Lögberg - 22.08.1940, Page 2

Lögberg - 22.08.1940, Page 2
0 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. ÁGÚST, 1940 Sjósókn Svarfdælinga um 1 880 Eftir Árna Jóhannsson Svarfdælinigar hafa löngum verið afburða góðir og duglegir sjómenn, og munu vera það enn. Verstöð þeirra, Böggversstáða- sandur, mun og hafa verið ein hin mesta fiskiverstöð norðan- og austanlands á þeim tíma, er hér ræðir um, 1880—1890. — ólafsfirðingar voru ekki neinir atkvæðamenn til sjósóknar í þá daiga, og mun það að miklu leyti hafa stafað af slæmum lending- arskilyrðum þar. Hinsvegar voru þeir þó nær þeim fiskimiðum, er Svarfdælingar sóttu aðallega. En ijm og eftir aldamó'jin tóku Ólafsfirðingar að hefjast handa á þessu sviði, og síðan hafa þeir sizt verið eftirbátar nágranna sinna. Eftir að strandferðaskipin fóru að ganga, með viðkomu á hinum smærri höfnum, var ver- s'töðvarnafninu, Böiggversstaða- sandur, að mestu slept, en í þess stað tekið upp nafnið Dalvík. Dalvík er fyrir mynni Svarf- aðardals, frá Hálshöfða að suð- austan, að Hólsrípli eða Hóls- töngum að norðvestan. Á þessu svæði voru, auk aðal-verðstöðv- arinnar, þessi uppsátur: Háls- horn (lítið notað), Lágin, Upsa- möl, Upsakrókur og Hólsnaust. Skipalega er inn-og-fram af Hólsnaustum eða undan Upsa- krók. Haldbotn er sæmilegur, en annars er höfnin fremur ó- trygg, þar sem heita má að hún liggi fyrir opnu hafi. Útgrynni er allmikið við Sandinn, og tor- veldar það mjög lendingu, þeg- ar brim er. Bryggjur voru eng- ar né aðrar lendingarbætur á þeim tima, er hér ræðir um. Þá var aðeins eitt lítið íbúðar- hús á Sandinum, kallað “Sand- gerði.” Nú er þar risið upp snoturt og myndarlegt þorp, með 3—400 ibúum. Svarfdælingar stunduðu aðal- lega fiskveiðar og hákarlaveið- ar. Hákarlavertíð hófst á útmán- uðum og stóð fram að sláttar- byrjun eða lengur, ef vel aflað- ist. En um þann veiðiskap verð- ur ekki frekar rætt hér. Fiskverktíðir voru tvær ár- lega: Vorvertiff, sem hófst þegar er fiskur gekk á miðin, en það var mjög misjafnlega snemma: um sumarmál, stundum fyr, og stundum seinna. Stóð nú ver- tíð svo lengi sem nokkur veru- legur afli var, eða alt fram að slætti. Haustvertíð byrjaði venju- iega um gangnaleyti (miðgöng- ur) og stóð til jóla, ef tíðarfar leyfði. Róffrarbátar Svarfdælinga voru aðallega sexæringar, svipfríðir og ganglegir, liðlegir og léttir i vöf- um, eftir stærð, bygðir úr furu, súðbyrtir og léttbentir, svipaðir fiskibátum Færeyinga og Hál- eyja (i Norður-Noregi), en ekki eins stafnaháir. Seglbúnaður var fremur ófull- kominn. Siglutré, reist við and- ófsþóttu, með einföldum reiða (“vanti”) — og rásegl. Segl var helzt notað á landleið seinni hluta vorvertíðar, því að þá eru hafgolur tíðar. Áhöfnin var vanalega sex menn, stundum sjö. Veiðarfæri voru venjuleg fiski- lína, í daglegu tali nefnd lína eða lóð. Hún var þannig gerð. Línustrengurinn var oftast 2 punda lina, 60 faðma löng; tvær slikar hespur “splæsaðar” sam- an. öngultaumar voru úr smá- gerðara efni, 14—16 þuml. á lengd. Stundum var tauma- efnið heima-unnið, úr hampi, spunnið á snældu, hespað og bútað í hæfilegar taumalengdir, snúðhert og tvinnað á “tauma- sigð”; öngullinn síðan festur á annan endann með traustu og liðlegu bragði, en “hvippa” (lykkja) gerð á hinu, og henni brugðið með “kappmellu” um línustrenginn, með eins faðms millibili. Komu þannig 120 önglar á hvern streng, og var það kallað “línustokkur,” eða bara “stokkur.” Jafnótt og taumunum með áfestum önglum hafði verið komið fyrir á strengnum, var önglunum brugð- ið í svonefnt “stokktré,” þar sem þeir hengu í samfeldri röð. Linu- endar á hverjum stokk voru tvö- faldir og snúnir, og voru nefnd- 5r “hálsar,” 14—16 þuml. á lengd. Var öðrum hálsinum bundið um stokktréð, framan við önglana, sem þá gátu ekki haggast, en hinum brugðið utan um stokkinn neðan til. Þegar svo búið er að “telja” stokkinn (þ. e. greiða hann), er hann til- búinn til beitingar. Bjóðin, sem línan var beitt á, voru uin alin á lengd, 3/4 alin á breidd og 4—5 þuml. á dýpt — ofurlítið grynnri þeim megin, sem önglarnir voru lagðir. Hver háseti hafði sitt bjóð og beitti í það þrjá stokka — 360 öngla. Auk þess hafði hver fullgildur háseti hálfan stokk, 60 öngla, sem hann beitti ofan á i bjóð sitt, átti hann sjálfur það, sem á þá öngla veiddist. Þessi Iinubútur var nefndur “spotti.” Viðvaningar höfðu styttri spotta. En formaður heilan stokk. Alls voru þá veittir 15 stokk- ar og 5 spottar, ef sex menn voru á bátnum, en 18 stokkar og 6 spottar, ef sjö manna áhöfn var. Niðurstöður voru þrjár, og járnbent trédufl á hverri. Dufl- in voru einnig nefnd “ból.” Þau voru misvíð og var niðurstöðu- strengurinn — þriggja punda lína — bundin i oka á mjórri enda duflsins. Niðurstöðurnar voru sín á hvorum enda fiski- línunnar, og hin þriðja á miðri lírtu. Verbúðir. Þær voru allmargar á Sandinum og flestar kendar við heimili útgerðarmanna eða bátaeigenda, svo sem Böggvers- staðabúð, Ingvarabúð, Hnísabúð, Hamarsbúð, Holtabúð o. s. frv. Búðir voru einnig í Láginni, Upsakrók og Hólsnaustum, að- allega beitingabúðir, en ekki til viðlegu, þar eð bæir eru þar svo nærri. Búðir voru nokkuð misstórar og reisulegar, en flestar af líkri gerð: Veggir hlaðnir úr torfi og grjóti, vel mannhæðar háir, lágt ris, venjulega reft á mæniás og þakið torfi. Stærð tóftar um 8—9 álnir á lengd og 4—5 á breidd, innan veggja, skift í tvent: beitingabúð og svefnbúð. Var hin fyrnefnda nokkru stærri, með útidyrum, en innan- gengt úr henni í svefnbúðina. Þegar inn í hana kom, voru bálkar til beggja handa, þar sem sofið gátu 3—4 menn í hvorum, en lítil eldavél eða “kabyssa” fyrir miðjum vegg gegnt dyr- um. f bálkunum var mest legið á lyngi, með svæflum og brekán- um, en lítið um sængur. Þarna var eldað það, sem elda þurfti, mest soðning. Annað nesti höfðu sjómenn með sér frá heimilum sínum, og var einatt haldið til þeirra því kjarnbezta, sem til var. — Vindaugu voru sitt á hvorum búðargafli, til loftræstingar, svo og strompur, og litill þakgluggi á hvorri búð. Hverri útgerð fylgdi venjulega þurkhjallur; tré lögð á trönur og rár á milli, þar sem línan var þurkuð og fiskur hengdu upp til þerris og heimanotkunar. Sumir höfðu einnig annan hjall, svo- nefndan “rimlahjall” með ris- þaki. heilum stofnþiljum ofan að lausholti, en rimum að neð- an, svo að blásið gat í gegn. Mátti þurka þar linu og annað, hvernig sem viðraði. í þessum hjöllum voru geymsluloft, fyrir harðfisk og önnur matvæli, veið- arfæri o. fl. Stundum var fisk- ur saltaður í þessum rimlahjöll- um; aðrir höfðu sérstök hús eða skúra , lil að salta i fisk sinn, og til saltgeymslu. Hver bátur hafði sinn ákveðna lendingar- stað og fjörusvæði til umráða, svo og naust, til að hvolfa bátn- um á. Fiskimiðin. Yfirleitt 'var ekki langróið á mið Svarfdælinga, samanborið við aðrar verstöðv- ar, — vanalegast 1—2 klukku- 'stunda róður hvora leið í logni, sjaldan lengra. Miðin eru út með Upsaströnd og ólafsfjarðar- múla, fram af ólafsfirði, Foss- dal, Hvanndalabjapgi og Hvann- dölum. Lengra var sjaldan far. ið. Sjór er þar yfirleitt straum- lítill og svipvindar sjaldgæfir. Stundum gekk fiskur inn í ál- ana, beggja megin Hríseyjar, Austur- og Vesturál, einkum á vorin. Man eg það, einn fagr- an vormorgun, að linan “flaut upp” vestur af Saltnesi, með vænum fiski á hverjum öngli, og glampaði á belgina í sólskin- •nu. — Og innar i fjörðinn gekk fiskurinn, jafnvel alt inn í botn. En Svarfdælingar sóttu sjaldan 1 þá átt. — Og nú skulum við fá okkur einn venjulegan róður á Ingvarabátnum. Formaður er Þorleifur Tr. Jóhannsson, bróðir minn, einn hinn ötulasti og slyngasti sjómaður þar um slóðir. Við erum í bálkunum — búnir að sofa einar 4—5 stundir. For- maðurinn snarast fram úr, og við hinir á ef'tir. Það er laugar- dagsnótt, mánuð af vetri, klukk. an að ganga eitt — koldimt. Við verðum að hafa hraðann á; kl. 2 mega allir bátar leggja frá landi — en fyr ekki, vegna fiski- veiðasamþyktarinnar. Og allir vilja verða fyrstir. . Við sækjum línuna út í hjall, hver sína þrjá stokka og spottann, og förum að kljá. Formaðurinn nær í beit- una: salta síld, steinbít og ofur- Htið af fuglaslængi; hann fer að skera beituna og dreifa henni á borðið hjá okkur hásetunum. Við erum búnir að kljá, leggj- um hjóðin upp á borðin og för- um að beita — og nú er “handa- gangur í öskjunni.” Kl. þrjú kortér í tvö eru allir búnir. Við tökum nestisskjóður okkar, fá- um okkur örlítinn bita, leggjum þær ofan á bjóðin, förum í skinnsokkana og sjóskóna, tök- um skinnbuxur og stakk og hlaupum hljóðlega með alt þetta í fanginu út á malarkamb, en formaður læsir búðinni og kem- ur með drykkjarkútinn. Við tökum skorðurnar hægt undan bátnum og leggjum þær í fjör- una, drögum svo bátinn ofur hljótt og liðlega á þessum hlunnum fram í flæðarmál; sækjum bjóðin og komum þeim fyrir í skutnum og — ýtum frá landi. Alt verður að gerast hljóðlega, svo að engan gruni að við séum komnir á kreik. En viti menn: löng þruma heyrist um allar fjörur, og allur þorri bátanna ýtir samtímis úr vör! Bátunum er snúið í áttina og — allir á sprett. Formaðurinn tekur ofan sjóhattinn, og við líka: sjóferðabænin er lesin í hljóði; en ekki er linað á sprett- inum. Nyrsti báturinn, sem næstur er landi, lendir í þröng og rekst á kollótt sker fram af Brimnestöngum, svonefnda “Brúnku,” sleppur þó óskemdur en heltist úr lestinni. Látlaust er sprettinum haldið áfram, og nú er gott að hafa vaska ræðara, eins og þá Garðshornsbræður, Júlíus og Guðjón, Valdemar á Jarðbrú, Þórð á Steindyrum og Þorleif formann. Auðvitað er eg væskill, 17 ára stráklingur, en eg geri það, sem eg get. — Og áfram brunar bátaflotinn, út með Karlsárbökkum, Syðrivík, Sauðanesi og Ytrivík, Lamba- skerjum, Mígindi og Hrauni. Bátum er farið að fækka; sumir hafa dregist aftur úr, aðrir byrjaðir að leggja. Við beygj- um skáhalt til djúps og byrjum að leggja undan Múlavogum. Það er fengsælt mið. Formaðuinn sezt á bitann, tekur fyrstu niðurstöðuna, varp- ar út duflinu og rekur út streng- inn, jafnótt og róið er. Við enda strengsins er línan tengd og henni sökt til botns með all- þungri steinsökku. “Bitamaður” heitir sá, er rær á austurrúmi bakborða, gegnt formanni. Nú sezt hann á bitann, tekur næstu niðurstöðu og vefur strengnum haglega um duflið, bindur sökk- una á enda strengsins og hefir þetta tilbúið, til að festa það á línuna, þegar hún er hálfnuð Vefst þá strendurinn sjálfkrafa af duflinu, jafnótt og sakkan dregur línuna til botns. Bita- maður hefir og þann starfa, að rétta formanni línubjóðin úr skutnum og tengja “háls við háls.” Miklu skiftir að vel sé “lagt niður” í bjóðin, þegar beitt er, svo að viðstöðulaust og greið- lega “gangi út”, þegar lagt er. Þykir það ljóður á háseta, ef hann leggur ekki vel niður. Við leggjum “í lykkju,” sem kallað er: helming línunnar ská- halt norðaustur frá landi, beygj- um við aðra niðurstöðu, og leggjum hinn helminginn norð- vestur, í stefnu á Fossdal. — Það er kallað að “liggja yfir.” Er sú bið alt að 2 klukkustund- um, og verður þá mörgum hroll- kalt, eftir svitabaðið við róður- fl M H E R S T SEVEN YEAH» » -n ,z. $3.90 - 25 0*^ /• í5r55íí^*^ «166 - a8<*,2T- ublished or displayed by the Li Ml Sólálöður Til vestur-islenzkra gestkomenda 23. júlí 19á0 Þótt heimurinn nötri, þá hittumst við enn við hólmann í stormvari náskyldir menn, þó slett hafi á bátinn hjá báðum um stund og bágt muni að sjá hvar við lendum. En hugina í framtíðar laufgaðan lund i langdegi ársins við sendum. Og við getum sagt ykkur velkomna heim og vísað um risnu á heiðanna geim, með silung í vötnum, með sönglist í mó, — og sent ykkur þangað til grasa, þvi hiinni svo nærri í heilagri ró um harmleik ei neinn er að fjasa. Af stráum í blævi og straumum i á á strengi er þar leikin vor framtíðarspá í tónunum mjúku — og ei tekið í mál að tjá okkur nema það bezta, og þar býður vornóttin skærasta skál, sem skenkt er og borin til gesta. Og þegar þið vikið frá veitingum þeim, þá vona eg að snúið þið góðkendir heim af döggvum og geislum, af söngvum og sæld, því sótt skyldu heiðríkju miðin, — já, aflið þar vorgleði, er ótæpt sé mæld og öðlist hinn langþráða friðinn. Og njótið þess vel, — farið heilir um haf með heimsfriðinn bjarta, sem vornóttin gaf; og heilsið nú vestur, við heyrum það sagt, að hugirnir oft séu á stjái um eylandið fjarra, sem út er svo lagt, þeir uppvaxtar harðbalann þrái. Jak. Thor. —Lesb. Morgunbl. The BUSINESS COLLEGE OF TO-MORROW— TO-DAY The MANITOBA (1) Initiated the Grade XI Admission policy in Western Canada. (2) Gives Specialised instruction in Business English. (3) Gives Practical telephone instruction, using our own telephone system. (4) Has Centralised control of all classrooms by electric broadcast system. (5) Uses Aptitude analysis charts, including photo, of each student. (6) H as Limited enrolment, giving more space per student and more opportunity of employment. AND—the MANITOBA is Winnipeg’s fastest growing Business College. Day and Evening Classes Evenings: Mondays and Thursdays 7.30 to 10 p.m. flíllTOBfl comm€RcmL COLLCGC Originators of Grade XI Admission Standard Premises giving the most spacious accommodation per student in Westem Canada. 344 PORTAGE AVE. E“ ™R PHone 2 63 63 President, F. H. BROOKS, B.A., S.F.A.E.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.