Lögberg - 20.02.1941, Síða 6

Lögberg - 20.02.1941, Síða 6
6 LÖGBERGK FIMTUDAGINN 20. FEBRÚAR 1941 I átt morguroðans (Þýtt úr ensku) “Já, Mr. Merrik/' sagði hin þriflega og útileita sveitastúlka. “En er það satt, u m —” “Um Jeremy Clowes?” bætti Merrik við og glotti. “Já, það er, satt. Ilann er búinn að finna konuna sína aftur. Hún heitir Evelyn Arundel.” “Hún hlvtur að vera undur falleg. Eg er að undra mig yfir því hvað —” Hazel brann í bjórnum út af einhverju til að segja honum, það sá Merrik. Hann gat sér líka til um hvað það væri, en hann ætlaði sér ekki að lét'ta neitt undir með henni um það. “Miss Nóna —” “Hvað um Miss Nónu ?” sagði hann, lét burstann aftur inn í skápinn og tók' upp höfuðfat sitt. “Hún — jæja. hún mun ekki gleðjast af því að — að hann hafi hitt konu sína lífs og heila — eg á við að hann —” ‘ ‘ Hvað kemur þér til að halda það, Hazel?” “Jæja, mér hefir skilist að liún \ræri að laga ýmislegt og ganga frá 'í kistu sinni til Englandsfarar, og það væri vegna þess að—” “Þú ímyndar þér margt, Hazel,” sagði liann brosandi. “Þú hefir lesið of margar sögur í tímaritinu, sem þú færð — “Ástar- draumar,” er það ekki ?” Hazel stokkroðnaði upp í hársrætur og Merrik var lagður á stað út áður en hún gæti svarað honum. En hún var ekki að ímvnda sér neitt. Það er enginn hugarburð- ur, er maður rekur sig á fataskrín og ferða tösku til reiðu í horninu á klæðaskáp. Og það var enginn hugarburður að hún hafði í næstliðinni viku séð Nónu Brill koma út úr farbréfaskrifstofu í St. John. Nóna hafði veríð að undirbúa för sína til þess að sam- einast Jeremy í Englandi. En nú var Jeremy ekki lengur frjáls og einhver þránd- ur hlaut að hafa ruglað fyrirætlunum Nónu. Það var Hazel hárviss um. Hitt fólkið, þau Merrik og Brills-hjónin hlyti að vera stein- blind. ef þau sæi þetta ekki. Hazel taldi engan vafa á því, að Nóna hefði elskað •Jeremy, og nú væri hún helsærð beint í hjartastað. Það myndi hafa liðið alveg yfir Hazel, ef hún hefði getað fylgt Merrík eftir tií bæjar og séð hann kaupa giftingarhring og leyfisbréfið. Og hún hefði undrað sig yfir því, handa hverjum slíkt gæti verið. Engum gat dottið í hug að bendla Merrik við ásta- mál. Hugur hans var of heillaður af hrein- kynjuðum Ayrshire gripum, sauðfé, svínun- um og búlandinu sjálfu. Það gæti engum til hugar komið, að Merrik færi að ganga í hjónaband; hann væri allareiðu háður kær- leiksviðjum gróandans og gangandi fjárins ú Brill-setrinu. Merrik þræddi nú leið sína frá einni verzluninni til annarar, inn í fatabúðina, skóbúð og tóbaksverzlun. Hann, sem aldrei hafði hugsað um stássklæðnað — þunnu ullardúksfötin, sem hann var klæddur voru þriggja ára gömul — en nú keypti liann fín blá. kla-ðisföt, skvrtur og hálsbindi er við áttu. Nónu keypti hann gimsteinum prýtt úlnliðsúr, og fastsetti með sjálfum sér að taka frá og geyma fallegustu silfurtóu-feld- ina í yfirhöfn handa henni. Merrik leiddist bæjarvafstrið og hafði lokið erindum sínum þar um hádegið; fór svo upp í gamla tvímenningsbílinn, sem Jeremy hafði eitt sinn verið meðeigandi í, og stefndi honum inn á stórumýrar götuna, sem út úr bænum vissi. Hringur, leyfisbréf, brúðargjöf — hann yfirvegaði í huganum kaupskapinn og sá, að ekkert hafði gleymst. Hann hélt það góða liugmynd, að vígslan færi fram í Sussex, smáþorpi um þrjátíu mílur frá Lydondalnum, þar sem Brillsetrið stóð. Það vaknaði nú í huga hans sú staðreynd, að hann einn væri að ráðstafa öllu og að Nóna legði þar ekki eitt orð í, en samþykti bara alt sem hann gerði. Og j>að var ekki Nónu líkt — ónei, alls ekkert svipað henni. Á heimleiðinni sá hann við Terryburn j»jóta niður eftir veginum stóru bifreiðina, er Archer Brill gaf dóttur sinni Nónu, jægar hún í júní hafði lokið háskólanáminu. Hann rétti út frá sér aðra höndina, veifaði henui upp og niður og hún herti að hömlunum á reið sinni. Hann stanzaði einnig stökk nið- ur á götuna og gekk aftur eftir veginum vfir að bifreiðinni, sem hún sat í. Nóna hafði vafið grænum silkitrefli um höfuð sér, og sló á lokka hennar gullsgliti líkt og á hlvnviðinn meðfram veginum. Skýlan var knýtt undir hökunni og virtist Merrik andlit stúlkunnar í þessari umgjörð vera sem gv’ðjumynd. Hann sá þar nú að eins bláa litblæinn í augum henni. “Horfðu 'við brúðgumanum, ” sagði hann glettnislega. “Þú lítur dásamlega út í dag, Nóney, alveg eins og lífsdjörfu kven- hetjurnar í myndasögublaðinu “Ástardraum- ar,” sem hún Hazel trúir á og tignar. Hefir þú séð þær ? Þær þeysa um á rjómalitum bílum, líkum þinni reið, og virðast telja slíkt mestu augnablik æfi sinnar.” Nóna brosti við þessu spaugi hans. Brosið gerði svip hennar mjúkair, mildaði j/óttasvip varanna og maður gleymdi græn- leita hörkuglampanum, sem stundum bólaði á í augum henni. “Hvað’hefir þú verið að gera, Merrik!” “Að fá hring, leyfisbréf, brúðargjöf, stássbúning lianda brúðgumanum, og nú síð- ast olíu í Rothesay til að mýkja gang gift- ingarkerrunnar. Þú hefir víst ekkert á móti j»ví að skjótast burt í því farartæki?” Hann studdi handlegg ofan á bifreiðar- hurðina. Og hún lagði hönd sína, með mjúka eltiskinnsvetlingnum ofan á handlegg- inn, leit upp til lians og mælti: “ Ert þú viss ura — að þú viljir —” Glens-svipurinn hvarf af andliti Merriks og yfir það breiddist einlægnisblærinn er hann játaði þessu með mjúkri höfuðsveiflu. “Það er eg,” sagði liann. “Eg hélt að við hefðum þegar gert út um það — í gær- kveldi. Nú er ekki um neina afturköllun þess að ra>ða.” “Þig — þig mun — ekki iðra þess, Merrik.”. Þetta var loforð en ekki spurn- ing, og hann vissi að hún meinti þetta, vildi j>að af öllu hjarta, eins og hann af öllum liuga vitdi að það gæti orðið svo. ■ Ó-jæja, það gæti vel ræzt. “Við leggjum á stað um klukkan átta í kv’öld, Nóney. Mér datt í hug að við mætt- um eins vel keyra til Sussex og láita vígja okkur þar. Væri þér það geðfelt ” “Já — ó-já, það væri gott. Og hvert förum við svo þaðan?” “Segjum yfir að Harmatjörn?” Hann sá hana ypta öxlum og höndina grípa fastara um’stýrishjólið. “Nei — nei, tkki þangað, Merrik, vertu svo vænn. Ekki jiangað.” Hann spurði ekki “hvers vegna?” Hann vissi of vel ástæðuna. Svipur Jeremys sveimaði enn umhverfis bjálkakofann við Harmatjörn. Of margt væri j)ar til minn- ingar um hann. “Jæja, við finnum einhvern annan stað á leiðinni. Og svo verður glaða-itunglskin, í eglulegur flökkulýðs-máni, til að lýsa okkur veginn.” “Vertu sæll, Merrik. Eg verð komin heim aftur um klukkan fimm.” “Eg bíð þín þar.” Þ r i ð j i Kapítuli Dagsbirtan dvínaði nú óðum og húm- skuggar haustsins lögðust yfir laut og hól. Stóri Merrik heyrði Nónu vera að leika á slaghörpuna fyrir foreldra sína meðan hann bar töskurnar niður Stigann og út í bifreiðina. Ilann fann til samvizkubits, og var að undra sig út af því hvað hann myndi geta sgt ef þau Archer og Elízabot ka'mu fram og hittu hann við þessa önn. Hann kom töskunum fvrir í bílnum, fór svo aftur inn í húsið, opnaði stofuhurðina hljóðlega og stóð nokkur augnablik í dyrun- um, án þess að fólkið j>ar inni tæki eftir nærveru hans — þessar þrjár mannverur, er ásamt Jeremy Clowes voru honum kærastar allra manna. Hár gamla Arohers var stál- grátt og úfið að vanda, en hár Elízabetar orðið snjóhvítt. Eitt sinn höfðu lokkar hennar þó borið sama lit og Nónu nú. Og eitt sinn, hugsaði hann bljúgur, hlaut Elíza- bet að hafa verið ung, fjörleg og fögur mær eins og unga stúlkan við hljóðfærið. Nóna lék lögin, sem þeim j)ótti vænzt um og mintu þau á löngu liðna tíma, er þau voru ung og lífsfjörið svall þeim í æðum. 1 augum Elízabetar var draummjúkur blær endur- minninganna, og Archer sat, í gamla flauels- sloppnum sínum, þrýsti saman fingurgóm- unum og starði dreymandi augum í arineld- inn. Gamlir tónar, gamlar minningar, forn ástareldur, var alt enn lifandi og mátt- ugt í huga gamla fólksins og bygt á einlægn- innar bjargi, það sá Merrik nú vel. Nóna tók eftir því að Merrik stóð j>arna i dyrunum. Hún lauk leik sínum, gekk til foreldra sinna og kysti þau mjúklega. “Eg ætla í dálitla keyrsluför með Merrik,” sagði hún svo. Aroher gamli klappaði ánægjulega á hönd henni. Og Elízabot horfði á eftir henni með hróðrarkendum aðdáunarglampa í aug- unum. Þau efuðust aldrei um réttmæti hvers j>ess, er hann og Nóna hefðist að, }>að vissi Merrik. Og hann vissi að J)au myndi ekki andmæla gifting þeirra; en að þeim myndi ekki geðjast að því hvernig hún færi nú fram, það var Merrik ljóst í liuga. Er þau í húminu gengu út að bifreið- inni, greip hann um handlegg Nónu og þau stönzuðu, sneru sér við og störðu angurs- augum á uppljómaða glugga stofunnar, þar sem foreldrar hennar sátu enn við draum- Ijúft bergmál liðinna s'tunda, er söngur Nónu hafði vakið í brjóstum þeirra. Þetta verður aldrei hér aftur eins og áður var, hugsaði Merrik með þvínær lítt bæra amaj>raut í hjarta. Merrik vissi að hugsanir Nónu væri eitt- hvað svipaðar hans eigin. Að hún myndi vilja snúa jiania aftur, en að einnig henni væri sú sára staðreynd ljós, að hér gæti ekki verið um slíbt að ræða nú. “Ó, Merrik!” hvíslaði hún og þrýsti vanganum að öxl hans. “Ef — ef við gætum nú aðeins hætt við förina og snúið heim aftur!” Hann vissi hvað hún ætti við og við- kvæmt hugareyra hans heyrði hið sára bæn- arandvarp er í hjarta hennar ómaði: “Ó guð! snúðu stundunUm við, gefðu mér aftur gærdagana, gerðu mig aftur að barninu sem eg áður var, og leiddu mig út úr þessum skugga!” “Þetta leiðist vel út, Nóney, ” sagði hann blíðlega. “Al't verður ljúft a"ð lokum.” Hann hjálpaði henni svo upp í tvímenn- ingsbílinn «og lét hann líða hljóðlega fyrir eigin þunga og án vélarhvinsins niður heima- stiginn og hæðarbrekkuna fram lijá kirkj- unni, þvínær hálfa mílu vegar. Þau fylgdu götunni með fram hlykkj- óttum árbakkanum J>ar til þau komu að brúnni og þjóðveginum er til Suxess lá. 1 blómahúsi Hampton þorpsins keypti Merrik stórt knyppi af Peter Pan rósum, í-jómagulum að lit með blábrauðum yndis- blæ. Hún faldi andlit sitt í þessu ilmljúfa skrautblómsbindi, og sagði ekkert, en var að furða sig yfir því, ef öll kærustupör, er að heiman leyndist til að gifta sig, væru svona hæglát og þegjandaleg, eins og þau sjálf væri nú. Þegar þau komu til Suxess, fór Merrik að líta í kringum sig eftir kirkjum. “Það er kirkja þarna dálítið niður með götunni,” sagði Nóna, “og prestshúsið við hlið hennar. Eg veit það vegna þess eg kom j)angað einu sinni. Dóttir prestsins gekk á Edgemere skólann með mér. Þú manst víst eftir henni — Betliany Thayer. ” “Ó, já,” svaraði Merrik. “Þarna er setrið. Það er ljós í prestshúsinu. Hvernig líður þér, Nóna — taugarnar rólegar, alt undir stjórn viljansl” “ Já, alt,” svaraði hún og brosti hreysti- lega. Hann skildi við hana í bifreiðinni, g('kk upp að húsdyrunum og hringdi. Við birtuna frá fordyrisljósinu sá hann ofan við bjölluhnappinn að enn stóð nafnið Thayer — séra Agnew Britt Thayer, D.D. Hann mundi eftir Nónu Brill. “Skóla- systir litlu Bethany dóttur minnar,” sagði presturinn glaðlega. “Gerið svo vel að •ganga beint inn. Hamingjunni sé lof, að dís ástaræfin'týranna er enn lffs í lieimi hér. Eg skal ná í vígsluvottana undir eins —” “Eg, Merrik, tek þig, Nónu —” Orðin hljómuðu þarna í litlu stofunni prestsins, með dómkirkjulegum alvöruhreim. Nóna stóð hreyfingarlaus, horfði beint fram undan sér og augú hennar virtust sem glóð- arblettir í fölbleiku andlitinu. Meðan Merrik stóð nú ögn álútur og hlustaði á hina hvellu rödd séra Agnew Thayers, skotraði hann augum skyndilega til hennar og í hjarta hans vaknaði harmi blandin og j)ó um leið unaðslega mjúk samúðarkend. Þetta var Nóna, litla Nóney — og hann, Merrik var að lofa því frammi fyrir augliti guðs, að elska hana, virða og vernda. Og ótrauður lofaðist hann nú til að gera það. Séra Agnew’ Thayer brosti ánægjulega við }>eim og sagði í háværum kætisrómi: “Þegar eg skrifa Bethany minni, skal eg segja henni í hve æfintýralegum erindagerð- um þér heimsóttuð okkur hér nú aftur, Nóna. Mér finst alveg éins og það hefði verið í gær, tír þið steðjuðuð með hlátrum og galgopa- skap um alt húsið og trufluðuð mig við ræðu- samninginn.” Þegar þau keyrðu út eftir götunni aftur, sagði Merrik: “Við ættum helzt að standa við sem fyrst og kalla heim í símanum. Það eru næstum komin háttamál fyrir þau ]>ar.” “Þeim verður víst ekki svefnsamt eftir að J)au frétta ]>etta. Gætum við ekki sent j>eim símskeyti?” “Til þess er orðið of áliðið. O^ á hinn bóginn veizt j)ú hvílík áhrif símskeytin hafa á ]>au. Núna myndu þau áreiðanlega-ímynda sér að Jeremy væri annaðhvort dauður eða særður. Við skulum kalla til þeirra úr mat- söluhúsinu þarna.” “Vilt þú tala við þau, Merrik?” “Já,” svaraði hann Ijúflega. “Já, eg skal tala við ]>au fyrst, Nóna. En eftir að eg hefi birt þeim fréttina, talar þú að sjálf- sögð”5 við þau líka.” “Heldurðu að þeim falli þetta l>ung- lega?” Hann hristi höfuðið. “Ekki í raun og veru. Auðvitað kemur það þeim að óvörum. Þau grunaði alls ekkert um það, og hafa vafalaus't haldið að þú myndir giftast ein- liverjum herramanni.” Þau fóru svo inn í matsöluhúsið. Hún beið utan við fónklefann, en hafði augun á andliti Merriks og gat ráðið af því hvað við haun væri sagt. Hún vissi af hljómnum í rödd hans, að hann talaði við gamla manninn, því Merrik ávarpaði Elízabetu ávalt í sérstak- lega mjúkum og laðandi tón, eins og hann héldi að hversdagsleg rödd sín hefði lam- andi áhrif á hinn veiklulega líkama hennar og viðkva'ma lund. Ö-já, það var Archer gamli, sem svaraði og samræðan var ekki eins auðveld og Merrik liafði búist við. “Þetta var ekki fallega gert af ykkur, Merrik, ” var Archer Brill að segja í ómjúk- um gremjutón. “Þið, hefðuð átt að segja mér frá þessu fyrst. Ef þið voruð viss um að eg hefði ekkert á móti þessu — og eg hygg að j.ið liafið haldið J>að, — því fóruð J)ið þá að gera annað eins og þetta ? Hví að laumast burt að næturlagi, eins og þið ætluð- uð að fremja eitthvert ódæði? Nóna er J)að eina sem við höfum nú, eins og Jní veizt —- hið eina af okkar eigin.” “Eg veit það,” svaraði Merrik stillilega, þótt hann væri nú látinn skilja J>að, að hann teldist ekki einn af þeim. Þetta var í fyrsta sinn á unaðslegri dvöl hans hjá Brillsfólkinu, sem nokkurt þeirra hafði látið eitt orð falla um slíkt. ‘ ‘ Hið eina, sem við getum nú auðvitað gert,” bætti Archer við, “er áð óska ykkur báðum allrar ánægju. Þetta er — er mér þó J)ungbært, Merrik. Og fréttin verður þungbær Elízabetu líka. Við vitum hversu ágæt þið eruð — hin allra beztu — af því er þessi launungargifting okkur svo óskiljan- leg. Það er svo ólíkt ykkur að gera annað eins. Við hefðum glaðst og miklast af því, drengur minn, að vera viðstödd vígslu ykk- ar. En eg get ekki sagt með sanni að mér falli vel að fá svona tilkynning álengdar.” “Það hryggir mig, kæri Mr. Brill. ” Svipurinn á andliti Merriks var lúpulegur eins og á gamla Rolf er hann væri rekinn lieim úr fylgd vinar síns. Merrik fann, að Iiið einlæga kærleiksj>el, sem ríkt hefði frá J)ví fyrsta milli Brills-hjónanna og hans sjálfs, hafði á þessari stundu drðið fyrir ó- j)ægilegum árekstri. “Nú er komið að þér, Nóna,” sagði hann og steig fram úr klefanum til að rýma fyrir henni. Hann vissi, að hún myndi koma brosandi út þaðan aftur, enda brást það ekki þó að á tárin glitraði milli löngu dökku augnaháranna hennar. “Alt er fyrirgefið, Merrik,” sagði hún. “Eg sagði þeim, að við kæmum bráðlega lieim aftur. Þú ætlar þér ekki, Merrik, að vera lengi að heiman?” “Nákvæmlega jafn-leugi og þér þókn- ast, Nóna,” sagði hann og gekk um leið að söluborðinu til að ná sér í fáeina vindla. “Þetta var nú ekki mjög auðvel't,” mælti hann enn og leit um öxl er hann sneri frá henni. “Mér reyndist J>að örðugra en nokkuð annað, sem eg liefi orðið að gera. Þeim brugðust svo vonir sínar um okkur, held eg.” “Þetta barsib þeim bara svo skyndilega og óvænt. Þau hafa nú náð sér aftur. Mamma grét auðvitað,” sagði hún. Þau settust niður við borð í einum af liinum afþiljuðu klefum stofunnar, til að fá sér kaffibolla og brauðsneiðar til hressing- ar. “Og hérna er gjöfin lianda þér, Nóna,” sagði hann, rétti henni steinum prýdda úln- liðsúrið, sem hann hafði keypfc handa henni j)á um daginn, og sá nú gleðibrosið breiðast um alla ásjónu hennar. Hún hafði einnig nælt dálítið knippi rósanna á kragahom gulbrúnu yfirhafnarinnar sem hún var í. í hans augum var þetta sem brúðarskraut hennar, og hann gladdist yfir að sjá ánægju- tárin birtast skyndilega í augum hennar yfir þessari litlu gjöf hans. “Eg keypti pípu handa þér, Merrik. Það er ekki mei’kileg —” “Mér geðjast ekkert betur,” greip hann fram í fyrir lienni og a'bhugaði vandlega með leiftrandi brosi hina falleg-u og kroti skreyttu pípu með villirósablænum, er hún rétti hon- um. “Við erum skrítið brúðhjónapar, Mer- rik,” sagði hún og hló með dálitlum titringi í röddinni. “Hvernig þá?” “Vegna þess, meðal annars, að við liöf- um ekki með einu orði minst á — á ástir.” “Svo er það. Við verðum líklega að gera j>að bráðlega.”

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.