Lögberg - 06.05.1943, Síða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 6. MAÍ 1943.
Úr borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw i'Tve.; Mrs. E. S.
Feidsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
♦ -f ♦
Dr. Ingimundson verður í
Riverton þann 11. maí.
•f -f ♦
Farþegar með s/s "Brúarfoss"
lil New York.
Mr. Björn Halldórsson ,stú-
dent. Miss Kristjana Brvnjólfs-
dóttir, Clerk. Miss Dóra Kristins
Stúdent.
♦ ♦ ♦
Vor-bazar hins eldra kven-
félags Fyrsta lúterska safnaðar,
verður haídinn í samkomusal
kirkjunnar á miðvikudaginn
þann 19. þ. m., kl. 2,30 e. h. og
eins að kvöldinu.
♦ ♦ ♦
Mr. Grettir L. Jóhannson,
ræðismaður íslands og Dan-
merkur, kom heim á laugardag-
inn var úr hálfsmánaðar ferða-
lagi af hálfu ríkisstjórnarinnar
á íslandi; átti hann meðal ann-
ars nokkura dvöl í Ottawa,
Toronto, Montreal, Washington
og New Yor-k. Bar ferð hans
hinn bezta árangur þrátt fyrir
margvíslega örðugleika, sem frá
stríðinu stafa.
♦ -f -f
Mr. Bragi Freymóðsson, sem
stundað hefir verkfi'æðinám við
Manitobaháskólann í hálft þriðja
ár, er nú nýfarinn austur til
Montreal þar sem hann hefir
tekist á hendur stöðu hjá North-
ern Electric félaginu. Bragi hef-
ir sýnt frábæra frammistöðu við
háskólanám sitt hér, og er þess
skemmst að minnast, er hann
á síðastliðnu hausti hlaut náms-
styrk háskólans. Hann bað Lög-
berg að flytja vinum sínum hug-
heilar kveðjur með þökkum fyr
ir samveruna, og árnar blaðið
honum hér með góðs brautar-
gengis.
•f ♦ -f
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
sinn næsta fund á heimili Mrs.
P. J. Sivertson, 497 Telfer Ave.,
á mánudagskvöldið þann 12i þ.
m., kl. 8.
•f -f -f
Minningargrein um Kristján
Ólafsson lífsábyrgðarmann, birt-
ist í næsta blaði.
f ♦ f
Márus Sigurgeirson Petty
Officer í canadiska sjóhernum,
lagði af stað síðastliðinn sunnu-
dag, vestur til Prince Rupert,
eftir hálfsmánaðar dvöl hjá for-
eldrum sínum, þeim Mr. og
Mrs. S. W. Sigurgeirsson í
Mikley.
f f f
Skúli Sigurgeirsson, guðfræði-
stúdent, flytur guðsþjónustu að
Silver Bay, kl. 2. e. h. á sunnu-
daginn þann 16. þ. m.
f f f
Mr. G. F. Jónasson, forstjóri
Keystone Fisheries Limited, kom
heim á þriðjudaginn ásamt frú
sinni, úr þriggja vikna ánægju-
legu ferðalagi suður um Banda-
ríkin; geta hinir mörgu við-
skiptavinir hans komið til fund-
ar við hann úr þessu á venju-
legum skrifstofutíma.
f f f
Mrs. G. F. Gíslason frá Van-
couver, B. C., var stödd í borg-
inni um helgina á leið til Elfros,
Sask., þar sem hún hyggst að
dvelja um hríð í heimsókn til
ættingja og vina.
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja, Winnipeg
Séra Valdimar J. Eylands,
prestur
776 Victor St.—Phone 29 017
Guðsþjónusta á hverjum
sunnudegi.
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7. e. h.
Sunnudagaskóli kl. 12:15.
Allir æfinlega velkomnir.
* * *
Sunnudaginn 9. maí (Mæðra-
daginn) verður ferming og altar-
isganga í eldri Gardar-kirkju
kl. 11. f. h. á ensku og íslenzku.
Messa kl. 2,30 á Svold á
íslenzku og offur í kirkjufélags-
sjóð. — Altarisganga.
Messa í Vídalínskirkju kl. 8
að kvöldi á ensku. — Altaris-
ganga og offdr í kirkjufélags-
starfsmálasjóð. *
Allir velkomnir.
H. Sigmar.
f f f
Prestakall Norður Nýja íslands:
9. maí—Árborg, ensk “Moth-
ers’ Day” messa kl. 11 f. h.
Riverton, ensk “Mothers’ Day”
messa kl. 2 e. h.
Framnes, íslenzk messa kl.
8,30 e. h.
16 maí—Geysir, messa kl. 11
f. h.
Víðir, messa og ársfundur kl.
2 e. h.
B. A. Bjarnason.
f f f
Messur í Vatnabygðum:
Sunnudaginn 9 maí 1943.
Foam Lake kl. 2,30 e. h. ensk
messa.
Leslie kl. 7,30 e. h. ensk messa.
B. T. Sigurdsson.
f f f
Lúterska kirkjan í Selkirk:
Sunnudaginn 9. maí.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
íslenzk messa kl. 7. síðd.
Umræðuefni: Minning mæðra.
Allir boðnir velkomnír.
S. Ólafsson.
f f f
Áætlaðar messur
í Gimli prestakalli:
Sunnudaginn 9. maí.
Betel kl. 9,30 árd.
Víðinessöfnuði kl. 2. síðd.
Offur til kirkjufélagsþaría.
S. Ólafsson.
f f f
Frónsfundur.
Á þriðjudagskvöldið þann 11.
þ. m., verður haldinn Fróns-
fundur í Goodtemplarahúsinu,
sem hefst stundvíslega klukkan
8. Vandað hefir verið hið bezta
til skemtiskrár, eins og eftir-
greind atriði bera með sér:
Hannes Pétursson, ræða,
Framtíðarhorfur. Miss Margrét
Helgason, einsöngur. Barnaflokk
ur undir leiðsögn frú Hólmfríð-
ar Daníelsson, sýnir skrautdansa.
Páll S. Pálsson skemtir með upp
lestri.
Vonast er eftir miklu fjöl-
menni, því þetta verður síðasti
fundinn fyrir sumarfríið.
f f f
Ríkisstjórn íslands hefir sent
Icelandic Canadian Club íslenzk
an fána að gjöf, og verður hann
afhentur framkvæmdarstjórn
félagsins af Gretti L. Jóhanns-
syni ræðismanni á dansleik, sem
félagið efnir til á Marlborough
hótelinu á laugardagskvöldið
kemur.
f f f
Mr. og Mrs. Hallgrímur Sig-
urðsson, sem lengi hafa átt
heima í Foam Lake, Sask.,
komu til borgarinnar á laugar-
daginn var; hafa þau hjónin
nú ákveðið að setjast að á Gimli.
Gjafir íil Betel í apríl 1943.
Miss Sigurlaug Einarsson,
Betel, $10.00. Mrs. Ásdís Hin-
riksson, Betel, $5.00 War Savings
certificate. Mrs. L. Russell,
Winnipeg, Candy. Sumargjöf frá
Þorsteini og Guðrúnu Vigfússon,
Des. Moines, Wash. $10.50. Sól-
veig Helgason, Hayland, Man.,
“Sumargjöf til Betel í þakklætis
minningu um Þetreu Jónasson,
$5.00.
f f f
Samskot í útvarpssjóð Fyrstu •
lútersku kirkju.
Lúterska kvenfélagið í River-
ton, f. h. Mrs. S. Ólafson $5.00
Mrs. Steinunn Stefánson, Wpg,
$2.00. Mrs. Bjarni Jóhannson,
Árborg, $1.00. Mrs. Vilborg S.
Anderson, 351 Furby, Wpg, $2.00.
Kærar þakkir.
V. J. E.
f f f
Eftirgreinl fólk er nýkomið til
New York með s.s Goðafoss:
Valdimar Sigurðsson, Sigurð-
ur Sigurjónsson, Sigríður Stur-
laugsdóttir, Tourists. Sigrún
Helgadóttir, stúdent.
Hitt og þetta
Ríkir menn eru ekki tilfinn-
ingalausir. 1 einkalífi sínu eru
þeir að miklum meir’ hluta
góðir, veglyndir og nærgætnir
menn. Sjái þeir mikla fátækt,
vaknar ósjálfrátt örlætiskennd
þeirra. En kaupsýslan er heim-
ur út af fyrir sig, sem fjarlægist
æ meir þá mannlegu tilveru,
sem verður að sæta afleiðingun-
um af verzlunarstarfinu. —Hew-
lett Johnson dómprófastur.
Fjölmargt fátækt fólk lifir
mjög hamingjusömu lífi. Sönn
lífsgleði stafar oft af meðvitund
þess, að menn hafi unnið gott
og heillaríkt starf, án tillits til
launa eða endurgjalds. Sá mað-
ur er hamingjusamastur, sem
kunnað hefir að breyta lífs-
reynslu sinni í hagnýtan þroska.
— Séra James Reid.
Þröngir skór eru ein hin dá-
samlegasta uppfinding, sem gerð
hefir verið. Þeir fá menn til að
gleyma öllum öðrum þjáning-
um. — Josh. Billings.
Ekki einungis England heldur
og sérhver Englendingur er
eyja. — Novalis.
Hlýðni sparar mönnum mikil
og þreytandi heilabrot. —
Bernard Shaw.
Sá, sem glatað hefir frelsinu,
hefir engu frekar að glata. —
Sænskt spakmæli.
England hefir aldrei legið og
mun aldrei liggja fyrir fótum
hreykins sigurvegara. — Shake-
speare.
Sally litla kom fram í eldhús
til mömmu sinnar og var mjög
vandræðaleg, og þegar hún sá,
að manria hennar ætlaði að
fara inn í stofuna kallaði hún
á eftir henni:
“Mamma véistu hvað eg ætla
að gefa þér í afmælisgjöf næst
þegar þú átt afmæli?”
“Nei, elskan mín”, svaraði
móðirin, “eg veit það ekki. Hvað
ætlarðu að gefa mér?”
“Eg ætla að gefa þér falleg-
an postulínsvasa með mörgum
rósum og englamyndum,” sagði
litla stúlkan.
“En elskan mín”, sagði móðir-
in. “Eg á vasa, sem er bæði með
DrummonMe CottonCo.
LTO.
55 Arthur St., Winnipeg-
Phone 21020
Manufacturers of
BLUENOSE Fish Nets
and Sein Twines
H. L. HANNESSON,
Branch Mgr.
MINNIST BETEL
í ERFÐASKRÁM YÐAR
rósum og englamyndum.”
“Nei, mamma, þú átt engan”,
sagði Sally, “eg misti hann á
gólfið rétt áðan.”
Á eg að láta loga ljós í and-
dyrinu, frú”, spurði þjónustu-
stúlkan.
“Nei”, sagði frúin, “eg geri
ekki ráð fyrir, að maðurinn
minn komi heim fyr en birta
tekur af degi. Hann kyssti mig,
áður en hann fór út og gaf mér
200 krónur fyrir nýjum hatti”.
Aðeins karlmenn
mega lesa þetta.
•gec[ nunui xag
•jnpuajs aoq uias gec[ esa[ jejpfj
8o nijniu gnjpunq niu pun
-snc( niu go mje;ie npunui um
-uuouiuuaAq punsnc[ mjniu jy
“Stansa, horfa, hlusta. Þessar
þrjár sagnir lýsa í stórum drátt-
um öllu lífi mannsins,” sagði
maður nokkur við kunningja
sinn.
“Nú hvernig þá,” spyr kunn-
inginn.
“Þú sérð fallega stúlku. Þú
stansar, þú horfir. Svo þarf ekki
að orðlengja það, þið giftist
Eftir það hlustar þú.”
Frá aðalfundi rithöf-
unda félagsins
Félag íslenzkra rithöfunda
hélt aðalfund sinn í Háskólan-
um í fyrradag. —
Eftir skýrslu formanns var
gengið til stjórnarkosninga, og
voru þessir kosnir í stjórn fé-
lagsins fyrri næsta ár: Magnús
Ásgeirsson í stað Friðriks Á
Brekkan. Ritari Sigurður Helga-
son í stað Magnúsar Ásgeirs-
sonar. Gjaldkeri Halldór Stef-
ánsson í stað Sigurðar Helga-
sonar. Meðstjórnendur voru
kosnir þeir Halldór Kiljan
Laxness og Friðrik Á. Brekk-
an.
Félagsmenn eru nú um 50.
Sem fulltrúar í Bandalagi ís-
lenskra listamanna voru þess-
ir kosnir: Tómas Guðmunds-
son, Magnús Ásgeirsson, Ólaf-
ur Jóh. Sigurðsson, Sigurður
Nordal og Halldór Kiljan Lax-
ness. — Ólafur Jóh. Sigurðs-
son er þar nýr, og kemur í stað
Friðriks Á. Brekkan.
Mbl. 10. marz.
Ketilsprenging í Mjólk-
urbúi Flóamanna
Einn slarfsmaður skaðbrennisl.
Það slys var í Mjólkurbúi
Flóamanna við Ölvesá í gær-
morgun um 11 leytið, að gufu-
ketill mjólkurvinslustöðvarinn-
ar sprakk. Einn starfsmaður,
danskur maður, Malling að
nafni, sem staddur var í næsta
herbergi, skaðbrendist. Var ekki
vitað í gærkvöldi hve meiðsli
hans eru alvarleg.
Miklar skemdir urðu á mjólk-
urvinslustöðinni. Gufuketillinn
var í sérstöku herbergi og stóð
við útvegg. Hluti af útvegg húss
ins, þar sem ketillinn stóð,
.hrundi og hurðir ketilherbergis-
ins brotnuðu, en sjóðandi gufa
og vatn rann /inn í næsta her-
bergi.
Það var til happs að ekki
var fleira fólk statt í næstu
herbergjum við ketilrúmið, en
sá eini maður, sem getið hefir
verið um.
Ekki er, kunnugt um orsök
slyssins, en vélfræðingar fóru
austur í gærdag til að kynna
sér málavexti.
Mjólkurvinsla slöðvasl.
Óhaþp þetta mun ekki hafa
nein áhrif á mjólkursendingar
til Reykjavíkur, en öll mjólk-
urvinsla stöðvarinnar, svo sem
osta og smjörgerð, mun stöðv-
ast um tíma, eða þar til gert
iefir verið við skemdirnar, þar
sem allur rekstur stöðvarinnar
byggist á þessum gufukatli.
Mbl. 10. marz.
j SACGENT TLCGIST
D. Osborne, forstjóri.
Mœðradagur
Minnisí mömmu með blómum þann 9. maí.
739 Sargent Avenue — Sími 26 575.
"Blóm fyrir öll lækifæri"
“Sýnist helzt ekki unt að spara...”
V
w IÐ HITTUMST á Main Street. Jim var
með þetta venjulega bros, jafnvel er hann
var að skýra mér frá fjárhagsþröng sinni.
"Skringilegt," sagði hann, "Eg vinn fyrir
meira nú en áður, en get þó ekkert lagt
fyrir.
"Skattar, Sigurlánsbréf, og margt annað,
er dregið af kaupi mínu."
Hann þagði um stund. en hélt svo áfram:
"Að minsta kosti lítur svo út, að eg geti
ekkerl sparað. Vilaskuld er sparnaður fólg-
inn í Sigurlánsbréfunum. Og mér þykir
vænt um að hafa eignast nokkur þeirra. Og
þér megið treysta mér í sambandi við
Fjórða Sigurlánið.
This advertisement contributed to the Fourth Victory Loan
campaign by Dominion Textile Company Limited, Montreal.
BYGGIR
SKRIÐDREKA
Aldrei fyr hefir persónulegur sparnaður verið jafn
nauðsynlegur í sögu vorri. Hver sparaður dollar hefir
djúp áhrif á sókn stríðsins.
Til þess að buga óvininn, og flýta fyrir sigri, þarf
Veldið að hafa hraðvirkar og styrkar orustuvélar,
Slíkar vélar verða ekki bygðar án persónulegra fórna
— sjálfsafneitunar — sparnaðar.
Þar til stríðið er búið
gerið sparnað að kjörorði
yðar. Farið varlega með
peninga. Byggið upp sjóð
orustu-dollara af sparifé
yðar. Sparið vegna sigurs.
Pessi bók kennir sparnað
Fjölskyldu Útgjaldabök Royal
Bankans, sýnir hvernig áætla
skuli útgjöld, hvernig spara
megi með skipulögðum viðskifta-
háttum. Fáið hana hjá næsta
dtibfli.
The ROYAL BANK of Canada