Lögberg - 07.05.1942, Blaðsíða 8

Lögberg - 07.05.1942, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG. FIMTUDAGINN 7. MAÍ, 1942 Ur borg og bygð MATREIÐSLUBÓK Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feldsted, 525 Dominion Street. Verð. $1.00. Burðargjald 5c. ♦ ♦ ♦ Mr. Pétur N. Johnson frá Foam Lake, Sask., ler staddur í borginni þessa dagana. + ♦ Mr. Thorgeir Thorgeirsson frá Churchbridge, Sask., er nýkom- inn til Iborgarinnar með systur sína til lækninga. -f ♦ -f Laugardaginn 2. miaí gifti séra H. Sigmar þau Dóru Gíslason frá, Garðar og Vicfcor Hannesson frá Mountain á heimili sinu. f f f Mr. og Mrs. Viglundur Vigfús- son, sem undanfarandi hafa átt heima að 559 Furby Street, eru nýflutt að 587 Langside Street. f f f "Thy Kingdom Come" F. E. Linden, ú'tgefandi Prophetic Light, heldur fyrir- lestur í Goodtemplarahúsinu, Sargent og McGee, kl. 3 e. h. á sunnudaginn kemur, þann 10. þ. m. Allir hjiartanliega vel- komnir.— f f f Með “Dettifossi” komu þessir fslendingar nýlega til New York: Hilmar Kristjánsson og Magnús Guðmundsson, stúdentar. Kaup- sýslumenn: Lárus Jakobsson, Guðlaugur Guðmundsson og frú. Kjartan Sæmundsson, og Tómas A. Tómasson ásamt frú. f f f Gjafir lil Belel í apríl 1942: Mrs. O. Stephensen, Winnipeg, Hillingalönd eftir Guðrxinu H. Finnsdóttur; Mrs. C. O. L. Chis- well, Gimli, Milk Chocolate Cubes; Mrs. Guðrún Sigurðsson, Betel, $5.00; Mrs. J. Stefanson, Elfros, Sask., “rmeð beztu páska- óskum” $1.00; Mrs. Veiga Swan- son, Blaine, Wash., áheit, $2.00; P. og J. Hjálmsson, Markerville, Alta., $10.00. Kærar þakkir, J. J. Swanson, féhirðir. 308 Avenue Bldg., Winnipeg. f f f Laugrdaginn 25. apríl, voru þau Jóhann Kristinn Erlendson frá Vancouver, áður frá Lang- ruth, og Thelma Olive Eyjólfs- son frá Langruth, Man., gefin saman í hjónaband, af séra Rún- ólfi Marteinssyni. Giftingin fór fram að 2216 W. 18th Ave i Vancouver, heimili Mr. og Mrs. A. E. Smith, sem er nákomið vinafólk brúðhjónanna frá Lang- ruth. Nokkrir vinir voru þar samankomnir siem nutu yndis- legrar veizlustundar. Brúðhjónin fóru stutta skemtiferð til Victoria, en heimili þeiira verð ur í Vancouver. i SARGENT FLORIST D. OSBORN “Mœðradagur” Minnist hennar með blómum 10. MAf 739 SARGENT AVENUE Phone 26 575 “Blóm fyrir öll tækifæri’’ Heimilisiðnaðarfélagið heldur sinn næsta fund að heimili Mrs. G. H. Gillies, 923 Warsaw Ave., á Miðvikudagskvieldið 13. maí, kl. 8 e. h. f f f Páll Johnson, raffi’æðingur, húnvetnskur að ætt, lézt nýverið að heimili dóttur sinnar í Kenora, Ont., 72 ára að aldri; hann gaf sig um langt skeið að ýmiskonar uppgötvunum í sam- bandi við framleiðslu rafáhalda. f f f Vegna fjölmiennra áskorana, verður leikurinn “Tengdapabhi” sýndur í þriðja sinn á þriðju- dagskveldið þann 12. miaí i fund- arsal Sainbandskirkju; var að- sókn að leik þessum afar mikil, og skemti fólk sér hið bezta. f f f Frá Miargaret Roller frá Seattle, Wash., er nýkomin til borgarinnar, en fer héðan suður til Washington, D.C. Frú Mar- garet er dóttir þeirra séra Octavíusar og frú Karólínu Thorlakson, sem nú leru búsett að Berkeley í Californíu-ríki. f f f Þann 25. apríl síðastliðinn, voru gefin saman i hjónaband i Westminstier kirkjunni, þau Miss Katherine Moritz frá York- ton og Mr. Jóhann Otto Thor- leifsson, sonur Mr. J. B. Thor- lleifsson hér í borginni. Dr. E. M. Howse, framkvæmdi hjóna- vígsluna; framtíðarheimili ungu hjónanna verður í Yorkton. f f f Samkomu Laugardagsskólans í Riverton, Man. hefir verið frest- að þangað til 11. maí n. k. Verð- ur hún haldin í “Parish Hall” og byrjar kl. 8.30 e. h. Börnin taka þátt í marg- breyttri skemtiskrá. Dans áieftir. Veitingar seldar. Inngangur tfyrir fullorðna 25c, börn 15c. Einnig verður sýnd ný “filma” frá fslandi. Fjölmennið! f f f Karlakór íslendinga í Winni- Peg, hefir ákveðið að hafa söng- samkomu í Lundar Communitv Hall, Lundar, Man, föstudaginn 22. þessa inánaðar, undir um- sjón Lundar Co-operative Com- munity Club. Fjölbreytt skemti skrá og dans. ‘Mieðal annars á skemtiskránni verður Birgir Halldórsson með nokkra ein- söngva og Páll S. Pálsson með gamansöngva. Sjá auglýsingu siðar í blaðinu. Fjölmennið! Komið öll! —Nefndin. ♦ f f Samskol { útvarpssjóð Fyrsíu Iútersku kirkju Mrs. ó'löf Paulson, Arborg $1.00 Mr. og Mrs. Einar Thord- arson, Sinclair i.oo Mr. og Mrs. J. R. John- son, Wapah 2.00 Mrs. Pálína Thordarson, l'phani 25 Gisli Bienediktson, Upham .25 Mrs. Ingihjörg Swerrison, Upham ....................25 Mr. og Mrs. S. E. Einarson, i'pUi'in 1.00 Mr. Sveinn Sveinbjörncon, Upham 25 Mrs. Guðný Philip, Towner, N.D............. i.oo Mr. og Mrs. B. K. Jónsson, Cypress River 2.00 Mr. og Mrs. C. Nordman 1.00 Mr. og Mrs. H. C. Joseph- son 1.00 Næsta útvarp frá Fyrstu hit- ersku kirkju fer fram yfir stöð- ma CKY, Winnipeg, 24. mai kl. 11 f. h. Þetta er fermingarguðs- þjónusta, og fer fram á ensku. V. J. Eylands. Magnús Guðmundsson, ættað- ur af ísafirði, kom hingað tii borgarinnar í fyrradag, og mun þegar hefja flugnám við flug- ilistaskóla Konnie Jóhannesson- FRÁ BURMA Eins og sakir nú .standa sýn- ast Japanir hafa náð að mestu haldi á Burma, og eru árásar- herhveitir þeirra komnar að sögn eitthvað á þriðju mílu inn yfir landamæri Kina á stöðvum þess- um; enn sem fyr, voru það eink- um yfirburðir Japana í loftinu, ier réðu úrslitum; staðhæft er, að sigurinn hafi verið Japönum dýr- keyptur, bæði að því er mannslíi og loftför snertir. Messuboð Fyrsla lúterska kirkja Séra Valdimar J. Eylands prestur. Sunnudaginn 10. mai: Guðsþjónustur með venjuleg- um hætti: á ensku kl. 11 f. h. á íslenzku kl. 7 e. h. f f f Séra Valdimar J. Eylands, flytur að forfallalausu guðsþjón- ustu að Vogar, kl. 2 e. h. á sunnudaginn þann 17. þ. m. Verður við það tækifæri form- lega fcekið til afnota orgel, sem G. F. Jónasson hefir gefið is- lenzku kirkjunni þar á staðnum. f f f Guðsþjónustur við Winnipeg- osis þann 10. maí kl. 11 f. h. á Red Deer Point og klukkan 3 le. h. i Winnipegosis. S. S. C. f f f Lúterska kirkjan í Selkirk: Sunnudaginn 10. mai: Sérstakt vandað Mother’s Day prógram kl. 11 f. h. öllum boð- ið. Mæður eru heiðursgestir dagsins. íslenzk messa kl. 7 síðd. Allir velkomnir. S. ólafsson f f f Messur í Piney Séra Philip M. Pétursson mess- ar í Piney, á ensku og íslenzku, á vanalegum sfcað og tíma, 17. þessa mánaðar. f f f Prestakall Norður Nýja íslands Sunnudiaginn 10. maí. Árborg, ensk messa kl. 11 f. h. (Mother’s Day service) Riverton, íslenzk miessa kl. 8 e. h. B. A. Bjarnason. f f f Sunnudaginn 10. maí verður messað í þessum kirkjum, Mother’s Day: Péturskirkju kl. 11 f. h., Garð- ar, kl. 2.30 og Vídalins kl. 8. Fyrstnefndu tvær messurnar á íslenzku, sú síðasta á ensku. — Offur í kirkjufélagssjóð í Pét- urs og Vídalíns kirkjum. — Allir velkomnir. Mr. Skúli Sigurgeirsson, guð- fræðinemi frá Saskatoon, kom til borgarinnar á þriðjudags- kveldið, og bjóst við að leggja bráðlega af stað vestur að Mani- tobavatni, þar sem ráðgert er að hann gefi sig að kirkjulegri starfseini í sumar. AFTÖKUM FJÖLGAR DAGLEGA Nýjustu friegnir herma, að af- tökur á Frakklandi, Hollandi og í Belgíu, sé nú orðnar daglegir viðburðir; hefir ástandið í þessu tilfelli hríðversnað á Frakklandi, síðan Laval tók við völdum; í vikunni, sem leið, voru sjötíu Frakkar teknir af lífi í einni borg, í hefndarskyni fyrir einn Jiýzkan, óbreyttan liðsmann. Smælki Margar ástæður hafa veriö bornar fram til að reyna aó sanna, að kenning Darwins, uni að maðurinn sé kominn af öp- um, sé ekki rétt. Þýzka ritið “Natur und Kultur” þykist nu hafa tekið af öll tvímæli í þessu lefni. “Hugmyndin er hlægileg,” seg- ir blaðið, “því hvernig gæti full- kominn aríi eins og Adolf Hitler verið kominn af öpum?” • Skemtilge saga gengur um þessar mundir í London um Montaguie Norman yfirbanka- stjóra Englandsbanka. Hann á að hafa verið að skoða sprengju- gíg einn mikinn, sem komið hafði rétt hjá bankanum, er lög- regluþjónn ávarpaði hann og spurði, hvað hann væri að for- vitnast á þessum slóðum og hvort hann ætti þarna nokkurt erindi. “Já,” sagði Norinan, “eg starfa í bankanum.” “Nú, einmitt,” sagði lögreglu- þjónninn, “þá væri ráðliegt að reyna að koma sér inn og láta hendur standa fraim úr ermum.” • Þrátt ifyrir ófriðinn er Biblían stöðugt sú bókin, sem mest er selt af í heiminum. Siðastliðið ár seldust í Indlandi 1,338,000 eint. af Biblíunni og ler það 125,- 000 eint: fleira en árið þar á undan. Biblían er nú prentuð á 745 tungumálum, þrettán ný tungu- mál hafa bæst við á fyrsta styrj- aldarárinu. Kristnifræðikensla fer ekki fram í rikisskólum í Þýzkalandi og Rússlandi og heldur iekki i löndum, sem þessi ríki ráða yfir. — Hinsvegar hefir kristnifræði- kensla verið aukin allmjög í spænskum skólum nýlega. • Á sýningu, sem nýlega var haldin i Páfaríkinu í Róm, var sýnt líkan af kirkju, sam í sienn var bæði loftvarnabyrgi og guðs hús. Blað páfa, “O&servatore Romanum” segir svo í ummæl- um sinum um líkanið: “óvænt þróun í' kristilegri listsögu.” —ýLesbók). Sterkar taugar Því mun enginn neita, að véi’ lifum á öld tauganna; nú leru það ekki lengur vöðvarnir, sem stjórna heiminum, ef þeir hafa annars noltkurn tíma gert það. Framfarirnar hafa haft það í för með sér, sem meir og meira fcek ur á taugarnar og styrkleika þeirra. Akuryrkjan er jafnvel orðin heil vísindagrein, og hand- iðnaðurinn orðinn að listiðnaði. Allir þurfa á hinum mestu gáf- um og dýpstu þekkingu að halda og sömuleiðis hinni skjótustu at- 'hugunargáfu jafnframt stálvilja og djúpri tilfinningu; vanti þetta, verður maðurinn líkur vinnudýrunum. Það er því ekki ofsagt, að kjarni mannlífsins sé mjög kom- inn undir tiaugakraftinum og þeim þroska heilans, sem hlut- aðeigandi hefir eða getur aflað sér. — Sterkar taugar eru hin fyrstu skilyrði fyrir framför og þróun starfsins. Sterkar taugar eru líka skilyrði fyrir því, að menn geti notið ávaxtanna af striti sínu bæði ilíkamlega og andlega. Auðkýfingur sá, siem kvelst af taugagigt, svefnleysi og órósemi, hefir, þrátt fyrir allan sinn auð og skólamentun, og allan þann þroska, sem hann hefir aflað sér, jafnlitla gleði af lífinu, eins og fátækur verka- maður, sem lifir lífi sínu í fá- fræði og daglegum skorti. Gleðin og ánægjan þrífast bezt hjá þeim, sem er raunverulega heill og hraustur. Þeim manni er vinnan nautn og næsfca óbreytl máltíð er honum sælgæti og svefninn hvíldin bezta. Allir ættu því að hafa hug á að tryggja sér hin beztu skilyrði fyrir því að öðlast og varðveita heilbrigðar og sterkar taugar. Og nú vill svo vel til, að ekkert af líffærum vorum, hafa jafn liengi átt svo góða læknismeðferð að þakka, eins og einmitt tauga- kerfið. En ef einhver hefir t. d. með rammskökkum lífsvenjum varið 10—20 árum til að ieyði- leggja taugar sínar, þá má hann ekki halda, að hann geti bætt upp þann skaða með því að vinna skynsamlega eða vísinda- lega 10—20 daga. Það er miklu sennilegra, að vinna þurfi aí miklum dugnaði og mikilli reglu til þess að ná því marki. Bezti grundvöllur þess, að fcaugakerfið sé heilbrigt og gott er auðvitað alhliða gott heil- brigðisástand og hver og einn getur mjög unnið að þvi, með því að hlynna daglega lítið eitt að ilíkamanum, svo sem með þvi að neyta heilnæmrar fæðu á rétt- an hátt og sjá sér fyrir hreinu lofti o. s. frv. Það hefir líka auðvitað sína þýðingu að kvarta ekki ná kveina eða gera sér á- hyggjur út af því, siem aldrei drífur á dagana, heldur ættu menn að bein athygli sinni eins og framast er unt að hinu fagra og góða, sem vér höfum ávalt fyrir augum. Stutt völ á nýtizku hressingarhæli verður mörgum til furðulegrar heilsubótar. —(Heimilisblaðið). MINNIST BETEL í ERFÐASKRÁM YÐAR THE WATCH SHOP Diamonds - Watchos - Jewelry Agents for BULOVA Watches Marriage Licenses Issued Thorlakson & Baldwin Watchmakers and Jevyellers 699 SARGENT AVE., WPG. TIL ÞESS ÁÐ TRYGGJA YÐUR SKJÓTA AFGREIÐSLU Skuluð þér ávalt kalla upp SARGENT TAXI PHONE 34355 - 34 557 SARGENT and AGNES TRUMP TAXI ST. JAMES Phone 61 111 LEIKFÉLAG SAMBANDSSAFNAÐAR sýnir 'TENGDAPABBA" Gamanleik í 4 þáttum í samkomusal Sambandskirkju ÞRIÐJUDAGSKVÖLD 12. MAÍ Byrjar kl. 8 - - - Inngangur 50c Látið hlutina Þegar nú er verið að taka málma frá almenn- ingsnotum til stríðsþarfa, ætti fólk að láta sér ant um viðhald rafáhalda sinna. Eins og framleiðsla rafáhalda er nú takmörkuð, verðið þér að notast við þvottavélar yðar, eldavélar, kæliskápa og marga aðra rafhluti, um langt skeið. ÞJÓNIÐ með SPARNAÐI Sé viðgerðar þörf, getið þér farið til rafvirkj- ans eða City Hydro Service deildarinnar, þar sem alt er til taks, sem nota þarf við rafáhöld. Smásölukaupmönnum hefir verið tilkynt, að viðskiftamenn verði að koma með alla gamla raf- áhaldaparta áður en nýir partar verði afgreiddir; þetta þýðir það, að ef snerillinn á eldavélinni bilar. eða vindan á þvottavélinni, eða haldið á pressu- járninu, þá verður að skila þessu öllu áður en nýtt fæst í staðinn. Hafið þetta hugfast, er þér þarfnist nýrra parta fyrir rafáhöld yðar. CITY HYDRO BOYD BUILDING .... Sími 848 131 PRINCESS STREET - - - - Sími 848 182

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.