Lögberg


Lögberg - 22.04.1943, Qupperneq 3

Lögberg - 22.04.1943, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. APRÍL 1943. 3 arlegt nafn. En hvað heitir þá samferðamaður þinn? Ber hann líka undarlegt nafn?” “Það er best fyrir þig að spyrja Þrumuna um það”, mælti Kvikasilfur dularfullur á svip- inn. “Hún ein er nægilega radd- sterk til að geta sagt þér það.” Þetta svar, hvort heldur í gamni eða alvöru, hefði vafa- laust komið miklum ótta inn hjá Filemon við eldri gestinn. ef hann hefði ekki tekið eftir því hvað svipur hans var blíður. En það gat ekki farið hjá því, að Hann hafði það til að bera, að nálega mun enginn hafa setið jafn yfirlætislaus við dyr fá- tæklings kofa. Þegar hann hélt uppi sam- ræðum, talaði hann af mikilli alvöru; framsetning hans var á þann hátt, að Filemon fann til mikillar löngunar til að segja honum frá öllu, sem honum lá þungt á hjarta; mun sú til- finning vera ríkari með flestum, þegar þeir komast í kynni við menn, sem skilja innræti þeirra, og gera ekki lítið úr þeim eða áhugamálum þeirra. Filemon hafði reyndar ekki mikið að opinbera; hann var blátt áfram í hugsun og góð- viljaður til allra. Hann hafði samt ýmislegt að segja frá liðn- um æfidögum, þótt hann hefði aldrei ferðast langa leið frá átthugum sínum. Hann og .kona hans Baucis höfðu átt heima í þessum kofa alt frá yngri árum; unnið fyrir daglegu brauði á heiðarlegan hátt; oftast barist í bakka efnalega, en samt verið ánægð með kjör sín. Hann sagði að Baucis byggi til ágætt smjör og frábærilega góðan ost; mint- ist líka á hina ágætu garðávexti, sem þau öfluðu sér úr matjurta- garðinum. Hann sagði að þau gömlu hjónin ynnu hvort öðru svo mikið, að þau óskuðu þess, að þurfa aldrei að skilja lífs eða liðin; blítt og tilkomumikið bros færðist yfir andlit géstsins, þegar Filemon gat um þessa ósk gömlu hjónanna. “Þú ert heiðarlegt gamalmenni,” mælti gesturinn, “og hin aldurhnigna góða kona þín er þér dýrmæt meðhjálp; það er vel til fallið að ykkur verði að ósk ykkar.” Filemon tók eftir því á þessu augnabliki, að björt sólsetursský ljómuðu í vestri, og glampi dreyfði sér um himinhvolfið. Baucis var nú búin að mat- reiða, og bauð nú gestunum að ganga til borðs, og bað mikillega afsökunar á þeirri tilkomulitlu máltíð, sem hún framreiddi. “Hefðum við átt von á ykkur,” mælti hún, hefði gamli, góði maðurinn minn og eg neitað okkur um máltíð til þess að þið fengjuð sæmilega að borða Eg bjó til ost úr mestu af mjólkinni í dag, og hálft brauð er óeytt. Æ, mér finst aldrei neitt til um fátækt mína, nema þegar ein- hvern gest ber að dyrum. “Þessu lýkur öllu vel: vertu ekki að barma þér gamla og góðfúsa kona,” mælti gesturinn góðlátlega. “Einlæg og hjartan- leg góðfýsi í garð ferðamanns- ins breytir vistunum á yfir- náttúriegan hátt, og er megnug að breyta hinum lítilmótlegustu réttum í guðafæðu.” “Já, alt er ykkur hjartanlega velkomið,” sagði Baucis; “Sömuleiðis það, sem gekk af af hunanginu og vínberjunum.” “En þetta er herramansréttur, sem þú berð á borð móðir Baujcis,” hrópaði Kvikasilfur, “þú ert að halda okkur veizlu. Þú skalt fá að sjá hvort eg tek ekki all hraustlega til matar. Eg held eg hafi aldrei verið eins svangur eins og eg er nú.” “Guð sé oss næstur,” hvíslaði Baucis að bónda sínum. “Ef þessi unglmgur er svona mat- lystugur, er eg hrædd um að hann fái ekki saðning sína.” Svo var gengið til snæðings. En nú kom fyrir undarlegt atvik, því þegar gestirnir gengu inn að borða, tók göngustafurinn sig upp af einhverju undraafli, og pjakkaði sig eftir gólfinu þangað, sem Kvikasilfur sat, og breiddi út vængina á ferðinni, og hallaði sér með mestu hæ- versku upp að sæti Kvikasilf- urs. En gömlu hjónin veittu þessu ekki athygli; þau voru svo upptekin við að sinna um gestina og standa þeim fyrir beina. Það var eins og Baucis sagði, að maturinn var lítill fyrir tvo svanga ferðamenn; leyfar af dökku brauði, ostbiti, dálítið af hunangi, og nokkur vínber fyrir hvorn af gestunum; allstór mjólkurkanna, full af mjólk var þar líka, en eftir að Baucis var búin að fylla báðar skálar gest- anna, var lítið eftir í könnunni. Það er átakanlegt fyrir góðsamt hjarta, að geta ekki bætt úr þörf þeirra, sem skorta. Vesa- lings gamla konan óskaði þess aftur og aftur, að hún mætti fá að • vera fastandi í heila viku, til þess að geta satt þessa gesti sína. Og úr því' að svona litlar vistir voru handbærar, gat hún ekki að sér gert að óska að ferðamennirnir hefðu ekki ver- ið alveg svona lystugir. Þeir rendu hvor úr sinni skál í einum teig. “Gerðu svo vel og gefðu mér meiri mjólk móðir góð,” hrópaði Kvikasilfur. “Það var heitt i dag og eg er að framkominn af þorsta.” “Kæru vinir mínir,” mælti Baucis vandræðalega. “Mér er það mikil raun, og eg fyrirverð mig fyrir að segja frá því, að það er sama sem ekkert eftir í könnunni. Því í ósköpunum geymdum við ekki kvöldmatinn okkar bóndi góður?” “Nú mér sýnist ekki betur,” hrópaði Kvikasilfur um leið og hann tók um handarhaldið á könnunni. — “Já, mér sýnist ekki við vera eins illa stödd eins og þú segir; það er vissulega meiri mjólk í könnunni,” að svo mæltu greip hann könn- una og fylti úr henni bæði skál sína og félaga síns. Það kom ekki lítið á Baucis, þegar hún sá mjólkina streyma úr könn- unni, sem hún hélt að væri sama sem tóm; hún gat naumlega trúað sínum eigin augum. Hún hafði vissulega tæmt könnuna að mestu, og. horft ofan í hana, og það hafði séð til botns. “En eg gerist nú gömul og gleymin” hugsaði Baucis með sjálfri sér. “Eg býst við að mér hafi missýnst, en hvað sem öðru líður, þá fer ekki hjá því, að nú hlýtur þó kannan að vera ADVANTAGES THAT WILL APPEAL TO YOU TEACHERS POSSESS > UNÍVERSITY STANDING “Success” students receive better instruction because of our large staff of x expert teachers, most of whom are University graduates. ^ I ý : í GRADE XI (Supplements Allowed) M/N/MUM FOR DAY SCHOOL AIR-CONDITIONED, AIR-COOLED ROOMS INDEPENDENT EXAMINATIONS CORRECT POSTURE UPHOLSTERED CHAIRS ENROLL NOW Day and Evening Classes OPEN ALL SUMMER When you enroll at the “Success,” you will associate with young men and ^ women of ability and scholarship. To our Day Classes we admit only ó students of Grade XI (supplements allowed), Grade XII, or University S standing. * . v All our classrooms are air conditioned and air cooled. Our $13,500.00 General Electric air-conditioning system provides an abundance of pure, filtered air, which is completely changed every 10 minutes. Temperature, summer and winter, is thermostatiqally controlled, providing year-around comfort. The “Success” is the only air-conditioned college in Winnipeg. “Success” students have the exclusive advantage of independent gradua- tion examinations, provided by the Business Educators’ Association of Canada. Our graduation examination papers are set and marked by an independent Examination Board appointed by the Association. A chrome-plated, upholstered chair is provided for each student. The College is also equipped with modern office machinery and individual desks. Send for a free copy of our 40-page illustrated Prospectus. Better still, call at our office for an interview; you will enjoy looking over our beautifully appointed, air-conditioned premises. tóm, eftir að vera búin að fylla báðar skálarnar tvisvar.” “Þetta er yndisleg mjólk,” mælti Kvikasilfur, þegar hann hafði rent úr seinni skálinni. “Eg má til með matselja góð, að biðja þig um ögn meira.” Baucis hafði veitt því athygli, og greint það eins skýrt og frekast mátti, að Kvikasilfur hafði hvolft úr skálinni. svo að hún hlaut að tæmast, er. til þess að sannfæra Kvikasilfur, greip hún könnuna, og hallaði henni yfir skál hans eins og að hún væri að hella úr henni, án þess að hún byggist við nein- um árangri. En nú datt alveg ofan yfir hana1; það fossaði mjólk úr könnunni með miklu iðukasti; skálin varð full á svip- stundu og mjólkin rann út um borðið. En snákarnir á staf Kvikasilfurs réttu nú úr sér, án þess að gömlu hjónin veittu því eftirtekt, og fóru að lepja mjólkina á borðinu. Það angaði af mjólkinni; það var rétt eins og kýrin hans Filemon hefði gengið í bezta haglendinu í veröldinni. “Skerðu mér nú sneið af brauðinu þínu móðir Baucis,” mælti Kvikasilfur, “og ögn af hunangi.” Baucis gerði eftir beiðni hans; brauðið hafði ekki verið upp á það bezta og dálítið þurt, þeg- ar gömlu hjónin borðuðu af því, en nú smakkaðist það eins og nýbakað brauð, sem var mátulega þvalt í sér og létt. Baucis greip brauðmola, sem datt ofan á gólfið; það var svo gott á bragðið, að hún gat naum ast skilið, að það væri sama brauðið, sem hún bjó til; en (Niðurlag næst) Business and Professional Cards Blóm stundvíslega aígreidd THE ROSERY lto. Stofnaö 1905 427 Portage Ave. Winnipeg. G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. S. M. Backman, Sec. Treas. Keystone Fisheries Limited 325 Main St. Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH H. A. BERGMAN, K.C. islenzkur lögfrœOingur • Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 165* Phones 95 052 og 39 043 EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N.D. fslenzkur lyfsali Fólk getur pantað meðul og annað með pósti. Fljót afgreiðsla. WINNIPEG CLINIC Vaughan & St. Mary’s Dr. P. H. T. Thorlakson Phone 22 866 • ReS. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG., WPG. • Fasteignasalar. Leigja hús. Ct- vega peningalán og eldsábyrgð. bifreiðaábyrgð, o. s. frv. Phone 26 821 Peningar til útláns Sölusamningar keyptir. Bújarðir til sölu. INTERNATIONAL LOAN COMPANY 304 TRUST & LOAN BLDG. Winnipeg DR. B. J. BRANDSON 216-2 20 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office ttmar 3-4.30 • Heimili: 21 4 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba Legsteinar sem skara framúr Úrvals blágrýti og Manitoba marmari Skrifiö eftir veröskrd GILLIS QUARRIES, LTD. 1400 SPRUCE ST. Winnipeg, Man. DR. A. BLONDAL Physician & Surgeon 602 MEDICAL ARTS BLDG. Slmi 22 296 Heimili: 108 Chataway Stmi 61 023 Meyers Studios Ltd. Largest Photographic Organization in Can. 124 Notre Dame Ph. 96 647 (Opp. St. Chailes Hctel) CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. Pape, Manaping Directot Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish. 311 Chambers St. Office Phone 86 651. Res Phone 73 917. Office Phone Res. Phone 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment Thorvaldson & Eggertson Lögfrœöingar 300 NANTON BLDG. Talsími 97 024 DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124 Home Telephone 202 398 ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEG • ’ Pœgiiegur og rólegur bústaöur i miöbiki borgarinnar Herbergi $2.00 og þar yfir; með baðkiefa $3.00 og þar yflr Ágætar máltíðir 4 0c—60c Free Parking for Ouests DRS. H. R. and H. W. TWEED Tánnlæknar • 406 TORONTO GEN. TRCSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smlth St. PHONE 26 545 WINNIPEO A. S. BARDAL 848 SHERBROOK ST.- Selur llkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talsími 86 607 Heimilis talslmi 501 562 DR. ROBERT BLACK Sérfræðingur I eyrna, augna, nef og hálssjúkdómum 416 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Viðtalstlmi — 11 til 1 og 2 tll 5 Skrlfstofuslmi 22 2 51 Heimilisslmi 401 991 Dr. S. J. Johannesson 215 RUBY STREET (Beint suður af Banning) Talslmi 30 877 • Vlðtalstfmi 3—5 e. h.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.