Lögberg - 17.08.1944, Síða 5

Lögberg - 17.08.1944, Síða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 17. ÁGÚST, 1944 5 “Þú ert um of nákvæmur; Ed er í raun og veru allra bezti mað- ur. Hann er einn af beztu vinum minum.” Eg hafði oft haft í hyggju að spyyja hana um það hvernig stæði á kunningsskap hennar við þennan hræðilega mann. Eg var fyrir löngu viss um það með sjálfum mér, að Edvard sá, sem hafði skrifað bréf það, sem komst í hendur manns hennar og sem var lesið af okkur félögum, Harris og Dunn, kvöldið sem við höfðum gert áætlanir um það, að liggja fyrir bréfs höfundinum og berja hann, var í raun og veru Ed Kohne sjálfur. En nú var tækifærið lagt upp í hendur mín- ar að tala um þetta atriði og komast að sannleikanum að svo miklu leyti sem kostur væri á. Eg sagði því svo stillilega og blátt áfram sem mér var mögulegt: “Eg hefi lesið eitt af bréfum Kohne’s — það var ástarbréf!” Hún lék sér að hnífnum og svaraði alveg eins stillilega: “Eg veit það, Ed sagði mér að þú hefðir aðvarað hann kvöldið, sem þú fylgdir mér heim til mín, um það, að bréf hans hefði komist í hendur mannsins míns.” Eg stóð upp. Hendin á mér sem eg hafði hvílt á höfðalagi legu- bekksins, rann niður eftir flau- elsfóðrinu, niður á milli fjaðra- koddanna og rakst þar á eitthvað hart, sem hruflaði fingur minn til muna, en við þessa snöggu hreyfingu mína, tapaði Mrs. José haldi á hnífnum, sem hún hafði verið að leika sér að, og féll hann nú beint niður á rist- ina á hægri fæti hennar og stóð þar í beini. Eftir talsvert fát og umsvif við það að draga hnífinn úr sár- inu varð eg var við það, að það mundi verða nauðsynlegt að færa hana úr sokknum og binda um sárið til þess að stöðva blóð- rásina. Þetta tókst mér vel og hún bar sig prýðilega á meðan á þessu stóð. Eg heyrði jafnvel lágar, kitlandi hlátursbylgjur frá henni við og við. Svo lyfti eg fæti hennar upp á legubekkinn þar sem hún hafði legið og hafði nú í huga að byrja samræðurn- ar aftur þar sem eg hafði felt þær niður, vegna þessa atviks. En nú starði hún brosandi á mig með báðar hendurnar undir höfði sér. “Ætlar þú ekki að klæða mig í sokkinn líka? — Þú ert svo nær- gætinn við mig,” sagði hún lágt. “Auðvitað,” sagði eg utan við mig. Og svo fór eg að brjóta sokkinn saman og færa hann yf- ir tærnar á henni. Þetta fórst mér vel úr hendi og eg strauk fót- inn á henni svo að sokkurinn var hrukkulaus upp fyrir hné hennar en lengra lyfti eg ekki fit hans. Hún var nú hlæjandi: “Þú gerð ir þetta vel, en — nú verður þú að hneppa fitinni á sjálfhnepp- urnar,” sagði hún. Og svo lyfti hún kjólfaldinum upp yfir mjöðmina. Eg var í æstu skapi. Eg var þarna með kvenmanni sem mér fanst bera alt til brunns, sem var fagurt og gott, kvenmanni sem mér fanst bera af öllum öðrum konum hvað persónu- gerfi, samúð og skilning snerti. Eg gat ekki séð galla hennar, ófullkomleika né ósamræmi. Það að hún var gift kona og var svo mikið á mínum vegum, þrátt fyrir það, afsakaði eg vegna heimilislífs hennar og á þann hátt, lagði eg allar sakir á mann- inn hennar. Mér fanst það sjálf- sagt, að við mundum geta lifað hamingjusamlega saman ef hún gæti fengið skilnað við manninn sinn. “Eg ætla að flytja frá þessari borg,” sagði eg og gekk um gólf. Eg sá að hún hálf reis upp í legubekknum. “Hvað áttu við?” heyrði eg að hún sagði undrandi. “Eg á við það, að eg ætla að flytja héðan til annarar borgar.” Eg nam staðar fyrir framan hana. “Og — eg ætla að taka þig með mér.” Nú varð hún alvarleg. Það var jafnvel hræðslusvipur í andliti hennar. Eg hélt áfram: “Þú ert kona eins vinar míns, og — eg elska þig. Þetta er valveg óþolandi á- stand fyrir okkur bæði.” Það varð löng þögn í herberg- inu. Eg sá að hún starði á mig eins og hún -væri að bíða eftir því, að eg segði eitthvað meira. En eg sagði ekkert meira. Svo benti hún mér til sætis við hlið- ina á sér. “Nei, — þú mátt ekki fara héðan. Eg get ekki hugsað til þess, að þú farir héðan. Eg get ekki farið með þér.” “Eg veit það, að þú getur ekki farið með mér nú sem stendur; þú verður fyrst að skilja við manninn þinn löglega. Svo verð- ur þú að koma til mín og gleyma því liðna, og lifa með mér fyrir framtíðina.” Það varð þögn aftur. Svo sagði hún: “Mér hefir aldrei komið slíkt til hugar.” Þó að þikjan á byggingunni hefði fallið yfir mig á þessari stundu, hefði eg ekki getað orðið meira utan við mig. Henni hafði aldrei komið slíkt til hugar. Þetta atriði hafði þó verið efst í huga mínum um langan tíma. Það hafði haldið mér vakandi á næt- urnar og eg var farinn að telja sjálfum mér trú um það, að skilnaður þeirra hjóna væri ó- hj ákvæmilegur. “En hvernig á eg að skilja þig,” spurði eg ráðleysislega. Við erum daglega saman, og á kvöldin et- um við á matsöluhúsunum. Þetta hlýtur að leiða til óhróðurssagna og mun bráðlega komast til eyrna mannsins þíns.” Hún hló. “Ó, Mr. José lætur sér standa á sama um slíkt.” “Nei, maðurinn þinn er af- brýðissamur,” sagði eg. “Ertu hræddur við hann. Eg er ekki hrædd.” “Auðvitað ekki, — en þessar ástæður eru mér ekki geðfeldar.” “Ó, þú ert um of viðkvæmur. Maðurinn minn hefir sínar eigin vinstúlkur og eg kýs mér mína eigin leikbræður.” Mér var farið að renna í skap. Svo eg var þá aðeins leikbráðir hennar. Það var alt og sumt. Eg sagði því með talsverðum hita. “Eg er ekki viss um að mig langi til að vera einn af félögum Mr. Kohne’s. Mér skilst það, að Verum samtaka um stuðning við allar líknarstofnanir hverju nafni, sem þær nefnast, og látum ekki undir höfuð leggjast, að kaupa stríðssparnaðar skírteini, DREWRYS LIMITED Jóhann Briem, listmálari: ' <* Liálirnar og þjóðin Island er ólíkt öðrum löndum og íslendingar ólíkir öðrum þjóð- um. Því er það ekki að undra, þótt listir þeirra hafi sérstakan svip. Þótt íslenzkir listamenn virðist ólíkir hver öðrum við fyrstu sýn, kemur skyldleikinn glöggt í ljós, ef erlend list er tekin til samanburðar. Þegar hópar íslenzkra listamanna hafa tekið þátt í almennum sýning- u,m erlendis, verða hin sam- eiginlegu einkenni skýrari og hin ólíkustu verða alt í einu skyld. Það er ekki hið íslenzka um- hverfi, sem einkennir verkin, heldur hin íslenzka skapgerð — ekki val verkefnanna, heldur meðferð þeirra. Yfir allri heildinni hvílir þung ur alvarlegur svipur. Verkin bera vitni um ástundun og þraut seigju listamannanna, en jafn- framt um erfiði þeirra. íslenzk málaralist er ekki hrífandi við fyrstu sýn, en hún vinnur við kynningu. Þar er engin yfirborðs leg leikni, en því meiri festa í skapgerð. hann sé einn af leikbræðrum þín- um?” Glamparnir í augunum á henni lýstu niðurbældum tilfinningum, en hún sagði stríðnislega. “Kohne er leikbróðir minn. Fá- ir þekkja hann eins og hann er í raun og veru. Hann er allra besti félagi.” “Morðingi og þrælmenni,” sagði eg hálfhátt, sárreiður við hana vegna léttlyndis hennar. Það varð löng þögn og eg var með sjálfum mér, að sætta mig við það, að taka upp þessa nýju köllun mína sem leikbróðir henn- ar. Það gæti að líkindum leitt til þess, að eg gæti varðveitt hana frá félagsskap við Mr. Kohne. Svo tók eg hendi henn- ar og dró hana að mér. “Jæja, systir, eg skal reyna að verða þér góður bróðir,” sagði eg- Hún veitti mér enga mót- spyrnu, en — eg kysti hana á ennið. Hún hallaði sér upp að mér með lokuð augun um leið og hún kastaði höfðinu dálítið aftur á bak, eins og að hún væri í raun og veru að bíða eftir fleiri kossum og varir hennar dróust saman eins og að hún byggist við því að eg kysti hana á munn- inn. Eg starði á þetta fagra við- kvæmislega andlit hennar en eg kysti hana ekki aftur. Svo hálf opnaði hún augun og í hinum hálfopnu augum hennar, þóttist eg geta lesið um alla drauma veraldarinnar. En þegar eg kysti hana ekki, opnaði hún augun til fulls, strauk hendinni yfir hárið á sér, losaði sig úr armlögum mínum og stóð upp. Svo gekk hún út að glugganum og starði út yfir ljósadýrð borgarinnar, en eg studdi olnboganum mínum á kné mér og hallaði höfði í lófa mínum; eg vissi að eg átti í stríði við sjálfan mig og að eg mundi tapa. Þar að auki var mér það ljóst að eg var í stríði við alt og alla, og eg hafði tilfinn- ingu um það, að sigurlaunin voru alveg óákveðin. En svo heyrði eg að hún kom til baka. Eg heyrði hið snarpa hljóð af skónum, sem hún hafði á vinstri fætinum og hið daufa dropahljóð af hægri fæti hennar sem var ennþá skólaus. Eitt tvö, eitt tvö, eitt tvö, og nú vissi eg að hún hafði numið staðar fyrir framan mig. Það varð löng þögn. Svo fann eg fingurnar á henni líða í gegnum hárið á mér og strax á eftir vissi eg að hún var á hnjánum fyrir framan mig. Hún lyfti höfði mínu og um leið hvíslaði hún lágt í eyrað á mér: “Nei, eg vil ekki vera systir þín. Eg elska miðnætursólskins- draumana þína og eg elska þig vegna þeirra.” Frh. Það er fróðlegt að skoða mynd- ir af íslenzku landslagi, sem er- lendir menn hafa málað. Svipur landsins verður alt í einu annar- legur og framandi, jafnvel þótt listamaðurinn hafi fylgt fyrir- myndinni nákvæmlega. Þing- vallamyndin í Alþingishúsinu er ýkjalaus eftirmynd af náttúr- unni. Steinarnir í Flosagjá, vatn- ið og> Hengillinn í baksýn ,alt er eins og 'það á að vera. En samt er landslagið fjarlægt. Enginn Islendingur hefir nokk- urtíma séð Þingvöll í þessu ljósi. í þessu sambandi er gaman að minnast á ummæli Bryce lávarð- ar um íslenzkt landslag, en hann ferðaðist hér á landi árið 1872. Honum farast orð á þessa leið: “Tré sjást hvergi, og það er auð- velt að hugsa sér, hve það gerir landið kuldalegt og tilbreyting- arlaust. Og það er eins óhæft fyrir landslagsmálara og stórt land getur framast verið. Þar er engin nærsýn, og þar sem landslagið er fallegt, er það fjar- lægt og víðáttumikið. Þar eru engir skemmtilegir smáfossar né skógargil — en það er yndi lands- lagsmálaranna — engar blóma- brekkur með lækjum og hvergi grá björk og stórgrýti, kafið í burkna og skógarkjarri. Alt þetta vantar — alt sem gefur landi hlýj an og mildan svip. Berar auðnir og mýrarflákar með smáholtum, straumharðar ár, fell og ásar í baksýn, stundum hvít af snjó, stundum kolsvört. — Þannig lít- ur íslenzkt landslag út.” Lýsing höfundarins á landinu er áreiðanlega sönn í aðalatrið- um, en ályktun hans er ekkert annað en það, að það er ekki hægt að mála enska landlags- mynd á Islandi. íslenzkir listamenn hafa skilið það til fulls, að þeir geta að litlu leyti stuðst við listir annara þjóða, er þeir mála sitt eigið land. Hver sú þjóð, sem megnar að skapa sjálfstæða list, hefir lagt sinn skerf til menningar heims- ins. Og hið andlega sjálfstæði hverrar þjóðar byggist að mestu leyti á listum hennar og bók- mentum. Þess vegna hafa íslend- ingar meiri þörf fyrir skáld og listamenn en nokkur önnur þjóð. Sjálfstæðisbaráttu okkar er ekki lokið, heldur mun hún standa jafn lengi og íslenzka þjóðin lif- ir, og hin andlega menning verð- ur alltaf sterkasti þátturinn í þeirri baráttu, eins og hún hefir verið til þessa. Án hennar hefð- um við glatað þjóðernistilfinn- ingu okkar fyrir löngu. Þótt reynslan sýni, að samvinna við aðrar þjóðfr geti verið æskileg, þegar um verklegar framkvæmd- ir er að ræða, megum við ekki gleyma því, að hin andlegu verð- mæti verðum við að skapa sjálfir og hjálparlaust. Forfeður okkar höfðu Vestmenn til að piægja akra sína, og við höfum leitað til verkfræðinga af annari þjóð, til að reisa mannvirki, en skáld og listamenn getum við aldrei flutt inn frá útlöndum. Sjálfstæði hinnar íslenzku þjóð ar í framtíðinni, er undir því komið, hve mikla rækt hún legg- ur við bókmenntir sínar og list- ir. Og samt verðum við innan fárra daga meðlimir eina lýð- veldisins í heiminum, sem hvorki á listasafn né listaskóla. En auknu sjálfstæði fylgir aukin ábyrgð — ábyrgð gagnvart þjóð- félagsborgurunum sjálfum. Það er skylda okkar allra að efla íslenzkar listir, því að fram- tíð listanna er framtíð landsins. Lesbók. Tveir kunningjar mætast á götu. — Nei, hvað þú ert í fallegum frakka. — Já, og eg skal segja þér, að eg hefi komist yfir hann á ein- kennilegan hátt. — Fanstu hann? — Nei, nei. — Fékstu hann lánaðan? — Nei, ekki heldur. — Hefurðu þá stolið honum. — Nei, eg keypti hann og borg- aði hann út í hönd. Einn hinna a/S skoða i mikilvccgustu parta í sprengjuflugvél, sem verið er X-geislum til þess að útiloka hugsanlegar veilur. í MÖRGUM verksmiðjum, sem framleiða 1 flugvélar og skip, og annan umfangs- mikinn stríðsútbúnað, er hinni fágætu orku X-geislanna beint til rannsókna á málm- stykkjum. Sami X-geislinn, sem orsakaði gerbreytingu á sviði læknavísindanna, er nú notaður í þágu framleiðslunnar. Nýtízku hervélar, eru að mestu samsettar af málmstykkjum, sem verið hafa steypt (lög- uð úr bræddum málmi) og soðin saman. Þessi stykki þurfa að vera heilsteypt og sterk. Notkun X-geisla veitir tækifæri til ná- kvæmni á innri byggingu stálstykkja, alu- minum og annara málmefna, sem mjög eru í notkun. Þessir gegnlýsandi X-geislar leiða í ljós hvers konar huldar veilur. Með slíkri aðferð má fljótt koma auga á gallað efni og útiloka það í byrjun framleiðsl- unnar. X-geisla rannsókn tryggir það, að hermenn vorir fái einungis fyrsta flokks vélar til afnota. Að tilstuðlan Plastics Deildarinnar, hefir C-I-L veitt Canada aðgang að mikilvægum hlunnindum á sviði rannsóknanna — rann- sóknum, sem Du Pont vísindamenn hafa haldið uppi. Almenningur fær aðgang að ábyggilegum Du Pont öryggis X-geisla kvikmyndum í þágu iðnaðarins, engu síð- ur en til afnota við lækningar og tannað- gerðir, sem X-geisla kvikmyndameistarar veita aðgang að frá strönd til strandar. X-geisla kvikmyndir fyrir iðnað- inn. ásamt notkun þeirra við lækn- ingar, eru ein sönnun þess enn hvernig Iðnaðarefnavisindin vinna í ’þágu Canada jafnt á stríðs sem friðartímum. CANADIAN INDUSTRIES LIMITED

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.