismun- inn. Yrði þá að salta miklu meiri síld en áður. Til þess að koma stór- aukinni saltsíldarframileiðslu í verð, yrði þá einnig að hagnýta markaði ! miklu betur en raun hefir á orðið. í dag verður engu um það spáð, I hver afkoman verður eftir bjarg- ræðistímann. — Menn verða að vona hið bezta. Afleiðingar þess að heybrestur yrði í sveitum, og aflabrestur á síldveiðum, yrðu svo alvarlegar, að fullkomin þjóðar ógæfa mætti kallast. En svona hefir það verið og svona er það: Við erum háðir veð- urfari og aflabrögðum. Afkoma okkar veltur á, að hvorugt bregðist. Tíu eða tólf vikna bjargræðistími sker úr um það, hvort þjóðin kemist af. Þar sem svona er mjótt á munum um afkomumöguleikana, er augljóst mál, að athafnalöngun manna verð- ur að vera vakandi, ef vel á að fara. En athafnalöngunin helst því aðeins vakandi, að þeir sem við framleiðsl- una vinna, finni, að starf þeirra sé metið að verðleikum. Valdhafarnir á hverjum tíma verða, að hafa skiln- ing á því, að þeir sem hætta fé sinu og orku til þess að halda uppi fram- leiðslu þjóðarinnar, eiga fulla kröfu á þvi, að þeim sé ekki íþyngst að nauðsynjalausu. íslenzkir framleiðendur eru og verða háðir veðurfari og aflabrögð- um. En einmitt vegna þessa, verð- ur ríki&valdið að varast, að taka af þeim alt, þegar vel gengur. Illærin fylgja *góðærunum eins og nótt fylgir degi. En í góðærunum verða framleiðendur að fá að búa sig undir örðugleika illæranna. íslenzkir frmaleiðendur hafa sætt þeirri aðbúð af hálfu valdhafanna á undanförnum árum, að þeir hafa staðið uppi tómhentir, jafnvel eftir góðæri. — Þeir hafa lagt fram krafta sína um bjargræðistímann til að bjarga þjóðinni. Sjálfum sér hafa þeir ekki fengið bjargað. En ekki verður ver stjórnað en það, að þeir sem bjarga, séu sjálfir bjargarlausir. Morgunbl. 22. júní. The only clue discovered on the scene of a jewel robbery was a fur- lined glove. The police are still trying to discover who had a hand in it THE 1938 EDITIOX OF THE TRUCKERS AXD SHIPPERS GUIDE XOVV KEXAMED Itlotor FreiqKt Quide IS XOW READY FOR DISTRIBUTIOX Your copy can be obtained from our Office 695 SARGEXT AVEXUE, WIXXIPEG or, we can forward it to you by mail upon receipt of the amount shown on the enclosed statement. The Motor Freiqht Quide Is the most valuable and complete volume of information for the use of Western Truckers and Shippers ever published. A Complete Alphabetical Classification Freight List is one ot the chief features, there is also a carefully compiled Rate Table for all the principal shipping centres of the west. An up-to-date Directory of all Western Carriers with their addresses and telephone numbers is included. Truckers & Shippers cannot afford to be without one of these books Copies Can Be Obtained By Mailin" $1.0« to TIIE COLUMBIA PRESS, I/TD. 695 SARtíEXT AVEXUE, WIXXIPEG FUNDARBOD Framkvæmdarnefnd Selkirksafn- aðar biður þess getið, að almennur safnaðarfundur verði haldinn í sam- komuhúsi Selkirksafnaðar á mið- vikudagskvöldið þann 27. þ. m-, kl. 8. Þess er vænst að safnaðarfólk fjölmenni á fundinr^ Messuboð Fyrsta Lúterska Kirkja Engin morgunguðsþjónusta og enginn sunnudagsskóli næsta sunnu- dag. íslenzk messa kl. 7 að kveldi. Séra Bjarni A. Bjarnason prédikar + 4- Guðsþjónustur við Churchbridge: Ensk messa í kirkju Konkordia- safnaðar þann 24. þ. m. kl. eitt eftir hádegi. íslenzk messa í Þingvalla- kirkju 31. ágúst kl. 1 e. h. í Lög- bergs kirkju þ. 7. ágúst, messa og altarisganga kl. 2 e. h. s. s. c. ♦ ♦ Vatnabygðir sunnud. 24. júlí: Kl. 11 f. h., ensk messa í Leslie. Kl. 2 e. h., íslenzk messa í Hólar (seini tíminn). Kl. 7.30 e. h., ensk messa í Wyn- yard. , Jakob Jótusson. ♦ ♦ Sunnudaginn 24. júlí miessar séra H. Sigmar í Gardar kl. 11 f. h. Sama dag kl. 2 e. h. hið árlega skemtimót Víkursafnaðar i skemtigarðinum við samkomuhúsið í Mountain. Stutt Guðsþjónusta, ræðumenn séra N. S. Thorláksson og Mr. Valdimar Björnson frá Minneapolis. Vonað er að fólk fjölmenni. ♦ ♦ Séra K. K. Ólafson flytur guðs- þjónustur setn fylgir i Vatnabygð- unum í Saskatchewan sunnudaginn 3i. júlí: Kristnes kl. 11 f. h. (fljóti tími) Foam Lake kl. 2 e. h. (fljóti timi) Mozart kl. e. h. Kandahar kl. 7 ^30 e. h. Messurnar að Kristnesi og í Kandahar verða á ensku. Hinar á íslenáku. Til þess að tryggja yður skjóta afgreiðslu Skuluð þér ávalt kalla upp SARGENT TAXI FRED BUCKLE, Manager PHONE 34 555 - 34 557 SARGENT & AGNES The BLUE OX Meat Market P. LAMOND, Prop. Phone 30 000 For the Finest in MEATS and VEGETABLES Free, Prompt Delivery 592 ELLICE AVE. Islenzkar tvíbökur og brauð — margar tegundir af kökum og sætabrauði GEYSIR BAKERY 724 SARGENT AVE. Phone 37 476 Sendum vörur heim. The Watch Shop Diamonda - Watches - Jewelry Agents for BULOVA Watchee Marriage Licenses Issued THORLAKSON & BALDWW Watchmakers & Jetocllera 69 9 SARGENT AVE., WPG. Minniát BETEL í erfðaskrám yðar Þj óðræknisfélag í slend inga Forseti: DR. RÖGNV. PÉTURSSON, 45 Home Street. Allir Islendingar í Ameríku ættu að heyra til pjóðræknisfélaginu. Ársgjald (þar með fylgir Tímarit félagsins) $1.00, er sendist fjármálaritara Guðm. Levy, 251 Furby Street, Winnipeg. Jakob F. Bjarnason TRANSFER Annast greiðlega um alt, eem að flutningum lýtur, imáum iða ■tðrum. Hvergi sanngjarnarm ▼erB. HelrniU: 581 SHERBURN ST. Slml 15 »08 ROLLER SKATING Winnipeg Roller Rink Every Evening, Wed., Sat. Afternoon. Instructions Free to Learners LET US TEACH YOU LANGSIDE AND PORTAGE Phone 30 838 Wolseley Hotel 186 HIGGINS AVE. (Beint á móti C.P.R. stöðinni) SÍMI 91 079 Eina akandinaviska hótelitf i borpinni RICHAR LINDHOLM, eigandt KAUPIÐ AVALT LUMBER hjá THE KMPIRE SASH & DOOR CO. LTD. HENRY AVENUE and ARGYLE STREET Winnipeg, Man. - Phone 95 551 v

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.