Lögberg - 20.02.1941, Page 5
5
LÖGBEBG, FIMTUD AGIN N 20. FEBRÚAB 1941
Velkomnir til
Rafurmagnsborgarinnar
%
Gestir þjóðræknisþingsins munu fljótt koina
auga á það, hve rafnotkun er almenn i Winni-
peg. Og þetta er vegna þess að City Hydro
hefir gert það kleift, að bærinn verði aðnjótandi
þeirrar ódýrustu orku, sein sögur fara af á
þessu meginlandi. Auk þessa hetir jiessi stotn-
un lagt fram mikið fé i bæjarsjóð, og la'kkað
með því hyrði skattgjaldenda.
City Hydro stendur í þakkarskuld við fslend-
inga í Winrripeg fyrir þann stuðning og þá holl-
ustu, er þeir hafa látið stofnun þess'ari í té. Og
hefir þetta augljóslega aukið á vöxt og viðgang
stofnunarinnar.
CITY HYDRO
Winnipeg’s Municipnlly Ownetl Vtilitij
Sýningarbúðir: Skrifstofur:
PORTAGE & EDMONTON 55 PRINCESS STREET
er islenzkir prentarar héldu há-
tiðlegt með samkomu að Hólum
1 Hjaltadal, hinu forna biskups-
setri, en þar var fyrsta full-
komna prentsmiðjan hér á landi
stofnsett fvrir rúmum 400 árum
síðan.
Vinnutruflanir af völduin
verkfalla hafa litlar verið á þessu
a*'i og má að nokkru leyti þakka
vinnulöggjöfinni það. I’ó gerðu
húsasmiðir verkfall gegn firm-
anu Höjgaard & Schultz, seint á
arinu út af smávægilegum á-
greiningi er ekki fékst jafnað-
Ur> og stendur það verkfall enn-
há, og i byrjun ársins reyndu
■núrarasveinar vinnustöðvun við
nokkrar byggingar, en hún varð
skaminvinn, enda dæmd að vera
gerð á ólögmætan hátt.
* *
En þött lir hafi ræzt um af-
koniu iðju og iðnaðar á þessu
ari> þá er síður en svo, að útlitið
sv glæsilegt á næsta ári, og því
nauðsynlegt að gera sem fyrst
allar nauðsynlegar ráðstafanir til
l)pss að útvega alt það efni, sem
fáanlegt er, og eins að undirbúa
e|ns mikið af framkvæmdum á
sem flestum sviðum, og frekast
er nnt að ráðast í.
—Mhl. 29. des., 1940.
Gullbrúðkaup
Lúterski söfnuðurinn í Blaine,
^Vashington og lestrarfélagið
•fón Trausti” efndu til mann-
fagnaðar sunnudaginn 29. des-
ember s.l. í tilefni af fimtíu ára
g'ftingarafmæli þeirra, hvoru-
tveggja hjóna Mr. og Mrs. Daniel
•fohnson og Mr. og Mrs. Stein-
grimur Hall, og mun það í fyrsta
s,nn að tvenn íslenzk hjón eigi
saineiginlegt fimtíu ára gifting-
arafmæli i þessari bygð.
Þegar kl. var 7.30 um kvöld-
'ð voru allir bekkir vel skipað-
lr i lútersku kirkjunni, því þar
atti heilög athöfn að fara fram.
hirkjan var yndislega vel skreytt
grænviðarlaufum og blómum, en
a altari loguðu ljósin á hinum
Uóniandi fallegu fjórtán kerta
liósastjökum, sem þá nýlega
höfðu verið gefnir kirkjunni af
Mrs. (). Donoll, elztu dóttur
heirra merku hjóna Mr. og Mrs.
•f- J. Straumfjörð. Fyrir nokkr-
Uln dögum hafði verið lokið við
að rnála alla kirkjuna að innan,
svo hafði lika unga fólkið átt
sinn þátt i þvi að fegra kirkjuna
fyrir jólahátíðina, var þvi þetta
Luðs hús mjög ánægjulegt og
aðlaðandi i ljósadýrðinni.
Athöfnin byrjaði með þvi að
hvorutveggja brúðhjónin gengu
hrúðargöngu inn kirkjugólfið, og
1 fylgd með þeim voru börn
þeirra og tengdabörn, þá var
hrúðarmarzinn spilaður af organ-
1S|ta safnaðarins Miss Thoru
Johnson, risu þá allir úr sætum,
en fyrir altari voru þeir séra
h- K. ólafson, forseti kirkjufé-
lagsins, og séra Guðm. P. John-
Sor>, prestur Blaine safnaðar.
Þvi næst var sunginn sálmurinn
Hve gott og fagurt.” Að því
loknu Ias séra K. K. ólafson
velviðeigandi ritningarkafla, en
Prestur safnaðarins flutti bæn,
siðan var sunginn sálmur.
Að athöfninni lokinni hófst
skrúðganga, undir organspili úr
kirkjunni og yfir í félagshúsið,
v°ru þar smekklega dúkuð borð
°g sæti fyrir 130 manns. Hvoru-
tveggja gullbrúðhjónin voru
léid til sætis við háborðið, ásamt
hörnuin þeirra og tengdafólki.
Húsið var fagurlega prýtt og
angandi blóm á öllum borðum,
tv<ær brúðarkökur smekklega
skreyttar og ljós loguðu ú ótal
kertum.
Korsæti skipaði Mr. Andrew
Hanielson og við hlið honum sat
^tr Guðjón Johnson, forseti
lestrarfélagsins “Jón Trausti.”
Mr. Danielson setti samsætið
uieð nokkrum vel völdum og
hlýjum orðum i garð hrúðhjón-
anna, bauð hann alla velkomna,
hað siðan prest safnaðarins að
Hytja borðbæn. voru svo fram-
bornar veitingar af konum
beggja ^efndra félaga.
Þegar borðhaldinu var að
mestu leyti lokið byrjaði l'jöl-
breytt skemtiskrá. Ræður voru
fjörugar og söngurinn hinn
skemtilegasti, undir stjórn Mr.
A. Ágústson frá Bellingham.
Ekki þarf að taka það fram að
allir íslenzku prestarnir í Blaine,
voru þarna og töluðu. Það er
nú orðið á allra manna vitund
að þeir eru fleiri íslenzku prest-
arnir í þessu litla kauptúni, en í
nokkrum öðrum srnábæ í þessari
heimsálfu, og það bezta af öllu
er, að þeim kemur ágætlega
saman.
Séra Kristinn var aðal tölu-
maðurinn þetta kvöld, enda
þekti hann manna bezt hvoru-
tveggja brúðhjónin, hann talaði
svo vel, að Mr. Danielson bauð
honum aftur orðið með ótak-
mörkuðum ræðutíma, þrátt fyr-
ir það þó áður hefðu settar verið
10 mínútur handa hverjum
ræðumanni.
Séra Albert talaði vel og
skemtilegaN svo allir klöppuðu
honum lof í lófa. Ræða séra
Halldórs var meistaraleg. Scra
Erlingur ólafson talaði vel og
hlýlega til brúðhjónanna. Á
inilli ræðanna var hrífandi söng-
ur og hljóðfærasláttur. I>ar
skemti líka með einsöngvum
okkar vel látni söngmaður hér
á Ströndinni, Elías Breiðfjörð.
Þá hélt Andrew Danielson
snjalla ræðu, lét hann i ljós á-
nægju sína yfir þeirri einingu
og samhug er þessi mikli mann-
fögnuður bæri vott um, enda
ættu þessi hvoruhveggja heiðurs-
hjón slikt fullkomlega skilið.
Mrs. O. Paulson, Mrs. M. Bene-
diktsson, og fleiri tóku líka til
máls.
Þá kvaddi sér hljóðs Mr. Guð-
jón Johnson, afhenti hann heið-
urshjónunum nokkrar smekk-
legar gjafir, frá bygðarbúum,
voru það tveir gólflampar, kaffi-
borð og hægindastóll, alt sér-
staklega vandaðir munir. Mr.
Johnson sagði þá líka nokkur
orð fyrir hönd lestrarfélagsins
og þakkaði heiðurshjónunum
fyrir þeirra óskiftu krafta i þágu
félagsins, því þar hafa þau með
limir verið í mörg ár. Tvær
yngismeyjar færðu brúðhjónun-
um blómvendi með lukkuóskum.
Að sjðustu þökkuðu heiðurs-
gestirnir með innilega hlýjum
orðum til allra þeirra mörgu
vina, bæði fjær og nær, sem
hefðu verið hluttakendur í þvi,
að igera þeiin þessa kvöldstund
svo ánægjulega og ógleymanlega.
Mrs. Daniel Johnson flutti þá
Mka nokkur frumort erindi, sem
hún kallaði “Síðasti áfanginn.”
Fjöldi af heillaóska skeytum
bárust hvorutveggja brpðhjón-
unum bæði frá Canada og
Bandaríkjunum.
Mr. og Mrs. Daniel Johnson
eru ein af okkar beztu og mest
vellátnu búendum í Blainebygð-
inni, þau eru nú hnigin á efri
aldur en samt eru þau í fullu
fjöri, hvað félagslíf snertir, þau
eru innileg og góðar manneskj-
ur, þau elska starf kirkjunnar
og styrkja það af öllum kröftum,
vilja ekki vamm sitt vita í einu
eða neinu, eru háttprúð í allri
framkomu og elskuð og virt af
öllum. í Lögbergi inunuð þið
sjá mynd af þeim hjónum og
er hún mjög lik þeim eins og
þau eru nú á níræðisaldri. Þau
eiga þrjár dætur og einn son,
sein öll eru nú gift og í alla staði
hin mannvænlegustu. Sonur
þeirra, Franklin, býr nú á bú-
jörð foreldra sinna og búnast
vel, enda er kona hans dugleg
og honum samtaka i öllu.
Mr. og Mrs. Steingrimur Hall
hafa einnig búið fjölda mörg ár
í Blaine-bygðinni, þau eru nú
lika orðin nokkuð öldruð.og ekki
sem sterkust til heilsunnar, en
þau eru líkt og Johnsons, trú-
verðug og góð, hafa ávalt verið
fylgjendur í öllu góðu félagslifi,
og verið trú og einlæg kirkju
sinni og elska það starf enn
10 ÖKEYPIS UNGAR!
BÆNDURI
A LIFU (» LAFRA MIÆIÐEN DUR!
ATHYGUI
Hygginn bóndi skipuleggur fyrir fram-
tíöina. Margir gildir alifuglaframleib-
endur eru nú att senda pantanir att
HAMBLEY ELECTRIC CHICKS, Munitt
eftlr att mett hverri fyrirfram greiddri
pöntun fyrir 1. marz sendum vér einnig
10 ÓKEYPIS UNGA — etta 5 ÓKEYPIS
PULLETS mett hverju 100.
100<>i Arr. Gtd. Man. Sask. Alta
W. LeKhorns ...100 $11.25 $12.00 $11.75
W. LeKhorns ... 50 5.00 6.50 6.25
W. Leghorns ... 25 3.00 3.50. 3-25
W.L. 1‘ullets 100 24.00 24.00 24.00
B.M. Pullets ) 50 12.50 12.50 12.50
UH'/t Aeeuracy... 1 25 6.25 6.25 6.25
W.L. Co«*krl8 ...100 3.00 3.00 3.00
liarretl Roeks.. 100 12.75 13.25 13.73
llampshires .... 50 6.75 7.00 725
H. Minoreas.... 25 3.50 3.75 3.75
H.R. 1‘ullets ... j [ .100 19.00 20.00 21.00
llamp. IMillets 1 ' 50 10.00 10.50 11.00
25 5.25 5.50 5.50
W. W.vamlottes. ( 100 13.50 13.50 15.00
R. I. Reils 50 7.00 7.25 8.00
1 35 3.75 3.90 4.00
H. Orpingtons.. ...100 14.00 16.00 15.75
W. Roeks 100 13.50 13.50 13.50
(May 10, reikiee lc Chiok—Pullets 2c)
Semlitt pöntun beint eftir þessari aug-
lýsingu, etta skrifift eftir ÓKEYPJS Chlck verttskrá.
j. J. HAMBLEY HATCHERIES
Winnipeg, Brandon, Kegina, Saskatoon,
Calgary, Edmonton, Portage la Prairie,
Dauphin.
þann dag í dag; þau eru vel látin
hjón og eiga marga sanna vini
bæði fjær og 'nær. Þau eru
söngelsk með afbrigðum og hafa
tekið mikinn þátt í þeim lið
starfsins, og orðið þar til hinnar
mestu og beztu hjálpar, og svo
eru þau enn þegar kraftar leyfa.
Þau eiga einn son, ólaf að nafni,
og er hann þeirra eina hjálp
við heimili þeirra í Blaine-bygð-
inni.
Samsætið var hið ánægjuleg-
asta í alla staði, ríkti þar bræðra-
lag og eining, einnig sannur al-
íslenzkur félagsandi. G. P. .7.
* * *
SfÐASn ÁFANGINN
Andi kærleikans á hér rót,
öllum meinum sem vinnur bót;
hér iðkar fólkið dóð og dygð—
Drottni tilheyrir þessi bygð.
Hér hef eg lifað efri ár,
æskan er gleymd og þornuð tár;
fólkinu að launa fyrir mig,
Faðir á himnum, bið eg þig.
Ungmennum fagra framtíð gef,
friði og ró þá eldri vef,
lagfærðu, Drottinn, líf vort alt.
láttu það hlýna, sem er kalt.
Gef þú oss öllum, Guð, af náð
góðan vísdóm og hjálparráð,
til þess að sigra synd og þraut.
sönn gæfa fellur þá í skaut.
Allir mannvinir síðar sjást
sönn þar sem rikir trygð og ást,
fogur hvar ljóma friðarljós,
fylling vona og sigurhrós.
Kjomandi farsælt yndisár
afnemi hrygð og græði sár,
Guð vor þín náð og gæzka blíð
gleðji og blessi allan lýð.
Kristin Johnson.
* * *
ÞAKKLÆTl
Innilegar þakkir eiga þessar
línur að færa öllum okkar vinum
og kunningjum, bæði nær og
fjær, sem . sýndu okkur þann
mikla heiður, er lýsti sér greini-
lega í því ánægjulega samsæti,
er okkur var haldið í Blaine
sunnudaginn þann 29. desember.
og fyrir þær indælu gjafir er
okkur voru færðar það sama
kvöld.
Sérstaklega þökkum við þó
lestrarfélaginu “Jón Trausti” og
lúterska söfnuðinum í Blaine,
fyrir auðsýndan heiður og biðj-
um vér Drottinn að hlessa alt
þetta góða fólk og gefa því sönni
ánægju og gleði eins og við höf-
um notið á þessari ógleymanlegu
kvöldstund.
Daniel Johnson
Kristin Johnson
Steingrimur Hall
Sigriður Hall.
H. BJARNASON
TRANSFBR
Annast greifSIepra um alt, sem aB
flutnlngum lýtur, sm&um efN
stórum Hvergi sanngjarr.ara
verB.
Heimili: 591 SHERBURN ST.
Sími 35 909
The Watch Shop
Diamonds - Watches . Jewelry
Agrents for BUL.OVA Watchea
Marriage Licenses Issued
THORLAKSON & BALDWIN
Watchmakers and Jewellera
699 SARGENT AVE., WPG.
FROSINN FISKUR
nýkominn frá vötnunum
Hvítfiskur, slægður, pd. 8c
Pickerel, pd............ 7c
Pækur, pd.................. 3%c
Birtingur, pd........... 3c
Vatnasíld, pd........... 4c
Sugfiskur, feitur, pd... 2Vác
Fluttur um borgina, ef pant-
að er dollars virði. Pantanir
utan af landi afgreiddar taf-
arlaust. Fiskurinn ábyrgstur
að vera alveg nýr; annars
peningum skilað aftur. Pantið
strax!
Jón Árnason
323 HARCOURT ST„ St. Jas.
PHONE 63 153
íslendingamót “Fróns”
(Framh. frá bls. 1)
ingum, þar mætast frændur og
vinir frá Bandaríkjunum og Can-
ada og minnast þess að þeir eru
allir Ameríkumenn af íslenzkum
stofni.
fslendingar fjær og nær, sækið
þessa hátíð og hjálpið okkur að
gera hana sem hátíðlegasta og
veglegasta. Að hátíðin verði
Vestur-íslendingum til sóma,
gleði og gagns er einlæg ósk
okkar allra.
Stjórnarnefnd “Fróns.”
Ársfundur Blaine-safnaðar
Ársfundur Blaine-safnaðar var
haldinn sunnudaginn 26. janúar,
strax eftir morgunmessu, var
fundur sagður fjölmennari, en
verið hefir í mörg undanfarin
ár, allar skýrslur sýndu að söfn-
uðurinn er ekki í neins konar
vandræðum heldur gengur starf-
ið vel viðunandi í öllum greinum.
Embættismannakosningar féllu
þannig að 4 nýir menn komu
inn í nefndina, og voru það þeir
Erlingur ólafson, Jónas Jónas-
son,- Sveinn Westford og Mrs.
Ella Wells, en Mr. J. .1. Straum-
fjörð er áfram gjaldkeri, eins
og hann hefir verið * mör.g ár.
Mr. Andrew Danielson var i
kjöri en bað undan um undan-
þágu eftir 11 ára starf sem for-
seti safnaðarins; var honum
vinsamlega þakkað fyrir vel
unnið starf með því að allir risu
úr sætum.
15 nýir meðlimir voru boðnir
velkomnir í söfnuðinn. Forseti
fyrir yfirstandandi ár er Mr.
Erlingur ólafson, gjaldkeri Mr.
,T. .1. Straumfjprð, skrifari Mrs.
Ella Wells.
Djáknanefndin var endurkosin
að undantekinni einni konu, sem
ekki gaf kost á sér, Mrs. W. ög-
mundson.
Djáknarnir eru þvi þessir:
Mrs. Andrew Danielson, Mrs.
Thorbjörg Johnson, Mrs. Albert
Fjeldstedt, Mrs. J. J. Straum-
fjörð og Mrs. Franklin Johnson.
Strax eftir fundinn fóru allir
yfir i félagshúsið og fengu sér
gott kaffi, því þar stóð unga
fólkið og veitti öllum óspart
kaffi og smurt brauð ásamt alls-
lag,s kryddbrauði. Allir fóru
heim glaðir í anda og treysta að
Drottinn gefi bjarta framtíð i
safnaðarmálum vorum.
Þegar þér eruð í Winnipeg
þá heimsœkið
EATONS
Póátpantana Söluclcilcl
SEM ER Á ÁTTUNDA LOFTl
MAIL ORDER BUILDING, DONALD STREET
ÞaT bíða yðar vingjarnlegar viðtökur og prúðmann-
legt afgreiðslufólk aðstoðar yður við vöruvalið.
Þér getið skoðað vörurnar með yðar eigin augum,
og herbergi eru lil taks þar sem þér getið mátað á
yður föt, stíg\Tél og skó ef yður þóknast
Þér getið flutt með yður það, sem þér kaupið, eða
vér önnumst um sendingu beint til pós'tliúss vðar
eða járnbrautarstöðvar. Búið í háginn um að koma
til fundar við vini vðar í EATON’S Póstpantana
Söludeild — oss er ónægja í að heilsa upp á vður !
T. EATON
WINNIPEG CANADA