Lögberg - 10.08.1939, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 10. ÁGÚST, 1939
7ZLfvfAA 5c
Úr borg og bygð
Látið búa til föt hjá Tesslers
Skoðið úrval vort af innfluttum fataefnum úr ull
$3^.00
Vér búum til fötin í vorri eigin klæðskurðarstofu
TESSLER nafnið er trygging fyrir fylstu ánægju
326 Donald Street Simi 27 9$1
Dr. A. B. Ingimundson
verður væntanlega staddur i
Riverton þann 15. þ. m.
♦ ♦
4. ágúst andaðist á sjúkra-
húsi Akureyrar, Aldís Eiríks-
dóttir frá Uppsölum í Svarfað-
ardal, móðir Þorsteins Þ. Þor-
steinssonar í Winnipeg.
-f' >
Gefin voru saman í hjóna-
band 27. júlí, Mrs. Thóra Ingi-
björg Thorne frá Vancouver
og Sigfús Pálsson frá Winni-
peg. Hjónavígslan fór fram á
heimili Jóns Jóhannssonar á
Lundar, að viðstöddum nán-
ustu vinum. Séra G. Árnason
gifti. Framtíðarheimilið verð-
ur í Vancouver.
♦ ♦
útvarpað verður á íslenzku
yfir stöðina CKY, Winnipeg,
sunnudaginn 20. ágúst, kl. 11-
12.15; séra Valdimar J. Ey-
lands flytur erindi um “Sam-
band kirkjufélagsins við
United Lutheran Church in
America.” Útvarp þetta er að
tilhlutun framkvæmdarnefnd-
ar kirkjufélagsins.
♦ ♦
Þeir bræðurnir Gísli og
Bjarni Jóhannson frá Hallson,
N.D., litu inn á skrifstofu
Lögbergs á þriðjudaginn. Voru
þeir á heimleið frá fslendinga-
dagshátíðinni á Gimli. f för
með þeim voru einnig Frank,
sonur Gisla og kona hans.
Frank er bústttur i Langdon
og er þar miðstöðvarstjóri
bæjarins.
♦ ♦
ÁRDÍS KOMIN ÚT
Ársrit Bandalags lúterskra
kvenna er nú nýprentað. Er
þetta 7. hefti tímaritsins. Efni
þessa heftis er fjölbreytt og
frágangur allur hinn vandað-
asti. Mrs. O. Stephensen er
ritstjóri þessa vinsælá rits, en
Mrs. Finnur Johnson sér um
útbreiðslu þess og fjárhag.
Wolseley Hotel
186 HIGGINS AVE.
(Belnt á móti C.P.R. stöðinni)
SÍMI 91 079
Eina skandinaviska hóteliS
{ borginni
RICHAR LINDIIOIjM,
eigandi
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast greiðlega um alt, sem að
ílutningum lýtur, smáum eða
stórum. Hvergi sanngflarnara
verð.
Heimili: 591 SHERBURN ST.
Sími 35 909
Til þess að tryggja yður
skjóta afgreiðslu
Skuluð þér ávalt kalla upp
SARGENT
TAXI
FRED BUCKLE, Manager
•
PHONE
34 555 - 34 557
SARGENT and AGNES
We can arrange, at very
reasonable rates, the financ-
ing of automobiles being pur-
chased. Consult us for par-
ticulars. J. J. SWANSON &
CO. LTD., 308 Avenue Build-
ing, Phone 26 821.
♦ ♦
Halldóra Sveinsdóttir Ei-
ríksson, kona Rafnkels Eiríks-
sonar að Otto, Man., lézt að
heimili sínu þar í bygð mánu-
daginn 7. ágúst, eftir langa
vanheilsu. Mrs. Eiríkson var
Skaftfellingur að ætt, kom
vestur um haf árið 1903. Jarð-
arförin fór fram frá kirkjunni
að Otto á þriðjudaginn, að
viðstöddu fjölmenni bygðar-
búa. Séra Valdimar J. Ey-
lands jarðsöng.
♦ >
Séra Carl J. Olson, sein nú
er að starfa fyrir Brezka og
Erlenda Biblíufélagið með á-
gætum árangri, hefir fengið
ákveðna og fasta köllun að
starfa í Vatnabygðunum sem
prestur undir merkjum United
Lutheran Church in America.
Mun hann hefja þetta starf i
byrjun næsta mánaðar. United
Lutheran Church hefir kallað
séra Carl samkvæmt ósk fólks
þar vestra og í samráði við
embættismenn hins íslenzka
og lúterska kirkjufélags.
♦ *
Júní-hefti Eimreiðarinnar er
nýkomið vestur. Kennir þar
margra grasa að efni til.
“Vestur-fslenzkur fróðleiks-
maður” nefnir ritstjórinn eina
grein sína. Eii það mjög vin-
samleg og réttmæt frásögn um
Árna S. Mýrdal á Point Rob-
erts. Ritgjörðinni fylgja fjór-
ar myndir, af Árna sextugum,
heimili hans, bryggjunni á
Point Roberts, og sólarlags
mynd frá sjávarbakkanum á
Roberts tanga.
Þjóðhöfðingjar Evrópu, er
réðu ríkjum fyrir heimsstyrj-
öldina, voru allflestir miklir
reykingamenn. Gamli Franz
Jósef keisari í Austurríki
reykti Ianda, sterka vindla,
sem búnir vofu til úr sterk-
ustu tóbaksblöðum. Þeir sem
umgengust keisarann voru oft
í stökustu vandræðum vegna
þess hve reykurinn af vindl-
unum var megi og óþægilegur.
Franz gamli Jóséf virtist aft-
ur á móti ekki finna til þess,
þvi hann reykti um 20 slika
“útivindla” á dag.
Rússneski zarinn reykti vel-
lyktandi sígarettur, sem voru
búnar til sérstaklega fyrir
hann, og hann reykti oft 50
stykki á dag.
Vilhjálmur Þýzkalandskeis-
ari reykti vindla og vildi helzt
reykja Havana-vindla, sem
voru a. m. k. 18 sentimetrar á
lengd. Það kom ekki ósjald-
Messuboð
FYRSTA LÚT. KIRKJA
Séra Valdimar J. Eylands
prestur
Heimili: 776 Victor Street
Sími 29 017
Morgunguðsþjónustur og
sunnudagaskóli falla niður i
júlí og ágúst.
íslenzkar guðsþjónustur
verða fluttar á hverju sunnu-
dagskveldi kl. 7 alt sumarið.
♦ ♦
Séra Bjarni A. Bjarnason,
prestur Gimli prestakalls, flyt-
ur guðsþjónustu í Fyrstu lút-
ersku kirkju á sunnudags-
kvöldið kemur kl. 7.
♦ ♦
Séra V. J. Eylands flytur
guðsþjónustué í Upham, N.D.,
næstkomandi sunnudag, 13.
ágúst. Messað verður bæði á
ensku og íslenzku á venjuleg-
um tíma.
♦ ♦
SELKIRK LÚT. KIRKJA
Sunudaginn 13. ágúst
fslenzk messa, kl. 7 að kvöldi,
séra Jóhann Bjarnason.—
♦ ♦
Sunnudaginn 13. ág. messar
séra H. Sigmar í Fjallakirkju
kl. 11 f. h., í Eyford, kl. 2.30
og í Péturskirkju kl. 8 að
kveldinu. Messan í Péturs-
kirkju fer fram á ensku.
♦ ♦
MESSUR í LANGRUTH
13. ágúst—fslenzk guðsþjón-
usta kl. 2 e. h. Börn verða
skírð. Sú athöfn fer fram
bæði á íslenzku og ensku.
20. ágúst—íslenzk guðsþjón-
usta kl. 2 e. h. Safnaðar-
fundur á eftir til að ræða og
greiða atkvæði um samþykt
kirkjufélagsins viðvíkjandi
inngöngu í United Lutheran
Church.
27. ágúst—Ferming og alt-
arisganga. Bæði málin verða
notuð.
Barnaspurningar á laugar-
dagskvöldin og á sunnudags-
morgnana.
Allir eru boðnir og velkomn-
ir! Um þessar mundi starfa
eg sex daga í viku fyrir Biblíu-
félagið og i Langruth á sunnu-
dögum.
C. .1. Olson.
an fyrir að hann reykti 10
slíka vindla á dag.
Játvarður sjöundi Bretakon-
ungur reykti þó enn stærri
vindla, eða 22 sentimetra
langa, og þar að auki voru
þeir fjórum sentimetrum
þykkari en þeir sem Vilhjálm-
ur reykti. Það tók að minsta
kosti klukkutima og 15 min-
útur ag reykja þessa njóla, en
Játvarður stútaði samt nokkr-
um stykkjum á dag.
Mikilmennin högværust
Bærinn Fíladelfía í Banda-
ríkjunum veitir á tilteknum
timabilum heiðurspening og
pyngju gulls þeim borgara
sínum, sem að dómi hæfrar
nefndar hefir um vist skeið
orðið borginni að mestu liði.
Þegar fyrir nokkéum árum
velþektum lækni þar voru á-
nöfnuð tíu þúsund dollara
verðlaun auk heiðurspenings,
og nafn hans var kallað á
fundi í Academy ol' Music
höllinni, neitaði hann að gefa
sig fram, fyr en vinir hans
þrengdu honum til þess.
Eftir að lækninum hafði
verið afhentur heiðurspening-
urinn fyrir að hafa fundið
upp verkfæri, sem gerði hon-
um unt að ná öryggisnælum
og öðru slíku úr lungum og
maga sjúkjinga sinna, hafði
hann orð á því, að verðlaunin
hefðu átt að lenda hjá öðrum
en sér. Svo skýrði hann frá
því, hvað gert hefði sér mögu-
legt að framkvæma ýmislegt
það, sem nafnfrægð hefði fært
sér. Heiðurinn bæri sér ekki,
því starfsnákvæmnina hefði
hann lært af ömmu sinni, og
erft frá afa sínum hagleiks-
vitið. Afi sinn hefði og sagt
sér sögu, sem komið hefði sér
til að forðast áfenga drykki,
og vegna bindindissemi sinnar
hefði sér hlotnast óskýjað
auga og styrkur í handtaki.
Löngunina til læknisfræðis-
náms hefði móðir sín vakið,
og faðirinn hvatt sig að temja
hönd og auga, og með stöðugri
a>fing venja vinstri hönd til
að vinna hvert verk jafn-hæg-
lega sem hin hægri. — Svo
eftir tuttugu og tveggja ára
þraut, hefði sér lærst að leysa
vandamálið um gleyptu ör-
yggisnæluna.
Hugmynd um þrautseigju
laskjnisins við þessa hugsjón
The Watch Shopj
Diamonds - Watches - Jewelry j
Agents for BULOVA Watches j
Marriage Licenses Issued j
THORLAKSON & BALOWTN j
Watchmakers and Jewellers 1
699 SARGENT AVE., WPG. 1
i
sína fáum vér, er vér lesum
um það, að i tvo mánuði
braut hann heilann um hvern-
ig lukkast mætti að ná upp
úr maga barns fjórum ör-
yggisnælum, er það hafði
gleypt, allar opnar og festar
hverja í aðra með ullarbands-
spotta. Honum hepnaðist þó
loks að losa barnið við allar
nælurnar fjórar.
úr víðri veröld hafa sjúkl-
ingar leitað til snillings þessa
•og læknar alstaðar að komið
til að læra af honum. Um
þessi efni hefir hann og skrif-
að til leiðbeiningar bækur,
sem læknar allra landa not-
færa sér.
Snjall eins og þessi maður
er, vill hann þó ávalt þakka
öðrum afrek sín. Þegar hon-
um var fengin ávísan fyrir
tíu þúsund dollara verðlaun-
unum, ritaði hann nafn sitt
aftan á seðilinn og fékk hann
svo konu sinni til eignar.
Næsta dag hélt hann svo á-
fram starfi sínu sem kennari
í tveimur læknaskólum, til
þess að aðrir fengi af honum
lært hvernig einnig þeir gæti
orðið að liði fólki því, er af
kvillum þjáist. ,
(Lausl. þýtt.—s.)
Minniát BETEL
í
erfðaskrám yðar
PETERSON BROS.
ICE
and
WOOD
♦
BOX 46
GIMLI, MAN.
♦
Áreiðanleg viðskifti ábyrgst
(Hintli íl’obgc
EXCELLENT ACCOMMODATION
ROOM AND MEALS, $1.50 A DAY
Special Price per Week
For Reservation Write . . .
Mrs. S. J. SIGMAR, GIMLI L.ODGE
GIMLI, MAN.
HARÐFISKUR
'Þeir, sem vilja fá sér hinn ágæta harðfisk frá fslandi,
geta snúið sér til þessara verzlunarmanna:
LAKESIDE TRADING CO (Red & White), Gimli, Man.
ARBORG CO-OPERATIVE STORE, Arborg Man.
WILHELM PETURSSON, Baldur, Man.
A. BERGMAN, Wynyard, Sask.
J. H. GOODMUNDSON (Red & White), Elfros, Sask.
.1. STEFANSSON, Piney, Man.
óskað eftir umboðsmönnum úr fleiri bygðum
West End Eood Market
680 SARGENT AVE.
STEINDÓR JAKOBSSON, eigandi