Lögberg - 26.01.1939, Síða 1
52. ÁRGANCrtJR
Frú Sif Guðjohnsen
♦ ♦
Fölnuð er liljan
og fölnuð er rós.
♦ -f
ViÖ sól í hádegisstaÖ bíÖur
myrkvængjuÖ sorg þráfaldlega á
næsta leiti, og gerbreytir á svip-
stundu, martnlegu viÖhorfi til
þessa jarÖneska lífs; þannig var
þafi á mánudaginn : ung og yndis
leg kona kveÖur fyrirvaralaust
ástvini sína og hverfur út yfir
móÖuna niiklu; mörgum verÖur
oröfall við minna en það.
Frú Sif Guðjohnsen, eigin-
hona Ásgeirs GuÖjohnsen, yfir-
prentara hjá Columbia Press,
lézt á Grace sjúkráhúsinu laust
fyrir hádegi á mánudaginn; hún
yar flutt þangaÖ snemma um
morguninn og ól þar dóttur;
gekk fæðigin vel; alt sýndist
brosa við; örskömmum tíma
seinna sló móðurhjartað við-
kvæma i hinsta sinn; konan unga
og ástrika hafði safnast til feðra
sinna; heimilið svift sál hússins.
Frú Sif Guðjohnsen var í
heijji þenna borin á Haga i Aðal-
Keykjadal í Suður-þingeyjar-
þ'ngi þann 15. dag júní tnánaðar
árið 1913; foreldrar hennar voru
þau gáfu og merkishjónin, séra
Adam Þorgrímsson prestur ís-
•enzku safnaðanna við Manitoba
Vatn, látinn fyrir allmörgum ár-
um, og eftirlifandi ekkja hans
frú Sigrain Jónsdóttir, er býr
1 Lundarbæ ásamt ýngstu börn-
um þeirra hjóna; hún fluttist
vestur um haf með móður sinni
°g systkinum árið 1919; faðir
hennar kom til Vesturheims 1913
lauk guðfræðisprófi í þessari
alfu. Hinn 4. febrúar árið 1932
g'ftist Sif eftirlifandi manni sin-
U'm Ásgeiri Guðjohnsen, syni
^tefáns kaupmanns á Húsavík
°g tókst með þeim ástriki mikið;
varð þeini þriggja barna auðið;
elzta barnið er Stefán; dóttur
ninan við ársgamla, Kristínu
Sigrúnu, hið mesta efnisbarn,
nnstu þau hjón, og svo er dótt-
lr'u, er fyrst leit dagsljósið við
dánarbeð móður sinnar; auk
hinnar syrgjandi móður, lætur
Sif heitin eftir sig sex systkini
með þungan liarm í hjarta,
Geinii, Hrund, Frey, Þór, Tíraga
PHONE 86 311
Soven Unes
w
4T
X\>T
Better
Dry Clenning
and Laundry
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 26. JANÚAR, 1939
SIGURÐUR SIGURÐSSON KAUPMAÐUB OG FRÚ
Þessi mvnd er tekin af þeim Sigurði Sigurðssyni kaup-
manni í Calgary og frú hans, er þau voru á brúðkaups
ferð sinni vestur á Kyrrahafsströnd íihaust er leið.
og Sigrúnu; öll hin mannvæn-
legustu.
Sambúð þeirra Ásgeirs og
Sifjar var fyrirmynd, þar sem
ást og eining skipuðu jafnan
andvegi; þannig er það ávalt þar
sem gáfað mannkostafólk á í
hlut.
Aldrei hefir það verýð skil-
greint til fullnustu svo vitað sé.
hvernig háttað er vinnubrögðum
mannlegrar samúðar; aðferðir
nar margar og imismunandi; en
þess þykist eg engu að síður
fullvís, að sú samstilling hlý*
streymis sem um þessar mundir
stefnir til Ásgeirs Guðjohnsen,
blessaðra litlu barnanna, móður
og systkyna hinnar hugljúfu
burtsofnunðu eiginkonu, feli i
sér éitthvað það af heilögum
styrk er dragi úr bitrasta sárs-
aukanum; eigi aðeins til bráða-
birgða heldur um ókomin ár.
Útför frú Sifjar Guðjohnsen
fer fram frá Fyrstu lútersku
kirkju á föstudaginn. Samverk-
amenn Ásgeirs við Lögberg og
Colmnbia Press Limited votta
honum heilhuga samúð i hans
leita harmi.
Einar P. Jónsson
Fréttir frá Vancouver,
B.C.
Hér i Vanvouver var tíðin meÖ
lang þurrasta móti síðast liðið
haust, og fram yfir miðjan Des-
ember. Siðan hafa verið miklar
vætur—má heita að sé úrfelli á
hverjum einasta degi. Á annan
og þriðja í jólum féllu um tólf
þumlungar af snjó, þar á eftir
tók að húðrigna og var allur
snjór farin innan fárra daga.
Þrátt fyrir dynjandi rigningu
á gamlárs kveld hópaðist saman
aragrúi af fólki á aðalgötum
borgarinnar til að kveðja gainla
árið og sjá um að annað nýtt
og betra kæmi ií staðin—með
miklum gleðiópum oð hávaða.
#>að þarf meira en, svolitlia rign-
ingu til að hamla Vancouver bú-
urn frá að fara ferða sinna þó
minna stæði til.
Mr. John Johnson frá War-
man, Sask. kom 'hingað um Jól-
in. Hann var að heimsækja
systur sína, Miss Johönnu John-
son, sem einu sinni átti heima i
Winnipeg.
(Framh. á 4. bls.)
AUKA NEÐANSJAVAR-
FLOTA.
Þýzka stjórnin hefir fonmlega
tilkyna ráðaneyti Breta að hún
hafi ákveðið að auka' neðansjáv-
arflota sinn til jafns við flota
hinnar brezku stjórnar, sömu
tegundar; ðetta er talið ský-
laust brot á samningi milli Þjóð-
verja og Breta í þessu efni af
hálfu hinna fyrnefndu; þessu
jafnframt hafa Þjóðverjar tekið
sér fyrir herður að smíða fintm
beitiskip 10,000 smálestir að
stærð hvert um sig.
Úr borg og bygð
A tobogganning party was
held at River Park, Friday, Jan-
uary 20th, 1939 under the ausp-
ices of the “Young lcelanders”.
Miss Fanpey Magnusson and
Harold Johnson were in charge
of the arrangements. The party
then went to the Jón Bjarnason
Academy where a social hour;
was spent, and refreshments
served. A hike has been ar-
ranged for February i7th, 1939.
-f ♦
Hinn 15. þessa mánaðar andað
ist í Baldur Man. Halldóra kona
Ólafs Andersonar. Banamein
hennar var heilablóðfall, afleið-
ing langvarandi vanheilsu. Hún
var dóttir Eyjólfs og Karólínu
Snædal, sem voru meðal frum-
byggja Argylebygðar. Eyjólfur
er láfinn fyrir mörgum árum en
Karólina lifir enn í Baldur. Auk
eiginmanns, lætur Mrs. Ander-
son eftir sig tvö börn: son, Ey-
jólf, og Eleanore fósturdóttur,
bæði heima í Baldur, og bróðir,
Jón i Winnipeg. Halldóra var
atkvæðakona um margt, og lét
kirkju og bygðarmál sig miklu
skifta, er því stórt skarð höggvið
í íslenzkan hóp, við lát hennar.
Jarðiarför hennar fór fram, mið-
vikudaginn 18. Janúar frá heim-
ili og kirkju hennar í Baldur að
viðstöddu fjölmenni ættingja og
vina. Séra E. H. Fáfnis jarð-
söng.
♦ ♦
FRÓNSFUNDUR
Síðastliðið mánudagskveld,
hélt deildin “Frón” skemtifund í
Góðtemplara húsinu. Er það
fyrsti skemtifundur deildarinnar
á starfs-árinu.
Forseti deildarinnar, S. Thor-
kelsson, setti fundinn og stjórn-
aði honum, skipulega og vel.
Skemtiskráin hófst með því
að Sigursteinn Þorsteinsson söng
einsöng, þrjú lög.
1. Svalan—La Golondrina,
Italst lag.
2. Ástadraumurinn —Dream
of Love, eftir Liszt.
3. Deep River — Ameriskt
þjóðlag.
Að söngur hans hreif áheyr-
endurna mótti marka á því hvað
fólkið ,klappaði kröftuglega fyrir
honum. Ragnar H. Ragnar var
við ]>íanóið.
Hjálmar Gíslason las þáttinn
af Brandi hinum örfa, og var
gerður að þvi góður rómur.
Þá söng Miss Lóa Davíðsson
tvö lög með aðstoð R. H. Rag-
nar. Var annað lagið Enskt, við
frumsamið, fallegt kvæði eftir
Pál S. Pálsson. Hitt lagið var
“Danny Boy” i íslenzkri þýÖ-
ingu eftir Ragnar Stefánsson.
Létu allir óspart ánægju sína í
ljós með lóaklappi.
Og þá var nú komið að þeim
lið skemtiskráinnar sem fóiki
virtist muna mest í, og það var
erindi Mrs. E. P. Jónsson. Var
það um kvenskörungana, Berg-
þóru á Bergþórshvoli og Hall-
gerði á Hliðarenda. Það er ó-
| hætt að fullyrða að það varð
enginn, sem þarna var, fyrir
vonbrigðum af að hlusta á Mrs.
Jónsson, því erindið var ekki
einungis vel valið heldur og mjög
fallega og skipulega samið, fróð-
Tegt, skemtilegt og prýðilega
flutt. Mrs. Jónsson hefði átt
það skilið að hvert sæti hefði
verið setið í salnum.
Skemtiskráin var ekki löng, en
hún var vel valin og hin ánæg-
julegast að öllu leyti.
Deildin Frón þakkar öllum
sem skemtu þetta kveld og
hjálpuðust að því að gera þessa
kveldstund svo ánægjulega.
Davíð Björnsson
“Curling” það er kallað hér:
að kasta grjóti.
Hringhenda sú, oft þó er:
Helzt, upp á móti!
Jón Kernested
NÚMER 4
VIKIÐ FRA BANKASTJÓRN
Siðastliðin föstudag gerðust
>au tíðindi að Adolf Hitler vék
Dr. Hjálmari Schacht frá for-
stjórn þjóðbankans Þýzka; hafði
hann haft þá sýslan alllengi nieð
höndum, og er alment talin einn
allra hæfasti fésýslumaður þýzku
þjóðarinnar; hann hefir alla
jafna þátt næsta varfærinn í
fjármálum og vildi að þýzka
þjóðin héldi í lengstn lög ósker-
tu lánstrausti sínu. l>r. Schacht
hefir ávalt notið góðs álits hjá
brezkum f jánmálamönnum og
er mikill vinur Sir Montague
Normans forstjóra við Bank of
England; mun Hitler hafa þótt
hann varfærinn um of. Eftir-
maður hans, Dr. Walter Funk,
er mjög handgenginn Hitler og
verður honum vafalaust auð-
sveipari en títt var um Dr.
Schacht ef mikið stóð til í hinn
nýji bankastjóri sem jafnframt
skal gegna f jármálaráðherra em-
bætti, gaf sig lengi vel við
blaðamensku pg þótti mikill fyrir
sér á þvi sviði. Brezk blöð og
amerísk láta illa yfir þessari
nýju breytingu á fjármálastjórn
hinnar þýzku þjóðar.
HLYNTUR HLUTLEYSI
Senator A. K. Hugessen flutti
ræðu í Montreal þann 12. þ.m.
þar sem hann taldi það sizt að
undra þó margir canadiskir
menn spyrðu sjálfa sig að þvi
um þessar inundir, hvort ekki
væri rétbast að hin Canadiska
þjóð lýsti ufir hlutleysi sínu
þó Bretar yrðu flæktir inn i
Norðurálfu stríð; nú væri liðin
rúmlega 20 ár frá heimsstyrjöld-
inni sem átt hefði að binda enda
á öll strið, og þó væri horfurnar
nú jafnvel drjúgum ískyggjilegri
en nokkru sinni fyr; fyrstu
skyldur Canadískra manna hlyti
að vera við hina Ganadísku þ.ióð.
TVEIR NÝIR RAÐHERRAR
TAKA EMBÆTTISEIÐ
I OTTAWA
Forsætisráðherra Mr. Mac-
Kenzie King, tilkynti það í þing-
inu á mánudaginn, að tveir ráð-
lierrar hefði tekið sæti i ráðu-
neytinu; eru það þeir A. Mc-
I-arty, iþingmaður West Essex
kjördæmisins, sem tekur við
pósbmólaráðherra embættti í stað
J. C. Elliotts, er láta varð af
embætti sakir heilsubrests, og
James A. MacKinnon, þing-
maður frá Edmonton, er tekst á
hendur ráðherratign án þess að
veita nokkurri ákveðinni stjórn-
ardeild forsæti; var hann eini
frambjóðandi Liberal flokksins
er kosningu náði i Alberta í al-
mennu kosningunum 1935.
FRA SPANI
Samkvæmt síðustu fregnum er
Barcelona i þann veginn að
falla;; árásarherinn kominn til
útjaðra borðarinnar og sækir að
á þrjá vegu; stjórnin hefir flutt
sig burt úr borginni og norður á
bóginn