Lögberg - 02.06.1942, Page 5
LÖGBERG, flMTUDAGINN 2. JÚNÍ. 1942
5
V íðauki
f tölublaði Lögbergs frá 14.
mai ug í Heimskringlu fyrir
sömu vikuna er þýðing eftir Dr.
Sig. Júl. Jóhannesson á kvæðinu
“High Flight” eftir John Gil-
lespie Magee, Jr., 19 ára gamlan
flugmann, er lézt i orustu í des-
ember 1941.
Um þýðinguna ætla eg ekki að
'fjölyrða, en á skýringuna er
fylgdi vildi eg minnast. Mér
’finst í hana vanta það, sem
miklu varðar.
*
Ef þessi piltur -hefði verið af
íslenzkum ættum, hefðum vér
krafist að þess væri getið hvar
sem ljóðið birtist. Sama réttar
*ttu aðrir að njóta. En engin
grein er gerð fyrir þjóðerni eða
uPpruna skáldsins i isambandi
v'ð þetta ijóð. I>ess er getið að
Ijöðinu sé skipaður sess “í hinu
svokallaða Uingbókasafni,” en
hvar i heimi það sé að finna, er
ekki getið. Þessvegna langar
mig til að nákvæmari skýring
komi fyrir augu þeirra, er lesa
í'slenzku blöðin.
Uessi ungi gáfumaður, er ljóð-
'ð orti, Var sonur Rev. Jóhn G.
Mage e og konu hans í Washing-
'ton, D.C. Rev. Magee er þar
Prestur við St. Johns Episcopal
kirkjuna. Áður var hann í
Koston, Massachusetts. Þar
oður trúboði i Klina. Þessi son-
Ur þeirra var þar fæddur. Ment-
unar naut hann við ýmisa skóla.
brá 13—16 ára aldurs var hann
við nám á “Avon Okl Farm
School” i Connecticut. Kom þá
Ut eftir hann litið Ijóðakver. Þar-
næst sótti hann skóla í Rugby á
Englandi. Þegar þaðan koin á-
vann hann sér námsstyrk við
^ ale háskólann, en byrjaði þar
aldrei nám vegna þess að hann
fann sig knúðan til að ganga í
iið með þeiin, er voru að berj-
ast fyrir frelsi og mannúð í
heiininum. Gekk þvi í 'flugher
Canada í september 1940.
Þó svo stutt væri æfin munu
Ijóð hans lifa, sem svo fagurlega
sýna það dýrlegasta í fari nú-
tiðar æsku. Dæmi hans túlkar
Eið nána vináttusamband niilli
Uanada og Bandaríkjanna. Kvæð-
inu ofangreinda hefir verið skip-
að í heiðurssess í “Þingbóka-
safninu” í Washington, D.C. Er
hað Archibald McLeish bóka-
vörður isafn'sin's og skáldið
Joiseph Auslander, sem er fyrir
ijóðadeildinni þar, sem því hafa
ráðið. Þeir skipa því hiklaust
a bekk með ljóðum Shelleys,
Rupert Brooks, Alan Seegers,
Joyce Kilmar, John McCrae og
þeirra lika. Telja þeir Magee
fyrsfa “amerískt” skáld í þessy
stríði. Mig langar til að kvæðið
birtist í islenzku blöðunum á
frummálinu með þessum línum.
Hað er nauðsynlegt til að meta
Þýðinguna.
F. fí. O.
Seattle^ Wash.,
27. maí, 1942.
•
HIGH FLIGHT
Bij John Gillespie Magee, Jr.
(lh, I have slipped the surly
bonds of earth,
And danced the skies on
laughter-silvered wings;
Sunward I’ve climbed and joined
the tumbling mirth
Of sun-isplit clouds — and
done a hundred things
You have notdreamed of—wheel-
ed and soared and swung
High in the sunlit silence,
hov’ring there.
I’ve chased the shouting wind
along and flung
My eager cráft through foot-
less 'hálls of air,
Up, up the long delirious, burn-
ing blue
I’ve topped the wind-swept
heights with easy grace,
Where never lark, or even eagle,
flew;
And, while with siilent, lifting
mind I’ve trod
The high untrespassed sanctity
of space ,
Pu,t out my hand, and touched
the face of God.
Páll gamli á Holtaátöðum
I.
Þar fór nú stofn í f'ljótsins hyl
og flevttist út í sæ,
sem fáir kvistir fundust í
og fellur ekki á glæ,
en traustan stólpa úr trénu því,
þeir telja á himnabæ.
Hann næddi í æsku norðri mót
og náði litt i sól,
en svo var rótin hraust og heil,
að hvergi limið kól,
og alla dagan þunga þrá
til þroska hann með sér ól.
Sein dauða þyrstur drakk hann
alt,
isr duga vexti má,
því upp úr kreppu kjarrsins hann
sér kaus sem fyrst að ná,
og seinast toppi lyfti hann langt
í Joftin heið og blá.
II.
Svo hljótt fór Páll í helga mold
sein hrykki brunnið skar,
hann gleymdur líkt og gamalt
djásn
i grasi nýju var,
en aðalsmerki innra manns
hann alt til dauða bar.
Með öðrum sjaldan átti leið,
þvi altaf fór hann beint,
til hægri og vinstri horfði litt
og hræddist ekkert leynt.
Hann aldrei skyldu skaut á frest
,og skapið var svo hreint.
Eg vissi engan eiska rétt
i öllu jafnt og hann,
og aldrei síður annar neinn
af Tíst til launa vann,
en löngun til að létta þraut
sieni logi í hjarta brann.
Hans fjölmörg góðverk falla senn
í fyrnsku og gleymsku haf.
eg læt mér nægja af nefna eitt,
að níu ár hann gaf
til bús með ekkjuog börnum, svo
þau bjargast gætu af.
III.
Sem ferjukaril og fjósamann
hann fyrst eg kyntist við,
en hann tók fanginn huga minn,
því hann bar annað snið
en filestir þeir, sem alast upp
í okkar nýja sið.
Hin forna elja enn var söm
og enn var dygðin lik,
og göfugmenskan glitraði enn
ii gegnum bætta flik,
og enn var örmild höndin hans
og hugsun kærleiksrík.
Og hugur enn til hæða flaug
og hæst á næturstund,
hans gleði var við geimsins rök
að glíma á marga lund,
og alt til hinsta andartaks
hann aldrei gróf sitt pund.
Eg man hann bezt í kirkjukór
Ihans kærsta iðja var,
að hringja klukku á helgum stað
og hlusta á orðið þar.
En eg og eðrir vissu vel,
hvers vitni hann sjálfur bar.
Ef til .er kristin karlmannslund,
var kristin lundin hans,
því rétti og fórnum vígður var
æ vilji þessa manns.
I orði og verki augljóst sást
hans ást til meistarans.
V.
f Holtastaða helgum reit
nú hvilist lúin hönd,
með feginieik í fegri heim
er flogin ljóskær önd.
Eg held að klukkur hafi hringt,
er hann kom þar að strönd.
Eg einskis get um engilaheim
og ölil hans leyndarmál,
en eitt er víst: Þá fagnar fá
þar frelsi hólpin sál,
ef ekki hefir Kristur kyst
og krýnt hann gamla Pál.
Gunnar Árnason
frá Skútustöðum.
—(Kirkjuritið).
DÁNARFREGN
Laugardaginn 23. maí dó
Jónas Hannesson á heimili sínu
suðvestur af Mountain í Eyford-
bygðinni svonefndu. Hafði hann
búið þar ósilitið síðan hann gift-
ist þar árið 1897. í
Jónas sáL fæddist 11. sept.
1868 í Vatnsdal í Húnavatns-
sýslu. Foreldrar hans hétu
Hannes Thorleifsson og Helga
Þorsteinsdóttir. Dóu þau bæði
á ungum aldri, og var Jónas eina
barn þeirra. Hann var tekinn
til fósturs af séra Jóni ólafssyni
og konu hans að Kúlu í Vatns-
dal í Húnavatmssýslu. Var hann
hjá þeim þar til hann flutti til
Ameríku 1887. Hefir hann nærri
altaf síðan verið i N. Dak.
Jónas giftist eftirlifandi eigin-
konu sinni, Rósu Teitsdóttur, í
desember 1897. Þeim hjónuni
varð 4 barna auðið, heita þau
Helga (Mrs. H. Halldórson),
Hannes, Valdimar og Freeman.
Eru synirnir allir giftir. Búa
systkinin öll í þessari bygð, nema
Freeman, sem býr í Bottineau,
N.D.
Jónas var um langt skeið mjög
bilaður á heilsu og alt frá árinu
1933 stöðugt undir læknishendi,
og var alt hans þrek fyrir löngu
orðið mjög lamað. Urðu mörs
síðustu árin honum því ákaflega
þungbær. En kona hans reynd-
ist honum þá eins og áður sterk
stoð, og var frábær í umhyggju
sinni fyrir honuin fram í andlát-
ið. Var hún studd af börnuni
sínum í þeirri afstöðu gagnvart
honum.
Jónas var trúmaður og hafði i
ungdæmi sínu vanist ýmsum
FLYTJA OLÍU TIL ENGLANDS
príUt íyrir hina ævarandi hættu, sem af vötdum kafbátahernaðarins stafar, sigla
þessir olíuflutningaknerrir heilu og höldnu til brezkra hafna, og flytja þangað afl þeirra
hluta, sem gera skal á vettvangi stríðssóknarinnar. Á mynd þessari sézt eitt þessara
flutningaskipa, en til hægri getur að iíta brezka skipalest á útleið.
guðrækni-iðkunum, sem hann
hélt fast við meðan möguleikar
voru til þess., Hann bar altaf
mikla umhyggju fyrir konu
sinni og hörnum, vildi á allan
hátt sjá fyrir þeim eins vel og
frekast væri unt. Hann var vin-
ur vina sinna og vinfastur, og
hugsaði sífelt tiil sinna vina.
Hann var líka vingjarnlegur i
garð hinna aumu og bágstöddu
og vildi veita þeim þá aðstoð,
sem honum var unt. Jónas sá!.
var mjög hneigður fyrir söng, en
þó einkuni sálmasöng. Jónas,
ásamt með fjölskyldunni var
meðlimúr í Þingvallasöfnuði við
Eyford.
Útförin fór fram frá heimilinu
og Eyford kirkju þriðjudaginn
26. maí. Mikið fjölmenni fylgdi
honum . til grafar. Séra H.
Sigmar jarðsöng.
Gullafmælisbörn
íslendingadagsins
Sem að undanförnu úthlutar
íslendingadags nefndin gullaf-
mælisbarna-borðum, til allra,
sem dvalið hafa i landi hér
fimtíu ár og meir. Skrifið
greinilge alJar upplýsingar i sam-
bandi við spurnngar þær, sem
hér fara á eftir:
1. Fult skírnarnafn, foreldra-
nöfn og nafnabreytingar.
2. Fæðingarstað á íslandi,
fæðingardag og ár.
3. Hvar þið voruð síðast á fs-
landi.
4. Hvaða ár komst þú til
Canada.
5. Til hvaða staðar komst þú
fyrst?
6. Hvar settist þú fyrst að hér
vestra?
Ný rýmkun
á hskisölusamningnum
Ný rýmkun hefir flengist á
brezka fisksölusamningnum,
þannig, að Breiðafjörður hefir
verið “opnaður” og er nú is-
ienzkum og færeyskum skipum
frjálst að kaupa þar fisk.
Viðskiftanefnd birti tilkynn-
ingu um þetta í gær (11. febr.)
og ler hún svóhljóðandi:
. “Með tilvísun til samnings um
sölu á fiski til Bretlands dags.
5. ágúst 1941. tilkynnist það hér-
með, að frá og með deginum i
dag til aprílloka 1942, hafa öll
íslenzk og færeyisk flutninga-
skip leyfi til að kaupa fisk á
Breiðafirði, til sölu i Bretlandi.”
—(Mbl. 12. febr).
DÁNARFREGN
Að aftni föstudaginn 22. mai, '
andaðist eftir stutta legu á AI-
menna sjúkrahúsinu í Selkirk,
Man., Mrs. Guðrún Sigurðsson,
kona Árna Sigurðssonar tré-
smiðs. Hún var fædd 17. febrú-
ar 1873, á Tjörnum undir Eyja-
íjöllum. Fore'ldrar hennar voru
hjónin Bergsteinn Einarsson og
Anna Þorleif'sdóttir, fluttust þau
síðar austur yfir Markarfljót að
Fitjarmýri, og bjuggu þar til
dauðadags.
Sextán ára að aldri fluttist
Guðrún til Vestmannaeyja sem
vinnukona að Draumbæ, til Ingi-
mundar Sigurðssonar og konu
hans Katrínar Þorleifsdóttur
móðursystur isinnar, og vann hjá
þeim í 6 ár, síðan flutti hún
til Jóanns Bjarnasen, sem þá
var verzlunarstjóri við Brydes
verzlun, og vann þar i 3 ár. f
október árið 1900 giftist hún
eftirlifandi eiginmanni sínum
Árna Sigurðssyni, ættuðum úr
Vestmannaeyjum, en árið 1904
fluttust þau til Canada, settust
að í Selkirk og bjuggu þar ávalt
síðan. Þeim varð tveggja barna
auðið: Margrét dóttir þeirra,
Mrs. Fultz, var fædd í Vest-
mannaeyjum 30. maí 1901, en
dó í Selkirk 8. maí 1930; eru 4
börn Ihennar á lifi; dætur henn-
ar þær Mrs. Evlabet Earl, búsett
í Winnipeg, og Guðrúnu Kathryn
Leona heima, ólu þau hjónin
Guðrún og Árni upp, en synir
hennar Thomas Hugh og Eugene
fóstruðust upp hjá góðum fóst-
urforeldrum, hinn fyrnefndi hjá
Mr. og Mrs. S. ísfeld, Selkirk,
sinn síðarnefndi hjá Mr. og Mrs.
Sigurgeir Austmann, sama stað-
ar, eru þeir báðir á unglingsaldri.
Guðhergur sonur Guðrúijar og
Árna, nokkru yngri en systir
hans, ólst upp með foreldrum
sínum, og býr i Selkirk, starfs-
maður á verkstæðum þar, kv.
Lenu Zellas, eiga þau 3 börn.
Guðrún var kona fingerð og
vel gefin, fórnfús með afbrigð-
um og viljasterk. Hún var af
ágætum ættum komin, er margt
skyldfólk hennar á lífi i austur-
hluta Rangárvallasýslu, var Vig-
fús Bergsteinsson bóndi á Brún-
um, bróðir hennar. —
Með Guðrúnu er tiil grafar
gengin sönn islenzk kona, er
lagði fram itrustu krafta i þjón-
ustu heimilis og ástvina sinna
og í þarfir íslenzkra félagsmála.
Aldraður eiginmaður þakkar æfi-
langa samfýlgd í bliðu og stríðu.
og hinztu þjónustu hennar i
langvarandi sjúkdómsstríði hans.
Útför hennar fór fram á Ann-
an í Hvítasunnu, frá heimilinu
og frá lútersku kirkjunni er þau
hjón ávalt tilheyrðu, var útförin
nijög fjölmenn. Sóknarprestur
jarðsöng. S. ólafsson.
—Heldurðu, að niiklar gáfur
gangi í erfðir?
—Eg veit það ^kki. b>g á .eng-
in börn.
•
Móðirin: — Góður drengur er
aldrei óþekkur við foreldra sina.
Dóri litli: — Við hverja er
hann þá óþægur?
7. Hvar hefir þú dvalið lengst
og hvaða ár hafðir þú bústaða-
skifti?
8. Hvaða atvinnu stundar þii
9. Ertu giftur, ógiftur, ekkill
eða ekkja?
10. Hvenær andaðist maður
þinn eða kona?
11. Nafn eiginmanns eða eigin-
konu.
12. Hvað áttu mörg börn? —
Hvað mörg barnabörn, Nöfn
þeirra og aldur.
Gullafmælisborða sendi eg
hverjum, sem gefur mér þessar
upplýsingar greinilega og hefir
dvallið vestan hafs yfir fimtíu ár.
Gullafmælisbarnaborðarnir heim-
ila öillum, s,em þá hafa, frian að-
gang að hátíðinni að Giinli 3.
ágúst næstkomandi.
Davið Björnsson,
ritari fsl.d.nefndar.
Björnssons Book Store,
702 Sargent Ave.
Winnipeg, Man., Can.
LEIÐRÉTTING
í frásögn minni um sjóhrakn-
ing Kristjánis Jónssonar Gríms-
eyjarfara, sein birtist í Lögbergi
9. april s.I. hefir mér vinsam-
lega verið bent á það, að Guðrún
kona Þórarins bónda Björnsson-
ar á Víkingavatni á Kelduhverfi,
hafi ekki vlerið Jónsdóttir eða
.systir Kriistjáns Grímseyjarfara,
eins og eg sagði. Hún var Árna-
dóttir Brynjólfsisonar bónda á
Hóli á Hól'sfjöllum i Norður-
Þingeyjarsýsilu. Áhrærandi þessa
missögn mína hefir mér verið
einnig bent á það, að Guðrún
kona Þórarinis bónda Grímsson-
ar á Víkingavatni hafi verið
sýstir Kristjáns Grímsleyjarfara.
Og mun það vera rétt. Þessi
siðarnefndu hjón, Þórarinn
Grímsson og Guðrún voru for-
eldrar myndarlbóndans Gríms,
sem oft var nefndur Grimur Vik-
ingur.
F. Hjálmarsson.
takið ÞÉR
Þér hugsið eí til vill, að smápeningar yðar gagni
ekki . . . að "allsherjar stríð." eigi við "einhverja
aðra."
Þér eruð ef til vill ein þeirra þúsunda hús-
mæðra, sem ekki hafið lagt 50c á viku í Stríðs-
sparnaðarskírteini — heldur verið hlutlaus.
í þessu stríði getur enginn verið hlutlaus!
Annaðhvort flýtið þér eða tefjið fyrir sigri. Hjá
því verður ekki komist. Ef þér eyðið gálauslega.
þá synjið þér hermönnum vorum um nauðþurftir,
og stofnið framtíð yðar í háska. Ef þér — ásaml
2.000.000 öðrum húsmæðrum í Canada, leggið
fram aðeins 50c á viku til þess að kaupa Stríðs-
sparnaðarskírteini. þá þýðir það $1.000.000 á viku
til þess að vinna stríðið. Hvaða afstöðu takið
þér?
Mrs. Björnson?
K a u p i ð striðssparnaðarskírteini i
hanka, pósthúsi, Igfjabúð, matvöru-
húð, eða i öðrum smásöluhúðum.
National War Fir.ance Committee
Sparnaður
er
þjónusta