Lögberg - 18.01.1940, Blaðsíða 1

Lögberg - 18.01.1940, Blaðsíða 1
PHONE 86 311 Seven Lines Cot .%o*dd^Ss^ k*:”»»°fx ‘al Service and Satisfaction 'A0tí PHONE 86 311 Seven Lines >/&**** v**Sssi*** Cot- ^ For Better Dry Cleaning and Laundry 53. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. JANÚAR, 1?40 NÚMER 3 Þjóðþing Breta tekið til starfa Á þriðjudaginn kom þjóðþing Breta saman á ný eftir það hlé, er það tók sér um hátíðaleytið. Búist hafði verið við að eitt og annað myndi þar sögulegt ger- ast vegna endurskipunar þeirrar, sem#gerð var á ráðuneytinu og skýrt var frá í siðasta blaði; einkum var þó uggur í lofti vegna embættisafsagnar hermála- i'áðgjafans, Hore-Belisha; en er á hólminn kom, varð almenn- ingur litlu vísari um þær orsak- 'r> er til grundvallar fvrir em- bættisafsögninni lágu. Mr. Cham- berlain kvað það kórvillu eina, að áhrif frá hærri stöðum innan vébanda hersins, hefði ráðið nokkru um embættisafsögn hins Iráfarna hermálaráðherra, enda yði hinar mörgu umbótaráðstaf- íinir Mr. Belisha í sambandi við herinn látnar standa óhrevfðar; frekari upplýsingar vildi Mr. Chamberlain ekki veita þinginu á þessu stigi málsins; en hitt brýndi hann fyrir þingheimi, að viðhorfið á vettvangi stríðsmál- anna væri slikt, að þjóðin yrði að vera því viðbúin, að inna af hendi hvaða fórn sem væri, sam- einuð og samstemd að einu og sama takmarki, því, að vinna Mríðið. Liberalflokkurinn og ilokkur hinna óháðu verka- manna, töldu upplýsingar Mr. ( hamberlains með tilliti til Hore- Belisha með öllu ófullnægjandi °g kröfðust þess að spilin yrði 511 lögð á borðið. Láta engan bilbug á sér finna Bussneskir rauðliðar hafa fyr- h'- munn þeirra Stalins og Molo- tofls, haft í hótunum við Svía'og Norðmenn vegna afstöðu þeirra 61 árásarinnar á Finnland; bera l,eii' stjórnum þessara tveggja Norðurlandaþjóða það á brýn, þær hafi brotið hlutleysi sitt með því að veita Finnum að malum. Þessum ákærum hafa nu Sviar og Norðmenn opinber- lega svarað, og falið þær með öllu rakalausar; sænskum og norskum einstakingum sé það óumflýjanlega heimilt, að veita binnum hverja þá aðstoð, er þeir telji sér skylt að láta í té, an þess að til mála komi að með því sé brotin alþjóðalög. Hinar norrænu þjóðir láta engan bil- bug á sér finna, og þora óhikað :,ð segja þeim Stalin og Molotoff til syndanna. Simað er frá Stokkhólmi á mánudaginn, að rússneskar flug- %elai hati varpað sprengjum yfir smáeyjar, er teljast til Sviþjóð- ar; þessu hermdarverki hafa S\íai þegar stranglega mótmælt við rússnesk stjórnarvöld. Rússar herða árás gegn Finnum Frá Stokkhólmi er símað á þriðjudaginn, að Rússar hafi safnað að sér ógrynni liðs á x austurvístöðvunum, og má nú því þar vænta geigvænlegrar á- rásar á Finna á hverri stundu. Á mánudaginn sveimaði aragrúi rússneskra flugvéla yfir borgum Finnlands og varpaði sprengjum í hundraðatali; eignaspjöll urðu nokkur, en manntjón tiltölulega lítið. Mælt er að Finnar hafi skotið niður tíu rússneskar flugvélar þá um daginn. Mr. Belisha kvað engan á- greining eiga sér stað milli sin og Mr. Chamberlains i neinum þeim megin ráðstöfunum, er að stríðinu Iytu; en á hitt sagðist hann aldrei hafa komið auga, að Unt væri að skipuleggja herinn of lýðfrjálslega til þess að herj- ast fyrir lýðfrelsi. Þýzkt vöruskip sekkur við Island í vikunni, sem leið, flutti canadiska útvarpið þá fregn, að þýzkt vöruskip hefði rekist á ís- jaka mikinn norðvestur af ís- landi, og sokkið á sjávarbotn; það fylgdi sögu, að íslenzkur togari hefði samstundis komið á vettvang og bjargað skipverj- um, er voru 65 að tölu. Frá Islandi Kommúnistar reknir úr Þingmannasam bandi Norðnrlanda. Fjörutíu og tveir þingmenn lýstu yfir þvi á fundi sameinaðs þings í gær, að þeir álitu þing- setn kommúnista ósamboðna þingiiiu og jafnframt var tekin sú ákvörðun á fundi íslands- deildar þingmannasambands Norðurlanda að víkja þingmönn- um kommúnista úr sambandinu. Áður en þingfundir hófust í þingdeildum í gær var boðaður fundur í sameinuðu þingi og las varaforseti, Pétur Ottesen, svo- hljóðandi yfirlýsingu: “Vegna þeirrar afstöðn, er kommúnistaflokkurinn, er hér starfar undir nafninn Samein- ingarflokkur alþýðu — socialista flokku-rinn^ þingmcnn þess flokks og málgögn, hafa markað sér tit frelsis, réttinda og lýðræð- is smáþjóðanna síðustu vikurn- ar og alveg sérstaklega viðvikj- andi málefnum Finnlands, lýsa undirritaðir alþingismenn gfir því, að þeir telja virðingu al- þingis misboðið með þingsetu fulltrúa slíks flokks.” Undir yfirlýsingu þessa höfðu 42 þingmenn ritað nöfn sin. Þrír þingmenn, Gísli Guðmundsson, Haraldur Guðmundsson og Jó- hann Jósefsson, voru fjarverandi og gátu því ekki ritað undir yfir- lýsinguna. Engar umræður urðu eftir þessa yfirlýsingu, enda var það ekki viðeigandi, þar sem hér var ekki um neina tillögu að ræða. Að þessum fundi loknum var haldinn lokaður fundur í ís- landsdeild þingmannasambands Norðurlanda. — Formaður fs- landsdeildarinnar. Hermann Jón- asson, lagði þar fram tillögu, sem var samþykt með atkvæðum allra viðstaddra, nema kommún- ista. Tillagan er svohljóðandi: “Vegna þeirrar afstöðu, er kommúnistaflo kkuæi n n, er hér starfar undir nafninn Samein- ingarflokkur alþýðu—sósíalista- flokkurinn, þingmenn þess flokks og málgögn, hafa markað sér til frelsis, réttinda og lýðræðis smá- þjóðanna síðustu vikurnar og alveg sérstaklega viðvíkjandi málefnum Finnlands, er ekki við það hlitandi að þingmenn kom- múnistaflokksins séu meðlimir MRS. B. J. BftANDSON, one of the Patronesses fo-r the Dance and Bridge, under the auspices of the Jon Sigurdsson Chapter, I.O.D.E., to be held on February 2nd. (Friday Eve.) at the Marl borough Ilotel. Þingmannasambands No-rður- landa, þar sem hyrningarsteinn þess félagsskapar er lýðræði og markmið hans meðal annars aö styðja að alþjóðlegri friðarhfeyf- ingu og samvinnu þjóða á milli. Þess vegna ályktar fundurinn að víkja alþingismönnunum Brynj- ólfi Bjarnasyni, Einari Olgeirs- syni, Héðni Valdimarssyni og ís- leifi Höfnasyni úr íslandsdeild Þingmannasambands Norður- landa.” Með framangreindri yfirlýs- ingu og burjvikningu kommún- ista úr Þingmannasambandi Norðurlanda hefir Alþing áreið- anlega túlkað vilja meginþorra þjóðarinnar og sýnt kommúnist- um verðskuldaða andúð fyrir fjandskap þeirra gegn rétti smá- þjóðanna og undirlægjuhátt við erlent vald. En nú er það al- mennings að framfylgja þessari stefnu í verki, og sýna kommún- istum i hvivetna þá andúð og fyrirlitningu, sem starfshættir þeirra verðskulda. Það á t. d. að vera fyrir neðan virðingu allra sæmilegra manna að láta blaðsnepil þeirra sjást á heimil- um sínum eða hafa þá með í ráðum í neinum félagsskap. Þeir eiga að finna til þess, að ineð þjónustu sinni við erlent ofbeldisvald og fordæmingu sinni á sjálfstæði smáþjóðanna, hafa þeir fyrirgert rétti sinum til á- Bókagjöf Bókasafni háskólans í Mani- toba hefir nýverið borist i hend- ur álitleg viðbót við hið islenzka bókasafn sitt úr dánarbúi Hall- dórs Jónssonar, er heima átti að Wynvard, Sask. Er hér um að ræða 88 bindi vel innbundinna bóka og tímarita í bundnu og óbundnu máli. Sumar bækurnar eru eftir canadiska rithöfunda af íslenzkum uppruna. T\yær bækur í þessu safni frá Wyn- yard, eru næsta fágætar; prent- aðar 1836 og 1837, Þessi gjöf er gefin háskólabókasafninu i sama anda og hið mikla safn A. B. Olsons, með hliðsjón af væntanlegum háskólastól í is- lenzkum fræðum við Manitoba- háskólann. hrifa á íslenzk mál. Með slik- um samtökum almennings verð- ur fullkomið áhrifaleysi þeirra bezí: trygt og á öruggaslan og glæsilegastan hátt slegin skjald- horg um lýðréttindi einstakling- anna og frelsi þjóðarinnar, sem kommúnistar vilja fá erlent vald til að brjóta niður. —Tíminn, 5. des. • Dýrtiðin 'Aðal-vísitala m atvælanna hadckaði siðastliðinn mánuð um 23 stig eða 12%. Hún er nú konlin upp í 219 st. — Vísitala eldsneytis og ljósmetis hækkaði heldur meira, eða um 26 stig, 13%. Hækkunin á þessum tölum móts við növember i fyrra, nem- ur á matvælum 29 stigum, þ. e. hún var 190 st. í fyrra, en ljós- metistalan er nú 39 stigum hærri en um sama leyti í fyrra. Fiskur var eina matvaran, sem ekki hækkaði i verði í nóv- ember, en á öðrum nemur hækk- unin alt að 74% — sykur. Brauð hækkaði um 33%. Til samanburðar má geta þess, að matvara handa 5-manna fjöl- skyldu, sem kostaði 846,34 kr. 1914, kostar nú kr. 1855.38. —Vísir 7. des. • Kolasmálestin hækkar um 15 krónur Kolaverð hækkar í dag um 15 krónur smálestin, úr 77 kr. í 92 krónur. Vísir átti í morgun tal við Guðjón Teitsson, formann Verð- lagsnefndhr og spurði hann um þessa hækkun. Kvað Guðjón þetta vera verð- jöfnun á þrem kolaförmum, sem væri væntanlegir (einn þeirra mun þó vera kominn) og birgð- um þeim sem hér eru fyrir- liggjandi. Farmar þessir eru um 13 þús. smál., og eru þeir um helmingi meiri en fyrirliggj- andi birgðir. Verð nýju kol- anna verður því ekki eins hátt og orðið hefði ef verðjöfnun þessi hefði ekki verið fram- kvæmd. Kolabirgðir hér voru orðnar óvenjulega litlar, en vonast er til að ekki þurfi að gera frekari kolakaup til vors. Eins og les- Ægilegt námaslys í West Virginia Þann 11. þessa mánaðar vildi til ægilegt slys i Burkley-nám- unum í West Virginia; féll þar saman náma, og létu 92 menn þar lif sitt; milli þrjátíu og fjörutíu menn hjörguðust af; er þetta talið eitt hið allra stór- kostlegasta slys, sem komið hef- ir fyrir í námasögu Bandarikj- anna. Jafnskjótt og hljóðbært varð um slvsið, kom á vettvang úr nærliggjandi bæjum og hér- öðum mannfjöldi mikill til þess að hjálpa til við björgunarstarí- semina; framan af töldu náma- fræðingar nokkur líkindi á að loftræsla í námunni væri slík, að hinir innilokuðu inenn myndi halda lífi, en hér fór á annan veg; þeir voru allir dánir, er að þeim var komið. endum Vísis er kunnugt kærði eftirlitsmaður kolaverzlana nokkra kolabirgðasafnara fyrir lögreglunni fyrir skemstu. —Vísir 7. des. • Verzlunarjöfnuðurinn er nú orðinn hagstæður um 7.1 milj. kr. í nóveinbermánuði nam heild- arútflutningur landsins, sam- kvæmt bráðabirgðarskýrslum Hagstofunnar, um 10.5 miljónir króna, en innflutningurinn varð um 5.7 milj. króna. Við mánaðamót okt.—nóv. var hagstæður verzlunarjöfnuður orðinn um 2.3 miljónir kr„ svo að hann'liefir ha'kkað upp í 7.1 miljón í síðastliðnum inánuði. í lok október var húið að flytja út íslenzkar afurðir fyrir 52.572 þús. króna, og er því heildarút- flutningurinn nú orðinn um 63 milj. kr. í lok október var innflutning- urinn hinsvegar orðinn 50,220 þús. kr„ svo að hann er nú orð- inn tæpl. 56.000 þús. kr. í lok nóvember í fyrra nam útflutningur innlendra afurða 51.868 þús. króna, en innflutn- ingurinn var á sama tíma orðinn 45.782 þús. kr. Hagstæður verzl- unarjöfnuður þá var því orðinn rúmlega 6 miljónir kr. -—Vísir 7. des. Ógnirnar á hafinu Upplýsingaráðuneytið brezka tilkynti á þriðjudagsmorguninn, að Þjóðverjar hefði í vikunni þar á undan sökt þremur smá- um brezkum neðansjávarbátum. En þenna sama dag söktu Bret- ar miklum kafdreka þýzkum í Norðursjónum. Frá Veálurvígátöðvunum Útvarpsstöðvum Frakka og Þjóðverja, bar nákvæmlega sam- an um það á jiriðjudaginn, að á vesturvígstöðvunum hefði ekkert sögulegt borið til tíðinda undan- farinn sólarhring; hafði illviðri útilokað vigaferli þar um slóðir. Stríðslánið Stríðslán canadisku þjóðar- innar, sem til úthoðs kom á mánudaginn, fór yfir mark á tveimur dögum; hafði fólk þá skrifað sig fyrir tvö hundruð og fjörutíu miljónum dala; þó liggja áskriftarlistar enn frammi um óákveðinn tíma ineð það fyrir augum, að sem allra flestir geti fært sér í nyt kaup á lægstu veðlánsbréf'unum, sem nema fimtíu dölum. r Nýárs hugsanir (Tileinkaðar frú Steinunni Inge) * ♦ -f Þó fjarlægðin oft gjöri fundina strjála og færri glaðværar stundir,— því ferðlag lífs yfir lagar ála er löngum stríðara en hægt er að mála, og verða því fækkandi fundir. Þó fótur sé stirður og fjötrar bindi og fátæktin þróttinn lami, þá samt er ei bundin ást né yndi, því andinn — i dulríku þagnar-lyndi, er alfrjáls —• og ávalt inn sami. Og þess vegna’ í andans flugvél flýg eg og ferðast til þeirra, sem ann eg. Á töfraklæði mitt kátur stig eg og kólgur lífsins í gegnum smýg eg, því töframáls flugrúnir fann eg. Já, til þin eg flögra svo þrátt og þrávalt, og þó að þú heyrir mig eigi, þvi eg er á ferðum svo oft og ávalt, þó oft sé á loftvegum dauft og nákalt, þá er mér samt vor á vegi. Eg elska þá sál, sem vill unna og lifa, og altaf er starfandi kraftur og sannleikans rúnir vill sifelt skrifa og seglin vill aldregi fella né rifa, né snúa til Urðarheims aftur. Með þeim einum kýs eg mér leiðir að leggja, sem langar að sjá og skilja og ei vilja haltra til hliða beggja, né hylja sig innan dimmra veggja og eiga engan einstaklings vilja. Með þeim vil eg ferðast, sem frelsinu unna og fvlla loftið með óði, sem leita uppi tærustu lifsins brunna og lífrúnir guðdómsins meta kunna, en lita’ ei alt lifið í blóði. S. B. Benedictsson. *—— — —

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.