Lögberg - 20.11.1941, Side 8

Lögberg - 20.11.1941, Side 8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 20. NÓVEMBER, 1941 Úr borg og bygð Mr. J. K. Jónasson frá Vogar, verður til heimilis að 540 Agnes Street í vetur. 4 ♦ -f ÚTVARP FRÁ FYRSTU LÚT. KIRKJU Á sunnudaginn 30. nóvember, kl. 7 e. h., verður kveldþjónustu útvarpað; þetta verður söngur aðallega. f f f R. E. JOHNSON er sækir tim stöðu i skólaráðið, talar tjfir CJRC stöðina á fimtudagskvöld- ið í þessa.ri viku, kl. 8.55 og gfir CKY stöðina á miðvikudags- kvöldið þann 25. nóv., kl. lO.bO. f f f Sendið inn áskriftargjöld yðar fyrir Lögberg, og geriát nýir kaupendur að blaðinu fyrir næátu ára- mót. f f f Mr. B. Eggertsson kaupmaður á Vogar, kom til borgarinnar síð- astliðinn föstudag og hélt heim samdægurs. f för með honum var starfsmaður hans, Mr. Ágúst Sigurðsson. f f f Saga íslendinga í N. Dak. eftir Thorstínu S. Jackson. Mörg ein- tök óseld. Til sölu nú fyrir ,$1.50 hver bók hjá Mrs. B. H. Hjálmarsson, Akra, og Mrs. H. Sigmar, Mountain, Allir Norður Dakota búar ættu að eiga bók- jna. f f f Mrs. Magnús Johnson frá Eard'er Lake, Ont., kom til borg- arinnar síðastliðinn laugardag flugleiðis ásamt syni sínum i heimsókn til foreldra sinna, Mr. og Mrs. William Johnson, Ste. 11 Adacia Apts., og ráðgerir að dveljast hér fram yfir næstkom- andi jól. Maður hennar er vænt- anlegur hingað laust fyrir miðj- an desember. Tilvalin Jólagjöf Hið afarfagra og stðrraerka 25 ára afmælisminningarrit Eim- skipafélags Islands, má hiklaust teljást ein hin allra fegursta jðlagjöf, sem kœtur er á; gef- ur þar að llta nákvæmt yfirlit yfir þrðunarsögu þessa ðska- barns þjððarinnar, sem telja má í samgöngu- og viðskiftalegu tilliti lifæð þjððarinnar. pessi mikla bðk, sem kosth, myndi ærið fé, að þvl er bðkaverð alment gerist, fæst send pðstfrítt flt um bygðir Islendinga, fyrir aðeins $1.50. Pantanir sendist Arna Eggertssyni, 766 Victor Street, Winnipeg. AUTO knitter sale o/ Htgh-grade Ouaranteed Machines some never used. One Cylinder machines, 60 or 80 needles....$17.50 $19.50 Two cylinder machines com- \ plete with ribber 60 and 80 needles or 60 and 100 needles at $27.50 and $29.50 Two cylinder machines prac- tically new, 60 and 80 needles with ribber and all parts ..............$32.50 If your old Knitter is worn and not giving satisfaction and requires new parts, send it in and parts will be sold at half price except smaller pieces. WESTERN SALES SERVICE 290 GRAHAM AVE., Þjóðræknisfélgsfundur verð- ur haldinn að heimili Mr. og Mrs. J. Eirickson í Selkirk mánudagskveldið 24. nóv., kl. 8; meðlimir eru beðnir að fjöl- menna. Einar Magnússon, forseti. 4- 4 ♦ Finnbogi Finnbogason land- námsmaður í Hnausabygð sunn- anverðri og um langt skeið bóndi að Finnbogastöðum, andaðist að heimili dóttur sinnar og tengda- sonar, Mr. og Mrs. M. M. Jónas- son, Árborg, Man., þann 9. nóv. Þessa merka manns mun verða minst nánar síðar. 4-4-4 Þriðjudaginn 11. nóvember 1941 andaðist Árni óskar Árna- son frá Hammond, Indiana, 49 ára gamall. .Hann var sonur Gunnars heitins Árnasonar, sem lengi bjó í Winnipeg. Hann lætur eftir sig ekkju, Stephaniu, og tvö systkini: Jón, sem býr í Chicago og Thorbjörg McLain, sem býr í Milwaukee, Wis. 4-4-4- Þann 19. október síðastliðinn, voru gefin saman í hjónaband í Mission Hill Congregational kirkjunni í San Diego, Cal., Miss Lottie Marie Brown og Magnús Daniel Magnússon, hljómlistar- kennari, sonur frú Svönu Magn- ússon og manns hennar, Kjartans Magnússonar, er lézt þar í borg- inni 14. apríl 1930. Brúðgum- inn hefir átt glæsilegan náms- feril við San Diego State Coí- lege, og þykir líklegur til mikils frama á sviði hljómlistarinnar. 4-4-4- Á laugardaginn var lézt hér í borginni frú Guðrún Ingibjörg Thorleifsson, kona Jóhanns gull- smiðs Thorleifssonar; hún var fædd á Reykjaströnd i Skaga- fjarðarsýslu 4. júlí 1803. Auk eiginmanns síns lætur hún eftir sig tvo sonu og einn bróður. Kveðjuathöfn, er séra Valdimar J. Eylands stýrði, fór fram á máliudaginn, en síðar var lík hinnar mætu konu flutt til York- ton til jarðsetningar. 4-4-4- DÁNARFREGN Nýlátinn er hér í borginni Matthías Jóhannesson, sonur Guðmundar Jóhannessonar á Ingersoll Street og Kristveigar konu hans, er áður bjuggu í Ár- borg, maður á bezta aldri, fædd- ur 7. mai 1908; hann var einkar vel gefinn maður, vinsæll og líklegur til margháttaðra nytja- starfa, hefði honum enst heilsa og lif; er með fráfalli hans þungur harmur kveðinn að for- eldrum hans, systkinum og venslaliði. Útför Matthíasar fór fram frá Bardals á mánudaginn var. Séra Valdimar J. Eylands jarðsöng. ÞAKKARÁVARP Okkur langar til að votta okkar ágætu vinum fjær og nær okkar hjartans þakklæti fyrir þá innilegu samúð og kærleika, sem okkur var auðsýnd í veikindum og við jarðarför okkar elskaða sonar, bróður og eiginmanns Metusalem Johannesson). Winnipeg 18. nóvember 1941. Guðmiindur og Kristveig Jóhannesson, Grímur, Ingi, Rohert, Adolph, Árni, Alfred Jón, Arnþór, Ása, Molly. MUS-KEE-KEE Ahrifamlkið kvefmeðal, búið til úr gömlum Indlána jurta for- skriftum. Petta er verulegur heilsugjafi, sem veldur eðlilegri starfsemi hins mannlega llkams- kerfis. Ráðgist við lyfsalann i dag viðvíkjandi MUS-KEE- KEE S 7' A K A Yfir flóa ísagler, ekki snjóar niður; hélugróin grundin er, geðjast lóum miður. Höfundur þessarar stöku, Mr. F. P. Sigurðsson frá Geysir, leit inn á skrifstofu Lögbergs um miðja fyrri viku, og skildi hana eftir á skrifborðinu. 4-4-4 If a tire bursts, do not apply the brakes nor throw out the clutch until the car has lost al- most all its momentum. A front tire blowout may cause you to lose control of the steering wheel unless you are holding it firmly. In the case of a blowout of a rear tire, a sudden application of the breaks, at high speed, may cause the car to turn over, in which case it woujd be your good luck if you carried a five point automobile policy witli J. J. SWANSON & CO., LTD., 308 Avenue Bldg., Winnipeg. 4 4 4 Eftirtalin ungmenni voru fermd að Hólar Hall, Sask. sunnudaginn þann 16. nóv. s.i. af séra H. E. Johnson: 1. Fredrick Helgi PTanklin Steffanson 2. Johann Victor Guðinundson 3. Kristján August Árnason 4. Magnus Baldur Olafson 5. Anna Hallson 6. Alma Hallson 7. Johanna Sigrún Olafson 8. Málfríður Eyjólfson 9. Sigurveig Arndís Arnason 10. Sylvia Jónína Árnason. Fimm ungmenni voru skírð við þessa guðsþjónustu. 4 4 4 Mánudaginn 10. nóv. andaðist Jón Mýrdal á heimili sínu suð- austur af Garðar. Hafði hann ekki verið teljandi lasinn und- anfarið, nema svo sem viku tíma á undan andlátinu. Jón sál fæddist 18. ágúst 1855, á Fljótum í Meðallandi, en flutt- ist á ungum aldri að Norður- hvoli í Mýrdal í Vestur-Skafta- fellssýslu og ólst þar upp til fullorðinsára. Foreldrar hans voru Einar Högnason og Ragn- hitdur Jónsdóttir. Hinn 20. dag maímánaðar 1881, giftist hann eftirlifandi konu sinni Sigríði Þorsteinsd. Bjuggu þau á ís- landi til 1884, en fluttu þá til Ameríku; námu fyrst staðar í Nýja íslandi, en hurfu fljótt suð- ur til Garðarbygðar í N. Dak. Og hafa þau ávalt verið þar síð- an, og frá því árið 1891 bjó hann á þeim stað þar sem hann nú andaðist, og þar sem stendur hið fagra heimili er þau hjón bygðu upp þar fyrir mörgum árum. Þau Jón og Sigríður eignuðust 15 börn. Fjögur dóu í æsku. Ein dóttir, fulltíða, dó fyrir nokkrum árum. En hin systkin- in 10 lifa föður sinn. Jón sál. var hinn bezti dreng- ur, gætinn og greindur. Kom han ávalt fram með lipurð og prúðmensku. Hann var mjög hneigður til lesturs. Mestan unað hafði hann þó að Ijóða- lestri. Vöktu Passíusálmar Hall- gríms Péturssonar honum sífelt mikið yndi. Hann var reglu- samur og duglegur í öllu starfi, og hlúði ávalt hið bezta að heim- ili sínu og fjölskyldu. Jarðarförin fór fram 13. nóv. frá heimilinu og Garðar kirkju. Mrs. Sigmar söng sóló. Margir fylgdu honum til grafar. Var hann elskaður af ástvinahópnum og vinsæll af samferðafólkinu. Meðlimur var hann ásamt fjöl- skyldunni í Garðarsöfnuði. Séra H. Sigmar jarðsöng. FUNDARBOÐ Ársfundur Fyrsta lúterska safnaðar verður haldinn þriðju- dagskveldið, klukkan 7.30 stund- víslega, 2. desember, 1941, í kirkju safnaðarins. fyrir hönd safnaðarfulltrúanna G. L. Johannson, skrifari. 4 4 4 TILKYNNING UM LA UGA RDA GSSKÓLANN Skótanum verður lokað n. k. laugardag 22. nóv., sökum þess að þá verður “Eaton’s Santa Claus Parade”, en börnin eru beðin að koma á skólann laugar- daginn 29. nóv., þau sem koma stundvíslega fá aðgöngumiða á Rose Theatre. —Forstöðunefndin. 4 4 4 Síðastliðinn laugardag lézt á Grace spítalanum hér í borg- inni, Sumarrós Johnson sauma- kona, ættuð úr Eyjafjarðarsýslu, fædd 8. júlí 1866, vinsæl kona og velmetin, er ekki vildi vanim sitt vita í neinu; útför hennar fór fram frá Bardals á mánu- daginn. Séra Valdimar J. Ey- Iands jarðsöng. 4 4 4 ÞAKKARORÐ Við undirritað skyldfólk Sum- arrósar heit. Sigurðardóttur John- son þökkum öllum þeim, sem sýndu samúð sína, með því að vera viðstaddir við útför hinnar látnu, sendu blóm, eða á annan hátt sýndu hluttekning út af veikindum og fráfalli Summar- rósar heitinnar. Winnipeg 17. nóv. 1941. Mrs. Halldóra Josephson Mrs. O. Gunnlaugson, Mrs. V. Baldvinson Mrs. H. Björnson. ------V------- Messuboð FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA Séra Valdimar J. Eylands Heimili: 776 Victor Street. Sími 29 017. Sunnudaginn 23. nóvember:— Ensk messa að morgninum ld. 11; sunnudagsskóli kl. 12.15 e. h. íslenzk messa að kvöldinu kl. 7. 4 4 4 LÚTERSIÍA PRESTAKALLIÐ / AUSTUR-VA TNABYGÐUM Séra Carl J. Olson, BA., B.D. Sunnudaginn 23. nóv. 1941— Kristnes kl. 12 Foam Lake Town Hall, Sing- ing Evangelist kl. 3 e. h. Leslie kl. 7 e. h. Ársfundur safnaðarins að Leslie 25. nóv., kl. 2 e. h. Gleymið honum ekki! Allir boðnir og velkomnir! 4 4 4 Sunnudaginn 23. nóv. messar séra H. Sigmar í Hallson-kirkju kl. 11 f. h. og í Eyford-kirkju kl. 2.30 ie. h. Verða messurnar báðar “Thanksgiving” messur. Altarisganga er fyrirætluð í Ey- ford-kirkjunni við þessa guðs- þjónustu. Fólk er beðið að fjöl- menna á báðum stöðum. 4 4 4 Messað verður að Wynyard kl. 2 e. h. sunnudaginn þann 23. nóvember. H. E. Johnson. 4 4 4 íslenzk guðsþjónusta í Van- couver verður, ef G. 1., haldin í dönsku kirkjunni á E. 19th Ave. og Burns St. kl. 3 e. h. næsta sunnudag, 23. nóv. Allir eru velkomnir og allir eru beðnir að láta þetta berast sem bezt. Rtinólfur Marteinsson. 4 4 4 LÚTERSÍA IÍIRKJAN í SELKIRK Sunnudaginn 23. nóv.: , íslenzk messa kl. 7 siðd. S. ólafsson. 4 4 4 VA TNABYGÐIR Sunnudaginn 23. nóv.: Wynyard kl. 3 e, h.—íslenzk Kandahar kl. 7.30 e. h.—ensk. B. Th. Sigurdson. Winnipeg’, Man. Lögberg inn á hvert einaáta íslenzkt heimili fyrir jólin! The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. Sendið LÖGBERG sem jólagjöf til ........../. frá .......... $3.00 innlagðir sem ársgjald. Þann 31. október síðastliðinn, áttu þau merkishjónin, séra S. O. Thorlakson og frú Karolína, 25 ára giftingarafmæli; var þessa atburðar veglega minst á hinu glæsilega heimili Dr. K. Eymundson og Mr. og Mrs. Walter Downe i San Francisco þá um kvöldið; voru hörn prests- hjónanna viðstödd, og jók slíkt vitaskuld mjög á mannfagnað- inn. Dr. Eymundson, sem er skólabróðir séra Octaviusar, iflutti aðalræðuna, og afhenti heiðursgestunum forkunnar fagr- ar gjafir til minja um atburð- inn; taldi hann það sérstakt á- nægjuefni, að vita séra Octavíus kominn heim heilu og höldnu eftir hans löngu útivist í Japan. Þau séra Octavíus og frú þökk- uðu hvort í sinu lagi fagurlega fyrir gjafirnar, og öll þau vin- áttumerki, er þetta óvænta- sam- sæti bæri vott um. Meðal utanbæjargesta tóku þátt í mannfagnaði þessum, pró- fessor Loftur Bjarnason og frú frá Utah, og Mrs. Stoneson frá Blaine, Wash. TILKYNNING TIL HLUTHAFA EIMSKIPAFÉLAGS ISLANDS Á ársfundi félagsins í júní í sumar var sainþykt að borga hluthöfum 4% arð fyrir árið 1940. Eg leyfi mér hér með að tilkynna að eg er reiðubúinn að taka á móti arðmiðum fyrir árið 1940 til afgreiðslu. Enn- fremur þeir, sem enn ekki hafa sent mér arðmiða sina fyrir árin 1937, 1938 og 1939, geta sent mér þá líka til afgreiðslu. ARNI EGGERTSON umboðsmaður félagsins 766 VICTOR ST., Winnipeg, Man. The Watch Shop Diamonds - Watches - Jewelrr Agents for BULOVA Watchee Marriage Licenses Issued THORLAKSON & BALDWIN Watchmakers and Jexoeller* 699 SARGENT AVE., WTO. Minniál BETEL í erfðaskrám yðar TIL ÞESS AÐ TRYGGJA YÐUR SIÍJÓTA AFGREIÐSLU Skuluð þér ávalt kalla upp ^ARGENT TAXI PHONE 34355 - 34 557 SARGENT and AGNES • TRIJMP TAXI ST. JAMES Phone 61 111 Ársfundur Islendingadagsins verður haldinn í Goodtemplarahúsinu MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 24. NÓV. 1941, kl. 8 e. h. Lagðar fram skýrslur og reikningar. Kosning sex embættismanna í nefndina i stað þeirra, sem endað hafa starfsár sitt. Áríðandi að allir sæki fundinn. —Nefndin. Námsskeið! Námsskeið! Nú er sá tími árs, sero ungt fólk fer að svipast um eftir aðgangi að verzlunarskólum borgarinnar; enda sannast þar hið fornkveðna, að ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Það borgar sig fyrir yður að finna oss að máli eða skrifa oss viðvíkjandi verzlunarskóla námsskeiðum; vér getum veitt yður þau hlunnindi, sem í hag koma. Símið eða skrifið við fyrstu hentug- leika. Upplýsingar á skrifstofu Lögbergs! THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG For Good Fuel Values WARMTH - VALUB - ECONOMY — ORDER — WILDFIRE LUMP (DRUMHELLER) BIGHORN SAUNDERS CREEK LUMP (Saunders Area) CANMORE BRIQUETTES PHONESJ23 |}| MC|^URDY QUPPLY AO. Ltd. \sfBUlLDERS’ X^SUPPLIES \JandCOAL LICENSE No. 51 1034 ARLINGTON ST.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.