Lögberg - 01.02.1945, Síða 1
PHONES 86 311
Seven Lines
IVu
uvi«é
aUd VNl For Better
Cot- ' Dry Cleaning
and Laundry
PHONES 86 311
Seven Lines
lof
ívVV©'
cot v
N\W'J
Service
and
Satisfaction
58. ÁRGANGUR
Söngvarinn og ættjarðarvinurinn
Eggert Stefánsson
Rœða flutt í kveðjusamsæti
Eftir prófessor
Eg er mjög þakklátur Icelandic
Canadian Club fyrir að hafa efnt
til þessa mannfagnaðar til heið-
urs hinum góða gesti heiman af
íslandi, Eggert Stefánssym
söngvara. Mér er einnig sérstök
ánaegja að því að geta verið í
hópi þeirra mörgu, sem hér hafa
safnast saman til þess að votta
honum vinsemd og virðingu, því
með okkur er ágæt vinátta. Bar
fundum okkar oft saman á ís-
landi og kom það brátt á dag-
inn, að við áttum mörg sameig-
inleg áhugamál að því er snertir
hina íslenzku þjóð og menningu
hennar. Við eigum einnig sam-
eiginlega minningarnar glæsi-
tegu frá hátíðaihöldunum ógleym
anlegu þegar lýðveldið var end-
urreist á íslandi og þjóðin öll
varð sem einn maður í fagnaðar-
ríkri hrifningu yfir endurbornu
frelsi og fullu sjálfsforræði.
Minningar frá þeim söguríku og
sigurbjörtu dögum munu jafnan
tengja alla íslendinga saman,
ekki síst þá, sem urðu þeirrar
gæfu aðnjótandi, og þeir voru
uaargir, að vera viðstaddir hátíða
höldin sjálf.
En mér er það einnig ánægju-
efni að taka þátt í þessum mann-
fagnaði af því að varðveita og
ávaxta sem best og sem lengst
dýrkeyptar og dýrmætar menn-
ingarerfðir okikar, vöxum við af
því í andlegum og menningarleg-
um skilningi að kunna að skilja
°g meta starf þeirra manna og
kvenna af áslenzkum stofni,
hvort sem er vestan hafs eða
uustan, sem borið hafa hátt og
fram til sigurs mehki menningar
°g lista á einhverju sviði. í þeim
hópi skipar heiðursgestur okkar
uð þessu sinni rúm sitt vel.
Hann hefir borið hróður ís-
fands víða um lönd með söng
sínum í mörgum átórborgum
Norðurálfu og yfir útvarpið í
uiörgum löndum. Með viðtölum
við erlend stórblöð, greinum sín-
um um íslenzka menningu, sér-
staklega íslenzka tónmennt, hef-
lr hann einnig unnið merkilegt
fandkynningarstarf, nytjaríkt og
þakkarvert. Hefir hann með
þ^im hætti fænt út landnám ís-
fands í hugurn erlendra manna,
vakið eftirtekt þeirra á íslenzku
þjóðinni og opnað augu þeirra
fyrir gamalli og sérstæðri menn-
iugu hennar.
Heima á Islandi hefir Eggert
Stefánsson verið brautryðjandi
1 því, með söng sínum, að kenna
þjóðinni að meta þær menning-
arlegu gersemar, sem hún á i
þjóðlögum sínum og gömlum
salmalögum. Þá hefir hann einn-
sungið inn í þjóðina ýms hin
fegurstu af nýrri lögum hennar,
naeðal annars lög Sigvalda Kalda
fóns tónskálds, bróður síns, svo
sem hið fagra lag hans við erindi
■^ggerts Ólafssonar, sem nú er að
verða annar þjóðsöngur íslend-
ina:
fsland ögrum skorið
eg vil nefna þig,
sem á brjóstum borið
°g blessað hefir mig
fyrir skikkan skaparans.
^ertu blessað, blessi þig
blessað nafnið hans.”
í Winnipeg 21. janúar 1944.
Richard Beck.
Og þessar ljóðlínur eru eins og
talaðar beint út úr hjarta Eggerts
Stefánssonar sjálfs. Djúpstæð og
einlæg ást á Isladi hefir ein-
kennt áhugamál hans og starí
allt. Hann ann hugástum fegurð
Islands, sögu þess og menningu.
Þetta er undiraldan í ritgerða-
safni hans íslands Fata Morgana
(ísland í hillingum). Hann hef-
ir mikla og bjargfasta trú á
hinni íslenzku þjóð og dreymir
stóra drauma um framtáð henn-
ar. Hann ber þá einnig á brjósti
mikinn metnað fyrir hennar
hönd og hefir verið djarfmæltur
mjög i kröfum sánum um frelsi
hennar. Stofnun lýðveldisins
var honum þvi brennandi áhuga-
mál og fagnaðarefni að sama
skapi, en jafnframt er honum
fyllilega ljóst hverja ábyrgð
þjóðin hefir lagt sér á herðar,
með stofnun þess.
Upp úr þessum jarðvegi er
sprottinn hinn skáldlegi og fagri
Óður til ársins 1944, þrunginn
ættjarðar- og hugsjónaást, sem
tók huga manna sterkum tök-
um, þegra höfundurinn las hann
upp í ríkisútvarpið islenzka á
nýársdag 1944, og áreiðanlega
átti sinn þátt i því að draga
saiman hugi manna um lýðveldis-
málið, að ekki sé sterkara að orði
krveðið.
Það er því eikki út í bláinn að
tala um Eggert Stefánsson sem
ættjarðarvin og þjóðræknis-
mann í orðsins bestu merkingu.
Því að hvað er þjóðrækni annað
heldur en ræktarsemi við menn-
ingarverðmæti ættstofns síns og
ættþjóðar og jafnframt trúnað-
ur við hið dýpsta og innsta í
eðli manns sjálfs. En heiðurs-
gestur okkar hefir eigi aðeins
kunnað að meta þenna menning-
arlega arf, sem íslenzk fortíð
hefir fengið okkur í hendur.
Hann kann engu síður að meta
þau verðmæti á hinum ýmsu
sviðum þjóðmenningar, sem
hafa skapast á Islandi á síðari
árum og eru að skapast þar.
Og eins og þegar hefir verið
vikið að, elur hann í brjósti
djarfa drauma um framtíðar-
menningu hinnar íslenzku þjóð-
ar. Hann hefir, með öðrum orð-
um, sameinað vei þá hugsjón,
sem Stephan G. Stephansson
túlkaði fagurlega í þessum ljóð-
línum sínum:
“Vinur aftansólar sértu,
sonur morgunroðans vertu.”
Eggert Stefánsson hefir flutt
okkur hingað um haf andblæ
íslenzkra fjalla og fjarða inn í
vetrarríkið hérna vestur á slétt-
unum; það sem enn meir er um
vert, hann hefir látið okkur finna
anda hins nýstofnaða íslenzka
lýðveldis, þann hlýja anda hrifn-
ingar og vakningar, sem maður
fann streyma um sig hvarvetna
á íslandi síðastliðið sumar.
I nafni Þjóðræknisfélagsins og
í eigin nafni þakka eg honum
því hjartanlega komuna á þess-
ar slóðir og óska honum ánægju
og heilla á ferðum hans í landi
hér og góðrar heimkomu til
“gamla landsins, góðra erfða”.
En um annað fram óska eg
honum þess, að thann megi enn
um langt skeið halda áfram að
glæða ást íslendinga á marg-
þættum menningararfi þeirra,
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 1. FEBRÚAR, 1945
NÚMER 5
FALLINN í ORTJSTU
Lieut. Mayo L. Johnson
Þann 5. nóvember síðastliðinn,
féll í orustu í Luxenburg Lieut.
Mayo L. Johnson, sonur þeirra
Gunnlaugs T. Johnson og konu
hans Victoriu Johnson, sem bú:
sett eru í borginni Fargo í North
Dakota; Iþessi ungi maður, sem
lét líf sitt í þjónustu lands og
þjóðar, var fæddur í Pembina-
héraði, og átti þar theima sín
fyrstu uppúaxtarár; hann innrit-
aðist í Bandaríkjaher-inn í nóv-
embermánuði 1942. en hlaut her-
foringjatign að loknu námi að
Ft. Benning í Georgia, þann 17.
júní 1943.
I maímánuði 1944 fór Lieut.
Johnson austur um haf, dvaldi
fýrst á Englandi. en tók síðar
þátt í baráttunni um Frakklanc
og á öðrum vígstöðvum Norður
álfunnar; hann var mikils virtur
máður hvar sem leið hans lá.
FRÁ SENDIRÁÐI ÍSLANDS
í WASHINGTON
Sendiráðið leyfir sér hér með
að skýra yður frá því, að það
hefir nýlega frétrt að dr. Stefán
Einarsson hefir þann 6. janúar
1945 verið skipaður prófessor í
nofrænum fræðum (Professor of
Scandinavian Philology) við
Jöhns Hopkins háskólann í
Baltimore.
Dr. Stefán var áður prófessor
í forn-ensku við þennan háskóla.
Virðingarfyllst,
Thor Thors.
FYLKISÞINGMAÐUR
LÁTINN
Síðastliðinn mánudag lézt á
St. Bonilface sjúkrahúsinu, að
undangengnum uppskurði, Mr.
A. Lloyd Clark, fylkisþingmað-
ur fyrir St. Boniface, 48 ára að
aldri; hann var fæddur í bænum
Cornwall í Ontariofylkinu, en
kom til Manitoba árið 1918, og
átti þar búsetu jafnan síðan.
Mr. Clark tók um langt skeið
virkan þátt í íþrótta- og mann-
félagsmálum; hann var fyrst kos-
inn á fylkisþing árið 1941 sem
frambjóðandi af hálfu Liberal-
flokksins.
BERLÍNARBÚUM ÓRÓTT
Það hafa nýjar fregnir fyrir
satt, að svo sé Berlínarbúum
orðið órótt innanbrjósts upp a
Síðkastið, að næst gangi upp-
reisn; borgarbúar hafa þáb á
meðvitundinni, að Þýzkaland
hafi þegar tapað stríðinu, auk
þess sem tilfinnanlegur vista-
skortur er þar sem annarsstaðar,
mjög tekinn að sverfa að.
SÓKNIN UM ÞÝZKALAND
Nú er svo komið, að rússneski
herinn er aðeins liðugar 50 míl-
ur frá Berlín, auk þess sem sam-
einuðu herjirnir eru teknir að
rjúfa Sigfried varnarvirkin að
vestan og hafa rekið Þjóðverja
út úr Belgíu.
KYRRAHAFSSTRÍÐIÐ
Að því er allra nýjustu fregmr
skýra frá, hafa Bandaríkin kotn
ið allmiklu liði á land á norðan-
verðri Luzoney, auk þess sem
hinni fyrri innrás á stöðvum þess
um hefir skilað svo áfram, þrátt
fyrir allsnarpa andspyrnu af
hálfu Japana, að amerískar her-
sveitir eiga nú einungis eftir
ófarnar 23 mílur til höfuðborgar-
innar Manila.
ÞINGROF FYRIR 17. APRÍL
Forsætisráðherrann, Mr. King,
hefir lýst yifir því, að sambands-
þing verði rofið fyrir þann 17.
apríl næstkomandi; hvenær kosn
ineiar fara fram, er enn eigi vitað,
því Mr. King lét engar upplýs-
inar í té því viðvíkjandi; þær
Durfa ekki endilega að fara fram
fyr en í júní.
AFMÆLI FORSETANS
Síðastliðinn þriðjudag átti
Roosevelt Bandaríkjaforseti 63
ára afmæli; sú er venja suður
þar, að allmikið sé um dýrðir á
afmælisdegi forsetans; en að
þessu sinni baðst Mr. Roosevelt
undan öllu slíku, en vann á skrif-
stofu sinni allan daginn og ræddi
við ráðherra sína og hernaðar-
völd um framvindu stríðsins og
önnur vandamál amerísku þjóð-
arinnar; hann er sami kappsami
starfsmaðurinn þó áhrif lömun-
arveikinnar verði honum sam-
ferða til æviloka.
AUKAKOSNINGAR
í GREY NORTH
Eins og vitað er, fer fram auka-
kosning í Grey North kjördæm-
inu 5. febrúar næstkomandi;
leitar þar kosningar af hálfu
Liberalflokksins hinn nýi her-
málaráðherra sambandsstjórnar-
innar, Gen. McNaughton, auk
þess sem Progressive Conserva-
tivar og C.C.F. hafa þar einnig
frambjóðendur í kjöri. Kosning
þessi er sótt af kappi miklu, en
eftir því sem nýjustu fregnir
herma, er það staðhæft, að Mr.
Naughton sé að aukast svo fylgi,
að nokkurn veginn megi teljaf
víst. að hann nái kosningu.
Auk foreldra sinna lætur
Lieut. Johnson eftir sig heitmey
sína, Miss Phyllis Cannon og
þrjá bræður og þrjár systur.
ÁTTA DAGAR
GETA RÁÐIÐ ÚRSLITUM
Sænska Dagbladed, sem gefið
er út í Stokkhólmi, vitnaði síð-
astliðinn mánudag í þýzka blaðið
Kölnartíðindi, er lét þá skoðun
sína í ljósi, að svo gæti auðveld-
lega farið, að næstu átta dagarn-
ir, gætu auðveldlega bundið enda
á Norðurálfu styrjöldina og þá
vitanlega með fullnaðarósign
fyrir Þjóðverja. “Við höfum eng-
in Úralfjöll til hlífðar”, bætti
blaðið við.
ást á landinu fagra, sem bar okk-
ur eða feður okkar og mæður á
brjósti, og ástina á fögrum og
göfugum hugsjónum. Því að
ekkert hlutverk er nauðsynlegra
eða veglegra en að vekja fólk
og hefja til “hærra lífs, til ódauð-
legra söngva”, eins og skáldið
segir.
Heilsaðu svo, góði gestur okk-
ar, íslandi og Islendingum heima
hjartanlega frá okkur löndum
þeirra hérna megin hafsins. Við
tökum undir með þeim, er þeir
syngja nú, í orðum Huldu skáld-
konu, í tilefni af tímamótunum
miklu í sögu hinnar íslenzku
þjóðar:
“Ó, ísland, fagra ættarbyggð,
um eilífð sé þín gæfa tryggð,
öll grimmd frá þinni ströndu
stygð
og stöðugt allt þitt ráð.
Hver dagur líti dáð á ný.
Hver draumur rætist verkum í,
svo verði Islands ástkær byggð
ei öðrum þjóðum háð.
Svo aldrei framar Islands byggð
sé öðrum þjóðum háð.”
Úr borg og bygð
Junior Laries Aid of the First
Lutheran Ohurch will hold the
regular meeting in the church
parlor on Tuesday afternoon,
February 6th at 2.30 o’clock.
•
Mr. G. A. Williams, kaupmað-
ur frá Hecla, dvaldi í borginm
nokkra daga í fyrri viku, en hélt
heimleiðis á laugardaginn.
•
Spin-Well Carding MaChines.
Real money-makers. Wire combs,
set in leather, any size. Spinning
wheels. Spinning Serving Mach-
ine Attachments. Ask for cata-
logue. Sifton Woll Products. Box
127, Sifton^ Man.
•
When you try to pass a car
that is going forty miles an hour.
it is as though you tried to pass
a standing string of vars 300
feet or more depending on your
speed in passing. In other words,
it is like passing at least eighteen
cars parked búmper to bumper
in the rood. If you keep this
startling fact always in mind,
the chances are that you would
never pass the car ahead of you
unless you were absolutely sure
that there were no oncoming
car for á good long distance
ahead, but accidents will happen,
so insure your car with J. J.
Swanson and Company Ltd., 308
Avenue Bldg., Winnipeg, Man.
•
Home cooking.
Hjálparnefnd Sambandssaf n •
ar efnir til útsölu á allskonar
heimatilbúnum mat, laugardag-
inn 3. febrúar næstkomandi, í
samkomusal kirkjunnar á Ban-
ning og Sargent. — Margar teg-
undir að velja um. — Munið dag
inn: 3. febrúar n. k.
Beautiful Comforters made
from your materials. Quilting
$1.85. Your wood carded 25c lb.
washing 3c lb. Quick Service.
Virgin wool batts $1.15 lb. Ask
for catalogue. Sifton Wool
Products. Box 127, Sifton, Man.
•
Jón Sigurðson félagið heldur
ársfund, þrðijudagskvöldið 6.
febrúar á heimili Mrs. H. G.
Nicholson, 557 Agnes St.
•
Athygli skal hér með leidd að
hinni nýju bók Þorsteins Þ.
Þorsteinssonar rithöfundar og
skálds, sem nú er auglýst á öðr-
um stað hér í blaðinu; bókin
heitir “Björninn úr Bjarma-
landi”, og fjallar um stjórnar-
byltinguna miklu á Rússlandi og
aðra merka viðburði veraldar-
sögunnar fram til yfirstandandi
tíðar; þetta er mikil eg vönduð
bók, sem allir þeir, sem raun-
verulegum fróðleik unna, ættu
að kynna sér og eignast; borið
saman við algengt verð íslenzkra
bóka nú á dögum, er þessi nýja
bók alveg framúr skarandi ódýr;
hún kostar í kápu aðeins $2.50,
en $3.25 í bandi. Bókin er prent-
uð hjá Columbia Press Ltd., og
þangað eiga' væntanlegir kaup-
endur að senda pantanir að henni
ásamt andvirði og 10 centa burð-
argjaldi.
•
Þeir John B. Johnson og Gunn-
ar Ólafsson frá Thornhill, Man.,
voru staddir í borginni í vik-
unni sem leið, og sátu ársþing
skólaráðsmanna sambandsinc í
Manitoba.
•
Á ársfundi fasteignakaup-
manna sambandsins í Winnipeg,
sem haldinn var á Marlborough
hótelinu á miðvikudagskvöldið í
fyrri viku, var Mr. Lincoln John-
son kjörinn til féhirðis, en Árni
G. Eggertson, K.C., hlaut kosn-
ingu sem meðstjórnandi á-
minstra samfaka.
Mr. C. Tomasson útgerðarmað-
ur frá Hecla var staddur í borg-
inni í byrjun vikunnar.
•
Þakklæti.
Gefið í byggingarsjóð Banda-
lags lúterskra kvenna.
Frá Mrs. A. G. Polson og fjöl-
skyldu hennar, Winnipeg $100.00,
í minningu um eiginmann og föð
ur, Ágúst Polson, látinn 14. okt.
1944, og son og bróður Archibald
John, er féll í stríðinu 1917.
Frá Mrs. G. Thorleifson, Lang-
ruth, $5.00, í minningu um Miss
Jóhönnu Abrahamson.
Meðtekið með þakklæti og
sa-múð.
Hólmfríður Danielson.
•
Ársfundur deildarinnar “Bár-
an”, verður haldinn í skólahús-
inu á Mountain, laugardaginn 3.
febrúar n.k. kl. 2 e. h. (Seinni
tíminn). Skýrslur yfir starf
deildarinnar á liðnu ári verða
lesnar og ræddar á þessum
fundi og því áríðandi að sem
flestir meðlimir mæti, ennfrem-
ur verða embættismenn kosnir
fyrir næsta ár.
Veitingar verða á eftir fundi.
•
Silver Tea, Home Cooking sala
Deildar 1 og 2.
Kvenfélag Fyrsta lút. safnað-
ar h'efur vinnu sína- á þessu ný-
byrjaða starfsári meó því að
deildir Nr. 1 og 2 efna til Silver
Tea, Home Cooking sölu og
White Elephant sölu í samkomu-
sal kirkjunnar á fimtudaginn
eftir miðdag, 8. febrúar, frá kl.
2,30 til 6. Salan er undir um-
sjón þessara tveggja deilda og
eru forstöðukonur þessar: Mrs.
J. Nordal, Mrs. S. Backman, Mrs.
S. Oddson, Mrs. J. W. Thor-
geirson, Mrs. J. A. Blondal og
Mrs. Carl Thorlákson.
Konurnar vonast eftir því að
safnaðarfólk og vinir safnaðar-
ins styrki þessa tilraun og fjöl-
menni. M. S. Gen, Convenor.