Lögberg - 07.05.1942, Blaðsíða 1

Lögberg - 07.05.1942, Blaðsíða 1
FRÚ LÁRA BJARNASON Þessi stórmerka kona, sem svo mjög er nátengd sögu Vestur-íslendinga á fyrstu árum þeirra hér í landi, á aldarafmæli í þess- um mónuði. Vierður þess minst við kvöldguðsþjón- ustuna í Fyrstu lútersku kirkju á sunnudagskvöld- ið kemur, 10. inai. Er sá dagur einnig nefndur Móð- urdagur. Allir, sem vilja heiðra minningu þessarar andlegu móður eru sérstak- lega boðnir og velkomnir í kirkjuna þetta kvöld. Bretar ráðast inn í Madagascar Madagascar er 995 inílna löng eyja, á stærð við Manitoba og liggur um 250 mílur austur Undan ströndum Afríku. Eyjan hefir verið frönsk nýlenda síðan 1896. Eftir að Laval náði völd-. nm i Vichy, hafa handamenn óttast að Frakkar myndu 1eyfa Japönum þar inngöngu eins og þeir gerðu í Indo-China, en á eyjunni er stór flotastöð og það- un hefðu Japanir getoð hamlað ferðum skipa til Indlands og Rauða hafsins. Á þriðjudaginn komu Bretar her á land á norð- urenda eyjarinnar, þar sem flotastöðin er. Petain og Darlari sendu þegar skeyti til franska setuliðsins þess efnis að það skyldi veita mótspyrnu og verja “heiður” franska fánans, og stendur bardginn yfir enn. Sigra Rússar á þessu ári ? Samkvæmt boði Stalins sór hver leinasti rússneskur hermað- ur þess eið á sunnudaginn, að á árinu 1942 skyldi rússneski her- inn ná fullum sigri yfir Nazist- um. Timoshenko hefir sent skeyti til hinna hernumdu hér- nða í úkraníu þess lefnis, að hvetja fólkið til þess að halda á- fram baráttunni, og að rauði herinn muni bráðlega leysa það úr ánauðinni. Her Tiinoshenkos hefir rutt sér leið fram hjá Kharkov og er nú skæð orusta háð nálægt Dneiperopetrovsk. Á vígstöðvunum nálægt Moskva niiðar Rússum einnig áfram. Svissneska lýðveldið og iíknarstarfsemin Nálega eina rikið i Evrópu. sem er algerlega óháð enn og ekki hiefir gengið neinum ófrið- araðila á vald, er Svissland. Svisslendingar segja, bæði í gamni og alvöru, að þeir verði að fá að vera hlutlausir, svo að ó- tfriðarþjóðirnar eigi einhversstað- ar hæli, þar sem vinna 'miegi i friði fyrir fanga þeirra, særða menn og sjúka. Svissland er þá líka aðalaðsetur og miðstöð al- þjóðastarfsemi Rauða krossins og annarra líknarfélaga. Rauði krossinn hefh'ý aft aðalaðsetui sitt í borginni Genf í Svisslandi síðan árið 1863, og sendinefndir ifrá höfuðstöðvum hans hieim- sækja fangabúðir og herinanna- spítala í ófriðarlöndunum. í september 1941 höfðu 12,000,000 sendibréfa ifarið um hendur Rauða-krossmanna í Genf, úr flestum löndum heims, til fanga og annarra í ófriðarlöndunum. Rauði krossinn hefir upp á við- takendum bréfanna og kemur bréfunum oftast til skila. Á því eru oft æði-miklir erfiðleikar. T. d. eru 35,000 franskir fang- ar með nafninu Martin á spjald- skrá hjá Rauða krossinum í Genf, þar af 5,000 sem heita Jean Martin. Um 4,000 manns vinna á þeim aðalskrifstofum Rauða krossins í Sviss, sem annast viðskifti her- fanga eingöngu, en aðeins 600 þeirra eru launaðir. Hitt eru alt ólaunaðir sjálfboðaliðar, þar á meðal fjöldi kristniboða, bæði úr iflokki mótmælenda og kaþólskra manna, háskólapró- fessorar o. s. frv. —(Eimreiðin). ■— -------——— ----------———------------------—-------- Salute to Norway By Richard^ Beck Beautiful land! Your mountain majesty Lives in the hearts of all who saw your face Smiling in northern summer’s sweetest grace, Your fjords and woodlands — golden tapestry. Historic land, where carved in thoughts and stone The names of Haakon, Olav, Harald, still Inspire, challenge, steel the nation’s will; Your saga and your soul remain your own. Land of the brave, whose viking-sons of old Feared not the sword, the storms, nor raging seas: Your present sons are no less brave than these — In freedom’s cause, nay, braver hundredfold! Home of a nation, valiant and true, Whose spirit tyrants sought to break, in vain; Your freedom’s beacon will flame again. Norway, we humbly greet and salute you! Rcad at a patriotlc rally in Grand Forks, N. Diik., April 27, 1942, aridressed liy H. H. H. Crown Prince Olav of Norway, with H. R. H. Crown Prineess Mtlrtha of Norway- present, as well as the Hon. Wilhelm Morgenstierne, Minister of Norway to the United States. Dag og nótt á ferð Brezki loftflotinn heldur dag- fari og náttfari uppi árásum á Þýzkáland, og þau lönd, sem Hitler hiefir hernumið í Norður- állunni; einkum hafa þýzkar iframleiðsluborgir fengið sina vöru selda, og nú síðast Stutt- gart, er sætt hefir þrálátum sprengjuárásum tvo sólarhringa i röð. Noregur og Danmörk hafa einnig fen.gið sinn hluta af hlið- stæðum heimsóknum. Japanir ná haldi á Corregidor Eftir langa og frækilega vörn, hefir her Bandaríkjanna og Fil- ippseyinga á Corregidor gefist upp fyrir innrásarhersveitum Japana. Douglas MacArthur, yfirhershöfðingi, gaf út á mið- vikudagsmorguninn svofieida yf- irlýsingu: “Hermálaráðuneyti Bandaríkjanna hefir borist sím- fregn frá Corregidor þess efnis, að viðnámi hersveita vorra á þess- um stöðvum >sé lokið, og að samningar um uppgjöf þessa mikla varnarvirkis í Manila-flóa, sé þegar hafnir.” Voru hersveitir sameinuðu þjóðanna á Corregidor, að því er fregnir herma, því nær þrotnai að vistuin og hergögnum. “Tengdapabbi” Leikfélag Samhandssafnaðar sýndi þenna sriiðuga gamantók eftir Gustaf von Gejerstam í sam- komusal kirkjunnar á mánudags- og þriðjudagskveldið, fyrir fulluj húsi gtaðra gesta; var leikurinn prýðilega æfður, og hlutverkum yfir höfuð gerð hin beztu skil, þó mest kvæði aö leik Páls S. Pálssonar, er leysti hlutverk sitt af hendi með slíkum ágætum, að naumast verður lengra náð í við- fangsefni þeirrar tegundar. Ragnar Steifánsson og Guðbjörg Sigurðsson sýndu einnig glogga túlkan á viðfangsefnum sínum. Tveir stúdentar frá íslandi, þeir Bragi Freymóðsson og Gunnar Norland áttu hlutverk í leiknum, og var það ánægjuefni mikið, að hlusta á raddir æskunnar að heiman. Leikfélag Sambandssafnaðar hiefir int, og innir af hendi þakk- arvert þjóðræknisstarf með leik- starfsemi sinni, og var það eink- um mikið fagnaðarefni, hve margt ungt fólk sótti leiksýningu þessa. Steindór Jakobsson hafði leik- stjórn míeð höndum. ÁTTATÍU AF HUNDRAÐI GREIÐA JÁKVÆTT ATKVÆÐI Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu yfirkjörstjórans í Ottawa, féll atkvæðagreiðsla þeirra, sem í Canadahernum eru, utanlands sem innan, á iþann veg, iað um 80 aif hundraði greiddu atkvæði með því, að leysa stjórnina frá öllum fyrri skuldbindingum í sambandi við útviegun og dreifingu mannafla til herþjónustu. FLUGUVÉLATAP ÞJÓÐVERJA Rússnesk hernaðarvöld stað- hæfa, að frá þeim tíma, er Þjóð- verjar hófu leifturstríð sitt gegn Rússlandi, hafi þeir á þessum vígstöðvum leinum, mist 15,000 flugvélar; ekki óliklegt, að tekið sé að isaxast á limina hans Björns rnins, eins og hið forn- kveðna segir. C.P.R. skiftir um forseta Sir Edward Beatty, sá, er um langt áraskeið hefir g'egnt for- setaembætti við C.P.R. félagið, hefir látið aif þvi starfi vegna heilsubrests; þó verður hann á- fram í framkvæmdarstjórn fé- lagsins. Eftirmaður hans verð- ur Mr. D. C. Colieman, sem lengi hefir haft með höndum vara- forseta sýslan; hann er 56 ára að aldri, og gaf sig við blaðamensku á.fyrstu fullorðinsárum. TEKIÐ AÐ SVERFA AÐ ÞJÓÐVERJUM Svo er mannfæð vegna her- þjónustu tekin að sverfa að Þjóðverjum, að tíu ára drtengir hafa verið herskyldir til bænda- vinnu viðsvegar um landið; allir fullorðnir menn, sem vetlingi geta valdið, eru teknir í herinn. FELLIBYLUR VELDUR STÓRTJÓNI Afskapa fellibylur geisaði yfir norðausturhluta Oklahoma-ríkis um síðustu helgi, er orsakaði margháttað tjón; milli tuttugu og þrjátíu manns létu lífið, (fjöldi meiddist, og margt fólk varð öldungis húsvilt; leignatjón varð gífurlegt. FINNAR SÁRT LEIKNIR Frá Stokkhólmi er símað á mánudaginn, að finskar her- sveitir hafi orðið næsta hart úti í viðureign víð Rússa á orustu- svæðunum við Ilman-vatn; fylgir það isögu, að ýmsir áhrifamenn finsku þjóðarinnar sé komnir á þá skoðun, að rétt væri að leit- ast þegar fyrir við Rússa um sér- stakan frið. SEX MILJÓNA HER Aðstoðarhermálaráðh. Banda- rikjanna, Robert Patterson, hefir lýst yfir því, að áður en langl um líði, muni Bandaríkin hafa sex miljónir manna undir vopn- um; sýnist þetta tiltölulega auð- velt fyrir þjóð, isiem telur að minsta kosti 130 miljónir íbúa. Kominn í heimsókn Victor Eggertson Þessi ungi maður, sem nú hef- ir verið í sjóflotanuin í meira en tvö ár, er nýlega kominn til borgarinnar í þriggja vikna heimsókn til föður sins, Mr. Ásbjarnar Eggertssonar. Victor var um leitt skeið i þjónustu Columbia Press, Limited; hann hefir farið viða, og meðal ann- ars alla leið norður til Murm- ansk; hann dáir mjög viljafestu og þrek rússneska hersins, og kom tvisvar til íslands; ber hann íslandi og heimaþjóðinni söguna hið bezta. Victor er 24 ára að aldri. Karlaklúbbur Fyrsta lúterska safnaðar Klúbbur þessi hélt sinn síðasta fund fyrir sumarfríið í sam- komusal kirkjunnar á þriðju dagskveldið; fóru þar fram kosn- ingar embættismanna fyrir næst- komiandi starfrækslu tímabil; þessir hlutu kosningu: Kionnie Jóhannesson, forseti Einar P. Jónsson, vara-fors. Geir Thorgeirson, fjárm.ritari Snorri Jónasson Albert Wathne. Mr. Burnell, foringi í flug- hernum, flutti fróðlegt erindi um lofthernað og ýms þau æfintýri, er flughermenn oft og^ einatt komast í. ÓVINAFLUGVÉL YFIR ÍSLANDI Útvarpið flutti þá fregn á sunnudagsmorguninn, að daginn áður hefði þýzk sprengjuflugvél verið á rannsókmarfflugi í grend við Reykjavik; loftvarnarbyssur létu skjótt til sin heyra, og Mikilhæfur áljórnmálamaður látinn Tho-rvald Stauning Forsætisráðherra Danmerkur, Thorvald Stauning, lézt í Kaup- manmahöfn á sunnudaginn var, 68 ára að aldur beindu þegar skothríð að vágesti þessum, sem mælt er að hafi hypað sig hið hráðasta á brott, og horfið inn í skýbólstur. Stormnótt í flöktandi skini af strjálum stjörnum fer stormnótt mannkynsins yfir jörð. En skelfingu fólksins er gríma gjörð úr gráu stáli — í sókn og vörnum. Menn halda sig trúa á sitt heilaga stríð, en hræðast þó eigin vofu sína. Við vopnanna blik í bannvænni hríð blandaðir glampar úr augum skína. Nú riða jafnt stórvirki hugar og handa, það hriktir í rjáfrum hins vestræna anda. En mannfá er orðin vor1 menningarvörn, í musteri Guðs krýpur dýrið og biður um fleiri menn og um fleiri börn, en fólksins hjarta er þaggað niður. Og vonir smælingjans bugast og brotna, og björtustu hugsjónir góðra manna eru orðnar að hofskækjum heimsins drotna, í háðung snýst blóðfórn spámannanna. í fjötra er samvizka fólksins hnept, hin frjálsa hugsun er dæmd til að tapa, um hervopnið skæða er höndin krept, sem heimkynni Guðsríkis átti að skapa. Og stormurinn geysar um gráar raðir, sem ganga í dauðann með æskunnar þrótt. Móðir og sonur, móðir og faðir í myrkrinu skiljast þessa nótt. Frá kyni til kyns, frá blóði til blóðs, þó berst sá draumur, sem aldrei þrýtur, að eitt sinn mun kærleikinn kveðja sér hljóðs, og koma sá heimur, sem ljóssins nýtur, er hætt eru loksins öll miljóna-morðin og metin er þrælslundin engum til hróss, en glampinn í mannsbarnsins augum er orðinn að endurskini hins himneska ljóss. Og nú — á stundum sjálfs vopnavoðans er vonað, að aftur birti fljótt og hlustað á fótatak friðarboðans á fjöllum draumanna á slíkri nótt. Og eitt sinn mun blessun og bræðralag á bölheim mannanna ljóma stafa, og margt, sem kallað er dygð í dag og drotnarnir lýðnum smíðað hafa, þá liggur sem brotið barnagull frá bernsku mannkynsins hér á jörðu, er veröld Guðs var af vofum full og valdið lét smælingjann kenna á hörðu Hinn stolti rykmökkur dagsins í dag, þá dvínar við síðasta hófaslag, er gullvagninn blóðugi á burtu snýr og blekkingin margvígða land sitt flýr. Já, stormur, sem stórviðu beygir og brýtur, þú berð út fræ, þótt þú vitir eigi. Þú sveipar þig myrkri, þú syngur og þýtur, en sérð ekki brúnina af nýjum degi. Þú læðist að síðustu lítill og feiminn, en ljósið kemur, er sigrar heiminn. Helgi Sveinsson frá Hraundal. —(Kirkjuritið).

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.