Lögberg


Lögberg - 22.08.1940, Qupperneq 1

Lögberg - 22.08.1940, Qupperneq 1
PHONE 86 311 Seven Lines s&j^® G°* Servioe and Satisfaction PHONE 86 311 Seven Lines .^e^- A #*«S ozŒ* *•>}*&* b° Cot' ,unde;-; ^ For Better Dry Cleaning and Laundry 53. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. AGCST, 1940 NÚMER 34 Fregnir af heljarslóð Síðastliðna tíu daga hafa Þjóð- verjar haldið uppi látlausum loftárásum á brezku eyjarnar; herma fregnir frá London, að á föstudaginn í vikunni scm leið, hafi hvorki meira né minna en 2,500 þýzka flugför tekið þátt í árásinni; af þeim voru 179 skot- in niður þenna eina dag; tap Breta nam 17 flugvélum; alls er áætlað, að síðan Þjóðverjar hófu leifturstríð sitt í lofti gegn Eng- landi, Skotlandi og Wales, hafi tap þeirra numið 720 flugvélum; óhjákvæmilegt er það, að nokk- ur spell hafi hlotist af völdum þessa loft-moldviðris; þó hefir tjón af völduin þess á Bretlandi orðið tiltölulega lítið; nokkrum sprengjum vörpuðu þýíkir loft- vargar yfir London um helgina, er orsökuðu lítið sem ekkert tjón. Bretar svöruðu í sömu mvnt, ineð því að senda flugför sín til Berlínar, og láta þau steypa sprengikúlum yfir útjaðrahverfi borgarinnar þar sem vopnabúr og hergagnasmiðjur voru fyrir hendi; um sömu undir var hinn brezki loftfloti á sveimi yfir Hamborg, Hannover og ýmissum þeim stöðvum, sem mesta hafa hernaðarlega þýðingu í Ruhr- dalnuin, og veitti þar hinar þyngstu búsifjar; yfirburðir hins brezka loftflota, og flugmanna hans, eru nú alment viðurkend- ir, og aginn slíkur, að betra verður ekki ákosið; mun hann þvi reynast Hitler þungur í skauti um það er núverandi hild- arleik lýkur. • ítalski herinn hefir nú brezka hlutann af Somaliland á valdi sínu, og er að búa um sig i höfuðborginni Berbera; voru ftalir á svæðum þessum marg- falt mannfleiri en Bretar og varð það því að ráði, að Bretar næmi her sinn allan á brott, og lánaðist þeim að koma hermönn- um sinum öllum heilu og höldnu til skips, ásamt svo að segja öll- um hergÖgnum; svo er alment litið á, að uppgjöf Somalilands hafi næsta litla hernaðarlega þýðingu; enda segjast Bretar hafa mikilvægari þörf fyrir hinn brottnumda her á öðrum stöðum. Brezkar flugsveitir hafa veitt ítölum heima fyrir djúp svöðu- sár frá hernaðarlegu sjónarmiði; eyðilagt flugvelli og vopnaverk- smiðjur i stórum stíl; þó reynir Mussolini enn að bera sig hraust- lega, og lætur málgögn sín gera sem minst úr tjóninu. • Samkvæmt Washingtonfregn- Um á þriðjudagskveldið, er stað- hæft, að Hitler hafi í hyggju að ráðast við fyrstu hentuleika á ísland, Grænland og Newfound- Einka-kornhlöðufélögin ákveða að auka korngeymslupláss Með það fyrir augum, að af- stýra vandræðum, sem stafað gæti af ónógu geymsluplássi fyrir þessa árs uppskeru, hafa einka- kornhlöðufélögin (Line Eleva- tors), ákveðið að auka geymslu- pláss sitt sem svarar 15,000,000 mæla; komið verður upp til kráðabyrgða 750 korngeymslu- plássum víðsvegar um Vestur- landið, er hvert um sig getur veitt viðtöku frá 20,000 til 40,000 mæluni hveitis. Tilkynning um þetta kom frá North-West Linc Klevators sambandinu í lok fyrri viku. land til þess að hefta með því siglingaleiðir, og stemma stigu fyrir vöruflutningum og her- gagna birgðum frá Canada til Bretlands. Frá Islandi Litil sild hefir borist til Siglu- fjarðar undanfarna daga og staf- ar það af óhagstæðu veðri. Tvo undanfarna daga hefir mikil síld vaðið við Digranes, milli Bakkafjarðar og Vopnafjarðar, og við Langanes. Hefir margt skipa verið á þessum slóðum og komu nokkur ineð fullfermi til Raufarhafnar, Sevðisfjarðar og Norðfjarðar í gær, en önnur voru á leiðinni. Nýju verksmiðj- urnar á Raufarhöfn munu byrja vinnslu um helgina. • Ríkisstjórnin mun i dag gefa út bráðabirgðalog, sem gerir þá lirevtingu á núgildandi lögum, að norsku skipin, sem flóttamenn- irnir komu á, mega stunda síld- veiðar með norskum áhöfnum. íslenzkir menn verða þó að taka þau á leigu og mun ekki stranda á því. Þetta er gert til hjálpar flóttamönnunum. • Þing Stórstúku íslands hefir staðið yfir hér í bænum undan- farið og er þvi nú lokið. Sóttu það 102 fulltrúar. Þann 1. febrúar 1940 voru starfandi á öllu landinu 67 undirstúkur með 5438 félögum og 49 barnastúkur með 4475 félögum. Alls voru þvi í stúkunum 9913 félagar eða 586 fleiri en árið áður. Á þing- inu voru rædd ýms mál.. Sam- þykt var að skora á ríkisstjórn- ina “að loka öllum áfengissölum á landinu a. m. k. meðan á styrjöldinni stendur.” Þá var samþykt að kjósa sérstaka nefnd til “að gera hagfræðilegar athuganir á því, hverjar séu orðnar afleiðingar af afnámi að- t'lutningsbannsins.” Stórtempl- ari var kosinn Friðrik Á Brekk- an, stórkanslari Pétur Zophon- íasson, stórritari Jóh. Ögm. Oddsson og stórgjaldkeri Flosi Sigurðsson. Ákveðið var að halda næsta stóTstúkuHing á Akranesi. Aðalfundur Landssambands blandaðra kóra og kvennakóra á fslandi var haldinn hér í bænum dagana 28. og 29. f. m. Samband þetta var stofnað í desember 1938. Var því veittur 2000 kr. styrkur á fjárlögum næsta árs og mun það hefja starfsemi með haustinu. Samandið mun reyna að útvega kórunum söngkennara og er markmið þess að hafa fastan söngkennara í þjónustu sinni í framtíðinni. Á fundin- um komu fram ákveðnar óskir um samstarf milli landssam- bandsins og kirkjunnar um auk- ið sönglíf í landinu. Þá var rætt um útgáfu á sönglagasafni fyrir blandaða kóra. f stjórn sambandsins voru kosnir: Jón Alexanderson forstjóri (form.), Jakob Tryggvason söngstjóri (ritari), Bent Bjarnason bókari (féhirðir). • Um þessar mundir er að hefj- sat móvinsla í stórum stil á Akureyri. Vinna tvær vélar að mótekjunni. önnur þeirra er eign Kaupfélags Eyfirðinga og er hún talsvert stór. Hin, sem er minni, er eign Akueyrarbæjar. Til Margrétar Björnson (Ritað á bók) Vonir þér úr allri átt auðnuklukkum hringja: þú átt æsku, þrek og mátt, þú ert að byrja að syngja. Syng þú meðan sál þín má svífa hátt og viða; lát þér ekkert aftra frá innri rödd að hlýða. Sig. Jiíl. Jóhnnnesson. Hún er smíðuð í Landssmiðjunni eftir tilsögn Sigurlinna Péturs- sonar. Báðar vélarnar vinna fyrir rafmagni. Unnið er í mýr- lendi skamt frá Glerárþorpi, og er mórinn þar talinn sæmilegur. • Sláttur er yfirleitt ekki byrj- aður norðanlands. Ferðamaður, sem kom frá Akureyri í gær, skýrði Tímanum svo frá, að að- eins væri byrjaður sláttur á nokkrum jörðum í Langadal í Iiúnavatnsýslu og framveitum Eyjafjarðar. Grasspretta er víð- asihvar sögð góð nyrðra. Á Fljótsdalshéraði og Austfjörðum mun sláttur víða hafa byrjað um helgina. • Siðastliðið sumar var afar ó- hagstætt í Mýrdal og yfirleitt í Vestur-Skaftafelssýslu. Allan ágústmánuð og langt fram í september var að heita mátti rigning á hverjum degi. Hraktist því úthey afar mikið, og varð sumstaðar ónýtt með öllu. Var því útlit með fénaðarhöld »11 ískyggilegt, en í báðum hrepp- um Mýrdalsins hafa verið stofn- uð fóðurbirgðafélög og kom það nú i ^góðar þarfir. Þau gengust fyrir gælilegum ásetningi og öfl- uðu allmikils af fóðurbæti handa félagsmönnum og kom það í góð- ar þarfir. Margir byrjuðu að gefa síldarmjöl með hröktu heyjunum, þegar fé var tekið og gáfu það með í allan vetur. Varð árangurinn af þvi svo góð- ur, að fénaðarhöld urðu i bezta lagi, lambahöld víðast ágæt þrátt fyrir það að ær voru með bezta móti tvílembdar og veðrátta um sauðburðinn mjög óhagstæð. Þó var fóðurbætiseyðsla hvergi til- finnanlega mikil. —Tíminn 5. júlí. • Nýtt liraðfrystihús d Pntreksfirði Siðastliðinn laugardag tók til starfa á Patreksfirði nýtt hrað- frystihús, sem Verzlun ó. Jó- hannessonar hefir látið reisa. Húsið er bvgt úr steinsteypu og er 25 metra langt, 12y2 metra á breidd, en vegghæð er 5.40 metrar. Áifast við hraðfrystihúsið er vélasalur, einnig úr steinsteypu 19 metra á lengd, 7 metra á breidd, en vegghæð 3.80 metrar. f húsinu er geymslurúm fyrir 300 smálestir flaka, auk um- búðageymslu. Afköst vélanna eru um 9 smálestir flaka á sól- arhring, en flökunin sjálf fer fram í öðru húsi. Vélarnar voru keyptar, not- aðar af h. f. Bakka á Siglufirði, en endurhættar á Patreksfirði, og eru í ágætu lagi. Húsið er mjög vandað að öllum frágangi og sáu þeir trésmíðameistararn- ir, Jón Jónsson á Flateyri og Ingi Kristjánsson á Patreksfirði um smíði þess. Vélsmiðja ó. Jóhannesonar og fagmaður frá vélsmiðjunni Héðni í Reykjavik koinu vélunum fyrir og sáu um alla tilhögun þeirra. 40—50 manns munu starfa við frystihúsið. —Mbl. 17. júlí. Ferðir Dr. Richard Beck, forseta Þjóðrceknisfélagsins um Vatnabygðirnar í Saskatchewan Dr. Beck hefir ekki haldið kvrru fvrir undanfarandi frem- ur en endrarnær; frá því er sumarleyfi hans byrjaði, hefir hann verið á ferð og flugi i þjóðrækniserindum, og haldið eina hvatningarræðuna af ann- ari; bann flutti aðalræðuna á íslendingadeginum í Wynyard 2. ágúst, sem haldinn var undi.r umsjá þjóðræknisdeildarinnar “Fjallkonan.” Flutti hann einn- ig að tilhlutan deildarinnar er- indi á ensku í Wvnyard á mánu- dagskveldið þann 5. ágúst; ferðaðist hann auk þess all-víða um bygðina og heimsótti fólk; daginn eftir flutti hann ræðu á samkomu í Leslie, er þjóðræknis- deildin “Iðunn” hafði stofnað til. Þann 7. ágúst flutti Dr. Beck erindi á samkomu í Church- bridge að tilhlutan þjóðræknis- déildarinnar “Snæfell”; ferðað- ist hann einnig nokkuð um ís- lenzku bygðina þar i kring; öll fjölluðu erindin um islenzkar menningarerfðir, þjóðræknismál og félagsmál. Dr. Beck lét ágætlega af ferð sinni og viðtökunum, hvar sem leið hans lá meðal fslendinga þar vestra. Áður en Dr. Beck hélt heiin- leiðis, sat hann hér í borginni fund á framkvæmdarnefnd þjoð- ræknisfélagsins. Frá Bretlandi Mr. Churchill gerði það heyr- inkunnugt í þingræðu á þriðju- daginn, að stjórnin hefði ákveð- ið að leigja Bandaríkjunum flug- og flotastöðvar við Newfound- land og við Vestur-Indlandseyj- arnar brezku; ýmsir þingmenn voru þeirrar skoðunar, að leigu- tíminn ætti að vera að minsta kosti 120 ár, eða jafnvel fram yfir það. Mr. Churchill var bjartsýnn að vanda í ræðu sinni, og kvað brezku þjóðina samein- aðri og voldugri en nokkru sinni fyr í því öllu, er að stríðssókn- inni lyti; á hinn bóginn væri það sýnt, að hún yrði að vera við öllu búin, því enn væri langt langt i frá, að innrásarhættan væri um garð gengin. Fáum mönnum er það gefið, að geta talað jafn volduglega sigurkjark í heila þjóð eins og Mr. Churchill gerir. Vakir á verði Bracken forsætisráðherra hefir lýst yfir því, að svo fremi sem sambandsstjórn ekki geri full- nægjandi ráðstafanir til þess að bæta úr brýnustu þörf bænda viðvíkjandi geymslu og sölu kornframeiðslunnar, sé hann staðráðinn í því að taka til sinna ráða, og kveðja saman þing eins fljótt og því verði við komið, til þess að afgreiða lög um skuld- greiðslufrest, og hrinda í fram- kvæmd þeim öðrum löggjafarný- mælum, er nauðsyn krefji hag bænda til tryggingar. Á öðrum stað hér i blaðinu, er stuttlega vikið að þvi, hve víða á svæðinu milli Vatnanna sé í- skyggilegar horfur viðvíkjandi heyfeng bænda vegna langvar- andi ofþurka; hér er vandamál mikið fyrir hendi, sem vonandi er að hin röggsama stjórn Mani- tobafylkis taki í hendur sínar til skjótrar úrlausnar. Gullbrúðkaup Þann 7. júlí síðastliðinn, áttu þau merkishjónin Ágúst Vopni og Arnbjörg Jónsdóttir Vopni að Harlington, Man., gullbrúð- kaup, og var atburðarins minst með veglegum mannfagnaði á heimili þeirra þá um daginn; þau hjón eiga 8 mannvænleg börn, og voru 6 þeirra viðstödd; en af 24 barnabörnum voru 20 viðstödd gullbrúðkaupsfagnað- inn. Aðalræðuna fyrir minni gullbrúðhjónanna flutti Rev. Clark í Harlington. Heillaóska- skeytum rigndi að úr öllum átt- um, þar á meðal frá Hon. T. A. Crerar, náttúrufriðindaráðgjafa sambandsstjórnar. Þau Ágúst Vopni og frú Arn- björg hafa um langan aldur bú- ið fyrirmyndarbúi í hinum blóm- lega Swan River dal, og verið samtaka um það alt, er gera má garðinn frægan; er heimili þeirra orðlagt fyrir alúð og risnu, og hafa margir þreyttir vegfarendur átt þar góðan griða- stað. Ágúst Vopni rekur bú sitt samkvæmt strangvisindalegum búnaðarreglum, og hefir á bún- aðarsýningum hvað ofan í ann- að hlotið hæztu verðlaun jöfn- um höndum fyrir kornyrkju og Thor Thors flytur vesfcur sem fulltrúi Islands Thor Thors hefir nú gert samning við ríkisstjórnina um að hann gerist fulltrúi fslands í Bandarikjunum. Flytur hann vestur með fjölskyldu sína eftir næstu; mánaðamót. Ekki er það ákvéðið enn, hvort hann verður aðalræðis- maður eða sendifulltrúi (“chargé d’affaire”). En verði hann sendifulltrúi, þá verður heimilis- fang hans í Washington, þó starf hans verði mestmegnis í New York. En fyrst um sinn tekur hann við aðalræðismannsstörf- um af Vilhjálmi Þór, og mun Vilhjálmur Þór koma hingað heim og taka við stöðu sinni i Landsbankanum, skömmu eftir að Thor Thors er kominn vest- ur. — Mbl. 18. júlí. búpeningsrækt; hann er maður prýðilega að sér, og hefir iðulega samið ihyglisverðar ritgerðir um landbúnað, sem birst hafa í canadiskum búnaðartimaritum. Lögberg flytur þeim Ágúst og frú Arnbjörgu, innilegar árnað- aróskir í tilefni af gullbrúðkaup- inu. Island í fjarlœgðinni Minni að Iðavelli í Nýja íslandi 3. ágiíst, 194-0 Hvenær sem við setjumst hér saman til að muna landið, sem gaf svipinn þér, sál, er kveikir funa, inst i helgi æfihrings opnast þessum ströndum Iðavöllur íslendings austan af mörgunlöndum. Það er ísland endurfætt okkur, dætrum, sonum, Garðars eyjan betrumbætt bæði í reynd og vonum. Hlýja andar heiman frá, hugans óskir rætast, bráðum hárri ásbrú á allra vegir mætast. Eystra og vestra ísland nýtt, eftir élin hörðu, endurskapar endurprýtt andinn frjáls á jörðu. Syngjum íslenzkt móðurmál, mælum það og skrifum, svo í íslands anda og sál áfram hér við lifum. Dufferins var drenglund spök, dáði hann okkar tungu, fram bar þessi fimu rök —fegri en aðrir sungu —: “Geymið íslands arf sem bezt. Anda fornrar listar látið vestra lýsa mest. Laun það séu ristar.” Drotning fjalla þakkar þeim, þrautseigast er vörðu auðlegð hennar út um heim: íslenzkt mál á jörðu. Það er hennar gull og gjald, gengi og frægðar saga, árþúsundsins andlegt vald, upprás sólskins daga. Hver sem sér og sínum kýs sóma og framtíð bjarta, ber i gegnum eld og is ættland sér í hjarta. Hvar sem Vestmenn hylli tjá hjartans ættar löndum, Iðavöllur austri frá opnast vesturströndum. Þ. Þ. Þ.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.