Lögberg - 27.03.1941, Qupperneq 1
PHONE 86 311
Seven Lines
™ a n
c°t-
«■
Servioe
and
Satisiaction
PHONE 86 311
Seven Lines
d
%otd
“"sN-ftVV'
* l,')'11' W', »* * For Better
"V^ Dry Cleaning-
and Laundry
Co’f
ö4. ARGANGUK
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 27. MARZ, 1941
NÚMER 13
Þjóðverjar ógna Jugoslaviu
í félag við sig
Ein þjóðin enn hefir gengið á
méla hjá Adolf Hitler, þó ekki
8erði hún það fúslega fremur en
Fer þjóðir aðrar, er Þjóðverjar
hafa traðkað undir hæl; nú varð
l*að siðast Jugoslavia er þröngv-
að var inn í þýzka, japanska og
dalska yfirgangsbandalagið;
^aniningar í þessa átt voru und-
irskrifaðir í Vínarborg á mánu-
daginn, og er Þjóðverjum sam-
kvæmt fyrirmælum þeirra heim-
ilað að flytja hergögn, vistir og
særða hermenn yfir land Jugo-
slava. Serbar, sem mega sín
mikils í Jugoslaviu, eru harla
andvígir þessu nýja bandalagi
við þríveldasambandið.
^jóðverj ar hafa í
hótunum við Island
útvarpið canadiska flutti þær
fregnir á þriðjuda;gskveldið, að
t’jóðverjar hefði í hótunum við
Lland um að sökkva öllum skip-
nm þar um slóðir og vestur að
fjrænlandsströnd.
Fulltrúi Chicagoskóla
Séra Sigurjón Jónsson í
^irkjubæ í Hróarstungu getur
l>ess í bréfi til mín 3. þ. m., að
honum hafi verið ritað af rektor
káskóla Chicagohorgar, þar sem
bess er óskað, að séra Sigurjón
^íeti sem fulltrúi Universities
chicageniensis við Háskóla ís-
kinds, hinn 17. júní s.l. En bréf
Petta kom honum ekki í hendur
ij’r en nú fyrir skömmu.
Séra Sigurjón útskrifaðist frá
Báskólanum í Chicago með
kaccalauriatsstigi árið 1912 og
;‘rið 1913 með meistaragráðu í
S;tmstæðilegri guðfræði og “Re-
*’gionsphilosophie.”
Er það séra Sigurjóni sæmd,
hafa verið kjörinn fulltrúi
l'essarar ágætu stofnunar við há-
skólavigsluna.
Hann biður Kirkjuritið að
**MÍa Háskóla íslands einlægar
arnaðar og hlessunaróskir há-
skola Chicagohorgar.
Sigurgeir Sigurðsson.
Kirkjuritið, des., ’40.
Frá Islandi
l*essi eru hin helztu tíðindi af
kaupgjaidsmálunuin: — f Vest-
lnnnnaeyjum hafa sættir teklst
•nilli
sjómanna, verkamanna og
atvinnurekenda. Fá verkamenn
nokkr.a kauphækkun. Þó hefir
Hrifandi (félag kommúnista)
i\st yfir verkfalli í Vestmanna-
eJ'jum. Verkfall á kaupskipa-
iiotanum hófst með deginum i
('ag, samkvæmt þvi, sem áður
^nfði verið boðað, yrðu ekki
s,eUir komnar á. Björg, félag
Saumastúlkna, hóf verkfall í gan%
),lr eð ekki höfðu samningar tek-
Heita^Tyrkjum hlutleysi
Samkvæmt fregnum ú þriðju-
daginn, hafa Rússar heitið
Tyrk’jum fullu hlutleysi ef hinir
síðarnefndu yrði dregnir inn í
ófriðinn.
ist um kaup og kjör sauma-
stúlkna. Sjöfn, félag starfs-
stúlkna í veitingahúsum, boðar
verkfall 24. janúar, verði eigi
áður búið að semja um kaup
þeirra. Þessi ákvörðun var
samþykt með 67 atkvæðum gegn
7. Félag klæðskera, Skjaldborg,
sem átt hefir í verkfalli seinustu
daga, gerði kaupsamninga í gær.
h'á félagsmeðlimir nokkra kaup-
hækkun, fulla dýrtíðaruppbót
launa sinna og nokkrar kjara-
bætur aðrar.
★ ★ *
Hið fyrsta af áfenga ölinu, ^em
brugga á hér handa útlendu her-
mönnunum, var sent frá ölgerð-
inni, er við bruggunina fæst, öl-
gerðinni Egill Skallagrímsson, í
fyrradag. Voru það 200 flöskur
öls. Ö1 þetta hefir 4% áfengis-
styrkleika. Talsverðir erfiðleik-
ar hafa verið á því að afla nauð-
synlegra efna til ölgerðar þessar-
ar og er óvist, hvernig það mun
takast í framtíðinni. Hefir af
þessu stafað nokkur töf, svo að
hið fyrsta framleiðslunnar var
eigi tilbúið jafnsnemma og ráð-
gert hafði verið. Samkvæmt
ströngum ákvæðum bráðabirgða-
laga, er gefin voru út í sumar,
verður öl þetta ekki selt fslend-
ingum. Að því, er sagt er, mun
hermönnunum geðjast vel að öl-
inu og álíta það jafnast á við
hið bezta öl, er þeir hafa átt að
venjast í heimalandi sinu og
annarsstaðar, er þeir hafa farið.
* * *
f öllum vesturhluta Skaga-
fjarðarsýslu, frá Skagatá til
Mælifells, þjónar nú aðeins einn
prestur. séra Helgi Ivonráðsson á
Sauðárkróki. Hann flutti 9 mess-
ur frá jólum til nýárs og mun
það einsdæmi. Þetta var því
aðeins hægt, að tíð var góð og
samgönguleiðir greiðfærar.
* * *
Á fjórum hæjum I Skagafirði
hafa verið settar upp vindknún-
ar rafstöðvar til ljósa. Nokkur
mistök hat'a orðið um smíði
sumra þeirra vegna vanþekking-
ar. Er slíkt allilt, því að það
dregur til aukins kostnaðar og
tefur fyrir því, að þessi aðferð
verði að einhverju leyti viður-
kend sem lausn rafmagnsmáls-
ins til sveita.
Hólaskóli er uú fullskipaður
nemendum. Þar eru alls 45 pilt-
ar. Á Sauðárkróki starfar ungl-
ingaskóli með 25 nemendum. f
barnaskólanum þar eru 160 börn,
en upphaflega var 50 börnum
ætlað rúm í skólahúsinu. Á Hofs-
ósi hefir unglingakensla fallið
niður í vetur.
* * *
Varmahlíðarfélagið og Sögu-
félag Skagfirðinga, sem tvær
greinar á sama stofni, starfa ó-
trauðlega að málum sínum. Að
vísu er Varmahlíð nú á valdi út-
lenda setuliðsins, en félagið býr
undir framkvæmdum í framtið-
inni. Sögufélagið lætur á ýms-
an hátt og ýmsa menn safna
görnlum og nýjum fróðleik.
Annál Skagafjarðar hafa Kol-
beinn Kristinsson og Stefán
bóndi Vagnsson skráð um nokk-
urra ára skeið. Einnig safnar
Stefán alþýðu kveðskap í hérað-
inu, ásamt fleirum. Pálmi Hann-
esson ritar í tómstundum sínum
héraðslýsingu Skagafjarðar. Þá
lét félagið safna ættartöfum um
leið og manntalið var tekið i
haust. Gerði þá hver maður
grein fyrir ætt sinni eins vel og
hann kunni skil á. Verður þetta
ómetanlegur styrkur þeim, er
skrá ættatal Skagfirðinga.
* * *
Bráðabirgðalög hafa verið gef-
in út um það, að verð á miðum
happdrættis háskólans hækki um
þriðjung verðs. Kostar heilmiði
nú 80 krónur í stað 60 krónur
áður, hálfmiði kostar 40 krónur,
en fjórðungsmiði 20 krónur.
Mánaðarverð happdrættismið-
anna verður samkvæmt þessu 8
krónur, 4 krónur og 2 krónur.
Jafnhliða því, sem verð happ-
drættismiðanna hækkar, hækka
vinningarnir einnig að sama
skapi. Sú grein er gerð fyrir
þessari ákvörðun, að þessi hækk-
un liafi verið óhjákvæmileg til
þess að standa i slcilum um vexti
og afborganir af lánum þeim, er
tekin hafa verið til háskólabygg-
ingarinnar, og standast kostnað
við að ljúka því, sein enn er ó-
gert.
—Tíininn 18. janúar.
★ * *
Af kaupgjaldsmálunum er þær
fréttir fyrst að segja, að verkfall
er i veitingahúsum. Hófst það i
gærmorgun. Vinna ekki aðrir
enn forstöðukonurnar að fram-
reiðslu í veitingarstöðum, sem
verkfallið bitnar á. — Starts-
stúlknafélagið Sókn, en i því eru
stúlkur. sem vinna í sjúkrahús-
um, hefir samþykt að lýsa yfir
verkfalli 31. janúar, verði þá
ekki komnir á samningar um
kaup og kjör. Var þetta sam-
þvkt með 78 atkvæðuin gegn 4.
— Nót, félag netavinnufólks, hef-
ir samið við atvinnurekendur um
kaup og kjör ineðlima sinna. Fá
þeir fulla dýrtíðaruppbót á laun
sin. — Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur hefir átt í samning-
um við atvinnurekendur um
kaupuppbætur. Eru mál þessi
í höndum nefnda frá báðum að-
ilum. Hefir samkomulag orðið
milli aðila um þær kjarabætur
verzlunarfólki til handa, að það
fái fulla dýrtiðaruppbót á laun
sín. — M hafa bankamenn feng-
ið loforð bankastjóranna um
íulla dýrtíðaruppbót frá árainót-
um. Áður var bankamönnum
greidd dýrtíðaruppbót eftir sömu
fyrirmælum og starfsmönnum
ríkisins.
* * *
Samband bindindisfélaga í
skóluin mun að venju hafa 1.
febrúar að baráttudegi. Helgi
Sæinundsson, forseti S. B. S.,
hefir skýrt Timanum svo frá:
— Það hefir verið venja af hálfu
sambandsins að hefja sérstaka
bindindisbaráttu 1. febrúar ár
hvert. Svo verður og gert í ár.
Fulltrúar þess verða sendir til
ræðuhalda í Flensborgarskóla í
Hafnarfirði og Reykjavíkurskól-
ana, kvennaskólann, kennara-
skólann, iðnskólann og gagn-
fræðaskólana báða. í skólunum
úti á landi munu kennarar og
nemendur halda daginn hátíðleg-
an, sumstaðar í samstarfi við
stúkurnar. Um kvöldið munu
fulltrúar S.B.S. flytja hvatning-
arræður í útvarpið, eins og tíðk-
anlegt er 1. febrúar. Af öðrum
þáttum í starfsemi Sambands
bindindisfélaga í skólum er þess
helzt að geta, að sendimenn þess
halda fyrirlesíra og erindi um
bindindismál í ýmsum skólum
landsins. í haust fór eg ásamt
ritara sambandsins, Magnúsi
Jónssyni frá Mel, í slíka fyrir-
Iestraferð í Borgarfjörð, i skól-
ana að Hvanneyri og Reykholti.
Síðar i vetur verða slík erindi
flutt í öllum skólunuin austan
fjalls. Hins vegar er enn eigi
ráðið, hvort sambandið gerir út
menn í slikum erindagerðum í
skóla þá, sem eru í hinum fjar-
lægari héruðum.
Framsóknarfélag Vestnianna-
eyja hélt aðalfund sinn á sunnu-
daginn var. í stjórn félagsins
voru kjörnir Sveinn Guðmunds-
son kaupmaður, formaður, Þor-
steinn Þ. Viglundsson skóla-
Rarlakór fslendinga í Winnipeg, er heldur samsöng undir forustu Ragnars H. Ragnars í Civic
Auditorium þann 16. april næstkomandi, með aðstoð söngkonunnar viðfrægu Maríu Markan.
stjóri, ritari og Bjarni G. Magn-
ússon gjaldkeri, en varaform.
Sigurjón Sigurbjörnsson verzl-
unarstj. f fulltrúaráð Framsókn-
armanna í Vestmannaeyjum
voru kosnir Helgi Benediktsson,
Guðlaugur Brynjólfsson, Ágúst
Árnason. Ásmundur Guðjónsson,
Jóhann Sigfússon, Helgi Ben-
ónýsson, Hermann Guðjónsson,
Sigurjón Sigurbjörnsson og
Hannes Sigurðsson. f félaginu
eru 70—80 meðlimir.
* * *
Haustvertíð er nýlega lokið
við Steingrímsfjörð. Gæftir voru
mjög góðar, en aflamagn öllu
minna en undanfarnar vertíðir.
«
Hásetahlutir urðu saint óvenju-
góðir. Fiskurinn hefir mestall-
ur verið seldur í skip á Eng-
landsmarkað. Hæstur háseta-
hlutur við Steingrímsfjörð yfir
haustvertíðina mun vera á hfeyf-
ilbátnum Farsæl frá Eyjum, 2350
krónur. Báturinn er 2y2 smá-
lest að stærð. Eigandi og for-
maður er Benjamin Sigurðsson,
Eyjum. Bátar eru nú yfirleitt
að búa sig undir vetrarvertíðina.
AIls munu um fimmtíu bátar
geta sótt sjó úr Steingrímsfirði
og nágrenni, — ef gæftir verða
og viðunandi fiskigegnd.
* « w
Fyrir nokkru var stofnuð
Rauða-Kross-deild á fsafirði með
110 félögum. Deildin hefir sótt
um að verða viðurkend og inn-
rituð í Kauða Kross fslands, með
þeim skilyrðum, skyldum og
réttindum, sem þv^ lylgja, og
hefir stjórn Rauða Kross fslands
nú veitt henni viðurkenningu á
þann hátt, sem lög félagsskapar-
ins mæla fvrir. Stjórn deildar-
innar skipa: Ivristján Arinbjarn-
ar héraðslæknir form., Kjartan
Jóhannsson Iæknir varaforinað-
ur, Gunnar Andrew ritari, Sig-
urður Þorkelsson gjaldkeri, Guð-
mundur Jónsson frá Mosdal,
Sigurður Dalmann, Jón A. Jó-
hannsson, meðstjórnendur.
* * *
Á miðvikudaginn nú í vikunni
rak tundurdufl í grend við
Dranga á Ströndum og sprakk
þar í fjörunni. Var sprenging-
in gífurleg og mátti gerla heyra
dunurnar og hávaðann langá
vegu. Tjón varð eigi að spreng-
ingunni.
—Timinn 25. jan.
* * *
H. J. Hólmjárn, loðdýraræktar-
ráðunautur, hefir tjáð Tímanum
að þessa dagana sé verið að
senda 4000 refaskinn og minka-
skinn til Vesturheims. útliti um
verð skinnanna og sölumöguleika
er nú miklu betra en áður, síð-
an striðið hófst. Af likum að
dæma mun skinnaverðið vera
50 af hundraði hærra nú en
meðalverðið í fyrra og salan er
allör. _ Fylgist Loðdýraræktar-
félagið vel með öllum verðbreyt-
ingum, sem verða á skinnamark-
aðinum. Er það hækkandi um
þessar mundir og hefir stigið
um 20 af hundraði síðasta mán-
uðinn í New York. Hefir því
stórum batnað söluútlitið, enda
var skinnamarkaðurinn þar
vestra mjög hraklegur i fyrra.
Skinn þau, sem héðan verða
send til sölu vestan hafs, fara
sum til Bandaríkjanna, en nokk-
-uð af þeim fer til Suður-Ame-
ríku. í Ilandarikjunum er allhár
tollur, 37 y2 af hundraði, greidd-
ur af silfurrefaskinnum, en
skinnaverðið er þar hærra en
annarsstaðar, svo að Bandarikja-
markaður er skinnaeigendum
ekki óhagstæðari en aðrir mark-
aðir, þrátt fyrir tollinn. Af blá-
refaskinnum og minkaskinnum
er hins vegar enginn tollur
greiddur, eða sáralítill, í Banda- '
rikjunum. í Suður-Ameríku-
ríkjunum er enginn tollur greidd-
ur af loðskinnum, en verðlag þar
lægra. — Af loðdýraræktinni
sjálfri er fáar fréttir að segja.
Einstöku loðdýrabú hafa verið
lögð niður, eins og til dæmis
refabúið að Þorkelshóli í Víðidal
og sumstaðar hefir félagsbúum
verið skift. Þó mun refaeign
landsmanna ekki hafa gengið
saman, svo verulegu nemi, en
engin fjölgun heldur átt sér stað
síðastliðið ár. Mun láta nærri
að refastofninn hafi haldist við
að dýrafjölda. Fáir hafa hafið
loðdýrarækt, þeir sem ekki höfðu
dýr í eldi áður, en stöku menn
hafa fjölgað dýrum sínum, þrátt
fyrir örðugleika undanfarinna
missira.
* * «
Sigurður Þórðarson kaupfé-
lagsstjóri á Sauðárkróki skýrði
svo frá í símtali i morgun, að
tíðarfar sé mjög stilt þar nyrðra.
Allharðan frostakafla hefir gert.
10 stig og þar yfir daglega, og
eru öll vötn í héraðimi á hellu-
gaddi. Jörð er auð og hefir
aldrei hrugðið til; hríðarjaganda
gerði i 3—4 klukkutíina í eitt
skifti. Hefir aldrei verið hægt
að fara á skiði í héraðinu. Jörð
er létt til beitar og hey venju
fremur kjarnlitil. Verða bænd-
ur að gefa fóðurbæti með beit-
inni, en heygjöf er lítil. Mæði-
veikin breiðist ört út í vestan-
verðu héraðinu og gerir feiki-
mikinn skaða og er inikill ugg-
ur i mönnum vegna hennar.
Aflalítið er um þessar mundir
og sjór lítið sóttur, enda svo
frosthart, að sjósókn er tæplega
gerleg á smábátum.
* * *
Hinn 8. janúar héldu Fram-
sóknarmenn i Fljótum skemti-
samkomu að Ketilsási. Voru
var saman komnir rúmlega 80
Framsóknarmenn og gestir
þeirra. Hófst skemtunin klukk-
an 8 um kvöldið með sameigin-
legri kaffidrykkju. Undir borð-
um voru fluttar ræður og sung-
ið. Töluðu þarna Jón bóndi
Arngrimsson á Brúnastöðum,
sóknarpresturinn séra Guðm.
Benediktsson á Barði, Hannes
Hannesson kennari í Melbreið,
Björn Dúason kaupfélagsstjóri i
Haganesvík og Jónmundur bóndi
Guðmundsson á Laugavöllum.
Auk þess voru lesin upp Ijóð
og sögur. Áður en dansinn hófsl
var spiluð Framsóknarvist og
þótti það góð skemtun. Um
nóttina var öllum borin mjólk
og smurt brauð, enda stóð skemt-
unin fram á dag. Skeintu menn
sér hið bezta, enda fór skemt-
unin mjög vel fram.
★ * *
Á sunnudagsnóttina rak tund-
urdufl á land við Krossanes i
Revkjarfirði á Ströndum, ör-
skamt frá bænum. Er þetta ann-
að tundurduflið, sem rekur ú
land þar norður frá þessa sið-
ustu daga. Að minsta kosti tvö
tundurdufl hafa sézt á reki á
svipuðum slóðum.
* * *
Loðdýraræktarráðunauturinn,
H. J. Hólmjárn, hefir lagt til við
skattanefndir landsins, að við
skattframtal í ár verði silfur-
refir virtir á 175 krónur, blá-
refir á 135 krónur, hvítarefir á
65 krónur og minkar á 65 krón-
ur. Er virðingarverð þetta miðað
við verðlag á skinnum, eins og
það er um þessar mundir, að
viðbættum 20—25 af hundraði,
þar eð telja má eðlilegt, að líf-
dýr séú virt ofurlítið hærra verði
en fyrir þau fæst, sé þeim lógað.
—Timinn 28. jan.