Lögberg - 13.08.1942, Blaðsíða 1

Lögberg - 13.08.1942, Blaðsíða 1
PHONES 86 311 Seven Lines Drs- Co< 4 VWj?4 ■*&#** For Beiier Dry Cleaning and Laundry Í5. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. ÁGÚST, 1942* NÚMER 33 Viðsjár miklar á Indlandi Eins og vitað er, hefir hinn svonefndi sjálfstæðisflokkur Hindúa á Indlandi undir forustu Gandhi, lengi krafist þess, að Indland fengi fult sjálfstæði af hálfu Bretlandsstjórnar. En eftir að núverandi styrjöld hófst, lýztu brezk stjórnarvöld yfir því, að þegar yfirstandandi stríði lyki, yrði Indverjum veitt fult sjálfsforræði, eins og t. d. Can- ada nú nýtur; þetta vildi Gandhi ekki sætta sig við, og hafði jafn- vel í hótunum um það, að leita til Japana viðvíkjandi úrlausn sjálfstæðismálsins; er hér var komið sögu, samþykti Congress Indlands það, að hefja óvopnað- an mótþróa gegn brezkum stjórnarvöldum í landinu; þetta tiltæki leiddi til þess, að stjórn- arvöld Indlands létu handsama Gandhi, Neruh og aðra helztu leiðtoga s j álf stæðisf lokksins; hófust þá samstundis verkföll vítt um landið, er síðar leiddu til alvarlegra blóðsúthellinga; er síðast fréttist, fóru horfur hríðversnandi, og bentu í raun og veru í átt til borgarastríðs. Flugvélaskipi sökt Fregnir frá London á Mið- vikudagsmorguninn láta þess getið, að brezka flugvéla flutn- ingaskipinu Eagle, hafi nýlega verið sökt í Miðjarðarhafi af völdum ávina kafbáts; skip þetta var 22,500 smálestir að stærð; mestur hluti áhafnarinnar bjarg- aðist af. Úr ruslakörfunni. Enskan bæði breið og há bylgjast upp að ströndunum —íslenzkan er aum og smá orðin hjá oss löndunum. Eiit vers úr gömlum sálmi. Skelfingar myrkur skapar býsn skynhelgin þegar að grætur. Ástríðuþrungin eilíf fýsn andskotann ráða lætur; harðlyndið stefnir í heljargin þar harmanna fást ei bætur; eiturorm#- og uglu kyn allar lífs naga rætur. Öfl myrkranna í loflinu. Heyrum gný í hæðum, hamast þý á flugi, þeir raupa af því í ræðum römm hvað lygin dugi, fárleg hætta á ferðum fólska kemst hæðarstig, syngur hátt í sverðum sólin hylur sig. Heiðvanir (þ. e. vanir við heiðan himin) í lofti heiðu hærra en ský herflugreiðar dvelja, geimnum skeiða gammar í, götu breiða velja. Loílhernaðarathafnir. Á loftöldum ótrauðar æða í köldum vindi vængja á spjöldum, vélbúnar, með vopnafjölda í skyndi. Himinbláma heiðum í hálofts námu hvelin, hljóða ráman heyrum gný — herinri skrámar vélin. Gammar fljóta um öldurnar, upphiems njóta gæða, galdra þjóta gandreiðar, glerhöll brjóta og hræða. M. Ingimarsson. Þjóðverjar ryðjast inn í Kákasusfjöll Síðustu fregnir herma, að innrásarsveitir Þjóðverja, þrátt fyrir afarharða mótspyrnu af hálfu Rússa, ryðji sér veg lengra og lengra inn í Kákasusfjöll, og hafi þegar náð að minsta kosti einu olíuhéraði að fullu á vald sitt; þá hafa Nazistar einnig rofið fyrstu varnarlínuna norð- ur af Leningrad; mannfall þeirra hefir verið afskaplegt, en samt sem áður senda þeir jafnharðan nýjan liðsauka til þess að fylla upp í skörðin. Rússnesk yfirvöld hafa skorað á hvert einasta mannsbarn þjóð- arinnar, að koma til varnar hvað sem það kosti, því rússneska ríkjasambandið sé í hinni ægi- legustu hættu. Sex óbótamenn teknir af lífi Eins og vitað er, tóku amerísk hernaðarvöld fyrir skömmu fasta 8 þýzka menn, er grunaðir voru um það, að stofna til fjör- ráða við sjálfstæði Bandaríkja- þjóðarinnar; mál þessara manna var rannsakað, af herforingja- ráði; menn þessir voru allir fundnir sekir, og voru 6 þeirra, að lokinni rannsókn, teknir af lífi í rafurmagnsstól; tveimur var hlíft við dauðahegningu vegna mikilvægra upplýsinga, er þeir veittu yfirvöldunum meðan á rannsókn málsins stóð; var annar þeirra dæmdur í lífs- tíðar fangelsi, en hinn fékk 30 ára dóm. Skátar gefa 14 lítra af blóði Blóðgjafasveit skáta hér í bænum hélt aðalfund áínn í fyrradag. í ársskýrslunni kom í ljós, að skátar hafa gefið sam- tals 14 lítra af blóði s.l. ár. Samtals voru blóðgjafirnar 30. Blóðgjafasveitin hefir nú starfað í 7 ár og gefið blóð sitt til sjúklinga á sjúkrahúsum hér í bænum hvenær sem þess hefir gerst þörf. Hafa skátar í blóð- gjafasveitinni dag- og nætur- verði, þannig að hægt er að ná til þeirra á hvaða tíma sólar- hringsins sem er. Þeir skátar, sem í þessari sveit eru, gangasi árlega undir heilbrigðiseftirlit á Landsspítalanum. Hefir þessi blóðgjafasveit oft komið sér vel þegar um slys og blóðmissi hefir verið að ræða. Síðan um áramót hefir blóð- gjafasveit skátanna gefið blóð sitt vegna kíghóstafaraldurs og hefir verið unnið úr blóði skát- anna bólusetningarefni vegna kíghóstans. Á aðalfundinum í fyrradag var stjórn blóðgjafasveitarinnar endurkosin, en hana skipa: Jón , i Oddgeir Jónsson, form., Leifur Guðmundsson og Þorsteinn Bergmann. —(Mbl. 22. maí). Gagnsókn gegn Japönum Sameinuðu þjóðirnar hafa haf- ið gagnsókn mikla gegn Japön- um á Solomon eyjunuf, og kom- ið þar allmiklum herstyrk á land; hefir þar staðið yfir sjó og landorusta í samfleytt sex daga. Japanir tala digurbarkalega um glæsilega sigurvinninga á þess- um slóðum; hernaðarvöld hinna sameinuðu þjóða hafa fram að þessu *litlar upplýsingar veitt um framvindu þessarar mikil- vægu sóknar, þó lesa megi á milli línanna, að liðsafli þeirra muni hafa náð allgóðri fótfestu á þessum umræddu eyjum. For- sætisráðherra Ástralíu, John Curtin, telur viðhorfið á stöðv- um þessum fara batnandi fyrir Sameinuðu sveitirnar, þó úr- slitaorusta hafi sennilega enn eigi verið háð. Loftárás á Mainz Á þriðjudagsnóttina heimsóttu eitthvað um þrjúhundruð brezk- ar orustuflugvélar iðnaðarborg- ina Mainz í Rínarhéruðunum; Þeir, sem vélum þessum stýrðu, hittu í mark, því morguninn eftir sáust enn eldar yfir borg þessari. Bretar mistu sextán flugför. Sumardvöl fyrir 1,000 Reykjavíkur börn Óskað hefir verið aðstoðar sumardvalarnefndar barna til að koma fyrir ábarnaheimilum og sveitaheimilum í sumar alls 788 börnum á aldrinum 2—13 ára. Auk þess hafa 102 mæður með samtals um 200 börn óskað eftir aðstoð nefndarinnar til þess að fá sumardvöl utan bæjarins í sumar. Umsóknarfrestur var útrunn- inn á laugardaginn var, en síð- an hefir nefndin verið að vinna úr skýrslum. Mun því verki senn lokið. Miklu færri umsóknir bárust nefndinni nú en í fyrra og telja forstöðumenn nefndarinnar það geta stafað af tveimur ástæðum, að foreldrar hafi sjálfir komið börnum sínum fyrir í sveit, án aðstoðar nefndarinnar eða, að foreldrar hafi ekki sama áhuga og í- fyrra á að koma börnum sínum úr bænum. Fyrri ástæðan þykir líklegri. Er vitað, að síðan nefndin tók til starfa, sumarið 1940, hafa börn verið á sömu sveitaheimil- um, þar sem þeim var útvegaður staður. Eru jafnvel dæmi til að bændur hafi gert sér ferð hing- að til bæjarins, til að sækja börn, sem áður hafa hjá þeim dvalið sumarlangt. Ekkert er að svo stöddu um það hægt að segja, hvenær brottflutningur barna getur hafist. Enn hefir ekkert svar borist frá ríkisstjórninni um skólahúsin úti á landi. Skrif- aði sumardvalarnefnd ríkis- stjórninni um þetta mál 1. marz síðastl. að koma fyrir á barnaheimilum ist svör frá þremur hreppstjór- um af 146, sem skrifað vár til að leitast fyrir um hve mörg börn gætu fengið sumardvöl í hreppum þeirra. —(Mbl. 22. apríl). Verður bálstofan bygð á þessu ári? Bálfélag íslands tilkynnir: Aðalfundur Bálfarafélags Is- lands var haldinn þ. 18. apríl þ. á. á skrifstofu félagsins Hafn- arstræti 5. Fundarstjóri var Ágúst Jósefsson heilbrigðisfull- trúi. Formaður gaf skýrslu um starf félagsins 1941 og verður hún síðar prentuð og send fé- lagsmönnum og dagblöðum. Gjaldkeri, Björn Ólafsson stór- kaupm. lagði fram endurskoð- aðan reikning f. 1941. Bygingar- sjóður jókst á árinu um rúmar 50 þús. krónur og nam í árs- lok kr. 83,324.86. Gjaldkeri gat þess, að Bálfarafélagið ætti á næstunni von á 70 þús. kr. fjár- htyrk úr bæjarsjóði Reykjavík- ur og ríkisjóði,* gegn 35 þús. króna framlagi, sem Bálfarafé- lagið útvegar úr annari átt. Úr stjórninni átti að ganga dr. G. Claessen, en var endurkos- inn. Formaður gat þess, að búið væri að sækja til viðskiftamála- ráðuneytisins um leyfi til kaupa á byggingarefni til bálstofunnar. Ef það leyfi fæst, verður þegar í stað hafist handa um bygging- una á Sunnuhvolstúni. En þar hefir bæjarráð Reykjavíkur á- kveðið Bálstofunni stað, og út- vísað Bálfarafélaginu stóra lóð til byggingarinnar. —(Mbl. 22. apríl). McGraw hjónin heimsœkja Winnipeg Á fstudaginn heimsóttu þau hjónin Dr. Hrefna McGraw og maður hennar Winnipeg, og buðu um fjörutíu Islendingum til dagverðar í einum af veizlu- sölum T. Eaton’s búðarinnar, og skorti þar hvorki gleði né góð- an fagnað; bauð Dr. McGraw gesti velkomna með hlýjum og velvöldum orðum, en einu ræð- una flutti Mr. A. S. Bardal, sam- sveitungur Hrefnu frá íslandi; þær Hrefna og frú Ingibjörg Lindal móðir Birgis söngvara, eru systkinadætur; söng Birgir í lok hófs þessa nokkra söngva, er mjög hrifu hug veizlugesta. Mr. Gunnar Erlendsson var við hljóðfærið. Hrefna McGraw er, sem kunn- ugt er, fyrsti íslenzki kvenlækn- irinn, sem lokið hefir embættis- prófi í þessari álfu, og hefir í hvarvetna rutt sér sögufræga braut; þau hjónin eiga heima i Nebraskaríkinu; maður Hrefnu er lögfræðingur. Fyrir nokkru var Hrefna gestur Mrs. Franklin D. Roose- velt í Hvítahúsinu í Washing- ton, og fluttu þá mörg Banda- ríkjablöð myndir af henni, og skýrðu fyrir lesendum hennar áhrifamikla brautryðjandastarf. GÓÐUR MÁLSTAÐUR TAPAR ALDREI Það er haft eftir yfirherhöfð- ingja hins óháða Kínaveldis á dögunum, þegar viðhorfið var sem allra ískyggilegast þar í landi, eins og það í rauninni er enn, að góður málstaður geti aldrei tapað, vegna þess, að heilbrigð skynsemi líði það ekki til lengdar, að þeir, sem landið eiga að erfa, sigli skipi sínu í strand; illmennin eigi aldrei framtíðarland. BISKUPAR OFSÓTTIR Quisling-stjórnin í Noregi hef- ir nú skórið upp herör gegn þeim biskupum norsku þjóð- kirkjunnar, er eigi hafa viljað kyssa á Nazistavöndinn, og hót- ar að varpa þeim öllum í dýfl- issu. 25 ÍSLENZKAR STÚLKUR HAFA GIFST HERMÖNNUM í nýkomnum enskum blöðum er skýrt frá því, að hernaðar- yfirvöldin brezku telji, að minsta kosti 25 liðsforingjar og óbreyttir hermenn hafi gifst ís- lenzkum stúlkum, síðan Island var hernumið. —(Mbl. 22. apríl). Sigurður P. Sigurðsson látinn Síðastliðinn föstudag lézt í grend við bæinn Árborg hér í fylkinu, Sigurð P. Sigurðsson, prentari hjá Columbia Press, Limited, því nær fimtugur að aldri. Sigurður hafði kent nokkurs lasleika upp á síðkast- ið, en fregnin um skyndilegt fráfall hans, kom eins og reiðar- slag yfir vini hans og samverka- menn. Sigurður var fæddur í Winni- peg 29. september, 1892. For- eldrar hans voru þau Páll Sig- urðsson, ættaður úr Fljótsdals- héraði, og Sveinbjörg Einars- dóttir af Seyðisfirði. Sigurður heitinn nam ungur prentiðn, og var prýðilega vel að sér í þeirri grein; hann var árvakur og skyldurækinn um störf, og smekkvís í verki sem þá er bezt getur; rúmlega tvítugur að aldri starfaði Sigurður við blað- ið Wynyard Advance, og naut þar sem annarsstaðar fullkom- inst trausts; hann kom þó brátt aftur að vestan, og vann þá á prentsmiðju O. S. Thorgeirsson; langlengsta starfskaflann átti Sigurður þó hjá Columbia Press Limited í þjónustu Lögbergs,, og er þar nú tilfinnanlega autt skarð, sem ekki er auðvelt að fylla, eins og nú hagar til um mannafla íslenzkra prentara vestan hafs. Sigurður P. Sigurðsson gekk í canadiska Tank-liðið þann 30. maí, 1918; hann fór til Englands 3. júní sama ár, og var við hern- aðarstörf á Englandi þegar styrjöldinni lauk. Hann kom heim 30. maí, 1919. Sigurður var kvæntur Jó- hönnu Bergmann frá Árborg, sem látin er fyrir því nær tveim- ur árum; þeim varð sjö barna auðið, er öll lifa foreldra sína. Systkini Sigurðar á lífi eru: Ágúst, Sarah Pettigrew og Oscar, öll búsett í Winnipeg. í Sigurði gerði alla jafna vart við'sig þunglyndis-strengur, þó oft væri hann kátur í vinahóp; við dagleg störf var hann, eins og fyr var getið, vandvirkur og ábyggilegur; hann var um- hyggjusamur heimilisfaðir, er af alhug unni fjölskyldu sinni, og vildi veg hennar og heill í hvívetna; að börnunum, sumum kornungum, er þungur harmur kveðinn. við fráfall ástríks föð- urs; en allir, sem kyntust Sig- urði, sakna vinar úr stað. Útför Sigurðar fór fram á mánudaginn frá Bardals, að við- stöddum stórum hópi vina og samferðamanna. Séra Valdimar J. Eylands jarðsöng, og flutti við athöfnina aðdáanlega hríf- andi kveðjumál. Harðir í horn að taka Þrátt fyrir það, að Júgóslavía er í orði kveðnu undir járnhæl þeirra Hitlers og Mussolini, er síður en svo að þar í landi sé alt með kyrrum kjörum. Júgó- nú síðast er mælt, að þeir hafi í orustu komið tvöþúsund ítölsk- um hermönnum fyrir kattarnef. slavneskir föðurlandsvinir hafa reynst hernámshöfðingjunum næsta harðir í horn að taka, og Líta Indland girndarauga Frá Kína bárust þær fregnir á miðvikudaginn, að Japanir væru að senda mikinri herstyrk inn í Burma og Indo-China með það fyrir augum, að gera sér mat úr öngþveitinu, sem nú ríkir hvarvetna á Indlandi; hvort frétt þessi reynist á full- um rökum bygð, verður tíminn að leiða í ljós. •Páskasálmur Þér lof skal hljóma á hundrað tungum, vor himnafaðir kær, þú gafst oss páska, gömlum, ungum, þá gjöf, sem hjarta nær, því þegar dauðinn öflgi, yggur, sem ógnarfarg á brjóstum vorum liggur, þá opnar sýn til eilífs lífs, og eyðir sporum dauða og kífs. Vor vitjar nú hin mikla minning um máttinn sonar þíns, er hlaut að* launum lífsins vinning, og löngun frelsis míns, hann, drottinn, hóf í hærra veldi, og hjá mér býr að æfi minnar kveldi, með fögnuð sinn og fyrirheit, þau fegri en mannlegt auga leit. \ , 1 Sú minning veitir styrk að stríða, er stormur blæs á mót. Að hæstri vizku hann hlaut að líða og heljar varða fljót. f Hans forsmáð elska fellir tárin, hann féndur stinga, blæða naglasárin. —En máttur hans er miskunn vor, hans mikli sigur okkar þor. f Er dauðinn vini vora fellir með víga beittri sigð, og missir þungur hugann hrellir, og hrökkva böndin trygð, og moldin skýlir lágu leiði, — þá lífsins engill vekur þann, er deyði. Það tryggja orð og athöfn þín, sem eins og ljós í rökkvann skín. Með undrahraða árin líða, og eg verð sóttur heim af þöglum gesti — eg kenni ei kvíða. Mig, Kristur drottinn, geym, og ver mér hjá í upprisuundri, er ytri hamur ferst af dauðans tundri, og láttu yfir banaból mér brosa þína páskasól.— 4. apríl 1942. Sigurjón Guðjónson — (Kirkjuritið).

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.