Lögberg - 07.12.1939, Blaðsíða 1
M
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. DESEMBER, 1939
Rússar hef ja níðingslega árás á Finna
og nota lognar sakargiftir að yfirskini;
sækja að saklausri þjóð úr öllum áttum, og strádrepa
konur, börn og gamalmenni með sprengjum úr lofti
Brezk loftför
Fólk hér uin slóðir gat
naumast trúað sínum eigin
eyrum, er útvarpið flutti þau
tíðindi á fimtudagsmorgun-
inn, að rauðfylkingar Jósefs
Stalins hefði ráðist inn á
Finnland, varpað sprengjum
yfir Helsingfors og ýmsa aðra
bæi. Og þó það væri vitað,
að Rússar hefði gert hinar og
þessar kröfur á hendur finsku
þjóðinni um flugstöðvar og
herskipakviar, þá kom alþjóð
manna það engu að síður á
óvart, að farið yrði jafn
stranglega og nákvæmlega að
fordæmi Hitlers og hér varð
raun á; að svívirðingin gagn-
vart Czechoslóvakíu og Pól-
landi yrði jafn bókstaflega
endurtekin og nú er komið á
daginn. Finnar eru. smáþjóð
að höfðatölu borið saman við
Rússa; innan við 4 miljónir til
móts við um 180 miljónir
rússneskra rauðliða. Finnar
höfðu sent eina nefndina eftir
aðra til Moskva með það fyrir
augum að afstýra vandræðum;
þeir tjáðu sig fúsa til þess að
mæta Rússum á miðri leið;
veita þeim hlunnindi með til-
liti til herskipahafna, en
neituðu á hinn bóginn kröfu
Rússa um það, að þeir fengi
umráð yfir flugvöllum hér og
þar um landið. Og sem eðli-
legt var, kváðust þeir ekki
geta gengið að neinum þeim
kröfum er bryti í bága við
sjálfstjórn þeirra og þjóðernis.
legt frelsi. En til þess að
svala græðgi sinni, og láta
skriða til skarar, lét soviet-
stjórnin rússneska útvarpið
flytja þau tíðindi, að Finnar
hefði skotið niður fjóra rúss-
neska hermenn á landamær-
unum, og að við svo húið
mætti ekki lengur standa.
Finnar mótmæltu ákæru þess-
ari stranglega og töldu hana
vera tóman heilaspuna; al-
inenningsálitið tekur þá trú-
anlega fram yfir Rússann.
Jafnskjótt og þessi furðu-
lega frétt um árás Rússa á
Finnland varð beyrinkunn,
sendi Roosevelt forseti stjórn-
um þjóðanna beggja alvarlega
áskorun í þá átt, að beita
ekki loftsprengjum við hern-
að sinn. Stjórn Finna
þakkaði forseta samstundis
góðvilja hans og hinnar ame-
rísku þjóðar, en frá Rússum
barst honum seint og siðar
ineir loðið málainyndarsvar,
sem ekkert var á að græða.
Siðmannaðar þjóðir, svo sem
Bandaríkin og Bretland, hafa
þunglega ávítt Rússa fyrir
villimannlega herferð gegn
saklausri þjóð. Norðurlanda.
þjóðirnar þrjár, Danmörk,
Noregur og Svíþjóð, hafa eigi
sent Rússum opinber mót-
mæli; vita sem er, að slíkt
myndi að litlu haldi koma;
hinsvegar rennur þeim blóðið
til skyldunnar, og láta blöð
þeirra þess getið, að þeim
svelli réttlát reiði í æðum.
deild. 96 nemendur tóku
gagnfræðapróf, þar af 38 nem-
endur úr gagnfræðaskóla
Reykjvíkinga, er fengu próf-
skírteini úr sínum eigin skóla.
Af hinum 58 voru 27 úr
mentaskólanum, en 31 utan-
skólanemendur. Af þeim féllu
8 við prófið. f upphafi skóla-
árs luku tveir nemendur stú-
dentsprófi máladeildar. Hinn
17. júní útskrifuðust 30 stú-
dentar lir máladeild, þar af 4
utanskólanemendur. úr stærð-
fræðideildinni útskrifaðist 21
stúdent.
+
Tíminn hefir haft fregnir úr
Haukadal i Dalasýslu. Þar i
sveit sein annarsstaðar á þeim
slóðum, var heyfengur manna
framúrskarandi góður í sum-
ar og grasspretta ágæt. Er
mikið sett á af fénaði eftir
því sem um er að ræða og
kringumstæður ýmsar leyfa.
En eins og kunnugt er, hefir
mæðiveikin höggvið drjúg
skörð í bústofn bænda á þess-
um slóðum undanfarin ár. f
suinar tók til starfa smjör'
'samlag i Búðardal og flytja
bændur úr sveitunum við botn
Hvannnsfjarðar þangað smjör,
er þeir framleiða til sölu. Þar
er það hnoðað, metið, sett í
umbúðir og sent á sölumark-
aðinn. Hefir smjörið frá sam.
laginu í Búðardal likað vel.
Bændur í Haukadal, sem aðr-
ir við Hvammsfjarðarbotninn,
reyna eftir föngum að nota sér
Þann 3. þ. m. sVeimuðu
nokkur hrezk loftför yfir her-
skipakvíar Þjóðverja við Heli-
goland, og vörpuðu sprengjum
niður á þýzk herskip, er lágu
þar í höfn. Samkvæmt til-
kynningu frá flotaráðuneyt-
inu brezka, varð að minsta
kosti eitt eitt þýzkt beitiskip
lyrir sprengju og skemdist
allverulega.
Frá
Vesturvígstöðvunum
Fram að þessu hafa engar
stórorustur háðar verið á
vesturvígstöðvunum; mest
hefir kveðið að flugárásum,
og hafa Þjóðverjar jafnaðar-
legast mátt sín iniður; veður-
far hefir verið óhagstætt til
meiri háttar vígaferla.
Teleqram from lceland
Reylkjavik
Dec. 5th, 1939
Icelandic National League,
45 Home St.r Winnipeg.
Icelandic Government, Dec.
5th, 1939 — National League
founded Dec. lst. Committee:
Asgeir Asgeirsson, Jonas Jóns-
son, Thor Thors. Council of
26 members. Great interest.
Members association evidently
will be numerous.
—Chairman External
Committee.
Nýjustu fregnir
Simað er frá Stokkhólmi á
miðvilcudagsmorguninn, að
Finnar hafi skotið niður yfir
80 rússneskar flughernaðar-
vélar, og gereyðilagt um 30
tanks. Það fylgir sögu, að á
fjórða þúsund rússneskra
hermanna hafi þegar látið líf
sitt í þessu vikugamla striði
milli Rússa og finsku þjóðar-
innar. Mannfall af hálfu
Finna hefir fram að þessu
verið litið.
+ ♦
Samsteypuráðuneyti er rétt
í þann veginn að vera mynd-
að í Sviþjóð; hafa Svíar kvatt
til herþjónustu alla menn á
herskyldualdri, og auka víg-
varnir af\ kappi.
þessa nýju sjálfsbjargarleið.
Er þessi leið því skynsamlegri,
að ræktunarskilyrði eru ágæt
í Haukadal, graslendi mikið,
en vetrarríki. Eigi voru menn
þó undir smjörframleiðslu
búnir, kýr víðast fáar, auk
þess sem sumir bændur hafa
reynt að bjarga sér i örðug-
leikum siðustu ára, þegar
sauðfjárafurðir gengu saman,
með þ\d að selja kýr, jafnvel
þótt með þvi hafi verið gengið
á kúaeignina.
Finnar leita ásjár
Þjóðbandalagsins
Stjórn Finnlands hefir snú-
ið sér til Þjóðbandalagsins og
farið þess á leit, að það beiti
sér fyrir ]iví, að koina sadt-
um á við Rússa; framkvæmd-
arnefnd léðs bandalags held-
ur fund í Geneva þann 9. þ.
m. til ihugunar málaleitan
hinna finsku stjórnarvalda.
Finnar hafa reynst Rússum
harðir í horn að taka, og hafa
skotið niður fyrir þeim að
minsta kosti 20 flugvélar, er
siðast fréttist.
Stjórn Argentínu krefst þess
að Rússar verði reknir úr
Þjóðbandalaginu vegna árásar
þeirra á Finnland.
Hafa í hótunum
við Svía
Samkvæmt símfregnum frá
Kaupmannahöfn á mánudag-
inn eru Þjóðverjar farnir að
gerast allnærgöngulir Svíum
og hafa í hótunum við þá;
kemur þetta meðal annars
fram vegna árása þeirra á
utanríkisráðherrann sænska,
R. .1. Sandler, er þeir krefjast
að vikið verði samstundis frá
embætti vegna vinsainlegra
ummæla hans í garð Finna,
en þungyrða i garð Rússa.
Frá Islandi
í nýútkomnum kaupsýslu-
tíðindum eru birt ýms atriði
úr reikningum bankanna og
meðal annars er þar yfirlit um
lánsfjárþensluna. í ágústmán-
aðarlok nam fé það, sem í út-
lánum var, 104,169 þúsundum
króna og munu útlánin aldrei
hafa verið meiri á sama tíma
áður. Síðustil þrjú ár hefir
þessi upphæð numið innan
við 100 miljónum króna.
Seðlaumferðin hefir farið vax-
andi undanfarin ár og er meiri
i ár, en nokkru sinni fyr, nam
12,670 þúsundum króna 1.
ágúst síðastliðinn. Innstæðu.
fé i bönkunum er einnig meira
nú en verið hefir síðustu árin,
nam 73,067 miljónuin króna í
ágústlok. f ágústlok í fyrra
nam það 66.232 þúsund krón-
um, en var minna næstu ár
á undan. Skuldir bankanna
við litlönd voru í mesta lagi í
ágústlok. námu alls 16.116
þúsundum króna, en voru í
fyrra 12,147 þúsund krónur.
Er það meðal annars vegna
mikils innflutnings á iitgerð-
arvörum fyrri hluta sumars.
♦ -f
Timanum hefir borist árs-
skýrsla mentask. í Reykjavík
1938—39. Samkvæmt henni
voru nemendur skólans í fyrra
í upphafi kenslutímans, alls
260. Þar af voru 54 í gagn-
fræðadeild, en 206 í lærdóms-
NÚMER 48
300 Islendingar
sitja veizlu
í Vancouver
Á föstudagskveldið þann 18.
nóvember síðastliðinn, söfn-
uðust saman til veizluhalds í
Vancouver þrjúhundruð fs-
lendingar; var tilefni hátíðar-
halds þessa það, að minnast
tuttugu og tveggja ára af-
mælis kvenfélagsins “Sólskin,”
sem verið hefir áhrifamestur
félagsskapur meðal fslend-
inga í Vancouverborg; í veizlu
þessari skorti hvorki gleði nc
góðan fagnað; voru þar fram-
bornir uppáhaldsréttir ís-
lenzku þjóðarinnar, og svign-
uðu borð undan krásum eins
og viðgekst í fornum sið.
Skemtiskrá var fjölbreytt;
aðalræðuna flutti Mr. Gus
Sivertz, blaðamaður, auk þess
sem séra K. K. ólafsson flutti
stutta tölu og árnaði kvenfé-
laginu heilla. Mr. Frank
Frederickson hafði veizlu-
stjórn með höndum.
Tveir mœtir menn
GESTUR PÁLSSON
Á volkinu um breiðan brim-
garð hann:
Sín beztu samdi ritin merk.
En Frón á eigi fremri mann,
Er fegri sýndi snildarverk.
♦
SKÚLI THORODDSEN
Hann var íslenzk hetja:
Hugumstór og mætur,
—Garðarsey hann grætur:
Kappi þjóð að hvetja.
Jnn Kernested.
F r amkvœmdarnef nd
Fyrsta lúterska
safnaðar
fyrir timnbiliö 1939-40
Dr. B. .1. Brandson, 214
Waverley St., Phone 403 288,
Hon. President; G. F. Jonas-
son, 195 Ash: St., Ph. 401 722,
President; S. W. Melsted, 673
Bannatyne Ave., Ph. 27 616,
Vice-President; G. L. Johann-
son, Ste. 7 Cavell Apts., Phone
28 637, Secretary; D. Henrick-
son, 977 Dominion St., Phone
38 763, Treasurer; Wm. Frid-
finnson, 622 Agnes St., Phone
87 082, Asst. Treasurer; Th.
Stone, 719 William ATe.,
Ph. 28 014, Church Warden;
Dr. A. Blondal, 806 Victor St.,
Phone 28 180, Choir Warden;
L. G. Johnson, 805 Sherburn
St.. Phone 38 317, Publicity;
G. Levy, 251 Furby St., Phone
35 758, House Committee; J.
S. Gillies, 680 Banning St.,
Phone 38 078, House Com-
mittee.