Lögberg - 13.07.1939, Blaðsíða 5

Lögberg - 13.07.1939, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. JúLí, 1939 5 ^OOMUR! OLD RYE WHISKY PROÐUCT OF HIRAM WAIKER A SONS, CANADA 0 DISTILLERS OF HIRAM WALKER’S LONDON DRY GIN No. 302—12 oz. $1.00 No. 301—25 oz. $2.15 No. 300—40 oz. $3.25 This advertisement is notinserted by the Goverament Liquor Control Commission.The Commission is not responsible for statements made as to quality of products advertised. um að gæta hagsmuna íslend- inga, en vitanlega verða ekki gerðar sömu kröfur til sendi- manna og ræðismanna Dana, sem eru yfirleitt ókunnir landi og þjóð og gert yrði til íslenzkra manna í sömu stöðum. Það er því miður hvergi nema hér í Canada að við ei'gurn því láni að fagna að eiga íslending fyrir ræðismann. Reynslan hefir líka orðið sú, að nær altaf þeg- ar þurft hefir að gjöra þýðingar- mikla og vandasama utanríkis- samninga við erlendar þjóðir hafa íslendingar verið sendir að heiman til samninganna, oftast ásamt sendiherra íslendinga í Kaupmannahöfn, Sveíni Björns- syni. En í 18. gr. sambandslag- anna er ákvæði um það að eftir árslok 1940 geti Alþingi heimtað endurskoðun sáttmálans og hafi samningar ekki tekist innan þriggja ára, eða fyrir árslok 1943, getur Alþingi samþykt að sáttmálinn sé úr gildi fallinn, ef 3/4 hlutar þingmanna greiða því atkvæði og þarf þó enn samþykki þjóðarinnar við almenna at- kvæðagreiðsíu, þar sem 3/4 hlutar kjósenda taka þátt og 3/4 hlutar atkvæða játa sambands- slitum. Til þess að þessu fáist framgengt er bersýnilegt að þjóð- in verður að vera vel samhuga, enda hafa flestir talið að upp- sögn sáttmálan^ og slit sam- bandsins hafi frá öndverðu blas- að við sem eðlilegt framhald í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Á Alþingi 1928 var borin fram fyr- irspurn til stjórnmálaflokkanna hvort þeir væru reðiubúnir að segja sáttmálanum slitið þegar þess yrði kostur og svöruðu allir stjórnmálaflokkarnir því játandi. Á Alþingi 1937 var siðan svo- hljóðandi þingsályktunartillaga samþykt einuin rómi af öllum þingheimi: “Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa nú þegar í samráði við utanríkis- málanefnd þá tilhögun á með- ferð utanríkismálanna, innan lands og utan, sem bezt kann að henta, er íslendingar neyta upp- éagnarákvæðis sambandslaganna og taka alla meðferð málefna sinna í eigin hendur. Tillögur um mál þessi séu síð- an lagðar fyrir Alþingi.” Við umræður málsins á Al- þingi kom skýrt fram að til- gangur Alþnigis var sá að fella samninginn með öllu úr gildi og segja sambandinu slitið. Um þetta stöndum við íslendingar samhuga nú í dag. Á þessum tímum ófriðarhættu og hervæð- inga eru erfiðar og hverfular all- ar ráðagerðir langt fram í tím- ann, en stefna okkar íslendinga í þessu máli er þegar mörkuð. Við viljum sjálfir ráða öllum okkar málum og einir sjá um framkvæmd þeirra. Við teljum að sama reglan gildi í lífi þjóða og einstaklings, að sjálfs er höndin hollust. Ákvörðunin um slit sambandsins við Dani felur enga ásökun í sér í þeirra garð. Sambandinu við Dani, þvi er felst í sambandslögunum verður slitið á sínum tíma, en hið ahd- Iega og menningarlega vináttu- samband okkar við þessa frænd- þjóð er órjúfandi, sem vinátta okkar við hinar aðrar frændþjóð- ir á Norðurlöndum. Menn munu nú syrja hvað tek- ur þá við fvrir fsland eftir 1943? Við tökum sjálfir utanríkismál- in í okkar hendur. Við verðum að senda úr landi íslenzka sendi- herra, a. m. k. 2 til Evrópu og 1 til Vesturheims. Þessir menn þurfa að vera vel færir og dug- legir og hafa staðgóða þekkingu á íslenzku atvinnulífi og við- skiftaþörfum. Þeir fara ekki út í heim til að berast mikið á, heldur til að starfa af dugnaði og af þekkingu að hagsmunum lítillar þjóðar. Hvarvetna þar, sem kostur er verðum við að fá fslendinga eða íslandsvini til þess að annast ræðismensku fyrir okkar hönd, en augljóst er að þar getn lítil laun komið á móti í reiðu fé. Enn hefir engin ákvörðun ver- ið tekin opinberlega um örlög konungssambandsins við Dan- mörkuf því að það er utan sam- bandssáttmálans og bundið erfðarétti, svo sem títt er um konungs sambönd. Samt eru af- drif þess á valdi íslendinga sjálfra og ýmsar raddir hafa heyrst um það heima að eðlilegt væri að hverfa til hins forna og fyrsta stjórnskipulags íslendinga og stofna lýðveldi í formi nútím- ans og eftir fyrirmyndum annara þjóða. Ymsir inunu telja að djarft og óvarlega sé stefnt í þessum málum, eyjan litla sé að slíta af sér öll sín verndartengsl. En við athugun sjáum við það, að Dan- inÖrk getur aldrei ein verndað sjálfstæði íslands gegn herveld- um heimsins og vissulega verð- um við eftir sem áður, aðilar í vináttubandalagi Norðurland- anna og^ hlutleysi okkar áfram viðurkent af öllum þjóðum. Okkar vernd verður því áfram sú sama og nú í dag, vinátta og skilningur stórveldanna í öllum álfum heims. Við verðum því að eignast rparga og sterka vini meðal þjóðanna, sem eigi þola það,. að nein einstök þjóð beiti oss órétti eða svifti oss frelsi. En okkur er það einnig ljóst að hið raunverulega sjálfstæði okk- ar byggist framar öllu öðru á okkur sjálfum. Það er ekki háð vígorðum, heldur athöfnum. Sjálfstæði okkar verður að byggjast á öflugu og traustu at- Vinnulífi Jijóðarinnar, aukinni og fjölþættri framleiðslu og vax- andi viðskiftum um allan heim. Þá vil eg geta hins síðasta og merkasta atburðar á sviði hins nýja samstarfs heiina. Sam- starfsins á sviði ríkisstjórnar - hinnar nýju þjóðstjórnar okkar. Eins og kunnugt er hafa Fram- sóknarflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn í sameiningu farið með völdin á fslandi undanfarin 12 ár. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ir alla þessa tíð verið í andstððu, stundum í mjög öflugri andstöðu við ríkisstjórnina og valdaflokk- ana, og margt á milli borið. Sjálfstæðisflokkurinn er lang stærsti stjórnmálaflokkurinn með þjóðinni og fékk við síðustu Al- þingiskosningar um 42% at- kvæða eðá litlu minna en Fram- sóknarflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn báðir samtals. Á Alþingi varð Framsóknarflokk- urinn hinsvegar fjölmennastur, fékk 19 þingmenn af 49, en Al- þýðuflokkurinn hefir 7 þing- menn. Þessir tveir flokkar hafa því meiri hluta þingsins og geta einir ráðið. En í andstöðunni voru 17 þingmenn Sjálfstæðis- flokksins og 2 þingmenn Bænda- flokksins, sem í síðustu kosn- ingum var í bandalagi við Sjálf- stæðisflokkinn. Erfiðleikar und- anfarinna ára, sem einkum áttu rót sína að rekja til aflabrests á sviði þorskveiðanna og markaðs- erfiðleika opnuðu augu manna fyrir nauðsyn allsherjar samtaka til að leitast við að rétta við at- vinnulífið o^ bæta hag fram- leiðslunnar. ‘ Það var erfitt að gleyma gömlum deilumálum og slíðra sverðin, en eftir langvar- andi samninga, yfirveganir og athuganir tókst það loks og í fyrsta sinn var nú mynduð þjóð- stjórn, sem atlir lýðræðisflokkar Alþingis stóðu að og áttu full- trúa í. I Ríkisstjórnina völdust af hendi Framsóknarflokksins þeir Hermann Jónasson, sem er forsætisráðherra, og Eysteinn Jónsson, sem er viðskiftamála- ráðherra. Af hendi Sjálfstæðis- flokksins, formaður hans, ólafur Thors, sem er atvinnumálaráð- herra, og Jakob Möller, sem er f jármálaráðherra. Alþýðuflokk- urinn valdi formann sinn Stefán Jóh. Stefánsson, sem er félags- málaráðherra. Stjórnin nýtur stuðnings 45 þingmanna, í and- stöðu eru aðeins 4 þingmenn Kommúnista. Það má því telja að nær öll þjóðin standi að baki hinni nýju ríkisstjórn. Þessi nýja samvinna er tilraun til að ráða fram úr vanda tímanna og lægja hinar óheillavænlegu öld- ur flokkastreitunnar. Hversu tekst er enn óvitað, en eg veit að góðar óskir sannra íslend- inga vestan hafs og austan fylgja starfi hinnar nýju stjórn- ar og vonir okkar allra hníga að þvi að það megi farsælt verða. Kjörorð hinnar nýju sam- vinnu og samheldni okkar qiá vel vera það, sem eitt skáldið benti okkur á hátíðisdaginn 1. desember: “Litla þjóð, sem átt í vök að verjast, vertu ei við sjálfa þig að berj- ast.” Og enn eru i fullu gildi orð Jóns Sigurðssonar: “Sameinaðir stöndum við, en sundraðir föllum við.” Mig langar þá enn til að geta nokkurra mála, sem við heima ýmist höfum verið að glima við eða erum að glíma við. Skáldið og stjórnmálaleiðtog- inn Hannes Hafstein spurði þjóðina eitt sinn fyrir löngu: “Hvað verður úr þínum hrynj- andi fossum? . Hvað verður úr þínum flöktandi blossum? Við erum nú í okkar daglega lífi að leitast við að svara þess- um surningum skáldsins; og láta rætast hugsjónir þess um hag- nýting kraftsins úr fossanna skrúða. Vmsum kann að finn- ast það ilt verk að spjalla feg- urð og tign fossanna. En oss er eldi þörf og afls í óru landi og við höfum á siðustu árum verið stórtækir í virkjum foss- anna. Árið 1918 höfðum við aðeins virkjað um 340 hestöfl, nú er virkjunin 18,500 hestöfl. Virkjanir voru þá 8, en eru nú 40. Rafmagnið var þá um 1/2 miljón kilowatt-stundir og náði til 7-8000 manns, en er nú 19 miljónir kilowatt-stundir og nær til um 70,000 nlanns. Stærsta virkjun er Sogsvirkjunin, sem lýsir upp Reykjavík og ljær okk- ur afl til hverskonar iðnaðar. Þar hafa verið virkjuð 10,000 hestöfl. Þaðan getur Reykjavík, Suðurlandsundirlendið alt, Hafn- arfjörður og Vestmannaeyjar fengið meir en nægilegt raf- magn nú og óhætt er að auka neyzluna. því að alls er unt að virkja í Soginu einu 100,000 hestöfl. Aðrar stórar virkjanir eru á Akureyri, fsafirði og á Blönduósi. En rafmagn eigum við í ríkulegum mæli og gætum vel iniðlað öðrum þjóðum, þegar hugvit mannanna hefir gert raf- magnið að útflutningsvöru, því að í fossum íslands býr kynja- kraftur 4 miljóna hestafla. Hin spurning skáldsins var sú: “Hvað verður úr þínum flökt- andi blossum?” fsland hefir ætíð verið landið ísa og elda. En hvernig finst ykkur, háttvirtu tilheyrendur, hljóma sú setning, að hitinn sé ein hin mesta eign íslands? En þetta er nii samt að éætast, hit- inn er einn hinn inesti fjársjóð- ur okkar, það er að segja heita vatnið, sem að inestu ónotað hefir búið í iðruin eldfjallalands- ins. Snorri Sturluson kunni að nytja laugina i Reykholti. Nú hitar heita vatnið í Reykholti skólann þar og staðarhús, og nær allir hinir nýju alþýðuskól- ar sveitanna hafa nægan og ó- þrjótand hita úr nærliggjandi laugum. í gróðurhúsum víðs- vegar um ladið er rækt-að græn- meti, hin fegurstu blóm og suð- rænar drífar. Gróðurhúsin voru fyrst bygð 1923, en ná nú alls yfir um 65 þúsund ferhyrnings- fet. Fyrir nokkrum árum var heitt vatn úr þvottalaugunum leitt til Reykjavíkur og hitar nú upp hinn nýja stóra barnaskóla, sundhöllina nýju og glæsilegu og hverfið þar i kring. En Reykjavik er nú með stórkost- lega ráðagerð á döfinni, að hita upp hvert einasta hiis í höfuð- staðnum með heitu vatni. Jón heit. Þorláksson kít, þegar hann var borgarstjöri, bæinn kaupa vatnsréttindin á Reykjum í Mos- fellssveit. Var þá lítið vatn enn fundið. Síðan hefir vatnsins verið leitað og nú þegar fund- ist nægilegt til að hita upp allan bæinn, eða um 200 lítrar vatns á sekúndu. Verk þetta kostar um 6% miljón króna og er nú fengið lán i Danmörku til þess. íslelizk,ir vepkfræðingar hófðu gert allar teikningar og útreikn- inga og hefir það alt staðist dóma erlendra sérfræðinga. Hita- veitan verður fullgerð og tekur til starfa í árslok 1940. Það verður arðva*nlegt fyrirtæki fyr- ir bæinn og sparar landinu inn- flutning á 35,000 smálestum af kolum á ári. Reykjavík verður þá reyklaus bær. Rafinagnið færir bæjarbúum ljósið og heita vatnið vermir híbýlin. Við eigum næga orku raf- magns og lindir heita vatnsins.' Það er hlutverk okkar að leiða þessar gjafir islenzkrar náttúru inn á hvert heimili. En það land verður að teljast auðugt, gjafmilt, sem á ljós og yl í alls- nægtum fyrir öll landsins börn.— Tími minn er takmarkaður, svo að eg verð að leitast við að fara fljótt yfir sögu. Mig langar að minnaslj litillega á menta- og skólamálin heima. Skólaskylda barnanna hefst við 7 ára aldur og helzt til 14 ára aldurs. Kensl- an er algerlega ókeypis fyrir öll börn, ríkið, ba'jar- og sveitar- félög greiða laun kennara og annan kostnað við kensluna. Þetta á einnig við um alla aðra ríkisskóla frá barnaskóla í há- skóla. Víða til sveita þar sem strjálbýli er mikið er ókleift að hafa sérstakt skólahald, enn kennari ferðast þá um sveitirnar og kennir á heimilum barnanna. í Reykjavík og ýmsum öðrum kaupstöðum hafa á síðustu ár- um verið reistir veglegir barna- skólar með öllum nýtízku þæg- indum. Ríkið sér nú um útgáfu námsbóka til barnafræðslu og fær hvert heimili bækur eftir þörfum gegn árlegu gjaldi, 7 kr. á heimili. Barnmargar fjölskyld- ur þurfa því ekki að gjalda meir fyrir námsbækur en fámennar fjölskyldur. úr barnaskólunum geta ungl- ingarnir ýmist larið í gagn- fræðaskólana, sem nú eru 8, i ölluin kaupstöðum landsins, eða í alþýðuskólana í sveitunum. í þessum skólum er minst tveggja ára nám og eru þar kend öll al- menn fræði. I alþýðuskólunum, sem flestir eru reistir á heituin stöðum, það er að segja í nánd við hverahita, er lögð áherzla á íþróttir og verkleg fræði, til að undirbúa æskuna undir þátt- töku í framleiðslulífi þjóðarinn- ar. Þeir, sem stunda vilja sér- nám fafti ýinist hinn langa mentaveg í annan hvorn menta- skólann, i Reykjavík eða á Akureyri, ljúka þar stúdents- prófi og halda síðan á Háskóla íslands eða til framhaldsnáms við erlenda háskóla, einkum í verkfræði, hagfræði og öðrum alþjóðlegum sérgreinum og vís- indum. Nú eru um 130 stúdent- ar erlendis, en 250 heiina. Aðrir námsmenn geta lagt leið sína i bændaskóla sveitanna, sjómanna- skólann í Reykjavík, Iðnaðar- skóla bæjanna eða Verzlunar- skólana í Reykjavík, og ungu stúlkurnar leita sumar — eða eru sendar —• i Kvennaskólann. Við höfum nú lokið við að reisa mjög veglega og myndarlega há- skólabyggingu. Er þar rúm fyr- ir mörg hundruð stúdenta; bygg- ingin mjög tíguleg og hin inesta bæjarprýði fyrir Reykjavik, og allur aðbúnaður kennara og nemenda eftir fylstu kröfum tímans, enda hefir hún kostað um I/2 miljón króna. útgjöld ríkisins til mentamála hafa far- ið mjög vaxandi á undanförnum árum. Árið 1905 greiddi ríkis- sjóður til mentamála um 140 þús. kr. — árið 1915 364 þús. kr. — 1924 1 milj. 370 þús. kr. en nú um 2 miljónir og 100 þús. kr. — Námfúsir og frámsæknir hafa íslendingar jafnan verið og það er von okkar að þjóð- félagið geti ætið risið undir þvi, að greiða hverju landsins barni, sem hug og hæfileika hefir til, brautina fram til þeirra menta, sem það þráir.— Eg vil þá geta nokkurra menn- ingarmála á sviði þjóðfélagslegra umbóta. Fyrir nokkrum árum voru sett lög um verkamanna- bústaði. Eru bæjarfélég og rík- ið skylduð að leggja fram 2 kr. hvort um sig á íbúa hvers bæjar- félags, þar sem verkamannabú- staðir eru reistir. Rikið ábyrg- ist lán byggingarsjóðanna og fá verkamennirnir 85% lán út á hverja íbúð, til 42 ára með 5% vöxtum. Heil hverl'i verkamanna- bústaða hafa sprottið upp i Reykjavík á undanförnum 7 ár- um, eru það alt myndarlegar sambyggingar, íbúðir vistlegar og þægilegar, enda gætu þessar byggingar sómt sér vel í hvaða stórborg sem væri. Með lögum frá 1. apríl 1936 var komið á alhliða alþýðutrygg- ingum, þær ná aðallega til slysatrygginga, sjúkratrygginga og elli og örorku-trygginga. All- ir verkamenn, neina þeir sem vinna við landlninað, eru trygð- ir gegn slysum og greiða vinnu- veitendur iðgjöldin. Þeir, sem verða frá vinnu vegna slysa fá goldnar 5 kr. á dag og læknis- kostnað. Alger örorka er bætt með 6.000 kr. Eignir slysatrygg- ingarsjóðs eru nú um 1% milj. kr. Sjúkratryggingar ná til allra í kaupstöðum og kauptúnum, og til þeirra sveita þar sem sjúkra- samlög eru stofnuð. Allir greiða til þeirra ákveðið gjald á mán- uði, í Reykjavík t. d. 4 kr„ og hljóta í staðinn ókeypis læknis- hjálp og sjúkravist. Þeir, sem hafa yfir 4,500 kr. skattskyldar tekjur, verða þó að greiða tvö- falt gjald. Ríki og bæjarfélög greiða hvort sin 25% til trygg- inganna, þó ekki yfir 3 kr. á mann. Til ellitryggingar gjalda allir menn 16—67 ára frá 5—7 kr. á ári eftir búsetu, auk 1% af skattskyldum tekjum og munu ellitryggingar geta tekið til fullra starfa árið 1948, en þangað til eru gamalmennum goldin elli- laun. Þá vil eg vfkja nokkuð að at- vinnumálunum. Aðal þættir at- vinnulífsins eru nú sem fyr landbúnaður og sjávarútvegur. Landbúnaður hefir tekið mikl- um breytingum undanfarna ára- tugi, ræktunin stóraukist og vél- arnar viða komið í stað mann- aflans. Árið 1900 voru ræktuð tún á slandi um 18,000 hektarar, en nú er þetta tvöfalt og hefir töðufengurinn einnig tvöfaldast. Búpening hefir einnig fjölgað árið 1900 áttu ísledingar 23,600 nautgripi, en 1937 37,600; sauð- fénaður hefir á sama tíma auk- ist úr 469 þús. } 654,000, enda eiga íslendingar miklu fleira sauðfé á mann en nokkur önnur þjóð á Norðurhveli jarðar. Jarð- ræktarlögin sem sett voru 1923 hafa mjög aukið ræktun og aðr- ar búnaðarframkvæindir. Sam- kvæmt þessum lögum veitir rík- ið verðlaun fyrir ýinsar búnaðar- framkvæmdir, og nema þau ár- lega um /2 milj. króna. Árið 1936 voru sett lög um ný- býli og \samvinnubygðir. Sam- kvæmt þeim styrkir ríkið nýbýli í sveit með 3,500 kr. framlagi og tryggir lán til bygginganna. Svipaðir styrkir eru einnig veitt- ir til samvinnubygða, þ. e. sam- býla í sveit. Framlög ríkisins til landbúnaðar hafa stóraukist á undanförnum árum, þau voru árið 1900, 42,300 kr. — 1920, 346 þús. kr„ en 1935 1 milj. 837 þús. kr. Framleiðsla landbúnaðarins hefir tekið geysilegum stakka- skiftum og aukist stórlega á seinni árum. Verðmæti hennar var áætlað árið 1900 um 7% inilj. kr„ árið 1910, 9.3 milj. en 1930 22.2 milj. og 1937, 29.3 milj. Útflutningsverðmæti land- búnaðarins hefir á sama tíma aukist úr 2.2 milj. kr. í 7.7 milj. kr. — Það hefir greitt mjög fyrir framleðislu og útflutningi, að tekist hefir sala á frystu kjöti í stórum stil, einkum til Bret- lands. Það er talið að um 39,- 000 fslendingar lifi nú á land- búnaði eða 35.8% þjóðarinnar. Þótt miklar breytingar hafi átt sér stað á sviði landbúnaðar eru þær þó mun stórfeldari á sviði sjávarútvegsins. Þar iná segja, að bylting hafi gerst. Frá landnámstíð geta talíst þrjú tímabil í sögu útvegsins. Fyrsta tíinabilið nær alt fram til ársins 1800; þá þekkjast aðeins opnir bátar. Þá kemur tímabil nítj- ándu aldarinnar; þá koma skút- urnar. Loks er síðasta timabilið frá byrjun þessarar aldar; þá koma til sögunnar togararnir, stórtækustu veiðitæki nútímans. Þjóðin tekur þá að sækja á djúpmiðin, afli og afrakstur út- vegsins vaxa svo gífurlega að segja má að bylting verði í atvinnulífinu. Hinn stóraukni atvinnurekstur verður undirstaða framfaranna á þessari öld, því að þaðan kemur afl þeirra hluta sein gera skal og íslendingar bera oftast gæfu til þess að fjármagn- inu fylgja auknar framfarir á sviði framleiðslu og þjóðféíags- legra umbóta. Frá þvi að láta smíða einn nýtízku togara árið 1907 eignast íslendingar yfir 40 fullkomin skip. Jafnframt tog- urum fjölgar línuskipum og vél- bátum. Nú mun láta nærri að íslend- ingar eigi um 36 togara, 30 línu- skip og 300 vélbáta, auk um 700 smærri mótorbáta. Að smálesta- fjölda er allur veiðiskipaflotinn nú um 30,000, og á honum vinna um 7,000 manns. Aukningu skipastólsins hefir auðvitað fylgt aukning fram- leiðslunnar, og má nú telja að árleg fiskiframleiðsla íslendinga sé 600 miljónir punda. Sam- kvæmt tölum alþjóda skrifstofu fiskiveiða framleiða Þjóðverjar árlega um 15 pund af fiski á mann, Frakkar um 24.2, Eng- lendingar um 44.1, Norðmenn (Framh. á 8. bls.) /

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.