Lögberg - 28.05.1942, Blaðsíða 8

Lögberg - 28.05.1942, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG. FIMTUDAGINN 28. MAÍ, 1942 Úr borg og bygð MATREIÐSLUBÓK Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar i Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feldsted, 525 Dominion Street. Verð $1.00. Burðargjald 5c. ♦ ♦ ♦ Á laugardaginn 23. maí var Eleen Lorraine Vickers og Henry Crawford gefin saman að 867 Winnipeg Ave. Séra V. .1. Ey- lánds gifti. -f f- -f 23. maí voru þau Sesselja Brandson frá VVrapah og Karl Herbert Olson frá Steep Rock, Man. gefin saman að 776 Victor St. Séra Vr. .1. Eylands giifti. -f -f -f Hr. Lárus Sigurjónsson, cand. theol. frá Chicago var staddur í iborginni s.l. viku. Var hann á iferð til Langruth, þar sem hann hvst við að dvelja í sumar í þjón- ustu safnaðarins þar. -f -f f- Silver Tea Jón Sigurdson félagið er að undirbúa sumargildi, sem það nefnir “Lilac Tea,” og haldið verður föstudagnin 29. maí á hcimili Mrs. A. Blöndal, 108 Chataway Boulevard. Félagið vonast þess einlæglega að fólk fjölmenni við þetta tækifæri. Vissulega wrður það gestum mikil ánægja að koma saman á hinu skemtilega nýja heimili Dr. og Mrs. Blöndal, drekka kaffi með kunningjunum, njóta söng- skemtunar sem stendur til boða, og ekki sízt að stuðla þannig að hinu mikilvæga starfi sem Jón Sigurdson félagið hefir ineð hondum. Gildi þetta verður haldið frá kl. 2.30 til 5.30 e. h. og 8 til 10 að kveldinu. Arður- inn verður notaður í þarfir her- manna. TIL SÖLU Eitt hið fallegasta og fullkomnasta heimili á Gimli, fimm herbergja hús í bezta ásigkomulagi. og með öllum þægindum, fæsi til sölu nú þegar; þetta hús jafnast á við beztu hús í Winnipeg. Stór, inngirt lóð, grasræktuð og skrýdd blómum og blómtrjám, fylgir eigninni. Spyrjist fyrir um skilmála hjá 1.1. Swanson & Company 308 AVENUE BUILDING Winnipeg Mr. S. J. Stefánsson kaupmað- ur frá Selkirk, var staddur í borginni á föstudaginn. f f -f Dr. Tweed verður í Árborg á fimtudaginn þann 4. júní næst- komandi. f- f- f- Mr. John Johnson frá Vogar, kom till borgarinnar á fimtudag inn var. f- f- -f Mr. Skúli Sigfússon þingmað- ur St. George kjördæmis, var staddur í borginni seinni part vikunnar, sem leið. f -f f Þeir B. J. Lifman frá Árborg, og Mr. Valdi Jóhannesson fra Víðir, komu til borgarinnar seinni part fyrri viku. f f f Hið eldra kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar, heldur fund í samkomusal kirkjunnar á fimtu- daginn þann 28. þ. m. kl. 2.30 eftir hádegi. f f f Fjölmennið á skeintisamkom- una, sem haldin verður á Gimli þann 30 þ. m. til arðs fyrir sumarheimili barna að Hnaus- um! f f f 9. maí voru gefin saman að 682 Olverstone St. þau Olga Olína Johnson, Ste. 9 Stevens Court, og James Brisbane Morgan, 399 Morley Ave. Séra Valdimar J. Eylands gifti. f f f The Icelandic Canadian Club will hold a general meeting in the Antique Tea Room, Ender- ton Building, Sundav evening, May 31st. An interesting film of fche Atjantic Coast will be shown. All members are urged to attend. f f f Jóns Sligurðssonar félagið heldur næsta fund sinn á heimili Mrs. G. F. Jónasson, 195 Ash Street, á mánudagskvöldið þann 1. júní næsbkomandi, kl. 8. Fundardegi var hreýtt vegna samkomu Karlakórs íslendinga í Winnipeg. f f f Senior Choir At Home and Silver Tea Eldri söngflokkur Fyrsta lút- erska safnaðar hefir ákveðið að halda “At Home and Silver Tea” á fimtudagskvöldið 11. júní, i fundarsal kirkjunnar á Victor Street. • Flokkurinn skemtir með kór- söng og nokkrum íslenzkum gamansöngvum. Einnig aðstoð- ar frú Irene Thorolfson, sem öll- um er góðkunn, með fiðluspili. Vonast er eftir að sem flestir safnaðarmeðlimir og aðrir vinir sýni velvild sína með því að koma og skemta sér með kórn- um þetta kvöld. Allir velkomnir- Frú Stefanía Guðmundson frá Hayland, var stödd í borg- inni í fyrri viku, ásamt börnum sínum, þeim Svövu og Hjálmari. f f f Dr. Sig. Júl. Jóannessorí lagði af stað á föstudaginn var austur ,til Ottawa ásamt frú sinni í heimsókn til dætra þeirra tveggja, sem þar eiga heima. Læknishjónin ráðgerðu að vera um hálfsmánaðar tíma í ferða- laginu. f f f Fjölmennið á samsöng Karla- kórs íslendinga i Winnipeg, sem haldinn verður í Fyrstu lútersku kirkju þann 2. júni næstkom- andi að kveldi; vandað hefir ver- ið hið bezta til undirbúnings, og þar því ekki að efa, að um ó- venju ánægjulega kvöldstund verði að ræða. Nokkru af ágóð- anum verður varið til Jóns Sig- urðssonarfélagsins, er það síðan ver ií þágu íslenzkra hermanna; það mælir þvi alt með, að söng- samkoman verði fjölsótt. f f f Ungmenni fermd á Hvíta- sunnudag 24. maí 1942, í Fyrstu lútersku kirkju, Winnipeg: Donna Elvene Baldwin Runa Beatrice Barnes Johanna Violet Beck Barbara Joyce Bjornson Corinne Violet Day Olof Thelma Eggertson Lena Elisabeth Finnbogason Gloria Dagny Gray Marian Pearl Hart Alma, Svandis Levy Johanna Thorunn Nielsen Elene Margaret Scott Paulson Edda Svava Johanna Saedal Doreen Mabel Sigurdson Alice Beatrice Stratton Howard Wiesley Baldwin Harry Clyde Collins Erlingur Kari Eggertson Gunnar Orn Eggertson David Christian Finnbogason Marino Calvin Ingimundson Oliver Francis Isford Bjorgvin Sigurjón Robt. Johnson Valdimar Kristinn Johnson Norman Oliver Johnson Harvey James Johnson Lawrence Henry Kornberger Agnar Sigurdur Levy Leonard Brian Saedal Carl Jacöb Thorsteinson f f f Messuboð Fyrsta lúterska kirkja Séra Valdimar ./. Eylands prestur. Sunnudaginn 31. maí:— Guðsþjónustur með venjuleg- um hætti: á ensku kl. 11 f. h. á íslenzku kl. 7 e. h. f f f Sunnudaginn 31. maí, messa á Garðar kl. 11 f. h. og í Eyford kirkju kl. 2.30 e. h. Báðar mess- ur á íslenzku. H. S. Sigmar, Jr. prédikar við messuna á Eyford. f f f Guðsþjónustur við Tantallon Churchbridge og Lögberg I Hólaskóla sd. 31. maí kl. þrjú öftir hádegL í Konkordia- kirkju þ. 7. júní og fundur eftir messu. Þann 14. í Lögbergs- kirkju kl. tvö eftir hádegi. S. S. C. f f f Gimli prestakall Sunnudaginn 31. maí: Betel, morgunmessa; Gimli, ís- lenzk messa og safnaðarfundur kl. 3 e. h. B. A. Bjarnason. f f f Preslakall Norður Nýja íslands 31. maí—Engar messur. 7. júní—Víðir, messa og árs- fundur kl. 11 f. h.; Árborg, ferming og altarisganga kl. 2.30 e. h. B. A. Bjarnason. f f f Lúterska kirkjan í Selkirk: Trínitatis sunnudag, 31. maí:—- Sunnudagaskóli kl. ,1 árd. ísLenzk messa kl. 7 síðd. Allir boðnir velkomnir. S. ólafsson Um síðastliðna helgi lagði af stað til heimilis síns í Toronto, Mrs. R. K. Russell, eflir þriggja vikna íheimsókn til foréldra sinna, Mr. og Mrs. Einar Gutt- ormsson, Poplar Park, Man., og ættingja og vina hér í borginni f f f Til skýringar í minningargreininni um Thomas J. Knudsen, sem birt var í Lögbergi í síðustu viku, láðist að geta þeirrar upphæðar, er hann í erfðaskrá sinni skifti jafnt milli Háskóla íslands og Betel. Sú upphæð nam $3,202.08 í heiild, og koma þvi $1,651.04 i hlut. DRENGUR BÍÐUR BANA — Þrír amerískir hermenn teknir faslir. Reykjavík 24. maí, 1942. Þrír amerfskir hermenn voru teknir fastir hér í dag, fyrir að hafa skotið til dauðs 12 ára pilt, Jón Hinrik Benediktsson að nafni; hermennirnir halda þvi fram, að um slysatilfelli sé ein- ungis að ræða. HÖRÐ LOFTÁRÁS Á HERNUMDU LÖNDIN Brezki loftherinn gerði í upp- hafi þessarar viku, eina loftárás- ina annari meiri á hafnariborgir /hins hernumda hluta Frakk- lands, sem og hafnarbæi í Belgíu og á Hollandi. Flugmenn frá Canada tóku mikilvægan þátt í árásum þessum. Fjaðrafok Nýtízku Munchhausensaga “Jú, eg fór með fjögurra véla farþegaflugvél frá Berlín til Amsterdam, og alt í einu . . . vélin steyptist niður . . . flug- maðurinn dó . . . allir farþeg- arnir dóu . . . vólin fór í mola . . . eg hélt bara áfram í loftinu og kornst heilu og höldnu til Amsterdam. • Hershöfðingi og ofursti gengu saman eftir götu. Þeir gengu fram hjá mörgum hermönnum og í hvert skifti sem ofurstinn svaraði hermannakveðju hinna óbreyttu hermanna, sagði hann í hálfum hljóðum: “Sömuleiðis.” Hershöfðinginn var forvitinn og spurði ofurstann, hversvegna hann gerði þetta. Ofurstinn svaraði: “Eg hefi sjálfur verið óbreyttur hermað- ur ieinu sinni og eg veit hvað þeir hugsa.” • —Herlögreglumaðurinn horfði á mig eins og eg væri vegabréfs- iaus. —Hvað gerðir þú? —Eg horfði á hann eins og eg væri með vegabréf. • Og hér ler ein Skotasaga enn: Frá Gordon: Hvað ætlar þú að gefa Johnny í afmælisgjöf? í fyrra gafst þú honum 25 aura blöðru. Sandy. Jæja, hann hefir verið svo þægur strákurinn síðasta árið, ætli það sé ekki bezt að lofa honum að sprengja ólukkans blöðruna í þetta sinn. —-(Lesbók). HUME APPOINTED NATIONAL DIRECTOR AIR CADET LEAGUE Group Captain D. C. M. Hume, Didector of Technical Training of the Royal Canadian Air Force, has been assigned to special duty with the Air Cadet League of Canada as National Director of that organiza- tion, it was announced by Major the Hon. C. G. Power, M.C., Minister of National Defence for Air. Group Captain Hume, who will be stationed in Ottawa at National Headquarters of the Air Cadet League, will direct the activities of the various branches and units of the League scattered across Canada. The R.C.A.F. is co-operating closely providing instructors, training facilities and equipment when pos- sible. Nearly 30 years of experience in aviation qualify Group Captain Hume for his important post in di- recting the basic training of thous- ands of future R.C.A.F. officers and airmen. Born in Bournemouth, England, he was graduated from London University an electrical en- gineer, and in 1914 entered aviation as a designer in the aviation divis- ion of the Admiralty, later serving with the Air Ministry and the Royal Air Fqrce. Following the First Great War, Group Captain Hume came to Canada and was associated with the Laurentide Air Services in Montreal until he joined the Canadian Air Force in 1923 as En- gineer Officer, serving in Ottawa, Trenton, Camp Borden and later in the United Kingdom. He was ap- pointed Director of Technical Train- ing in February, 1940, and has been reaponsible for the training of more than 40,000 men for ground duties MINNIST BETEL í ERFÐASKRÁM YÐAR TIL ÞESS AÐ TRYGGJA YÐUR SIÍJÓTA AFGREIÐSLU Skuluð þér ávalt kalla upp SARGENT JWl PHONE 34355 - 34 557 SARGENT and AGNES TRUMP TAXI ST. JAMES Phone 61 111 KAUPIÐ ÁVALT ■_ U M B THE EMPIRE SASH & D00R C0. LTD. HENRY AVENUE and ARGYLE STREET Winnipeg, Man*. - Phone 95 551 SAMSÖNGUR KARLAKÓR ÍSLENDINGA í WINNIPEG fer fram í Fyrstu Lútersku Kirkju, Victor St. ÞRIÐJUDAGINN 2. JÚNÍ 1942 Klukkan 8.30 eftir hádegi SKEMTISKRÁ: O Canada 1. Karlaórinn 2. Einsöngur Birgir Halldórsson 3. Karlakórinn 4. Fiðlu sóló Irene Thorolfson meðspilari Frank Thorolfson 5. Einsöngur Birgir Halldórsson 6. Karlakórinn Ó, Guð vors lands God Save the King Söngstjóri: GUNNAR ERLENDSSON , Aðgöngumiðar kosta 50 cent, og eru til sölu í Björnsson’s Book Store, 702 Sargent Ave., og öllum meðlimum Karlakórsins. Nokkuð af ágóða samkomunnar verður gefið til I.O.D.E., Jóns Sigurðssonar félagsins. E K with the R.C.A.F. íslendingum þökkum við góð viðskifli ! yPlcJ-enaíjLn (Pf ÁL dwniutí Barristers and Solicitors, etc. SELKIRK, MANITOBA íslenzka Matvörubúðin í Selkirk ÞAR SEM NOTADRÝGST ER AÐ VERZLA Undirritaður hefir nú keypt Murdocks Grocery í Selkirk, og rekur þar framvegis verzlun með allskonar matvöru, ávexti, gosdrykki, tóbak, vindla og vindlinga, o. s. frv.— Það eru ekki á hverju horni í Selkirk, íslendingar, sem reka verzlun af þessari tegund. Lipur afgreiðsla, sanngjarnt verð. S. J. Stefánsson, eigandi SÍMI 65 — COR. DUFFERIN & JEMIMA Selkirk. Man. CCNCECT GIMLI PARISH HALL MAY 30. — 8.30 PROGRAMME Birgir Halldórsson — several vocal selections Dr. L. A. Sigurdson, moving pictures of Alaska and of Icelandic Celebrations at Gimli and Hnausa. Admission — Adults 35c — Children 25c Proceeds to go to Children’s Fresh Air Camp at Hnausa. rMANITOBA TELEPHONE S Y S T E M \

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.