Lögberg - 15.12.1938, Page 4
4
LÖOBEB/G-, FIMTUDAGINN 15. DESEMBEE 1938
-------------- Högherg ---------------------------
GefiS út hvern fimtudag af
THE COLiUMBIA PRESS, EIMITED
B95 Sargent Ave., Winnlpeg, Manitoba
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
Editor: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram
The "Lögberg” is printed and published by The Columbia Press,
Uimited, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba
PHONE 86 327
Milli fjalls og fjöru
Fréttasambandið Associated Press, flutti þær fregn-
ir vítt um heim þann 2. desember að íslenzka þjóðin
hefðin hefði minst tuttugu ára fullveldis síns daginn
áður, með virðulegum hátíðahöldum víðsvegar um land;
veigamestu hátíðahöldin fóru þó að sjálfsögðu fram í
höfuborg hins íslenzka ríkis; gekk þar mannfjöldi mik-
ill að' leiði Jóns Sigurðssonar og lagði á það blómsveig.
Forsætisráðherrann, herra Hermann Jónasson, flutti við
þetta tækifæri aðalræðuna og brýndi fyrir þjóðinni að
standa þéttan vörð um andlegt, efnalegt og menningar-
legt sjálfstæði sitt.
Áminst fréttasamband leggur sérstaka áherzlu á
það í greinargerð sinni af Fullveldisdeginum hve íhygl-
isverð og ánægjuleg sú mótsögn sé, er gildi um ástandið
á Islandi borið saman við hin dapurlgu tíðindi frá
stjórnmálavettvangi annara Norð'urálfuþjóða upp á síð-
kastið. tsland sé eina landið í víðri veröld, er hvorki
hafi nokkuð af her né flota að segja, og þó muni það
engu að síður mega teljast flestum, ef ekki öllum öðrum
þjóðum, óhultara um tilverurétt sinn.—
Viðskiftavelta tslands er hlutfallslega meiri en við-
gengst með nokkurri annari þjóð, og er hið sama úm
fiskiveiðarnar að segja.
Einn liður hinnar reglubundnu dagskrár, sem fram
fór í Reykjavík á Fullveldisdaginn, var útvarpið frá
íslendingum vestan hafs; fyrsti tengiliðurinn þeirrar
tegundar, í andlegum samgöngum milli heimaþjóðar-
innar og samstofna kynkvísla í vestri. Hið drengilega
ávarp Hermann forsætisráðherra, er til vor barst á
Fullveldisdaginn á öldum ljósvakans, vakti hvarvetna
hlýtt bergmál vestan hafs, er óma mun lengi og hlýja
mönnum um hjarta. 4 4 4
Þegar aðrir fljóta sofandi að' feigðarósi og hafast
eigi að, er forsætisráðherra Manitoba-fylkis, Mr.
Bracken, seint og snemma á ferð með margskonar nyt-
samar nýjungar á prjónum; enda er nú svo komið, að
Mr. Bracken þykir, án tillits til pólitískra trúarbragða,
einn allra hagvitrasti stjórnmálamaður canadisku þjóð-
rinnar um þessar mundir; rætist á honum hið forn-
kveðna, að hann sé vaskur maður og batnandi.
Þessa dagana stendur yfir fundur í Winnipeg,
næsta mikilvægur, er Mr. Bracken hefir kvatt til; eru
þar mættir sérfræðingar, eigi að'eins canadiskir, heldur
og einnig sunnan úr Bandaríkjum, til þess að ráðgast
um aukin og endurbætt sölusambönd fyrir búnaðaraf-
urðir; vitaskuld sýndist það liggja nokkurn veginn í
augum uppi, að eitthvað yrði að taka til bragðs, sem
líklegt þætti til framtíðar þrifa; það var Mr. Bracken,
sem fvrstur reið á vaðið, og verður slíkt vonandi að
makleikum metið.
Ek;ki mega menn kippa sér upp við það, þó sýnilegs
árangurs af starfi þessa fundar verði ekki vart þegar í
stað; enda slíkt ekki á eins manns færi; þó er með þessu
stisrið spor í rétta átt, er ætla má að til nokkurs góðs
leiði í framtíðinni; verzlunarhöft þau, þjóða á milli, sem
frá óeðlilegum tollmúrum stafa, verða að nemast úr
gildi ef vel á að fara; þetta er Mr. Bracken Ijóst, og með
það fyrir augum hefir hann meðal annars kvatt til
áminsts fundar viðvíkjandi sölu búnaðarafurða.
♦ -f ♦
Fvrverandi utanríkisráðherra Chamberlain stjórn-
arinnar, Mr. Anthony Eden, flutti nýverið ræðu í New
York, er laut að viðhorfinu á sviði stjórnmálanna frá
sjónarmiði demokratiskra þióða; ræðan var glæsileg í
formi, o" þó ákjósanlesrt mætti telja að hún hefði verið
nokkru ákveðnari í einstökum atriðum en raun varð á,
lék um hana engu að síður hressandi blær víðsýns um-
bótamanns. Mr. Eden lýsti afdráttarlaust yfir því, að
þrátt fvrir alt og alt, — skiftar skoðanir á ýmsum
mikilvægum málum, — þá væri brezka þjóðin ein og
óskift. er til þess kæmi að verja Ivðræði sitt og heilög
einstaklingsréttindi gegn hnefarétti og kúgun í hvaða
mvnd sem væri. 444
f borginni Lima stendur yfir um þessar mundir
ihvglisvert þing, er tuttugu og ein Ameríku-þjóð stendur
að: þetta er áttunda þingið í röðinni, sem Pan-American
þjóðir kveðja til. Af hálfu Bandaríkjastjórnar mætti
þar hinn drenglundaði og víðsýni utanríkisráðherra
hennar, Mr. Cordull Hull. Kjarna-atriðið í ræðu hans
var á þessa leið: “Eins og nú horfir við sýnist mann-
kynið eiga einungis um tvent að
velja, miðaldaþrælkun í Fasista-
flíkum, eða lýðræðis fyrirkomu-
lagið, þó því sé í ýmsu ábóta-
vant.” Með þetta hvorttveggja
fyrir augum, kvaðst Mr. Hull
líta svo á, að það væri með öllu
óhjákvæmilegt fyrir allar Ame-
ríkuþjóðir að stofna með sér ó-
rjúfandi varnarsamband gegn er-
lendri áróðursstarfsemi og fylkja
sér \ einingu undir fána lýðræðis
Og mannréttinda.—
■f ♦ -f
Um reifarasögu getur, er
gengur undir nafninu “Reim-
leikinn á herragarðinum.” í öðr-
um garði, er Queens Park nefn-
ist, fer Mr. Hepburn á handa-
hlaupum og kærir sig kollóttan
þótt bláni á hnúum. Enda ska!
nú til mikils vinna. Orð leikur
á að þeir Mr. Duplessis £rá
Quebec og Mr. Hepbum hafi
blandað hjörlegi, eða með öðrum
orðum svarist í fóstbræðralag;
markmiðið sagt að vera það, að
koma King forsætisráðherra í
pólitiskum skilningi fyrir kattar-
nef; reka hann frá flokksfor-
ustu og svifta hann kjóli og
kalíi. Og nú hefir Mr. Hepbum
ráðið það við sig, að snúa opin-
berlega baki við Mr. King í
næstu kosnnigum; hann um það
Ekki mun ólíklega þykja til get-
ið, að slíkt verði til landhreins-
unar talið að losa liberal-flokk-
inn við Mr. Hepburn eftir hið
“óeðlilega bandalagsbrall” hans
við Mr. Duplessis, eins og Mr
King sjálfur nefnir það.
Alt þetta hjákátlega moldviðri
Mr. Hepburns, styrkir Mr. King
fremur í sessi en veikir, og blæs
liberal flokknum byr í segl við
næstu kosningar.
Thor Thors segir frá
vesturför sinni
Thor Thors alþingism. kom
heim með Gullfossi í gærkvöldi.
úr för sinni til Nýfundnalands
og Bandaríkjanna.
Tiðindamaður Morgunblaðsins
átti stutt samtal við Thor áður
en hann steig af skipsfjöl, og
fékk hjá honum eftirfarandi frá-
sögn af förinni vestur.
För mín hefir tekið um 3
mánuði og voru erindi mín aðal-
lega í Nýfundnalandi og Banda
ríkjunum.
Stjórn Nýfundnalands hafði
boðið fulltrúa frá Islandi að
koma í kynnisför til landsins, til
að kynnast landi og þjóð og
fiskveiðum og fiskverzlun lands-
manna, ásamt fulltrúa frá Noregi
og Bretlandi. Dvöldumst við
þar um hálfan mánuð og urðum
margsvísari um atvinnul'íf Ný-
fundnalands og þjóðarhætti og
ræddum nokkuð sameiginleg á-
huga- og vandamál. Var okkur
öllum tekið þar í landi með frá-
bærri gestrisni og stakri alúð.
Verður e. t. v. tækifæri til þess
síðar að skýra nánar frá ýmsu
um fiskveiðar Nýfundnalands,
sögu þess og stjórnmál. Það
mun síðar koma í ljós, hvort
nokkur árangur verður af við-
ræðum okkar um vandamál fisk-
framleiðsluþjóðanna, Eg hefi
gefið ríkisstjórn og stjórn S.Í.F.
ítarlega skýrslu um för þessa.
Niðursu ðuvörur
S. /. F.
1 Bandaríkjunum dvaldi eg
um 5 vikur, að mestu í New
York, en auk þess i Chicago, St.
Paul og Boston. Aðalerindi mitt
var að undirbúa sölu á fram-
leiðsluvörum hinnar nýju niður-
suðuverksmiðju S. 1. F. og
kynnast þörfum og kröfum
neytendanna. Fékk eg send
þangað fyrstu sýnishorn héðan
að heiman. Líkaði varan sjálf
ágætlega, en ýmsu þurfum við
að breyta um útbúnað vörunnar
í samræmi við framleiðslu keppi-
nautanna og löggjöf Bandarikja-
manna. að er skoðun min, að
góðar horfur séu um talsverðan
markað fyrir þessa nýju fram-
leiðslu okkar, ef við gætum
hinnar ítrustu vöruvöndunar og
getum stilt framleiðslukostnaði
svo i hóf, að verðlag okkar verði
fullkomlega samkepnisfært. En
miklir og margvíslegir örðug-
leikar verða á vegi okkar í önd-
verðu. Um þetta málefni mun
eg gefa stjórn S. í. F. nákvæma
skýrslu.
New Yo-rk sýningin
Jafnframt þessu máli hafði eg
nokkur afskifti af undirbúningi
þátttöku okkar íslendinga í
heimssýningunni næsta vtor.
Vann eg að því máli í samvinnu
við framkvæmdarstjóra okkar,
hr. Vilhjálm Þór, sem nú er bú-
settur í New York. Miðar und-
irbúningnum vel áfram og verð-
ur innan skamms unt að skýra
frá væntanlegu fyrirkomulagi
sýningar okkar í einstökum at-
riðum, því að eg hefi í fórum
mínum fullnaðartillögur um aðal
drætti sýningarinnar og mun eg
leggja þær fyrir sýningarráðið
einhvern næstu daga.
í sambadi við sýningarmálið
vil eg geta þess, að eg hefi með-
ferðis undirritaðan samning af
hendi Columbia Concerts-félags-
ins í New York um söngför 38
íslendinga um Banadrikin næsta
haust. Mun eg ræða það mál
við söngmenn bæjarins og vænti
að góð samvirma náist meðal
söngmanna um för þessa, svo að
hún geti orðið þjóð vorri til hins
mesta sóma.
Til Vesturheiws
Að lokum þetta:
Það er sannfæring mín, að
framtíðarviðskifti okkar íslend-
inga á sviði framleiðslu og fjár-
mála eigi og verði að verulegu
leyti að beinast til Vesturheims.
Á ófriðartimum hefir neyðin
beint hugum okkar og ferðum í
vesturátt og okkur hefir borist
björgin þðaan. Þessu höfum við
verið furðu fljótir að gleyma.
Sjaldan hefir verið meiri nauð-
syn á því að rifja upp þessa
kenningu ótriðaráranna og fram-
fylgja henni, en einmitt nú, þeg-
ar öll Evrópa er sem púður-
tunna, sem ótal þræðir liggja að
og einn neisti getur kveikt í á
hverri stundu.—Mbl. 23. nóv.
Framsóknarblaðið í Vest-
mannaeyjum birtir eftirfarand'
fregn: “Netagerð Vestmanna-
eyja keypti á síðastliðnu sumri
þriðju netahnýtingarvélina og er
nú búið að taka vélina í notkun.
Netagerðin framleiðir nú öll þau
net, sem notuð; eru í Evjum, og
hefir auk þess selt nokkuð af
þorskanetum í verstöðvarnar við
Faxaflóa og austan fjalls. Fraim-
leiðslan er fyllilega sambærileg
við erlenda framleiðslu um verð
og gæði og hefir tekist vel til
með þennan atvinnurekstur.”
—Tíminn 6. nóv.
“ÖRKIN HANS NÓA”
1 Ameríku er roskinn maður,
sem trúir því statt og stöðugt
að nýtt “syndaflóð” sé í vænd-
um og að allar lifandi verur á
jarðríki muni þá farast — eða
að minsta kosti hvert einasta
kvikindi í Ameríku vestanverðri!
Fólkið sé orðið svo léttúðugt og
syndum spilt, að skapari himins
og jarðar hljóti nú að fara að
taka i taumana, ekki síður en á
dögum Nóa. — Maður þessi —
hann heitir William Greenwood
— hefir látið smíða sér nýja
“Örk” og lagt alla stund á það,
að hafa hana sem allra líkasta
þvi, sem menn hafa gert sér í
hugarlund að “Örkin hans Nóa”
muni hafa verið. Hefir smíði
skipsins staðið yfir árum saman
og altaf hefir karlanginn verið
að láta breyta, því að ýmsir hafa
frætt hann á því, að ekki muni
“þetta eða þetta” vera rétt, held-
ur hafi örkin verið “svo eða
svo,” og á margt hefir karlinn
fallist — margvíslegar breyting-
ar og umbætur. En að lokum
mun nú “örkin” tilbúin!
* Greenwood hefir ekki farið að
dæmi Nóa gamla að því leyti, að
hann hefir látið undir höfuð
leggjast fram að þessu, að safna
í örk sína ölluim dýrategundum
jarðarinnar. Honum mun hafa
fundist það snúningasamt, karl-
anganum. Örkin 'mundi og
þurfa að vera nokkuð stór, ef
allar tegundir ætti þar að rúm-
ast, þó að ekki væri nema “karl
og kona” af hverri.
Hann er sannfærður um það,
hinn gamli maður, að heimurinn
muni farast í “syndaflóði” mjög
bráðlega, Og hann hefir meira
að segja tiltekið ár, dag og
stund, er flóðið imundi hefjast.
En hinn ákveðni tími hefir liðið
hjá og ekkert merkilegt gerst.
Þá hefir hann kannast við, að
útreikningar sínir hafi líklega
ekki verið réttir, enda sé örðugt
að segja þannig fyrir um slíka
hluti, að engu geti skeikað. —
Og svo hefir hann spáð af nýju!
Greenwood segir, að flóðiti
miklu t Ohio og víðar þar vestra
sé aðeins lítið sýnishorn af því,
sem i vændum sé. — Hann er
að visu ekki alveg sannfærður
um — ekki æfinlega — að alt
líf á jörðunni muni farast og sé
það þó miklu líklegra. Hitt tel-
ur hann engum vafa bundið, að
vesturhluta Bandaríkjanna og
Canada verði ekki þyrmt! Þar
sé ólifnaður fólksins orðinn svo
ægilegur, að engin von sé til þess
að nokkur manneskja, sem þar
dvelst, geti sloppið lifandi!—Og
mikið af allri þessari siðspillingu
og bölvun segir hann að eigi upp-
tök sín f Hollywood!—
Karlinn skorar á fólk að taka
sinnaskiftuim: þegar í stað, því
að tíminn sé að verða naumur!
Hann klæðist mjög andhælis-
lega, er hantt fer út á stræti og
gatnamót. Hann gerir það til
þess, að vekja athygli á sér og
þeim boðskap, sem hann vill
kunngera öllum lýðum. — Hann
kannast við syndir sínar og; á-
virðingar og segir að vel megi
svo fara, að hann verði sem
aðrir syndarar herfang dauðans
í hinu trtikla flóði!
—Sd.bl. Vísis.
Many of the modern writers
are women. It’s so much easier
to be an author if you have some-
body to make a livíng.