Lögberg - 08.12.1938, Page 1

Lögberg - 08.12.1938, Page 1
51. ÁRGAN<rUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 8. DESEMBER 1938 NÚMER 49 Bróðurkveðja að heiman Eftirfarandi símskeyti frá Reykjavík barst Lögbergi á föstu- daginn var, og er það hér með einlæglega þakkað: Reykjavík 2. desember 1938. Columbia Press, Winnipeg, Man. Kveðjur Vestur-lslendinga í gær hingað heim höfðu djúp og alvarleg áhrif á alla þjóðina. Við færum alúðarfylstu þakkir öllum löndum vestan hafs, bæði þeim, sem þátt tóku í minningar- athöfninni og einnig öllum hinum, sem hingað sendu þöglar kveðjur. Vaxandi samstarf íslendinga vestan hafs og austan er hin sameiginlega ósk allra Islendinga í dag. Jónas Jónsson, formaður Framsóknarflokksins Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins Stefán Jóh. Stefánsson, formaður Alþýðuflokksins. —--------------------. HIÐ NÝJA SKIP EIMSKIPAFÉLAGSINS % Eins og áður hefir verið skýrt frá hér í blaðinu hefir stjórn Eimskipafélags Islands leitað til ríkisstjórnarinnar um liðsinni til þess að félagið geti látið smíða farþega- og flutningaskip, mkilu stærra og hraðskreiara en þau skip, sem nú eru í förum milli íslands og útlanda. Til þess að fá vitneskju um það, hvernig málið stæði nú, snerum vér oss í gærkvöldi til formanns Eimskipafélagsins, Eggerts' Claessen hrm. og skýrði hann oss frá því, að í gær hefði félagsstjórninsi borist svar ríkis- stjórnarinnar við málaleitun fé- lagsins. Hefir rikistjórnin lofað Eimkipafélaginu að leggja til við Alþingi að félaginu verði veittur sérstakur styrkur úr ríkissjóði vegna þessara skipakaupa, að upphæð 150 þús. kr. á ári um 10 ára skeið, með ýmsum skil- yrðum, sérstaklega að því er snertir gjaldeyrishlið málsins. Gjöld hins fyrirhugaða skips til ríkissjóðs (svo sem vitagjald, lestagjald o. s. frv.) eru áætluð um 130 þús. kr. á ári, svo fram- angreind styrkupphæð svarar rúmlega til þess að skipið verði gjaldfrjálst til rikissjóðs. Stjórn Eimskipafélagsins gat ekki haldið fund í gær til þess að taka afstöðu til málsins eins og það nú horfir við. —Morgunbl. 5. nóv. Til Sigríðar Olson Eg hlustaði á útvarpið Islands- daginn. Alt var það gott fyrir þjóðernis- haginn. —En Sigríður! Fullveldi sál minni yfir söngur þinn náði og með henni lifir. * 1 Þin list er svo indæl! Hún lætur mig dreyma um líf, sem á ekki á jörðunni heima. Hún flýgur jafn hátt, þó að sígi sólin, og syngur í skammdegismyrkri um jólin. J. S. frá Kaldbak. B.V. “ÓLAFURT’ TALINN AF Leitin að botnvörpungnum “Ólafi” var að mestu leyti hætt í gær, enda var það kunnugra manna mál, þeirra er voru á sömu slóðum og “Ólafur” í ó- veðrinu, að lítil von væri um að skipið væri ofansjávar. Skips- höfnin á-Ólafi var 20 manns og skipstjóri sá 21. Þessir menn láta eftir sig 13 ekkjur og 18 börn 15 ára og yngri. —Morgunbl. 8. nóv. Mr_ H. R. McLaughlin Mr. McLaughlin er fram- kvæmdarstjóri CJRC útvarps- stöðvarinnar, er forgöngu hafði á hendi við útvarpið til Islands þann 1. þ. m. Taldi hann ekkert það eftir sér, er verða mátti þessari mikilvægu nýjung í and- legum samgöngum milli íslend- inga austan hafs og vestan til liðs. íslendingar standa við hann í drjúgri þkkarskuld fyrir dugnað hans og lipurð i sambandi við millilanda útvarpið á fimtudaginn var. Þetta er mynd af út- varpsstöðinni í Win- nipeg, sem annaðist um útvarpið til ls- lands á Fullveldis- daginn þann 1. þ. m. Eigandi hennar er James Richardson, einn af víðkunnustu fésýslu og athafna- mönnum hinnar cana- disku þjóðar. Rödd úr veátri Flutt yfir millilanda-útvarp 1. desember 1938 Oss brennir ei þörf fyrir útfararóð því enn er hér landnám í gerð; í liðsbón ei heldur vér leitum til neins, né lögsögumanna á ferð. Vér spinnum hér einir vorn örlagaþráð, þó alt. sé með nýlendubrag. En framundan eygjum vér íslenzkir menn hinn andlega fullveldisdag. Vort lífstré er eitt þó að afkvistað sé, og árin það styrkja í rót. Og lim þess- ber út yfir aldir og rúm hið eilífa, norræna mót. Það rýrir ei afrek hins útflutta manns, og útsýnið hýrnar við það, að samstofna eining á eins fyrir því sinn íslenzka stöngul og blað. Úr vestrænni firð leitar hugur vor heim þó haustað um sléttuna sé, og vitjar þess elds sem að árdegis brann um æskunnar gróandi vé. 1 lýðríki andans býr eilífð þess manns, er algræðir þjóðanna sand. Þeim kvistum, sem atvik og útfiri greip með aðfalli skolar á land. F ullveldisdagsins minst í Washington / Á fimtudagskveldið þann 1. *desember, hélt Hon. Otto Wid- stad sendiherra Islands og Dan- merkur í höfuðborg Bandaríkj- anna, Washington, veizlu til minningar um Fullveldisdag ís- lands, er um 30 gesiir sátu. Agnar Klemens Jónsson, starfs- maður sendisveitarinnar, var fjarverandi úr borginni. Mr. W.idstad flutti íturhugsaða og snjalla ræðu um ísland og ís- lenzka þjóðmenning; ræðuna þakkaði Mr. Leifur Magnússon, forstjóri International Labor skrifstofunnar í Washington. Einnig tóku til máls prófessor Stefán Einarsson og Hjálmar Björnson, fyrrum ritstjóri og núverandi einkaritari Senator Shipsted í Washington. í veizlu- lok lék Mr. Vilhjálmur Einars- son á fiðlu “Ó Guð vors lands,” en við hljóðfærið var frú hans, Sylvía, dóttir þeirra Mr. og Mrs. S. K. Hall í Wynyard, er jafn- framt lék nokkur tónverk eftir föður sinn. í veizlulok söng hver að beztu getu “Hvað er svo glatt.” ÍSLENZKAR BÖKMENTIR ERLENDIS Auk þeirra bóka um íslenzk efni, sem Ejnar Munksgaard gefur út, og áður hefir verið getið kemur út í Danmörku þýð- ing á skáldsögu Halldórs Kiljan Laxness “Höll sumarlandsins.” Engar bækur eftir Gunnar Gpnn- arsson eða Guðmund Kamban koma út á yfirstandandi ári. Sænska forlagið “Natur och Kultur” gefur innan skamms út bók um Eddu eftir Erik Ther- mann “Eddaen och dess ödes- rtagikk.”—Morgunbl. 4. nóv. Einar P. Jónsson. 824 SKRÁÐIR ATVINNULEYSINGJAR 1 REYGJAVIK Skr ásetning atvinnulausra manna i Reykjavík hefir farið fram undanfama daga og var lokið í gærkvöld. Reyndust 824 menn atvinnu- lausir hér í bænum, þar af 8 konur. Undanfarin ár hefir tala at- vinnuleysingja á þessum árstima þannig: 1937 682 1936 660 1935 605 Reyndin hefir orðið sú undan- farið, að atvinnuleysingjum hef- ir farið fjölgandi fram eftir vetrinum. Hæsta tala atvinnu- leysingja, sem skráð hefir verið hér í bæ, var 1. febrúar 1937, 936 menn.—Morgunbl. 4. nóv. Hvaðanæfa Siðastliðinn þriðjudag voru undirskrifaðir í París samning- ar milli Þýzkalancis og Frakk- lands um órjúfanlegt vinfengis- samband milli beggja þjóða. Utanríkisráðgýafar ^Frakka og Þjóðverja staðfestu samninga ]>essa með undirskrift sinni fyrir hönd hlutaðeigandi stjórna. Sam- kvæmt samningum þessum eiga núverandi landamerkjalínur milli Þý-zkalands og Frakklands, að skoðast algildar og órjúfanleg- ar um aldur1 og æfi. Hörmulegt námuslys vildi til í Sydney námunum í Noca Scotia á þriðjudaginn. Létu þar 16. námumenn líf sitt, og margir liggja limlestir á sjúkrahúsum. Þeir Ásmundur P. Jóhannsson °g Jón J. Bíldfell fóru norður til Nýja íslands á laugardaginn í erindum Þjóðræknisfélagsins og komu aftur á mánudaginn.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.