Lögberg - 16.02.1939, Side 1
52. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. FEBRDAR 1938
Páfinn í Róm
látinn
Þann io. þ. m., lézt í páfa-
höllinni i Róm, Píus XI, nálega
áttatíu og tveggja ára að aldri;
hafði hann veriÖ næsta veill á
heilsu síÖan á öndverðu ári 1936,
og rúmfastur meÖ köflum; hann
þótti lærdómismaðúr með ágæt-
um og hamhleypa við störf sin;
útvarpsræður flutti hann margar,
er bárust á öldum ljósvakans
heimshornanna á milli, og mikið
þótti til koma, sakir mælsku og
andagiftar; hann var hinn 261.
æðstur valdamaður kaþólsku
kirkjunnar á páfastóli. Ekki
síðar en þann 28. þ. m., kemur
saman i Róm kardínála saimt-
kunda til þess að velja nýjan
páfa.
Pius XI var lagður til hinstu
' hvíldar undir háailtari i kirkju
hins heilaga Péturs á þriðjudag-
inn var.—
Mannfagnaður
Miðvikudaginn þann 8. þ. m.
hélt Karlakór Islendinga i Win-
nipeg, veglegt samsæti eða gleði-
'inót í Marlborough Hotel, í til-
efni af tíu ára söngstarfi kórsins.
Samsætið sátu um tvö hundruð
manns.
Klukkan átta var sezt að borð-
um, og stjórnaði forseti kórsins,
Guðmundur Stefánsson, sam-
sætinu og fórst það prýðilega.
Fyrst sungu allir “O Canada.’’
Að því búnu tóku allir sæti og
séra Ph. M. Pétursson flutti
Ixirðbæn. Meðan setið var að
Ijúffengum, réttunum, lék átta
manna hljómsveit mörg falleg
°g tilþrifamikil lög.
Að borðhaldinu afstöðnu bað
forseti sér hlóðs, og flutti ávarp
S|Þ. Rakti hann í stórum drátt-
uin sögu kórsins frá því liann
'ar stofnaður árið 1929. Að
skýra frá efni ræðu hans hér,
geri eg ekki, því eg veit hún
muni verða birt í blöðunum, til
f róðleiks og skomtunar þeim,
sem ekki voru þarna viðstaddir.
En þess má þó vel geta, að er-
indi forsetans var prýðilegt.
Þá fluttu þeir dr. B. H. Olson
°g dr. Á. Blöndal stutt erindi á
ensku. Dr. Olson drap lauslega
a erfiðleika þá, sem því eru
samfara að halda saman og æfa
karlakór meðal íslendinga hér,
lia'ði af því að þeim fækkar nú
óðum, sem islen^kuna tala og
skilja, og einnig sökum fjárhags
01 ðugleika. Benti hann á að
þaina væri um víðtæka þjóð-
ræknisstarfsemi að ræða, er
Þ j óðræk n i s f élaginu bæri að
styrkja að einhverju leyti, þvi
svo vel hetði kórinn starfað að
utbreiðslu og kynning íslenzks
Ijoðs og lags, að seint muni yfir
það fyrnast.
Dr. Blöndal mælti nokkur orð
tvm íslenzka hljómlist og söng,
°g var gerður að því góður
Tveir nýir ráðherrar
Frá því var skýrt í síðasta
blaði, að tveir nýir ráðherrar
hefði tekið sæti í King-stjórn-
inni í Ottawa, en lítið um þá
að öðru leyti sagt vegna rúm-
leysis. Hinn nýi póstmálaráð-
herra, Hon. Norman McLarty,
er lögfræðingur fæddur í bæn-
um St. Thomas í Ontario-fylki
í júlímánuði árið 1889; að loknu
embætti^prófi fluttist Mr. Mc
Larty vestur á bóginn og stund-
aði við góðurn árangri um nokk-
urt skeið málafærslu í bænum
Medicine Hat í Alberta; þaðan
fluttist hann til Windsor-bæjar
og hefir gegnt þar umsvifamikl-
um lögmannsstörfum. Mr. Mc-
Larty var fyrst kosinn á sam-
bandsþing í almennum kosning-
um 1935. Þykir hann mœlskur
með ágætum.
Hinn nýi ráðherrann, Hon.
James A. McKinnin, er fæddur
að Port Elgin í Ontario árið
1881, en fluttist vestur til Al-
berta um tvítugsaldur; er hann
búsettur i Edmonton og hefir
þar á hendi framkvæmdarstjórn
fésýslu og tryggingarstofnunar;
hann á sæti á Sambandsþingi
fyrir Edmonton West kjördæmið,
og var eins og embættisbróðir
hans, Mr. McLarty, fyrst kos-
inn á þing 1935, þó lengi hefði
hann áður staðið framarla í fylk-
ingu Liberal samtakanna í Al-
berta-fylki.
rómur.
Þessu næst mælti Gordon Páls-
son fyrir minni kvenna í bundnu
máli, þrungið af fjöri og fyndni,
sem öllum geðjaðist að.
Þá bauð forseti Mr. F. H.
Stevens að segja nokkur orð.
Fór Mr. Stevens, sem fyr, fögr-
um orðum um Iand vort og þjóð,
og má af ritum hans og ræðum
marka,'að hann hefir orðið fyrir
mikilli hrifning frá náttúrunnar
og mannanna hálfu, meðan hann
dvaldi heima síðastliðið sumar.
Hina ágætu grein hans um gleði-
mótið í Marlborough hótelinu,
er hann reit í Free Press síðast-
liðinn fimtudag, ættu allir að
lesa.
Þegar staðið var upp frá borð-
um, gengu allir inn í danssal-
inn og þar söng karlakórinn
fjögur lög. „
1. Brennið þið vitar, eftir Pál
ísólfsson, við hátíðaljóð DaVíðs
Stefánssonar.
2. Það árlega gerist, eftir
ísólf Pálsson.
3. Hæ! tröllum á meðan við
tórum, radds. af V. Svedblom.
4. Fyrst eg annars hjarta
hræri, radds. af J. P. Cronhamn.
Þegar aðal skemtiskráin var á
enda, var klukkan orðin tíu. Frá
þeim tima var stíginn dans með
dillan'di fjöri, til klukkan eitt.—
Gleðimót þetta var að öllu leyti
hið ánægjulegasta, og eg heyrði
fólk hafa orð á því. að það hefði
skemt sér betur en það hefði átt
kost á unt langan tíma.
Davíð Björnsson.
Úrborg og bygð
Mr. B. J. Lifman, sveitar-
oddviti í Bifröst, dvelur i borg-1
inni þessa dagana.
•f -f
Hin prýðilega ljóðabók frú
Jakobína Johnson, “Kertaljós,"
er nú með öllu uppseld, upplag-
ið heima á Islandi seldist alt
þegar fyrir jól, en það, sem vest-
ur kom, flaug út á hálfum mán-
uði eða svo.
•f -f
Mr. og Mrs. Valdimar John-
son i Riverton, Man., urðu fyr-
ir þeirri sorg að missa ársgamlan
son sinn, John Norman að nafni,
er andaðist þann 1. febr. Út-
förin fór fram frá heimili for-
eldranna í Riverton, þann 6.
febr. að viðstöddum nánustu ást-
vinutm og vinum.
•f -f
Mr. Chris. Snidal hefir verið
skipaður aðal- framkvæmdarstj óri
fyrir Dunlop Tire & Rubber fé-
lagið; er hann sonur þeirra Mr.
og Mrs. Sigurjón Snidal, sem
lengi bjuggu á Langside Street
hér í borginni. Mr. Chris. Sni-
dal hefir lengi verið i þjónustu
þessa félags, sem hann nú veitir
forustu i Manitobafylki.
-f -f
Sunnudaginn 1. janúar s.l.
voru gefin saman í hjónaband
þau ungfrú Gíslina Valgerður
og Mr. Lester Carlyle Howe, að
Foam Lake, Sask. Vigslan fór
fram í United Church of Can-
ada. — Brúðurin er dóttir þeirra
merkishjóna Mr. og Mrs. Gísli
Bíldfell að Foam Lake, Sask.,
en brúðguminn er af norskum
ættum, mesti myndar og dugnað-
armaður. — Eftir athöfnina í
kirkjunni var setin vegleg veisla
að heimili foreldra brúðarinnar,
yfir 40 manns sátu veisluna.
Séra Guðm. P. Johnson fram-
kvæmdi vígsluna. Framtíðar-
heimili ungu hjónanna verður á
bújörð brúðgumans að Edfield,
Sask. — Þeirra mörgu vinir óska
þeim allrar farsældar og bless-
unar um, ófarin æfiár.
•f -f
STARFSMENN
GOODTEMPLARA
Að kvöldi þess 1. febrúar s.l.
setti Mr. G. M. Bjarnason um-
boðsmaður stúkunnar “Skuldar’’
eftirfylgjandi í embætti:
Æ.T.—Arinbj. S. Bardal
V.T.—Mrs. Guðbjörg B.randson
Kap.—Mrs. A. S. Bardal
Rit.—Gunnl. Johannson
A.R.—Harvey Cooney
F. R.—Ásbjörn Eggertson
(jj.—Mrs. Steinlaug ísfeld
Org.—Mrs. Sigr. Gunnlaugsson
Dr.—Þór Anderson
A.D.—Walter Anderson
V.—Steingrhnur ísfeld
U.V.—Mrs. Susanna Guðmund-
son.
G. K. Ungl.—Mrs. R. Blöndal
Skrásetjari—Guðm. Thordarson
F.Æ.T.—Jón 1 Mldórsson
G. J. '
ÚTVARP
Sunnudaginn 26. febrúar,
kl. 7 verður hinni venjulegu
ísl. guðsþjónustu Fyrsta
lúterska. safnaðar útvarpað
yfir stöðina CKY.
Eldri söngflokkurinn syng-
ur hátíðarsöngva. Ræða
prestsins verður miðuð við
fyrsta sunnudag í föstu.
Bjóðið vinum yðar og ná-
grönnum, sem ekki hafa
móttökutæki að lilusta á
guðsþjónustuna á heimili
yðar.
Látið vita hversu heyrist
í hinum ýmsu bygðum.
Sendið bréf yðar presti
Fyrsta lúterska safnaðar,
séra V. J . Eylands, 776
Victor St.
Á nýársdaginn síðastl. konm
börn og nánustu skyldmenni
Jóns pósts Jónssonar og konu
hans Kristínar Jensínu Jóns-
dóttur, saman í Wynyard til að
heiðra gömlu hjónin á gullbrúð-
kaupsdegi þeirra. Þau hafa
lengi átt heima i Wynyard, eru
vinsæl og vel látin.
-f -f
Mælskusamkepni stendur nú
yfir í miðskólum Saskatchewan-
fylkis. Er fyrst kept í einstök-
um skólum, og sá, sem talinn er
beztur í þeirri kepni, er sendur
til móts við þá, sem sömu verð-
laun hafa hlotið annars staðar.
I Wynyard tóku fimrn nemendur
þátt í samkepninni, þar af þrjár
íslenzkar stúlkur. — May Hjör-
leifsson, dóttir Mr. og Mrs.
Hjörleifur Hjörleifsson í Wyn-
yard fékk beztan vitnisburð.
Ræða hennar var um starfsemi
berklavarnarsambandsins í Sask-
atchewan., Mr. Young, formað-
ur skólanefndar færði henni
fagran silfurbikar að gjöf. —
Allir keppendurnir stóðu sig vel.
Dómendur /samkepninnar voru
þrír prestar, Rev. Brealy, Rev.
Murray og séra Jakob Jónsson.
•f ’-f
A meeting of the Committee
of the Young Icelander’s Book-
Group was held at the J. B.
Academy last Friday.
Out of a very comprehénsive
list these books have læen select-
ed for the Group to read and
study:
1. Seven Days of Darkness by
Gunnar Gunnarsson.
2. Ships in the Sky by Gunnar
Gunnarsson.
3. The Night and the Dream
by Gunnar Gunnarsson.
4. I See a Wondrous Land by
Gudmundur Kamban.
5. The Virgin of Skalholt by
Gudnmmdur Kamban.
6. Laxdæla saga, transl. by
Thorstein Veblen.
7. Grettis Saga, trans. by G.
H. Hight.
8. Snorri Sturluson—Heims-
kringla: Tlie Olaf Sagas —
trans. by Samuel Laing.
9. Snorri Sturluson — Heims-
PJIONE 80 311
Seven T.ines
w
í’or
Better
Dry CleaninR
and Jjanndrj’
NÚMEK7
líou J. S. McDiannid
náttúrufríðinda ráðgjafi Mani-
tobafylkis. Á öðrum stað hér i
blaðinu birtist auglýsing frá
stjórnardeild hans í tilefni af 20
ára afmæli Þjóðræknisfélags Is-
lendinga í Vesturheimi.
Þingrannsókn vegna
Brenbyssnanna
Eftir harðar og langar umræð-
ur i sambandsþinginu út af
samningnum um Bren-byssu-
kaupin, var málinu vísað til f jár-
laganefndar á mánudaginn til
frekarj rannsóknar, 'samkvæmt
tillögu frá Grant MacNeil,
C.C.F. þingmanni fyrir Van-
couver North kjördæmið; allir
viðstaddir þingmenn Liberal
flokksins greiddu tillögunni at-
kvæði. Uppástunga frá Mr. H.
H. Stevens um að þingið í heild
tæk^ málið til meðferðar nneð það
fyrir augum, að ógilda samning-
ana, var feld með miklu afli at-
kvæða.
KJÖRINN FORSETI
Y.M.C.A.
Prófessor Sidney Smith, for-
seti Manitoba háskólans, hefir
verið kjörinti til forseta í sani-
tökum Kristilegs félags ungra
manna i Canada, á nýafstöðnu
ársþingi þeirra.
KJÖRINN FORSETI
Á fjölmennum fundi, sem
haldinn var síðastliðið mánudags-
kveld var Mr. Paul Bardal bæj-
arfulltrúi • endurkosinn forseti
Liberal samtakanna i Mið-
Winnipeg kjördæminu hinu
nyrðra.
Mr. S. W. Melsted var kos-
inn að vara-forseta.
kringla: The Norse King Sagas
—trans. by Samuel Laing.
10. Modern Icelandic Plays by
Johann Sigurónsson — trans.
by H. K. Schancke.
11. Letters from High Lati-
tudes by Lord Dufferin.
12. Gisli Sursson — Rockwell
Ken Illustrations.
13. The Character of Races by
Elsworth Huntington.