Lögberg - 06.04.1939, Page 3
LÖŒBERG, FIMTUDAGINN (>. APBIL, 1939
3
Karlakór
Ulendinga
í Winnipeg
I.
Eins og auglýst er í blöðuni
vorum, hefir karlakórinn íslenzki
afráðiÖ að halda hljómleikasam-
komu )>essa árs í Auditorium hér
1 borg. Það mun vera í fyrsta
sinn, sem íslendingar hafa leigt
samko'miusal í þeirri byggingu.
Eað er nokkuð mikið færst i
fang, kostnaðar vegna, og ríður
Wí á því nú, meir en nokkru
sfnni fyr, að íslendingar hér í
b°rg
og utan úr sveitum viðs
vegar, bregðist drengilega við
V>g sæki þessa samkomu.
Þegar aðrir þjóðflokkar hér í
borg leigjia samkomusal í Audi-
torium, þá sýna samlandar þeirra
'nikla rækt í þvi að f jölmenna og
fylla salinn. Vonandi er að ís-
lendingar sýni ekki síður rækt
°g metnað i, að þessi samkömla
takist vel. Það hefir verið vand-
að til hennar eftir því sem bezt
voru föng til, og má búast við
góðri skemtan.
Karlakór þessi hefir áunnið
ser hylli íslendinga fyrir góða
framkomu við ýms tækifæri. Má
Þar minna á samkomu þeirra árið
sein leið, sem vakti sérstaka að-
oáun fslendinga og annara þjóða
'nanna. Bæði ensku blöðin hér,
°g eins blöðin íslenzku, fóru
'ofsa'milegum orðum um söng
þeirra.
Nú i vetur hélt kórinn veglegt
samkvæmi á Marlborough hótel-
"lu í rrrinningu um io ára starf.
Utn 200 manns kom þangað og
"utu indællar1 kveldstundar. For-
seti kórsins, herra Guðm. Síef-
ánsson, stýrði samkvæminu og
skýrði greinilega frá störfum
kórsins hin síðastliðnu io ár.
Ágætar ræður fluttu þeir Dr.
B. H. Olsoit og Dr. A. Blöndal.
Var hinn fyrnefndi hinn fyrsti
forseti kórsins, og nú heiðurs-
forseti hass. Ræður þeirra
beggja báru vott um, hin þýð-
ingarmiklu og góðu áhrif kórs-
ins í félagslífi Isl. bæði hér í
borg og viðar. Dr. Olson mint-
ist þar á það, semi mér þótti
mikils um vert, hversu kór þessi
hefði mikið stutt að ,viðhaldi ís-
lenzkrar tungu, með því að
leggja sérstaka rsekt við íslenzka
söngva og íslenzk kvæði. Áleit
hann, að jafnvel þó tungan
gleymdist með tímianum, þá
mundi hinn íslenzki hreimur
þeirra lifa meðal komandi kyn-
slóða, því þó orðin gleymist, þá
lifir listin og hennar áhrifa gæt-
ir um allar aldir.
Einn af boðsgestumi var Mr.
Frances Stevens, fréttaritari
Free Press, sem flestum íslend-
ingunv er kunnur af fréttapistl-
um hans að heiman, árið sem
leið. Eins og fyr, fanst honum
mikið til um framkomu Islend-
inga og komsti meðal -annars svo
að orði, i blaði sínu:
"íslendingar, 40 talsins, hófu
upp raddir sínar með söng á
'miðvikudagskvöldið í Marl-
borough rótelinu. Vöktu raddir
þeirra endurminningar um undra
fegurð hins islenzka útsýnis,
fjöll og hæðir, í fjarsýn, flugu
þar fyrir í hugarsjón áheyrenda.
Ræður, sem þar voru fluttar,
báru vott um, að hinn íslenzki
karlakór hafði gerst þungamiðj-
an í félagslífi íslendinga hér í
borg og viðar. Einnig vottuðu
Sparið Tíma . . . Sparið Peninga . . Lækkið
Yrkju Koátnað með
COCKSHUTT DISC HERFI
Þén fáið fljótari og betri vinnu meö Cockshutt No. 6 og No. 9 Herfi.
Pau veita breiðara skurðfar. Sérstaklega hitaveitandi diskar með hæfi-
'eSa beygju til þess að ná skjótt hæfilegri dýpt, uppræta illgresi og
•yfta og ýta ttl moldinni. Sterklega bygð með háum carbon stálpört-
um. Alemite smurning og óviðjafnanlegum völtum. Skoðið No. G
bygða í 6 feta, 7 reta og 10 feta stærðum, og No. 9 bygða í 12 feta,
16 feta, 18 feta og 24 feta stærðum hjá Cockshutt umboðsmanninum.
Til Ljfstíðar af Auðveldri Plægingu . . . Kaupið
COGKSHUTT “JEWEL”
Fyrir fljóta og fullkomna
plægingu á stubba eða
nýju landi, jafnast ekkert
á við Cockshutt “Jewel”
Gang Plóg. pér plægið
fleiri ekrur á dag, fáið
betri vinnu og þreytist
minna með að nota þetta
fræga búnaðaráhald. Sterk.
lega bygt með carbon stál-
t*0rtum. Alemlte smurning tryggir auðvelda vinnu. Bygð með 12 og
1 Þml. botpum. Skoðið "Jewel'' hjá næsta Cockshutt umboðsmanni.
Skrifið eftir bœklingi um Cockshutt. búnaðarverkfæri
rDCKSHUTT
■ PLDW CDMPANY LIMITED
VBNNIPEG regina saskatoon calgary edmonton
þær um hiÁ óbilandi starfsþol
þessara niianna og viðleitni
þeirra að túlka hinn íslenzka
karakter, sem nú gætir svo
mikið i þjóðarblæ Vestur-Can-
ada.
En það ' var hlutverk karla-
kórsins, sérstaklega, að leiða
fyllilega í ljós þann anda, sem
ríkti við athöfn þessa. Þeim
tókst það með nokkrum söngv-
um, eftir að staðið var upp frá
borðum, og áður en dansinn
byrjaði.
lfafi hinar dimmu organradd-
ir bassanna mint á straumnið
fljótsins á þess hröðu ferð til
hafs út, ofan af hátindi fjallsins,
þá var sú tjáning með öllu eðli-
leg. Hinir ríkjandi tónar ís-
lenzkrar náttúru eru- bassa-
raddir. Vatnsföllin og fossar
þeirra syngja dimmum þrumu-
röddum.
Ilrikafegurð islenzks útsýnis
hefir mótað karakter þjóðarinn-
ar, sem sett hefir aðalsmerki sitt
á þjóðlíf Vesturlandsins.”
Mr. Stevens dáðist mjög að
framlkomu söngstjórans Mr. R.
H. Ragnars, og því töframagn-
aða valdi sem hann hefir náð
yfir tónstilling allra söngvar-
anna.
I næstu blöðum verður pró-
gram kveldsins birt og skýrt frá
öllu því viðvíkjandi af söng-
stjóranum. En ekki get eg stilt
mig um að geta hér um eitt lag,
sem þar verður sungið. Eg álít
að það lag eitt sé nægilegt til að
menn fjölmenni. Það er lagið
við erindið úr Völuspá “Ár vas
alda,” sem menn álíta að vera
muni hið elzta lag á íslandi, og
ef til vill á Norðurlöndumi. Ekki
verður nákvæmlega getið til um
aldur þess. Völuspá var rituð
á io. öld, og er hugsanlegt og
jafnvel mjög líklegt að lagið
hafi )>á orðið til jafnsnemma
kvæðinu. Það er nokkurn veg-
inn vist að hin miklu kvæði vor,
hetjukvæði og drápur, voru
kveðin eða sungin, en ekki mælt
fram eins og við lestur.
Þegar Þormóður Kolbrúnar
skáld hóf upp Bjarkamál hin
fornu við orustuna á Stikla-
stöðum, til að kalla saman her-
inn, hefir hann kveðið þau eða
sungið, því það heyrðist um allan
herinn. Hann hefir, ekki síður
en karlakórinn okkar, haft ágæta
bassarödd.
Ef rétt er nú getið til um ald-
ur þessa sönglags, þá er mijög
liklegt að það liafi verið hið
fyrsta lag, sem sungið var af
hvítuin mönnum hér í álfu.
Hafa það þá verið íslendingar.,
sem sungu það, þegar þeir fyrir
iooo árum, fyrstir manna stigu
fæti hér á land.
Eitt er alveg víst; þeir liafa
sungið það víkingarnir norrænu
oft og einatt á ferðum sínum
víða um, höf. Hefir það þá
fest svo vel i minni manna, að
það hefir varðveizt um hinar
mörgu aldaraðir síðan og aldrei
gleymist.
Æltti það nú ekki að vera
metnaðarsök fyrir oss íslendinga
að lyfta undir með þessum góðu
drengjum og fylla hvert einasta
sæti í sönghöllinni þetta kveld.
Vér getum það svo vel ef vér
viljmn, það er nú margsannað,
að það er eins og oss íslending-
um séu engin takmörk sett til
framkvæmda. Rétt nýlega höf-
um vér hrundið af stað stóru
fyrirtæki, sem bæði kostar mikið
fé og ærna vinnu. En við kom-
urn oss saman um það, og þá
var ekkert i veginum. ' Maður
ráðinn til starfsins og peningar
nógir til að byrja með. (samn-
ing sögu Vestur-íslendinga). Eg
get hugsað mér að það verði eitt
hið ánægjulegasta starf hins nýja
sagnaritara, að rita sögu karla-
kórsins og að. samkoman á
Auditorium þann 26. þ. m. reyn-
ist ánægjuleg til frásagnar.
Eg ætla svo að endingu að
tilfæra nokkur orð eftir Dr.
Grim Thomsen, sem hann imælti
á stúdentafundinum í Uppsölum
í Svíþjóð árið 1856. Var á
þeim fundi mæHt fyrir minni ís-
lands, og þakkaði Grímur minn-
ið með stuttri en heppilegri tölu.
Þar er þetta í:
“Þegar mér nú hlotnast sá
sótni fyrir hönd ættjarðar tninn-
ar og fjarverandi satnlanda
minna,'að þakka fyrir það, hve
fagurlega íslands hefir verið
minst hér, gleður það mig að
geta komið fram fyrir yður með
þeirri samvitund, að Island átti
þctta minni vcl skilið.”
(Framh. á bls. 7)
Business and Professional Cards
DR. B. H.OLSON Phones: 35 076 906 047 Consultation by Appointment Only Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnlpeg, Manitoba DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tímar 3-4.30 Heimili: 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba
Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medica.l Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts, Phone 22 866 Res. 114 GRENFELL BLVD Phone 62 200 DR. ROBERT BLACK Sérfrœðingur 1 eyrna, augna, nef og héissjúkdðmum. 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Viðtalstimi — 11 til 1 og 2 tll b Skrifstofuslml — 22 2S1 Heimili — 401 991
DRS. H. R. &.H. W. TWEED TannUeknar 40 6 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portagé Ave. og Smlth St. PHONE 26 545 WINNIPEQ Dr. S. J. Johannesson 272 HOME ST. STE. 4 THELMA APTS. á fyrsta gðlfi Talsími 30 877 Viðtalstlmi 3—5 e. h.
DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BLDG. Teiephone 88 124 Home Telephone 36 888 H. A. BERGMAN, K.C. islenzkur lögfrœOingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 16 66 PHONES 95 052 og 3é 043
LINDAL, BUHR & STEFÁNSSON Barristers, Solicitors, Notaries, etc. W. J. Lindal, K.C., A. Buhr Björn Stefánsson Tcleplione 97 621 Offices: 325 MAIN STREET
0R. K. J. AUSTJVIANN 410 MEDICAL ARTS BLDG. Stundar eingöngu, Augna-, Eyrna-, Nef- og Háls- sjúkdóma Viðtalstími 10—12 fyrir hádegi 3—5 eftir hádegi Skrifstofusimi 80 887 Heimilissími 48 561
J. T. THORSON, K.C. íslenzkur löofrœöinffur 800 GREAT WEST PERM. BLD Phone 9 4 66 8
Thorvaldson & Eggertson Islenzkir lögfræöingar O. S. THORVADDSON, B.A., LL.B. A. O. EOOERTSON, K.G., LL.B. Skrifstofur: 705-706 Confederatton Life Blg. SÍMl 97 024
J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG., WPEG. Fasteignasalar. Leigja hús. Ct ■ vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægl. PHONE 26 821
A.S. BARDAL 84 8 SHERBROOKE ST. Selur Ukkistur og annast um út- farir Allur útbúnaður sá beztl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrlfstofu talsimi: 86 607 Helmllis talslmi: 501 562
ST. REGIS HOTEL. 18 5 SMITH ST., WINNIPEQ pasgilegur og rólegur bústaóur I miObiki borgarinnar. Herbergi $2.00 og þar yfir; m«8 baðklcfa $3.00 og þar yfir. Agætar máltlðir 40c—60c Free Parking for Guests