Lögberg - 17.08.1944, Page 1

Lögberg - 17.08.1944, Page 1
PHONES 86 311 Seven Lines iot A v*S- \VC*\ C°T' .-’SS'- , Dr»^> Dry Cleaning and Laundry PHONES 86 311 ^ Seven Lines . *SéS$s£ss’ 1 Service Qot* **■ and Saiisfaciion 57. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 17. ÁGÚST, 1944 NÚMER 32 TUTTUGU OG FIMM ARA FORUSTUAFMÆLI Þann 7. þ. m., voru liðin 25 ár frá þeim tíma, er núverandi for- sætisráðherra, Rt. Hon. W. L. Mackenzie King, tókst á hendur forustu Liberalflokksins í þessu landi og varð eftirmaður Sir Wilfrid Lauriers. I harðri sam- keppni við George S. Fielding fyrrum fjármálaráðherra Laurier stjórnarinnar, gekk Mr. King sigrandi af hólmi á flokksþing- inu í Ottawa þann 7. ágúst 1919, einkum og sér í lagi fyrir harð- snúinn atbeina ýmissa fulltrúa að vestan. Tveir íslendingar sóttu flokksþing þetta, þeir Dr. Sig. Júl. Jóhannesson og Ás- mundur P. Loftson, er síðar varð fylkisþingmaður í Saskatchewan fylgdu þeir báðir Mr. King ein- dregið að málum. Mr. King varð verkamálaráð- herra í ráðuneyti Sir Wilfrid Lauriers, og var þá aðeins 27 ára að aldri; hann hefir gegnt for- sætisráðherraembætti í seytján ár, og sett með því met. Þótt Mr. King hafi vitanlega sætt annað veifið allbiturri and- spyrnu á hinum langa stjórn- málaferli sínum, kemur þó sam- verkamönnum hans yfir höfuð saman Um það, að hann sé vask- ur maður og batnandi með vax- andi áhrif á rás heimsviðburð- anna. Foringjar allra þingflokkanna, færðu Mr. King hamingjuóskir í tilefni af aldarfjórðungs for- ustuafmælinu, og Rev. Hansell, Social Credit þingmaður frá Mac Leod, Alberta, komst meðal ann- ars þannig að orði: “Eg vona að háttvirtir þing- menn skilji það ekki á þann veg, Rt. Hon. W. L. Mackenzie King SAMBANDSÞING FRESTAR FUNDUM TIL 31. JANÚAR 1945 Síðastl. mánudagskvöld frest- aði sambandsþing fundum sín- um til 31. janúar 1945. Mikil- vægustu laganýmælin, sem þing- ið að þessu sinni afgreiddi, verð- ur að telja lögin, um styrk til barnauppeldis, lög um ákvæðis- verð búnaðarafurða og fiskfram- leiðslu, lög um stórfenglega fjár- veitingu til húsagerðar um þvert og endilangt landið, ásamt lög- um um stofnun iðnaðarbanka. Ennfremur lög um það, að greiða hermönnum, sem leystir hafa verið úr herþjónustu, $100 til fatakaupa í stað $65, sem áður var talið fullnægjandi. Samvinna milli þingflokkanna var yfir höfuð að tala hin ákjós- anlegasta. AFSPYRNU OFVIÐRI VELDUR GEYSITJÓNI Á aðfaranótt miðvikudagsins í vikunni sem leið, geisaði af- spyrnuveður víðsvegar í Vestur- Canada, er olli geisitjóni; ramm- ast kvað þó að þessum hamförum í Saskatchewan-fylkinu, þar sem heilt þorp, Kamsack, fauk út í veður og vind svo þar stóð naum- ast steinn yfir steini; íbúar þorps- ins, nálega tvö þúsund manns, urðu svo að segja allir húsviltir, ein ung stúlka lét lífið af völdum fárviðrisins, en eignatjón nemur því næst tveim miljónum dala. Stjórnin í Saskatchewan hefir þegar veitt $50,000 til aðstoðar þessu bágstadda fólki, auk þess sem sambandsstjórn hefir gefið til kynna, að hún muni einnig hlaupa undir bagga. Sameinuðu þjóðirnar hefja stórkostlega innrás á Suður-Frakkland Nokkru fyrir dagmál á þriðju- daginn, hófu sameinuðu þjóðirn- ar innrás mikla á Suður-Frakk- land, að undangengnum þrálátum sprengjuárásum úr lofti, er auð- sjáanlega höfðu sorfið mjög að strandvörnum Þjóðverja á inn- rásarsvæðinu, því að því er fréttariturum segist fr£, létu strandvarnabyssur þeirra tiltölu- lega lítið á sér bera; svo vel og vandlega hafði innrásin verið skipulögð, að innan tveggja klukkustunda frá því er hún hófst, höfðu foringjar hinna sam- einuðu herja komið meginliðinu á land; fyrst voru það öflugar fylkingar fallhlífarhermanna, sem lentu, en í kjölfar þeirra sigldi brátt fótgöngu- og stór- skotalið. í innrásinni tóku þátt Bretar, Bandaríkjamenn, Frakkar, Pól- verjar, og eitthvað af belgiskum hermönnum. Staðhæft er, að um átta hundr- uð skip hafi tekið þátt í innrás- inni, þar á meðal ýmis stórorustu- skip, ásamt sægs mikils af her- snekkjum, mismunandi stærða. að eg hafi skilyrðislaust gengið Liberalflokknum á hönd, þó eg lýsi yfir þeirri skoðun minni, að æskilegt sé að Mr. King verð1 maðurinn, er fyrir Canada höndi, mæti á næsta friðarþingi.” Kveðjur frá íslandi íslendinga í Reykjavík, 27. júlí 1944. Herra próf. Richard Beck, forseti Þjóðræknisfélagsins. Ungmennafélag íslands óskar eftir að mega gefa Þjóðræknis- félaginu kertastjaka, sem því yrði sendur síðar, gerðan af Ríkarði Jónssyni, til minningar um komu þína á lýðveldishátíð- ina 17. júní og sem lítinn vin- áttuvott fyrir þau bönd, sem þú hefir treyst milli íslendinga aust- an hafs og vestan, með glæsi- legri framkomu þinni á héraðs- mótum ungmennafélaga og öðr- um mannfagnaði víðsvegar um landið nú. í sumar. Jafnframt votta íslenzk ung- mennafélög Þjóðræknisfélaginu þakkir fyrir 25 ára gifturíkt þjóð- ræknisstarf og árna því allra heilla og blessunar í framtíðinni. Með innilegum kveðjum. F. h. stjórnar Ungmennafélags íslands. Daníel Ágústínusson. ritari. • Reykjavík, 1. júlí 1944. Herra próf. dr. Richard Beck: Stjórn Sambands íslenzkra barnakennara hefir þá ánægju að tilkynna yður, herra prófessor, að eftirfarandi ályktun var sam- þykkt með lófataki á 8. fulltrúa- þingi Sambands íslenzkra barna- kennara, sem háð var í Reykja- vík 20.—23. júní s. 1.: til Þjóðræknisfélags Vesturheimi “Um leið og 8. fulltrúaþing Sambands íslenzkra barnakenn- ara þakkar þá sæmd, er Rinn glæsilegi fulltrúi Vestur-íslend- inga, prófessor dr. Richard Beck, hefir sýnt þinginu með komu sinni, ályktar þingið að biðja hann að koma á framfæri eftir- farandi kveðju: Fyrsta fulltrúaþing íslenzkra barnakennara í hinu nýja ís- lenzka lýðveldi sendir Þjóðrækn- isfélagi Islendinga í Vesturheimi bróðurkveðju með þökk fyrir hið aðdáunarverða starf þess í þágu íslenzkrar menningar á liðnum áratugum og óskir um heillaríka framtíð, í þeirri von, að bræðra- böndin milli Islendinganna í stór- veldunum vestan hafsins og hinu unga lýðveldi austan þess megi styrkjast og eflast til blessunar íslenzkri menningu.”' Með mikilli virðirtgu F. h. stjórnar Sambands ís- lenzkra barnakennara. Ingimar Jóhannsson, formaður. Guðm. I. Guðjónsson, ritari. STAKA, kveðin í tilefni af komu próf. dr. Richards Beck á kennaraþing 1944: Finnið æ um Atlantssjá ylinn héðan streyma. Berðu kæra kveðju frá kennurunum heima. Kristján Sigurðsson, kennai, Brúsastöðum í Vatnsdal. GUÐMUNDUR FIilDJÓNSSON SKÁLD Meðal þeirra frétta, er Dr. Richard Beck, nýkominn af is- landi lét Lögbergi í té, var sú um lát Guðmundar skálds Frið- jónssonar á Sandi í Þingeyjar- þinigi, eins hins sérstæðasta og mikilvirkasta rithöfundar í sam- tíð vorri; um dánardægur hans er oss eigi kunnugt, þótt dauða skáldsins hafi eftir óljósum fregnum að dæma borið að seinni part júní mánaðar. Guð- mundur skáld mun verið hafa freklega 75 ára að aldri. Guðmundur Friðjónsson var afar merkilegt ljóðskáld, og sem erfiljóðaskáld mun hann hafa nálgast Bjarna Thorarinsen; næg ir í því efni að vitna í minning- arljóð hans um Björn Jónsson og Hannes Hafstein; hann reit og margt smásagna, sem eiga munu langt líf fyrir höndum, svo sem “Gamla heyið”. 1 ritgerðaformi skrifaði Guð- mundur Friðjónssort í raun og veru um alla skapaða hluti milli himins og jarðar, og ávalt og alstaðar voru ritsmíðar hans mót aðar fágætum stílþrótti og aðals- svip íslenzkrar tungu; hann var goðorðsmaður í ríki hinnar ís- lenzku ritlistar. RÚSSAR LÁTA" UNDAN SÍGA Samkvæmt síðustu fregnum, hafa Rússar orðið að láta undan síga fyrir Þjóðverjum bæði á víglínunni umhverfis Varsjá, og eins í Estoníu; gerðu Þjóðverjar grimmilegar árásir á þessum víg- stöðvum. Herstjórn sameinuðu þjóðanna hefir enn eigi látið neitt ákveðið uppi um lendingarstaði á Suður- Frakklandi, þó Berlínarútvarpið flytti þá fregn þegar á þriðju- dagsmorgunin, að meginherirnir hefðu lent við Bormes, sem ligg- ur um 25 mílur í austur frá hafnarborginni Toulon. Sam- tímis létu hernaðarvöld Nazista þess getið, að þau hefðu skipað svo fyrir, að láta flytja fólk alt burt úr Marseille, sem er önnur stærsta borg Frakklands, annað en' það, sem óumflýjanlegt yrði að í borginni dveldi fyrst um sinn af hernaðarlegum ástæðum. Gen. Sir Henry Maitland Wil- son, flotamálaforingi Breta á Miðjarðarhafinu, átti vafalaust sinn drjúga þátt í því, hve greið- lega hernum auðnaðist að lenda. Frumtilgangur innrásarinnar á Suður-Frakkland virðist vera sá, að ná eins fljótt og auðið má verða hernaðarlegu sambandi við herjina í Normandy, sem sýnast vera á óstöðvandi sigurför til Parísar. Snörp sjóorusta í síðustu viku skýrðu Winni- peg blöðin Free Press og Tribune frá því að þann 7. júlí hefði verið háð stórkostleg sjóorusta fram undan Brest-skaganum á Frakk- landi, sem ennþá er í höndum Þjóðverja. Fjögur kanadisk her- skip voru á ferð rétt hjá landi. Var þeim gefið merki frá þýzk- um skipum er álitu að þau væru einnig tilheyrandi Þjóðverjum. Hófst þá hin grimmasta orusta. Kanadisku skipin fjögur, Qu’- Apelle, Saskatchewan, Skeena og Restigouche voru svo nærri landi, að þau voru í skotfæri við fallbyssur óvinanna á ströndinni, hinumegin dundu skotin frá fjór- um þýzkum togurum, sem er á- litið að væru á leið út á haf með flota af neðansjávarbátum í togi. Það var niðamyrkur og stórsjór. Bardaginn stóð yfir í 50 mínútur, hafði þá þrem af óvinaskipunum verið sökt, eitt lagði á flótta. Ómögulegt var að bjarga neinum af skipshöfn þeirra fyrir ósjó. Kanadisku skipin voru lítið skemd, 27 menn særðust, 2 féllu. Þetta er í fyrsta sinn sem sjó- orusta hefir verið háð á milli óvinanna og kanadiska sjóhers- ins, í öllum öðrum tilfellum hafa einhver brezk skip tekið þátt með kanadisku skipunum. Skipið, sem harðast var leikið H.M.C.S. Saskatchewan er nú komið til þessa lands og hinir fræknu liðsmenn eru á leið heim til ástvina sinna til að njóta verð- skuldaðrar hvíldar. Meðal þeirra sem nafngreindir eru, eru tveir íslendingar, Lincoln Sveinsson frá Winnipeg og Karl Jóhann Ólafsson, sonur séra Sigurðar Ólafssonar og konu hans í Sel- kirk. FRAMI ÍSLENSKS NÁMSMANNS VESTRA Fregnir hafa borist um það að vestan, að ungur íslending- ur, Ágúst Sveinbjörnsson, hafi lokið Bachelor of Science prófi í efnafræði við háskólann í Wis- counsin með miklu lofi. Háskólinn hefir veitt honum 800 dollara viðurkenningarstyrk, og mun hann nú lesa við skól- ann undir Master of Science próf. Á£úst er frá Kothúsum í Garði, sonur Sveinbjarnar Árnasonar skólastjóra. TENGDADÓTTIR ROOSEVELTS VILL FA SKILNAÐ Forth Worth Texas: — Frú Ruth, Goggins Roosevelt höfð- aði í dag hjónaskilnaðarmál á hendur manni sínum, Elliott Roosevelt ofujrsta, syni Roose- velts forseta. Kvað hún hann ruddalegan og ráðríkan. Hjón- in skildu að borði og sæng í október s. 1. — Ruter. Guðfinna frá Hömrum: HIÐ GULLNA AUGNABLIK Þú vissir það ei, þig gisti í gær hið gullna augnablik. Frá tímanna djúpi bylgja barst að brjósti þér ljós og hvik. En sjón þín var haldin og heyrnin með við hversdagsins önn og ryk. Það örlögum réð, að sál þín svaf, er sótti þig heim sú stund, því aldan, er faldar geislum guðs um gæfunnar bláu sund, hún hnígur aðeins eitt einasta sinn á ævi þinnar fund. í morgun vaknaði vera þín í vitund um hjartans töp, því nóttin átti sér engan draum en ótal stjarna hrÖp. Þá fannst þér auðlegð, sem önnin gaf, vera illra norna sköp. Með þögulum trega telurðu nú hve'rt tímans bylgjuslag. Nú stillir ei himinn hörpu meir við hafsins undralag. Það augnablik, sem var gullið í gær, er grátt eins og vofa í dag. Eg hvíslaði óði í eyra þér um æskunnar týndu sýn. En ljóð mitt á framar engin orð og engan tón, sem skín. Þú vissir það ei: Þetta augnablik var eilífðin mín og þín. Samvinnan

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.